Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Side 14
14 föstudagur 13. nóvember 2009 helgarblað Jón Gerald Sullenberger opnar verslun sína, Kost, um helgina. Hann segir að áhersla verði lögð á að bjóða góða þjónustu og gott verð. Með því að hafa engan vörulager segist hann spara nógu mikið fé til að geta boðið gott verð. Hann sækir innblástur í bandarískar verslunarmiðstöðvar og íslenskar verslanir á borð við Fjarðarkaup og Melabúðina. „Við erum hér til að sinna kúnnan- um. Við ætlum að bjóða góðar vör- ur á góðu verði. Ef við gerum það vel þá trúum við því að við getum náð til fólksins,“ segir Jón Gerald Sullenberger verslunarmaður. Með aðkomu fimm lítt þekktra fjárfesta hefur Jóni nú tekist að setja á lagg- irnar verslun sem ber nafnið Kost- ur. Verslunin verður opnuð núna á laugardag en Jón Gerald segir að ef allt gangi að óskum verði búðirnar þrjár. Það sé stefnan. Biður um tíma Það var í desember í fyrra sem Jón Gerald kom fram í Silfri Eg- ils og greindi frá áformum sínum um að opna lágvöruverðsverslun á Íslandi. Opnunin hefur tafist um nokkra mánuði en upphaflega stóð til að verslunin yrði opnuð í ágúst. „Við fengum ekki húsið 1. júní, eins og til stóð, heldur eftir verslunar- mannahelgi. Þess vegna varð þessi seinkun,“ útskýrir Jón. Hann biðl- ar til neytenda að sýna versluninni þolinmæði fyrst um sinn. „Ég bið fólk um að gefa okkur smá tíma; nokkra mánuði til að fóta okkur og finna réttu vörulínurnar. Við eigum von á fullt af vörum frá Bandaríkj- unum og Asíu sem ekki eru komnar til landsins. Við þurfum smá tíma,“ segir Jón Gerald en þegar blaða- maður heimsótti hann í Kosti á miðvikudaginn vann fólk hörðum höndum að því að fylla rekka og ganga frá. „Mönnum semur ekki alltaf“ Jón Gerald hefur gagnrýnt harð- lega það umhverfi sem hér ríkir á matvörumarkaði sem hann tel- ur að hamli eðlilegri samkeppni. Hann hefur sagt að stjórnvöld hafi brugðist bæði birgjum og neyt- endum með því að hafa leyft stór- um aðilum að ná ráðandi stöðu á matvörumarkaði. Þar eru Kaup- ás og Hagar ráðandi en Jón Gerald vann sjálfur sem innkaupastjóri hjá Baugi, nú Högum, áður en í kekki kastaðist milli hans og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. „Ég er með mik- il sambönd við aðila úti, eftir þessi 23 ár,“ segir Jón Gerald en hann vill ekki ræða ástæður þess að upp úr vinskap þeirra Jóns Ásgeirs slitan- ði. „Mönnum semur ekki alltaf,“ segir hann en bætir því við að að- standendur Kosts ætli að reka búð- ina á eigin forsendum. Sögusagnir Spurður hvort hann stefni að því að keppa við verð á algengum neyslu- vörum í Bónus og Krónunni, svarar Jón Gerald því til að það verði tím- inn einfaldlega að leiða í ljós. „Við verðum í vandræðum með að selja íslenska framleiðslu á betra verði en lægstu búðirnar. Við erum bara með eina búð en hinir aðilarnir eru með margar. Maður fer ekki fram á að fá sömu kjör og þeir en það þýðir ekk- ert að bjóða mér vöru sem ég þarf að selja 15 til 20 prósent dýrara en í hin- um búðunum. Það er eitthvað bogið við þannig verðstrúktúr,“ segir hann og heldur áfram: „Fyrst þegar ég fór af stað fór ég að heyra sögursagn- ir um að ég ætlaði ekki að versla af neinum og ætlaði að fá allt að utan. Þegar ég heyrði þetta bauð ég öllum heildsölum til mín í kaffi og kleinur. Til mín komu 50 til 60 manns og ég heimsótti þá flesta í kjölfarið. Það skipti miklu máli að eyða þessum sögusögnum,“ útskýrir hann. Jón segir að viðmót manna gagn- vart verkefni hans hafi breyst eftir að hann fullyrti í Kastljósi snemma í október að fjölmargir þyrðu ekki að vinna fyrir Kost af ótta viðað missa viðskipti við samkeppnisaðila. Í því samhengi nefndi hann framleið- enda kæla, iðnaðarmenn, birgja og svo sagði hann Íslandsbanka hafa hafnað því að taka fyrirtækið í við- skipti. „Andrúmsloftið breyttist eft- ir þetta. Núna eru 98 prósent birgja virkilega að aðstoða okkur og styðja við bakið á okkur,“ segir Jón og rifj- ar upp: „Til að byrja með áttum við í erfiðleikum með að fá vöru- og verðlista. Við þurftum að hringja í þá suma og spyrja hvort þeir ætluðu að selja vörurnar eða ekki. Maður spyr sig af hverju það er,“ segir hann. Fengu nánast allt notað Jón segir að þrotlaus vinna liggi að baki opnun Kosts en verslunin er til húsa við Dalveg í Kópavogi, þar sem áður var InnX. „Við keyptum eigin- lega ekkert nýtt. Nánast allt sem hér er inni fengum við notað eða notuðum það sem var hérna fyrir. Gluggarnir voru úr sýningarbásun- um, brunaveggurinn varð að kæli og allar hillurnar fengum við not- aðar úr þrotabúi Mest. Afgreiðslu- kassana og pressurnar í kælana fengum við frá Keflavíkurflugvelli og einingar fundum við á Suður- eyri með hjálp Kælivers. Það eina sem við keyptum nýtt var tölvukerf- ið og betri lýsing,“ segir Jón stoltur og bætir við. „Meira að segja inn- kaupakerrurnar fengum við notað- ar frá Þýskalandi; úðuðum þær og keyptum ný handföng,“ segir Jón en með því einu segist hann hafa sparað sér fjórar milljónir. Stólar og borð fyrir starfsmenn fékk hann gefins og góðhjartaður maður gaf honum gamla ljósritunarvél á skrifstofuna, svo eitthvað sé nefnt. Hann segist ákaflega þakklátur fyr- ir þá sem lagt hafa honum lið í ferl- inu. „Gagnavarlslan í Keflavík, Lyft- uþjónustan Armar og Kæliver hafa til dæmis hjálpað okkur gríðarlega mikið. Það hefur verið frábært að finna fyrir þeim stuðningi sem við höfum fengið,“ segir hann. Eldra fólk í vinnu Jón Gerald nefnir bandarísku versl- anakeðjurnar Sams’s Club og Cost- co þegar hann er spuður hvort verslun hans eigi sér fyrirmyndir. Hann segist einnig sækja innblástur í verslanirnar Fjarðarkaup og Mela- búðina. Þar sé þjónusta og and- rúmsloft sem hann vilji innleiða í sína verslun. „Þetta eru frábærar búðir og þarna eru reynslumikl- ir kaupmenn að vinna. Mér finnst undarlegt að sjá hve þjónustan er slök í öðrum búðum hérna heima, sérstaklega miðað við hversu mikl- um peningum Íslendingar verja í mat,“ segir Jón Gerald en hann hef- ur þegar ráðið fimm til sex starfs- menn sem komnir eru á eftirlauna- aldur. Alls hefur hann fastráðið 18 manns en 10 eru í hlutastarfi. Hann segir stefnuna skýra: „Kúninn er okkar yfirmaður.“ Nýjungar Spurður hvort neytendur þurfi ekki að borga fyrir hátt þjónustustig með hærra vöruverði, svarar Jón: „Það kostar líka að vera með vöru- lager og dreifimiðstöð. Verslunin sjálf er vörulagerinn okkar. Vörun- um er ekið inn á brettum og þær eru settar beint upp í hillur. Þannig spörum við mikinn pening. Hann segir að viðskiptavinir eigi von á fleiri nýjungum: „Við innganginn verður eldri maður sem býður fólk velkomið í verslunina,“ segir hann en uppröðunin í versluninni verð- ur öðruvísi en Íslendingar eiga að venjast. Í stað þess að koma fyrst að brauðvöru liggur leiðin fljótt inn í kælinn þar sem kjötið verður. „Síð- an liggur leiðin þangað sem álegg- ið og mjólkin er og loks í grænmet- iskælinn. Fyrst velurðu í matinn og svo velurðu meðlætið. Sú er hugs- unin,“ segir Jón. Þegar út úr kælinum er komið kemur viðskiptavinurinn að fimm metra háum 70 fermetra frysti. Gler- hurðir eru allan hringinn, þar sem fólk getur tekið sér frystivöru en fyllt er á vörurnar innan frá. „Þetta er algjör nýjung á Íslandi,“ seg- ir hann og heldur áfram. „Brauðið verður aftast í búðinni sem og sér- stakt „entertainment-svæði“ fyrir góðgæti á borð við sælgæti, snakk og popp,“ útskýrir hann. Íslensk framleiðsla Á meðal annarra nýjunga má nefna skjá sem fólk getur horft á þeg- ar það raðar í poka. Þar getur fólk fylgst með öllum upplýsingum um vörurnar sem það kaupir; verðum, þyngd og vöruheitum. „Þú horfir á það sama og afgreiðslufólkið og getur fylgst grannt með öllu,“ seg- ir Jón Hann fylgir blaðamanni því næst að stórum vegg sem á stend- ur: „Áfram Ísland. Styðjum ís- lenska framleiðslu“. „Ég er að leita að einyrkjum sem vilja koma með vörur sínar og selja. Við munum borga vikulega eftir kassa og verð- um með mjög lága álagningu, rétt til að standa undir kostnaði. Við viljum með þessu auka nýsköpun og fá fólk til að framleiða sultur eða hvað sem er til að selja hér. Við vilj- um styðja íslenska framleiðslu,“ út- skýrir hann. BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Ætlar að opna þrjár verslanir Hvergi banginn Jón Gerald Sullenberger stefnir að því að opna þrjár búðir, gangi allt að óskum. Spörum og njótum lífsins Kerrurnar og allir innanstokksmunir fengust notaðir. Önnur uppröðun Áhersla verður lögð á vinalegt viðmót og lágt verð, að sögn Jóns. Uppröðunin í versluninni verður önnur en fólk á að venjast. Kostur opnar um helgina Jón Ger- ald segist styðja við bakið á íslenskri framleiðslu og leitar eftir einyrkjum til að selja vörur sínar í Kosti. „Við verðum í vand- ræðum með að selja íslenska framleiðslu á betra verði en lágvöru- verðsverslanirnar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.