Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Síða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Síða 64
n Egill Ólafsson ,fréttastjóri á Morgunblaðinu, lætur af því starfi á næstunni og ætlar að taka til við fréttaöflun sem óbreyttur blaða- maður á ný. Egill er þrautreyndur blaðamaður og á langan starfsald- ur hjá Morgunblaðinu. Hann varð fréttastjóri í ritstjóratíð Ólafs Step- hensen sem vék úr ritstjórastóli fyrir Davíð Oddssyni í september síðastliðnum. Aðspurður segir hann fréttastjórastarfið erilsamt og að hann kunni betur við fréttaskrifin. Með skipulagsbreytingum á Morg- unblaðinu undanfarið ár hafa tveir aðrir stigið úr fréttastjórastóli og horfið aftur til fréttaskrifa. Þeir eru Ágúst Ingi Jónsson og Sigtryggur Sigtryggsson. Sem stendur eru því þrír fyrrverandi fréttastjórar við al- menn fréttaskrif á Morgunblaðinu. Misjafnt er mannanna (b)öl! Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. Guðfinna Hreiðarsdóttir, sagnfræð- ingur og eiginkona Halldórs Hall- dórssonar bæjarstjóra Ísafjarðarbæj- ar, íhugar að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í bæj- arstjórnarkosningum á komandi vori. Hún staðfestir þetta í samtali við hér- aðsfréttavefinn bb.is. Eitt þekktasta dæmið um hjón sem hafa látið til sín taka í pólitíkinni eru Bill Clinton, fyrrverandi Banda- ríkjaforseti, og eiginkona hans, öld- ungadeildarþingmaðurinn Hillary. Sem kunnugt er bauð hún sig fram til forseta Bandaríkjanna á síðasta ári en þurfti að lúta í lægra haldi í prófkjöri demókrata fyrir Barack Obama. Á bb.is játar Guðfinna því að gár- ungar hafi líkt þeim hjónum við Clin- ton-hjónin að þessu leyti. „Ef það á að fara að líkja mér við Hillary Clin- ton, þá segi ég nú bara að það er ekki leiðum að líkjast. Ég geri ráð fyrir að ég sé hvorki betri né verri frambjóð- andi þótt ég sé gift bæjarstjóranum,“ segir hún. Halldór situr enn sem bæjarstjóri og hefur gert undanfarin ellefu ár. Fyrir stuttu gaf hann út að hann ætl- aði ekki að gefa kost á sér til bæjar- stjóra í prófkjörinu í vor en segist þó alls ekki hættur í stjórnmálum. Meðal annars hefur verið rætt um að Halldór leiði lista sjálfstæðismanna í Hafnar- firði í vor en ekkert hefur fengist stað- fest í þeim efnum. erla@dv.is Óbreyttur á Ný „Vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar ...“ Egill Helgason / Kiljan Í sumarbústað um hávetur mætast fullkomnar andstæður, virtur geðlæknir og óþekkur unglingur. Hvað getur létt þeim óbærilegar samvistir ...? „Hugleiðingar um fólk, sálar- líf, uppeldi, kynslóðir, ástina, kynjamun … Við höfum öll gott af að lesa Karlsvagninn, karlar ekki síður en konur.“ Ingvi Þór Kormáksson / bokmenntir.is Það sem skilur að ... og sameinar ... Eiginkona bæjarstjórans á Ísafirði íhugar framboð í komandi bæjarstjórnarkosningum: CliNtoN-hjÓN á Ísafirði n Garðar Bergmann Gunnlaugs- son, atvinnumaður í knattspyrnu og eiginmaður Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur, leitar sér að nýju félagsliði þessa dagana eftir að hafa fengið samningi sínum við belgíska liðið CSKA Sofia rift. Einhver smá- vægileg töf verður þó á því enda greindi Garðar vinum og kunningjum frá því að hann lægi í rúminu, frekar slappur, eftir að hafa verið bólu- settur við svína- flensunni al- ræmdu. Veikur eftir fleNsusprautuNa n Ívar Guðmundsson, útvarps- maður á Bylgjunni, vinnur þessa dagana hörðum höndum að því að koma Simma og Jóa, kollegum sín- um á Bylgjunni, í form. Á dögun- um heyrðist til Jóa kvarta sáran yfir því við félaga sína í World Class að þar sem kærasta hans ætti von á sér væri aldrei til bjór á heimilinu. Hann tæki svo virkan þátt í með- göngunni að hann héldi sig frá veig- unum líkt og ólétt konan. Annað hljóð var hins vegar í Simma sem kvaðst aldrei hafa átt meiri bjór í skápnum en einmitt núna. Leist lík- amsræktarfrömuðinum Ívari betur á ráðahaginn hjá Jóa. aldrei öl hjá jÓa Tekur konan við? halldór halldórsson hættir í vor sem bæjarstjóri ísafjarðar eftir ellefu ára starf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.