Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Qupperneq 18
Svarthöfði man þá tíð þegar ekkert var betra en að vera Ís-lendingur. Þetta var hamingju-samasta, fallegasta, sterkasta og ríkasta þjóð í heimi. En nú eru meira að segja Grikkir farnir að lýsa því yfir að þeir séu engir Íslendingar. Allt sem við gerðum gekk upp. Eiður Smári spilaði með Barcelona, Íþróttaálfurinn var elskaður af heimsbyggð- inni og deCODE veitti von um eilíft líf heimsbúa og ríkidæmi Íslendinga. Við náðum meira að segja að selja genin okkar. Norðurljósin voru næst! Við vorum sölumenn dauðans. Svo varð allt íslenskt eins og ís-inn, sem bráðnar við að koma til útlanda. DeCODE fór á hausinn og genin okkar urðu aftur verðlaus. Eiður Smári var settur á bekkinn í smáborginni Mónakó. Og sjálfur Íþróttaálfurinn hrapaði á haus- inn úr loftskipinu sínu, eftir að hafa fengið sent gluggaumslag með þriggja milljarða króna rukkun. Vissulega féllu bankarnir, en Kári Stefánsson og Íþróttaálf-urinn komust áfram á eigin verðleikum. Varla hefði Kári annars fengið 12 milljónir í mánað- arlaun, þrátt fyrir stórfellt tap í meira en áratug samfellt. Ekki hefði Davíð Oddsson látið samþykkja ríkisábyrgð á hugmyndina hans nema hún hefði verið skot- held. Íþróttaálfur- inn var hin full- komna formúla. Magnús Scheving færði börnum heilbrigðan boð- skap og mæður um allan heim litu hann hýru auga. Hoppandi álfar í ljósbláum spandex-göll- um eru reyndar ekki ímynd karl- mennskunnar, en þar sem þessi var íslenskur var hann bæði myndarlegri og sterkari en aðrir álfar. Það er þó ekki nóg þegar loftskipið manns lendir í Hindenburg- slysi. Nú er öld stór-brotinna afreka Íslendinga liðin undir lok. Við erum aftur orðin eins og sérstæða rollu- kynið við Tálknafjörð, sem þykir helst merki- legt fyrir að geta lifað villt uppi í fjalli við verstu aðstæður. Við eigum þó fiskinn og orkuna, segja ráðherrarnir. Hvað er betra en gufu- strókar úr iðrum jaðrar og brennisteinsfnyk- ur í bland við fiskifýlu? Vissulega hljómar þetta eins og sjálft helvíti, en eins og ráðherr- arnir segja eigum við svo sveigjanlegan mannauð. Enginn mannauður hefur betri að- lögunarhæfni, enda tekur enginn mann- auður í heim- inum inn meiri þunglyndislyf en Íslending- ar. Ef lífið fer að snúast um jafnfáfengilegan hlut og saltfisk svara Íslendingar um hæl: Sjúddirarí rei! Svarthöfði er kominn á fremsta hlunn með að taka inn þung-lyndislyf til að vera í takti við þjóðina. Þannig gæti hon- um liðið eins og hann lifði í Latabæ. Líf hans myndi snúast um að fara í ræktina. Einu áhyggjurnar yrðu að Glanni glæpur nái að troða í hann nammi. Þjóðin er nefnilega íþrótta- álfur inn við beinið. Útlitsdýrkunin er á háu stigi, okkur finnst stórmerki- legt að vera sterk, við bjuggum okkur heimili í skýjaborg og fáum alltaf sjokk þegar við erum beðin um að borga af lánum. Íþróttaálfur Í klandri Spurningin „Það hefur alla vega enginn staðið upp á meðan ég hef verið að skemmta.“ Skemmtikrafturinn Ari Eldjárn er meðlimur grínhópsins Mið-Íslands sem mun troða upp ásamt Hugleiki Dagssyni og Þorsteini Guðmundssyni á uppistandskvöldi á Batteríinu á föstudaginn. Með Ara í Mið-Íslandi eru Dóri DNA, Jóhann Alfreð Kristinsson, Bergur Ebbi og Árni Vilhjálmsson. Síðast troðfylltu strákarnir Batteríið og búist er við mikilli stemningu á föstudaginn. Er oft mikið uppistand á kvöldunum ykkar? „Þetta voru mjög vinsam- leg og kurteis tilmæli um að Bubbi ætti að halda kjafti.“ n Bubbi Morthens um tölvupóst sem hann fékk frá Sigrúnu Stefánsdóttur, dagskrárstjóra Rásar 2, um að hann ætti að halda sig við það að fjalla um tónlist. -DV. „Er þetta skjaldborg heimilanna?“ n Sigurbjörn Guðmundsson, skipstjóri línubátsins Sturlu, sem reyndi að fá eitt tonn utan kvóta frá Fiskistofu til þess að veiða, flaka og gefa fjölskylduhjálp Íslands. Leyfið fékkst ekki. -DV. „Ég hef aldrei talið að „I told you so“-afstaða hjálpi til við að leysa vandann.“ n Yngvi Örn Kristinnsson, fyrrverandi starfsmaður hjá Seðlabankanum og Landsbankanum, sem reyndi ítrekað frá árinu 2003 að vara við því sem var að gerast. -DV. „... vegna bilunar í tæknibúnaði tókst ekki að skreyta hús Karls bróður hans og Bjarna Ben viðskiptafé- laga þeirra.“ n Skemmdarvargurinn sem málaði hús Steingríms Wernerssonar rautt. -Visir.is „Hann fær að valsa hér um íbúðina og er aðallega í því að fela sig.“ n Kristinn Björgúlfsson handknattleiksmaður um gæludýrið sitt, broddgöltinn Hr. 109. Broddgölturinn er kominn með Facebook-síðu sem Kristinn segir hann hafa stofnað sjálfur. - Fréttablaðið. Fyrirskipun formanns Leiðari Það hefur verið lenska á Íslandi að ráðamenn stjórni einstökum fjöl-miðlum að einhverju marki. Stjórn-málaleiðtogar fortíðar hafa kippt í spotta og haft áhrif á umfjöllun miðla í eig- in þágu. Dæmi eru um að sjónvarpsviðtöl hafi verið tekin við æðstu ráðamenn sem hafa misst stjórn á sér. Viðbrögð yfirmanna fréttastofu hafa þá verið þau að birta ekki viðtölin. Þannig hefur verið gengið erinda ráðamannanna á kostnað þess sem almenn- ingur hefur átt rétt á að vita. Ótal dæmi eru um hótanir í garð fjölmiðla. Stundum hafa miðlarnir látið undan utanaðkomandi hót- unum og stöku sinnum þurft að gjalda fyr- ir það. DV hefur farið um þau svipugöng og beðist afsökunar. Sjaldnast eru þó hótanirn- ar opinberar. Það eru líka dæmi um að fjöl- miðlar hafi staðið fast á sínu gegn hótunum og ofríki. Nærtækt er að nefna í því samhengi tímaritið Ísafold sem mátti ekki fjalla um heimsókn bæjarstjóra á súlustað. Tímarit- ið var beitt því ofbeldi að eigandi verslunar- keðju bannaði það í verslunum sínum. Nið- urstaðan varð sú að útgáfan þoldi ekki þá 25 prósenta tekjuskerðingu sem blasti við. Fjölmiðlinum var lokað. Daglega eru stjórn- endur fjölmiðla í samskiptum við þá sem um er fjallað. Stundum er hótað lögsóknum og stundum að koma höggi á útgáfuna með öðrum og siðlausari hætti. Mönnum er tíðrætt um eigendavald á fjöl- miðlum. Til er sá hópur manna sem reynir að hafa áhrif á eigendur til að breyta umfjöllun fjölmiðla. Og þannig hefur það verið um ára- bil. Í gær var opinberað að Bjarni Benedikts- son, formaður næststærsta stjórnmálaflokks Íslands, reyndi að fá Hrein Loftsson, aðal- eiganda DV, til að stöðva umfjöllun blaðsins um sín mál. Sú framganga er formanninum til skammar. Hann ætti að vita að fjölmiðl- un þarf að vera á forsendum ritstjórna. Eig- endur marka grunnstefnu fjölmiðla og ráða til þess ritstjóra að annast daglegan rekstur. Það getur ekki verið á valdi eigenda að stýra einstökum fréttum eða því hverjir eru til um- fjöllunar hverju sinni. Skilaboð aðaleiganda DV til formanns Sjálfstæðisflokksins voru skýr. Það er málefni ritstjórnar DV hvað er til umfjöllunar og hvernig. Þegar og ef allir eigendur eða utanaðkomandi áhrifavaldar fjölmiðla skilja og virða þær reglur verður fjölmiðlum betur treystandi. Annars er illa komið fyrir því sem kallað er fjórða valdið. rEynir traustason ritstjóri skrifar. Eigandi fer með það vald að ráða og reka ritstjóra. bókStafLega 18 mánudAgur 14. desember 2009 umræðA Sandkorn n Dans Morgunblaðsins í kring- um kjarna hrunsins er nú í al- gleymingi. Það álit ríkisendur- skoðanda að Davíð Oddsson og bankastjórn hans í Seðlabank- anum hefðu krossbrugð- ist með glórulausum lánveiting- um varð greinilega mikill höf- uðverkur fyrir ritstjórn Moggans sem náði að klóra sig fram úr frétt um málið með óskiljanlegum vinkli. Ekki virðist hafa hvarflað að blaðamönnum að kíkja inn í búrið til ritstjórans og krefja hann viðbragða. n Hannes H. Gissurarson segir í Pressugrein að Davíð Oddsson hafi reynt að halda auðjöfrum í skefjum á árunum 2003-2004. Hann segir Davíð hafa beðið ósigur um fjölmiðlafrumvarp- ið 2004 og harmar „furðulega vægan Baugsdóm“ í Hæstarétti 2006. Grein Hannes- ar vek- ur spurn- inguna um meint afskipti Davíðs af Baugsmál- inu, sem einmitt komst í hámæli fyrir kosningar 2003. Baugsmálið var þá eftir allt saman aðeins liður í aðgerðum Davíðs til að halda auðmönnum í skefjum. Þar er kannski komin skýring- in á „furðulega vægum“ dómi þar sem dómararnir hafa ekki látið stjórnast af persónulegri óvild Davíðs Oddssonar heldur lögunum. n Nokkur óvissa er um meiri- hluta ríkisstjórnarinnar þegar kemur að lokaafgreiðslu Icesa- ve. Dálítill lífsneisti felst þó í því að Þráinn Bertelsson utan- flokka komi til bjargar og greiði aftur atkvæði með Icesave. Römm taug er á milli þeirra Þráins og Össurar Skarphéð- inssonar, frænda hans og utanrík- isráðherra. Sumir telja að sá spotti dugi á end- anum til að draga Þráin inn í Sam- fylkinguna. n Grímur Gíslason, formað- ur kjördæmisráðs Sjálfstæðis- flokksins, þykir vera hreinskipt- innn. Grímur á sæti í miðstjórn flokksins. Á fundi þar fyrir helgi krafði hann Bjarna Benedikts- son formann skýringa á aðild hans að lúxusturni í Makaó sem DV hefur fjallað um. Brá mönn- um nokkuð við spurninguna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Grímur spyr hvasst. Áður hafði hann sett fram gagnrýni á Árna Mathiesen, fyrrverandi ráð- herra, og Árna Johnsen, þing- mann kjördæmisins. LyNGHÁLS 5, 110 REyKJAVÍK Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: Hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: Sverrir Arngrímsson ritStjórar: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is dv á netinu: DV.iS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.