Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Side 30
v Eftir áralöng viðskipti við Ar-ion-banka situr Svarthöfði eftir með tíu milljónir í mínus og ofvaxinn grillspaða, sem hann fékk fyrir að koma í viðskipti. Ekki það að Svarthöfði hafi leiðst út í stjórnlausa neyslu fjármagnaða á yfir- drætti, heldur keypti hann bara íbúð eins og flestir aðrir. Svarthöfði hefði verið vel stæð-ur maður í dag, ef hann hefði aldrei farið í viðskipti við Ar-ion-banka. Hann hefði getað farið í utanlandsferðir, varið meiri tíma með fjölskyldunni og gefið ung- viðinu hollustufæðu. Draumar Svart- höfða eru brostnir út af banka, sem nú gerir það eitt að fela sína slóð. Út frá þessu er tilvist Arion langt frá því að vera til hagsbóta fyr- ir Svarthöfða. Reyndar er það svo að tilvist Arion hefur reynst vera gríðarlegt áfall fyrir langflesta viðskiptavini Arion. Fjár- hagsleg fram- tíð viðskipta- vinanna liggur í rúst. Hvað ef fólk færi á ham- borgarastað, sem myndi leggja fjár- hagslega framtíð fólks í rúst? Eða fara í sakleysi sínu í bíó og koma út tækni- lega gjaldþrota? Eða fara í skoðun hjá heimilislækni og vera sprautaður með ebóla-veirunni? Engin önnur fyrirtæki komast upp með að rústa viðskipta- vinum sínum eins og bankarnir. Segjum svo að einhver myndi banka upp á hjá Svarthöfða, segjast heita Sigurður og bjóða Svarthöfða að kaupa hljómd- isk á tvö þúsund krónur. Svo kemur reikningur upp á fjögur þúsund krón- ur, sem Svarthöfði verður á endanum að borga vegna þess að lög og réttur í þessu landi eru til að verja siðlaust sölufólk. Vikuna eftir er svo bankað upp á hjá Svarthöfða og er þar Sig- urður kominn með nýtt tilboð. Hann segist nú heita Jesús Kristur og ætlar að selja mér hljómdisk á tvö þúsund krónur. Það gerir hins vegar siðlaus- an sölumann engu betri að skipta um nafn til að fela slóð sína. Þvert á móti, hann verður bara verri. Svo eru það þeir sem aldrei borguðu siðlausa sölumann-inum, heldur pöntuðu heila útvarpsstöð af geisladiskum og borguðu ekki. Þeim er nú boðið að borga 100 krónur fyrir hvern disk. Það eru aðeins þeir sem eru ennþá verri en Sigurður sölumaður sem best koma út úr viðskiptunum við hann. Sælir eru siðlausir. Þeir sem gengu lengst í sukki fara best út úr viðskiptum sínum við Arion. Þeir sem skulda mest og héldu veislur í Mónakó fá betri þjónustu en Svart- höfði, sem var bara heima hjá sér og fór í vinnuna. Það er blaut tuska framan í Svarthöfða að Kaupþing skuli breyta nafni sínu í Arion, eftir að hafa rænt hann. Arion er eitt mesta fórnar- lamb grísku goðafræðinnar og er þekktastur fyrir að hafa verið rænt af sjóræningjum. Kaupþing er ekki Arion. Kaupþing er sjóræningi. Það eru Svarthöfði og samborgarar hans sem eru Arion. Maður að nafni Þórhall-ur Ölver var eitt sinn dæmdur fyrir morð. Hann breytti nafninu í Þór Óliver, sem er að minnsta kosti í ætt við fyrra nafn hans. Dæmdi fíkni- efnasalinn Franklin Steiner er ekki einu sinni svona slæmur. Hann breytti nafni sínu í Franklin Stiner, sem er miklu gagnsærra en nafnabreyting Kaupþings. Olíufyrirtækið Exxon olli einu versta mengunarslysi sögunnar þegar Exxon Valdez sleppti út 40 milljón tonnum af olíu við strendur Alaska. Ef þetta hefði verið Kaupþing hefði einfaldlega verið skipt um nafn á fyrir- tækinu og málið látið kyrrt liggja. Ex- xon reyndi að vísu að skipta um nafn á skipinu sjálfu, en allt kom fyrir ekki. Yfirvöld bönnuðu skipinu að sigla um sama hafsvæði að nýju. Enn eimir eftir af olíu Exxon í Alaska. Og enn glíma margir viðskiptavinir Kaupþings við að bankinn rændi þá sparnaðinum. Það eitt hefur breyst að Kaupþing kall- ar sig nú fórnarlamb mannráns. Fórnarlambið Spurningin „Ég fylgi alltaf sólinni,“ segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðar- bæjar, en hann tók þátt í athafnateygj- unni svokölluðu sem var liður í alþjóðlegri athafnaviku sem lauk á sunnudag. Meðal þess sem hann framkvæmdi með athafnateygjunni var að ganga 4 kílómetra í vinnuna. Að auki gekk hann tvo hringi í kringum Stjórnsýslu- húsið á Ísafirði, réttsælis. aF hverju réttsælis? „Ég var orðin leið á að vera með heimþrá.“ n Söngkonan Hafdís Huld er farin að sakna Íslands og flytur heim eftir tvær vikur. - Fréttablaðið „Mitt mat er að við vorum orðnir of miklir töffarar.“ n Jóhann Árni Ólafsson, leikmaður Njarðvíkur, var með svör á reiðum höndum þegar hann var spurður út í fyrsta tap liðsins gegn Stjörnunni. - Fréttablaðið „Reiðin verður bara meiri og meiri.“ n Grétar Rafn Steinsson er orðinn pirraður á því að sitja bara á bekknum hjá Bolton í ensku úrvalsdeildinni. - Morgunblaðið „Auðvitað er þetta pirr- andi og þetta skemmir alveg klárlega.“ n Hannes Þór Halldórsson, leikstjóri Atvinnumannanna okkar, er ekki sáttur við ólöglegt niðurhal á þættinum. - DV „Ég er að sjálf- sögðu búin að hafa það súper- gott á klakanum.“ n Ásdís Rán Gunnarsdóttir er ánægð hér heima þessa dagana og lýsir því í pistli sínum. - pressan.is „Kom aldrei til greina að bankinn fengi nafnið Jónari?“ n Staksteinaritari er ekki í vafa um eftir hverjum Arion er nefndur en finnst röðin röng. - Morgunblaðið Fótspor hinna spilltu Leiðari Sjálfstæðisflokkurinn er með versta innanmein allra íslenskra stjórn-málaflokka. Flokkurinn hefur í eftir-dragi kolsvarta fortíð einkavinavæð- ingar og ríkishyggju. Flokkurinn sem haldið hefur á lofti merki einstaklingshyggju hefur í gegnum tíðina krosssvikið þá kjósendur sem glöptust til að trúa því að stefna fyrir kosning- ar væri eitthvað sem yrði fylgt eftir kosning- ar. Syndalisti gamla Sjálfstæðisflokksins er þéttskrifaður af svikum við kjósendur. Þessa fortíð þarf að gera upp. Nýr formaður Sjálf- stæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, hafði það tækifæri að marka krossgötur flokks- ins og hefja endurreisn byggða á heiðar- leika og stefnufestu. Fátt bendir nú til þess að hann ætli sér að marka flokknum nýja stöðu. Hann virðist vera enn einn formaðurinn af sama toga. Einkafundir hans með afdönkuð- um og dæmdum hugmyndafræðingi benda til þess að hann sé að máta sig í fótspor hinna spilltu. Álitsgjafinn Illugi Jökulsson spurði fyrir nokkru áleitinnar spurningar á bloggi sínu: „Hvaða sjálfstæðismaður ætlar að taka að sér að flytja leyniræðu Krústjovs?“ Þar vísar hann til þess þegar Nikita Krústjov gerði upp við Stalín á flokksþingi Komm- únistaflokksins. Ekki verður séð að núverandi ráðamenn Sjálfstæðisflokksins þori að stíga skrefið. Undanskilin er ræða Geirs H. Haarde, þá- verandi formanns, á lands- fundi flokksins. Sú afsök- unarbeiðni var kæfð í ræðu annars fyrrverandi for- manns, Davíðs Oddssonar, sem var síður en svo á þeim nótum að viður- kenna mistök. Sá sjálfstæðismaður sem fetar sömu slóð og Krústjov og kveður niður drauga fortíð- ar gæti orðið sá sterki leiðtogi sem hefur flokkinn til virðingar og laðar að kjósendur. Það hlýtur að vera Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, Kristjáni Þór Júlíussyni og Illuga Gunn- arssyni umhugsunarefni hvert þeirra eigi að stíga skrefið og hreinsa flokkinn af óværunni. Líklegt er að sá sem hefur kjarkinn verði sigurvegari framtíðarinnar. Haldi Sjálfstæðisflokkurinn áfram að dansa eftir pípu þeirra sem tilheyra öfga- armi flokksins má víst telja að hann visni upp og endi sem smáflokkur á jaðri ís- lenskra stjórnmála. Ákall er eftir heilbrigðu afli til hægri. Þeir kjósendur sem aðhyllast einstaklingshyggju og minni ríkis- umsvif eiga hvergi skjól í dag. Nýi Sjálfstæðis- flokkurinn stendur á feysknum stoðum spill- ingar síðustu áratuga. Það verður einhver að taka að sér að flauta gamla liðið út af og kalla nýtt og gott fólk að háborðinu. Þá fyrst fæst boðlegur valkostur til hægri. reynir traustason ritstjóri skriFar. Ákall er eftir heilbrigðu afli til hægri. bókStafLega 30 miðvikudagur 25. nóvember 2009 umræða Sandkorn n Mikið var um dýrðir þegar Svava Johansen opnaði í miðri kreppunni nýja verslun Sautján- veldisins. Gestir voru heldur ekki af verra taginu. Þangað kom Björn Krist- mann Leifs- son, skráður aðaleigandi World Class, og bókstaf- lega geislaði af honum þrátt fyrir annir og erf- iðleika við að skipta um kennitöl- ur. Björn er mikill sagnaþulur og fór á kostum í æskuminningum sínum og síðari tíma viðskipta- sögum. Áheyrendur hnöppuðust saman opinmynntir til að hlýða á þroskasögurnar sem leitt hafa heilsukónginn þangað sem hann er kominn. n Svavar Halldórsson, fréttamað- ur Sjónvarps, hefur vakið athygli fyrir mikil tilþrif í sjónvarpsfrétt- um. Þetta fellur þó sums staðar í grýttan jarðveg eins og sjá mátti á bloggfærslu Eiríks Jóns- sonar á DV.is. „Flokk- ast æsingur- inn undir leikræn til- þrif eða er allt að fara til fjandans?“ skrifaði Eiríkur og var augljóslega ekki sáttur við handahreyfing- ar og áhersluþrungna framsögu Svavars. Þó væri áfall fyrir marga RÚV-ara ef þeir yrðu að láta af göngutúrum sínum í sjónvarps- fréttum enda margir álitið þetta þeirra helsta vopn í baráttunni um hylli sjónvarpsáhorfenda. n Tilþrif Svavars Halldórssonar fréttamanns hafa lengi fylgt hon- um. Þannig var haft á orði þegar hann var fréttamaður á hinni skammlífu sjónvarpsstöð NFS að hann væri bæði öðrum duglegri að hafa uppistönd (fréttamaður í mynd með hljóðnemann) í frétt- um en aðrir fréttamenn og eins hvað hann væri mikið á hreyf- ingu. Annars kann hann að hafa lært þetta á NFS-Akademíunni, hálfgerðum skóla fréttamanna stöðvarinnar. Þar var talað um uppistönd, mikilvægi þess að gera fréttamennina sýnilega og allt að því hluta af fréttinni, en líka um muninn á góðum uppi- stöndum sem bættu við fréttina og slæmum sem drægju athygl- ina frá henni. n Arnþrúður Karlsdóttir missti sem kunnugt er góðan mann úr dagskrá Útvarps Sögu þegar hún rak Guðmund Ólafsson, hinn ólaunaða álitsgjafa sem var fastagestur hjá Sigurði G. Tómassyni. En fólk er ekki bara á útleið á Útvarpi Sögu heldur líka innleið. Þannig er Anna Kristine Magnúsdóttir byrjuð á stöðinni á sunnudagsmorgnum með þátt sinn „Milli mjalta og messu“, en samnefnd bók hennar kom út á dögunum. Þættirnir hafa nú verið á þremur stöðvum, Rás 2, Bylgjunni og Útvarpi Sögu þar sem fyrsti þátturinn var um síð- ustu helgi. LyngháLS 5, 110 ReykjAvÍk Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: Sverrir Arngrímsson ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is dv á netinu: dv.iS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.