Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Page 31
helgarblað 13. nóvember 2009 föstudagur 31
Magnaðar endurkoMur
sigfús sigurðsson
Afar hæfileikaríkur handknattleiks-
maður, stór og sterkur eins og björn.
Hann skaust upp á stjörnuhimininn
með Val og komst í atvinnumennsku.
Þar fór allt í rugl með alls konar fíkn
og einsemd. Þessi stóri strákur var
þó rifinn aftur á lappir í Val og kom-
ið í gírinn. Eftir það tók Fúsi sig á og
varð einn af lykilmönnum strákanna
okkar í handboltalandsliðinu. Úr
ruglinu í silfurdreng. Það er alvöru
endurkoma.
björgólfur guðMundsson
Kóngur Íslands á níunda áratugnum en sökk með
Hafskipsmálinu. Hvarf til Rússlands þar sem hann
auðgaðist heldur betur á nýjan leik. Kom heim, keypti
Landsbankann og komst í hóp meðal ríkustu manna
heims. Aftur var fallið var hátt og í þetta sinn mun
hærra en í Hafskipsmálinu. Hann státar nú af þeim
vafasama heiðri að eiga stærsta gjaldþrot Bretlands-
sögunnar og vera eigandi bankans sem færði okkur
Icesave.linda Pétursdóttir
Sat á toppi heimsins, sem fegursta kona
heims. Hvarf í nokkur ár á meðan hún
barðist við Bakkus eins og hún greindi frá
í bók um ævi sína. Hún stofnaði svo Bað-
húsið og hefur verið ein af mest áberandi
konum í íslensku atvinnulífi síðan.
ragnar
bjarnason
Meistari dægurlagasöngs-
ins. Algjörlega tímalaus
og er vinsælli nú en áður.
Þrátt fyrir gríðarlegar vin-
sældir á árum áður.
jóhannes jónsson
Jóhannes gekk í gegnum gjaldþrot og erfiðleika
áður en Bónusævintýrið hófst. Með því ævin-
týri komst hann í guðatölu meðal landsmanna.
Lækkaði matarverð og jók lífsgæði almennings.
Árni johnsen
Var dæmdur fyrir þjófn-
að og sat inni. Fékk með-
al annars ný rúm á Kvía-
bryggju meðan hann var
þar. Eftir að vistinni lauk
fékk hann uppreist æru og
var kosinn aftur á þing þó
ekki hafi allir verið sáttir
við það. Kjósendur hans
voru það hins vegar og
það var nóg.
tóMas tóMasson
Einn allra vinsælasti hamborgarastaður á landinu
lengi vel var Tommaborgarar. Tommi á Tomma-
borgurum var ekki síður þekktur. Eftir að staðnum
var lokað hvarf Tommi úr sviðsljósinu um stund en
kom sterkur til baka með Hamborgarabúlluna og er
aftur orðinn hamborgarakóngur Íslands.
Þórhallur sigurðsson
Grínari með stóru gé-i. Var nánast kominn á
endastöð með grínið þegar hann varð sextugur og
ákvað að halda upp á afmælið með nokkrum sýn-
ingum. Sextugsafmælið stóð yfir í þrjú ár fyrir fullu
húsi og allt sem Laddi hefur komið nálægt síðan
hefur orðið að gulli. Ferskur sem aldrei fyrr.
PÁll
rósinkranz
Rokkari níunda ára-
tugarins sem lifði eftir
mottóinu „rokk og ról“.
Fór síðan í trúarleiðang-
ur þar sem hann týnd-
ist en dúkkaði aftur upp
sem látúnsbarki þjóð-
arinnar. Selur plötur
sem aldrei fyrr og er án
efa einn besti söngvari
landsins.
unnur birna VilhjÁlMsdóttir
Vann hug og hjörtu landsmanna þegar hún varð ungfrú heimur árið
2005. Gullfalleg og einlæg. Hún fékk lítinn frið frá fjölmiðlum og einkalíf
hennar var iðulega á síðum slúðurblaða. Hún hvarf úr sviðsljósinu um
stund á meðan hún einbeitti sér að lögfræðinámi en snéri fyrir skömmu
aftur í aðalhlutverki vinsælustu bíómyndar Íslands um þessar stundir.