Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Page 37
fókus 26. nóvember 2009 miðvikudagur 37 á m i ð v i k u d e g i verðlaun verðlaunanna Í tilefni af því að tuttugu ár eru liðin síðan Félag íslenskra bókaútgefenda hleypti Íslensku bókmenntaverðlaununum af stokkunum efnir félagið til netkosningar um Verðlaun verðlaunanna. Almenningi gefst kostur á að velja eina verðlaunabók í flokki fagurbókmennta og eina verðlaunabók í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis úr hópi þeirra fjörutíu sem unnið hafa verð- launin. Hægt er að skoða verðlaunabækurnar og kjósa þær á mbl.is. Týnda Táknið á íslensku Týnda táknið eftir Dan Brown kem- ur út á íslensku í dag. Beðið hefur verið eftir þessari bók með óþreyju í mörg ár, eða síðan Da Vinci lykill Dans Brown fór meiri sigurför um heiminn en áður hafði þekkst. Fjórir þýðendur þýða bókina yfir á íslensku og Bjartur gefur sem fyrr út bækur Browns. Táknfræðingurinn Robert Langdon er óvænt boðaður til að halda erindi í þinghúsinu í Wash- ington. Örfáum mínútum eftir komu hans finnst þar sérkennilegur hlutur – með fimm táknum. Langdon ber kennsl á hlutinn sem ævaforna út- nefningu ... sem geti opnað hinum útnefnda leið inn í valinn hóp þeirra sem ráða yfir leyndri visku aldanna. Á dögunum kom út fyrsta hljóm- plata sveitarinnar Cosmic Call sem vakið hefur verðskuldaða athygli. Sveitin hefur verið dugleg við að spila og koma sér á framfæri og smáskífur plötunnar hafa fengið fína spilun á útvarpsstöðvum und- anfarið. Að mínu mati kveður hér við nýjan tón á Íslandi og með þessari plötu kemur hin unga hljómsveit gríðarlega sterk inn með grípandi lögum og þéttu undirspili. Platan er framsækin, hæfilega þroskuð og státar af skemmtilegum vel sömd- um lögum. Að plötunni kom meðal ann- ars maður að nafni Richard Dodd sem frægastur er fyrir að vinna til Grammy-verðlauna fyrir hljóð- blöndun á lagi Tom Petty – Wild- flowers. Hann sá um að „mastera“ plötu Cosmic Call. Hann og upp- tökustjórinn Sigurður Ingvar Þor- valdsson hafa náð því besta úr þessari sveit. Tvö lög standa upp úr á skíf- unni, en það eru lögin sem notið hafa hvað mestra vinsælda, Cold Hands og Lightbulbs. Þvílíkir slag- arar hafa ekki heyrst í íslenskri tónlist í langan tíma frá alt-rokk- hljómsveit svo árum skiptir. Lög sem gætu sómt sér vel á hvaða vin- sældalistum sem er í veröldinni. Ég fullyrði það. Sveitin sækir áhrif sín til ekki ómerkari sveita en Arcade Fire, Pix- ies og The Cure og það er ljóst þegar hlustað er á plötuna að sveitin unga hefur unnið heimavinnuna sína vel. Sérstaklega ber að hrósa söngvar- anum Sigurmon Hartmann Sig- urðssyni fyrir frábæran söng, gríð- arlegt efni þar á ferð. Hængurinn við plötuna er, líkt og með stuttskífur sem þessar sem telja aðeins sjö lög, að hlust- andinn finnur meira fyrir þeim lögum sem síðri eru. Veikir hlekk- ir verða stærri þegar heildin er ekki umfangsmeiri.Það eru eng- in arfaslök lög á plötunni en þeg- ar lengra dregur í áhlustun upp- lifir maður það sem svo að restin sé uppfyllingarefni þegar plat- an hefur byrjað með jafnmiklum látum og glæsibrag og frumraun Cosmic Call gerir. Allt í allt myndi ég segja þetta frábærlega vel heppnaða frum- raun, sem státar af að minnsta kosti þremur útvarpsvænum slög- urum sem þykir ekki ónýtt. Óhætt að mæla með þessum grip. Leggið nafnið á minnið. Sigurður Mikael Jónsson Funheit frumraun Pandorum er blanda af vísinda- skáldskap og hrollvekju sem gerist um borð í geimskipinu Elysium. Til að byrja með vitum við ekki á hvaða ferðalagi skipið og áhöfn þess eru. Sagan hefst svo á því að maður að nafni Bower, sem leikinn er af Ben Foster, vaknar ringlaður eftir margra ára djúpsvefn. Þjáður af minnisleysi sem fylgir slíkum svefni man Bower ekki hvar hann er staddur eða hvers vegna. Fljótlega vaknar yfirmaður hans, Payton, af sama svefni en hann er leikinn af gamla brýninu Dennis Qu- aid. Í sameiningu reyna þeir að átta sig á því hvað sé um að vera en geim- skipið sem þeir ferðast í virðist vera bilað og rafmagnslaust. Við komumst svo fljótt að því að ógnvænlegar verur eru um borð og ógna tilvist þeirra fáu mannvera sem eftir lifa. Þjakaðir af minnisleysi og geimriðu eða „pand- orum“ reyna Bower og Payton að átta sig á því hvað sé að gerast og hvaða ógnarverur þetta séu sem hafa yfir- tekið skipið og éta mannfólkið með húð og hári. Myndinni hefur verið líkt við hin- ar klassísku geimhrollvekjur Event Horizion og Aliens. Ég get ekki séð þá samlíkingu fyrir utan að allar ger- ast þær í geimnum. Reyndar finnst mér myndin minna mig töluvert á bresku hrollvekjuna The Decent frá 2005. Í staðinn fyrir að gerast í dimm- um hellum er sögusviðið geimskip. Nokkuð ófrumlegt en ekki alslæmt því The Decent er með betri hroll- vekjum síðari ára. Ekki er hægt að gefa of mikið upp um framvindu mála án þess að svipta hulunni af söguþræðinum en í grunninn er Pandorum flott hug- mynd og ágætis mynd. Hún er samt allt of ruglingsleg á köflum og er flækt að ástæðulausu. Áhorfandan- um er ætlað að upplifa efasemdir skipverjanna um hvað sé raunveru- legt og hvað sé veruleikafirring sök- um djúpsvefns. Ef ekki hefði verið eytt svo miklu púðri í það og einbeitt sér að því að útskýra og fylgja eftir því sem meira máli skipir hefði Pandor- um orðið töluvert betri. Hér er samt á ferðinni ágætis mynd miðað við sinn flokk þar sem er óendanlega mikið af rusli. Ben Foster heldur myndinni uppi enda frábær leikari. Töluvert er um flott- ar og blóðugar hasarsenur í mynd- inni og ekki er laust við að maður upplifi innilokunarkennd á köflum. Skrímslin eru líka flott þótt þau séu ekki frumleg frekar en flest annað í myndinni. Það er samt eitt sem er engu skárra en að vera ófrumlegur og það er rembast við að vera frum- legur. Ásgeir Jónsson Of mikið af spurningum 1. Brauð- og kökubók Hagkaupa 2. Vigdís - Kona verður forseti Páll Valsson Útkall Látrabjarg Óttar Sveinsson Stórskemmtilega stelpubókin A. J. Buchanan og M. Peskowitz 5. Landsliðsréttir Hagkaupa Jói Fel 6. Loftkastalinn sem hrundi 7. Núll núll 9 Þorgrímur Þráinsson 8. Prjónadagar 2010 Kristín Harðardóttir 9. Söknuður - Ævisaga Vilhjálms Vilhjálmssonar 10. Sjúddirarírei - Endurminn- ingar Gylfa Ægissonar 1. 2. 3. 4. . Metsölulisti Byggt á sölu í verslunum Hagkaupa vikuna 16.-23.. nóv. Hagkaupa CosmiC Call Flytjandi: Cosmic Call Útgefandi: Future Records tónlist Pandorum Leikstjórn: Christian Alvart Aðalhlutverk: Dennis Quaid, Ben Foster, Antje Traue, Cung Le, Norman Reedus, Cam Gigandet. kvikmyndir Pandorum Á fína spretti inn á milli. Ben Foster Er klassa leikari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.