Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Page 18
Miðvikudagur 25. nóvember 200918 Bækur Ævisagaendurminningar Frá skokki í oFurhlaup Gunnlaugur Júlíusson hefur sýnt það og sannað að við getum ansi margt þegar við setjum okkur markmið og leggjum okkur fram um að ná þeim. Að sigra sjálfan sig er saga manns sem var að nálgast miðjan aldur, farinn að þykkna um miðjuna og hreyfði sig lítið. Hann tók síðan þátt í skemmtiskokki fyrir beiðni ungs sonar og varð á nokkr- um árum einhver merkasti íþrótta- maður sem við eigum í dag. Gunnlaugur hefur nokk- uð skemmtilega sögu að segja. Íþróttaiðkun hans og líf hafa tekið miklum breytingum frá því hann steig sín fyrstu skref. Fyrst eftir að ég tók upp bókina og byrjaði að lesa fannst mér ókostur hversu lítið Gunnlaugur staldr- aði við hlaupaferil sinn áður en hann tók til við ofurhlaupin. Mér varð þó ljóst þegar lengra var komið inn í bókina að þetta var sennilega rétt ákvörðun, enda eru afrekin sem kappinn hefur unnið ansi mikil, hvort sem um er að ræða 100 kílómetra hlaup, sólarhringshlaup eða enn lengri hlaup. Frásögnin er fín. Þarna er jöfnum höndum sagt frá hlaupum, undirbúningi, mataræði og félagsskapnum í kringum hlaupin. Heilt yfir tekst sögumanni vel upp. Þó eru tveir gallar á frásögninni. Gunnlaugur segir mikið maður/manni í staðinn fyrir ég/mér, eins er nokkuð um endurtekningar. Hvort tveggja hefði útgefandi mátt sjá til að yrði lagfært áður en bókin var gefin út þó það komi ekki í veg fyrir að lesandinn hafi ánægju af lestrinum. Bók Gunnlaugs er bæði athyglisverð heimild um hlaupaferil hans og áskor- un til annarra um að byrja að hreyfa sig, eða bæta við afköst sín ef þeir eru byrj- aðir að hreyfa sig á annað borð. Ég veit alla vega að þegar ég setti bókina frá mér langaði mig út að hlaupa og hugsa að slíkt geti átt við um fleiri lesendur. BrynjólFur Þór Guðmundsson að siGra sjálFan siG gunnlaugur JúlíussonAthyglisverð heimild um hlaupafer- il Gunnlaugs og áskorun til annarra um að byrja að hreyfa sig eða bæta við afköst sín. Útgefandi: vestfirska forlagið ÆviþÆttir Fimm líFsreynslusöGur Efni þessarar bókar er að stofni til viðtalsþættir, sem höfundur annaðist í útvarpi. Þættir hennar urðu vel á fimmta hundraðið, en hér eru fimm valdir til útgáfu og að sögn Önnu Kristine var meg- inregla hennar við valið, að fólk- ið, sem birtist okkur á síðum bók- arinnar væri „jafn ólíkt og það var margt“. Ekki verður annað sagt, en höfundi hafi tekist að halda þessa reglu í heiðri en viðmælendur hennar eru af báðum kynjum, á ýmsum aldri og eru lífsreynsla þeirra og frásagnir afar ólíkar. Hér verður ekki farið nánar út í það efni, en sagan berst víða um heim og um marga heima, ef svo má að orði kveða. Ekki ætla ég mér þá dul að reyna að gera upp á milli þáttanna eða við- talanna í þessari bók. Þau eru öll stórfróðleg og ánægjuleg aflestrar og reynd- ar með miklum ólíkindum hve margt og mikið þetta fólk hefur upplifað um ævina, jafnt í gleði sem sorg. Og frásagnirnar eru ekki aðeins fróðlegar að efni til. Mér þótti við lesturinn ekki síður athyglisvert, hve vel höfundi (eða skrá- setjara eins og hún kallar sig) tekst að komast að viðmælendum sínum, fá þá til að segja frá með þeim hætti að lesandanum finnst hann þekkja þá hvern og einn. Skrásetning útvarpsviðtala er vandasöm, ef vel á að vera, og hér hef- ur hún tekist með ágætum. jón Þ. Þór milli mjalta oG messu – líFsreynslusöGur anna K. magnúsdóttir Stórfróðleg viðtöl og ánægjuleg aflestrar. Útgefandi: Bókaútgáfan Hólar sagnfrÆði/Ævisaga tímaBær endurútGáFa Á næstliðnu vori var sýnd í kvik- myndahúsum hér á landi heim- ildamynd Sigurgeirs Orra Sig- urgeirssonar, Alfreð Elíasson og Loftleiðir. Myndin er byggð á bók Jakobs F. Ásgeirssonar, Alfreðs saga og Loftleiða, sem kom fyrst út árið 1984 og er nú endurútgefin með lít- ils háttar breytingum og nýjum eft- irmála höfundar. Frumútgáfa þessarar bókar vakti mikla athygli á sínum tíma, og var það mjög að vonum og verð- leikum. Bókin er ein hin athyglis- verðasta af ritum, sem út hafa verið gefin um íslenska atvinnusögu 20. aldar. Hún er vel skrifuð og byggð á traustri og gagnrýninni rannsókn heimilda og í henni kvað á sínum tíma við nokkuð nýjan tón í ritum af þessu tagi, þar sem höfundur byggir jöfnum höndum á viðtölum við söguhetjuna og nánustu samstarfsmenn hennar og rituðum og skjalfestum heimildum. Að ýmsu leyti var söguefnið vel fallið til þess að skrifa um það skemmtilega bók. Saga Loft- leiða var frá upphafi til enda eitt samfellt ævintýri og oft hefur verið talað um „Loftleiðaævintýrið“ í því sambandi. Þetta var hálfgerð Öskubuskusaga, sag- an af þremur ungum og bjartsýnum mönnum, sem réðust í að stofna flugfélag af litlum efnum, og þrátt fyrir margvíslega erfiðleika og áföll óx félagið hratt og varð að lokum stórveldi í íslensku atvinnulífi og frægt víða um heim. Bókin hefur verið með öllu ófáanleg um langt skeið. Af þeim sökum var endurútgáfa hennar þörf og tímabær, og kannski á þessi bók einmitt sérstakt erindi við okkur Íslendinga nú á tímum. Íslenskir viðskiptamenn og athafna- semi þeirra í útlöndum er ekki sérlega hátt skrifuð þessa dagana, hvorki hér heima né erlendis. Sagan af Loftleiðum, og þó umfram allt foringja Loftleiða- manna, sýnir hins vegar svo ekki verður um villst, að Íslendingar geta vel hasl- að sér völl í alþjóðlegum viðskiptum og samkeppni, svo fremi þeir nenni að leggja á sig nauðsynlega fyrirhöfn, fari fram af gætni og festu og – umfram allt – hagi sér eins og siðaðir menn. jón Þ. Þór alFreðs saGa oG loFtleiða Jakob f. ÁsgeirssonTímabær end- urútgáfa því kannski á þessi bók einmitt sérstakt erindi við okkur Ís- lendinga nú á tímum. Útgefandi: Bókafélagið ugla Þetta er skrýtin bók. Í henni segir frá Ragnari Jónssyni, iðnrekanda, bóka- útgefanda, listaverkasafnara og tón- listarfrömuði með meiru. Ragnar, þekktastur sem Ragnar í Smára, er á leið til Stokkhólms á Nóbelshátíð- ina síðla hausts 1955. Þangað á hann brýnt erindi, útgefandi skáldsins sem mun veita Nóbelsverðlaununum við- töku að þessu sinni. Hann kemur við í Kaupmannahöfn og hittir þar gamla kunningja: Jón Stefánsson, listmálara, Jón Helgason prófessor og Þórunni konu hans, Sigurð Nordal sendiherra og frú Ólöfu, og fleiri. Hann verður samferða Nordalshjónunum til Stokk- hólms og þar finna þau skáldið sjálft og aðra vini og kunningja sem eru einnig á leið á hátíðina. Bókinni lýk- ur rétt um það bil sem hátíðin er að hefjast. Fólk þetta leiðir höfundur bókar- innar fram eins og persónur í skáld- sögu eða jafnvel leikriti. Hann skrif- ar samtöl upp í þær, en uppistaðan í þeim samtölum er aðallega mislang- ar tilvitnanir í gömul einkabréf fólks- ins sem hann hefur komist í. Sumt af því hefur sést áður en annað ekki og er sumt af því forvitnilegt, einkum bréf Ragnars til Ólafar Nordal. En það er yf- irleitt afar kyndugt að „hlusta“ á þessar samræður, því að langoftast eru bréfa- textarnir teknir upp nánast óbreyttir. Vitaskuld tjá menn sig allt öðru vísi í töluðu máli en rituðu. Það er, svo ég nefni eitt dæmi, vægast sagt sérkenni- legt að láta Halldór Laxness taka að ræða útgáfur sínar á Íslendingasög- unum í miðjum klíðum í hádegisverð- arboði því sem Ragnar heldur honum til heiðurs rétt fyrir Nóbelshátíðina. Þar er vitnað í bréf sem Halldór ritar Jóni Helgasyni árið 1950, trúnaðarbréf þar sem hann viðurkennir að hafa far- ið offari í deilum þeim sem spruttu af tilraunum hans og Ragnars til að gefa sögurnar út með nútímastafsetningu. Að Halldór hafi farið að ræða slík mál yfir matarborði við fjölda manns, og það við þessar aðstæður, það er bara með öllu fráleitt. Bókin heitir Mynd af Ragnari í Smára. En miðlar hún í rauninni nokk- urri mynd af þessum mikla krafta- verkamanni sem var orðin lifandi goðsögn löngu áður en hann lést? Stundum fær maður á tilfinninguna að höfundurinn noti hann beinlínis til að hengja á hann alls kyns fróðleik, oft harla persónulegan og misáhuga- verðan, um hinar og þessar frægðar- persónur sem Ragnar hafði afskipti af og höfundur hefur dottið um. Við fáum enn einu sinni að lesa um Nób- elsáhyggjur Gunnars Gunnarssonar, jafnáhugavert efni og það nú er. Við erum frædd um afbrýðisemi Davíðs Stefánssonar út í Halldór Laxness og ótta Kristmanns Guðmundssonar og gremju út í kommúnista. Höfundar- raunir hins unga Elíasar Mars koma einnig við sögu og mistök hins aldraða Halldórs Laxness við prófarkalestur einnar af minningabókum hans. Öllu áhugaverðari eru þá hugleiðingar Ragnars og Sigurðar Nordals um Lax- ness sem skáld – eitthvað af því hef- ur raunar áður birst í ævisögu Hann- esar H. Gissurarsonar um Laxness, ef minnið bregst mér ekki – og vangavelt- ur Sigurðar um Ragnar í bréfum til Jó- hannesar, sonar síns. Sigurður virðist hafa ætlað Jóhannesi mikinn hlut í ís- lensku menningarlífi (jafnvel að hann tæki þar við sínum eigin tignarsessi?), en gremst að Ragnar skuli ekki vera sér leiðitamur. Í bréfi, sem Sigurður skrifar Jóhannesi, segir hann að Ragn- ar hafi „vissa vanmetakennd gagnvart menntamönnum“ og leiðir að því get- um að það sé þess vegna sem Ragnar leiti ekki ráða hjá sér varðandi útgáfu tímaritsins Helgafells sem er raunar einn af furðulegri köflunum í skraut- legri sögu Ragnars. Hégómagirnd og valdabarátta eru stef sem hljóma víða í undirtexta þessarar bókar. Vitaskuld kemur einnig sitthvað fram um Ragnar sjálfan. En höfund- ur gerir sér undarlega lítið far um að taka upp þá þræði, sem þarna eru þó, og fylgja þeim til enda. Á þessum tíma stendur Ragnar í miklu stímabráki um yfirráðin yfir Sinfóníuhljómsveit Ís- lands og eru þeir Vilhjálmur Þ. Gísla- son, útvarpsstjóri, og Guðlaugur Rós- inkranz, þjóðleikhússtjóri, að því er best verður séð, aðalandskotar hans og bandamanna hans, Páls Ísólfsson- ar og Jóns Þórarinssonar, í því máli. En hvað lá þarna að baki og hvern- ig lyktaði deilum þeirra? Í bók þeirri, sem Ingólfur Margeirsson ritaði með viðtölum við nokkra samtíðarmenn Ragnars og kom út tveimur árum fyr- ir dauða hans árið 1984, heldur einn viðmælenda því fram, að Ragnari hafi fátt fallið þyngra um dagana en ósig- ur sinn í því stríði, þegar stjórn Sin- fóníunnar var færð undir Ríkisút- varpið. Jón Karl rétt tæpir á þessum málum, en kafar ekkert í þau – frekar en svo margt annað sem hann lætur sér nægja að tæpa á. Listaverkagjöf Ragnars til ASÍ og stofnun listasafns samtakanna er annað af hinum miklu pródjektum hans sem hlutu allt ann- an endi en hann hafði vonast til. Um þau er ekki heldur fjallað, enda komu þau ekki upp fyrr en nokkrum árum síðar. En til hvers er að skrifa bók um Ragnar og kalla hana „mynd“ af hon- um, án þess að nefna eitt af stærstu hugðarefnum hans, stórbrotin áform hans um að stofna listasafn utan Reykjavíkur, til mótvægis við Listasafn Íslands sem honum mun hafa fundist illa stjórnað? Er það þó stórum merki- legra mál en þær erjur reykvískra myndlistarmanna á árunum í kring- um 1950 sem greint er frá í kaflanum um Jón Stefánsson. Einkamál Ragnars koma nokkuð við sögu. Ragnar var kvæntur áður en hann gekk að eiga Björgu Ellingsen og var skilnaður hans og fyrri konunnar, Ásfríðar Ásgríms, greinilega sársauka- fullur. Á þeim tíma sem þessi „saga“ gerist eru þó einhverjir brestir komn- ir í samband þeirra Bjargar; hún fylg- ir honum ekki á Nóbelshátíðina og er heldur dauf í dálkinn þegar Ragn- ar er að hringja í hana, væntanlega í sviðsetningu Jóns Karls. Ekkert er Safn til sögu Ragnars í Smára mynd aF raGnari í smára Jón Karl Helgason Hraflkennd bók um merkan mann sem á betri umfjöll- un skilið. Útgefandi: Bjartur Ragnar Jónsson í Smára „Vonandi verður sá kynlegi blendingur fræðimennsku og skáldskapar, sem Jón Karl Helgason hefur sett saman, ekki til þess að fæla aðra frá því að segja sögu Ragnars og greina framlag hans af fullri alvöru [...]“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.