Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Page 43
13 . nóvember 2009 föstudagur 43
:: Ásta Kristjánsdóttir í einlægu og
opinskáu viðtali
:: Elfa Gísladóttir leikkona ræðir
um Jón Óttar, Völu Matt, sorgina og
söfnuðinn
:: Yfir 90 hugmyndir að jólafatnaði
fjölskyldunnar
:: Yfir 70 hugmyndir að flottum
jólagjöfum
Jólakjólar, hátíðarförðun, jóladekur
sælkeranna, kökur, karamellur, kakó
og margt fleira
JÓLABLAÐIÐ
132 SÍÐUR
sMÁaugLÝsINgasÍMINN Er
515
55 50
smaar@dv.is
gerði samning við stórlið Bar-
celona en lék lítið með liðinu
og var lánaður til Fenerbahce
í Tyrklandi árið 2002. „Tíminn
eftir veruna í Istanbúl og Barce-
lona var erfiður. Eftir það héld-
um við að við gætum komist
yfir allar raunir. Svo dó Lara en
dauði hennar gerði okkur hjón-
in enn nánari. Þá héldum við
að með ástinni gætum við yfir-
stigið allar hindranir. En það
tókst okkur ekki.“
Alls lék Enke 164 leiki
með Hannover og ætl-
ar félagið nú að leggja
númerinu hans.
Stuðningsmaður dýra Robert
Enke var mikill dýravinur og átti
fjölmörg gæludýr.
Níu Evrópuþjóðir eru komnar á
heimsmeistaramótið sem fer fram
í Suður-Afríku næsta sumar. Fjögur
pláss eru laus til viðbótar en umspil
um þau sæti hefjast á laugardaginn.
Þar mætast liðin sem lentu í öðru
sæti sinna riðla en drátturinn varð
þannig að Írland mætir Frakklandi,
Portúgal leikur gegn Bosníu og
Hersegóvínu, Grikkland og Úkraína
etja kappi og þá mætast Rússland
og Slóvenía. Leikið verður á laug-
ardag og miðvikudag, heima og að
heiman, og fer samanlagður sigur-
vegari á HM.
Bosnía og Hersegóvína kom
hvað mest á óvart í riðlakeppninni
og var ekki langt frá því að kom-
ast á HM í fyrstu tilraun. Þess bíð-
ur þó það erfiða verkefni að leika
við Portúgal sem rétt skreið inn í
umspilið. Helstu tíðindin úr þeirri
rimmu eru að sjálfsögðu að Cristi-
ano Ronaldo er meiddur. Verð-
ur gullkálfurinn og dýrasti leik-
maður heims því ekki með sem
er auðvitað skarð fyrir skildi
hjá Portúgölum.
Mikil eftirvænting ríkir í
Írlandi fyrir umspilsleikjum
Írlands gegn Frakklandi. Írar
léku síðast á stórmóti á HM
2002 en hafa verið í mikilli
lægð síðan. Ítalski snillingur-
inn, Giovanni Trappatoni, hefur
þó blásið lífi aftur í írska lands-
liðið sem er til alls líklegt gegn
fyrrum heimsmeistur-
unum. „Það er
skandall ef
við kom-
umst ekki
áfram,“
segir
vinstri bakvörðurinn, Patrice Evra,
leikmaður Manchester United og
Frakklands. Það yrði auðvitað topp-
urinn á öllu floppi þjálfarans, Raym-
ond Domenech, komist Frakkland
ekki á HM en hann hefur vægast
sagt verið umdeildur í sínu starfi.
Rússar undir stjórn Guus Hidd-
ink sem komust í undanúrslit Evr-
ópumótsins í fyrra eiga erfiða
rimmu fyrir höndum gegn annari
Austantjaldsþjóð, Slóveníu. Slóven-
ar sýndu góða takta í riðlakeppn-
inni og hafa ekki verið með jafn-
sterkt lið síðan árið 2000 þegar það
komst á lokamót Evrópukeppninn-
ar. Þá reyna fyrrum Evrópumeistar-
ar Grikklands að komast á
HM en eftir sigur þeirra
á EM 2004 missti lið-
ið af sæti á HM í
Þýskalandi. Þeirra
bíða leikir gegn
Úkraíinu en það
einvígi er fyrir-
fram talið það
jafnasta. Átta
lið, fjögur sæti,
tveir leikir. Síð-
asti séns á sæti
á stærsta móti
heims.
Umspil um þau fjögur Evrópusæti sem eft-
ir eru á HM hefjast um helgina:
SíðaSti SénS á
Suður-afríku
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Leikirnir í umspilinu:
n Írland - Frakkland
n Portúgal - Bosnía
n Grikkland - Úkraina
n Rússland - Slóvenía
Viðureignir
Cristiano Ronaldo Dýrasti
leikmaður heims verður ekki
með Portúgal í umspilinu.
Ögurstund fyrir Frakka Franck Ribery og félagar í franska landsliðinu verða að
leggja Íra að velli til að komast á HM í Suður-Afríku.