Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Blaðsíða 12
Hólsfjallahangikjöt Fjallalambs og
Húsavíkurhangikjötið deila fyrsta
sætinu í árlegri bragðkönnun DV á
hangikjöti. Kjötið frá þessum aðilum
fékk nærri 4 af 5 mögulegum stjörn-
um. Með sanni má segja að risarnir
takist hér á því Húsavíkurhangikjötið
vann í fyrra en Hólsfjallahangikjötið
í hitteðfyrra.
Útvaldir dómarar
Fimm matgæðingar skipuðu dóm-
nefndina að þessu sinni. Það voru
matreiðslumeistarinn Sigurður Hall,
landsliðskokkurinn og eigandi Fisk-
markaðarins Hrefna Rósa Jóhannes-
dóttir Sætran, Úlfar Finnbjörnsson,
matreiðslumeistari á Gestgjafanum,
Sólveig Baldursdóttir, ritstjóri Gest-
gjafans, og Örn Árnason, skemmti-
kraftur og matgæðingur.
Bragðkönnunin fór þannig fram
að DV fór í verslanir á höfuðborgar-
svæðinu og keypti úrbeinuð hangi-
læri af öllum sortum, tíu tegundir
alls. Kjötið var allt eldað á sama hátt,
á sama tíma og jafn lengi. Kjötið frá
Hagkaupi kom í sérstökum suðupoka
og var því soðið í honum. Þar sem
hangilærin voru númeruð fyrir suðu
var dómnefndinni ekki kunnugt um
hvaða kjötbiti var hvaðan. Kjötið var
borið fram kalt en nefndarmeðlimir
höfðu Malt og Appelsín við höndina
til að væta kverkarnar. Dómnefnd-
inni var gert að gefa hverju kjöti um-
sögn auk stjarna, að hámarki fimm.
Vilja ekki sprautusöltun
Í spjalli eftir smökkunina kom fram að
margt hangilærið væri ýmist of salt-
að eða ekki nógu salt. Svolítið vant-
aði upp á bragðið af kjötinu sjálfu.
Siggi Hall sagði að sem betur fer
væri meðferðin á kjötinu enn nokk-
uð vönduð en það væri þó að fjar-
lægjast uppruna sinn. „Þetta er oft á
tíðum ekki hangikjöt heldur reykt og
saltað kjöt. Ég vara við því að það sé
meðhöndlað eins og svínahryggirn-
ir; sprautaðir og fylltir af gerviefnum.
Þá eyðileggst þetta algjörlega,“ sagði
hann. Dómnefndin var enn fremur
á því að neytendur væru tilbúnir að
borga tvö til þrjú hundruð krónum
meira fyrir góða vöru sem væri laus
við sprautusöltun og gerviefni. Heilt
yfir var dómnefndin nokkuð sátt við
hangikjötið í ár.
Rýrnaði mest frá Gallerý kjöti
DV bryddaði upp á þeirri nýbreytni
í ár að mæla rýrnun á kjötinu. Það
var gert þannig að kjötið var vigtað
fyrir og eftir suðu. Um leið og suðu
var lokið var það tekið upp úr pott-
inum og sett á vog. Rýrnunin reynd-
ist nokkuð misjöfn, allt frá 4,67 pró-
sentum til 14,47 prósenta. Að jafnaði
rýrnaði kjötið um 8,36 prósent.
Hangikjötið frá Gallerý kjöti rýrnaði
mest við suðu, um 14,47 prósent, en
Sambandshangikjötið minnst, eða
um tæplega 5 prósent.
Verðið á hangikjötinu er æði mis-
jafnt. Ódýrasta kjötið fæst í Bónus,
Fjallahangikjöt, og kostar 1.998 krón-
ur kílóið með 10 prósenta afslætti, en
öll verð sem hér má finna eru með
afslætti, þar sem hann var veittur.
Það kjöt hafnaði í þriðja sæti í könn-
uninni og rýrnaði einna minnst af
þeim öllum. Það má því segja að fólk
fái mest fyrir peninginn ef það kaup-
ir Fjallahangikjöt. Í Gallerý kjöti var
kílóverðið áberandi hæst, eða 3.990
krónur. Algengast er að kílóverðið á
hangilærinu sé um 3.000 krónur.
Gjafir sem þú
Getur treyst
Það getur verið vandasamt verk
að finna jólagjafir sem standast
allar þær kröfur sem nútímaneyt-
endur gera. Neytendasamtökin
hafa lagt lóð sín á vogaskálirn-
ar þegar kemur að hugmyndum
um jólagjafir. Samtökin hafa sett
saman lista yfir gjafir sem stand-
ast ítrustu kröfur um gæði.
Listinn samanstendur af vörum
sem flestar hafa borið af í neyt-
endakönnunum samtakanna. Þar
má meðal annars finna mann-
brodda, íslenskan lopa, Adidas-
hlaupaskó og Nivea-hrukkukrem.
Þessar gjafir ættu engan að svíkja
en nánar má lesa um gjafirnar á
ns.is.
Dekkjaverk-
stæðin fá hrós
Neytendastofa er ánægð með
viðbrögð dekkjaverkstæða eft-
ir að stofnunin sendi nokkrum
þeirra áminningu vegna skorts á
verðmerkingum. Athugun Neyt-
endastofu í október leiddi í ljós
að verðskrá yfir helstu þjónustu-
liði væri ekki sýnileg. Fram kem-
ur á vef þeirra að í einhverjum til-
vikum hafi starfsmenn hreinlega
ekki vitað af reglum um verð-
merkingar. Öll 18 versktæðin sem
fengu áminningu frá Neytenda-
stofu höfðu bætt úr verðmerk-
ingum yfir helstu þjónustuliði
þegar önnur atugun var gerð nú í
desember. Þessir aðilar fá hrós frá
Neytendastofu, sem lýsir ánægju
sinni með viðbrögðin.
n Kona af landsbyggð-
inni brá sér í bæjarferð
og fór á Pizza Hut í
Smáralind. Þar pantaði
hún sér 15 tommu
pizzu með þremur
tegundum áleggs og
einn kaffibolla. Henni brá heldur
betur í brún þegar hún kom að
kassanum. Herlegheitin kostuðu
4.980 krónur. Hver áleggstegund
reynd-
ist kosta
500 krónur að
hennar sögn.
n Viðskiptavinur Bílaáttunnar fór með
bílinn sinn í dekkjaskipti og smurningu
og fékk góða þjónustu. „Þeir
tékkuðu á ýmsu sem var að
bílnum mér að kostnaðarlausu
og svo er líka frí olíusía með
hverri smurningu,“ sagði
viðskiptavinurinn og bætti því
við að mennirnir sem
þarna ynnu væru
mjög vingjarnlegir.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 186,2 kr. verð á lítra 182,9 kr.
skeifunni verð á lítra 186,4 kr. verð á lítra 181,3 kr.
algengt verð verð á lítra 186,2 kr. verð á lítra 194,8 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 181,5 kr. verð á lítra 178,2 kr.
fjarðarkaupum verð á lítra 184,6 kr. verð á lítra 181,3 kr.
algengt verð verð á lítra 186,2 kr. verð á lítra 182,9 kr.
UmSjóN: BALDUR GUÐmUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
12 mánuDaGur 14. desember 2009 neytenDur
Hólsfjallahangikjötið frá Fjallalambi og
Húsavíkurhangikjötið deila efsta sætinu í
árlegri bragðkönnun DV. Ódýrasta kjötið,
Fjallahangikjöt úr Bónus, hafnaði í þriðja
sæti. Hangikjötið frá Gallerý kjöti rýrnaði
mest en reyndist engu að síður langdýrast.
Nærri því helmingsmunur er á dýrasta og
ódýrasta hangikjötinu.
Besta kjötið úr Þingeyjarsýslum