Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Qupperneq 23
Fréttir 13. nóvember 2009 Föstudagur 23 Jólahlaðborð og skemmtun allar helgar fram að jólum. Glæsilegur matseðill. Dúett André Bachmann leikur undir borðhaldi 20. & 21. nóv. Herradeild PÓ 27. & 28. nóv. Geirmundur Valtýsson ásamt hljómsveit Helgarnar 4. - 5. og 11. - 12. des. auglýstar síðar Verð á jólahlaðborð 6.900 kr. Dansleikur innifalinn í verði. Verð á dansleik sér 1.500 kr. Hús opnar kl. 23:30 Eyþór Ing i André Bachm an nHelga Ingibj ör g Hulda Gests Ylfa Flosadót tir St yr m ir 69 9 39 62 Hljómsveitin „Hvar er Mjallhvít“ ásamt hljómsveit André Bachmann Sérstakir gestir: Eyþór Ingi úr „Bandinu hans Bubba“ og nú „Stuðmaður“ Hulda Gestsdóttir „ABBA Díva“. Tvær af efnilegustu söngkonum Akraness, Helga Ingibjörg og Ylfa Flosadóttir Stórdansleikur 13. og 14. nóvember g a m la Kirkjubraut 11 - Akranesi - S: 431 4343 Réttarhöld yfir Ragnari Erlingi Her- mannssyni hófust á þriðjudaginn. Ragnar var handtekinn á flugvelli í Recife í Brasilíu með mikið magn af kókaíni í ferðatösku sinni. Eftir því sem DV kemst næst með því að rýna í brasilísk dómsskjöl var um að ræða fyrirtöku í máli Ragnars á þriðjudaginn. Ekki kemur fram í skjölunum hvenær aðalmeðferð fer fram. Utanríkisráðuneytið á Íslandi getur engar upplýsingar veitt um réttarhöldin. Samkvæmt dómsskjöl- unum fara réttarhöldin fram í fylk- inu Rio Grande do Norte í norðaust- urhluta Brasilíu, ekki langt frá fylkinu Pernambuco, þar sem Recife er höf- uðborgin. Brasilískt dómskerfi hefur sætt mikill gagnrýni sökum þess hve spillt það er. Oft er talað um að í Brasilíu séu ein lög fyrir þá ríku og ein fyrir þá fátæku. Efnaðir einstaklingar geta vel forðast arm laganna með mútum. Erfitt hefur verið að breyta dómskerf- inu þar sem margir þingmannanna sem semja lögin eru gjörspilltir og fara ekki eftir sínum eigin lögum. Kerfið er líka mjög hægvirkt, svo hægvirkt að sumir glæpamanna nást aldrei. Mál fyrnast tiltölulega fljótt og það gerir það að verkum að margir glæpamenn eru ekki sakfelldir. Ef Ragnar verður fundinn sek- ur og dæmdur til þyngstu refsingar gæti hann átt von á allt að tuttugu ára fangelsisdómi. Framsal kemur ekki til greina en unnið hefur verið að því að skoða samningsgerð við Brasilíu um flutning dæmdra manna og af- plánun í tengslum við mál Íslend- inga sem þar hafa orðið uppvísir að brotum, samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu. liljakatrin@dv.is Réttarhöld yfir Brasilíufanganum Ragnari Erlingi Hermannssyni eru hafin: Fastur í spilltu réttarkerfi Hræðilegar aðstæður Ragnar var fyrst um sinn vistaður í hinu hræðilega Cotel-fangelsi en er nú í útlendinga- fangelsi samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. gat hent félaginu í Glitni aftur. Þessi söluréttur var nýttur á sínum tíma. Þannig að félagið tilheyrir ekki lengur Fons,“ segir heimildarmaður DV inn- an úr bankakerfinu en hann segir að Fons hafi nýtt sér þennan sölurétt eftir bankahrunið í haust. 2,5 milljarða lánveitingin frá Fons til FS38 er því inni í félagi sem ekki til- heyrir Fons lengur heldur búi gamla Glitnis. Þannig gátu eigendur Fons losað sig undan allri ábyrgð á félaginu og skuldbundingum þess og varpað þeim yfir á Glitni. Skilanefnd Glitnis ræður því nú yfir FS38. Úr einum vasa í annan Heimildir DV herma jafnframt að lán- veitingin upp á 2,5 milljarða sem rann frá Fons til FS38 og þaðan til FS37, síð- ar Stím, hafi verið komin frá Glitni. Þetta lán frá Fons til Glitnis var veitt án allra ábyrgða eða veða. Af þessum ástæðum tapaði Fons því engu á því að taka lánið eða veita því áfram til FS38 þar sem engin veð voru nokkru sinni fyrir hendi. Því má segja að þeir einu sem hafi tapað á lánveitingunni hafi verið hluthafar Glitnis, sem var al- menningshlutafélag á þeim tíma. Keðjan var því sú að banki sem var í óbeinni eigu Fons í gegnum FL Group lánaði félagi í eigu Fons, FS38, 2,5 milljarða króna. FS38 lánaði síð- an öðru félagi í eigu Fons, FS37, sömu upphæð. FS37 keypti þá hlutabréf í FL Group og Glitni, félögum sem voru í beinni og óbeinni eigu Fons, með um- ræddri lánveitingu og frekara láni frá Glitni upp á tæpa 20 milljarða króna. „Þetta lán bara gengur niður eftir keðj- unni, úr einum vasa í annan í gegnum milliliði. Frá Glitni, í gegnum Fons og svo koll af kolli og endar með því að vera notað til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group,“ segir heimildar- maður DV en seljandi Stím-bréfanna var, líkt og áður hefur komið fram, Glitnir sjálfur. Sterkur grunur á markaðsmisnotkun Þessi flétta Fons og Glitnis, sem lagði grunn að hlutabréfakaupum félagsins sem síðar var kallað Stím í FL Group, er afar líklega dæmi um markaðsmis- notkun af hálfu stjórnenda og eigenda Glitnis og Fons, samkvæmt heimild- armanni DV. Samkvæmt heimildum blaðsins telja eftirlitsaðilar sem skoð- að hafa þessi viðskipti Fons og Glitn- is þar af leiðandi að þau séu refsiverð. „Ég held að þetta sé dæmi um hlut- deild Fons í broti annarra, það er að segja Glitnis í þessu tilfelli. Þetta er líklega þátttaka í markaðsmisnotkun. Það er verið að versla með hlutabréf í banka, hugsanlega á óeðlilegu gengi og hugsanlega þannig að bankinn sé sá eini sem beri einhverja ábyrgð,“ segir heimildarmaður DV. Rannsókn sér- staks saksóknara mun væntanlega leiða í ljós hvort þessi grunur er á rökum reistur og hvort ákærur verða gefnar út í Stímmálinu. En ljóst er að þessu alræmda máli í aðdrag- anda efna- hagshrunsins er hvergi nærri lokið. Gekk erfiðleGa að finna kaupendur Starfsmönnum Glitnis gekk erfiðlega að finna kaupendur að bréfunum í Glitni og FL Group sem síðar voru seld inn í eignarhaldsfélagið FS37, síðar Stím. Áður en endanlegur hlutahafahópur var myndaður með mikilli aðkomu bankans sjálfs höfðu starfsmenn bankans haft samband við fjárfestingafélagið Gnúp, sem Þórður Már Jóhannesson stýrði, og Samherja, sem Þorsteinn Már Baldvinsson, síðar stjórnarformaður Glitnis, stjórnaði og átti. Enginn þeirra aðila sem Glitnir hafði samband við kærði sig hins vegar um að kaupa bréfin í Glitni og FL Group sem bankinn vildi selja. Hluthafa- hópurinn sem myndaði Stím var því þrautalending í málinu enda var ekki mikil áhætta fólgin í kaupunum á bréfunum þar sem Glitnir lánaði veðlaust fyrir nær öllu kaupverðinu. Brátt til Ólafs Stímmálið verður hið fyrsta sem saksóknari efnahagshrunsins, Ólafur Hauksson, fær inn á borð til sín sem tengist Pálma Haraldssyni, Jóni Ásgeir Jóhannessyni og öðrum stórum eigendum í FL Group og Glitni, svo vitað sé.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.