Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Blaðsíða 16
16 föstudagur 13. nóvember 2009 fréttir Kirkjunnar menn hafa verið dugleg- ir við að valda usla í íslensku þjóðfé- lagi um árabil og virðist ekkert lát á því. Umræðan um aðskilnað ríkis og kirkju skýtur reglulega upp kollinum og í seinni tíð hafa þeir sem aðhyllast fullan aðskilnað látið vel í sér heyra. Svo virðist sem mikil valdabarátta sé innan kirkjunnar þótt það hafi ekki verið staðfest. Sjást merki þess best í að sumir þegnar kirkjunnar njóta verndar hennar í erfiðum mál- um en aðrir neyðast til að segja sig frá embætti. Þó sannað sé að fjölmargir prestar hafi ekki sinnt skyldu sinni, jafnvel brotið lög, fá þeir ekki sömu meðferð og almennir lögbrjótar. DV kíkti á ýmis mál seinustu ára þar sem kirkjan hefur verið í brennidepli og starf þjóna hennar vakið upp hörð viðbrögð. Ofbeldi og niðurlæging Skýrsla vistheimilisnefndar um starf- semi Bjargs, Kumbaravogs og Heyrn- leysingjaskólans kom út fyrr á árinu. Í henni kom fram að kynferðislegt ofbeldi, líkamlegar refsingar og nið- urlæging var veruleiki þeirra stúlkna sem vistaðar voru á stúlknaheimil- inu Bjargi sem Hjálpræðisherinn rak vestur á Seltjarnarnesi árin 1965 til 1967. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir starfaði á Bjargi allan starfstímann. Í skýrslunni kemur meðal ann- ars fram að fjórar af þeim sjö konum sem komu fyrir nefndina hafi greint frá því að hafa orðið fyrir kynferðis- legu ofbeldi af hálfu tiltekinna starfs- kvenna. „Tilteknar starfskonur hafi kysst stúlkur á munninn þegar þær voru að bjóða góða nótt og þá oft með þeim hætti að stinga tungunni upp í munn þeirra […] Þá greindu þær einnig frá því að komið hafi fyrir að stúlkum hafi verið strokið innanklæða, t.d. yfir brjóstin eða bakið, og greindu tvær frá því að hafa orðið vitni að því er starfskona hafi í eitt tilgreint skipti baðað viststúlku og við það tæki- færi sýnt af sér kynferðislega hegð- un, m.a. strokið um brjóst hennar og kynfæri,“ segir í skýrslunni. Auður Eir sagði í samtali við DV í september að þessar ásakanir væru ekki réttar og tjáði sig ekki frekar um málið. „Þetta eru mjög þungar ásakanir sem þarna koma fram. Þær eru ekki réttar. Ég mun tala um þetta mál en ég ætla ekki að gera það núna.“ Barsmíðar í Breiðavík Séra Sigurður Sigurðarson, vígslu- biskup í Skálholti, var starfsmað- ur á Breiðavík sumrin 1966, 1967 og 1968. Árið 1970 leysti hann af sem forstöðumaður heimilisins aðeins 26 ára gamall. Í DV í febrúar árið 2007 var sagt frá því að drengirnir sem vistaðir voru á Breiðavík sögðu að Sigurði hefði verið fullkunnugt um það ofbeldi sem forstöðumaður- inn Þórhallur Hálfdánarson og fleiri starfsmenn beittu drengina. Drengjunum sem voru vistaðir á heimilinu bar saman um að þeir hefðu verið leiddir fyrir Sigurð og kynfæri þeirra verið skoðuð. Í ein- hverjum tilfellum var talað um að umskera drengina. Þegar blaðamaður DV bar full- yrðingar fyrrverandi vistmanna á Breiðavík um ofbeldi, svelti og kyn- ferðislega misnotkun undir Sigurð árið 2007, vildi hann ekkert tjá sig opinberlega um málið. Hann sagðist búast við því að rannsókn yrði gerð á starfseminni á Breiðavík og þá þyrfti hann að gera hreint fyrir sínum dyr- um. Framdi sjálfsmorð DV kom af stað miklum umræðum um Breiðavík er blaðið fjallaði um heimilið í ársbyrjun 2007. Breiðavík- urdrengirnir sögðu frá reynslu sinni og lýstu ofbeldi og niðurlægingu sem þeir þurftu að þola af hálfu starfs- manna. Geir Haarde, þáverandi for- sætisráðherra, skipaði í kjölfarið nefnd til að kryfja málið til mergjar og skilaði hún skýrslu á síðasta ári. Þar var staðfest að það ofbeldi og misþyrmingar sem greint var frá í DV var blákaldur raunveruleikinn. Í lok september á þessu ári sagði DV frá Breiðavíkurdrengnum Sig- urði Lindberg Pálssyni sem framdi sjálfsmorð 13. september. Hann var vistaður á Breiðavík frá ellefu til þrettán ára aldurs og er 32. Breiða- víkurdrengurinn sem deyr. Margir þeirra féllu fyrir eigin hendi. Pálmi og Vigfús gerðu ekkert Árið 1996 sakaði Sigrún Pálína Ingv- arsdóttir séra Ólaf Skúlason, þáver- andi biskup, um nauðgunartilraun. Mál Sigrúnar vakti mikla athygli á Íslandi og í kjölfar ásakana hennar gáfu aðrar konur sig fram og sökuðu biskup um kynferðislega áreitni. Öll málin voru frá þeim tíma þegar Ólaf- ur var prestur. Sigrún Pálína tók málið fyrst upp tveimur árum áður. Þá talaði hún við séra Pálma Matthíasson og árið eft- ir við séra Vigfús Þór Árnason. Hún bað prestana tvo að taka málið upp innan kirkjunnar en hvorugur hafð- ist neitt að í málinu. Beittar þrýstingi Einn þeirra sem tengdust inn í mál kvennanna gegn séra Ólafi bisk- upi á sínum tíma var séra Karl Sig- urbjörnsson, þá prestur og nú bisk- up. Samkvæmt frétt DV 6. mars 1996 beittu tveir prestar, þeir Hjálmar Jónsson, sem þá var þingmaður en er nú dómkirkjuprestur, og Karl, núver- andi biskup, áhrifum sínum til að fá konurnar sem ásökuðu Ólaf biskup um kynferðislega áreitni til að falla frá málum sínum. Í fréttinni seg- ir meðal annars að prestarnir tveir hafi átt tíða fundi með konunum og að í kjölfar þeirra hafi ein kvennanna dregið mál sitt til baka. „Munu prest- arnir meðal annars hafa lagt mikla áherslu á kostnaðinn sem því fylgi að standa í málarekstri gegn biskupi,“ segir í fréttinni. Séra Karl vildi ekkert tjá sig um þetta á þeim tíma en ónafngreindur prestur sem DV ræddi við sagði að miklu „handafli“ hefði verið beitt af hálfu biskupsmanna til að þagga það niður. Vald og valdníðsla Biskup kærði málið til saksóknara og sagði sakaráburð nafngreindra og ónafngreindra aðila vega að friðhelgi einkalífs hans og æru með ólögmæt- um hætti. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér á þessum tíma sagði að ráða mætti af ummælum í fjöl- miðlum að markmiðið með þessum röngu sakargiftum væri að þvinga hann til að segja sig frá biskupsemb- ættinu. Ríkissaksóknari vísaði málinu frá þar sem hann taldi ekki efni fyr- ir hendi til að ákæruvaldið aðhefðist neitt í máli kvennanna sem biskup kærði. Skömmu áður en saksókn- ari tilkynnti þessa niðurstöðu ákvað biskup að afturkalla kröfu sína. Sigrún Pálína sagði í viðtali við Helgarpóstinn 30. maí árið 1996 að málið snérist fyrst og fremst um valdatafl innan þjóðkirkjunnar. „Þetta mál er löngu hætt að snú- ast um mig og biskup. Það snýst um vald og valdníðslu og réttarkerfið í landinu.“ Fékk fyrirgefningu „Ég bið þær konur og börn, sem brot- ið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar á þeirri þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið.“ Þessi fyrirgefning í setn- ingarræðu Karls Sigurbjörnssonar við upphaf Prestastefnu Íslands fyrr á þessu ári kom biskupsmálinu svo- kallaða aftur í sviðsljósið. Sigrún Pálína tjáði sig opinskátt um málið í Sjálfstæðu fólki og fékk langþráðan fund með kirkjunn- ar mönnum. Þar fékk hún uppreisn æru er kirkjuráð harmaði „sársauka og vonbrigði sem fram komu í frá- sögn hennar á fundinum og skort á skilningi og máttleysi í viðbrögðum kirkjunnar á sínum tíma.“ Hent út Tíðrætt hefur verið um samkyn- hneigð innan kirkjunnar og ekki er langt síðan það var sett í lög að sam- kynhneigð pör gætu staðfest samvist sína. Samkynhneigð hefur verið talin sjúkdómur með vísun í Biblíuna og fór söngvarinn Páll Óskar Hjálmtýs- son ekki varhluta af því árið 1995. Þá lilja Katrín gunnarsdóttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is ALTARI SKANDALA Mikil valdabarátta ríkir milli fylkinga innan íslensku þjóðkirkj- unnar. Kirkjunnar menn hafa oft vakið upp harðar deilur vegna starfa sinna og mörg dæmi eru um að þjónar þjóðkirkjunnar hafi brotið lög. Fá þeir ekki sömu meðferð og aðrir lögbrjótar og virðast njóta verndar hins heilaga anda. „Konan missir stjórn á sér þegar henni er hafn- að kynferðislega og notfærir sér það hvað staða mín var veik út á við.“ gerði ekkert Breiðavíkurdrengir sökuðu séra Sigurð um aðgerðarleysi í umfjöllun DV um heimilið í ársbyrjun 2007. neitað um skólavist Ágúst var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn sex drengjum. Þegar hann losnaði úr fangelsi reyndi hann að sækja nám í biblíuskóla í Svíþjóð en var neitað um skólavist vegna kvartana foreldra. Boðberi samkynhneigðar Páli Óskari var hent út úr Skálholtskirkju árið 1995 vegna kynhneigðar sinnar. Vildi ekki skrökva Séra Flóki kærði sig ekki um lygar og sagði börnum að jólasveinninn væri ekki til. Foreldrum líkaði þetta ekki. tældi á netinu Séra Baldur játaði að hafa haft munnmök við fimmtán ára dreng. Hann býr nú í Svíþjóð. „En hver sem ekki breytir í öllu eftir lögmáli Guðs þíns og lögmáli konungs skal leiddur fyrir rétt og dæmdur til dauða, útlegðar, sektar eða í fangelsi.“ Esrabók 7:26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.