Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Blaðsíða 29
m
æ
li
r
m
eð
...
Jón Leifs - Líf í
tónum
Fyrri verk um
Jón Leifs hverfa
í skuggann af
þessari vönduðu
ævisögu.
milli trjánna
eftir Gyrði Elíasson
Tvímælalaust eitt af
hans bestu verkum
til þessa.
Ofbeldi á Íslandi - á
mannamáli
eftir Þórdísi Elvu
Þorvaldsdóttur
Nauðsynleg lesning
öllum sem eiga dóttur,
mömmu, frænku eða systur.
HyLdýpi
eftir Stefán Mána
Öll bestu höfund-
areinkenni Stefáns
Mána njóta sín í botn.
ZombieLand
Ein besta
gaman-
mynd
ársins.
desember
Raunsæ og
vel útfærð,
ekki síst
sjálf sagan.
fókus 13. nóvember 2009 föstudagur 29
Löng bið eftir litlu
föstudagur
n bÖddi Á CafÉ CuLtura
Eftir vel heppnaða útgáfutónleika í
Fríkirkjunni fyrr í mánuðinum þýðir
ekkert að slá slöku við í útgáfugl-
eðinni. Nú verða haldnir aðrir
sameiginlegir tónleikar á Cultura
cafe, Hverfisgötu 18, og verður
spilað efni af plötunum So Simple
með Bödda og Skammdegisóði með
Hljómsveitinni Huld.
Diskarnir munu fást á sérstöku
tónleikatilboði.
n íVar bJarKLind fyrir norÐan
Tíu fingur og tær er önnur sólóplata
Ívars Bjarklind. Hún inniheldur
átta alíslensk popplög, unninn og
útsett af Orra Harðarsyni, en þeir
félagar unnu einnig saman að fyrstu
einherjaskífu Ívars – Blóm eru smá.
Útgáfutónleikar verða haldnir á
Græna hattinum, Akureyri, föstudag-
inn 13. nóvember.
n KaLLi bJarni Ásamt bandi
Kalli Bjarni ásamt hljómsveit sinni
verður á 800 bar á Selfossi og hefur
lofað því að það verði brjálað fjör.
Húsið opnað kl 23:00 1000 kall inn
til 00:00 eftir það 1500 kall sem er
ekkert verð fyrir slíka skemmtun.
n ÞÚ oG ÉG Á 80´s CLub
Í tilefni 30 ára sarfsafmælis Þú og
ég munu þau sjá um að skemmta
gestum á ljósagólfinu á 80´s Club
við Grensásveg. Munu þau taka öll
sín vinsælustu lög eins og þau gerðu
á ljósagólfinu í Hollywood fyrir 30
árum ásamt Villa Ástráðs.
laugardagur
n bb&bLaKe Á sódómu
Útgáfutónleikar BB&Blake ásamt sér-
stökum gestum fara fram á Sódómu
Reykjavík og hefjast tónleikarnir
kl. 23:00. Meðal gesta verða Barði
Jóhannsson, Ingvar E. Sigurðsson,
Árni Kristjánsson, Unnur Birna
Björnsdóttir, Hlynur Sölvi Jakobsson,
Jara, Hekla Magnúsdóttir og fleiri og
fleiri.
n HJÁLmar Á seLfossi
Hljómsveitin Hjálmar ætlar að trylla
lýðinn á 800 bar á Selfossi. Þetta
er í fyrsta sinn sem Hjálmar spila á
Selfossi. Hjálmar er ein vinsælasta
hljómsveit landsins í dag og
merkilegt nokk hafa þeir aldrei stigið
fæti inn í hnakkabæ Íslands. Húsið
opnað kl 23:00.
n daLton Á spot
Það má búast við að björgunarsveitir
verði kallaðar út til að ná þakinu
niður á Spot þegar Dalton mun stíga
á svið og gera allt vitlaust.
n ný dÖnsK í sJaLLanum
Fögnum komu jólanna í Sjallanum
því jólin eru komin fyrir norðan.
Ný dönsk ætlar að syngja sig inn í
norðlensk hjörtu og Jón Ólafsson
hefur lofað dúndurfjöri. Engin forsala
er á gleðina. Ný dönsk mætir á svið
kl 01:00 og ætlar Sjallinn að rífa upp
dyrnar klukkutíma fyrr.
n síÐasti sÉns
Síðasti séns að sjá Stúlkuna sem
lék sér að eldinum sem er önnur
myndin í Millennium trílógíunni.
Hin ótrúlega Lisbeth Salander lendir
aftur í ótrúlegum hremmingum með
blaðamanninum Mikael Blomkvist í
baráttu þeirra við ill öfl í samfélaginu.
En í þetta skiptið þarf Lisbeth að
hverfa aftur til sinnar myrku fortíðar
ef henni á að takast að vera skrefi á
undan og halda sér lifandi. Hér er á
ferð stórkostlegur spennutryllir sem
fylgir eftir einni albestu spennumynd
síðari ára.
Hvað er að
GERAST?
Það var í byrjun apríl sem rokkrapp-
sveitin Bróðir Svartúlfs skaust fram
á sjónarsviðið með sigri í Músíkt-
ilraunum. Tilraunakennd tónlist
þeirra með rólyndis rappi og þyngri
köflum sem jaðra við þungarokk féll
vel í kramið hjá mörgum, þar á með-
al undirrituðum, og hefur biðin eft-
ir fyrstu plötu Skagfirðinganna verið
löng. Út er komin fyrsta platan, sam-
nefnd stuttskífa með sex lögum.
Sex lög? Ég átti vart orð þegar
ég sá að aðeins væru sex lög á plöt-
unni, þar af náttúrlega þau sem
maður hefur hlustað á í allt sumar,
lögin sem Bróðirinn söng í Músíkt-
ilraunum. Gæðin eru þó þau sömu.
Lögin hafa ekkert breyst og hljóma
jafnvel á plötunni og alltaf. Það er
að undanskildu laginu Rólan sveifl-
ast enn sem er skelfilegt og hreint
lýti á plötunni. Því má líkja við ein-
hvers konar þyngri útgáfu af lagi
með Dáðadrengjum. Það er ansi
dýrt að vera með jafnvont lag og
það á aðeins sex laga plötu.
Lagið Augun er þó það sem gerir
plötuna. Gjörsamlega mergjað lag
sem súmmerar algjörlega upp hvað
Bróðir Svartúlfs er að reyna að gera.
Þar fer Arnar Freyr, söngvari hljóm-
sveitarinnar, gjörsamlega á kostum
og ekki er undirspilið verra. Besta
lag Bróður Svartúlfs hingað til. Án
efa.
Svekkelsið við svona fá lög á
plötunni er erfitt að komast yfir.
Sérstaklega þegar svo stór hluti af
henni er áður útgefið efni. Tón-
listin er samt frábær og eru þessir
strákar svo ferskir að orð fá því vart
lýst. Tónlistin á plötunni er alltaf
upp á fjórar stjörnur en plötunni
er ekki hægt að gefa meira en raun
ber vitni. Þó skyldueign fyrir alla
áhangendur Bróður Svartúlfs. Það
verður að segjast. Tómas Þór Þórðarson
Bróðir
SvartúlfS
Útgefandi: Sjálfsútgáfa
TónliST
Loksins komin Bróðir Svartúlfs er
búinn að gefa út sína fyrstu plötu.
Styrktartónleikar Caritas fara fram í Kristskirkju við Landakot um helgina:
Stórsöngvarar á tónleikum
er stödd í Pompei fyrir eldgosið.
Ramóna hittir strák að nafni
Theó sem hún reynir að telja trú
um að fjallið sem blasi við borgar-
búum sé í raun eldfjall og eigi eftir
að gjósa fyrr eða síðar. Vandamál-
ið er að hún veit ekki hvenær það
gerist; hvort það verði eftir hundr-
að ár, tíu ár eða bara tíu mínútur.
Theó trúir Ramónu ekki í fyrstu en
það breytist þegar hún segir honum
frá hundinum. Upp úr kafinu kem-
ur nefnilega að Theó á hundinn en
þegar Ramónu tekst loks að sann-
færa hann um hörmungarnar sem
eru í nánd er eldgosið hafið og tím-
inn því knappur sem þau hafa til að
forða sem flestum undan.
elsti aðdáandinn 98 ára
Eins og sést á lýsingunni
blandar Kim saman sögu-
legum atburði og skáld-
skap sem er sú aðferð
sem hún hefur notað í
öllum bókum sínum.
„Ég smíða spennandi
ævintýri í kringum sögu-
lega atburði og raunveru-
legar manneskjur. Aftast í
bókunum er ég svo með alls
konar sögulegar staðreyndir
og ég fæ mörg bréf frá
krökkum í Svíþjóð
sem eru að þakka
mér vegna þess
að þau fengu
hæstu einkunn
í skólanum eft-
ir að hafa les-
ið bækurnar
mínar. Marg-
ir skólar í Sví-
þjóð nota bæk-
urnar mínar í
sögukennslu
og krakkarnir
læra svo mikið
af þeim. Og full-
orðna fólkið ferð-
ast með hliðsjón
af bókunum,“ seg-
ir Kim en lesenda-
hópur hennar er
afar breiður.
„Lesendur
mínir eru á öll-
um aldri, frá
sjö ára upp í 98
ára,“ bætir hún
við brosandi
en hún bygg-
ir efri mörk-
in á nokkuð
haldbærum
rökum. Kim
fékk nefni-
lega bréf
einu sinni
frá manni
sem vantaði
einungis tvö
ár í hundrað ára afmælið þar sem
sá gamli sagðist elska bækurnar
hennar!
Aðspurð segist Kim ekki vera
sagnfræðingur. „Nei, ég bara elska
sögu og langar sífellt að læra meira
um hana. Þar af leiðandi vel ég að
skrifa um sögulega atburði sem mig
langar að læra meira um og sögu-
lega staði sem mig langar að ferð-
ast til,“ segir Kim en þess má geta
að Ramóna og Theó eru aðalpers-
ónurnar í öllum bóka hennar hing-
að til, nema þeirri nýjustu.
Og Kim lærir svo sannarlega
meira um atburðina og staðina sem
hún fjallar um þar
sem hún leggur á
sig mikla rann-
sóknarvinnu
fyrir skrifin.
Til dæm-
is tók það
hana
fimm ár
að skrifa
Aftur til
Pompei.
Á þeim
tíma las
hún á fimmta tug
bóka, skjöl með vitn-
isburði fólks sem
upplifði eldgosið í
Vesúvíus fyrir nærri
tvö þúsund árum auk
þess sem Kim lærði
rómverska tímatalið
sem er nokkuð flókn-
ara en það sem til að
mynda íbúar hér á
landi og annars stað-
ar í Norður-Evrópu
styðjast við.
byrði að vera líkt
við Lindgren
Eins og áður seg-
ir hefur Kim notið
mikillar velgengni
frá því rithöfunda-
ferillinn hófst fyrir
tólf árum. Fyrir utan
þýðingu og dreif-
ingu bókanna víða
um heim eru tveir
kvikmyndaframleið-
endur með til skoð-
unar möguleikann
á að færa eina eða
fleiri af bókum hennar upp á hvíta
tjaldið. Það má óneitanlega líka
telja það til marks um velgengi
Kim að sænskir fjölmiðlar hafa
kallað hana hina nýju Astr-
id Lindgren.
„Það er af því að
bækurnar mínar selj-
ast svo vel. Þetta er
ekki vegna þess að
ég skrifi bækur
sem líkjast bók-
um Lindgren
svo mikið.
Mínar sög-
ur eru mjög
frábrugðnar
hennar sög-
um, en vegna
þess að bæði
börn og full-
orðnir elska
þessar sögur
er salan svona
mikil,“ útskýrir
Kim.
Hún neitar
því ekki að sam-
líking við jafn-
stóran höfund og
Astrid Lindgren
sé nokkur baggi að
bera. „Fyrst þeg-
ar ég las þetta í einu
dagblaði vildi ég ekki
fara út úr húsi í tvo daga.
Ég hitti Astrid Lindgren, ég
elska bækurnar hennar og
ég dái hana sem persónu
en ég upplifi mig á engan
hátt líka henni. En ég vona
að ég verði jafnyndisleg
manneskja og hún og skrifi bæk-
ur sem allir elska og læra af. Bækur
sem fólk getur geymt í hjarta sínu,
til að elska og varðveita, eins og
reyndin er með bækur Astrid Lind-
gren. Þetta er mikil byrði að hafa á
herðum sér, að standa undir öllu
því sem Astrid Lindgren stóð und-
ir, en ég geri mitt besta að minnsta
kosti til að standa undir þessum
merkimiða, að vera „hin nýja Astrid
Lindgren“.
Ætlar að skrifa bók um ísland
Aftur til Pompei var þýdd á íslensku
af Elínu Guðmundsdóttur og gef-
in út af bókaforlaginu Urður sem
stofnað var fyrr á þessu ári. Kim
segir ekki hafa verið tekna ákvörðun
um hvort fleiri bóka hennar verði
þýddar yfir á íslensku; það ráðist af
viðtökum þessarar útgáfu. „Ef hún
selst vel kemur næsta bók líklega út
í apríl,“ segir Kim sem dvaldist hér
á landi í viku. Á þeim tíma hélt hún
erindi víða um land þar sem hún
sagði frá tilurð bóka sinna og fleira
tengt rithöfundastarfinu og naut
aðstoðar starfsfólks Urðar við upp-
lestur úr íslenskri þýðingu á Aftur
til Pompei.
„Ég er mjög þakklát fyrir að hafa
fengið tækifæri til að heimsækja Ís-
land,“ segir Kim sem var hér í fyrsta
sinn. „Ég fékk oft spurninguna
hvort ég hygðist skrifa bók um Ís-
land og svarið er: auðvitað! Eftir að
hafa verið hér væri ég vitlaus ef ég
myndi ekki gera það. Þetta er land
ævintýranna og huldusagnanna og
ég held að þetta verði ein af mínum
bestu bókum!“ kristjanh@dv.is
Astrid Lindgren
Kim m. Kimselius Elskar rithöfunda-
starfið en Kim hefur sent frá sér þrettán
bækur á tólf árum. Tuttugu handrit eru
svo tilbúin í skúffunni. HeiÐa HeLGadóttir
Vinsæl Aftur til Pompei seldist í ell-
efu þúsund eintökum fyrstu vikuna
eftir útkomu í Svíþjóð. Slíkt hefur
varla sést áður þar í landi þegar um
fyrstu bók höfundar er að ræða.