Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Page 41
helgarblað 13. nóvember 2009 föstudagur 41 Eysteinn Jónsson, formaður Fram- sóknarflokksins, var eitt sinn spurður af ungum þingmanni, hvort ekki væri nauðsynlegt að skólast vel í Macchia- velli til undirbúnings farsælu stjórn- málastarfi. „Nei,“ sagði Ólafur Þ. Þórð- arson löngu síðar að Eysteinn hefði svarað. „Maður sem er þrautlesinn í Sturlungu getur ekkert lært af Macchia- velli.“ Hin pólitísku klókindi og fram- sýni Snorra Sturlusonar, merkilegasta skálds og stjórnmálamanns Sturlunga- aldar, og kannski Íslandssögunnar allrar, koma ákaflega sterklega fram í meistaralegri bók Óskars Guðmunds- sonar um Snorra í Reykholti. Loks kom að því að honum var sýndur sá sómi, að Íslendingur skrifaði um hann heild- stæða ævisögu, sem í hrunadansi sam- tímans á sannarlega erindi til hvers einasta Íslendings. Snorri Sturluson hefur öldum saman verið lærimeist- ari mikilla stjórnmálamanna, sem af honum hafa í senn lært djúp klókindi andspænis erfiðum stöðum, en jafn- framt þann manngang sem þarf til að brjóta upp flókna pólitíska skák með mannfórnum, eða óvæntum samning- um sem fyrr en varði gerðu hörðustu óvini að spökustu stuðningsmönnum. Allt þetta nær Óskar Guðmundsson að flytja lesendum sínum með skilmerki- legum hætti. Af síðum bókarinnar stíg- ur Snorri fram sem hinn vitri lappi ís- lenskrar stjórnmálasögu. Óskar lýsir með meitluðum og blóðríkum hætti yfirburðamanni á sviði stjórnsnilldar, þar sem slægð og klókindi verða að list- formi í sjálfu sér, en sem býr jafnframt yfir hæfileikanum til að lyfta sér og horfa yfir langa tímafláka og skyggnast þannig eftir kennileitum framtíðarinn- ar sem hann mótar svo og stýrir með fyrirhyggju, mægðum, og liðveislu- kaupum ef ekki vill betur. Það geislar af nýjum kenningum um Snorra í meistaraverki Óskars um þennan frægasta Íslending allra tíma, sem þó hefur siglt þoku hulinn gegn- um aldirnar. Fáir hafa gert tilraun til að greiða úr henni með heildstæðum hætti ef frá er talinn Sigurður Nordal sem gerði gott áhlaup að því, og fáein- ir fleiri. Ein af athyglisverðari kenn- ingum Óskars er hvernig Snorri notar óviðjafnanlega skáldskapargáfu sína og menningarlega auðlegð til að ryðja sér leiðina að borðum jarla og kon- unga í Evrópu og hefjast til innmúraðs trúnaðar við þá. Sú vinátta, sem þannig þróaðist varð sterkasti lykillinn að yfir- burðastöðu Snorra um langt skeið í stjórnmálum þrettándu aldarinnar á Íslandi. Ægisterk pólitísk staða Snorra á Íslandi verður þannig ekki skilin frá stöðu hans sem þróttmesta skálds og rithöfundar sinnar tíðar, samkvæmt kenningu Óskars. Hvort studdi hitt innbyrðis, og skapaði þannig sérkenni- lega samanslungna blöndu af einstöku skáldi sem ófst um æðar og taugar öfl- ugasta stjórnmálamanns aldarinnar. Önnur kenning Óskars er athyglis- verð á öld kynjafræðanna. Óskar sýn- ir með sterkum rökum hversu mik- il áhrif konur höfðu á Snorra, á sýn hans á öldina, og ákvarðanir sem lýstu langt fram eftir ævi, og jafnvel lengur. Áhrif kvenna, sem hingað til hafa leg- ið að mestu í þagnargildi í úrvinnslu miðaldasagna, eru þannig eitt af til- brigðunum við Snorrastef Óskars Guð- mundssonar. Það mun mörgum þykja forvitnilegt, og femínistum fengur að. Hefði líklega fáa órað fyrir því að Ósk- ar Guðmundsson ætti eftir að bregða ljóma femínískrar sagnfræði á staka þætti í ævi Snorra. Eitt af því sem seinni tíðar mönn- um hefur orðið tíðreikað til í þenk- ingum um hinn mikla jöfur í Reyk- holti er hví mörgum samtímamönnum virðist í slíkri nöp við hann, að jafnvel höfundar á borð við Sturlu Þórðar- son víkja ekki að honum öðru vísi en með neikvæðum blæ. Hvað olli þess- um kulda annarra stórmenna þrett- ándu aldarinnar í garð Snorra, sem þó réði um langt skeið því sem hann vildi ráða? Hvað olli því að mesta skáld og stjórnmálamaður aldarinnar var veg- inn einsog hundur í kjallaragöngum af mönnum sem jafnvel voru tengdasynir hans og áttu til margvíslegra tengsla að telja? Með svipuðum hætti var sena- torum og konsúlum Rómar bani ráð- inn, rýtingum lagðir gegnum drifhvítar skikkjur af göfugum óvinum við súlur Senatsins eða á fólkþingum Marsvalla. Kenning Óskars er sú, að Snorri hafi fallið í þá gryfju stjórnmálamanna, og skálda, sem beita slægð og vél og kom- ast til hárra vegsemda, að gleyma því að deila valdinu með öðrum, forsóma að gefa vinum, stuðningsmönnum og fjarlægari fjölskyldu hlutabréf í eigin valdi og velgengni. Valdið rann á hann einsog heimabruggið í Reykholti, og með aldrinum gætti hann þess ekki að deila því út fyrir þrengsta hringinn. Fyr- ir vikið hófust upp öfundarmenn, sem ekki fengu að sitja við eldinn, og Snorri bæði skammtaði naumt, og skirrtist ekki við að renna í með lögsóknum af litlum tilefnum. Um síðir urðu þeir svo margir, sem Snorri hafði af þessum sökum bakað kala hjá, að þeir sam- einuðust um að hrinda hon- um fyrir ætt- ernisstapa til að skapa sjálf- um sér meira svigrúm til valda og auðs. Þannig endur- tekur mann- kynssagan sig frá Rómaveldi til Reykholts. Bók Óskars er sannkallað meistaraverk, og minning Snorra þess verðug, enda afrakstur tíu ára þrotlauss starfs. Textinn er þéttur og knappur, afar læsilegur, og skrifaður af þroskaðri snilld. Bókin er samsett úr stuttum köflum, þar sem helstu atburðum í ævi Snorra eru gerð góð skil af höfundi, sem í senn hefur yfirburða þekkingu á viðfangs- efninu og einstaka getu til að greina hið stóra frá hinu smáa. Fyrir vikið er bók- in afar lesvæn, og á heima jafnt í hillum á Aragötu háskólafólks- ins sem heimilum Breiðhyltinga. Snorri er bók eins rammís- lensk, en þó svo al- þjóðleg sem hægt er að sameina á einu þrykki. Ég spái því að hún eigi eftir að bera nafn höf- undar síns lengra fram um aldir en flestra annarra Íslendinga á vorum dögum. Ævisaga hins mikla sagnameistara Snorra Sturlusonar, rituð af Óskari Guðmundssyni, kom nýverið út hjá Forlaginu. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra er heillaður af verkinu eins og lesa má í meðfylgjandi grein. Meistaraverk uM snorra í reykholti Óskar Guðmundsson rithöfundur „Bók Óskars er sannkallað meistaraverk, og minning Snorra þess verðug, enda afrakstur tíu ára þrotlauss starfs.“ Snorri Sturluson Sumir segja hann mesta rithöfund Íslandssögunnar. Aragata og Breiðholt Greinarhöf- undur segir bók Óskars afar lesvæna og að hún eigi heima jafnt í hillum á Aragötu háskólafólksins sem heimilum Breiðhyltinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.