Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Qupperneq 2
2 miðvikudagur 25. nóvember 2009 fréttir Fyrrverandi stjórnarmenn í Byr spari- sjóði sæta rannsókn hjá sérstökum saksóknara vegna láns sem Byr veitti Tæknisetri Arkea/Exeter Holding til að kaupa stofnfjárbréf sem voru í eigu þeirra. Sjálfir höfðu þeir áður tekið lán hjá MP Banka til að kaupa bréfin og voru í per- sónu- leg- um ábyrgðum. Með sölu bréfanna sluppu þeir við að eiga á hættu að verða gjaldþrota ef MP Banki gengi að þeim vegna skuldanna. Embætti sérstaks saksóknara, Ólafs Haukssonar, gerði húsleit hjá sparisjóðnum Byr í Borgartúni og hjá MP Banka í Skipholti á mánudag í tengslum við rannsóknina á Exeter- málinu svokallaða. Áður hafði ekki komið fram að embættið væri einnig að rannsaka MP Banka í rannsókn- inni. Yfirheyrslur í málinu hófust í gær og munu standa yfir næstu daga. Rannsóknin beinist með- al annars að fyrr- verandi stjórnar- mönnum í Byr, Jóni Þorsteini Jónssyni og Birgi Ómari Har- aldssyni, og MP Banka. Fullyrða má að Jón og Birgir verði yfirheyrðir vegna máls- ins. Jón Þorsteinn er ekki á landinu sem stendur, hann býr í Bretlandi ásamt fjölskyldu sinni. En eins og kemur fram í tilkynningu sérstaks saksóknara beinist rannsóknin að fjölda manns og því eru fleiri til rann- sóknar en þeir, hugsanlega einnig einhverjir starfsmenn Byrs sem áttu bréf í Byr sem þeir losuðu sig við. Greint var frá því í lok október að Fjármálaeftirlitið hefði sent rann- sókn málsins til sérstaks saksókn- ara, ákæruvalds, en DV sagði fyrst fjölmiðla frá rannsókn málsins í lok mars. Einungis um mánuður er því liðinn frá því Fjármálaeftirlitið sendi málið til sérstaks saksóknara og þar til embættið fer út í þessa viðamiklu rassíu. Þetta bendir til að málvextir liggi nokkuð ljósir fyrir. Lánuðu Exeter; voru í persónu- legum ábyrgðum Embættið rannsakar hvort auðgun- arbrot og umboðssvik hafi átt sér stað í málinu sem snýst um tvær lán- veitingar upp á 1,4 milljarða króna sem stjórn Byrs samþykkti til eignar- haldsfélagsins Tæknisetur Ark- ea/Exeter Holding í október og desember 2008. Lánið til Arkea var notað til að kaupa stofnfjárbréf stjórn- armanna Byrs í spari- sjóðnum, meðal annars bréf stjórnarformannsins Jóns Þorsteins og Birgis Ómars, á yfirverði sem og bréf sem MP Banki hafði leyst til sín með veð- köllum frá starfsmönnum Byrs. Veð- ið fyrir láni Exeter var að öllu leyti í stofnfjárbréfunum sem keypt voru. Bréfin í Byr höfðu lækkað gríð- arlega í verði eftir bankahrunið og þjónaði það hagsmunum eigend- anna að losa sig við þau. Einn- ig þjónaði það hagsmun- um MP Banka að Exeter Holding keypti bréfin þar sem bankinn hafði veitt eigendunum lán til að kaupa stofnfjárbréf- in upphaflega. Veðið fyrir lánum stjórnar- og starfsmanna Byrs voru í bréfunum sjálf- um en þeir voru einnig í persónulegum ábyrgð- um, samkvæmt heimild- um DV. MP Banki stóð því frammi fyrir því að leysa til sín verðlítil stofnfjár- bréf með veð- köllum og hugsan- lega að ganga að þeim starfs- og stjórnarmönnum í Byr sem tekið höfðu lán til að kaupa stofnfjár- bréfin og setja þá í þrot. MP Banki hefði því tapað miklu á lánveiting- unum sem og lántakendurnir per- sónulega ef MP Banki hefði gengið að þeim tryggingum og ábyrgðum sem voru fyrir hendi utan stofn- fjárbréfanna sjálfra. Eins og málið lítur út í dag virðast stjórn- armenn og starfs- menn í Byr því hafa tekið ákvörðun um að veita Exeter lán til að kaupa stofn- fjárbréf í Byr sem þeir áttu sjálfir en með milligöngu MP Banka og Ág- ústs Sindra Karls- sonar og Exeter Hold- SLUPPU VIÐ GJALDÞROT MEÐ ÞVÍ AÐ LÁNA EXETER IngI F. VILhjáLmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is Tvær húsleitir voru gerðar hjá Byr og MP Banka í gær vegna rannsóknarinnar á Exeter-málinu. Lántakendurnir í Byr voru í persónulegum ábyrgðum hjá MP Banka sem hefði getað sett þá í þrot. jón Þorsteinn jónsson og ágúst sindri Karlsson hafa verið eða verða yfirheyrðir ásamt fjölda annarra. Bæði lántak- endurnir og MP Banki græddu á viðskiptunum. Hinn almenni stofnfjáreigandi í Byr tapaði einn. Tilkynning sérstaks saksóknara á þriðjudag: „Í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á kaupum félagsins Exeter ehf á stofnbréfum í BYR sparisjóði haustið 2008 fóru fram húsleitir á tveimur stöðum í dag að undangengnum úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur. Yfirheyrslur í málinu hófust á sama tíma og standa enn. Til rannsóknar er grunur um brot á auðgunarbrotakafla almennra hegningarlaga í tengslum við umrædda sölu á stofnbréfum og lánagerningum þeim tengdum . Um er að ræða verulega fjárhagslega hagsmuni og rannsóknin tengist fjölda manns. Aðgerðirnar í dag voru nokkuð víðtækar og hófust með leit á tveimur stöðum samtímis kl. 10 í morgun. Af 22 starfsmönnum embættisins tóku flestir þátt í aðgerðunum auk tæknimanna frá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæð- inu.“ Rannsóknin í fullum gangi Rannsókn Ólafs Haukssonar, sérstaks saksóknara, á Exeter-mál- inu er í fullum gangi. Tvær húsleitir voru gerðar í gær auk þess sem fjöldi yfirheyrslna fór fram. stjórnarformaðurinn Jón Þorsteinn Jónsson var stjórnar- formaður í sparisjóðnum Byr þegar Exeter Holding var veitt lánið í desember í fyrra. Hugsanlegt er að hann hafi átt hluta þeirra stofnfjárbréfa sem keypt voru. Jón Þorsteinn er einn þeirra sem verður yfirheyrður við rannsókn málsins. Leitað hjá mP Banka Sérstakur saksóknari gerði húsleit hjá MP Banka og sparisjóðnum Byr á þriðjudaginn út af rannsókninni á Exeter-málinu. Margeir Pétursson er stjórnarformaður bankans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.