Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Page 30
Yfir FM-hnakkinn Ásgeir Kol- beinsson gerði heiðarlega tilraun til að skrifa handa sér stærra hlut- verk í myndinni Bjarnfreðarson sem bindur endahnút á vakta- seríurnar þrjár. Ásgeir fékk það einfalda hlutverk að heilsa Ólafi Ragnari (karakter Péturs Jóhanns Sigfússonar) en sjálfur vildi hann meira. Heimildir DV herma að Ásgeir hafi mætt með 2-3 blað- síður þéttskrifaðar af efni með hugmyndum um stærra hlutverk handa sjálfum sér í myndinni. Ragnar Bragason, leikstjóri mynd- arinnar og þáttanna, tók ekkert of vel í hugmyndir Ásgeirs og bað hann vinsamlegast bara um að heilsa manninum. Var þetta aðal- spaugið á tökustað enda fór svo að Ásgeir lét kveðjuna nægja. „Hún kemur ekki út fyrir jólin. Það var held ég búið að senda út fréttatilkynningu um þetta,“ segir Ævar Örn Jósepsson rithöfundur um bókina sem hann hefur verið að vinna að síð- asta árið. Vinnuheitið hefur verið Önnur líf, hvort sem það verður titillinn þegar hún kem- ur út eður ei, og var ætlunin að leyfa aðdáend- um Ævars að njóta þessarar nýjustu afurðar hans um þessi jól. Ævar segir ekki hafa verið ákveðið hvenær bókin komi út. „Við þurfum bara að skoða það hvernig við tæklum það dæmi. Ég klára bók- ina bara fyrst í rólegheitunum og svo ákveðum við með útgáfuna þegar nær dregur.“ Ævar er kunnur fyrir að vilja hafa atburða- rás í bókum sínum sem endurómar svolítið at- burði sem gerst hafa í þjóðfélaginu, og þá ekki síst nýorðna atburði. Þannig endurskrifaði hann hluta bókar sinnar Land tækifæranna sem kom út í fyrra eftir að fjármálakerfið ís- lenska hrundi eins og spilaborg. Bókin kom enda út nánast korteri fyrir jól. Þegar Ævar er spurður hvort hann hafi verið kominn með marga nýskeða atburði inn í Önnur líf segir hann eitthvað af slíku þar. Hann þurfti hins vegar að slíta samtalinu vegna anna áður en blaðamaður gat spurt hvort banki í bók- inni bæri til dæmis nafnið Arion eða formað- ur stjórnmálaflokks væri í meintu fasteigna- braski í Makaó. kristjanh@dv.is Vildi stærra hlutVerk Hosmany Ramos: Fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir var hér á landi fyrir tveimur vikum þar sem hún lék meðal annars í vinsælli auglýsingaherferð fyrir Íslenskar getraunir. Ekki voru þó allir á eitt sáttir við viðkomu hennar í auglýsingunum eins og DV greindi frá. Ásdís sat einnig fyrir í undirfataherferð Valencia- nærfata sem seld eru í Hagkaup- um. Á vefsvæði sínu á Press- unni birtir hún myndirnar sem meðal annars skarta eiginmanni hennar, knattspyrnumanninum Garðari Gunnlaugssyni. Þar seg- ir Ásdís að með henni á mynd- unum sé maðurinn sinn, eða frekar folinn sinn, og á þar við Garðar sem sjálfur er þaulvanur módelstörfum enda fyrrverandi herra Ísland. kallar Garðar folann 30 mánudaGur 14. desember 2009 fólkið Brasilíski lýtalæknirinn Hosmany Ramos leitar að íslenskri konu til þess að hefja sambúð með. Ramos var dæmdur í 53 ára fang- elsi í Brasilíu árið 1981 og sat inni í 27 ár. Hann flúði land í jólaleyfi í fyrra og eftir viðkomu í Kanada og Noregi var hann handtekinn við komu sína til Íslands. Hann situr nú inni í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg þar sem hann unir hag sínum vel. Hann hefur meðal annars tengst súpuþjófnum Jónasi Bjarka Gunnarssyni góðum vin- áttuböndum. Þar sem enginn framsalssamn- ingur er á milli Íslands og Brasilíu gæti Ramos verið hér á landi lengi, og það er ætlunin. Hann vill vera hér í það minnsta næstu fimm- tán árin og stunda vinnu sína sem lýtalæknir en í bréfi sem hann sendi DV segir hann lækningar köllun sína. Í sama bréfi lýsir hann því yfir að hann sé nú farinn að leita sér að konu til þess að hefja nýtt líf með. Hann segist trúa mikið á örlögin og að þau hafi leitt hann til landsins. Hann segist leita að konu til þess að kvænast til lífstíð- ar og setjast hér að með, eignast svo börn, hvort sem það er með hefðbundinni leið eða með ætt- leiðingu. Konan sem kvænist Ramos þarf þó að vera undirbúin að lifa stjörnulífi eins og hann skrifar í bréfinu: „Þetta er opið bréf til einmana sálu. Ef þessi skilaboð snerta hjarta þitt og þú ert kona sem er tilbúin til að verða strax fræg, vera alltaf í sviðsljósinu og á síðum slúðurblaðanna þá ert þú konan sem ég leita að. Ég veit hvað ég vil í lífinu og hef ekki tíma í eitthvert internet-spjall. Ég er með greindarvísitölu upp á 172 sem er sannað, reyki ekki, drekk ekki, neyti ekki eiturlyfja og trúi á guð,“ segir í bréfinu en í öðru bréfi sem hann sendi DV segist Ramos ætla að snúast til lúterskrar trúar en eins og aðr- ir Brasilíumenn er hann ramm- kaþólskur. Ramos sem á sínum tíma var stjarna í heimalandinu og djammaði meðal annars með Pelé og Mick Jagger biður þær konur sem hafa áhuga að hafa samband við sig í Hegningarhús- ið á Skólavörðustíg 9, annaðhvort með símtali eða bréfi. Lýtalæknirinn Hosmany Ramos sem dæmdur hefur verið fyrir tvö morð og situr inni í Hegningarhúsinu á Skóla- vörðustíg leitar að íslenskri konu til að hefja farsælt samband með. Hann ætlar að fara alla leið og skipta um trú og vill eignast börn. LeitaR að konu Hosmany Ramos skrifar smásögur í fangelsinu á meðan hann bíður eftir að finna konu. MyndaRLeguR Ramos ólst upp í Brasilíu og var þar stjarna og lifði VIP-lífi. Mynd ÚR einkasafni LýtaLæknirinn Leitar að konu óVíst hVenær bók æVars ke ur út NýjaSta SpeNNuSaga ÆvaRs aRnaR JósepssonaR kemur ekki út fyrir jóL:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.