Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Page 6
Sandkorn
n Margrét Tryggvadóttir, þing-
maður Hreyfingarinnar, sló í
gegn í vikunni þegar hún reisti
það þjóðþrifamál að neftóbaks-
karlar á þingi væru að valda
truflunum á starfi þingheims.
Taldi þing-
maðurinn
að tóbaks-
kornin
hefðu ekki
öll lent í
nösum
þingmanna.
Svo rammt
hefði kveð-
ið að þessu að hnappar til
atkvæðagreiðslu stæðu fastir
þannig að ekki væri mögulegt
að segja já eða nei. Það má
segja að þingmaðurinn sé að
leggja sitt lóð á vogarskálarnar
til lausnar á vanda Íslands.
n Það er þó ekki nýtt að trufl-
un verði á þingstörfum vegna
tóbaksneyslu. Orðið á götunni
rifjar upp
að fyrir 20
árum tók
þingmaður-
inn Ásgeir
Hannes Ei-
ríksson það
mál upp að
tóbaksreyk-
ingar væru
þingheimi til ama. „Reykher-
bergið er mikið notað, þar er
teflt, spjallað og horft. Hurðin
er iðulega opin og það leggur
þykkan mökk af reyk í þings-
alinn. Oft er um að ræða bæði
daunillt og ódýrt tóbak og fer
þetta mjög fyrir brjóstið á mér
þar sem ég hef nánast ofnæmi
fyrir tóbaki og mundi gjarnan
vilja fá að ráða mínum dauð-
daga,“ sagði Ásgeir Hannes í þá
daga.
n Það hlýtur að vera Páli Magn-
ússyni útvarpsstjóra áhyggju-
efni að hlustun á Rás 2 er nú
langt undir
Bylgjunni. Í
upphafi árs
hafði Rás 2,
undir stjórn
Sigrúnar
Stefánsdótt-
ur, betur
en undan-
farið hefur
hallað undan fæti. Bylgjan er
nú með örugga forystu með
37 prósenta hlustun en Rás 2
með rúm 29 prósent. Einsýnt
þykir að taka verði til í yfirstjórn
Ríkisútvarpsins áður en tjónið
verði meira en orðið er.
n Sjónvarpið glímir við nokk-
urn vanda eins og Rás 2.
Þannig þarf Kastljósið að sjá á
bak sínum
besta spyrli
þegar Helgi
Seljan axlar
sín skinn
fyrir áramót
og flytur til
Akureyrar.
Ekki liggur
fyrir hvort
einhver verður ráðinn í hans
stað. En það mun mæða meira
á Sigmari Guðmundssyni sem
hefur verið brokkgengur en átt
sína spretti á köflum. Þórhallur
Gunnarsson fer með manna-
forráð í Kastljósinu og er þulur
þar. Hann þótti vera einn að-
gangsharðasti spyrill landsins
en það er ár og öld síðan hann
hefur gefið sér tíma til að ræða
við fólk í setti.
6 föstudagur 13. nóvember 2009 fréttir
Umhverfisstofnun gerði samning um
byggingu á færanlegu þjónustuhúsi í
friðlandinu á Hornströndum án þess
að hafa sótt um leyfi til þess. „Það er
ljóst að í þessu máli hefur Umhverfis-
stofnun ekki viðhaft rétt vinnubrögð
en stofnunin hefur farið ítarlega yfir
verkferla til að tryggja að ekki verði
endurtekning á,“ segir í yfirlýsingu
sem Umhverfisstofnun sendi DV þeg-
ar spurst var fyrir um málið.
DV hafði þá fengið staðfest að
byggingafulltrúi Ísafjarðarbæjar hefði
þann 2. nóvember óskað eftir skýring-
um á málinu frá Umhverfisstofnun.
Þriggja ára samningur
Um er að ræða 20 fermetra færan-
legt þjónustuhús í Hornvík á Horn-
ströndum sem ætlað er fyrir landvörð.
Í húsinu er upplýsingaveita fyrir ferða-
menn og salernisaðstaða. Einnig gefst
ferðafólki þar kostur á að vaska upp og
þvo hendur. Við húsið verður sett upp
upplýsingaskilti, bæði með fróðleik
um náttúrufar í friðlandinu sem og
umgengnisreglur.
Umhverfisstofnun leitaði til land-
eigendafélagsins Hafnarbáss til að
setja húsið upp í sumar. Þann 22. júní
var undirritaður samningur þeirra á
milli um stöðuleyfi til byggingarinnar
til næstu þriggja ára og hafist handa
við bygginguna. Þegar leyfi landeig-
enda lá fyrir var leitað til Ísafjarðar-
bæjar um leiðsögn við framhald verk-
efnisins.
Umhverfisstofnun játar greiðlega
að þarna hafi ekki verið rétt að verki
staðið.
„Fyrir misskilning milli Umhverf-
isstofnunar og tæknideildar Ísafjarð-
arbæjar var ráðist í framkvæmdir við
þjónustuhúsið í Höfn, Hornvík, um
leið og ofangreindur samningur lá fyr-
ir. Upphaflega var talið nægjanlegt að
óska eftir stöðuleyfi fyrir þjónustuhús-
ið í Höfn, enda samningur um stöðu
hússins við landeigendur aðeins gild-
ur í þrjú ár,“ segir í yfirlýsingunni.
Hægt að fjarlægja húsið
Umhverfisstofnun sendi til umhverf-
isnefndar Ísafjarðarbæjar umsögn
Hornstrandanefndar frá 22. júní og
samning við landeigendur um leið og
gögnin lágu fyrir. Á fundi umhverfis-
nefndar 6. ágúst var erindið sett fram
til kynningar og bókar nefndin í fund-
argerð að sækja þurfi um bygginga-
leyfi.
Í yfirlýsingu Umhverfisstofnunar
kemur fram að þegar hér var komið
við sögu var húsið nánast fullklárað.
Umsókn um byggingaleyfi var loks
skilað til Ísafjarðarbæjar 23. október.
„Umhverfisstofnun vinnur að því
að allar framkvæmdir sem ráðist verð-
ur í innan Hornstrandafriðlandsins
á vegum stofnunarinnar verði aftur-
kræfar og þess gætt að rask á umhverfi
svæðisins verði lágmarkað. Fram-
kvæmdir munu fyrst og fremst mið-
ast við að mæta þörfum á þjónustu við
ferðamenn og sem leið til að draga úr
neikvæðu álagi á svæðið og náttúru
þess, sem ferðamönnum og gestum
kann að fylgja,“ segir þar.
Samningur við landeigendur gerir
ráð fyrr að framkvæmdin sé afturkræf
þannig að hægt sé að taka húsið nið-
ur og fjarlægja öll ummerki um það
að samningstíma liðnum ef ekki nást
samningar um áframhaldandi starf.
Umhverfisstofnun fór ekki að verklagsreglum þegar hún gerði samning um að byggja
þjónustuhús í friðlandinu í Hornvík. Byrjað var að byggja húsið í sumar og það var
nánast fullklárað þegar sótt var um leyfi. Umhverfisstofnun ber við misskilningi á
milli stofnunarinnar og tæknideildar Ísafjarðarbæjar.
UMHVERFISSTOFNUN
BYGGÐI Í LEYFISLEYSI
„Það er ljóst að í þessu
máli hefur Umhverf-
isstofnun ekki viðhaft
rétt vinnubrögð.“
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Friðland Friðlandið í Hornvík er ein
helsta náttúruperla landsins. Fjöldi
göngufólks leggur leið sína þangað
á sumrin og mikið er lagt upp úr
vistvænni þjónustu við ferðamenn.
Mynd Halldór svEinbjörnsson
Farið yfir verkferla Í yfirlýsingu frá
Umhverfisstofnun segir að í kjölfar máls-
ins hafi verið farið ítarlega yfir verkferla
til að tryggja að vinnubrögð sem
þessi endurtaki sig ekki. Kristín Linda
Árnadóttir er forstjóri stofnunarinnar.
Úlfari Eysteinssyni stefnt vegna bílasamninga:
„Ekkert World Class-mál“
SP-Fjármögnun hefur stefnt mat-
reiðslumanninum Úlfari Eysteins-
syni, sem oftast er kenndur við Þrjá
frakka, vegna bílasamninga. Fyrir-
taka í málinu var í gær. Að sögn Úlf-
ars snýst málið um bíla sem hann var
með á kaupleigu.
„Ég skilaði inn bílum og það er
ágreiningur um milligjöfina. Þeir
verðleggja einn bílinn það lágt, hann
er 5,7 milljóna króna bíll en þeir
mátu hann á 1.300 þúsund, og ég
þyrfti að borga mismuninn. Ég var
til í að borga eftirstöðvarnar en ekki
með svona formerkjum,“ segir Úlfar.
Hann var með þrjá bíla á kaupleigu,
Jagúar, Cadillac Escalade og Grand
Cherokee, sem hann notaði við inn-
flutning.
„Ég var með innflutning ásamt
öðrum árið 2007 þegar dollarinn var
ekki neitt. Þegar fór að harðna á daln-
um gerði SP-Fjármögnun svo miklar
kröfur þegar ég var að selja bílinn.
Þeir voru í því að setja mér stólinn
fyrir dyrnar. Stundum fóru þeir fram
á að ég myndi borga einhver nokk-
ur hundruð þúsund því kúnninn var
ekki nógu góður. Þannig að ég lagði
bílana bara inn til þeirra.“
Úlfar er bjartsýnn á að málið leys-
ist fljótt.
„Ég veit að þetta fer sáttaleið. Ég
er búinn að bjóða þeim sátt og er
með lögmann í þessu. Þetta er ekkert
World Class-mál,“ segir Úlfar og hlær.
Hann er í sömu sporum og margir
aðrir og telur líklegt að málinu verði
vísað frá.
„Það hefur verið þannig að þess-
um málum er vísað frá. Þeir vilja ekki
taka á þessum málum, dómararnir í
dag, því þetta eru myntkörfulán og
þau eru ólögleg. Það vill enginn vera
fyrsti dómarinn til að taka á þessu
dæmi. Það verður fordæmisgefandi.
Núna vísa allir frá.“
liljakatrin@dv.is
bjartsýnn um sátt Úlfar upplifði
óliðlegheit frá SP-Fjármögnun er
hann stóð í bílabraski eins og hann
kallar það sjálfur. Mynd Karl PEtErsson
Smáauglýsingasíminn er
smaar@dv.is
515
55
50