Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Blaðsíða 2
Brasilíski morðinginn Hosmany Ramos nýtur
lífsins innan veggja Hegningarhússins. Þar hefur hann eignast
vin í Jónasi Bjarka Gunnarssyni, sem situr inni í átta mánuði
vegna súpuþjófnaðar. Ramos kláraði að skrifa bók í síðustu viku
og segir íslensk fangelsi vera á við fjögurra stjörnu hótel.
hitt málið
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Dýrkeypt strippstaðarferð
Pálmi Jónsson, fjár-
málastjóri Knatt-
spyrnusambands
Íslands, KSÍ, lýsir
alfarið yfir sakleysi
sínu af viðskipt-
um við súlustað í Sviss.
Þar voru teknar út rúmar
þrjár milljónir króna, að
þávirði, af greiðslukorti
KSÍ. Femínistafélag Íslands
krefst afsagnar stjórnenda
KSÍ sem gefa lítið út á málflutninginn. Staðfest hefur
verið að Pálmi heimsótti staðinn en hann fullyrðir að milljónirnar hafi
verið teknar af kortunum í leyfisleysi. Eftir að kortanotkunin kom í
ljós lýsti Pálmi strax yfir sakleysi sínu og bauð KSÍ að borga brúsann. Í
kjölfarið höfðaði hann mál úti í Sviss og krafðist endurgreiðslu þeirra
3,2 milljóna króna sem rukkað var um. Af þeim voru 1,5 milljónir bak-
færðar en eftirstöðvarnar, tæpar tvær milljónir, þarf Pálmi að greiða.
ríkið tekur meira til sín
Fyrirhugaðar skatta-
hækkanir ríkisstjórn-
arflokkanna munu
kosta hvern einstakl-
ing á vinnumarkaði um
5.700 krónur á mánuði. Er
þá miðað við meðallaun starfs-
fólks í fullu starfi út frá launum
á almennum vinnumarkaði árið
2008. Ef reiknað er út frá þeim
sem eru bæði í fullri vinnu og
hlutastörfum nemur hækkunin
136 krónum á mánuði.
Skattabreytingarnar koma verst
niður á þeim sem hafa í kring-
um 750 þúsund krónur í laun á
mánuði. Hjá þeim hækka skatt-
greiðslurnar um 11,5 prósent. Hins vegar lækka skattarnir um 5,4 pró-
sent hjá þeim sem hafa minna en 250 þúsund krónur í laun á mánuði.
kvarnast úr kvótakerfi
Jón Bjarnason, sjáv-
arútvegs- og land-
búnaðarráðherra, fær
heimild til að leigja út
samtals 4.000 tonna
skötuselskvóta til fiskiskipa og
útgerða á yfirstandandi fisk-
veiðiári og því næsta sam-
kvæmt nýju frumvarpi til laga
um breytingar á fiskveiðistjórn-
unarkerfinu. Ráðgert er að kíló-
verð á skötuselskvóta ríkisins
verði 120 krónur. Tekjur ríkis-
ins af kvótaleigunni gætu því
orðið um 480 milljónir króna á
tveimur árum. „Þarna er verið
að taka fyrningarleiðina á eina
tegund, skötuselinn,“ segir
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ. „Það kemur
því á óvart að þau skuli kasta
stríðshanskanum með þessum
hætti.“
2
3
1
fréttir
11. nóvember 2009 miðvikudagur 3
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, fær heimild
til að leigja út samtals 4.000 tonn af
skötusel til fiskiskipa og útgerða á yf-
irstandandi fiskveiðiári og því næsta
samkvæmt nýju frumvarpi til laga
um breytingar á fiskveiðistjórnun-
arkerfinu. Ráðgert er að kílóverð
á skötuselskvóta ríkisins verði 120
krónur. Tekjur ríkisins af kvótaleig-
unni gætu því orðið um 480 milljónir
króna á tveimur árum.
Samkvæmt frumvarpi sjávarút-
vegsráðherra verður leigður ríkis-
kvóti í skötusel ekki framseljanlegur.
Ráðgert er að andvirði kvótaleigunn-
ar renni í ríkissjóð og verði varið til
styrktar rannsóknarsjóði um aukið
verðmæti sjávarfangs og til nýsköp-
unar og atvinnuþróunar í sjávar-
byggðum.
Þetta er frávik frá ríkjandi reglu
kvótakerfisins þar sem auknar afla-
heimildir leggjast ofan á fyrirliggj-
andi kvóta skipa í þeim hlutföllum
sem hvert og eitt þeirra ræður yfir.
Landssamband íslenskra út-
vegsmanna ályktaði um fyrirhugaða
aukningu skötuselskvóta á aðalfundi
sínum um síðustu mánaðamót og
lagði ríka áherslu á að kvótanum yrði
úthlutað á skip í samræmi við afla-
hlutdeild þeirra. Útgerðirnar ráða
yfir 2.000 tonna skötuselskvóta sam-
kvæmt ráðgjöf og úthlutun síðastlið-
ið sumar.
Helmingi minni
kvótaflutningur milli ára
Samkvæmt frumvarpi sjávarútvegs-
ráðherra verður einnig dregið úr
heimild til þess að flytja kvóta milli
fiskveiðiára. Einar K. Guðfinnsson,
fyrrverandi sjávarútvegsráðherra,
heimilaði flutning á 33 prósentum af
kvóta í fyrra en Jón Bjarnason, eftir-
maður hans, ætlar nú að lækka þetta
hlutfall í 15 prósent. Ein meginástæð-
an fyrir flutningi kvóta milli ára er sú
að útgerðir geti þannig búið sig undir
samdrátt í tegundum sem ævinlega
veiðast umtalsvert sem meðafli.
Í frumvarpinu eru einnig reistar
skorður við flutningi kvóta af skipi.
Jón sagði á fundi með smábátasjó-
mönnum í síðasta mánuði að laga-
heimildin til að leyfa án íhlutunar
flutning kvóta af skipum hefði alltaf
verið umdeild. Sérstaklega ætti það
við um skip sem tækju við kvóta og
gætu í staðinn leigt frá sér meiri verð-
mæti í öðrum aflaheimildum.
Lagt af stað með
fyrningarleiðina
Landssamband íslenskra útvegs-
manna mótmælti á aðalfundi sín-
um um síðustu mánaðamót öllum
hugmyndum um endurúthlutun á
kvótabundnum tegundum eða að
ákveðnar fisktegundir yrðu teknar út
úr kvóta sem illa gengi að veiða eða
ekki hefði reynst arðbært að veiða.
„Þarna er verið að taka fyrningar-
leiðina á eina tegund, skötuselinn,“
segir Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ. „Ríkisstjórnin gaf
út yfirlýsingu í tengslum við kjara-
samningana fyrir tveimur vikum um
að sjávarútvegsmálin væru til end-
urskoðunar og í ákveðnum sáttafar-
vegi eins og það er orðað. Það kemur
því á óvart að þau skuli kasta stríðs-
hanskanum með þessum hætti. Það
er umhugsunarvert að þeir sem eiga
aflahlutdeild megi aðeins bera kvóta-
skerðingu en megi ekki njóta aukn-
ingarinnar. Þetta kemur líka á óvart
vegna þess að starfandi er nefnd sem
er að fara yfir öll þessi mál.“
Friðrik furðar sig einnig á miklum
takmörkunum frumvarpsins á flutn-
ingi aflaheimilda og segir þær óskilj-
anlegar. Þetta gengur bæði gegn
möguleikum á hagkvæmni og dregur
úr sveigjanleika. Það geta verið fiski-
fræðileg rök fyrir því að veiða ekki
upp kvótann auk þess sem gott get-
ur verið að geyma hann í sjó af mark-
aðsástæðum.“
Þúfan sem veltir hlassinu
Finnbogi Vikar, sem ritaði skýrslu
síðastliðið vor um meint brask með
vannýttar fisktegundir, situr nú í um-
ræddri nefnd sjávarútvegsráðherra.
Hann segir að með frumvarpinu
séu stjórnvöld að senda handhöfum
kvótans skilaboð um að þjóðin eigi
kvótann. „Þau eru að segja kvótahöf-
um að auðlindin í hafinu sé þjóðar-
eign og löggjafinn og framvæmda-
valdið geri nauðsynlegar breytingar á
kvótaúthlutun til að hámarka arðinn
fyrir samfélagið. Þetta kann að vera
þúfan sem veltir hlassinu.“
Jón Bjarnason
Friðrik J. Arngrímsson
RÁÐHERRANN BÝÐUR
SÆGREIFUM BIRGINN
„Það kemur því á óvart
að þau skuli kasta
stríðshanskanum með
þessum hætti.“
JóHAnn HAuksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
sjávarútvegsráðherrann
Margar smávægilegar
breytingar í frumvarpi Jóns
Bjarnasonar grafa undan
ríkjandi kvótakerfi.
Grafið undan kvótakerfinu
„Það er umhugsunarvert að þeir
sem eiga aflahlutdeild megi
aðeins bera kvótaskerðingu en
megi ekki njóta aukningarinnar,“
segir Friðrik J. Arngrímsson.
Þúfan sem veltir hlassinu
Finnbogi Vikar segir að með
frumvarpinu sendi stjórnvöld
kvótahöfum skilaboð um
að þjóðin sé raunverulegur
eigandi auðlindarinnar.
HÆkkA
RóNUR
þá sem hafa tekjur umfram 500 þús-
und krónur. Af þeim þarf að borga
47,1 prósents tekjuskatt. Persónu-
afsláttur helst þó óbreyttur í 42.200
krónum.
Lilja staðfestir tillögurnar
„Þetta eru tillögur sem vinnuhópur
er að ræða ásamt mörgum öðrum til-
lögum,“ segir Lilja Mósesdóttir. Hún
segir að þær tillögur sem RÚV sagði
frá hugnist henni vel. Umræða hafi
líka komið upp um að hækka per-
sónuafsláttinn í samræmi við hækk-
un tekjuskatta. „Það er sú leið sem
sjálfstæðismenn hafa yfirleitt far-
ið í samdrætti,“ segir Lilja. Að henn-
ar sögn er sú leið ekki tekjujafnandi.
Hún létti einungis undir hjá einstakl-
ingum sem séu með laun í kringum
skattleysismörk. Umfram þau laun sé
sú leið mjög íþyngjandi.
Lilja segir að skattahækkanir með
þrepaskiptingu muni sem dæmi
koma betur út fyrir einstaklinga með
lægri laun en 250 þúsund krónur.
„Ókosturinn við þrepaskiptinguna
er að það verður þung skattabyrði
hjá hjónum þar sem annar aðilinn er
fyrirvinna,“ segir hún. Slíkt þurfi að
koma í veg fyrir. Lausnin gæti verið að
setja þak á hámarksskattbyrði slíkra
einstaklinga. Hins vegar sé kosturinn
við þrepaskiptinguna að hún hvetji
hjón til þess að vinna jafn mikið.
Hún telur að skattatillögur ríkis-
stjórnarinnar fari fljótlega fyrir Al-
þingi. „Þegar stjórnarflokkarnir eru
búnir að koma sér saman um skatta-
hækkanir verða þær kynntar fyr-
ir stjórnarandstöðunni. Eftir það fer
frumvarpið fyrir þingið. Þetta þarf að
komast sem fyrst fyrir þingið til að fá
umræðu. Helst þá í næstu viku,“ seg-
ir hún. Ákveðið var á Alþingi í gær
að hafa umræður um fyrirhugaðar
skattahækkanir stjórnarflokkanna á
næsta föstudag.
sjálfstæðisflokkur skapaði
ójöfnuð
Þrátt fyrir að fyrirhugaðar skatta-
hækkanir séu töluvert miklar verður
skatthlutfallið samt lægra en á sum-
um Norðurlöndunum. Eins og sést í
töflu með grein er tekjuskattur á laun
umfram 800 þúsund krónur 57 pró-
sent í Svíþjóð. Lægsta skattprósentan
í Danmörku er 46,1 prósent. Auk þess
eru skattleysismörk hvergi hærri en á
Íslandi.
Að mati Lilju er vissulega slæmt
að þurfa að hækka skatta við nú-
verandi aðstæður. Slíkt sé þó óum-
flýjanlegt. „Það væri allt í lagi að
hækka skatta á þá sem eru tekjuhá-
ir. Á síðastliðnum árum í útrásinni
lét Sjálfstæðisflokkurinn persónu-
afsláttinn ekki fylgja verðbólgu.
Með því jókst ójöfnuður fólks öll
útrásarárin,“ segir hún. Lilja seg-
ist ekki óttast landflótta hjá vel
menntuðu og tekjuháu fólki. Eins
og sést á útreikningum með grein-
inni verða þeir sem hafa um 750
þúsund krónur í mánaðarlaun fyrir
mestum áhrifum af skattahækkun-
um. „Við erum ennþá undir skatt-
byrðinni á Norðurlöndunum þang-
að sem flestir Íslendingar flytja. Ég
hef áhyggjur af þeim sem eru með
þungar skuldabyrðir. Sá hópur hef-
ur ekki fengið afskriftir. Það leys-
um við hins vegar ekki með skatta-
hækkunum,“ segir hún.
Fyrirhugaðar skattahækkanir ríkis-
stjórnarflokkanna munu kosta hvern
einstakling á vinnumarkaði um 5.700
krónur á mánuði. Er þá miðað við
meðallaun starfsfólks í fullu starfi
út frá launum á almennum markaði
árið 2008. Ef reiknað er út frá þeim
sem eru bæði í fullri vinnu og hluta-
störfum nemur hækkunin 136 krón-
um á mánuði.
Skattabreytingarnar koma verst
niður á þeim sem hafa í kringum 750
þúsund krónur í laun á mánuði. Hjá
þeim hækkar skatthlutfallið um 11,5
prósent. Hins vegar lækkar skatthlut-
fallið um 5,4 prósent hjá þeim sem
hafa minna en 250 þúsund krónur í
laun á mánuði.
Bjarni gagnrýnir harðlega
Fyrirhugaðar skattahækkanir ríkis-
stjórnarinnar vöktu hörð viðbrögð
stjórnarandstöðunnar í gær. „Brjál-
æðið í þessum hugmyndum ligg-
ur í því að það er ekki hægt að stór-
auka álögur á atvinnustarfsemi og
einstaklinga þegar við erum í þess-
ari kreppu,“ sagði Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins
í umræðum á Alþingi. „Þetta kall-
ar þingmaðurinn brjálaða leið sem
mér finnst dálítið merkilegt þegar við
erum að tala um þrepaskipt skatt-
kerfi eins og hin brjáluðu Norður-
lönd hafa til dæmis valið,“ sagði Katr-
ín Jakobsdóttir menntamálaráðherra
í andsvari. Viðskiptaráð Íslands tel-
ur hugmyndir ríkisstjórnarinnar um
skattahækkanir ekki til þess falln-
ar að efla tekjur hins opinbera. Þær
muni heldur ekki hraða efnahags-
bata landsins.
Tekjulágir græða
Fréttastofa RÚV sagði frá því á
mánudaginn að vinnuhópur inn-
an ríkisstjórnarinnar væri að vinna
að þrepaskiptum skattahækkunum.
Í þeim felst að tekjuskattur á ein-
staklinga með 250 þúsund krónur og
minna verður 36,1 prósent í staðinn
fyrir 37,2 prósent líkt og hann er nú.
Sá hópur mun því græða á áformuð-
um skattabreytingum. Þeir sem hafa
á bilinu 250 til 500 þúsund krón-
ur borga 41,1 prósents tekjuskatt af
tekjum umfram 250 þúsund krónur.
Þriðja þrepaskiptingin er síðan fyrir
2 miðvikudagur 11. nóvember 2009 fréttir
Er
Verður
EinsTaklingar
Hjón, Ein fyrirvinna
Er
Verður
250.000 kr. 375.000 kr. 500.000 kr. 750.000 kr. 1.000.000 kr.
250.000 kr. 375.000 kr. 500.000 kr. 750.000 kr.
mánaðarlaun
mánaðarlaun
50.795 97.295
143.795
240.795
353.795
48.045
99.420
150.795
268.545
386.295
8.590
55.090
175990
311590
5.840
57215
202790
344.090
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2
008 2009 2010
PErsónuafsláTTurinn
sTEndur í sTað
23.360
42.205
svona breytast
skattarnir þínir
annas sigmundsson
blaðamaður skrifar: as @dv.is
skattar hækka
um 5.660 krónur
lilju mósesdótt-
ur,
5.700 króna hækkun
Fyrirhugaðar skattahækkanir
munu kosta meðallaunafólk
5.700 krónur á mánuði.
mynd rakEl ósk sigurðardóTTir
Brjálaðar tillögur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur skattatil-
lögur stjórnarflokkanna brjálaðar.
mynd sigTryggur ari jóHannsson
Hugnast tillögurnar Lilja Mósesdóttir,
þingmaður Vinstri-grænna, segir að sér
hugnist fyrirhugaðar skattahækkanir.
Hún vonast til að frumvarp um skatta-
breytingar komi fyrir Alþingi í næstu
viku. mynd krisTinn magnússon
fréttir 11. nóvember 2009 miðvikudagur
3
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, fær heimild
til að leigja út samtals 4.000 tonn af
skötusel til fiskiskipa og útgerða á yf-
irstandandi fiskveiðiári og því næsta
samkvæmt nýju frumvarpi til laga
um breytingar á fiskveiðistjórnun-
arkerfinu. Ráðgert er að kílóverð
á skötuselskvóta ríkisins verði 120
krónur. Tekjur ríkisins af kvótaleig-
unni gætu því orðið um 480 milljónir
króna á tveimur árum.
Samkvæmt frumvarpi sjávarút-
vegsráðherra verður leigður ríkis-
kvóti í skötusel ekki framseljanlegur.
Ráðgert er að andvirði kvótaleigunn-
ar renni í ríkissjóð og verði varið til
styrktar rannsóknarsjóði um aukið
verðmæti sjávarfangs og til nýsköp-
unar og atvinnuþróunar í sjávar-
byggðum.
Þetta er frávik frá ríkjandi reglu
kvótakerfisins þar sem auknar afla-
heimildir leggjast ofan á fyrirliggj-
andi kvóta skipa í þeim hlutföllum
sem hvert og eitt þeirra ræður yfir.
Landssamband íslenskra út-
vegsmanna ályktaði um fyrirhugaða
aukningu skötuselskvóta á aðalfundi
sínum um síðustu mánaðamót og
lagði ríka áherslu á að kvótanum yrði
úthlutað á skip í samræmi við afla-
hlutdeild þeirra. Útgerðirnar ráða
yfir 2.000 tonna skötuselskvóta sam-
kvæmt ráðgjöf og úthlutun síðastlið-
ið sumar.
Helmingi minni
kvótaflutningur milli ára
Samkvæmt frumvarpi sjávarútvegs-
ráðherra verður einnig dregið úr
heimild til þess að flytja kvóta milli
fiskveiðiára. Einar K. Guðfinnsson,
fyrrverandi sjávarútvegsráðherra,
heimilaði flutning á 33 prósentum af
kvóta í fyrra en Jón Bjarnason, eftir-
maður hans, ætlar nú að lækka þetta
hlutfall í 15 prósent. Ein meginástæð-
an fyrir flutningi kvóta milli ára er sú
að útgerðir geti þannig búið sig undir
samdrátt í tegundum sem ævinlega
veiðast umtalsvert sem meðafli.
Í frumvarpinu eru einnig reistar
skorður við flutningi kvóta af skipi.
Jón sagði á fundi með smábátasjó-
mönnum í síðasta mánuði að laga-
heimildin til að leyfa án íhlutunar
flutning kvóta af skipum hefði alltaf
verið umdeild. Sérstaklega ætti það
við um skip sem tækju við kvóta og
gætu í staðinn leigt frá sér meiri verð-
mæti í öðrum aflaheimildum.
Lagt af stað með
fyrningarleiðina
Landssamband íslenskra útvegs-
manna mótmælti á aðalfundi sín-
um um síðustu mánaðamót öllum
hugmyndum um endurúthlutun á
kvótabundnum tegundum eða að
ákveðnar fisktegundir yrðu teknar út
úr kvóta sem illa gengi að veiða eða
ekki hefði reynst arðbært að veiða.
„Þarna er verið að taka fyrningar-
leiðina á eina tegund, skötuselinn,“
segir Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ. „Ríkisstjórnin gaf
út yfirlýsingu í tengslum við kjara-
samningana fyrir tveimur vikum um
að sjávarútvegsmálin væru til end-
urskoðunar og í ákveðnum sáttafar-
vegi eins og það er orðað. Það kemur
því á óvart að þau skuli kasta stríðs-
hanskanum með þessum hætti. Það
er umhugsunarvert að þeir sem eiga
aflahlutdeild megi aðeins bera kvóta-
skerðingu en megi ekki njóta aukn-
ingarinnar. Þetta kemur líka á óvart
vegna þess að starfandi er nefnd sem
er að fara yfir öll þessi mál.“
Friðrik furðar sig einnig á miklum
takmörkunum frumvarpsins á flutn-
ingi aflaheimilda og segir þær óskilj-
anlegar. Þetta gengur bæði gegn
möguleikum á hagkvæmni og dregur
úr sveigjanleika. Það geta verið fiski-
fræðileg rök fyrir því að veiða ekki
upp kvótann auk þess sem gott get-
ur verið að geyma hann í sjó af mark-
aðsástæðum.“
Þúfan sem veltir hlassinu
Finnbogi Vikar, sem ritaði skýrslu
síðastliðið vor um meint brask með
vannýttar fisktegundir, situr nú í um-
ræddri nefnd sjávarútvegsráðherra.
Hann segir að með frumvarpinu
séu stjórnvöld að senda handhöfum
kvótans skilaboð um að þjóðin eigi
kvótann. „Þau eru að segja kvótahöf-
um að auðlindin í hafinu sé þjóðar-
eign og löggjafinn og framvæmda-
valdið geri nauðsynlegar breytingar á
kvótaúthlutun til að hámarka arðinn
fyrir samfélagið. Þetta kann að vera
þúfan sem veltir hlassinu.“
Jón Bjarnason
Friðrik J. Arngrímsson
RÁÐHERRANN BÝÐUR
SÆGREIFUM BIRGINN
„Það kemur því á óvart
að þau skuli kasta
stríðshanskanum með
þessum hætti.“
JóHAnn HAuksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
sjávarútvegsráðherrann
Margar smávægilegar
breytingar í frumvarpi Jóns
Bjarnasonar grafa undan
ríkjandi kvótakerfi.
Grafið undan kvótakerfinu
„Það er umhugsunarvert að þeir
sem eiga aflahlutdeild megi
aðeins bera kvótaskerðingu en
megi ekki njóta aukningarinnar,“
segir Friðrik J. Arngrímsson.
Þúfan sem veltir hlassinu
Finnbogi Vikar segir að með
frumvarpinu sendi stjórnvöld
kvótahöfum skilaboð um
að þjóðin sé raunverulegur
eigandi auðlindarinnar.
HÆ A
R NUR
þá sem hafa tekjur umfram 500 þús-
und krónur. Af þeim þarf að borga
47,1 prósents tekjuskatt. Persónu-
afsláttur helst þó óbreyttur í 42.200
krónum.
Lilja staðfestir tillögurnar
„Þetta eru tillögur sem vinnuhópur
er að ræða ásamt mörgum öðrum til-
lögum,“ segir Lilja Mósesdóttir. Hún
segir að þær tillögur sem RÚV sagði
frá hugnist henni vel. Umræða hafi
líka komið upp um að hækka per-
sónuafsláttinn í samræmi við hækk-
un tekjuskatta. „Það er sú leið sem
sjálfstæðismenn hafa yfirleitt far-
ið í samdrætti,“ segir Lilja. Að henn-
ar sögn er sú leið ekki tekjujafnandi.
Hún létti einungis undir hjá einstakl-
ingum sem séu með laun í kringum
skattleysismörk. Umfram þau laun sé
sú leið mjög íþyngjandi.
Lilja segir að skattahækkanir með
þrepaskiptingu muni sem dæmi
koma betur út fyrir einstaklinga með
lægri laun en 250 þúsund krónur.
„Ókosturinn við þrepaskiptinguna
er að það verður þung skattabyrði
hjá hjónum þar sem annar aðilinn er
fyrirvinna,“ segir hún. Slíkt þurfi að
koma í veg fyrir. Lausnin gæti verið að
setja þak á hámarksskattbyrði slíkra
einstaklinga. Hins vegar sé kosturinn
við þrepaskiptinguna að hún hvetji
hjón til þess að vinna jafn mikið.
Hún telur að skattatillögur ríkis-
stjórnarinnar fari fljótlega fyrir Al-
þingi. „Þegar stjórnarflokkarnir eru
búnir að koma sér saman um skatta-
hækkanir verða þær kynntar fyr-
ir stjórnarandstöðunni. Eftir það fer
frumvarpið fyrir þingið. Þetta þarf að
komast sem fyrst fyrir þingið til að fá
umræðu. Helst þá í næstu viku,“ seg-
ir hún. Ákveðið var á Alþingi í gær
að hafa umræður um fyrirhugaðar
skattahækkanir stjórnarflokkanna á
næsta föstudag.
sjálfstæðisflokkur skapaði
ójöfnuð
Þrátt fyrir að fyrirhugaðar skatta-
hækkanir séu töluvert miklar verður
skatthlutfallið samt lægra en á sum-
um Norðurlöndunum. Eins og sést í
töflu með grein er tekjuskattur á laun
umfram 800 þúsund krónur 57 pró-
sent í Svíþjóð. Lægsta skattprósentan
í Danmörku er 46,1 prósent. Auk þess
eru skattleysismörk hvergi hærri en á
Íslandi.
Að mati Lilju er vissulega slæmt
að þurfa að hækka skatta við nú-
verandi aðstæður. Slíkt sé þó óum-
flýjanlegt. „Það væri allt í lagi að
hækka skatta á þá sem eru tekjuhá-
ir. Á síðastliðnum árum í útrásinni
lét Sjálfstæðisflokkurinn persónu-
afsláttinn ekki fylgja verðbólgu.
Með því jókst ójöfnuður fólks öll
útrásarárin,“ segir hún. Lilja seg-
ist ekki óttast landflótta hjá vel
menntuðu og tekjuháu fólki. Eins
og sést á útreikningum með grein-
inni verða þeir sem hafa um 750
þúsund krónur í mánaðarlaun fyrir
mestum áhrifum af skattahækkun-
um. „Við erum ennþá undir skatt-
byrðinni á Norðurlöndunum þang-
að sem flestir Íslendingar flytja. Ég
hef áhyggjur af þeim sem eru með
þungar skuldabyrðir. Sá hópur hef-
ur ekki fengið afskriftir. Það leys-
um við hins vegar ekki með skatta-
hækkunum,“ segir hún.
2 föstudagur 13. nóvember 2009 fréttir
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Laugavegi 178, 105 Rvk
sími 551-3366 www.misty.is
opið mán-fös 10-18, lau 10-14
Teg. Suzanna - virkilega flottur
“push up” í D,DD,E,F,FF,G skálum
á kr. 6.885,-
Teg. Amelia - glæsilegur “push
up” í D,DD,E,F,FF,G skálum
á kr. 6.885,-
Teg. Melange - rosa fallegur
“push up” D,DD,E,F,FF,G skálum
á kr. 6.885,-
Teg. Suzanna
Teg.Amelia
Teg. Melange
„Jónas er frábær persóna og ég gaf
honum súkkulaðiköku í tilefni dags-
ins,“ segir Hosmany Ramos, brasil-
íski lýtalæknirinn sem var dæmdur
meðal annars fyrir morð og mann-
rán en hann er besti vinur Jónasar
Gunnarssonar sem fagnaði fimm-
tugsafmæli sínu innan veggja Hegn-
ingarhússins í gær.
Jónas var dæmdur fyrir súpu-
þjófnað og fleiri smáafbrot og er því
ekki í sama stærðarflokki glæpa-
manna og hans besti vinur. Jónas
segir það vera ömurlegt að þurfa að
eyða afmælisdeginum í fangelsi en
hann hafi fengið þó nokkrar gjafir.
Fékk meðal annars Bullworker-tæki
frá vinkonu sinni. Jónas var dæmdur
fyrir sjö vikum en hann þarf að dúsa
innan veggja fangelsisins í átta mán-
uði fyrir að stela súpu úr 10-11 fyrir
250 krónur.
Jónas segir lítið um að vera í fang-
elsinu en hann fær að kíkja út í garð
tvisvar á dag, hálftíma í senn, þar sem
hann getur andað að sér stemmingu
miðbæjarins og dreymt um frelsið.
Þrátt fyrir að fangelsið sé komið til
ára sinna kvartar Jónas ekki, segir að
það sé betra að vera þarna inni en á
sambýlinu á Miklubraut.
Ljósið í dökkri tilveru Jónasar
er Hosmany Ramos – einn þekkt-
asti glæpamaður Brasilíu. Ramos
var dæmdur fyrir mannrán, morð,
bifreiðasmygl og flugvélaþjófnað í
heimlandi sínu og er eftirlýstur þar.
Yfirvöld vilja ná í skottið á honum og
setja á bak við lás og slá. Ramos þótti
afburðagreindur, fór í háskóla og varð
lýtalæknir og um leið var hann kom-
inn á stall með fína og fallega fólkinu
í Ríó. Þar lagði hann lag sitt við fagr-
ar og ríkar konur. En bak við grímu
gleði og glaums var Ramos að stela
frá milljónamæringum og hafði á
brott skartgripi og annað sem hann
kom í verð.
Ramos myrti tvo af vitorðsmönn-
um sínum en ofbeldi og morð virð-
ist vera „ættgengt“ í fjölskyldu
Ramos. Pabbi hans drap elskhuga
konu sinnar með hníf og afi hans á
að hafa myrt heila fjölskyldu. Ramos
segist leiður yfir tilhugsuninni um
að Jónas þurfi að sitja inni fyrir
svona lítinn glæp á meðan peninga-
fíklarnir, eins og hann orðar það,
gangi lausir. „Þeir rændu þjóðina
milljónum, jafnvel milljörðum, og
þeir ganga lausir. Hafa það ábyggi-
lega fínt,“ segir Ramos og er mikið
niðri fyrir.
Hann er þó ekki lengi að ná gleði
sinni á ný og bendir á að hann hafi
klárað að skrifa bókina sína í síðustu
viku – en hann þykir orðheppinn
með eindæmum.
GAF JÓNASI KÖKU
„Þeir rændu þjóðina milljónum, jafnvel milljörðum,
og þeir ganga lausir. Hafa það ábyggilega fínt.“
Benedikt Bóas HinRiksson
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
sáttur en ósáttur Hosmany
Ramos er ósáttur við að Jónas þurfi
að sitja inni fyrir súpuþjófnað en
sáttur við fangelsi hér á landi.
til hamingju Jónas Bjarki
fagnaði því að verða fimm-
tugur innan fangelsisveggja.
Mynd VilHelM
Búinn með bókina
Jónas er mikill vinur
Hosmanys Ramos sem
hefur klárað að skrifa
bók síðan hann kom
til landsins.
2 mánudagur 9. nóvember 2009 fréttir
„Ég er algjörlega saklaus, það er al-
veg á hreinu. Af minni hálfu fóru
þessi viðskipti ekki fram heldur var
kortið misnotað. Ég hef ekki verið
að stunda svona staði, þekki ekkert
hvað þar fer fram og drekk ekki einu
sinni kampavín,“ segir Pálmi Jóns-
son, fjármálastjóri Knattspyrnu-
sambands Íslands, KSÍ.
Pálmi glataði 3,2 milljónum
króna, á þáverandi gengi, af kred-
itkorti sínu og KSÍ á súlustaðnum
Rauðu myllunni, Moulin Rouge, í
Zürich í Sviss árið 2005. Sé upphæð-
in reiknuð á núverandi gengi nem-
ur upphæðin nærri 8 milljónum.
Það hefur verið staðfest að Pálmi
heimsótti staðinn en hann fullyrð-
ir að milljón-
irnar
hafi verið teknar af kortunum í leyf-
isleysi. Eftir að kortanotkunin kom
í ljós lýsti Pálmi strax yfir sakleysi
sínu og bauð KSÍ til að borga brús-
ann. Í kjölfarið höfðaði hann mál
úti í Sviss og krafðist endurgreiðslu
þeirra 3,2 milljóna króna sem rukk-
að var um. Af þeim voru 1,5 millj-
ónir bakfærðar en eftirstöðvarnar,
tæpar tvær milljónir, þarf Pálmi að
greiða.
Góður drengur
Fjármálastjórinn og KSÍ
segja hann hafa verið
fórnarlamb skipu-
lagðrar glæpa-
starfsemi þar
sem 3,5 millj-
ónir voru
teknar af kort-
um hans í leyf-
isleysi. Sviss-
neskur fjölmiðill
lýsir málinu þó
þannig að fjár-
málastjórinn hafa
spreðað í hverja
rándýra
kampavíns-
flöskuna
á fætur
annarri
í fylgd
þriggja
rúss-
neskra
stúlkna,
sem nafn-
greindar eru
sem Eva,
Lora og
Carmen í
fréttinni.
Þau eru
sögð
hafa
heim-
sótt fjölmarga næturklúbba í Zur-
ich umrætt kvöld. Í morgunsárið
hafi þau endað á staðnum Moulin
Rouge þar sem Pálmi er sagður hafa
slegið um sig og pantað kampavín í
massavís.
Á heimasíðu strippstaðarins
Moulin Rouge, þar sem meint brot
áttu sér stað, gefur meðal annars að
líta fáklæddar dömur í hjarta rauða
hverfisins í Zürich.
Geir Þorsteinsson, formaður
KSÍ, styður fjármálastjóra sinn heils
hugar og gefur lítið fyrir fullyrðing-
ar Femínistafélagsins. „Við höfum
gefið út stuðningsyfirlýsingu og það
hefur ekkert breyst. Við tókum strax
ákvörðun um að styðja hann enda
býður sambandið ekki fjárhagsleg-
an skaða. Þetta er mjög góður mað-
ur og gott hjá honum að hafa leitað
réttar síns úti, það hefðu ekki allir
gert. Við trúum engu öðru en hans
frásögn enda hef ég þekkt hann
langt aftur og hefur hann spilað fót-
bolta allt sitt líf,“ segir Geir.
Á svissneska fréttavefnum 20
Minuten var fyrir helgi
sögð önnur og
skrautlegri saga
sögð af atburð-
um á nætur-
klúbbnum en
sú sem Pálmi
og Geir segja.
Þar sagði að
fjármálastjórinn
hafi ásamt .
Dag-
inn eftir hafi hann uppgötvað að
kreditkortareikningurinn nam 67
þúsund svissneska frönkum.
Erfitt fyrir fjölskylduna
Pálmi segir alveg ljóst að þær nótur
sem hann þurfi að greiða hafi verið
með falsaðri undirskrift sinni. Hann
segist lítið vera fyrir fjölmiðlaathygli
og því sé afar leiðinlegt að í þau fáu
skipti sem hann komi fram sé það
á neikvæðum nótum. „Þetta er bara
eitthvað krot á miðunum, ekki líkt
minni undirskrift. Það var verið að
reyna að falsa mína undirskrift en
þetta var ekki líkt henni. Ég ætla
ekki að gera neitt meira í málinu.
Ég var mjög ánægður að eitthvað af
þessu var endurgreitt en bjóst aldrei
við að fá allt. Ég er hættur að pæla
í þessu máli, ég tapaði því miður
bara þessum peningum og við það
situr, segir Pálmi og bætir við.
„Þessi umræða er bara asnaleg.
Mér finnst umræðan í minn garð
hafa verið ósanngjörn og hörð en
ég er ekkert að væla yfir því. Vit-
andi það að ég er saklaus er ég
mjög rólegur yfir þessu. Ég reyni að
láta þetta ekki trufla mig en auðvit-
að gerir það það samt. Það er allt-
af slæmt að verða fyrir svona
slæmu umtali. Auðvitað hef-
ur þetta líka tekið á kon-
una mína og börnin, þau
eru að sjálfsögðu leið að
fá svona árásir á pabba
sinn.“
Eiga að víkja
„Sennilega hefði ég
bara átt að sætta
mig við allt tap-
ið strax, þá hefði
þetta aldrei komist
í fjölmiðlana. En
ég er bara ekki
þannig
og því stendur uppi ansi dýr mis-
notkun. Það er löngu búið að tækla
þetta innan KSÍ og þar fæ ég ein-
dreginn stuðning, ég get ekki trúað
því að það komi til með að breyt-
ast.“
Guðný Gústafsdóttir, talskona
Femínistafélags Íslands, krefst
þess að Pálmi og aðrir stjórnendur
KSÍ segi af sér. Hún segir þá stað-
reynd að Pálmi hafi heimsótt stað-
inn og stuðning sambandsins næga
ástæðu til uppsagnar. „Háttsemi
þessa manns er ótæk og fyrir neðan
allar hellur að viðkomandi hafi yfir
höfuð farið inn á svona stað. Í okk-
ar huga skiptir það engu máli hvaða
greiðslukort voru notuð eða hvern-
ig, að maður í þessari stöðu, á veg-
um íþróttahreyfingar, hafi farið inn
á svona stað sem tengdur er glæpa-
starfsemi er óboðlegt. Stjórnend-
urnir verða að axla ábyrgð og segja
af sér,“ segir Guðný.
Mjög sár
Aðspurður segist Geir ekki vilja tjá
sig um kröfu Femínistafélagsins,
að öðru leyti en því að samband-
ið styðji sinn mann. Hann segist
þó vera sár vegna kröf-
unnar um uppsögn.
„Ég er mjög sár
yfir þessari yf-
irlýsingu fem-
ínistanna en
finnst hún í
raun dæma
sig sjálf. Þess
vegna vil ég
sem minnst
um þessar
fullyrðing-
ar segja, það
er best að segja
ekkert,“ segir
Geir.
„Ég drekk ekki
einu sinni kampavín“
TrausTi hafsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Pálmi Jónsson
„Maðurinn má auð-
vitað fara að skemmta
sér inn á súlustað
þarna úti, hvað ætli
hann hafi glatt margar
konur með þessari
upphæð?“
algjörlega saklaus Pálmi segir ljóst að
undirskrift hans hafi ítrekað verið fölsuð.
Góður drengur
Geir segir fjármálastjórann
góðan dreng sem hafi spilað
knattspyrnu allt sitt líf.
Komið til mín Geiri hvetur alla
starfsmenn KSÍ til að koma og
skemmta sér á Goldfinger.
fréttir 9. nóvember 2009 mánudagur 3
Pálmi tekur í sama streng og vill
ekki tjá sig um kröfu Guðnýjar og fé-
laga hennar. Hann ítrekar þá skoð-
un sína að málinu sé lokið af sinni
hálfu. „Ég hef engan áhuga á því
að röfla við femínistana, þær starfa
bara svona og nýta greinlega hvert
tækifæri til að koma sínum skoðun-
um á framfæri,“ segir Pálmi.
Komið til mín
Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi súlu-
staðarins Goldfinger, skilur heldur
ekkert í fullyrðingum femínistanna.
Hann býður alla forsvarsmenn KSÍ
hjartanlega velkomna til sín á Gold-
finger. „Gagnrýni femínistanna er
alveg út í hróa. Maðurinn má auð-
vitað fara að skemmta sér inni á
súlustað þarna úti, hvað ætli hann
hafi glatt margar konur með þessari
upphæð? Hann hefur ábyggilega
bjargað jólunum fyrir margar fjöl-
skyldur. Embætti mannsins skipt-
ir engu máli, ég átta mig ekki al-
veg á því. Eigum við að velja hvaða
staði hann fær að fara á ef hann vill
skemmta sér vel?“ segir Ásgeir Þór.
„Embætti eða starf viðkomandi
skiptir engu máli. Til að fólk geti
fjallað á raunhæfan hátt um svona
staði þurfa þeir að heimsækja
staðina, hver og einn ætti að hafa
manndóm í sér að kynna sér stað-
ina. Í þessu tilviki eru femínistarn-
ir að blanda sér of mikið í hegðun
manna. Ég hvet hreinlega KSÍ-gæj-
ana til að kíkja með kortin á Gold-
finger og eyða þar peningum.“
Þrátt fyrir tilraunir náðist ekki
í eiganda súlustaðarins Moulin
Rouge í Sviss í gær en hann mun
vera stattur í Úkraínu.
Flottur staður Svissneskur fjöl-
miðill fullyrðir að fjármálastjórinn
hafi spreðað í rándýrar kampa-
vínsflöskur á Moulin Rouge.
Sætar stelpur Á heimasíðu súlustað-
arins eru auglýstar fáklæddar dömur
sem bjóði upp á einkadans.