Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Qupperneq 46
46 föstudagur 13. nóvember 2009 NafN og aldur? „Sólmundur Hólm Sólmundarson, 26 ára.“ atviNNa? „Starfa við hugmynda- og textasmíði hjá Hvíta hús- inu. Byrja raunar í dag (föstudag). Ætli ég megi svo ekki titla mig rithöfund núna? Já, og eftirhermu ef því er að skipta?“ Hjúskaparstaða? „Í sambúð með Elínu Önnu Steinarsdóttur.“ fjöldi barNa? „Einn tveggja ára drengur, Matthías.“ Hefur þú átt gæludýr? „Já. Átti gullfisk sem ég vanrækti og hann drapst. Og hund sem þurfti að gefa því ég var ekki nógu duglegur með hann. Að manni skuli vera treystandi fyrir börn- um er með ólíkindum miðað við söguna.“ Hvaða tóNleika fórst þú á síðast? „Ég held að það hafi verið Kafteinn 104, trúbador- kvöld mitt og vina minna á Grand Rokk í sumar.“ Hefur þú komist í kast við lögiN? „Ekki fyrir neitt alvarlegra en hraðakstur. Ekki ofsa- akstur samt.“ Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju? „Það er leðurjakki með ótal ólum og rennilásum, semí mótorhjólajakki. Fæ ekki að vera í honum því konunni minni finnst hann ljótur, sem hann er að vissu leyti.“ Hefur þú farið í megruN? „Ó, já. Ég er í megrun og sífellt minntur á það heima hjá mér þegar ég er að stelast.“ Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum? „Já, ég var trylltur út af Íraksstríðinu. Hef haft hægt um mig síðan.“ trúir þú á framHaldslíf? „Það verður allavega ekki allt svart. Það er eitthvað þarna.“ Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að Hafa Haldið upp á? „Ætli það sé ekki lagið Never ever með All Saints. Fannst talið í byrjun svo töff. Skammast mín frekar mikið fyrir það í dag.“ Hvaða lag kveikir í þér? „Ertu að meina kynferðislega? Ekkert held ég. Þessa stundina er mitt uppáhaldslag Það sýnir sig með Hjálmum. Turninn er helvíti góður söngvari og kveik- ir í mér stuðloga.“ til Hvers Hlakkar þú NúNa? „Bókin mín er nú komin út. Hún var mikið tilhlökk- unarefni. Ætli jólin séu ekki bara næst.“ Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aftur? „Zoolander. Af því að hún er fyndin. Svo einfalt er það.“ afrek vikuNNar? „Sjúddirarí rei - Endurminningar Gylfa Ægissonar“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Nei, og það er ekki stefnuskránni.“ spilar þú á Hljóðfæri? „Já, ég spila á gítar og píanó. Sjálfmenntaður í hvoru tveggja og færnin eftir því.“ viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið? „Ég hef sveiflast mikið í afstöðu minni. Núna tel ég hagsmunum okkar Íslendinga betur borgið utan ESB. En við þurfum nýjan gjaldmiðil. Það er klárt.“ Hvað er mikilvægast í lífiNu? „Fjölskyldan og vinirnir. Væmið en satt.“ Hvaða ísleNska ráðamaNN muNdir þú vilja Hella fullaN og fara á trúNó með? „Jóhönnu Sigurðardóttur. Held að það væri fyndið að sjá hana hellaða.“ Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst vilja Hitta og af Hverju? „Sylvester Stallone, af því að Bruce Lee er dáinn.“ Hefur þú ort ljóð? „Mörg. Er samt mest í gamanvísum. Fer mér ekki vel að vera alvarlegur.“ Nýlegt prakkarastrik? „Ég hringdi í Gylfa úr óþekktu númeri og sagðist heita Guðbjörg. Sagðist vera mikill aðdáandi og talaði við hann heillengi. Ég er ekki frá því að ég hafi kveikt í honum.“ Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest? „Harrison Ford. Það sjá það allir.“ ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika? „Það vita flestir að ég er eftirherma en færri vita þó að ég er búinn að ná góðum tökum á að herma eftir Sult- an Kosen, hæsta manni heims.“ á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi? „Hasshausar, sem hafa rétt sig af, segja að það sé ekki sniðugt að leyfa það. Sjálfur er ég svo blautur bak við eyrun í dópinu að ég get ekki svarað þessu af nógu mikilli þekkingu.“ Sólmundur Hólm Sólmundarson, rithöfundur, eftirherma og viðskiptafræðingur, sendi í gær frá sér sína fyrstu bók. Ævi- minningar Gylfa Ægissonar. líkist augljóslega HarrisoN ford Púl er kúl Kúlu fyrir kúlu verður byrjandinn að meistara Hágæða 6 vasa púlborð www.billiard.is Suðurlandsbraut 10. 2. hæð Reykjavík Sími 568 3920 & 897 1715 Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best. Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox). Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger. BETULIC - BIRKILAUF www.birkiaska.is Dalvegi 2, Kóp. | Dalshrauni 13 Hfj. | S: 577 3333 | www.castello.is Höfum opnað nýjan stað á Dalshrauni 13, Hfj. 20 % afsláttur af sóttum pizzum NICOLAI Véla- og hjólastillingar Tímareimar - Viðgerðir BIFREIÐASTILLINGAR Faxafeni 12 Sími 588-2455 SjálfSæviSaga SíbrotamannS Einstæð frásögn úr afkimum samfélagsins. – Sigurður G. Tómasson, útvarpsmaður Bók sem hlýtur að vekja áhuga allra. – Einar Már Guðmundsson, rithöfundur SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.