Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Blaðsíða 16
Jóhann Pétur Malmquist prófessor við HÍ Jóhann fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1970, BS-prófi í stærðfræði og eðlis- fræði frá Caroll College, Wisconsin í Bandaríkjunum, 1973, og doktors- prófi í tölvunarfræði frá ríkisháskól- anum í Pennsylvaníu 1979. Jóhann var kerfisfræðingur hjá IBM á Íslandi 1973, kennari við ríkis- háskólann í Pennsylvaníu 1976, vís- indamaður við IBM Thomas J. Watson Research Center í New York 1979-’80, deildarverkfræðingur hjá fjármála- ráðuneytinu 1980-’85 og vann þar við að skipuleggja tölvuvæðingu rík- isstofnana, var aðjúnkt við HÍ 1980- ’83, dósent í hlutastarfi 1983-’85 og hefur verð prófessor við HÍ frá 1985. Þá vann hann að rannsóknum í hóp- vinnukerfum við MCC í Austin Texas, 1989-’90. Jóhann var forseti raunvísinda- deildar 1997-’99, formaður tölvun- arfræðiskorar 1988-’89 og 1995-’97, formaður Félags háskólakennara 1988-’90, hefur setið í ýmsum nefnd- um innan HÍ, sat um árabil i stjórn Skýrslutæknifélags Íslands, var einn af stofnendum Rótarýklúbbsins Reykjavík-Árbær 1990 og forseti hans 1994-’95. Jóhann hefur tekið þátt í að stofna á annan tug sprotafyrirtækja og meiri- hluti þeirra hefur verið að þróa vörur á alþjóðlegan markað. Meðal þeirra fyrirtækja má nefna GoPro sem hlaut útflutningsverðlaun forseta Íslands 2001 og bæði IBM og Microsoft eru að selja afurðir fyrirtækisins. Þá má nefna bandaríska fyrirtækið Globe Tracker sem var að semja við kín- versk stjórnvöld í ágúst sl. og Tunerif- ic sem þróað hefur gítarstilli fyrir far- síma sem Nokia er að dreifa. Jóhann hefur verið ráðgjafi hjá erlendum fyr- irtækjum og má þar m. a. nefna Apple Computer og Software AG. Fjölskylda Jóhann kvæntist 19.8. 1972 Svönu Friðriksdóttur, f. 31.12. 1951, kenn- ara. Hún er dóttir Friðriks B. Sig- urbjörnssonar, skrifstofumanns í Reykjavík, og Svanfríðar Friðjóns- dóttur sem er látin. Börn Jóhanns og Svönu eru Skúli Friðrik, f. 14.3. 1973, kvikmynda- framleiðandi en eiginkona hans er Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir f.14.9. 1974, sérfræðingur hjá Sam- einuðu þjóðunum í New York og dóttir þeirra er María Svanfríður f. 13.3. 2006, en fósturdóttir Skúla og dóttir Aðalheiðar er Ingibjörg Þórunn Ingvadóttir f. 8.3. 2002; Ari Benóný, f. 10.8. 1978, búsettur í Reykjavík en sonur Ara og Katrín- ar Friðriksdóttur er Friðrik f. 14.3. 2003; Ásta Berit, f. 14.7. 1980, nemi í arkitektúr í Kaupmannahöfn, sam- býlismaður er Snorri Páll Sigurðs- son, verkfræðingur og eru þau bú- sett í Kaupmannahöfn. Bróðir Jóhanns er Guðmundur Malmquist, f. 13.1. 1944, fyrrverandi forstjóri Byggðastofnunar, kvæntur Sigríði J. Malmquist. Hálfsystir Jóhanns, samfeðra, er Þórdís R. Malmquist, f. 30.5. 1950, félagsliði við hjúkrunarheimili aldr- aðra í Grindavík, gift Konráði Fjeld- sted, bifreiðaskoðunarmanni. Foreldrar Jóhanns: Eðvald Brun- steð Malmquist, f. 24.2. 1919, d. 17.3. 1985, ráðunautur í Reykjavík, og k.h., Ásta Thoroddsen, f. 6.1. 1916, d. 20.3. 1998, skrifstofumaður. Ætt Systir Eðvalds var Hildur, móðir Páls heitins Stefánssonar kynning- arstjóra og Stefáns Stefánssonar, framkvæmdastjóra Húss verslun- arinnar. Eðvald var sonur Jóhanns Péturs Malmquist, b. í Borgargerði í Reyðarfirði, bróður Péturs, afa Helga Jóhannssonar sem var for- stjóri Samvinnuferða-Landsýnar. Jóhann Pétur var sonur Jóhanns, b. í Áreyjum Péturssonar, og Jóhönnu Indriðadóttir, hreppstjóra í Selja- teigi Ásmundssonar. Móðir Eðvalds var Kristrún ljós- móðir, systir Hildar, ömmu Regínu fréttaritara og Guðrúnar, ömmu Eyjólfs Kjalars Emilssonar heim- spekings. Kristrún var dóttir Bóas- ar, b. í Stakkagerði og á Stuðlum í Reyðarfirði, bróður Bóelar, lang- ömmu Geirs Hallgrímssonar for- sætisráðherra. Bóas var sonur Bóas- ar, b. á Stuðlum Arnbjörnssonar, og Guðrúnar, systur Páls á Sléttu, afa Páls, afa Kjartans Gunnarsson- ar, fyrrv. framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins,og Harðar Einars- sonar hrl.. Guðrún var dóttir Jóns, gullsmiðs á Sléttu í Reyðarfirði Páls- sonar, hálfbróður Sveins, læknis og náttúrufræðings. Móðir Kristrún- ar var Sigurbjörg, systir Guðnýjar, móður Huldu skáldkonu. Sigurbjörg var dóttir Halldórs, b. á Geitafelli í Aðaldal Jónssonar, pr. og læknis á Grenjaðarstað Jónssonar, forföður ýmissa háskólakennara, s.s. Svein- björns og Sigfúsar Björnssona, Ott- ós J. Björnssonar, og Jóns Karls Frið- riks Geirssonar. Ásta var systir Dóru, móður Birg- is Bragasonar teiknara, systir Skúla, föður Einars læknis og Guðmund- ar heitins myndlistarmanns, systir Regínu, móður Smára arkitekts, og systir Þrándar kvikmyndagerðar- manns. Ásta var dóttir Guðmund- ar Thoroddsen læknaprófessors, bróður Sigurðar verkfræðings, afa Katrínar Jakobsdóttur mennta- málaráðherra, bróður Jóns skálds, Katrínar, alþm. og yfirlæknis, Krist- ínar yfirhjúkrunarkonu, Bolla borg- arverkfræðings, og Unnar, móður Skúla Halldórssonar tónskálds, föð- ur Magnúsar arkitekts. Guðmund- ur var sonur Skúla Thoroddsen, ritstjóra og alþm., bróður Þorvalds náttúrufræðings, Þórðar læknis, föður Emils tónskálds, og bróðir Sigurðar verkfræðings, föður Gunn- ars forsætisráðherra. Skúli var son- ur Jóns Thoroddsen, sýslumanns og skálds. Móðir Guðmundar var Theodóra Thoroddsen skáldkona, dóttir Guðmundar, prófasts og alþm. á Breiðabólstað Einarsson- ar, bróður Þóru, móður Matthíasar Jochumssonar skálds. Ragnar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Fossvoginum. Hann var í Fossvogsskóla, Réttarholtsskóla, lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum við Sund, stundaði nám við HÍ og lauk þaðan BA-prófi í stjórn- málafræði 2003 og lauk síðan MA- prófi í táknfræði við Háskólann í Árósum 2008. Ragnar vann við sportvöruversl- unina Vesturröst á unglingsárun- um, sinnti tómstundastörfum og hafði umsjón með leikjanámskeið- um á vegum ÍTR í nokkur sumur og starfaði auk þess við hreinsun- ardeild Reykjavíkurborgar í nokkur sumur. Hann er nú texta- og hug- myndasmiður hjá Íslensku auglýs- ingastofunni. Ragnar æfði og keppti í knatt- spyrnu með Víkingi á unglingsár- unum. Fjölskylda Kona Ragnars er Árný Þórarins- dóttir, f. 29.1. 1979, arkitekt. Dætur Ragnars og Árnýjar eru Iðunn Ragnarsdóttir, f. 5.4. 2005; Þórdís Ragnarsdóttir, f. 15.4. 2009. Hálfsystkini Ragnars, sam- mæðra, eru Sigríður Kolbeins- dóttir, f. 16.10. 1956, móttökurit- ari hjá Samtökum atvinnulífsins; Þorbjörg Kolbeinsdóttir,f. 9.8. 1960, endurskoðandi; Ingólfur Kolbeinsson, f. 11.4. 1966, kaup- maður; Ingibjörg Kolbeinsdóttir, f. 25.8. 1967, lyfjatæknir. Hálfsystkini Ragnars, sam- feðra, eru Tómas Jónsson, f. 28.4. 1959, kennari; Jónína Steinunn Jónsdóttir, f. 6.8. 1961, kennari. Foreldrar Ragnars eru Jón Grétar Guðmundsson, f. 26.7. 1936, rafvirkjameistari í Reykjavík, og Sesselja Ólafía Einarsdóttir, f. 21.8. 1938, sjúkraliði. Ragnar Jónsson auglýsingamaður Í reykjavÍk Fjóla fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Breiðholtinu. Hún var Hóla- brekkuskóla, lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, stundaði síðan nám við Kennarahá- skóla Íslands og lauk kennaraprófi 2009. Fjóla vann hjá Bónus um tví- tugt, var sölumaður hjá Ferskum kjötvörum um skeið og starfaði hjá Tryggingastofnun í tvö ár. Hún er nú kennari við Vogaskóla í Reykjavík. Fjölskylda Dóttir Fjólu Kristínar og Birgis Þórs Birgissonar er Eva Rós, f. 9.9. 1997. Systkini Fjólu: Sóldís Björk Traustadóttir, f. 24.6. 1965, kennari í Mosfellsbæ; Hannes Þór Trausta- son, f. 27.4. 1967, d. 17.12. 2000; Ríkharður Traustason, f. 31.3. 1968, sendibílstjóri í Reykjavík; Trausti Traustason, f. 10.11. 1981, sendibíl- stjóri í Kópavogi. Foreldrar Fjólu eru Trausti Tóm- asson, f. 31.5. 1939, sendibílstjóri í Reykjavík, og Jóhanna Guðrún Krist- jánsdóttir, f. 11.5. 1943, starfsmaður við leikskóla. 30 ára í dag 30 ára n Alina Marin Hjaltason Berjarima 16, Reykjavík n Petra Steinunn Sveinsdóttir Breiðvangi 3, Hafnarfirði n Michal Jan Binczycki Neshaga 9, Reykjavík n Helgi Gíslason Vatnsendabletti 721, Kópavogi n Njáll Björgvinsson Framnesvegi 3, Reykjavík n Fanney Jóhannsdóttir Laufrima 34, Reykjavík n Gestur Kolbeinn Pálmason Hverafold 128, Reykjavík n Ómar Magnússon Hvassaleiti 29, Reykjavík n Tryggvi Þorgeirsson Marargötu 1, Reykjavík n Þóra Steinunn Harðardóttir Dvergabakka 20, Reykjavík n Grétar Þór Reinhardsson Smáratúni 13, Reykja- nesbæ n Rebekka Ýr Helgudóttir Blöndubakka 7, Reykjavík 40 ára n Ágúst Sigurjón Harðarson Jaðarsbraut 35, Akranesi n Árný Anna Svavarsdóttir Klapparbergi 4, Reykjavík n Guðmundur V Guðmundsson Selásbl Víðivöllum, Reykjavík n Katrín Einarsdóttir Reynihvammi 10, Kópavogi 50 ára n Erna Einarsdóttir Túngötu 14, Álftanesi n Gunnar Gunnarsson Rauðarárstíg 33, Reykjavík n Sveinbjörg Hrólfsdóttir Urðarstíg 10, Hafnarfirði n Lilja Guðrún Friðriksdóttir Engjaseli 87, Reykjavík n Davíð Steinþór Ólafsson Klukkurima 51, Reykjavík n Hanna Marinósdóttir Unufelli 29, Reykjavík n Oddur Björnsson Mjóstræti 2b, Reykjavík n Ásta Sólveig Hreiðarsdóttir Nónhæð 3, Garðabæ n Hólmgeir Páll Baldursson Engjavegi 6, Ísafirði n Ástríður Ingibjörg Hannesdóttir Sólheimum 18, Reykjavík n Helga Hannesdóttir Grensásvegi 58, Reykjavík n Ragnar Hjörtur Kristjánsson Álfaskeiði 125, Hafnarfirði n Grzegorz Brzósko Króktúni 6, Hvolsvelli n Gylfi Magnús Einarsson Viðarási 75, Reykjavík n Þórunn Freydís Sölvadóttir Sæbakka 3, Nes- kaupstað 60 ára n Klara Shakovych Ósbotni, Hellu n Margrét Kristjánsdóttir Hvassaleiti 29, Reykjavík n Sigríður I Magnúsdóttir Meðalbraut 6, Kópavogi n Hanna Þórarinsdóttir Stigahlíð 20, Reykjavík n Sjöfn Erlingsdóttir Skálanesgötu 3, Vopnafirði n Theódóra Óladóttir Þúfukoti, Mosfellsbæ n Sigtryggur Karlsson Vogabraut 48, Akranesi n Stefanía Sigurgeirsdóttir Aðalbraut 65, Rauf- arhöfn n Baldur Ketilsson Túngötu 17, Grindavík n Frank Guðmundsson Túngötu 20, Ísafirði n Sverrir Örn Kaaber Gerðhömrum 13, Reykjavík n Málfríður Baldursdóttir Maltakri 9, Garðabæ 70 ára n Sveinn Árni Guðbjartsson Dalbraut 3, Hnífsdal 75 ára n Kristján Helgason Vallholti 15, Ólafsvík n Sigvaldi Hlöðver Gunnarsson Hofteigi 22, Reykjavík n Sólveig Erla Brynjólfsdóttir Vesturbrún 10, Flúðum n Hermann Gunnarsson Álfhólsvegi 90, Kópavogi n Ólafur Lárusson Hafnargötu 65, Reykjanesbæ n Ólafur Axel Jónsson Fornósi 13, Sauðárkróki 80 ára n Guðjón Karlsson Sóleyjarima 9, Reykjavík n Svava Alexandersdóttir Arnarsmára 2, Kópavogi n Sveinn Guðmundsson Aðalstræti 8, Reykjavík n Guðrún Andrésdóttir Hólavegi 32, Sauðárkróki n Eva María Þórarinsson Ásbraut 11, Kópavogi n Stefán Valdimarsson Skipholti 21, Reykjavík n Ingiríður O Snæbjörnsdóttir Grænumörk 2, Selfossi n Margrét Árnadóttir Flúðabakka 4, Blönduósi 85 ára n Rósa Ólafsdóttir Marbakka 14, Neskaupstað n Ingibjörg Sigurðardóttir Lagarási 17, Egilsstöðum n Þórhalla Þorsteinsdóttir Lónabraut 17, Vopna- firði n Guðmundur Helgi Sigurjónsson Strandgötu 40, Neskaupstað Til hamingju með afmælið! 60 ára í dag 16 þriðjudagur 15. september 2009 ættfræði 30 ára á fösTudag Fjóla Kristín Traustadóttir kennari Í reykjavÍk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.