Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Side 20
 Miðvikudagur 25. nóvember 200920 Bækur Ferðasaga Ferðasaga á tímamótum Ferðasaga Runólfs Ágústsson- ar, fyrrverandi rektors á Bifröst, til Ástralíu er augljóslega saga manns sem stendur á ákveðn- um tímamótum. Runólfur grein- ir frá því í upphafi bókarinnar að hann hafi ákveðið að halda upp í þessa sjö vikna löngu ferð því komið hafi verið að „skuldadög- um“ hans. Hann hafði þá unnið hörðum höndum að því árum saman að byggja upp tvo skóla, fyrst Há- skólann á Bifröst og síðar Keili, í herstöð varnarliðsins í Keflavík. Auk þess sem hann hafði glímt við ólæknandi efnaskiptasjúkdóm í 20 ár og hafði þurft að dæla í sig sterum þrisvar á dag til að vinna gegn honum. Læknir Runólfs ráðlagði honum því að minnka steraskammtana og byrja að lifa hollara og rólegra lífi. „Í fyrsta skipti í tvo áratugi ætlaði ég að staldra við í lífinu og hugsa,“ segir Runólfur í bókinni og dreif sig svo einn til Ástralíu eftir að hafa hætt hjá Keili í byrjun mars á þessu ári. Sjö vikna ferðasaga Runólfs, frá borginni Perth á vesturströnd Ástral- íu og inn í mitt landið áður en hann hélt í suðuraustur til Adelaide, Mel- bourne, Tasmaníu, Canberra og Sydney, er í sjálfu sér ekki mjög eftirminni- leg. Bókin gefur lesandanum ágæta, en þó nokkuð yfirborðslega, mynd af þessum stöðum. Runólfur virðist ekki hafa komist í kynni við marga Ástrali á ferðalagi sínu og því er þekking hans að mestu bundin við eigin upplifun og það sem hann hefur lesið í bókum um landið, en þær bækur eru tíund- aðar í bókarlok. Runólfur greinir frá því helsta sem á daga hans dreif í ferð- inni, lýsir einkennum staðanna sem hann heimsótti, hvað hann borðaði og drakk, hvar hann gisti og hvað honum þótti forvitnilegast og sérstakast. Líklega mun enginn hafa áhuga á að fara til Canberra eftir að hafa lesið bók Runólfs en Sydney hlýtur aftur á móti að toga í flesta. Markmið ferðarinnar var hins vegar ekki mjög afmarkað og því er mark- mið bókarinnar það ekki heldur, líkt og nafnið á bókinni gefur til kynna. En til þess að úr slíkri sögu verði eftirminnileg bók þurfa atburðirnir sem ferðalangurinn lendir í að vera þeim mun áhugaverðari og bera bókina uppi eða að stílsnilld höfundarins og sýn sé svo sérstök að hann geti gert mikið úr litlu. Svo er ekki í þessari bók: Runólfur lendir ekki í miklum ævin- týrum á leið sinni þó að bókin sé prýðilega vel skrifuð hjá honum og ágæt aflestrar – aldrei kom yfir mig sú tilfinning að ég nennti ekki að klára hana – og uppgjör hans við sjálfan sig og sitt fyrra líf fær ekki nægilega mikla at- hygli í bókinni til að geta borið hana uppi. Áhugaverðasti hluti bókarinnar er frásögnin af Jörgen Jörgensen, betur þekktum sem Jörundi hundakonungi á Íslandi, og afdrifum hans í Ástralíu og Tasmaníu. Ég þekkti ekki ólánssögu Jörundar og mér fannst gaman að lesa um hana. Það er líka í þessari frásögn sem Runólfur gerir best í bókinni því þar er hann drifinn áfram af samúð með ógæfumanninum Jörundi og löngun til að komast að því hvað varð um hann, meðal annars að finna gröf hans í Tasmaníu. Þáttur Jörundar er því sá besti í bókinni. Runólfi hefur líklega fundist sem hann hafi allt eins getað skrifað þessa bók fyrst hann hélt upp í ferðalagið til Ástralíu til að byrja með. Slík skrif gefa ferðalaginu aukið vægi og gera ferðalanginum kleift að hafa eitthvert markmið meðan á henni stendur. Kannski var bókin, líkt og ferðalagið, líka hluti af persónulegu uppgjöri Runólfs. Bókin bætir hins vegar ekki miklu við og hún er ekki djúp á neinn hátt þó að Runólfur virðist vera einlægur í lýsingum sínum af eigin líðan. Ferðasaga Runólfs er ágætis afþreying og prýðilega upplýsandi um suma af þeim stöðum sem Runólfur heimsækir auk þess sem það gerir bókina þægilega að tónn höfundarins er persónu- og vinalegur. IngI F. VIlhjálmsson engInn ræður För – reIsubók úr neðra runólfur ÁgústssonPrýðilega skemmtileg ferðasaga um Ástralíu eftir mann á tíma- mótum. Bókin er þó ekki eftir- minnileg, með einni undan- tekningu. Útgefandi: Veröld Margir muna eflaust eftir hinni stórskemmtilegu bók Huldars Breiðfjörð, Góðir Íslendingar, sem hann sendi frá sér fyrir rúmum tíu árum. Ég man að ég las þá yndis- legu bók ansi oft þar sem ég var búsettur í Venesúela og saknaði heimahaganna. Þá var gaman að detta aftur og aftur inn í þann alíslenska og hversdagslega heim sem Huldar dró upp mynd af í bók sinni á hringferðinni um landið. Eftirminnilegustu lýsingarnar í þeirri bók voru hvernig hann stoppaði í sjoppum og ýmsum búllum og keypti sér hamborgara eða köku og kaffi, tók þjón- ustufólkið tali og velti fyrir sér stemningunni á áningar- stöðunum. Bókin leið þægilega áfram: Lesandinn sat og hlustaði á Huldar spjalla ljúflega um allt og ekkert í fari lands og þjóðar. Nú er Huldar mættur aftur til leiks – eftir að hafa skrifað ferðasögu um Kína – á þessi kunnuglegu mið og endurtekur leikinn að með sams konar bók um Færeyj- ar og hann skrifaði um Ísland. Ástæðan fyrir því að hann velur Færeyjar er sú að Færeyingar stóðu við bakið á Ís- lendingum eftir efnahagshrunið í fyrrahaust og veittu þeim lánafyrirgreiðslu þegar aðrir héldu að sér hönd- um. Honum lék forvitni á að vita hvaða þjóð þetta væri sem sýndi Íslendingum slíkt vinarþel. Á fjórum vikum í byrjun ársins ætlaði Huldar sér að kynnast Færeyjum og Færeyingum það vel að hann gæti komist „á botninn“ eins og hann orðar það í bókinni. En þessi botn er sú tilfinning að komast í náin tengsl við eðli landsins, íbúa þess og menningu, ef ég skil Huld- ar rétt. Þetta er einhvers konar andleg eða frumspeki- leg reynsla þar sem maður finnur fyrir einhverri áður óþekktri tengingu við eitthvað. Hann nær svo þessu markmiði við sérstakar aðstæður á Suðurey skömmu áður en hann heldur aftur heim til Íslands. Í þessu augnamiði gerir Huldar sams konar hluti í Færeyjum og hann gerði til að kynnast landanum utan við 101 RVK í Góðum Íslendingum. Hann slæpist mik- ið, hangir í sjoppum og kaffihúsum, spjallar við mikið af alls konar fólki, þjórar á börum og leggur sig eftir öllu því sem færeyskt er. Þessari ferð Huldars til Færeyja verður ekki lýst sem ævintýralegri eða ógleymanlegri, til þess er hún of venjuleg. En það er einmitt þetta hversdagslega og stefnulausa ráf sem Huldar er svo góður í. Hann kynnist ýmsum í bókinni sem fræða hann um Færeyjar, Færeyinga, menningu landsins og meira að segja líka malbikunina á eyjunum því meðleigjandi hans á súra og subbulega gistiheimilinu í Þórshöfn vinn- ur við að asfaltera. Eins kynnist hann öðrum Íslending- um sem dveljast í Færeyjum, til að mynda múraranum Högna sem á í nokkrum erfiðleikum í kvennamálunum í bókinni og bölvar öðrum Íslendingum sem setjast að í Þórshöfn því hann telur þá vera hálfgert pakk sem hegði sér dólgslega. Þegar Huldar er orðinn þreyttur á höfuðborginni fer hann á flakk um eyjarnar. Líkt og í Þórshöfn hittir hann ýmsa skemmtilega karaktera á ferð sinni til þorpanna Götu, Klakksvíkur og Þvereyrar meðal annarra. Þar ber hæst Íslendingavininn Martin, 75 ára sjómann sem enn rær út á trillunni sinni til að veiða beitukóng. Lýs- ingar Huldars á samveru sinni með Martin og konunni hans Henny eru mjög einlægar og ljúfsárar því honum þykir greinilega dálítið vænt um gamla manninn. Auk þess sem Huldar fær loksins að kynnast færeyskri mat- armenningu í þeirra húsum: skerpikjöti, söltuðu spiki og grindhvalakjöti, eftir heldur sorglegt skyndibitafæði – norskar örbylgjupítsur – og aðrar aumar reddingar fram að því. Það er fyrst í Götu sem Huldar fer að nálg- ast „botninn“ sem hann svo leitar að í ferðinni þó svo að hann hafi, þegar þarna er komið sögu, áður verið búinn að prófa færeyska dansinn sem bókin heitir eftir. Enn á hann svo eftir að hitta fyrir færeysku sauðkindina. Bók Huldars er skemmtileg og einlæg. Hann er góður í að skrifa slíkar ferðabækur. Einn af hans stærstu kost- um í þessum bókum er hvað hann er þægilegur, hvers- dagslegur og opinn á sínum ferðalögum og hann miðlar því sem hann sér og hugsar á áreynslulausan og ljúfan hátt. Huldar er ekkert að rembast við að vera neitt merki- legur eða háfleygur í þessari bók. Einhverjum kann að finnast þetta slæmt og að bókin sé yfirborðsleg fyrir vik- ið. Vissulega er það svo að bók Huldars ristir ekki mjög djúpt en það er heldur ekki endilega það sem maður vill fá út úr bókum Huldars. Að lesa Huldar er dálítið eins og að fara í þægilegan bíltúr með manni með góða nærveru og hlusta á hann segja frá því sem fyrir augu ber. Huldar er prýðilegur ferðafélagi og lesanda langar ekkert sérstaklega til að hann hætti að segja frá upplifun sinni af Færeyjum. IngI F. VIlhjálmsson Í leit að „botni“ í Færeyjum Ferðasaga Færeyskur dansur Huldar Breiðfjörð Skemmtileg, ljúf og hversdags- leg ferðabók um Færeyjar frá höf- undi Góðra Ís- lendinga. Huld- ar er góður og þægilegur ferða- félagi. Útgefandi: Bjartur HuldarBreiðfjörðFæreyskur dansur er þriðja ferðabók Huldars. Hinar eru Góðir Íslendingar og Múrinn í Kína sem mæltust vel fyrir hjá gagnrýnendum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.