Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Síða 22
22 föstudagur 13. nóvember 2009 fréttir Frískandi og góður! EI N N , T V EI R O G Þ R ÍR 2 98 .0 46 Lífrænn Lífrænar mjólkurvörur Eignarhaldsfélag Pálma Haraldsson- ar, Fons, er í lykilhlutverki í rannsókn- inni á eignarhaldsfélaginu Stím sem nú er í fullum gangi hjá Fjármálaeft- irlitinu. Einungis er mjög stutt þar til Fjármálaeftirlitið mun senda rann- sóknina á Stímmálinu til sérstaks sak- sóknara íslenska efnahagshrunsins, Ólafs Haukssonar, samkvæmt heim- ildum DV. Fons var eigandi eignar- haldsfélagsins FS37, sem stofnað var 23. október 2007, sem endurskírt var Stím tæpum mánuði síðar. FS37 keypti hlutabréf í Glitni og FL Group fyrir tæpa 25 milljarða króna þann 14. nóvember árið 2007. Tæpir 20 milljarðar voru fengnir að láni frá Glitni. Tveimur dögum síðar, þann 16. nóvember, skipti félagið um nafn og var kallað Stím. Fons hluthafi í FL Group Fjármálaeftirlitið hefur verið með það til rannsóknar hvort markaðsmisnotk- un hafi átt sér stað í viðskiptunum með hlutabréfin sem Stím keypti og að tilgangur þeirra hafi verið að falsa eftirspurn eftir hlutabréfum í Glitni og FL Group -16,5 milljarðar af upphæð- inni voru notaðir til að kaupa hluta- bréf í bankanum. Tilgangurinn með því gæti svo aftur verið að halda upp hlutabréfaverði í FL Group og Glitni og þannig að verja hagsmuni hluthaf- anna. Stímmálið þykir líkjast tveim- ur öðrum málum sem tengjast hin- um stóru viðskiptabönkunum tveim- ur: Al-Thani-málinu í Kaupþingi og Imon-málinu í Landsbankanum. Bæði þessi mál hafa verið til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara í nokkra mánuði. Athygli vekur að Fons, félagið sem átti FS37 sem síðar varð Stím, var stór hluthafi í FL Group. FL Group var svo aftur stærsti hluthafinn í Glitni. Ráð- andi aðilar í þessum tveimur félögum voru viðskiptafélagarnir Pálmi Har- aldsson og Jón Ásgeir Jóhannesson. Málið lítur því þannig út að einn stærsti hluthafinn í FL Group, Fons, var eigandi félags sem síðar keypti hlutabréf fyrir tæpa 25 milljarða króna í félögum sem Fons var beinn eða óbeinn hluthafi í. Fons lánaði FS38 Fons var sömuleiðis eigandi félagsins FS38 sem lánaði FS37 2,5 milljarða króna sem voru á einum gjalddaga á árinu 2008. Afar líklegt er að þess- ir fjármunir hafi síðar verið notaðir til að borga fyrir hluta af þeim bréfum í Glitni og FL Group sem keyptur var af Glitni. Í ársreikningi FS38 fyrir árið 2007 segir: „Félagið hefur lánað FS37 sem er í eigu Fons hf. 2.500 milljónir króna sem eru á einum gjalddaga á árinu 2008. Lánið er víkjandi fyrir öðrum lánum FS37 ehf. Miðað við eignastöðu FS37 ehf. er verulegur vafi um inn- heimtanleika kröfunnar.“ Af þessu má álykta að FS38 hefur ekki talið miklar líkur á því að FS37 gæti greitt lánið til baka og má því túlka lánið sem gjafa- gerning. Í ársreikningnum kemur jafnframt fram að FS38 skuldi Fons 2,5 milljarða króna og því er líklegt að lánið frá Fons hafi runnið í gegnum FS38 og til FS37, síðar Stím. Því má segja að Fons, og þar með Pálmi Haraldsson, hafi bæði verið eigandi og lánveitandi FS37. Þrátt fyrir þetta var nafn Pálma Haraldssonar, eða félaga tengdum honum, hvergi á lista yfir hluthafa Stím. Samt virðist Pálmi hafa verið sá sem lagði félaginu til hlutafé auk þess sem hann hafði bæði beinna og óbeinna hagsmuna að gæta í FL Group og Glitni. DV hefur ekki náð í Pálma Haralds- son til að ræða við hann um málið. Glitnir keypti félögin af KPMG Félögin FS37 og FS38, sem síðar komust í eigu Fons, voru upphaflega stofnuð af félagi í eigu endurskoð- endaskrifstofunnar KPMG sem í dag heitir KPMG FS ehf. Þá hét það CF Fyrirtækjasala ehf. Nokkrir tugir félaga voru stofnaðir með þessu FS-nafni hjá KPMG á árunum 2006 til 2008. Mörg af þessum félögum voru seld til Glitn- is og tengdra aðila á árinu 2007, sam- kvæmt heimildum DV. Ekki er vitað hvort félögin FS37 og FS38 hafi farið beint í eigu Fons úr eigu KPMG eða hvort félögin hafi fyrst farið í eigu Glitnis og þaðan til Fons. Vegna náinna eigenda- og viðskiptatengsla Fons og Glitnis skiptir það heldur lík- lega ekki miklu máli. Glitnir og Fons saman við borðið Samkvæmt heimildum DV var sam- krull Fons og Glitnis þannig að eigend- ur Fons gátu losað sig við félagið FS38 aftur til Glitnis ef eigandi þess, Pálmi Haraldsson, kærði sig um það. „Það var gengið þannig frá því að það var söluréttur á félaginu [Innskot blaða- manns: FS38]. Hann var hluti af þeim gagnkvæmu réttindum sem voru á milli Fons og bank- ans. Í honum fólst að Fons Rannsóknin á Stímmálinu beinist meðal annars að aðkomu Pálma Haraldssonar í Fons þar sem hann var eigandi félagsins FS37 sem síðar varð Stím. Félag í eigu Pálma, FS38, lánaði FS37 2,5 milljarða króna. FS38 fékk lánið frá Fons sem aftur fékk lánið frá Glitni. Eigendur Fons gerðu samning við Glitni sem gerði þeim kleift að henda FS38 aftur í bankann. Stjórnendur Fons og Glitnis eru grunaðir um markaðsmisnotkun í Stímmálinu. FONS OG GLITNIR GRUNUÐ UM MARKAÐSMISNOTKUN HLUTHAFALISTI eIGNARHALdSFéLAGSINS STíMS: 32,5 prósent, Félag stofnað af gamla Glitni sem ætlað var til endursölu 15 prósent, Gunnar Torfason 10 prósent, SPV fjárfesting hf. 10 prósent, BLÓ ehf. - félag að fullu í eigu Óskars Eyjólfssonar 10 prósent, Ofjarl ehf. – félag að fullu í eigu Jakobs Valgeirs Flosasonar og Ástmars Ingvarssonar 8,75 prósent, Viðskiptavinir Saga Capital fjárfestingabanka 6,25 prósent, Saga Capital fjárfestingabanki 2,5 prósent, Jakob Valgeir Flosason 2,5 prósent, Ástmar Ingvarsson 2,5 prósent, Flosi Jakob Valgeirsson „Þetta lán bara gengur niður eftir keðjunni, úr einum vasa í annan í gegnum milliliði. Frá Glitni, í gegnum Fons og svo koll af kolli og endar með því að vera notað til að kaupa hlutabréfa í Glitni og FL Group.“ InGI F. VILHjáLMSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is Lykilmaður Pálmi Haraldsson og eignarhaldsfélag hans, Fons, gegndu lykilhlutverki í Stímmálinu svokallaða sem sent verður frá Fjármálaeftirlitinu til sérstaks saksóknara innan skamms. Stjórnarformennirnir Jón Ásgeir Jóhannesson og Þorsteinn M. Jónsson voru stjórnarformenn FL Group og Glitnis þegar eignarhaldsfélagið Stím keypti bréf í Glitni og FL Group með lánveitingu frá Glitni. Báðir voru þeir hluthaf- ar í FL Group sem jafnframt var stærsti hluthafi Glitnis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.