Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Síða 49
lífsstíll 13. nóvember 2009 föstudagur 49
LagersaLa á snyrtivörum Þær sem
þurfa að endurnýja innihald snyrtitöskunnar ættu
ekki að láta lagersöluna um helgina fram hjá sér fara.
Vörumerkin Duni, Maybelline, L’Oreal, Oroblu og
Sanpellegrino verða á extra kreppulegu og ánægju-
legu verði aðeins þessa helgi. Lagersalan verður til
húsa að Skútuvogi 1 og gengið er inn Barkarvogs-
megin. Um að gera fyrir allar konur að kíkja.
UMSjón: inDíana áSa hreinSDóttir, indiana@dv.is
ÍsLensk
hönnun Í
jóLapakkann
PopUp verslunin verður haldin
í fjórða sinn að Bankastræti 14
á laugardaginn. Að þessu sinni
verður af nægu að taka og um
að gera að kíkja og taka þjóf-
start á jólagjafakaupin. Á meðal
hönnuða sem verða með sín-
ar vörur eru Sunna Dögg sem
framleiðir verðlaunabarnafötin
Sunbird, Aaron Charles Bullion
með axlaböndin frá August loves
Callisto, fatahönnuðurinn Eygló
M. Lárusdóttir og Sonja Bent
með prjónafatnað og fylgihluti.
PopUp verslunin verður opin frá
11 - 20.
Ragna Ragnarsdóttir einkaþálfari býður fólki upp á einkaþjálfun í heimahúsum. Hún
mætir heim til skjólstæðinga sína, gerir mælingar og setur upp matarprógramm og
æfingar sem henta hverjum og einum. Ragna vill ekki hjálpa öllum að komast í eitt
ákveðið útlitsform en vill hjálpa fólki sem þarf á andlegum og líkamlegum stuðningi
að halda til að komast í betra form og láta sér líða vel.
góð heiLsa besta
fjárfestingin
hættu
Þau eru mörg heimaráðin við hósta.
Sumir mæla með skeið af hunangi
með nokkrum piparkornum fyrir
svefninn. hunangið mýkir hálsinn
og varnar því að hálsinn þorni upp.
enn aðrir blanda örfáum dropum af
vodka út í hunangið.
n Prófaðu líka að sjóða saman engi-
ferrót, sítrónu og hvítlauk í tuttugu
mínútur og drekka sem te. Blandaðu
hunangi út í áður en þú drekkur.
eftir því sem teið bíður lengur því
sterkari og meiri verða áhrifin.
n enn eitt ráðið til að draga úr
hósta og sefa sárindi í hálsi er að
blanda salvíu út í Blossom-te, bæta
möndluolíu og smá hunangi út í.
n Sumir drekka mikið af sjóðandi
heitu tei með viðbættum sítrónusafa
og hindberjasultu.
n Svo er líka hægt að setja einn
fjórða úr teskeið af cayenne-pipar,
einn fjórða af engifer, matskeið
af eplaediki, matskeið af hunangi
og tvær matskeiðar af vatni í
blandarann. taka inn líkt og væri
hóstamixtúra.
að hósta
„Hugmyndin kom upp í spjalli okkar
systranna,“ segir Ragna Ragnarsdótt-
ir einkaþjálfari sem býður skjólstæð-
ingum sínum upp á heimaþjálfun.
Ragna mætir heim til fólks, gerir fitu-
mælingu, vigtun og ummálsmæl-
ingu ef óskað er, setur upp matarpró-
gramm við hæfi og kennir æfingar
sem henta hverjum og einum. „Allar
æfingarnar eru þannig að hægt er að
gera þær heima á stofugólfinu. Við
gerum þetta saman til að byrja með
svo allt sé þetta rétt gert og svo fæ ég
matardagbók einu sinni í viku. Eftir
mánuðinn gerum við samanburðar-
mælingar og búum til nýtt prógramm
ef vilji er fyrir hendi. Einnig legg ég
mikið upp úr því að fólk setji sér raun-
hæf markmið,“ segir Ragna sem hef-
ur ekki heyrt af svipaðri þjónustu hér
á landi. „Það kæmi mér samt ekki
á óvart þótt þetta væri í boði annars
staðar því það eru ekki allir tilbúnir til
þess að fara inn á líkamsræktarstöð til
að æfa og sumir þurfa smá hjálp áður
en þeir fara af stað.“
Ragna segir æ fleiri setja heilsuna
í forgang. „Ég veit ekki hvort þessi
vakning sé út af kreppunni því mér
finnst fólk alltaf hafa verið meðvit-
að um mikilvægi góðrar heilsu. Í dag
hugsar fólk hins vegar meira um pen-
ingana sína og í hvað það er að eyða
og heilbrigður líkami er mjög góð
fjárfesting.“
Ragna segir flesta vita hvað hollt
og gott mataræði snúist um. Marg-
ir þurfi einfaldlega smá aðhald þeg-
ar komi að matarvali og skammta-
stærð. „Sumir þurfa beinlínis að
hafa einhvern á bak við sig sem veitir
þeim stuðning og aðhald. Ég segi að
morgunmaturinn sé mikilvægastur
en hollur og góður morgunmatur er
t.d. hafragrautur með nokkrum rús-
ínum. Hressing eftir morgunmatinn
getur verið epli, hádegismaturinn
skyr-boost og hrökkbrauð. Hressing
eftir hádegi gæti verið poppkex með
osti og týpískur kvölmatur kjúklinga-
bringa með sætum kartöflum, sósu
úr sýrðum rjóma og grænmeti,“ seg-
ir Ragna og bætir við að það sé mik-
ilvægt að passa upp á skammtana.
„Þeir sem fá mikla sykurlöngun eft-
ir kvöldmatinn geta fengið sér ávöxt
eða frosin vínber og hnetur. Í raun-
inni er hægt að borða allan eðlilegan
heimilismat í kvöldmat ef fólk passar
upp á stærð skammtarins.“
Aðspurð segir Ragna misjafnt hve-
nær fólk geti búist við árangri af átak-
inu. „Ef þú ert mjög dugleg, hreyfir þig
alla vega þrisvar í viku og passar upp á
mataræðið, ættirðu að finna mun eftir
einn mánuð. Þá ertu farin að losa þig
við vökvasöfnun og farin að styrkjast.
Mín stefna er ekki „í kjólinn fyrir jólin“
heldur legg ég upp úr að fólki líði vel.
Ég er með BA-gráðu í sálfræði og er í
mastersnámi í íþrótta- og heilsufræð-
um og mín von er að geta samtvinn-
að þetta tvennt. Ég hef ekki áhuga á að
koma öllum í eitt ákveðið útlitsform en
vil hjálpa fólki sem þarf á andlegum og
líkamlegum stuðningi að halda til að
verða heilbrigt og láta sér líða vel.“
Þeir sem vilja hafa samband við
Rögnu geta sent henni tölvupóst á lik-
amiogsal@gmail.com.
Heimsend einkaþjálfun „allar æfingarnar
eru þannig að hægt er að gera þær heima á
stofugólfinu. Við gerum þetta saman til að
byrja með svo allt sé þetta rétt gert og svo fæ
ég matardagbók einu sinni í viku,“ segir ragna
sem er einkaþjálfari og í mastersnámi í sálfræði.
MYND RóbeRt ReYNissoN
„Ég hef haft áhuga á matargerð frá barnæsku og man eftir mér lít-
illi fléttandi uppskriftarblöðum og ég fór fljótt að hafa matreiðslu-
bækur á náttborðinu,““segir bæjarfulltrúinn hafnfirski Rósa Guð-
bjartsdóttir sem hefur sent frá sér matreiðslubókina Eldað af lífi
og sál. Rósa hefur skrifað reglulega fyrir tímaritið Gestgjafann um
árabil en þar sameinar hún tvær af sínum helstu ástríðum,blaða-
mennsku og matargerð. „Ég fæ líka mikla útrás fyrir sköpunar-
gleðina með því að undirbúa rétti fyrir myndatöku þannig að þeir
líti girnilega út og séu fallega framreiddir. Eins og flestir hef ég nóg
að gera í daglegu amstri við vinnu og barnauppeldi og mér hafa
aldrei hugnast uppskriftir sem krefjast margra tegunda af hráefni
eða kryddi. Þegar ég rekst á slíkar uppskriftir er ég fljót að missa
áhugann á að elda réttinn. Ég vil elda einfaldan en ljúffengan mat
og þannig eru mínar uppskriftir,“ segir Rósa en í bókinni eru upp-
skriftir að góðum heimilismat, hugmyndir að skemmtilegum rétt-
um til að bjóða upp á þegar gesti ber að garði og í barnaafmælið.
Þegar Rósa er spurð út í sinn uppáhaldsmat segist hún mest
elda fisk og kjúkling handa fjölskyldunni. „Það eru óendanlegir
möguleikar við matreiðslu á því hráefni, en auk þess legg ég mikla
áherslu á grænmeti og lambakjötið stendur jú alltaf fyrir sínu,“
segir Rósa að lokum sem féllst á að gefa lesendum smá forskot
á sæluna. Uppskriftin er ein af hennar uppáhalds, saffrankjúkl-
ingur með hunangi. „Þetta er dásamlegur réttur sem yljar manni
um hjartaræturnar. Saffrankryddið gefur mjög sérstakan keim en
margir hafa kynnst því og hrifist af í ekta paelluréttum á Spáni þar
sem saffran er ómissandi. Passið að setja ekki of mikið af því í rétt-
inn en gott er að fikra sig áfram í þeim efnum.“
n 6-800 g kjúklingalæri og leggir
n 1 msk ólífuolía
n 2 laukar, grófsaxaðir
n 1 tsk paprikuduft
n ½ tsk ferskt engifer, rifið fínt
n 1/3 tsk saffranþræðir
n 2 dósir niðursoðnir tómatar
n 1 dl hunang
n 1 msk ferskt kóríander eða steinselja
n ½ dl furuhnetur, ristaðar
n salt og grófmalaður pipar
„Saltið og pip-
rið kjúklingabitana
og steikið í olífu-
olíu við háan hita á
pönnu í um 3 mínút-
ur á hvorri hlið. Tak-
ið kjúklingabitana af
pönnunni og lækk-
ið hitann. Mýkjið þá
laukinn í nokkrar
mínútur og bætið þá
paprikudufti, engifer
og saffrani út í. Eldið
saman í 2-3 mínútur
og hrærið í á meðan. Blandið þá tómötunum og hunangi sam-
an við. Leggið síðan kjúklingabitana ofan á allt á pönnunni aftur
og látið malla við mjög vægan hita í um 40 mínútur eða þar til
kjúklingurinn er gegnumeldaður. Berið fram með fersku salati og
krydduðum kartöflubátum.“
Bæjarfulltrúinn Rósa Guðbjartsdóttir hefur sent frá sér matreiðslubókina Eldað af lífi og sál:
Kjúklingur og fiskur í uppáhaldi
eldar af ástríðu „Ég vil elda einfaldan
en ljúffengan mat og þannig eru mínar
uppskriftir,“ segir rósa.