Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Síða 38
„Clive Owen er ekki í neinu sérstöku uppáhaldi. Mér hef- ur reyndar alltaf fundist hann vera góður leikari,“ seg- ir Georg Holm, bassaleikari í Sig- ur Rós, en hljóm- sveitin hefur leyft aðstandendum myndarinnar The Boys are back, sem skartar hjartaknús- aranum Clive Owen í aðalhlutverki, að notast við sjö lög eftir þá í myndinni. Að auki verður eitt lag úr hlið- arverkefni Jónsa, Riceboy sleeps. Sigur Rós fær fjöld- ann allan af óskum frá Hollywood um að fá að nota lög hljómsveitar- innar í myndum en síð- ast heyrðist snilld hljóm- sveitarinnar í Vanilla Sky, stórmynd Toms Cruise. Þeir hafa hins vegar verið tregir til þess þrátt fyrir boð um gull og græna skóga. The Boys are back fjallar um virtan íþróttafréttamann og föð- ur tveggja drengja, sem Clive Owen leikur, sem missir skyndilega eigin- konu sína. Hann ákveður að nota frasann „Segðu bara já,“ við drengina til að reyna að fá gleði aftur í þeirra líf. „Þetta er góð mynd. Hún er erfið á köflum en fílgood á endanum,“ seg- ir Georg en þeir félagar fengu að sjá grófklippta útgáfu af myndinni. „ Við erum oftast þannig að við viljum sjá eða lesa eða að minnsta kosti skoða eitthvað til að samþykkja hvar lögin okkar eru. Leikstjórinn ákvað að koma til Íslands og leyfði okkur að sjá það sem var til- búið. Við vorum ofboðslega hrifnir af henni,“ segir Georg. Scott Hicks sagði í samtali við enska vefmiðla að upphaflega hafi hann notast við lögin þeirra til bráðabirgða en þegar hann hafi séð hvað tón- list þeirra virkaði vel með myndinni hafi hann ákveðið að komast í sam- band við bandið. „Ég var varaður við því fyrirfram að þeir væru vandlátir á það hvað tónlistin þeirra væri notuð í svo ég fór til Íslands til að sýna þeim myndina og þeir einfaldlega elskuðu hana,“ er haft eftir Hicks. benni@dv.is Fáar sveitir eru jafnelskaðar og Iron Maiden. Meðlimir sveitar- innar eru sannir holdgervingar þungarokksins og hafa ekki látið tískustrauma hafa áhrif á stefnu hennar. Það kemur því ekki á óvart að Iron Maiden er líklega sú sveit sem á sér hvað flest trib- ute-bönd í heiminum. Það var því bara tímaspursmál þangað til að slík sveit yrði stofnuð á Ís- landi. Nú hafa nokkrir eðalrokk- arar tekið sig saman og stofnað sveitina MaidenIced. Þetta eru þeir Gunnar Þór Einarsson sem slær taktinn á trommur, Reynir Baldursson og Sigurður Waage keyra upp gítarhljóminn, Dagur Sigurðsson sér um að syngja og Árni Þráinsson plokkar á bassa. Sannkallað eðalrokk. AlltAf fundist Owen verA gæðAleikAri „Hey friends. Sit heima að semja jólalag á gítarinn. Lumar einhver á góðum texta um jólin, fjölskylduna eða einhverju fallegu ljóði jafn- vel? Væri vel þegið að fá það sent á inboxið og aldrei að vita nema þið heyrið það á Bylgjunni um jól- in... Er að reyna að taka mig taki í tónlistinni ,“ segir Logi Geirsson á Facebook-síðu sinni en hann þykir lunkinn tónlistarmaður. Logi spilar á gítar og er með góða aðstöðu heima hjá sér fyrir tónlistariðkun. Þá er hann í hljóm- sveitinni Logi og Lundarnir. Logi fékk gríðarleg viðbrögð við fyr- irspurninni og pósthólfið hans á Facebook nánast fylltist. Góðvinur Loga, sjónvarpsmað- urinn Auðunn Blöndal, svaraði kalli Loga og kom með eitt stykki erindi í jólalagið: „Ég heiti Logi Geirs og verð meiddur um jólin, en öxlin mun braggast og þá snúast hjólin, og ekki gleyma að stúlkurnar í Germ- any elska á mér tólin.“ Auðunn er svo sem enginn ný- græðingur þegar kemur að texta- smíði fyrir stórlag en hann samdi textann við slagarann „Hjá þér“ sem Sverrir Bergmann gerði ódauðlegt fyrir nokkrum árum. JólAlAg með AuddA Og lOgA til heiðurs mAiden Logi geirsson fékk dúndurviðbrögð þegar hann augLýsti eftir jóLatexta: GeorG Holm: Alvöru myndbandafíklar geta brátt tekið gleði sína á ný því Laugarásvideo tilkynnti á sam- skiptavefnum Facebook í gær að stefnt væri að því að opna leiguna aftur í desember. Lokað hefur verið vegna viðgerða eftir mikinn bruna sem eyðilagði nær allt sem inni var. Taldi Gunnar Jósefsson, eigandi Laugarásvid- eos, að skemmdirnar næmu um 100 milljónum króna. Á Face- book reyndu góðvildarmenn leigunnar að fá fólk til þess að leggja ígildi einnar spólu inn á styrktarreikning. Þar söfnuðust 147.000 krónur. Vissulega dropi í hafið ef talan stenst hjá Gunn- ari en það munar um allt þegar svona hlutir gerast. OpnAð í desember 38 miðvikudAgur 25. nóvember 2009 fólkið Flottir saman Auðunn og Logi slá í gegn hvar sem þeir koma. Jólalag frá þeim félögum er væntanlegt. Meðlimir Sigur Rós- ar hafa samþykkt að sjö lög eftir þá fái að hljóma í nýjustu mynd Clives Owen, the boys are back. Georg Holm, bassa- leikari hljómsveitar- innar, segir að leik- stjóri myndarinnar, Scott Hicks, hafi gert sér sérferð til landsins til að leyfa strákunum að kíkja á gripinn. georg fílar Clive owen en heldur ekkert sérstaklega upp á hann. Hjartaknúsari Clive Owen hefur verið tilnefndur til óskarsverðlauna. Hann fór á kostum í Sin City og leikur aðalhlutverkið í myndinni The Boys are back.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.