Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Page 24
24 mánudagur 14. desember 2009 ArsenAl vAnn stórslAginn Liverpool þurfti að sæta enn einu tapinu á tímabilinu þegar liðið lá heima gegn Arsenal, 1-2, í stórleik helg- arinnar. Liverpool komst yfir með marki Dirk Kuyt á 41. mínútu en Glen Johnson skoraði sjálfsmark og jafnaði leikinn fyrir Arsenal eftir fimm mínútur í síðari hálf- leik. Það var síðan Rússinn Andrei Arshavin sem skoraði sigurmarkið á 58. mínútu leiksins. Arsenal endurheimti með sigrinum þriðja sætið í deildinni og getur náð Manchester United að stigum með sigri í leik sem það á til góða. Liverpool er aftur á móti í sjöunda sæti deildarinnar með 24 stig og hefur tapað sex leikj- um til þessa á tímabilinu. UMsJón: tóMAs ÞóR ÞóRðARson, tomas@dv.is Enska úrvalsdEildin stokE - Wigan 2-2 0-1 Emmerson Boyce (16.), 1-1 Tuncay Sanli (37.), 1-2 Maynor Figueroa (72.), 2-2 Ryan Shawcross (74.). ChElsEa - EvErton 3-3 0-1 Peter Cech (12. sm), 1-1 Didier Drogba (18.), 2-1 Nicolas Anelka (23.), 2-2 Ayegbeni Yakubu (45.+5),, 3-2 Didier Drogba (59.) 3-3 Louis Saha (63.). BurnlEy - Fulham 0-1 0-1 Bobby Zamora (50.), 1-1 Wade Elliot (60.). Bolton - man. City 3-3 1-0 Ivan Klasnic (11.), 1-1 Carlos Tevez (28.), 2-1 Gary Cahill (44.), 2-2 Micah Richards (45.), 3-2 IvanKlasnic (53.), 3-3 Carlos Tevez (77.) Rautt spjald: Bellamy, Man City (66.) Birmingham - WEst ham unitEd 1-0 1-0 Lee Bowyer (52.). tottEnham - WolvEs 0-1 0-1 Kevin Doyle (3.) hull City - BlaCkBurn 0-0 sundErland - Portsmouth 1-1 1-0 Darren Bent (23.), 1-1 Younes Kaboul (90.). man. unitEd - aston villa 0-1 0-1 Gabriel Agbonlahor (21.) livErPool - arsEnal 1-2 1-0 Dirk Kuyt (41.), 1-1 Glen Johnson (50. sm.), 1-2 Andrei Arshavin (58.) staðan Lið L U J T M St 1. Chelsea 16 12 1 3 40:13 37 2. Man. Utd 16 11 1 4 34:14 34 3. Arsenal 15 10 1 4 40:19 31 4. Aston Villa 16 8 5 3 26:14 29 5. tottenham 16 8 3 5 35:22 27 6. Man. City 15 6 8 1 29:21 26 7. Liverpool 16 7 3 6 32:22 24 8. Birmingham 16 7 3 6 16:16 24 9. Fulham 16 6 5 5 20:17 23 10. sunderland 16 6 3 7 22:22 21 11. stoke City 16 5 6 5 15:19 21 12. Blackburn 16 5 4 7 16:28 19 13. Burnley 16 5 3 8 20:34 18 14. Wigan 16 5 3 8 19:36 18 15. Everton 16 4 5 7 22:30 17 16. Hull 17 4 5 8 17:34 17 17. Wolves 16 4 4 8 15:28 16 18. West Ham 16 3 5 8 24:31 14 19. Bolton 15 3 4 8 20:32 13 20. Portsmouth 16 3 2 11 14:24 11 ChamPionshiP BarnslEy - nEWCastlE 2-2 CovEntry - PEtEroBorugh 3-2 donCastEr - Bristol 1-0 iPsWiCh - BlaCkPool 3-1 lEiCEstEr - shEFF. WEd. 3-0 PrEston - Plymouth 2-0 rEading - sCunthorPE 1-1 shEFF. utd. - C. PalaCE 2-0 sWansEa - nott. ForEst 0-1 WatFord - dErBy 0-1 staðan Lið L U J T M St 1. newcastle 21 14 4 3 35:12 46 2. WBA 20 11 5 4 41:19 38 3. Cardiff 21 11 3 7 38:22 36 4. nott. Forest 21 9 9 3 29:18 36 5. Leicester 21 9 7 5 26:23 34 6. swansea 21 8 8 5 18:18 32 7. Blackpool 21 8 7 6 33:25 31 8. sheff. Utd 21 8 7 6 32:30 31 9. Bristol City 21 7 9 5 25:24 30 10. Watford 21 8 6 7 30:33 30 11. Middlesbro 21 8 5 8 30:25 29 12. Preston 21 7 8 6 26:25 29 13. C. Palace 21 7 8 6 24:25 29 14. QPR 20 7 7 6 33:29 28 15. Doncaster 21 6 9 6 27:26 27 16. Barnsley 20 7 5 8 26:32 26 17. Derby 21 7 4 10 24:31 25 18. scunthorpe 21 6 5 10 24:38 23 19. Coventry 21 5 7 9 24:33 22 20. Ipswich 21 3 12 6 22:30 21 21. Reading 21 5 6 10 23:33 21 22. sheff. Wed. 21 4 6 11 23:35 18 23. Plymouth 20 4 3 13 16:32 15 24. Peterborough 21 2 8 11 25:36 14 EILÍFA ensKi BOltinn Birmingham vann sinn þriðja sig- ur í fjórum leikjum um helgina þegar liðið lagði West Ham, 1-0, á Upton Park í Lundúnum. Vand- ræðagemsinn, eða fyrrverandi vandræðagemsinn, Lee Bowy- er skoraði sigurmarkið. Það þætti svo sem ekki tíðindum sæta fyr- ir utan eina litla en athyglisverða staðreynd. Bowyer hefur nú skor- að sigurmarkið í þessum þremur af fjórum síðustu sigrum Birming- ham sem situr þægilega í níunda sæti úrvalsdeildarinnar. FinnUr Sig hJá BirMinghaM Lee Bowyer komst til metorða hjá Leeds þar sem hann lék frá árun- um 1996-2003. Þar gerði hann lít- ið annað en að tækla menn upp í nára og vera ásamt félaga sínum, Danny Mills, grófasti leikmaður deildarinnar. Eftr tvær viðkomur í West Ham og þrjú ár hjá Newcastle var Bowyer lánaður til Birming- ham í næstefstu deild í fyrra. Hann ákvað að kyngja stoltinu og spila deild neðar. Hann varð strax einn af lykilmönnum liðsins, hætti meira og minna öllum fíflagangi og hugsaði um að spila fótbolta. Hjá Birmingham hefur hann nú blómstrað og skorað eins og áður segir þrjú mörk í síðustu fjór- um leikjum sem öll hafa verið sig- urmörk. Hann tryggði Birming- ham sigur gegn Fulham og Wolves, bæði skiptin með glæsimörkum. Hann var ekki á markalistanum í sigri liðsins gegn Wigan um síð- ustu helgi en um þessa helgi var hann aftur ólíklegur bjargvætt- ur liðsins með eina mark leiksins gegn West Ham, sínum fyrrver- andi félögum. SLagSMáL innan og UTan vaLLar Bowyer hóf ferilinn hjá Charlton en var keyptur til Leeds árið 1996 á 2,8 milljónir punda. Hann var hluti af Leeds-liðinu sem reis upp í hæstu hæðir þar til reikningur- inn kom og liðið endaði í þriðju efstu deild. Hann var ætíð afar grófur leikmaður sem án þess að hugsa lét flakka í tæklingar, sama hversu hættulegar þær voru, og bað ekki nokkurn mann fyrir- gefningar. Ekki að hann sé alveg hættur því en það hefur svo sann- arlega minnkað. Innan vallar var það frægt hjá Newcastle í apríl 2005 þegar hann slóst við liðsfé- laga sinn, Kieron Dyer, í leik gegn Aston Villa. Var atvikið í meira lagi hlægilegt þar sem boltinn var ekki nálægt þeim félögum og þurfti þá- verandi fyrirliði Aston Villa, Gar- eth Barry, að stíja þeim í sundum við annan mann. Fyrir atvikið fengu þeir félag- arnir báðir rautt spjald, þriggja leikja bann og 30.000 punda sekt. Hún var þó stærri sektin sem Bow- yer fékk þegar hann var loks dæmd- ur fyrir slagsmál sem hann stofnaði til fyrir utan skemmtistað í Leeds. Hann og liðsfélagi hans, Jonathan Woodgate, börðu þá asískan nema en sluppu við fangelsisvist. Þeim var þó gert að greiða fórnarlamb- inu 170,000 pund í skaðabætur. Ágætis kvöldskemmtun það. áTTi að Fara TiL LiverpooL Þó endalaust sé hægt að telja til ljóta hluti um Bowyer verður það ekki tekið af honum að hann er ágætis knattspyrnumaður. Síðustu árin hjá Leeds spilaði hann sinn allra besta bolta. Hann varð mjög ósáttur þegar Leeds sektaði hann um fjögurra vikna laun fyrir dóm- inn gegn asíska nemanum og setti sjálfan sig á sölulista. Það kveikti strax á áhuga annarra liða og var hann fyrir tímabilið 2003 mjög ná- lægt því að ganga í raðir Liverpool. Gerard Houllier, þjálfari Liver- pool á þeim tíma, stöðvaði þó fé- lagaskiptin þar sem honum fannst leikmaðurinn ekki hafa það hung- ur sem þurfti til þess að spila fyr- ir Liverpool. Í staðinn gekk hann í raðir West Ham, liðsins sem hann skoraði þriðja sigurmarkið í fjórum leikjum gegn um helgina. SkorAr bArA SIgurmörk Lee Bowyer, leikmaður Birmingham, er þekktur fyrir margt annað en að skora mörk og tryggja liðum sínum sigra. Hann hefur í gegnum tíðina þótt einn allra grófasti og leiðinlegasti leikmaðurinn á Bretlandseyjum. Hann er eitthvað að róast í ellinni og sér nú um að skora sigurmörk fyrir Birmingham. leiKMAÐUrinn TÓMaS ÞÓr ÞÓrðarSon blaðamaður skrifar: tomas@dv.is gaman, gaman Lee Bowyer nýtur lífsins hjá Birmingham og skorar sigurmörk í kippum. Slagsmálin Bowyer slóst við Kieron Dyer í apríl 2005. harður Bowyer er þekktari fyrir svona hluti meira en annað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.