Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Blaðsíða 22
Á síðunni theworldsstrongest- man.com fer nú fram kosning á því hvaða kraftajötnar eigi skilið að komast í „Hall of fame“, eða frægðarhöll, sterkustu manna heims. Fólki gefst þar færi á að velja á milli sjö kraftakarla og eru tveir þeirra íslenskir, Jón Páll Sig- marsson og Magnús Ver Magn- ússon. Skal engan undra að þeir félagar séu þar á meðal þar sem báðir unnu keppnina Sterkasti maður heims fjórum sinnum. Síðdegis í gær hafði Jón Páll fengið flest atkvæði, eða 54 pró- sent greiddra atkvæða, á meðan Magnús Ver var í fjórða sæti með sjö prósent. Á meðal annarra sem tilnefndir eru er hinn fimm- faldi sigurvegari Sterkasti maður heims, Mariusz Pudzianowski, og Bandaríkjamaðurinn Bill Kazmaier sem vann keppnina þrisvar. Uppselt var á tónleika í Háskólabíói í gær til styrktar hinni tíu ára gömlu Alexöndru Líf sem berst við krabbamein sem kallast MDS. Landsfrægir tónlistarmenn spiluðu á tónleikunum, meðal annars gleðipinnarn- ir í Veðurguðunum ásamt Ingó, Jeff Who?, Páll Óskar og önfirski karlakórinn Fjalla- bræður. Alexandra greindist með hvítblæði árið 2004, þá fimm ára gömul. Hún hefur verið í lyfja- meðferð og rannsóknum síðan. Meðan fjöl- skyldan gekk í gegnum þessa ströngu og erf- iðu meðferð dundi yfir hörmulegt slys þar sem litli bróðir Alexöndru, þriggja ára gamall, drukknaði. Foreldrar Alexöndru áttu einnig litla stelpu sem var tæplega tveggja ára þeg- ar slysið gerðist. Í ágúst árið 2006 eignuðust þau svo stúlku og í október árið 2007 eignuð- ust þau dreng. Nú árið 2009, fimm árum seinna, hefur kom- ið í ljós að Alexandra er ekki lengur með hvít- blæði. Þrátt fyrir að hvítblæðið væri læknað var hún áfram mjög veik og var þess vegna í stöðugum rannsóknum sem nú hafa leitt í ljós að hún er komin með krabbamein sem kallast MDS sem nær eingöngu gamalt fólk fær. Núna í ágúst fór hún í beinmergsskipti sem er margra vikna ferli og því þurfa báðir foreldrar hennar að hætta að vinna til að geta verið hjá henni á spítalanum allan sólarhringinn. Syst- ir hennar sem er 6 ára mun gefa henni merg þannig að álagið verður mikið á alla fjölskyld- una. Fjölskyldan hefur verið búsett í Danmörku þar sem foreldrarnir hafa skipst á að vera í námi og hafa því ekki mikið handa á milli. Ágóðinn sem safnast á tónleikunum á því eflaust eftir að hjálpa fjölskyldunni mikið. birgir@dv.is Frægðarhöll kraFtajötna Guðný Jóna ÞorbJörnsdóttir Tónlistarparið Daníel Ágúst Har- aldsson og Kitty von Sometime eignuðust dóttur síðastliðinn föstudag, 11. september. Hún hefur fengið nafnið Lilja Con- stance og eftir því sem DV kemst næst heilsast móður og barni vel. Þetta er fyrsta barn Kitty en Daníel á börn af fyrra sambandi. Reyndar gott betur ef svo er hægt að orða það þar sem Dan- íel varð afi í fyrra þegar dóttir hans og Gabríelu Friðriksdótt- ur myndlistarmanns eignaðist erfingja. Skammt er stórra högga á milli hjá Daníel þessa dagana því í gær kom út nýjasta breið- skífa GusGus en eins og kunnugt er er kappinn forsprakki þeirrar vinsælu hljómsveitar. 22 þriðjudagur 15. september 2009 Fólkið Stjörnur Spiluðu til Styrktar veikri Stúlku: troðFullt hjá alexöndru Fætt tónlistarbarn „Þetta var það eina sem ég vildi í af- mælisgjöf. Að fá að fara í sjóstang- veiði,“ segir Guðný Jóna Þorbjörns- dóttir, veiðikona með meiru. Guðný hélt upp á 94 ára afmælið sitt með því að fara með fjölskyldunni í sjóstang- veiði á Stöðvarfirði á laugardaginn. „Það gekk svona líka ljómandi vel og við fiskuðum heilmikið,“ segir Guðný brött en aflinn eftir túrinn var ein 180 flök. „Maður á því nægan fisk í kist- unni í vetur.“ Guðný hefur reglulega gaman af stangveiði og er þetta í annað skipti í sumar sem hún fer í sjóstangveiði. „Ég hef líka mjög gaman af bleikj- unni. Hún er fjörug og skemmtileg og svo er alltaf gaman að veiða lax líka.“ Guðný ætlar að stunda veiðina meðan hún hefur heilsu til en það eru eflaust ekki margir á hennar aldri sem gætu haldið í við hana. „Það eru nú eflaust einhverjir,“ segir Guðný hógvær. „Hún er mikil veiðimanneskja,“ segir Steingrímur Jóhannesson son- ur Guðnýjar en hann var með í veiði- ferðinni góðu. „Þetta hefur lengi ver- ið draumur hjá henni og hún var alveg hreint harðdugleg. Steingrím- ur segir móður sinni sennilega veiði- eðlið í blóð borið en faðir hennar var sjómaður á Stöðvarfirði. „Hún hefur veitt mikið af laxi og bleikju í gegn- um tíðina. Hún veiddi til dæmis níu punda lax þegar hún var níræð.“ asgeir@dv.is mokveiddi á tíræðisaldri Guðný Jóna Þorbjörnsdóttir Er þrælvön í veiðinni og veiddi meðal annars níu punda lax þegar hún var níræð. Steingrímur Jóhannesson Hefur varla undan að gera að afla móður sinnar. Alexandra og Ronja Ronja, litla systir, gefur stóru systur sinni, Alexöndru Líf, beinmerg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.