Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Blaðsíða 50
Þráðlaus en kostnaðarsöm Í fjölmörgum þráð-
lausum lyklaborðum, músum og fjarstýringum þarf að skipta
um rafhlöður annað veifið og getur kostnaðurinn orðið mikill
til langs tíma. Hagstæðara er að fjárfesta í hleðslutæki sem
tekur hvorutveggja AA og AAA rafhlöður og skipta út öllum
hefðbundnum rafhlöðum í jaðartækjum heimilisins. Athugið
að það er mismunandi líftími á hleðslurafhlöðum, hægt er að fá
rafhlöður fyrir þúsund hleðslur sem ættu þá að duga í mörg ár.
slapp frá ákæru
vegna facebook
Hinn 19 ára gamli Bradford var
handtekinn á dögunum í Brooklyn í
New York, og ákærður vegna gruns
um þátttöku í ráni. Lögfræðingur
Bradfords gerði hinsvegar
saksóknara í málinu grein fyrir því
að á sama tíma og ránið átti sér stað
var Facebook-staða Bradfords
uppfærð. Það var því ákveðið í
framhaldinu að krefja Facebook um
upplýsingar sem sýndu fram á hvort
að Facebook-staðan hefði verið
uppfærð frá heimili hins grunaða.
Það reyndist vera og var ákæran
látin niður falla en þetta er í fyrsta
sinn sem Facebook-staða er notuð
sem gild fjarvistarsönnun í sakamáli.
skype að
fá samkeppni
Ekki hefur enn verið staðfest
opinberlega að Google sé búið að
kaupa Gizmo5, fyrirtæki sem veitir
þjónustu til að geta hringt frá tölvu í
tölvu eða frá tölvu í heimasíma. Ef
sögusagnirnar reynast réttar er leitt
líkum að því að Google muni nýta
sér grunnnet fyrirtækisins og
sameina það Google Voice og
Google Talk þjónustum sínum. Innan
tíðar geti Google því farið að velgja
Skype-fyrirtækinu undir uggum en
Skype er hvað þekktast og vinsælast
meðal þeirra sem nýta sér þessa
tækni sem gefur kost á að hringja frí
myndsímtöl milli landa frá tölvu til
tölvu eða hringja ódýrt frá tölvu í
síma.
UmSjóN: páLL SVANSSoN, palli@dv.is
Sú tækni sem við nýtum okkur dags-
daglega verður sífellt samofnari, ein-
faldari í notkun en jafnframt marg-
þættari í grunninn. Í dag getum við
notað símann okkar til að uppfæra
Facebook-stöðuna, senda nýja færslu
og mynd sem tekin hefur verið með
símanum á bloggið okkar, tengjast
inná fréttasíður eða fá leiðbeiningar
í umferðinni. Og við erum ekki leng-
ur háð dagskrá sjónvarpsstöðvanna
varðandi afþreyingu eftir langan
vinnudag, fjölmargir nýta sér hinar
ýmsu möguleika netsins til að nálgast
kvikmyndir og þætti sem frekar vekja
áhuga þeirra en hin hefðbundna dag-
skrá sem sjónvarpið býður uppá.
Afþreying á einum stað
Síðastliðin ár hefur áhugi fólks auk-
ist til muna á afþreyingarstöðvum
fyrir heimili eða það sem enskumæl-
andi þjóðir kalla Home Media Cent-
er eða Home Entertainment Syst-
em. Íslendingar hafa fjárfest töluvert
undanfarin ár í svokölluðum sjón-
varpsflökkurum sem er einn angi
þessarar tækni en sjónvarpsflakkar-
ar geta spilað kvikmyndir, tónlist og
sýnt ljósmyndir. Flakkarar eru líka
hentugir til að grípa með sér í bú-
staðinn og tengja við sjónvarpið þar.
Frítt og vinsælt
Þeim fer hinsvegar fjölgandi sem
nýta sér tölvur sem afþreyingastöð
fyrir heimilið en hugbúnaður fyr-
ir slíkar stöðvar hefur tekið stakka-
skiptum og býður uppá möguleika
sem ekki eru til staðar á hinum hefð-
bundnu flökkurum. Það má segja að
Microsoft hafi verið brautryðjendur í
tvennum skilningi í þessum geira, í
fyrsta lagi með Windows Media Cent-
er sem kom fram á sjónarsviðið með
XP stýrikerfinu og er sérhæfður hug-
búnaður fyrir kvikmyndir, sjónvarp,
tónlist og ljósmyndir. Í öðru lagi með
tilkomu Xbox-leikjatölvunnar en
árið 2003 tóku nokkrir forritarar sig
saman og smíðuðu frían hugbúnað
fyrir Xbox sem breytti henni í afþrey-
ingarmiðstöð. Hugbúnaðurinn var
í fyrstu kallaður Xbox Media Center
en breyttist síðan í skammstöfunina
XBMC. Vinsældir kerfisins urðu inn-
an tíðar svo miklar að fljótlega var
ákveðið að yfirfæra hugbúnaðinn til
notkunar fyrir Windows-stýrikerfi.
Samhæfni við Apple- og Linux-stýri-
kerfi fylgdi síðan í kjölfarið.
Náin tengsl
Vinsældir XBMC eru ekki síst því
að þakka að tengsl notandans við
þróendur hugbúnaðarins eru náin.
XBMC er svokallað Open Source
Project, frír hugbúnaður sem allir
geta tekið þátt í að móta eða varp-
að fram tillögum um nýja möguleika
sem þeir vilja sjá í næstu uppfærslu.
Einnig er hægt að sækja fjölmargar
viðbætur við kerfið til að laga það enn
frekar að smekk hvers og eins. Þar
sem hinn undirliggjandi kóði kerf-
isins er öllum frjáls hafa önnur af-
brigði XBMC sprottið upp, Plex sem
er sérhæft fyrir Apple-tölvur og Box-
ee fyrir Windows, Apple og Ubuntu
Linux en bæði afbrigðin njóta mik-
illa vinsælda.
Samhæfni við netið
Einn munurinn á XBMC og flökk-
urum er hin mikla samhæfni XBMC
við netið og vefsíður. Þannig er hægt
að skoða til dæmis myndbönd frá
YouTube eða tengjast afþreyingar-
þjónustum eins og Netflix eða Hulu.
Með viðbótum er hægt að tengja við
allskyns netþjónustur og horfa á efni
frá ýmsum löndum sem streymt er
gegnum netið.
XBMC sækir einnig sjálfkrafa
upplýsingar af netinu um þær kvik-
myndir og sjónvarpsþætti sem við-
komandi á og birtir myndir, söguþráð
og aðrar upplýsingar sem tengjast
myndefninu. Það má jafnvel sækja
texta við myndefnið ef það er ekki til
staðar. Afbrigði kerfisins einsog Plex
fyrir Apple-tölvur býður síðan uppá
samhæfni við iTunes og iPhoto for-
ritin og sækir þannig tónlist og ljós-
myndir beint frá þeim.
Hvað þarf til?
Eins og kom fram áður hafa Xbox
leikjatölvurnar verið vinsælar frá
upphafi sem afþreyingarmiðstöð. En
allt sem til þarf til að keyra XBMC er
tölva sem hægt er að tengja við sjón-
varp. Þeir sem vilja vilja háskerpuaf-
spilun þurfa að athuga vel hvort að
skjákort og örgjörvi tölvunnar séu
nógu öflug og að hægt sé að tengja
tölvuna við HDMI tengi sjónvarps-
ins. Það eru líka mikilvæg atriði að
tölvan sé hljóðlát til að trufla ekki við
áhorfið og að hægt sé að nota fjar-
stýringu við hana. palli@dv.is
Nánari upplýsingar má finna á:
http://xbmc.org
http://plexapp.comhttp://boxee.tv/
homepage/
50 föstudagur 13. nóvember 2009 helgarblað
Smáauglýsingasíminn er
smaar@dv.is
515
55
50
Það færist æ meir í vöxt að fólk komi sér upp svokölluðum afþreyingarstöðvum innan
heimilisins. Sjónvarpsflakkarar eru vinsælir meðal landans en aðrir áhugaverðir mögu-
leikar eru einnig fyrir hendi.
miðstöð fyrir
afÞreyingu
Plex er afbrigði af XBMC plex sýnir notandanum helstu upplýsingar um
hverjan þátt og sækir bakgrunnsmynd fyrir þáttaröðina.
Veðurupplýsingar XBmC sýnir til
dæmis veðurupplýsingar frá hvaða borg
sem er í heiminum.