Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Side 10
10 mánudagur 14. desember 2009 fréttir Fallegt íslenskt handverk til gjafa Litla Jólabúðin - Laugavegi 8. Rvk - S-552 2412 Meðlimir trúfélagsins Catch the Fire, CTF, áður Kærleikans, eru hvattir til að opinbera kynlífsupp- lifanir sínar og sjálfsfróun í vitna viðurvist. Þetta kemur fram í frá- sögnum meðlima við DV og sé þetta gert til að þeir geti verið nær guði. CTF er ný kirkja sem var stofn- uð í ágúst síðastliðnum. Þar er leit- ast við að kynna fyrir fólki kærleika Guðs, kraft Jesú Krists og vinskap og leiðsögn heilags anda, eins og segir á vefsvæði safnaðarins. Kirkj- an er ætluð öllum sem vilja lofa drottin af öllu hjarta og þrá dýpra og nánara samband við hann. Frá- sagnir fyrrverandi félaga eru á þá vegu að eitt af því sem meðlim- ir kærleikssafnaðarins þurfa að gera til að vera nær guði sínum er að játa ýmsar syndir sínar, til að mynda sjálfsfróun og kynlífs- drauma, fyrir öðrum félögum. Það er gert í svokölluðum ljósahóp- um þar sem félagar eru hvattir til að segja sem ítarlegast frá synd- um sínum. Ella geti þeir ekki orðið hreinir fyrir guði. Opinskáar frásagnir CTF Reykjavík er hluti af alþjóð- legri kirkju, CTF World, og er kirkj- an ein þeirra fyrstu sem stofnaðar eru í heiminum á eftir CTF Raleigh í Bandaríkjunum og samhliða CTF London í Englandi og CTF Oslo í Noregi. Ef marka má frásagn- ir fyrrverandi meðlima CTF leið þeim lengi illa eftir að hafa sagt frá í ljósahópunum svokölluðu. Þeim fannst of nærri gengið persónu- legu svæði einstaklingsins. „Ljósahóparnir eru staðreynd. Fólk þarf þarna að ræða opinskátt um fantasíur sínar og segja frá því hversu oft það fróar sér í viku, til dæmis. Hugsunin er sú að þú getir ekki komist út úr myrkrinu nema játa allar syndir þínar og þannig get- ur maður átt séns á hreinu líferni. Að fólk þurfi að opinbera einka- athafnir fyrir framan hóp af fólki er fáránlegt. Vinum mínum hefur þótt þetta ömurlegt og mér finnst þetta skammarlegt,“ segir fyrrverandi meðlimur í sam- tali við DV. Líst illa á Gunnar Þor- steinsson, for- stöðumaður trú- félagsins Krossins, bendir á að margir hafi gagnrýnt CTF í gegnum tíðina. Hann segist varla trúa því að ljósa- hóparnir séu stað- reynd enda hafi slík hreinsun ekkert með trúarbrögð að gera. „Út af fyrir sig getur þessi söfnuður verið af hinu góða og passað inn í flór- una hérlend- is en mér líst illa á þegar söfnuðir eru und- ir erlendu valdi, eins og þessi söfnuður er. Í mín- um bók- um finnst mér það ekki í lagi. Móður- söfnuðurinn í Toronto hef- ur verið um- deildur,“ segir Gunnar. „Slíkir hópar ættu ekki að heita ljósahópar heldur myrkrahópar. Samkvæmt lýsingum eru ljósahóparnir alveg út í hött og ég vona að þetta sé ein- hver misskilningur. Í þessum söfn- uði leynast einstaklingar sem eru ekki í jafnvægi. Að menn þurfi að ræða í hópi annarra sín kynlífs- mál er bara ekki samkvæmt þeirri ritningu sem ég boða. Þetta kemur mér mjög á óvart og að bera upp kynlífssmáatriði hefur ekkert með trú að gera.“ Einkamál Bjarni Jónsson, vara- formaður Siðmennt- ar, er sammála því að kynlífsfrásagnir eigi ekki heima í kirkjustarfi. Hann tekur það fram að CTF kirkjuna þekki hann ekki sérstaklega. „Eru kynlíf og sjálfs- fróun orðin synd? Fyrir mér hljóm- ar þessi kirkja eins og hvert ann- að költ og sum þeirra hafa snúist meira um kynlíf en önnur. Án þess að hafa kynnt mér þetta sérstak- lega set ég þetta undir þann hatt að félagarnir séu neyddir til þess- ara frásagna og mér líst mjög illa á það. Með þessu er verið að ganga mjög nærri persónulegum málum einstaklingsins,“ segir Bjarni. „Ég sé það ekki að hægt sé að komast nær nokkrum, hvort sem það er guð eða einhver annar, með því að opinbera kynlíf sitt. Í þessu tilviki gæti ég trúað því að sterkir leiðtogar séu að nota sér veiklyndi meðlima og þetta minnir mig dá- lítið á byrjunina hjá Byrginu á sín- um tíma. Ég vara við þessari þró- un.“ Á vafasömum grunni? Einn af forsprökkum og predikur- um CTF á Íslandi er Baldur Freyr Einarsson, stofnandi Kærleik- ans. Baldur Freyr hefur predikað á sjónvarpsstöðinni Omega og er einna þekktastur fyrir að standa fyrir Praypride, bænagöngu gegn samkynhneigð, árið 2007. Fimm árum áður var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir þrjár sér- lega hrottafengnar og að mestu til- efnislausar líkamsárásir. Afleiðing einnar líkamsárásarinnar var sú að maður sem hann réðst á fyrir utan skemmtistaðinn Spotlight, sem þekktur var fyrir samkynhneigða gesti, lést af áverkunum. Baldur Freyr hefur lýst því KYNLÍF TENGT TRÚ Fyrrverandi meðlimir Kærleikans, sem nú hefur runnið inn í söfnuðinn Catch the Fire, CTF, segja í samtölum við DV að þar hafi þeir verið hvattir til að segja frá kynlífsupplifunum og sjálfsfróun í svokölluðum ljósahóp- um. Gunnar Þorsteinsson hjá Krossinum trúir því ekki að það sé rétt enda hafi slíkt ekkert með trú að gera. n Móðurkirkja Catch the Fire er í Toronto, Kanada, og heitir Toronto Airport Christian Fellowship. Á internetinu er fjallað nokkuð um söfnuðinn og þar er meðal annars að finna frásagnir af því að predikarar hans fullyrða að á samkomum rigni himnesku gulli yfir meðlimi. Þannig geti þeir til dæmis fengið gulltennur og einn af forsprökkum safnaðarins í Kanada hélt því fram í sjónvarpi að tennur hans hefðu breyst í gull á sam- komu. Nokkru síðar uppljóstraði tannlæknir forsprakkans hins vegar að hann hefði sett gulltennurnar í hann nokkrum árum áður. Forsprakkinn viðurkenndi síðar að svo hefði verið og sagðist einfaldlega hafa gleymt því að tennurnar væru tilkomnar með þessum hætti. Laug til um gulltennur TrausTi hafsTEinssOn blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Getur ekki verið Gunnar í Krossinum segist ekki vilja trúa því að ljósahóparnir séu staðreynd. CTf World CTF á Íslandi tilheyrir alþjóðlegum söfnuði með útibú í Toronto, Osló og London. hvernig hann frelsaðist meðan á refsivistinni stóð og að lokinni af- plánun gekk hann í Krossinn. Ekki var Adam lengi í paradís því síð- ar var hann tekinn í húsnæði sínu í Ármúla fyrir ábatasama vænd- isstarfsemi og fíkniefnasölu, líkt og kemur fram í einlægu viðtali við Baldur í Vonarljósi, tímariti á vegum Omega. Í þessu sama hús- næði stofnaði Baldur Freyr trúfé- lagið Kærleikann sumarið 2007 en í haust rann það undir CTF-kirkj- una þar sem hann er einn skráðra predikara safnaðarins. Þegar DV leitaði eftir viðbrögð- um frá CTF á Íslandi við vinnslu fréttarinnar vísaði Baldur yfir á Guðbjart Guðbjartsson forstöðu- mann. Guðbjartur vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leit- að. Eitthvert költ Bjarni segir CTF líta út fyrir að vera költ sem sum hver leggi of mikla áherslu á kynlífshreinsanir. „Þessi skrifstofa hefur aldrei haft samband við mig, engir lögfræðing- ar hafa haft samband við mig út af þessu og ef ég á að segja alveg eins og er dettur mér ekki í hug neitt mál sem þetta gæti snúist um,“ segir Ár- mann Þorvaldsson, fyrrverandi for- stjóri Singer & Friedlander, dótturfé- lags Kaupþings í London. Breskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að efnahagsbrotadeild lögregl- unnar, SFO (Serious Fraud Office), muni á næstu dögum tilkynna um opinbera lögreglurannsókn á starf- semi íslensku bankanna í Bretlandi. Fram kemur að við upplýsinga- öflun hafi lögreglan notið aðstoðar sérstaks saksóknara á Íslandi og Evu Joly. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, staðfestir að embættið hafi lagt efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar lið. „Það byrjuðu fund- ir í september og hafa verið bæði á Íslandi og í London í haust,“ seg- ir Ólafur Þór. Hann segist ekki geta sagt hvers kyns gögn eða upplýsing- ar embættið hafi lagt Bretunum til og bendir á að formleg rannsókn sé ekki hafin. Fyrr sé erfitt að tjá sig um málið. Ármann segir að breska efnahags- brotadeildin hafi iðulega lekið mál- um, sem hún vinni að, í fjölmiðla. „Þeir hafa stundum nefnt nöfn á einhverjum sem þeir hafa verið að skoða. Það hafa ekki verið mál sem tengjast Singer & Friedlander held- ur frekar móðurfélaginu. Ég skil ekki hvað þeir ættu að vera að rannsaka. Ég er alveg ren,“ segir hann. Hann segist ekki vita til þess að neinn stjórnarmeðlima hafi ráðið sér lög- fræðinga vegna málsins en hon- um skilst þó að einhverjir hafi beð- ið lögfræðinga um að spyrjast fyrir um hverju SFO sé að leita að. Við því hafi engin svör fengist. baldur@dv.is Ármann Þorvaldsson segist ekki vita um rannsókn í Bretlandi: „Ég er alveg ren“ Kemur af fjöllum Ármann segist ekki hafa hugmynd um viðfang rannsóknar bresku efnahagsbrotadeildarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.