Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Qupperneq 42
42 föstudagur 13. nóvember 2009 ÓTTAÐIST AÐ MISSA YNGRA BARNIÐ Robert Enke hafði að því er virtist allt. Hann var besti markvörður Þýskalands, vinsæll leikmaður, forrík- ur og á leiðinni á Heimsmeistaramótið. En bak við bros og glansmynd fótboltamannsins var maður með þunglyndi á alvarlegu stigi. Hann vildi ekki gera sjúkdóm sinni opinberan því hann óttaðist afleiðingarn- ar. Enke er ekki fyrsti leikmaðurinn sem fellur frá í blóma lífsins. Frábær markvörður Robert Enke var líklegur til að standa í marki fyrir lið Þýskalands á HM í sumar. Trúlega voru margir til í að vera í sporum Robert Enke. Hann virtist hafa allt sem fótboltamenn dreym- ir um. Bestur í sinni stöðu í heima- landinu, vinsæll leikmaður og á leiðinni á Heimsmeistaramótið, trúlega sem byrjunarliðsmaður. En Enke var þunglyndur og vildi ekki gera það opinbert. „Hann vildi einnig gera allt til að forðast að það yrði dregið fram í sviðsljósið. Hann óttaðist að hann myndi missa allt og hann óttaðist að missa Leilu, dóttur sína, sem hann ættleiddi. Eftir á að hyggja var það algjört brjálæði,“ sagði Ter- esa Enke, eiginkona hans, á blaða- mannafundi. Skildi eftir kveðjubréf Robert Enke lagði bíl sínum nokkrum metrum frá brautart- einunum þar sem lest frá Bremen var að koma til Hannover. Hann gekk nokkur hundruð metra áður en lestin kom á rúmlega 160 kíló- metra hraða og varð honum að bana. Lögreglan í Þýskalandi hefur staðfest að hann hafi skilið eftir sig kveðjubréf. Þá sagði lögreglan að rannsókn málsins yrði sennilega lokið innan örfárra daga. Enke og eiginkona hans, Teresa, misstu tveggja ára gamla dóttur sína, Löru, fyrir þremur árum. Hún þjáðist af sjaldgæfum hjartagalla og lést í aðgerð 17. september 2006. Þá var Enke orðinn þunglyndur en fór algjörlega í svartnættið eftir frá- fall Löru. Þau hjóninn ættleiddu Leilu í maí á þessu ári og var Enke hrædd- ur um að þunglyndi hans myndi verða til þess að þau misstu dótt- ur sína. Átti að vera númer eitt „Við erum allir í áfalli,“ sagði Oliver Bierhoff sem tengist þýska lands- liðinu sterkum böndum en Þýska- land átti að spila við Chile um helg- ina, þeim leik hefur verið frestað. „Okkur skortir orð,“ bætti Bierhoff við með tárin í augunum. Enke hafði verið greindur með vírus í maga og hafði ekkert spilað með Hannover í tvo mánuði. Hann var ekki valinn í landsliðið, sem átti að spila við Chile, sökum þess en Joachim Low, landsliðsþjálfari Þýskalands, hafði gefið það í skyn að Enke yrði hans maður í ramm- anum á HM í sumar. Enke hafði spilað átta landsleiki, þann síðasta í ágúst sl. Ástin sigrar ekki allt Lífið var ekki dans á rósum hjá Enke þó það liti þannig út. Hann Tárvot kveðja Teresa Enke, eiginkona Roberts, á blaðamannafundi. Aðrir fótboltamenn sem fallið hafa frá í blóma lífsins. fleiri látnir fótboltamenn Marc-Vivien Foé, 1. maí 1975 – 26. júní 2003 Antonio Puerta, 26. nóv. 1984 – 28. ágúst 2007 Andrés Escobar, 13. mars 1967 – 2. júlí 1994 Phil O’Donnell, 25. mars 1972 – 29. des. 2007 Daniel Jarque, 1. janúar 1983 – 8. ágúst 2009 Fæðingardagur: 24. ágúst 1977 Fæðingarstaður: Jena, Austur- Þýskaland Hæð: 1,86 metrar ÁR lið lEikiR 1995–96 Carl Zeiss Jena 3 1996–99 B. M‘gladbach 32 1999–02 Benfica 77 2002–03 Barcelona 1 2003 Fenerbahçe 1 2004 Tenerife 9 2004–09 Hannover 96 164 Alls 287 robert Enke BEnEDikT BóAS HinRikSSOn blaðamaður skrifar: benni@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.