Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Qupperneq 10
10 miðvikudagur 25. nóvember 2009 neytendur
Tuborg jólabjórinn besTur
tuborg
Christmas
brew
(í flösku)
Meðaleinkunn: 7,5
Framleiðsluland:
Danmörk
Styrkleiki: 5,6%
Baddi: „Þetta er
einhver bjór sem
ég drekk sjálfur. Mjög fínn bjór en
ekkert sérlega jólalegur. Ég drekk
þennan yfir enska boltanum.“
Steindi: „Hann snertir mann
óþægilega þessi bjór. Maður fær
sér nokkra svona og skaupið verður
bara skemmtilegt.“
Karen: „Prýðilegur bjór en ekki
mjög jólalegur.“
Stefán: „Ávaxtaríkur, smá appel-
sínu- og mandarínubragð. Smá
hunang í eftirbragðinu. Skemmti-
legur bjór, léttur en þéttur. Með
þeim bestu. Smellur með hangi-
kjötinu.“
Dominique: „Mjög vel gerður.
Jafnræði milli allra þátta. Hann er
aðeins beiskur en það er nóg af
ávöxtum á móti. Hingað til besti
bjórinn.“
egils malt
jólabjór
Meðaleinkunn: 7,4
Framleiðandi:
Ölgerðin Egill
Skallagrímsson
Styrkleiki: 5,6%
Baddi: „Alveg frá-
bær. Svona á jóla-
bjór að vera. Fínt
maltbragð af þessum.“
Steindi: „Loksins. Ég segi ekki ann-
að.“
Karen: „Alveg frábær. Eins og mað-
ur vill hafa jólabjór. Þetta hlýtur að
vera íslenskur jólabjór.“
Stefán: „Það er smá sætutónn í
þessum en hann er léttur og fersk-
ur. Ekta jólabjór.“
Dominique: „Ég er ekki alveg sam-
mála hinum. Mér finnst þessi of
sætur. Of mikið malt og appelsín.“
jólajökull
Einkunn: 6,6
Framleiðandi:
Mjöður brugghús
Styrkleiki: 6%
Baddi: „Aðeins
skárri en fyrstu
fjórir bjórarnir.“
Steindi: „Þokkalegur. Maður gæti
alveg farið „all in“ á þessum.“
Karen: „Ósköp þægilegur. Fjöl-
breytt bragð og ljúft. „Solid“ bjór
fyrir jólin.“
Stefán: „Mjög góður bjór. Meðal-
langt og meðalþurrt bragð. Mand-
arínu- og maltbragð. Meiri kraftur í
þessum en flestum hinum.“
Dominique: „Þessi bjór er mér að
skapi. Þetta er alvöru bjór. Hann er
vel maltaður, gefur ákveðna sætu
án þess þó að vera of sætur. Bragð-
mikill og skemmtilegt jafnvægi í
honum.“
albani
julebryg
Framleiðsluland:
Danmörk
Einkunn: 5,7
Styrkleiki 7%
Baddi: „Mér finnst
þessi ekki góður.“
Steindi: „Ekkert mikið að frétta.
Mig er farið að langa í Slots.“
Karen: „Þessi er svolítið óvæntur.
Manni bregður svolítið við að finna
svona ávaxtabragð. En það er gott,
jólabjór á að vera aðeins öðruvísi.“
Stefán: „Það er smá mandarínu-
bragð af þessum. Smá negull líka
og brenndur viður. Meðallangt
bragð.“
Dominique: „Betur gerður og
meira jafnvægi í öllu en í hinum
sem ég hef smakkað. Það er jólafíl-
ingur í þessum; appelsína og neg-
ull. Ég er viss um að þessi bjór er
ágætis matarbjór. Myndi hafa hann
með reyktu kjöti.“
egils jólabjór
(í flösku)
Meðaleinkunn: 5,6
Framleiðandi:
Ölgerðin Egill
Skallagrímsson
Styrkleiki: 4,8%
Baddi: „Fínn bjór.“
Steindi: „Maður fær nett vor í
punginn við þennan. Mjög fínn
bjór, maður væri til í sleik eftir
þennan.“
Karen: „Þessi bjór er bara fínn.“
Stefán: „Allt í lagi. Smá hunang og
kryddbragð. Sætt eftirbragð.“
Dominique: „Miðlungsbjór. Ekkert
sérstakur en ekkert vondur.“
jóla kaldi
Meðaleinkunn: 4,4
Framleiðandi:
Brugghúsið
Styrkleiki: 5,4%
Baddi: „Mér finnst
þessi frekar hlutlaus.
Höfðar ekki sérstak-
lega til mín.“
Jólabjórinn vinsæli frá Tuborg hlaut
hæstu meðaleinkunn í árlegri jóla-
bjórsmökkun DV. Fast á hæla Tu-
borg fylgir Egils Malt jólabjór en
þessir tveir báru af að mati fimm
manna dómnefndar sem DV skip-
aði.
Í henni sátu Dominique Plédel
Jónsson og Stefán Baldvin Guð-
jónsson en þau eru bæði reynd-
ir vínsmakkarar og hafa atvinnu af
því að bragða vín. Auk þeirra voru
í dómnefndinni þau Karen Dröfn
Kjartansdóttir, fréttamaður á Stöð
2, Bjarni Lárus Hall, betur þekktur
sem Baddi söngvari hljómsveitar-
innar Jeff Who?, og grínistinn Stein-
þór H. Steinþórsson, eða Steindi Jr.
Blindandi smökkun
Smökkunin fór þannig fram að allir
bjórarnir, 12 talsins, voru númerað-
ir og bornir fram í 10 sentilítra plast-
glösum, einn í einu. Bjórarnir voru
geymdir í kæli yfir nóttina en tekn-
ir út þremur tímum fyrir smökkun.
Með því var tryggt að hitastig bjór-
anna yrði sambærilegt. Dómnefnd-
in fékk ekki að vita hvaða bjór var
um að ræða hverju sinni. Hver og
einn dómari gaf svo hverjum bjór
einkunn og ummæli. Þrátt fyrir
að dómnefndin, bæði reyndir og
óreyndir smakkarar, hafi í grófum
dráttum verið sammála um hvaða
bjórar þættu bestir, var nálgunin og
eðli umsagna þeirra æði misjafnt.
Á borðum voru dallar til að
skyrpa í en dómnefndarmeðlim-
um var í sjálfsvald sett hvort þeir
kyngdu bjórnum eða skyrptu hon-
um. Sumir spýttu ávallt út úr sér á
meðan aðrir létu ekki dropa fara til
spillis.
Flöskur og dósir
Rétt er að taka fram að allir íslensk-
ir framleiðendur sendu DV góð-
fúslega bjór til að nota í smökkun-
inni en erlendar bjórtegundir voru
keyptar í vínbúð. Framleiðendur
réðu sjálfir hvort þeir sendu bjór-
inn í dósum, flöskum eða hvoru
tveggja. Jólabjórinn frá Víking kom
til dæmis bæði í dósum og flöskum
og var því prófaður á báða vegu.
Eins og sjá má hér að neðan var
smökkun á jólabjór frá Ölvisholti
ekki hafður með í úrvinnslu könn-
unarinnar. Um ástæður þess má
lesa hér til hliðar.
Jólabjórinn frá Tuborg, Egils Malt jóla-
bjór og Jólajökull frá Stykkishólmi eru
í efstu þremur sætum árlegrar jólabjór-
smökkunar DV.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
7,5
7,4
6,6
5,7 5,6
4,4