Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Side 4
4 miðvikudagur 25. nóvember 2009 fréttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgist með íbúðarhúsi í Grafar- vogi, nánar tiltekið í Foldahverfinu samkvæmt heimildum DV, vegna grunsemda um vændisstarfsemi. Það er eitt fjögurra húsa sem lög- reglan rannsakar sem möguleg vændishús og verið hafa undir eft- irliti síðustu vikur. Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu rannsakar sérstaklega fjög- ur hús á höfuðborgarsvæðinu þar sem vændisstarfsemi er tal- in blómstra. Um er að ræða hús í miðbæ Reykjavíkur, Grafarvogi, Breiðholti og Kópavogi. Ómerktir lögreglubílar hafa sinnt eftirliti við húsin síðustu tvo mánuði. Rann- sóknin beinist fyrst og fremst að viðskiptavinum vændishúsanna og þeim sem halda utan um starf- semina. Sjálft vændið er heimilt samkvæmt lögum. Berbrjósta bauð greiðslu Lögreglan leitar vitnisburða víða og hefur meðal annars óskað eftir upp- lýsingum frá viðgerðarmanni véla- verkstæðis í höfuðborginni. Viðkom- andi var kallaður til þessa meinta vændishúss í Grafarvoginum þar sem gera þurfti við þvottavél. Þegar þang- að var komið hékk hreinn þvottur á snúrunum en sá þvottur samanstóð af tugum kvenundirfata, svokallaðra g-strengja. Að viðgerð lokinni mætti viðgerðarmanninum berbrjósta ung stúlka sem bauð greiðslu. Viðkom- andi starfsmaður mætti á merktum fyrirtækjabíl til verksins og skömmu síðar hringdi lögreglan í höfuðstöðv- ar fyrirtækisins í leit að skýringum á veru hans í húsnæðinu. Jafnframt óskaði lögreglan eftir lýsingu á því hvernig umhorfs væri innanhúss. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að meint vændishús í Grafarvogi, og víðar, séu undir eftirliti lögreglunnar. Aðspurður segir hann flesta umsjón- armenn húsanna af erlendum upp- runa. „Við erum að skoða hús í Graf- arvogi. Síðustu vikur höfum við fylgst með húsi þar vegna grunsemda um vændi og skipulagða glæpastarfsemi. Við höfum ákveðna aðila til skoðun- ar og erum að skoða nokkra staði,“ segir Björgvin. Einblína á skipuleggjendur „Grafarvogurinn er mjög óvanalegur staður og svolítið skrítið að við séum að skoða svona stað. Við höfum skoðað þetta í svolítinn tíma núna og staðirnir eru undir eftirliti. Til að ná kaupendunum og skipuleggjendun- um þurfum við dálítinn tíma í þetta.“ Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu, hefur unnið náið með kynferðisbrotadeildinni und- anfarið þar sem möguleg vændis- hús hafa verið undir eftirliti. „Ég get alveg staðfest það að við erum að skoða nokkra staði. Við erum að vinna úr fjölda ábendinga um vænd- isstarfsemi og talsvert samstarf er milli deilda í þessum málum. Skoð- anir okkar hafa verið óvenju viða- miklar en ég get ekki staðfest nánar hvar það er sökum rannsóknarhags- muna. Við þurfum að fylgjast með stöðunum því það eru kaupendurn- ir sem hægt er að refsa. Það eru líka skipuleggjendurnir og athygli okkar beinist fyrst og fremst að þeim,“ segir Karl Steinar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar fjögur hús þar sem vændisstarfsemi er talin blómstra. Húsin eru í miðbæ Reykjavíkur, Grafarvogi, Breiðholti og Kópavogi. Ómerktir lögreglubílar hafa sinnt eftirliti við húsin síðustu tvo mánuði. VÆNDISHÚS VÍÐA Þegar þangað var kom- ið hékk hreinn þvott- ur á snúrunum en sá þvottur samanstóð af tugum kvenundirfata, svokallaðra g-strengja. Að viðgerð lokinni mætti viðgerðar- manninum berbrjósta ung stúlka sem bauð greiðslu. TrausTi hafsTEinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Vændi í Grafarvoginum Lögreglan skoðar meint vændishús í Grafarvogi ásamt húsum í Breiðholti, Kópavogi og miðbæ Reykjavíkur. Fækka vínbúðum í Kópavogi Stefnt er að því að fækka vínbúð- um ÁTVR í Kópavogi. Þannig hefur verið auglýst eftir nýju húsnæði í Kópavogi undir vín- búð og að þangað verði vínbúð- irnar tvær í bænum færðar, úr Smáralind og af Dalvegi. Með því yrði hinum búðunum lokað og ein ný vínbúð stæði eftir. Ef viðunandi húsæði finnst er gert ráð fyrir flutningi um mitt næsta ár og ekki útilokað að fleiri hag- ræðingarmöguleikar vínbúða verði skoðaðir. Forræðismál Borghildar Guðmunds- dóttur verður tekið fyrir í Bandaríkj- unum 8. janúar. Hún á tvo syni með bandarískum manni, Richard �olby Busching, en Hæstiréttur á Íslandi komst að þeirri niðurstöðu í ágúst að hún skyldi fara aftur til Bandaríkjanna með drengina eftir að hafa verið á land- inu síðan í janúar árið 2008. Synir þeirra �olbys verða hjá föður sínum í Louisiana um jólin og kvíðir Bogga því. „Auðvitað kvíði ég jólunum. Mér finnst ekkert sérstakt við það að vera ein á svona tímum en svona er þetta bara og ég tek því. Leigi mér bara ein- hverja sjónvarpsseríu,“ segir Borghild- ur. Hún þarf að sækja syni sína 2. janúar og kvíðir því líka þar sem hún veit ekki hvort hún muni eiga peninga fyrir því. Vinir og vandamenn hófu söfnun fyrir Borghildi fyrr á árinu en mestallt söfn- unarféð hefur farið í lögfræðikostnað. Borghildur fór á fund með lögmanni sínum fyrr í vikunni og komst að því að hún verður að greiða um hálfa milljón í viðbót til að halda baráttu sinni áfram. „Ég verð að eiga peninga til að geta sótt börnin mín til pabba þeirra í Louisiana eftir jólin og það kostar sitt. Ég á ekki einu sinni peninga til að koma sjálf heim um jólin, hvað þá að fljúga til Louisiana til að sækja þá. Þetta kost- ar allt óheyrilega mikla peninga og svo er gengið ekkert til að hrópa húrra fyr- ir heldur. Ég hugsa að þetta eigi eftir að kosta um hálfa milljón í viðbót alla- vega. Ég bara veit að það væri hræðilegt að komast þetta langt og að þetta skuli ganga svona vel bara til þess að þurfa að stoppa núna vegna fjárhagsörðug- leika.“ liljakatrin@dv.is Barnsfaðir Borghildar Guðmundsdóttur fær börnin yfir jólin: Heldur jólin ein í Kentucky auralaus Bogga kvíðir jólunum en hún kvíðir því líka að verða peningalaus og þurfa að hætta forræðisbaráttunni. Flugumferðar- stjórar í Karphúsið Kjaradeilu Félags íslenskra flug- umferðarstjóra og SA fyrir hönd Flugstoða og Keflavíkurflug- vallar ohf. var á mánudag vísað til ríkissáttasemjara. Fram kem- ur á vef BSRB að kjarasamningar hafi verið lausir frá síðustu mán- aðamótum og síðan þá hefur lít- ið þokast í samkomulagsátt. Var því talið heillavænlegast að vísa málinu í Karphúsið á þessum tímapunkti að sögn flugumferð- arstjóra. Rændi líkams- ræktarstöð Karlmaður var handtekinn í gær af lögreglunni í Reykja- vík eftir að hann hafði farið ránshendi um fatahengi lík- amsræktarstöðvar í Borgar- túni. Hafði maðurinn á brott með sér verðmæti úr vösum kúnnanna og þar á meðal að minnsta kosti einn bíllykil. Eftir vasaþjófnaðinn virðist maðurinn hafa farið út á bílastæði og rænt bifreiðinni sem lykillinn gekk að. Að sögn varðstjóra lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu var maðurinn handtekinn og var bíllinn óskemmdur eftir því sem næst verður komist. Varðstjóri segir vasa- þjófnað sem þennan færast í aukana. VG í Reykjavík vill hærra útsvar Fulltrúi vinstri-grænna í velferð- arráði Reykjavíkurborgar getur ekki fallist á að útsvarsprósent- an haldist óbreytt miðað við þær forsendur sem gefnar hafa verið við fjárhagsáætlun borgarinn- ar fyrir árið 2010. Kalla vinstri- græn þetta aðför að velferðar- kerfi Reykjavíkurborgar. Í ljósi aukins rekstrarkostnaðar og minni tekna borgarinnar væri eðlilegast að dreifa kostnaðin- um með „sanngjörnum hætti“ á borgarbúa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.