Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Side 17
Heiðar Heim til Watford Dalvíkingurinn Heiðar Helguson er
farinn á láni frá enska Championship-liðinu QPR til Watford en þar verður
hann í það minnsta fram að áramótum. Félögin náðu samkomulagi um
þetta í gær en Heiðar gekk í raðir QPR í byrjun árs. Hjá Watford þekkir
Heiðar hvern krók og kima en þar lék hann við góðan orðstír í fimm og
hálft tímabil eða þar til Chris Coleman fékk hann til Fulham í úrvalsdeild-
ina. Þaðan lá leiðin til Bolton áður en hann samdi við QPR. Heiðar verður
ekki með Watford þegar liðið mætir Plymouth í kvöld en ætti að vera klár
um helgina að leika í sínum fyrsta leik fyrir Watford í langan tíma.
„Ég er orðlaus,“ sagði belgíska tenn-
iskonan Kim Clijsters eftir að hafa
borið sigur úr býtum á opna banda-
ríska mótinu í tennis á sunnudags-
kvöldið. Vann hún í úrslitum hina
dönsku Caroline Wozniacki í tveim-
ur settum, 7-5 og 6-3. Þetta er ann-
ar sigur Clijsters á risamóti en fyrir
fjórum árum vann hún sama mót.
Clijsters fullkomnaði endurkomu
sína í tennisheiminn með sigrin-
um en hún hefur verið í tveggja ára
fríi frá íþróttinni gagngert til þess að
koma fjölskyldu á koppinn.
Hún sleit sambandi sínu við fyrr-
verandi stigahæsta tenniskappa
heims, Leyton Hewitt, aðeins nokkr-
um dögum fyrir giftingu þeirra árið
2004 og tók upp samband við am-
erískan körfuboltakappa sem leikur
í Belgíu. Þau eignuðust svo dóttur í
fyrra sem sprangaði um völlinn með
mömmu sinni í New York á sunnu-
dagskvöldið en Clijsters er fyrsta
mamman sem vinnur risamót í 29
ár.
„Síðustu vikur hafa verið frábær
tími. Þetta er aðeins fyrsta risamót-
ið sem ég keppi á síðan ég kom
aftur en ég hef samt ekkert verið
stressuð. Nema kannski í úrslita-
leiknum því honum fylgir eðlilega
alltaf ákveðið stress. Ég lék samt
ekki jafn vel og til dæmis gegn Ser-
enu Williams í undanúrslitunum.
Þetta var ekki minn besti leikur
en ég gerði það sem þurfti og það
skiptir öllu máli,“ sagði Clijsters eft-
ir sigurinn.
Eiginmaður Clijsters fylgdi
henni allt mótið og fékk litla stelp-
an Jade að vaka og horfa á mömmu
sína vinna titilinn. Forgangsröðin
er alveg á hreinu hjá þeirri belg-
ísku. „Fjölskyldan skiptir mig enn
mestu máli en sem móðir viltu allt-
af passa að öllum líði vel. En eins
og staðan er núna er ég ánægð að
geta spilað tennis sem mér finnst
mjög gaman og samræma það fjöl-
skyldulífinu,“ sagði Kim Clijsters.
tomas@dv.is
Fullkomin endurkoma hjá Kim Clijsters:
fyrsti mömmusigurinn í 29 ár
Besta Högg
ferilsins
Besti tennisleikari heims, Svisslend-
ingurinn Roger Federer, átti
sannkallað draumahögg í undanúr-
slitaleik á US Open, opna banda-
ríska, gegn serbanum Novak
Djokovic. Djokovic vippaði þá
boltanum yfir Federer sem elti
boltann út að endalínunni og skaut í
gegnum klofið á sér, yfir netið, út við
hornið hinum megin og vann sér
inn ótrúlegt stig. Hann vann svo
næstu rispu líka og þar með leikinn.
„Þetta var besta högg mitt á
ferlinum. Við æfum þetta alveg
reglulega en það tekst aldrei svona
til. Þetta var hreint ótrúlegt og líka
þegar það skipti svona miklu máli,“
sagði Federer skælbrosandi.
trúir á marquez
Hnefaleikakappinn fyrrverandi Oscar
De La Hoya, oft nefndur gulldrengur-
inn, hefur trú á því að Mexíkóinn
Juan Manuel Marquez verður fyrstur
til að leggja Bandaríkjamanninn
kjaftfora Floyd Mayweather Jr. að
velli. Kapparnir mætast í hringnum
um næstu helgi en Mayweather
hefur verið í fríi frá íþróttinni síðan
hann rotaði Ricky Hatton auðveld-
lega í Las Vegas. „Ég hef það
sterklega á tilfinningunni að
Marquez vinni þennan bardaga. Ég
kíkti á æfingu hjá honum og hann
virkar ógnarhraður og sterkur. Ég
held að hann muni koma Mayweath-
er í opna skjöldu,“ segir gulldrengur-
inn en Mayweather hefur aldrei
tapað og er almennt talinn besti
hnefaleikakappi heims.
Kristín inn
fyrir dóru
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
landsliðsþjálfari kvenna í knatt-
spyrnu neyddist í gær til að gera eina
breytingu á landsliðshópnum sem
mætir Eistlandi í undankeppni
heimsmeistaramótsins á fimmtudag-
inn. Miðjumaðurinn Dóra Stefáns-
dóttir þurfti að draga sig úr hópnum
vegna meiðsla en í hennar stað
kemur framherji Vals, Kristín Ýr
Bjarnadóttir, sem hefur farið á
kostum með Hlíðarendastúlkum í
sumar. Kristín var í EM-hópi Sigurðar
í Finnlandi en þurfti þar að verma
tréverkið eins og aðrir framherjar
fyrir Margréti Láru Viðarsdóttur.
UMSJóN: tóMaS ÞóR ÞóRðaRSON, tomas@dv.is
sport 15. september 2009 þriðjudagur 17
Kjartan Henry Finnbogason, fram-
herji hjá skoska liðinu Falkirk, fékk
heldur betur að kynnast bresku
pressunni í gær en sum blöð – eða
einstaka blaðamaður – þar á bæ
hafa oft ekkert sett það sem for-
gangsatriði að segja alltaf satt og
rétt frá. Því brá Kjartani heldur bet-
ur þegar hann opnaði skoska blað-
ið Sunday Mail á sunnudaginn til
að skoða viðtal sem hann vissi að
ætti að birtast við sig. Hlátur varð
hins vegar fljótlega að gráti þeg-
ar hann sá fyrirsögnina yfir heilli
opnugrein með mynd af sér: „Eið-
ur Smári sagði að ég gæti orðið
besti íslenski leikmaðurinn fyrr og
síðar,“ en sú fyrirsögn átti við engin
rök að styðjast.
Mikill áhugi á Eiði
„Mér var sagt að þessi blaðamað-
ur væri góður gæi,“ sagði Kjartan
Henry við DV í gær. „Það átti að
vera viðtal við mig til að hita upp
fyrir sjónvarpsleikinn gegn Aber-
deen í kvöld [gærkvöld]. Þessi gæi
kom því upp á völl og við settumst
niður og fórum að spjalla í róleg-
heitum,“ hélt hann áfram.
Blaðamaðurinn hafði mikinn
áhuga á Eiði Smára og tengslum
hans við Kjartan. Tengsl sem eru
engin. „Hann sagðist hafa lesið ein-
hvers staðar um mig að Eiður hefði
sagt þetta sem stóð í fyrirsögninni.
Ég sagði að ef svo væri þá væri það
gaman en ég efaðist um að ég gæti
staðið undir því,“ sagði Kjartan við
DV en í skoska blaðinu er látið líta
út fyrir að fullyrðingin sem blaða-
maðurinn spurði hann um komi
frá Kjartani.
Pabbi var ekki umboðsmaður
Eiðs
Áfram var spurt um Eið. „Blaða-
maðurinn spurði mig hvort ég
þekkti hann. Ég sagðist ekkert
þekkja hann en einu sinni hefði ég
farið á æfingu hjá KR á sama tíma
og hann þegar ég var að halda mér
í formi yfir sumarið. Þá skrifaði
hann að ég hefði sagst hafa alist
upp með honum hjá KR en hann
ólst náttúrulega upp hjá ÍR og Val.
Ég sagði honum reyndar að fað-
ir Eiðs hefði verið umboðsmaður
minn eitt sinn. En því var einnig
snúið við þannig að pabbi minn
hefði verið umboðsmaður Eiðs. Ég
meina, það vita allir að Arnór er
umboðsmaður Eiðs. Pabbi minn
er auglýsingasölumaður!“ sagði
Kjartan.
Passar sig
næst
Þetta voru
ekki einu stað-
reyndavillurnar
í viðtalinu sem
eins og áður seg-
ir var yfir heila
opnu í blaðinu.
Meðal annars var
sagt að Kjartan hefði
heimsótt fjölskyldu
sína til Noregs um daginn
en þau hafa alla tíð búið á Ís-
landi. Einnig stóð í viðtalinu að
Kjartan hefði sagst vera að banka
á landsliðsdyrnar. „Ég sagði að ef
ég myndi standa mig í skosku
úrvalsdeildinni og skora mörk
hlyti ég allavega að vera inni
í myndinni. Það var nú það
eina,“ sagði Kjartan í gær.
Hann segist ætla að
passa sig á bresku press-
unni eftir þetta. „Ég hef
greinilega aldrei verið
svo frægur að þurfa
lenda í þessu,“ sagði
Kjartan kíminn.
„Ég mun passa
mig í framtíðinni
og bara fara með
veggjum ef ein-
hverjir vilja tala
við mig. Mér leið
alveg hrikalega
illa þegar ég sá
þetta í blaðinu
og var fljótur
að henda því
beint í ruslið,“
sagði Kjartan
Henry Finn-
bogason.
Knattspyrnumaðurinn Kjartan Henry Finnbogason sem leikur með skoska liðinu
Falkirk kom illa út í viðtali við dagblað þar í landi sem birtist á sunnudaginn. Nánast
var snúið út úr hverju orði sem Kjartan sagði og honum brá heldur betur í brún þegar
hann sá fyrirsögnina á greininni. Hún átti við engin rök að styðjast.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Var í Celtic Kjartan lék með Celtic í
Skotlandi um tíma.
Negldur af bresku
pressuNNi
Fékk að kynnast bresku
pressunni Kjartan segist ætla
að passa sig framvegis.
MyNd FÓTBOLTI.NET
Mamma Jade dóttur
Kim fannst gaman að
sjá sig á risaskjánum.