Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Blaðsíða 11
Hvað má
geyma Hvar?
guðbjörg mattHíasdóttir, lögfræðingur Húseigendafélagsins, svarar fyrirspurnum lesenda.
Sendið fyrirspurnir á neytendur@dv.is
neytendur 15. september 2009 þriðjudagur 11
Spurning:
Nýlega breytti hússtjórn nýtingu
hjólageymslu á þann veg að aðeins
reiðhjól fá þar inni. Tvö vélhjól eru í
hjólageymslu nú og hefur hússtjórn
beðið um að þau verði fjarlægð.
Helstu málsbætur vélhjólaeigenda
eru þær að vélhjól hafa verið leyfð frá
1984 auk þess sem bílastæði við hús-
ið eru af skornum skammti. Getur
hússtjórn takmarkað þegar áunna
hefð vélhjóla í hjólageymslu?
Svar:
Húsfélög hafa vald til þess að setja
húsreglur um nýtingu og um-
gengni á sameign. Svo lengi sem
slíkar reglur eru innan ramma
laga og hafa fengið lögformlega af-
greiðslu í samræmi við lög um fjöl-
eignarhús binda þau alla eigendur.
Húsreglur þarf aða taka fyrir á lög-
lega boðuðum húsfundi þar sem
meirihluti bæði miðað við fjölda
og hlutfallstölur ljáir þeim sam-
þykki. Þó er ekki heimilt að breyta
nýtingu rýmis með slíkum regl-
um sem sérstaklega er ætlað fyrir
til dæmis þvottahús eða geymslu
hjóla samkvæmt teikningu þannig
að slík not séu alfarið felld niður
og rýmin tekin til nýtingar fyrir allt
aðra hluti, nema allir samþykki.
Hægt er hins vegar að setja al-
mennar reglur um nýtingu þvotta-
húsa svo sem með því að úthluta
hverjum og einum tiltekna daga og
þess háttar. Með sama hætti get-
ur húsfélag sett reglur um að ein-
göngu megi geyma reiðhjól í hjóla-
geymslu. Fyrri háttur á nýtingu
hjólageymslu svo sem geymsla
vélhjóla breytir því ekki. Um er að
ræða takmörkun sem rúmast inn-
an þeirra marka sem húsfélögum
eru sett.
Samkvæmt lögum um fjöleign-
arhús ber hverjum eiganda að taka
sanngjarnt og eðlilegt tillit til ann-
arra við hagnýtingu sameignar og
fara í hvívetna eftir löglegum regl-
um og ákvörðunum húsfélagsins
varðandi afnot hennar. Svo lengi
sem rétt var staðið að setningu
þessa reglna þá binda þær alla eig-
endur. Sjá einnig að nokkru svar
við næstu spurningu.
Spurning:
Ég bý í blokk þar sem sífellt er verið
að deila um það hvort geyma megi
dót á sameign svo sem skó, komm-
óðu og fleira. Konan á annarri hæð
hefur lagt undir sig stigapallinn og
aðrir eru einnig með dót á pöll-
um fyrir framan hurðir en þó ekki
eins mikið. Eins og gefur að skilja er
meira áberandi það dót sem allir sjá
á fyrstu hæðunum og fólk er ekki sátt
við að þurfa að halda sínum pöllum
auðum, meðan konan á annarri
er með frítt spil. Hvaða reglur gilda
um þessa hluti? Má geyma dót á
sameign?
Svar:
Um er að ræða mjög algengt
þrætuefni. Ef sátt ríkir ekki um nýt-
ingu sameignar gildir að óheimilt
er að geyma muni á sameign. Mik-
ilvægast er að taka á þessum mál-
um á húsfundum og móta ákveðna
stefnu en vænlegast er að taka á
þessum málum með skýrum hús-
reglum. Algengt er að í húsregl-
um sé að finna ákvæði þess efnis
að óheimilt sé að geyma skótau og
aðra persónulega muni á sameign.
Í málum af þessum toga sem
komið hafa til kasta kærunefndar
fjöleignarhúsamála hefur nefnd-
in úrskurðað svo að óheimilt sé að
geyma skótau eða húsgögn á sam-
eign án samþykkis meðeigenda. Í
sumum fjölbýlishúsum ríkir þegj-
andi samkomulag um að hver og
einn megi geyma skótau fyrir fram-
an hurðar og aðra smálega hluti. Í
öðrum húsum er sífelldur ágrein-
ingur um þessi málefni. Til eru
dæmi þess að húsfélög komi fyrir
hillum til dæmis undir stiga á jarð-
hæð þar sem íbúum er heimilt að
geyma vinnuskó, gönguskó, línu-
skauta og þess háttar. Einnig eru til
dæmi um að húsfélög heimili eina
skóhillu af tiltekinni stærð og gerð
á tilteknum stað fyrir framan hurð-
ar. Allt fer þetta eftir húsnæðinu og
vilja íbúa hvaða lausnir er hægt að
finna á þessum málum. Algengast
er þó að blátt bann sé við geymslu
einkamuna á sameign.
Ef ekki er að finna heimild í hús-
reglum til geymslu muna á sam-
eign, verður hver og einn að halda
einkamunum innan séreignar eða
virkja húsfélagið til að setja rýmri
reglur til að heimila þá nýtingu
sem viðkomandi eigandi leggur til.
Í lögum um fjöleignarhús segir að
eigendum beri skylda til að ganga
þrifalega um sameign og taka
sanngjarnt og eðlilegt tillit til ann-
arra við hagnýtingu sameignar og
fara í hvívetna eftir löglegum regl-
um og ákvörðunum húsfélagsins
varðandi afnot hennar. Jafnramt
er þeim óheimilt að nota sameig-
inlegt húsrými til annars en það
er ætlað. Í lögunum er einnig skýrt
tekið fram að einstökum eiganda
verði heldur ekki fenginn aukinn
og sérstakur réttur til hagnýtingar
sameignar umfram aðra nema allir
eigendur ljái því samþykki.
Síðast en ekki síst er eiganda
óheimilt á eigin spýtur að fram-
kvæma nokkrar breytingar á sam-
eign eða helga sér til einkanota til-
tekna hluta hennar. Eigandi getur
þannig ekki öðlast sérstakan rétt
til sameignar á grundvelli hefð-
ar, hvorki eignarrétt né aukinn af-
notarétt.
Persónulegir munir á
sameign „Algengt er að í
húsreglum sé að finna ákvæði
þess efnis að óheimilt sé að
geyma skótau og aðra per-
sónulega muni á sameign.“
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Hraun er nýtt íslenskt rúmfatamynstur frá Lín
Design. Rúmfatnaðurinn er ofinn úr 340
þráða bómull sem verður mjúk og þægileg.
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Hraun
Nýtt íslenskt rúmfatamynstur
30% kynningarafsláttur
Verð áður 9.890, verð nú 6.930 kr.
Hægt að banna vélhjól
Húsfélag getur sett reglur um að
eingöngu megi geyma reiðhjól í
hjólageymslu, jafnvel þó vélhjól
hafi verið geymd þar fram að
því. mynd PHotos.com