Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Qupperneq 19
Söngkonan Gwen Stefani frumsýndi nýj-ustu línuna í tískumerkinu LAMB í síðustu viku. Sýningin var hluti af tískuviku í New
York en Stefani stofnaði merkið árið 2003 og
það stendur fyrir Love, Angel, Music, Baby. Lín-
an þótti hitta beint í mark en Stefani segist hafa
spáð í tísku alla sína ævi.
„Ég hef verið í kringum tísku alla tíð. Mamma
gerði fötin mín og amma gerði fötin hennar,“ seg-
ir söngkonan en línan þykir undir sterkum áhrif-
um frá níunda áratugnum. Um línuna segir Stef-
ani sjálf að ekki sé neitt ákveðið þema í gangi.
„Þetta byrjaði með innblæstri frá Afríku og ní-
unda áratugnum en að mestu leyti eru þetta bara
föt sem er þægilegt að klæðast við öll tækifæri en
ekki bara í samkvæmum.“
Frumsýndi
nýja línu
Gwen Stefani Er
margt til lista lagt.
Nýja línan Gwen, ásamt
fyrirsætum sínum.
Allur pakkinn Línan
samanstendur af fötum,
fylgihlutum og skóm.
sviðsljós 15. september 2009 þriðjudagur 19
Þrír fyrrverandi samstarfsmenn leikkonunn-ar Megan Fox létu hana fá það óþvegið í nafn-lausu bréfi sem birtist á heimasíðu leikstjórans
Michaels Bay fyrir skömmu. Starfsmennirnir störf-
uðu, ásamt Bay og Fox, við gerð Transformers-mynd-
anna. Starfsmennirnir töldu sig tilneydda til þess að
verja Bay en Fox hefur látið nokkrar undarlega at-
hugasemdir falla um leikstjórann og meðal annars
kallað hann „Hitler“.
Í bréfinu, sem var snarlega kippt út af síðunni, var
gjörsamlega drullað yfir Fox og því lýst hversu ömur-
leg og óvönduð persóna hún væri. Bréfið er nokkuð
langt og erfitt að ímynda sér að hægt sé að gera mik-
ið minna úr einni manneskju þar sem Fox er meðal
annars sögð vera hjólhýsapakk, þokkalaus og sjálfs-
elsk með öllu.
Sjálfur segist Michael Bay ósáttur við bréfið til Meg-
an en einnig ósáttur við ummæli hennar. „Ögrandi um-
mæli hennar eru samt partur af ögrandi þokka hennar
og ég býst við því að hún muni halda þeim áfram þegar
við gerum Transformers 3,“ segir Bay um málið.
Samstarfsfólk Megan Fox
lætur hana heyra það:
Fékk það
óþvegið
Megan Fox Er alveg
hreint ömurleg, ef
marka má bréfið.
Söngkonan Lady GaGa fékk verðlaun sem besti nýliðinn á MTV-verðlaunahátíðinni,
Video Music Awards, sem fram fór
í New York í gær. Hin 23 ára GaGa
var alveg með það á hreinu hverj-
um hún tileinkaði verðlaunin.
„Þetta er fyrir Guð og hommana,“
sagði söngkonan, íklædd sennilega
sinni furðulegustu múnderingu til
þessa. Og ekki voru þær af skornum
skammti fyrir.
Söngkonan var svo með tónlist-
aratriði á hátíðinni sem endaði með
því að hún makaði sig alla út í blóði
eins og sést á myndunum.
Lady GaGa á MTV-VMA:
„Fyrir guð
og hommana“
Lady GaGa Finnst ekki
leiðinlegt að vera öðruvísi.
Gwen Stefani á tískuviku í New York:
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
Losnið við hættulega kviðfitu og komið
maganum í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama Oxy tarmið