Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Qupperneq 8
Sandkorn n Hugleikur Dagsson er ein af stjörnum jólabókaflóðsins en úr smiðju hans er vænt- anleg bókin 1001 okkur. Um nokkurs konar viðhafnarút- gáfu er að ræða þar sem eitt- þúsund og eitt eintak, tölusett af höfundin- um sjálf- um, verður gefið út í innbund- inni útgáfu. Þá fylgir bókinni stórt veggspjald með mynd af Friðriki Sólnes raf- virka sem ritað hefur formála í fyrri Okkur-bækur Hugleiks. Bókin mun einnig fást í kilju en þau eintök eru ekki tölu- sett og þeim fylgir ekki mynd af rafvirkjanum. n Hin sívinsælu og sígildu Bókatíðindi Félags íslenskra bókaútgef- enda munu venju sam- kvæmt detta inn á öll heimili landsins á næstunni. Athygli vekur að fjöldi útgáfubóka á þessu ári er sá sami og í fyrra þannig að bókaútgefendur virð- ast hafa tröllatrú á bókinni í kreppunni. Í sögulegu ljósi er þó ekki svo óeðlilegt að bókaútgáfa haldi velli í versn- andi árferði en bækur urðu einmitt að helstu jólagjöfum Íslendinga í kringum miðja síðustu öld við ekki ósvipaðar aðstæður og nú, gjaldeyris- höft, kreppu og aðra efna- hagslega óáran. n Ekkert virðist ógna veldi glæpa- sagna- kóngsins Arnaldar Indriða- sonar á íslensk- um bóka- mark- aði. Nýja bókin hans, Svörtuloft, hefur verið ausin lofi gagnrýn- enda og fyrstu tölur benda mjög eindregið til þess að Arnaldur muni slá enn eitt sölumetið í ár. Úr herbúð- um Vöku-Helgafells, útgef- anda Arnaldar, hefur heyrst að salan fari umtalsvert betur af stað en í fyrra sem þó var metár hjá Arnaldi. Sam- kvæmt heimildum DV slagaði fyrsta prentun Svörtulofta í 30.000 eintök þannig að jafn- vel má búast við að Arnaldur rjúfi þann múr á þessu ári. 8 föstudagur 13. nóvember 2009 fréttir Örugg og góð þjónusta í 25 ár. MYND Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði S: 565 4207 www.ljosmynd.is Pantaðu jólamyndatökuna tímalega KRÓNAN DÝRARI EN NÝR LANDSPÍTALI Seðlabanki Íslands hefur eytt 66,9 milljörðum í að styrkja gengi krónunnar frá því bankarnir hrundu í október. Guðmundur Ólafsson hagfræðingur segir ekki hægt að standa í inngripum til lengdar. Hann telur að Seðlabankinn hafi sólundað þessum pen- ingum. Fyrir þessa upphæð mætti byggja nýjan Landspítala og eiga drjúgan afgang. Síðan bankarnir hrundu í október á síðasta ári hefur Seðlabanki Íslands samtals varið 66,9 milljörðum króna í að styrkja gengi krónunnar. Með- altal gengisvísitölu krónunnar hefur ekki mælst hærra en í október síðast- liðnum á þeim tíma sem er liðinn frá bankahruninu. Þegar gengisvísitalan hækkar lækkar verðgildi krónunnar. Krónan hefur því aldrei verið minna virði en nú. Inngrip Seðlabankans á gjald- eyrismarkaði voru langmest í októb- er og nóvember í fyrra, skömmu eft- ir bankahrun. Bankinn keypti krónur fyrir 28,9 milljarða í október og rúm- an 21 milljarð í nóvember. Aðgerðirn- ar náðu þó ekki að koma í veg fyrir fall krónunnar því á milli mánaða veiktist gengi hennar umtalsvert. Síðan þá hafa inngrip Seðlabank- ans verið frá 545 milljónum króna á mánuði og upp í 3,4 milljarða króna á mánuði. Mikið hefur hins vegar dreg- ið úr hlutdeild Seðlabankans á gjald- eyrismarkaði á þessu ári. Á þriðja ársfjórðungi námu inngrip Seðla- bankans 19 prósentum, samanborið við 36 prósent á öðrum ársfjórðungi. „Væri betur varið í Icesave“ Guðmundur Ólafsson, lektor við Há- skóla Íslands og Háskólann á Bif- röst, telur að inngrip Seðlabankans séu mistök. „Þetta dregur að vísu úr gengissiginu, en það er ekki hægt að standa í þessu til lengdar. Annaðhvort verða menn að setja hér upp stalínískt gjaldeyriskerfi þar sem allt er lokað eða skipta um gjaldmiðil. Það er eina vitið að skipta um gjaldmiðil,“ segir Guðmundur. Þegar hann er beðinn um að leggja mat á árangurinn af þessum aðgerð- um segir Guðmundur: „Það er búið að sólunda þessum peningum í vitl- eysu, þeim væri betur varið í Icesave- reikninginn,“ segir hann. Er þetta þá glatað fé? „Að öllum lík- indum, ég hef ekki trú á því að gengið hækki neitt að ráði. Það gæti komið eitthvað til baka ef gengið hækkar um 5 prósent, en ég held að gengi krón- unnar sé þar sem það á vera núna.“ 13 milljarðar á þessu ári Á þessu tímabili hafa þrír banka- stjórar verið við stjórn í Seðlabanka Íslands. Davíð Oddsson var rekinn í lok febrúar, en frá bankahruni hafði Seðlabankinn undir hans stjórn var- ið um 56 milljörðum í að styrkja gengi krónunnar. Frá því Svein Harald Öyg- ard tók við störfum í lok febrúar og þar til hann hætti um miðjan ágúst varði Seðlabankinn tæpum 8,5 millj- örðum í að styrkja gengi krónunnar. Þegar Svein Harald hætti í bankan- um var krónan hins vegar veikari en hún hafði áður verið í hans stjórnar- tíð. Í september varði Seðlabankinn 545 milljónum í krónukaup og 1.408 milljónum í október. Nýr spítali og atvinnuleysis- bætur Fyrir þá peninga sem Seðlabank- inn hefur varið í að halda gengi krónunnar uppi hefði íslenska rík- ið, meðal annars, getað fjármagn- að byggingu nýs Landspítala fyrir 51 milljarð króna, en ráðgert er að um 800 manns fá vinnu við bygginga- framkvæmdirnar. Enn væri til ríflegur afgangur sem meðal annars myndi duga til að standa straum af 12,3 milljarða króna kostnaði af auknu atvinnuleysi úr 5,7 prósentum upp í 10,6 prósent, eins og gert er ráð fyrir í fjárlögum næsta árs. Bara vitleysa „Það er búið að sólunda þessum peningum í vitleysu, þeim væri betur varið í Icesave-reikninginn,“ segir Guðmundur Ólafsson. ValGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Már Guðmundsson Hefur ekki verið eins stórtækur á gjaldeyris- markaðnum og forverar hans. Nýr landspítali Áætlað er að kostnaður við byggingu nýs Landspítala verði 51 milljarður króna. Krónukaup Seðlabankans Meðaltal gengisvísitölu Okt. Nóv. Des. Jan. Feb. Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst Sept. Okt. 2008 Október 2009 1.408 milljónir OktÓBER 2008 28.930 milljónir 2009 234,971 stig 202,9525 stig tIlRaUNIR SEÐlaBaNkaNS tIl aÐ StYRkJa GENGIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.