Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Qupperneq 16
16 mánudagur 14. desember 2009 fréttir
Leila de Lima, yfirmaður mann-
réttindanefndar Filippseyja, gaf um
helgina í skyn að einkaherinn, sem
sakaður hefur verið um fjöldamorðin
sem framin voru á almennum borg-
urum í síðasta mánuði, hafi myrt að
minnsta kosti tvö hundruð manns að
auki á eynni Mindanao.
Leila de Lima sagði að vitni, þeirra
á meðal fimm lögreglumenn, hefðu
lýst fórnarlömbum sem höfðu verið
grafin lifandi eða drepin með keðju-
sögum. Vitnin gáfu sig fram í kjölfar
handtöku meðlima Ampatuan-fjöl-
skyldunnar sem hafa verið ákærð-
ir vegna morðanna á fimmtíu og sjö
borgurum í síðasta mánuði og upp-
reisnartilburða gegn stjórninni.
Rannsakað í skjóli hersins
Leila de Lima sagði að tilvist einka-
hers Andal Ampatuan hefði verið á
allra vitorði, og það hefði verið um-
borið, en að „ár umburðarlyndis og
vanrækslu væru liðin“. Hún sagði
að það hefði verið of hættulegt fyr-
ir rannsóknaraðila mannréttinda-
nefndarinnar að sannreyna frásagn-
ir vitna en nú yrði það mögulegt með
fulltingi hersins. Að sögn de Lima
stóðu vopnaðir menn tryggir An-
dal Ampatuan eldri að baki margra
morðanna, en fjölskylda Andals
drottnar yfir stórnmálum í Maguind-
anao-héraði.
„Við erum að tala um að minnsta
kosti 200. Þetta eru fórnarlömb sömu
ættarinnar [Ampatuan] og einka-
hersins. Ef tækifæri gefst gefa sig
fram vitni sem geta vísað nákvæm-
lega á fjöldagrafirnar,“ sagði Leila de
Lima.
Andal Ampatuan yngri
Jesus Verzosa lögreglustjóri gaf í
skyn um helgina að Andal Amp-
atuan yngri hefði sjálfur skotið ein-
hver fórnarlömb fjöldamorðanna í
síðasta mánuði og sennilega skotið
þau í munninn eða bringuna. Þrjá-
tíu og tveir hinna myrtu voru blaða-
menn og tuttugu og sex voru kon-
ur. Lík sumra höfðu verið afskræmd
með eggvopnum og að minnsta kosti
fimm konum hafði verið nauðgað.
Innan viku frá fjöldamorðun-
um höfðu yfirvöld handtekið Andal
Ampatuan yngri, og hefur hann verið
ákærður fyrir 25 morð. Fljótlega voru
faðir hans, fjórir bræður og nítján að
auki einnig úrskurðaðir í varðhald.
Yfirvöld hafa borið kennsl á
161 sem grunaður er um aðild að
fjöldamorðunum, þeirra á með-
al varaliðshermenn, ættingja Amp-
atuan-fjölskyldunnar og meðlimi
héraðslögreglunnar og deilda inn-
an hersins. Flestir þeirra fara enn
frjálsu höfði sem og um 2.000 vopn-
aðir varaliðshermenn sem flúið hafa
upp í fjöllin.
...hefðu lýst fórnar-
lömbum sem höfðu
verið grafin lifandi
eða drepin með keðju-
sögum.
Kolbeinn þoRsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Ástralir fá
dýrling
Allt útlit er fyrir að Ástralir eign-
ist sinn fyrsta dýrling á næstu
dögum en þarlendir miðlar hafa
skýrt frá því að Benedikt XVI
páfi hyggist tilkynna að nunnan
móðir María verði tekin í dýrl-
ingatölu um leið og sérfræðinga-
teymi Páfagarðs staðfestir annað
kraftaverkið hennar.
Nunnan er höfð í hávegum í
á meðal kaþólikka í Ástralíu og
úrskurðaði Jóhannes Páll II páfi
því yfir árið 1995 að hún væri
komin í samfélag blessaðra eft-
ir að búið var að staðfesta eitt
kraftaverka hennar. En móðir
María þurfti tvö kraftaverk til að
komast í dýrlinga tölu.
Sigurvegarinn
samkynhneigður
Borgin Houston í Bandaríkjun-
um er orðin stærsta borg lands-
ins sem státar af samkynhneigð-
um borgarstjóra. Annise Parker
fékk 53,6 prósent atkvæða og
hafði þannig sigur gegn móth-
erjanum Gene Locke.
„Kjósendur í Houston hafa
opnað dyrnar að sögunni,“ sagði
Annise Parker við stuiðnings-
menn sína þegar úrslit lágu fyrir.
Houston er fjórða stærsta
borg Bandaríkjanna með 2,2
milljónir íbúa, en smærri borgir
hafa áður staðtað af samkyn-
hneigðum borgarstjórum, þar
á meðal Portland og Rhode Is-
land.
Evrópuráðið mælist til þess að hljóð-
styrkstakmarkanir verði settar á
mp3-spilara til að vernda notend-
ur fyrir heyrnarskaða. Ráðið vill að
allir spilarar sem seldir eru innan
Evrópusambandsins, þeirra á meða
iPod-spilarar, verði háðir sama hljóð-
styrkshámarki.
Tilmælin koma í kjölfar skýrslu
frá síðasta ári þar sem varað var við
því að allt að tíu milljónir íbúa innan
Evrópusambandsins horfðust í augu
við varanlegan heyrnarskaða vegna
langtíma hlustunar á háværa tónlist.
Sérfræðingar vilja að hámark
hljóðstyrks verði miðað við 85 desi-
bel, en notendum yrði kleift að kom-
ast framhjá þeirri takmörkun upp að
100 desibelum, en ekki hærra en það.
Í janúar hefst tveggja mánaða
vinna deilda sem snúa að stöðlum
innan Evrópusambandsins vegna til-
lögunnar og gert er ráð fyrir að end-
anleg samþykkt liggi fyrir á vormán-
uðum.
Hljóðstyrkur sumra mp3-spilarar
sem kannaðir hafa verið hefur náð
120 desibelum, sem jafnast á við há-
vaðann sem fylgir flugtaki þotu, og
þrátt fyrir skyldu framleiðenda um
að vara við skaðsemi hávaða fylgdi
engin slík með spilurunum.
Nýtísku mp3-spilarar eru álitnir
meiri skaðvaldar með tilliti til heyrn-
ar en heimilishljómtæki eða gam-
aldags kasettutæki og plötuspilarar
því nýir spilara geta geymt margra
klukkustunda magn tónlistar og al-
gengt að fólk hlusti á mp3-spilara
á háum styrk undir stýri til að yfir-
gnæfa utanaðkomandi hljóð.
kolbeinn@dv.is
Evrópuráðið hefur áhyggjur af heyrnarskaða vegna mp3-spilara:
Vill hljóðstyrkstakmarkanir
Hlustað undir stýri
Evrópuráðið vill takamarka
hljóðstyrk mp3-spilara.
Mynd PHotos.coM
98 ára ákærð
fyrir morð
Deilur á Brandon Woods, dval-
arheimili fyrir aldraða í Dart-
mouth í Bandaríkjunum, end-
uðu með morði. Lára Lundquist,
98 ára, hefur verið ákærð fyrir
morð á Elizabeth Barrow, 100
ára, en sú síðarnefnda fannst
látin í september með plastpoka
lauslega hertan um höfuð henn-
ar. Krufning leiddi í ljós að hún
hafði verið kyrkt.
Morðið var afleiðing deilna
Láru og Elizabeth vegna borðs
sem sú fyrrnefnda hafði sett
við fótagafl rúms hinnar síðar-
nefndu. Elizabeth hafði kvartað
yfir því að borðið væri fyrir þegar
hún færi á baðherbergið og þeg-
ar starfsmaður heimilisins færði
það sló Lára til hans og tuldraði:
„hún gæti allt eins fengið allt
herbergið.“ Verjandi Láru heldur
fram sakleysi hennar.
Fjöldamorðin á Filippseyjum voru jafnvel umsvifameiri en talið var í fyrstu. Mannrétt-
indanefnd landsins telur að um tvö hundruð manns séu grafin í fjöldagröfum á Mind-
anao-eyju og byggir grun sinn á frásögnum vitna, þeirra á meðal fimm lögreglumanna.
Fleiri Fórnarlömb
Fjöldamorðanna
yfirmaður mannréttindanefndar Filippseyja Leila de Lima hefur vitni að fleiri
fjöldagröfum. Mynd AFP
leitað að fleiri líkum Fórnarlömb
fjöldamorðanna hugsanlega fleiri
en fyrst var talið. Mynd AFP