Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Page 44
Hommabaninn Colin Ireland er breskur raðmorðingi sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi. Árið 2006 var hann einn 35 fanga sem ólíklegt er að fái nokkurn tímann reynslulausn. Ireland fékk viðurnefnið Hommabaninn því hann lagði einkum og sér í lagi fæð á samkynhneigða karlmenn. Í ársbyrjun ákvað Ireland að gerast raðmorðingi og dró sú ákvörðun dám af nýársheiti. Í kjölfarið fór hann að venja komur sínar í klúbb samkynhneigðra karl- manna í vesturhluta Lundúna. Lesið um Hommabanann í næst helgarblaði DV. BrimaBorgarengillinn Gesina Gottfried, Brimaborgarengillinn, hafði takmarkalausan metnað og skorti ekki viljastyrk til að ná fram markmiðum sínum. Litlu skipti hvort hindranir á leið hennar voru eigin börn eða foreldrar, hindrun- unum var rutt úr vegi miskunnarlaust, en með þolinmæði. Í rúmlega áratug komst Gesina upp með morð á fimmtán manns, að minnsta kosti. Síðasta manneskjan sem tekin var af lífi opinberlega í Brimaborg í Þýskalandi var Gesche Gottfried, og fór aftakan fram þann 21. apríl, 1831. Gesche „Gesina“ var þýskur raðmorðingi og myrti að minnsta kosti fimmtán manns í Brima- borg og Hannover í Þýskalandi. Á meðal fórnarlamba hennar voru foreldrar hennar og börn. Morðin framdi Gesina á ár- unum frá 1813 til 1827 og notaði hún eitur til ódæðanna. Eitrið sem hún kaus að nota var arsen- ik blandað fitu. Það var þekkt sem músasmjör enda gjarna notað til að drepa mýs. Brimaborgarengillinn Fórnarlömb sín valdi Gesina að mestu leyti úr eigin fjölskyldu og í ljósi þess í hve langan tíma hún komst upp með morðin má ætla að hún hafi haft meira álit á skjaldbökunni en héranum, og haft þolinmæði og staðfestu í heiðri í stað hamagangs og fljót- færni. Gesina var afar metnaðarfull og um leið og hún henti reiður á því sem hugur hennar stóð til var hæpið að nokkuð kæmi í veg fyr- ir að hún fengi vilja sínum fram- gengt. Hægt og bítandi náði hún markmiðum sínum og skipti þá litlu hvort ryðja þurfti úr vegi for- eldrum hennar, eiginmönnum eða börnum. Morð undir yfirskyni hjúkrunar Fórnarlömbum sínum gaf Gesina litla skammta músasmjörs undir því yfirskyni að um hjúkrun væri að ræða og eitt af öðru dóu þau drottni sínum. Að sjálfsögðu auð- sýndi hún opinberlega mikla sorg vegna hinna óskiljanlegu sjúk- dóma sem drógu ættingja hennar til dauða, einn af öðrum. Sitt fyrsta fórnarlamb, eigin- mann sinn Johann Miltenberg, drap Gesina árið 1813 þegar henni varð ljóst að hann sólund- aði arfi sem hann hafði fengið eft- ir föður sinn og var grundvöllur tilvistar fjölskyldunnar. Eftir að hafa rutt Johanni úr vegi fékk Gesina augastað á Mi- chael Christoph Gottfried og sá í honum vænlegt mannsefni. Á nokkrum mánuðum losaði hún sig á miskunnarlausan hátt og kerfisbundinn við alla þá sem hugsanlega gætu orðið Þrándur í götu hennar og þess markmiðs að giftast Michael. Þeirra á meðal voru foreldrar hennar og öll þrjú börnin sem hún hafði eignast með Johanni Miltenberg. Ættingjum og vinum fækkar Tvíburabróðir Gesinu, Johann, fékk meira en hann krafðist þegar hann kom óvænt heim árið 1816 eftir skamma dvöl í hernum. Jo- hann krafðist, með rétti að eig- in mati, síns hluta af arfleifð for- eldra þeirra systkina. Johann mætti örlögum sínum yfir sjávarréttarmáltíð sem Ges- ina hafði af einskærri gestrisni útbúið fyrir hann. Að vísu hafði Gesina betrumbætt uppskriftina með því að bæta músasmjöri í réttinn og litla hugmynd hafði Jo- hann um að þetta yrði hans síð- asta kvöldmáltíð. Michael, seinni eiginmað- ur Gesine, bættist á lista fórnar- lamba hennar fljótlega eftir að þau höfðu farið með hjúskapar- heit sín. Við dauða hans féllu all- ar eignir hans í hlut Gesinu. Áður en yfir lauk bættust sjö manneskjur í hóp fórnarlamba hennar og tilheyrðu nánast all- ar þeirra fjölskyldu hennar eða vinahópi. Undarlegt hvítt efni En allt er í heiminum hverfult, þar á meðal varkárni og þolinmæði Gesinu. Upphafið að endalokun- um hjá Gesinu varð þegar undar- legt hvítt efni í mat sem hún hafði tekið til fyrir vini sína vakti grun- semdir. Hverfislæknir komst að þeirri niðurstöðu að um arsenik væri að ræða og þann 6. mars, 1828, var Gesina handtekin vegna gruns um að hún hefði morð á sam- viskunni. Gesina Gottfried var í haldi í þrjú ár og var að lokum sakfelld fyrir glæpi sína og endaði hún ævi sína á höggstokknum, þann 21. apríl, 1831, síðust manna í Brimaborg í Þýskalandi. Þess má til gamans geta að sá siður tíðkaðist að bjóða dauða- dæmdum síðasta vínglasið áður en viðkomandi var sendur yfir móðuna miklu. Sagan segir að Gesina hafi einungis fengið sér lítinn sopa og síðan boðið dóm- urunum sem viðstaddir voru af- tökuna afganginn úr glasinu. Hvort eitthvað músasmjör var að finna í glasinu, eða hvort dómar- arnir þáðu vínsopann er ekki vit- að. Umsjón: koLbeInn þorsteInsson, kolbeinn@dv.is 44 föstudagur 13. nóvember 2009 sakamál FórnarlömB gesinu gottFried 1. október, 1813: joHann mILtenberg (fyrri eiginmaður) 2. maí, 1815: gesCHe margaretHe tImm (móðir gesinu) 10. maí, 1815: joHanna gottfrIeD (dóttir gesinu) 18. maí, 1815: aDeLHeID gottfrIeD (dóttir gesinu) 28. júní, 1815: joHann tImm (faðir gesinu) 22. september, 1815: HeInrICH gottfrIeD (sonur gesinu) 1. júní, 1816: joHann tImm (bróðir gesinu) 5. júlí, 1817: mICHaeL CHrIstopH gottfrIeD (sinni eiginmaður) 1. júní, 1823: paUL tHomas ZImmermann (unnusti gesinu) 21. mars, 1825: anna LUCIa meyerHoLZ (tónlistarkennari og vinur) 5. desember, 1825: joHann mosees (nágranni, vinur og ráðgjafi) 22. desember, 1826: WILHeLmIne rUmpff (veitingakona) 13. maí, 1827: eLIse sCHmIDt (dóttir betu schmidt) 15. maí, 1827: beta sCHmIDt (vinur, þjónustustúlka) 24. júlí, 1827: frIeDrICH kLeIne (vinur, lánardrottinn) Hægt og bítandi náði hún markmiðum sín- um og skipti þá litlu hvort ryðja þurfti úr vegi foreldrum henn- ar, eiginmönnum eða börnum. Myrti með músasmjöri gesina gottfried neytti allra ráða til að ná settu marki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.