Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Blaðsíða 10
Steingrímur Wernersson fór hörð-
um orðum um Karl, bróður sinn, og
Guðmund Ólason, forstjóra Mile-
stone, í yfirheyrslum hjá sérstök-
um saksóknara á síðastliðnu ári,
samkvæmt heimildum DV innan
úr stjórnkerfinu. Samkvæmt því
sem heimildir DV herma vændi
Steingrímur bróður sinn um að
hafa ítrekað farið á bak við sig
í rekstri Milestone og trygg-
ingafélagsins Sjóvár og skot-
ið fjármunum undan í gegn-
um Milestone.
Bræðurnir áttu Milestone
saman en samkvæmt því
sem Steingrímur mun hafa
sagt í yfirheyrslunum kom
hann afar lítið að stjórn Mile-
stone vegna þess að Karl leyfði
honum það ekki. Heimildir DV
herma að Steingrími hafi fund-
ist Karl ganga svo langt í stjórn-
seminni að hann hafi kallað bróður
sinn „einræðisherra“ í yfirheyrslun-
um og sagt að hann hafi kúgað sig
svo mikið að hann hafi næstum getað
sagt honum hvenær hann ætti að
fara á klósettið. Mun hann
hafa sagt að hann
hafi haft Stokk-
hólms-
heil-
kennið svokallaða í samskiptunum
við bróður sinn en þetta er mótsagna-
kennt hugarástand úr sálfræði þar
sem fórnarlamb, til dæmis í mann-
ráni, byrjar að samsama sig með kval-
ara sínum og taka málstað hans.
Vildi greiða Ingunni undirverð
Af þessum sökum, meðal annars,
hafa bræðurnir varla talast við síð-
an í febrúar 2009, samkvæmt heim-
ildum DV. Ein af ástæðunum fyrir því
af hverju grunnt er á því góða á milli
bræðranna er sú að Karl vildi kaupa
Ingunni, systur þeirra, út úr Mile-
stone á gríðarlegu undirverði árið
2006 áður en Steingímur kom hon-
um í skilning um að hún ætti að fá
sanngjarnt verð fyrir hlut sinn. Ing-
unn fékk 2,5 milljarða fyrir hlutinn.
Samkvæmt heimildum DV mun Karl
hafa erft þetta við bróður sinn því
hann sá eftir þeim peningum sem
systir þeirra fékk.
Í kjölfarið varð Karl meirihluta-
eigandi í Milestone með 60 prósenta
eignarhluta en Steingrímur átti 40
prósent. Karl gat því stjórnað félag-
inu eftir eigin hentisemi og byrjaði
hann gagngert að ganga fram hjá
Steingrími eftir þetta og stjórna fé-
laginu án þess að hafa hann með í
ráðum. Ingunn og Steingrímur virð-
ast því bæði hafa verið fórnarlömb
Karls, bróður síns, því aðkoma Ing-
unnar að Milestone virðist sömuleið-
is hafa verið afar lítil meðan hún var
enn hluthafi í félaginu.
Sagði Karl siðblindan
Samskipti bræðranna byrjuðu að
versna til muna eftir þetta. Skiln-
ingur Steingríms mun vera sá
að Karl hafi hrakið hann í burtu
frá höfuðstöðvum Milestone
sumarið 2008 með því að kalla
hann aumingja og vitleysing
sem gæti ekki neitt og að hann
ætti að koma sér í burtu. Karl
mun einnig hafa hótað Stein-
grími því að hann myndi
keyra hann í gjaldþrot ef
hann hætti ekki að koma til
vinnu sinnar í höfuðstöðv-
um Milestone og spyrja
spurninga um rekstur
Milestone. Steingrímur
mun hafa litið á þetta
sem hótanir sem hann
gæti ekki setið und-
ir og því hætti hann
afskiptum sínum af
Milestone.
Samkvæmt
heimildum DV
mun Steingrímur af
þessum sökum hafa
sagt um Karl, bróð-
ur sinn, í yfirheyrsl-
unum að hann væri
algerlega siðblind
persóna.
Fékk ekki upplýsingar
frá Milestone
Meðal annars sagðist Steingrímur
ítrekað hafa verið beðinn um að skrifa
undir undir pappíra sem hann þekkti
ekki og vissi svo ekki hvað gert var við.
Til að mynda sagðist Steingrímur
hafa skrifað undir hluthafasamkomu-
lag hjá Milestone sem aðeins hafi ver-
ið gert í einriti og hafi Karl haldið því
eftir. Í hluthafasamkomulaginu kom
fram að Karl ætti 60 prósent í félag-
inu og Steingrímur 40 prósent og var
kveðið á um arðgreiðslu út úr félaginu
til bræðranna.
Steingrímur sagðist hins vegar
aldrei hafa fengið arðgreiðslur sam-
kvæmt upprunalega samkomulaginu
heldur hafi hann fengið afrit af öðru
samkomulagi þar sem ekki var kveðið
á um arðgreiðslur. Steingrímur sagð-
ist ekki hafa fengið arðgreiðslur en að
hann reiknaði með að Karl hefði gert
það. Hann hefði því verið snuðaður
um þennan arð. Steingrímur bar því
við að þarna hefði komið fram ásetn-
ingur Karls um að hann ætlaði að
svíkja bróður sinn.
Í kjölfarið hafi Steingrímur beðið
um að fá að sjá upprunalega hluthafa-
samkomulagið en ekki fengið það.
Minnihlutaeigandi
með lítil völd
Steingrímur vill hins vegar ekki ræða
um aðkomu sína að rekstri Milestone
eða vitnisburð sinn hjá sérstökum sak-
sóknara í samtali við DV frá Lundún-
um þar sem hann er búsettur. Hann
neitar því hins vegar ekki að vitnis-
burður hans hjá sérstökum saksókn-
ara hafi verið með þeim hætti sem rætt
er um hér en heimildir DV fyrir því eru
innan úr stjórnkerfinu og eru traustar.
Heimildir DV herma að Steingrím-
ur hafi haft lítil völd hjá Milestone sem
minnihlutaeigandi. Jafnframt segja
þær að Steingrímur hafi ekkert komið
að rekstri margra dótturfélaga Mile-
stone, til að mynda Sjóvár, og að hann
hafi fyrst og fremst átt að vera þægur
og hlýða Karli varðandi rekstur Mile-
stone.
Heimildir DV benda einnig til þess
að Steingrímur hafi lítið sem ekkert
vitað um rekstur Milestone og dóttur-
félaganna og oft ekkert vitað um ein-
staka viðskiptagerninga, til að mynda
að Sjóvá hefði fjárfest í fasteignaverk-
efninu fræga í Makaó í Asíu.
Karl átti alltaf meirihluta
Steingrímur mun einnig hafa sagt frá
því að í sameiginlegum viðskiptum
þeirra bræðra hafi þeir aldrei átt fé-
lög til jafns: Karl hafi alltaf átt meiri-
hluta og því getað stjórnað öllum
félögum án þess að ráðfæra sig við
Steingrím.
Steingrímur viðurkenndi til að
mynda í yfirheyrslunum að þetta
væri raunin með eignarhaldsfélagið
Aurláka en það félag heldur utan um
stærstu eign þeirra í dag: lyfjaverslan-
irnar Lyf og heilsu. Þar upplýsti Stein-
grímur að hann ætti ekki helmings-
hlut í Lyfjum og heilsu á móti Karli
heldur 40 prósenta hlut. Hann gaf það
upp að alltaf hefði verið passað upp á
það að hann ætti ekki helmingshlut
á móti Karli í þeim félögum sem þeir
áttu sameiginlega.
Milestone seldi Lyf og heilsu út úr
félaginu og til Aurláka í lok mars 2008
fyrir rúma 3,4 milljarða króna. Aurláki
tók yfir 2,5 milljarða skuldir félagsins
og eftirstöðvarnar voru greiddar með
skuldajöfnun. En í fundargerð frá
L&H eignarhaldsfélagi, sem átti Lyf
og heilsu, þar sem ákveðið var að selja
lyfjaverslanirnar kom fram að eftir-
stöðvar ættu að „greiðast við fyrsta
hentugleika“. Þetta var síðar gert með
áðurnefndri skuldajöfnun, það er án
þess að nokkuð eigið fé væri lagt fram
við kaupin.
Skiptastjóri þrotabús Milestone,
Grímur Sigurðsson, rannsakar nú
hvort hægt sé að rifta þessum við-
skiptum á þeim forsendum að Mile-
stone hafi ekki verið gjaldfært þegar
viðskiptin áttu sér stað en þessi sala
átti sér stað minna en hálfu ári fyrir
hrun.
Sagðist ekki hafa ákveðið
fjárfestingar Sjóvár
Samkvæmt heimildum DV sagði
Steingrímur líka frá því að hann hefði
ekki komið að því að ákveða að trygg-
ingafélagið Sjóvá ætti að fara út í fjár-
festingar í Makaó í Asíu. Hann var
spurður um hvort hann vissi hvern-
ig ákvarðanir voru teknar um fjárfest-
ingar tryggingafélagsins. Steingrímur
mun þá hafa sagt að Karl, Guðmundur
og Jóhannes Sigurðsson hafi ákveðið
hvað Sjóvá gerði og í hvaða fjárfesting-
um þeir væru.
Hann sagði að þeir hefðu ekki þurft
að fá samþykki forstjóra Sjóvár, Þórs
Sigfússonar, áður en tekin var ákvörð-
un um í hverju Sjóvá ætti að fjárfesta.
Að sögn Steingríms hefði Þór bara ver-
ið rekinn ef hann hefði sett sig upp á
móti vilja þeirra Milestone-manna og
einhver annar hefði verið fenginn í
staðinn.
Spurður hvort hann teldi að Þór
hefði bara gert það sem fyrir hann
var lagt mun Steingrímur hafa sagt
að Mile stone-menn hefðu einfaldlega
farið fram hjá honum og hann hefði
10 MIÐVIKUDAGUR 20. janúar 2010 FRÉTTIR
BRÓÐIR MINN ER „EINRÆÐISHERRA“
Steingrímur Wernersson, annar af eigendum Milestone, opnaði sig í yfirheyrslum hjá sérstökum saksókn-
ara. Þar vændi Steingrímur bróður sinn, Karl, um að hafa svikið sig. Yfirheyrslurnar yfir Steingrími sýna
að aðkoma hans að rekstri Milestone var lítil sem engin. Steingrímur var minnihlutaeigandi með lítil völd.
Steingrímur taldi Karl og Guðmund hafa stjórnað bótasjóði Sjóvár og farið fram hjá Þór Sigfússyni forstjóra.
Heimildir DV herma að Steingrímur hafi haft lítil völd sem minnihlutaeigandi.
Reiður út í bróður sinn Steingrímur
Wernersson er ekki sáttur við Karl,
bróður sinn, samkvæmt vitnisburði
hans hjá sérstökum saksóknara. Svo
virðist sem Steingrímur hafi ekki ráðið
neinu í félagi þeirra, Milestone.
fréttir 30. nóvember 2009 mánudagur 11
Tekin var ákvörðun um það á ein-
um og sama stjórnarfundinum
í eignarhaldsfélaginu Svartháfi
í fyrra að sækja um tæplega 200
milljóna evra lán frá Glitni, eða
sem nemur rúmum 35 milljörðum
króna á núverandi gengi, og end-
urlána það svo aftur til félaga í eigu
Karls og Steingríms Wernerssona.
Lánið sem Svartháfur endur-
lánaði strax aftur til eignarhalds-
félaga í þeirra eigu var svo notað
til að greiða hluta skuldar við fjár-
festingabankann Morgan Stanley
upp á 300 milljónir evra, sem nem-
ur um 55 milljörðum króna á nú-
verandi gengi. Morgan Stanley var
einn helsti erlendi lánveitandi Mil-
estone og fjármagnaði hluta útrás-
ar fyrirtækisins til annarra landa.
Svartháfur, sem var í eigu föður
þeirra bræðra, Werners Rasmus-
sonar, er einn af stærri skuldurum
Glitnis með skuldir upp á um 45
milljarða króna og er ljóst að skila-
nefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúg-
an hluta þeirrar fjárhæðar. Glitn-
ir veitti Svartháfi lánið í ársbyrjun
2008 en nákvæm dagsetning er
ekki þekkt.
Sótt um lán og endurlánað
Heimildir DV herma að á stjórn-
arfundinum í Svartháfi, sem hald-
inn var í höfuðstöðvum Milestone
á Suðurlandsbraut 12, hafi verið
gerður lánasamningur við Glitni
sem nam um 200 milljónum evra.
Einnig var ákveðið að lána ætti tæp-
lega 140 milljónir evra til sænska
félagsins Racon Holding AB, sem
var dótturfélag Milestone og lán-
takandi Morgan Stanley. Veðið fyr-
ir láni Svartháfs til Racon Holding
AB var í hlutabréfum í sænska fjár-
málafyrirtækinu Invik & Co., síðar
Moderna AB. Racon notaði lánið
svo til að borga Morgan Stanley.
Jafnframt var ákveðið á stjórn-
arfundinum að lána 50 milljónir
evra til félags sem heitir Vafning-
ur ehf., sem einnig var
í eigu þeirra bræðra og
til húsa á Suðurlands-
braut 12. Ekki er vitað
til að aðrir stjórnar-
fundir hafi verið haldn-
ir í Svartháfi.
Lán upp í skuld
Milestone
Veðið fyrir láninu frá
Glitni til Svartháfs var
í eignarhaldsfélaginu
Moderna AB en eignir
Milestone voru seld-
ar inn í það félag um
áramótin 2007-2008.
Glitnir hefur nú leyst
til sín eignir Mod-
erna, meðal annars
Sjóvá og Askar Capi-
tal, og fékk bank-
inn þar eitthvað upp
í kröfuna á hendur
Svartháfi en ljóst er
að afskrifa þarf stóran hluta henn-
ar.
Milestone stofnaði til lánsins,
sem Racon borgaði síðar upp með
láninu frá Svartháfi, við Morgan
Stanley sumarið 2007 og var það
notað til að festa kaup á sænska
fjármálafyrirtækinu Invik & Co,
sem síðar var endurskírt Moderna
Finance AB.
Lánið frá Glitni sem rann inn í
Svartháf var því notað til að standa
við skuldbindingar sem Milestone
stofnaði til fyrir hönd dótturfélags
síns.
Leppurinn Svartháfur
Á þessum tíma, í ársbyrjun 2008, er
líklegt að Morgan Stanley hafi ver-
ið orðinn órólegur um að lán Rac-
on fengist ekki greitt og að þeir hafi
ekki viljað endurnýja lánasamning-
inn. Ástæðan kann meðal annars
að hafa verið sú að þá þegar voru
blikur á lofti um að mikil lægð væri
yfirvofandi í íslensku efnahags-
lífi og má áætla að Morgan Stan-
ley hafi því kippt að sér höndum.
Milestone hefur því hugsanlega
átt í erfiðleikum með að standa í
skilum við Morgan Stanley, önnur
fjármálafyrirtæki hafa ekki viljað
lána þeim og því hafi þeir orðið að
verða sér úti um lán með einhverj-
um hætti.
Heimildir DV renna því stoð-
um undir þá kenningu að eini til-
gangurinn með stofnun Svartháfs
hafi verið að leppa lánveitingu frá
Glitni, sem síðar rann til félaga
Wernerssona sjálfra. Ástæðan fyr-
ir Svartháfssnúningnum var sú að
félög í beinni eigu þeirra bræðra
máttu ekki fá meira lánað hjá Glitni
samkvæmt reglum sem Fjármála-
eftirlitið hefur sett um hámarks-
lánveitingar til einstakra aðila.
Ástæðan fyrir þessum reglum er til
að lágmarka áhættu bankans: Ekki
er heppilegt fyrir banka að eiga of
miklar útistandandi skuldir við
einstaka fyrirtækjasamstæðunnar.
Ekki er vitað hver það var innan
Glitnis sem tók ákvörðunina um að
veita Svartháfi þetta lán en líkt og
gildir í fjármálafyrirtækjum með
svo háar lánveitingar en lána- og
áhættunefndir fjármálafyrirtækja
taka yfirleitt ákvarðanir um svo
háar lánveitingar.
Á hluthafafundi Svartháfs í höfuðstöðvum Milestone var ákveðið
að sækja um lán frá Glitni og endurlána það strax aftur. Leppur-
inn Svartháfur var líklega stofnaður til að fara framhjá reglum
Fjármálaeftirlitsins um hámark lánveitinga til einstakra aðila.
IngI F. VILhjáLMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
LEPPUR BORGAÐI
SKULD MILESTONE
2 miðvikudagur 14. október 2009
fréttir
Glitnir þarf að afskrifa stóran hluta af 45 milljarða króna skuld eignarhalds-
félagsins Svartháfs við bankann, sam-
kvæmt heimildum DV. Krafa Glitnis á hendur Svartháfi nam 45 milljörðum króna í sumar en samkvæmt heimild-
um DV var hún gerð upp í lok sum-
ars. Líklegast er að krafan hafi verið gerð upp með miklum afföllum fyrir bankann.
Skuld Svartháfs er meðal ann-
ars tilkomin vegna þess að félagið, sem er í eigu Werners Rasmusson, föður Karls og Steingríms Werners-
sona, fyrrverandi eigenda eignar-
haldsfélagsins Milestone, tók lán hjá Glitni í fyrra upp á 20 milljarða króna til að lána eignarhaldsfélagi í eigu bræðranna fyrir skuld við fjárfest-
ingabankann J.P. Morgan.
Svartháfur hét áður ELL 150 og Gleypnir og var stofnað af Erlendi Gíslasyni og Gunnari Sturlusyni hjá lögmannsstofunni Logos í janúar árið 2008, samkvæmt stofnskjölum
félagsins. Svartháfur er skráður til heimilis á Suðurlandsbraut 12, líkt og flest önnur eignarhaldsfélög þeirra bræðra, en lögheimili þess var skráð í Jötunssölum 2, heimili Werners föð-
ur þeirra, þar til í apríl í fyrra þegar lögheimilið var fært á Suðurlands-
brautina. Svartháfur hefur ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2008.
Nafnabreytingar í ársbyrjun
Í febrúar 2008 voru Werner Rassmus-
son og kona hans Kristín Sigurðar-
dóttir kjörin í stjórn og varastjórn félagsins. Nafni félagsins var á sama tíma breytt úr ELL 150 í Svartháfur. Í tilkynningu til Fyrirtækjaskrár um breytinguna á stjórninni er hins veg-
ar strikað yfir nafnið Gleypnir með penna og nafnið Svartháfur sett í staðinn, eins og félagið hafi átt að heita Gleypnir en að svo hafi því ver-
ið breytt á síðustu stundu. Lögheim-
ili Svartháfs var svo fært frá Jötuns-
sölum á Suðurlandsbraut 12 í apríl í fyrra, samkvæmt tilkynningu til Fyr-
irtækjaskrár sem aðstoðarforstjóri Milestone, Jóhannes Sigurðsson, skrifaði undir ásamt Werner Rasm-
usson. Tengsl Svartháfs og Milestone
eru því nokkur þó eigendurnir hafi ekki verið þeir sömu.
45 milljarða skuld Svartháfs stend-
ur utan við þá rúmlega 43,9 milljarða króna skuld sem Milestone skilur eft-
ir inni í Glitni. Skuldir þessara tveggja félaga og dótturfélaga þeirra við Glitni nema því nærri 90 milljörðum króna.
Heildarskuldir Milestone nema tæpum 80 milljörðum króna og var gert ráð fyrir því í nauðasamningum félagsins, sem hefur verið hafnað, að kröfuhafarnir fengju um 6 prósent upp í kröfur sínar en eignir félags-
ins voru einungis metnar á um fimm milljarða. Því má reikna með að feðg-
arnir, Werner, Steingrímur og Karl, eigi ekki til þær upphæðir persónu-
lega sem til þarf til að greiða skuldir Svartháfs, enda er ekki vitað til þess að einhver þeirra sé í persónulegum ábyrgðum vegna skuldanna.
Greiddu niður lán til J.P. Morgan
Skuldir Svartháfs við Glitni eru með-
al annars tilkomnar vegna þess að skömmu eftir að félagið tók upp nafnið Svartháfur í febrúar í fyrra tók félagið lán frá Glitni upp á um 20 milljarða króna til að greiða lán Rac-
on Holdings II, sem eignarhaldsfélag Karls og Steingríms, Milestone, réð í gegnum annað eignarhaldsfélag sitt, Þátt, við fjárfestingarbankann J.P. Morgan.
Lán Racon hjá J.P. Morgan var tilkomið út af kaupum Racon á fé-
lagi sem hét Innvik, sem síðar var endurskírt Moderna Finance AB. Á þeim tíma var J.P. Morgan hins veg-
ar orðinn órólegur um að lán Racon fengist ekki greitt og vildu ekki end-
urnýja lánasamninginn þegar hann gjaldféll, ástæðan var meðal annars að þá þegar voru blikur á lofti í ís-
lensku efnahagslífi og kippti bank-
inn því að sér höndum með því að neita að endurnýja lánasamninginn. Fjárfestingafélagið Gnúpur, sem var í eigu Kristins Björnssonar og Magn-
úsar Kristinssonar, hafði lent í erf-
iðleikum í árslok 2007 og eru þeir fjárhagserfiðleikar af mörgum tald-
ir marka upphaf íslenska efnahags-
hrunsins. Því þurftu eigendur Rac-
on, Karl og Steingrímur, að finna aðrar leiðir til að greiða J.P. Morgan lánið.
Wernerssona
Karl Wernersson
GLITNIR ÞARF AÐ AFSKRIFA SKULDIR WERNERSMANNA
HvAÐ ER SvARTHáFUR?
Svartháfur er eignarhaldsfélag sem stofnað var í ársbyrjun árið 2008. Heimildir DV herma að það hafi verið stofnað í ársbyrjun til að fá lán til að greiða skuldir félags í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Félagið er í eigu Werners, föður þeirra, og var lögheimili þess heima hjá honum. Heimilisfang Svartháfs er hins vegar í fyrrverandi höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12. Félagið skuldar Glitni 45 milljarða króna og hefur átt sér stað uppgjör á skuldinni. Ekki er vitað hvernig uppgjörið var gert en afar ólíklegt er að skuldin hafi verið greidd upp að fullu. Því má búast við að eitthvað hafi verið afskrifað af skuldunum.Félagið dregur nafn sitt af lítilli hákarlategund sem kallast Svartháfur eða Black Dogfish á ensku. Svartháfurinn lifir á miklu dýpi, 180 til 1.600 metrum, og er ekki talinn mannýgur. Heimkynni hans eru aðallega í Vestur- og Norður-Atlantshafi, meðal annars við strendur Grænlands og Íslands. Svartháfurinn er, eins og nafnið gefur til kynna, svartur á lit og hafa augu hans aðlagast myrkrinu á hafsbotninum. Því getur hann séð betur í myrkri en aðrar hákarlategundir. Ekki er vitað af hverju Svartháfsnafnið var valið fyrir félagið.
Eitt af mörgum ELL-félögum
Svartháfur, áður ELL 150, er einungis eitt af mörgum félögum sem upphaflega hafa borið nafnið ELL sem lögmannsstofan Logos hefur stofnað á liðnum árum. Annað dæmi um slíkt félag er ELL 182 sem Logos stofnaði og seldi til Bakka-bræðra, Lýðs og Ágústs Guðmundssona. ELL 182 keypti síðar hlut Exista, sem er í meirihlutaeigu þeirra bræðra, í Bakkavör í fyrrahaust en fyrir áttu þeir meirihluta í Bakkavör. Salan hefur valdið miklum deilum meðal kröfuhafa og eigenda Exista en kröfuhafarnir hafa kært eigendur Exista fyrir hana. Bæði ELL 150 og ELL 182 hafa nú skipt um nafn líkt og sum önnur þeirra ELL-félaga sem Logos hefur selt á liðnum árum.
Werner hefur áður komið við söguWerner Rasmusson, faðir Karls og Steingríms, hefur áður komið við sögu í umfjöllun fjölmiðla um viðskipti þeirra bræðra. Þannig greindi DV frá því í september að í endurskoðendaskýrslu Ernst & Young um Milestone hefði verið bent á að félagið hefði greitt skatta fyrir Werner upp á 8,5 milljónir króna. Skiptastjóri þrotabús Milestone, Grímur Sigurðsson, þarf meðal annars að taka afstöðu til þess hvort sú greiðsla hafi verið eðlileg. Werner kom hins vegar af fjöllum þegar DV spurði hann um skattgreiðslurnar. Ekki er vitað hvort Werner hafi vitað til hvers Svartháfur var notaður en undirskrift hans er á samþykktum félagsins sem DV hefur undir höndum.
INGI F. VILhJáLMssoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
stórskuldugt félag Félag í eigu föður Karls og Steingríms Wernerssona, Svartháfur, skuldar Glitni 45 milljarða króna sem ekki er lengur að finna í lánabókum bankans. Karl Wernersson vill ekki ræða um hvernig skuldin hafi verið gerð upp.
heimkynni svartháfs Eignarhaldsfélagið Svartháfur er skráð til heimilis á Suðurlandsbraut 12 en þar voru höfuðstöðvar Milestone áður en félagið fór í greiðslu-stöðvun og var síðar tekið til gjaldþrotaskipta.
Tíu prestar skrifuðu undir bréf sem
þeir sendu Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi Íslands, nýverið þar sem
þeir skoruðu á hann að fara eftir lög-
um landsins. Það ætti biskup að gera
með því að hleypa séra Gunnari
Björnssyni aftur í stól sóknarprests á
Selfossi. Til enn frekari stuðnings við
séra Gunnar hefur verið boðað til
stuðningsfundar á föstudagskvöld.
Séra Gunnar var sýknaður af
ákærum um kynferðislega misnotk-
un ungra sóknarbarna hans. Bisk-
upinn hefur aftur á móti verið hik-
andi í afgreiðslu þess hvort Gunnar
fái að snúa aftur í sitt gamla starf
og því hefur presturinn verið í leyfi
fram til þessa. Leyfi Gunnars rennur
út á morgun, fimmtudag, og þá ætti
hann að snúa aftur, á 65 ára afmæl-
isdegi sínum. Heimildir DV herma
aftur á móti að Biskupsstofa leiti
sátta við séra Gunnar og verið sé að
finna honum annað starf. Biskupi
getur reynst erfitt að færa Gunnar
nema með samþykki hans og því
er beðið átekta með hver viðbrögð
prestsins verða.
Biskup í klandri
„Það liggur alveg fyrir að við viljum
fá hann til baka. Biskupsstofa getur
ekki fært hann nema með hans sam-
þykki, það er ekkert vald sem getur
breytt því. Nú er stóra spurningin
hvað séra Gunnar vill gera. Biskup-
inn er kominn í mikið klandur. Hann
má aldeilis gá að sér ef hann ætlar að
fara gegn lögum,“ segir Guðmundur
Kristinsson, stuðningsmaður séra
Gunnars Björnssonar sóknarprests
í leyfi, sem er einn skipuleggjenda
stuðningsfundarins.
Fundurinn verður haldinn klukk-
an 20 á föstudag á Hótel Selfossi og
Guðmundur segir alla velkomna.
„Það er öll þjóðin hjartanlega vel-
komin á fundinn. Þarna verður góð
stemning. Ég get lofað því að þetta
verður spennandi fundur og þang-
að ætlar fjöldi sóknarpresta af
landinu að mæta. Gunn-
ar er ánægður með fram-
takið, það hefði enginn
nema hann getað staðið
þetta af sér,“ segir Guð-
mundur.
Skiptar skoðanir
Þórir Stephensen, fyrr-
verandi dómkirkju-
prestur og stuðnings-
maður séra Gunnars, er meðal
þeirra 10 presta sem skora á biskup-
inn. Hann vonast til að geta mætt á
fyrirhugaðan stuðningsfund. „Ég er
í hópi annarra presta og við skor-
um á biskup að hlýða dómstólum.
Það voru prestar sem vildu ekki
skrifa þarna und- ir.
Menn skipt-
ast í flokka.
Mér finnst
nú sjálfum
að hlýða
eigi lands-
lögum.
Rétturinn
er Gunn-
ars meg-
in og við
styðjum
að hann fái að snúa aftur til sinna
starfa,“ segir Þórir.
„Mig langar til að mæta. Ég hef
lengi beðið eftir tækifæri þar sem
ekki bara þeir sem eru á móti Gunn-
ari fái tækifæri til að segja frá sínu
áliti.“
Biskup hefur ekki veitt prestun-
um tíu formlegt svar við áskoruninni.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengust
ekki svör frá Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi Íslands, við vinnslu fréttar-
innar. Hið sama má segja um séra
Gunnar sjálfan.
Samkvæmt heimildum DV eru
prestarnir Auður Eir Vilhjálmsdótt-
ir, Guðmundur Þorsteinsson, fyrr-
verandi prófastur, Jón Ragnarsson,
prestur í Hveragerði, og séra Valgeir
Ástráðsson.
Margir prestar styðja séra
Gunnar og vilja fá hann aft-
ur. Einnig óttast sum-
ir prestar nornaveið-
ar verði dómskerfið
sniðgengið. Þannig
kynni mál séra Gunn-
ars að verða fordæmi
þess að prestar verði
hraktir úr starfi
vegna ásakana,
jafnvel þótt þeir séu
hreinsaðir af þeir.
fréttir
14. október 2009 miðvikudagur 3
UPPREISN GEGN BISKUPI
Biskup í bobba Tíu prestar skora á
biskupinn að hlíta landslögum og leyfa séra Gunnari að snúa aftur til fyrri starfa.
Gunnars Björnssonar
Karli Sigurbjörnssyni
TrauSTi hafSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Jafnt og þétt er þetta heldur að auk-
ast, það er alveg klárt. Það er tölu-
vert að streyma inn til okkar núna,“
segir Karl Sigurðsson, sviðsstjóri hjá
Vinnumálastofnun. Hann bendir þó
á að heldur minna hafi verið um at-
vinnuleysi í síðasta mánuði en ótt-
ast var.
Hjá Vinnumálastofnun hefur ver-
ið nóg að gera undanfarið og nokk-
ur aukning hefur verið síðustu vikur.
Undanfarna daga hafa nærri 50 ein-
staklingar skráð sig á atvinnuleysis-
skrá hjá stofnuninni dag hvern og
nú er svo komið að tæplega fimmt-
án þúsund einstaklingar eru á skrá,
14.909 eintaklingar nánar tiltekið.
Aðspurður segir Karl fleiri karla skrá
sig þessa dagana en konur. Hann
reiknar þó með breytingu á því á
næstunni. „Það eru aðallega eldri
karlmenn sem hafa núna verið að
skrá sig, heldur fleiri en konur. Við
erum síðan að búast við því að fari
að streyma inn úr opinbera geiran-
um og þá gætu það verið hlutfalls-
lega konur í meira mæli. Við reikn-
um með aukningu jafnt og þétt,
hlutfallslega meira af eldra fólki og
búum okkur undir að það verði kon-
ur í meira mæli,“ segir Karl.
„Sé horft yfir lengri tíma er hlut-
fallslega meira eldra fólk komið á
skrá hjá okkur. Það var eiginlega
helst í upphafi sem unga fólkið var
að skrá sig en það mynstur hef-
ur breyst. Við erum meðvituð um
að klárleg aukning er að eiga sér
stað og næstu mánuðir gætu orð-
ið þungir vegna uppsagna hjá hinu
opinbera.“
trausti@dv.is
Karlar streyma inn á skrárnar
eldri menn Undanfarið
hefur einna helst borið á ný-
skráningum eldri karlmanna.
Lánuðu ekki til venslaðra aðila
Ástæðan fyrir því að Svartháfur fékk lánið frá Glitni var sú að á þessum tíma voru eigendur Milestone, þeir Karl og Steingrímur, og félög í beinni og óbeinni eigu þeirra búnir að full-
nýta lánaheimildir sínar hjá Glitni, að sögn heimildarmanns DV sem þekkir vel til viðskipta Karls og Stein-
gríms. Bræðurnir voru hluthafar í Glitni á þessum tíma. „Til þess að fara í kringum þetta lánaði Glitnir þessu félagi [Innskot blaðamanns: Svart-
háfi] þessa peninga. Þetta félag lánaði þessa peninga svo til Racon Holdings II og voru þeir notaðir til að greiða upp skuldina við J.P. Morgan. Glitnir greiddi því í raun upp skuldina við J.P. Morgan en fór þennan hring til þess. Eftir stóð hins vegar skuld Svartháfs við Glitni,“ segir heimildarmaður DV en ekki er vitað að svo stöddu hvern-
ig hinir milljarðarnir bættust ofan á þessa tuttugu.
Heimildarmaður DV segir að þetta hafi þótt vera í lagi vegna þess að í lagalegum skilningi hafi félagið í eigu Werners, Svartháfur, ekki verið skil-
greint sem venslaður aðili við Karl og Steingrím. Félag í eigu föður Karls og Steingríms gat því fengið lánið þó svo að félög í þeirra eigu gætu það ekki út af hinum fullnýttu lánaheimildum.
Karl tjáir sig ekki
Karl Wernersson vill aðspurður og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaða-
manns ekki ræða um málefni Svart-
háfs í samtali við DV. Því var lögð spurning fyrir hann í SMS-skeyti þar sem hann var spurður hvað hefði orð-
ið um 45 milljarða skuld Svartháfs. Hann var spurður hvernig hefði ver-
ið gengið frá þessari skuld og hvers vegna. Svar Karls við þessari fyrir-
spurn var: „Hver er fréttin?“ DV náði ekki aftur sambandi við Karl eftir þetta.
Ekki náðist í bróður Karls, Stein-
grím, né í föður hans, Werner Rasmus-
son, við vinnslu fréttarinnar. Að svo stöddu liggur því ekki almennilega fyrir hvernig skuldin við Glitni var gerð upp.
ekki rætt í gögnum
um Milestone
Ekkert er rætt um málefni Svartháfs og láns félagsins hjá Glitni í gögnum um Milestone sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum, endurskoðendaskýrslu Ernst & Young og skýrslu umsjónar-
manns nauðasamninga félagsins, Jó-
hannesar Alberts Sævarssonar.
Ástæðan fyrir þessu er sú að mál-
efni Svartháfs tengjast ekki beint málefnum Milestone af áðurnefnd-
um ástæðum, jafnvel þó að pening-
arnir sem Svartháfur fékk að láni hjá Glitni hafi verið notaðir til að lána fé-
lagi í eigu Milestone-manna svo það gæti staðið í skilum við erlent fjár-
málafyrirtæki. Hvorki Jóhannes né endurskoðendurnir höfðu aðgang að bókhaldi Racon Holdings II, félags-
ins sem fékk lánið frá Svartháfi, og því ekki rannsakað lánveitingarnar til og frá Svartháfi.
Samkvæmt heimildum DV veltu kröfuhafar Milestone hins vegar mik-
ið fyrir sér himinháum lánveitingum frá Glitni til félagsins áður en nauða-
samningum Milestone var hafnað og félagið var tekið til gjaldþrotaskipta fyrir skömmu. Ekki er því ólíklegt að málefni Svartháfs muni koma við sögu í framtíðinni hjá kröfuhöfum Milestone og kunna lánaviðskipti fé-
lagsins að hafa einhver eftirmál.
Í eigu föður Wernerssona Félagið
Svartháfur er skráð á Werner Rasmusson, föður Karls og Steingríms. Félagið virðist hafa verið stofnað gagngert til að taka við láni frá Glitni upp á 20 milljarða sem bræðurnir gátu ekki tekið.
hlýtur stuðning
Séra Gunnar fær
stuðning frá öðrum
prestum og boðað
hefur verið til stuðn-
ingsfundar.
14. október 2009
Allt ákveðið í einu Samkvæmt
heimildum DV var ákveðið á
hluthafafundi Svartháfs að sækja
um lán og endurlána það strax aftur
til dótturfélaga Milestone. Faðir
Karls Wernerssonar, annars eiganda
Milestone, var eigandi Svartháfs.
„Lánið frá Glitni sem
rann inn í Svartháf
var því notað til að
standa við skuld-
bindingar sem
Milestone stofnaði
til fyrir hönd dóttur-
félags síns.”
2 dálkar = 9,9 *10
Falleg jólavara
Nýjar vörur
Stærri búð
Opið: má-fö. 12-18, Opið á laugard. til jóla frá 12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið
2 miðvikudagur 14. október 2009 fréttir
Glitnir þarf að afskrifa stóran hluta af
45 milljarða króna skuld eignarhalds-
félagsins Svartháfs við bankann, sam-
kvæmt heimildum DV. Krafa Glitnis á
hendur Svartháfi nam 45 milljörðum
króna í sumar en samkvæmt heimild-
um DV var hún gerð upp í lok sum-
ars. Líklegast er að krafan hafi verið
gerð upp með miklum afföllum fyrir
bankann.
Skuld Svartháfs er meðal ann-
ars tilkomin vegna þess að félagið,
sem er í eigu Werners Rasmusson,
föður Karls og Steingríms Werners-
sona, fyrrverandi eigenda eignar-
haldsfélagsins Milestone, tók lán hjá
Glitni í fyrra upp á 20 milljarða króna
til að lána eignarhaldsfélagi í eigu
bræðranna fyrir skuld við fjárfest-
ingabankann J.P. Morgan.
Svartháfur hét áður ELL 150 og
Gleypnir og var stofnað af Erlendi
Gíslasyni og Gunnari Sturlusyni hjá
lögmannsstofunni Logos í janúar
árið 2008, samkvæmt stofnskjölum
félagsins. Svartháfur er skráður til
heimilis á Suðurlandsbraut 12, líkt og
flest önnur eignarhaldsfélög þeirra
bræðra, en lögheimili þess var skráð
í Jötunssölum 2, heimili Werners föð-
ur þeirra, þar til í apríl í fyrra þegar
lögheimilið var fært á Suðurlands-
brautina. Svartháfur hefur ekki skilað
ársreikningi fyrir árið 2008.
Nafnabreytingar í ársbyrjun
Í febrúar 2008 voru Werner Rassmus-
son og kona hans Kristín Sigurðar-
dóttir kjörin í stjórn og varastjórn
félagsins. Nafni félagsins var á sama
tíma breytt úr ELL 150 í Svartháfur.
Í tilkynningu til Fyrirtækjaskrár um
breytinguna á stjórninni er hins veg-
ar strikað yfir nafnið Gleypnir með
penna og nafnið Svartháfur sett í
staðinn, eins og félagið hafi átt að
heita Gleypnir en að svo hafi því ver-
ið breytt á síðustu stundu. Lögheim-
ili Svartháfs var svo fært frá Jötuns-
sölum á Suðurlandsbraut 12 í apríl í
fyrra, samkvæmt tilkynningu til Fyr-
irtækjaskrár sem aðstoðarforstjóri
Milestone, Jóhannes Sigurðsson,
skrifaði undir ásamt Werner Rasm-
usson. Tengsl Svartháfs og Milestone
eru því nokkur þó eigendurnir hafi
ekki verið þeir sömu.
45 milljarða skuld Svartháfs stend-
ur utan við þá rúmlega 43,9 milljarða
króna skuld sem Milestone skilur eft-
ir inni í Glitni. Skuldir þessara tveggja
félaga og dótturfélaga þeirra við Glitni
nema því nærri 90 milljörðum króna.
Heildarskuldir Milestone nema
tæpum 80 milljörðum króna og var
gert ráð fyrir því í nauðasamningum
félagsins, sem hefur verið hafnað, að
kröfuhafarnir fengju um 6 prósent
upp í kröfur sínar en eignir félags-
ins voru einungis metnar á um fimm
milljarða. Því má reikna með að feðg-
arnir, Werner, Steingrímur og Karl,
eigi ekki til þær upphæðir persónu-
lega sem til þarf til að greiða skuldir
Svartháfs, enda er ekki vitað til þess
að einhver þeirra sé í persónulegum
ábyrgðum vegna skuldanna.
Greiddu niður lán til J.P. Morgan
Skuldir Svartháfs við Glitni eru með-
al annars tilkomnar vegna þess að
skömmu eftir að félagið tók upp
nafnið Svartháfur í febrúar í fyrra
tók félagið lán frá Glitni upp á um 20
milljarða króna til að greiða lán Rac-
on Holdings II, sem eignarhaldsfélag
Karls og Steingríms, Milestone, réð í
gegnum annað eignarhaldsfélag sitt,
Þátt, við fjárfestingarbankann J.P.
Morgan.
Lán Racon hjá J.P. Morgan var
tilkomið út af kaupum Racon á fé-
lagi sem hét Innvik, sem síðar var
endurskírt Moderna Finance AB. Á
þeim tíma var J.P. Morgan hins veg-
ar orðinn órólegur um að lán Racon
fengist ekki greitt og vildu ekki end-
urnýja lánasamninginn þegar hann
gjaldféll, ástæðan var meðal annars
að þá þegar voru blikur á lofti í ís-
lensku efnahagslífi og kippti bank-
inn því að sér höndum með því að
neita að endurnýja lánasamninginn.
Fjárfestingafélagið Gnúpur, sem var
í eigu Kristins Björnssonar og Magn-
úsar Kristinssonar, hafði lent í erf-
iðleikum í árslok 2007 og eru þeir
fjárhagserfiðleikar af mörgum tald-
ir marka upphaf íslenska efnahags-
hrunsins. Því þurftu eigendur Rac-
on, Karl og Steingrímur, að finna
aðrar leiðir til að greiða J.P. Morgan
lánið.
Glitnir lánaði eignarhaldsfélagi í eigu föður Wernerssona 20 milljarða króna sem notaðir voru til að greiða
niður skuldir félags í eigu þeirra í fyrra. Krafan er ekki lengur inni í Glitni sem bendir til að gengið hafi
verið frá henni á einhvern hátt. Karl Wernersson vill ekki tjá sig um málið.
GLITNIR ÞARF AÐ AFSKRIFA
SKULDIR WERNERSMANNA
HvAÐ ER SvARTHáFUR?
Svartháfur er eignarhaldsfélag sem stofnað var í ársbyrjun árið 2008. Heimildir DV
herma að það hafi verið stofnað í ársbyrjun til að fá lán til að greiða skuldir félags
í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Félagið er í eigu Werners, föður þeirra,
og var lögheimili þess heima hjá honum. Heimilisfang Svartháfs er hins vegar í
fyrrverandi höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12. Félagið skuldar Glitni
45 milljarða króna og hefur átt sér stað uppgjör á skuldinni. Ekki er vitað hvernig
uppgjörið var gert en afar ólíklegt er að skuldin hafi verið greidd upp að fullu. Því
má búast við að eitthvað hafi verið afskrifað af skuldunum.
Félagið dregur nafn sitt af lítilli hákarlategund sem kallast Svartháfur eða Black
Dogfish á ensku. Svartháfurinn lifir á miklu dýpi, 180 til 1.600 metrum, og er ekki
talinn mannýgur. Heimkynni hans eru aðallega í Vestur- og Norður-Atlantshafi,
meðal annars við strendur Grænlands og Íslands. Svartháfurinn er, eins og nafnið
gefur til kynna, svartur á lit og hafa augu hans aðlagast myrkrinu á hafsbotninum.
Því getur hann séð betur í myrkri en aðrar hákarlategundir. Ekki er vitað af hverju
Svartháfsnafnið var valið fyrir félagið.
Eitt af mörgum ELL-félögum
Svartháfur, áður ELL 150, er einungis eitt af mörgum félögum sem upphaflega
hafa borið nafnið ELL sem lögmannsstofan Logos hefur stofnað á liðnum árum.
Annað dæmi um slíkt félag er ELL 182 sem Logos stofnaði og seldi til Bakka-
bræðra, Lýðs og Ágústs Guðmundssona. ELL 182 keypti síðar hlut Exista, sem er í
meirihlutaeigu þeirra bræðra, í Bakkavör í fyrrahaust en fyrir áttu þeir meirihluta
í Bakkavör. Salan hefur valdið miklum deilum meðal kröfuhafa og eigenda Exista
en kröfuhafarnir hafa kært eigendur Exista fyrir hana. Bæði ELL 150 og ELL 182
hafa nú skipt um nafn líkt og sum önnur þeirra ELL-félaga sem Logos hefur selt á
liðnum árum.
Werner hefur áður komið við sögu
Werner Rasmusson, faðir Karls og Steingríms, hefur áður komið við sögu í
umfjöllun fjölmiðla um viðskipti þeirra bræðra.
Þannig greindi DV frá því í september að í endurskoðendaskýrslu Ernst & Young
um Milestone hefði verið bent á að félagið hefði greitt skatta fyrir Werner upp
á 8,5 milljónir króna. Skiptastjóri þrotabús Milestone, Grímur Sigurðsson, þarf
meðal annars að taka afstöðu til þess hvort sú greiðsla hafi verið eðlileg. Werner
kom hins vegar af fjöllum þegar DV spurði hann um skattgreiðslurnar.
Ekki er vitað hvort Werner hafi vitað til hvers Svartháfur var notaður en undirskrift
hans er á samþykktum félagsins sem DV hefur undir höndum.
INGI F. VILhJáLMssoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
stórskuldugt félag Félag í eigu föður Karls og Steingríms
Wernerssona, Svartháfur, skuldar Glitni 45 milljarða króna sem
ekki er lengur að finna í lánabókum bankans. Karl Wernersson
vill ekki ræða um hvernig skuldin hafi verið gerð upp.
heimkynni svartháfs Eignarhaldsfélagið Svartháfur
er skráð til heimilis á Suðurlandsbraut 12 en þar voru
höfuðstöðvar Milestone áður en félagið fór í greiðslu-
stöðvun og var síðar tekið til gjaldþrotaskipta.
Tíu prestar skrifuðu undir bréf sem
þeir sendu Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi Íslands, nýverið þar sem
þeir skoruðu á hann að fara eftir lög-
um landsins. Það ætti biskup að gera
með því að hleypa séra Gunnari
Björnssyni aftur í stól sóknarprests á
Selfossi. Til enn frekari stuðnings við
séra Gunnar hefur verið boðað til
stuðningsfundar á föstudagskvöld.
Séra Gunnar var sýknaður af
ákærum um kynferðislega misnotk-
un ungra sóknarbarna hans. Bisk-
upinn hefur aftur á móti verið hik-
andi í afgreiðslu þess hvort Gunnar
fái að snúa aftur í sitt gamla starf
og því hefur presturinn verið í leyfi
fram til þessa. Leyfi Gunnars rennur
út á morgun, fimmtudag, og þá ætti
hann að snúa aftur, á 65 ára afmæl-
isdegi sínum. Heimildir DV herma
aftur á móti að Biskupsstofa leiti
sátta við séra Gunnar og verið sé að
finna honum annað starf. Biskupi
getur reynst erfitt að færa Gunnar
nema með samþykki hans og því
er beðið átekta með hver viðbrögð
prestsins verða.
Biskup í klandri
„Það liggur alveg fyrir að við viljum
fá hann til baka. Biskupsstofa getur
ekki fært hann nema með hans sam-
þykki, það er ekkert vald sem getur
breytt því. Nú er stóra spurningin
hvað séra Gunnar vill gera. Biskup-
inn er kominn í mikið klandur. Hann
má aldeilis gá að sér ef hann ætlar að
fara gegn lö um,“ segir Guðmundur
Kristinsson, stuðningsmaður séra
Gunnars Björnssonar sóknarprests
í leyfi, sem er einn skipuleggjend
stuðningsfundarin .
Fundurinn verður haldinn klukk-
an 20 á föstud g á Hótel Selfossi og
Guðmundur segir alla velkomna.
„Það er öll þjóðin hjartanlega vel-
komin á fundinn. Þarn verður óð
stemning. Ég get lofað því að þetta
verður spennandi fu dur og þa g-
að ætlar fjöldi sóknarpresta af
landinu að mæta. Gunn-
ar er ánægður með fram-
takið, það hefði enginn
nema hann getað staðið
þetta af sér,“ segir Guð-
mundur.
Skiptar skoðanir
Þórir Stephensen, fyrr-
verandi dómkirkju-
prestur og stuðnings-
maður séra Gunnars, er meðal
þeirra 10 presta sem skora á biskup-
inn. Hann vonast til að geta mætt á
fyrirhugaðan stuðningsfund. „Ég er
í hópi annarra presta og við skor-
um á biskup að hlýða dómstólum.
Það voru prestar sem vildu ekki
skrifa þarna und- ir.
Menn skipt-
ast í flokka.
Mér finnst
nú sjálfum
að hlýða
eigi lands-
lögum.
Rétturinn
er Gunn-
ars meg-
i og vi
styðjum
að hann fái að snúa aftur til sinna
starfa,“ segir Þórir.
„Mig langar til að mæta. Ég hef
lengi beðið eftir tækifæri þar sem
ekki bara þeir sem eru á móti Gunn-
ari fái tækifæri til að segja frá sínu
áliti.“
Biskup hefur ekki veitt prestun-
um tíu formlegt svar við áskoruninni.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengust
ekki svör frá Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi Íslands, við vinnslu fréttar-
innar. Hið sama má segja um sé a
Gunnar sjálfan.
Samkvæmt heimildum DV e u
prestarnir Auður Eir Vilhjálmsdótt-
ir, Guðmundur Þorsteinsson, fyrr-
verandi prófastur, Jón Ragnarsson,
prestur í Hveragerði, og séra Valgeir
Ástráðsson.
Margir pr t styðja séra
Gunnar og vilja fá hann aft-
ur. Einnig óttast sum-
ir pr st r no naveið-
a v rði ómskerfið
sni ge gi . Þ nnig
kynni mál séra Gunn-
ars ð ve ða fo dæ i
þ ss a prestar ver i
hr k i ú sta fi
vegna ásakana,
jafnvel þótt þeir séu
hreinsaðir af þeir.
fréttir 14. október 2009 miðvikudagur 3
UPPREISN GEGN BISKUPI
Biskup í bobba Tíu prestar skora á
biskupinn að hlíta landslögum og leyfa
séra Gunnari að snúa aftur til fyrri starfa.
Stuðningsmenn séra Gunnars Björnssonar berjast hart fyrir því að honum verði veitt
aftur gamla starfið sitt sem sóknarprestur á Selfossi. Tí nafngreindir prestar sendu
Karli Sigurbjörnssyni áskorun þess efnis þar sem biskup var hv ttu til að fara að
lögum. Boðað hefur verið til stuðnings nd við séra Gunna á föstud gskvöld.
TrauSTi hafSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Jafnt og þétt er þetta heldur að auk-
ast, það er alveg klárt. Það er tölu-
vert að streyma inn til okkar núna,“
segir Karl Sigurðsson, sviðsstjóri hjá
Vinnumálastofnun. Hann bendir þó
á að heldur minna hafi verið um at-
vinnuleysi í síðasta mánuði en ótt-
ast var.
Hjá Vinnumálastofnun hefur ver-
ið nóg að gera undanfarið og nokk-
ur aukning hefur verið síðustu vikur.
Undanfarna daga hafa nærri 50 ein-
staklingar skráð sig á atvinnuleysis-
skrá hjá stofnuninni dag hvern og
nú er svo komið að tæplega fimmt-
án þúsund einstaklingar eru á skrá,
14.909 eintaklingar nánar tiltekið.
Aðspurður segir Karl fleiri karla skrá
sig þessa dagana en konur. Hann
reiknar þó með breytingu á því á
næstunni. „Það eru aðallega eldri
karlmenn sem hafa núna verið að
skrá sig, heldur fleiri e konur. Við
rum síðan að búast við því að fari
að streyma inn úr opinbera geiran-
um og þá gætu það verið hlutfalls-
lega konur í meira mæli. Við reikn-
um með aukningu jafn og þétt,
hlutfallslega meira af eldra fólki og
búum okkur undir að það verði kon-
ur í meira mæli,“ segir Karl.
„Sé ho ft yfir lengri tíma er hlut-
fallslega meira eldra fólk komið á
skrá hjá okkur. Það var eiginlega
helst í upphafi sem unga fólkið var
að skrá sig en það mynstur hef-
ur breyst. Við erum meðvituð u
að klárleg aukning er að eiga sér
stað og næstu mánuðir gætu orð-
ið þungir vegna uppsagna hjá hinu
opinbera.“
trausti@dv.is
Nóg að gera hjá Vinnumálastofnu við að rá atvinnulausa:
Karlar streyma i n s rár r
eldri menn Undanfarið
hefur einna helst borið á ný-
skráningum eldri karlmanna.
Lánuðu ekki til venslaðra aðila
Ástæðan fyrir því að Svartháfur fékk
lánið frá Glitni var sú að á þessum
tíma voru eigendur Milestone, þeir
Karl og Steingrímur, og félög í beinni
og óbeinni eigu þeirra búnir að full-
nýta lánaheimildir sínar hjá Glitni,
að sögn heimildarmanns DV sem
þekkir vel til viðskipta Karls og Stein-
gríms. Bræðurnir voru hluthafar í
Glitni á þessum tíma. „Til þess að fara
í kringum þetta lánaði Glitnir þessu
félagi [Innskot blaðamanns: Svart-
háfi] þessa peninga. Þetta félag lánaði
þessa peninga svo til Racon Holdings
II og voru þeir notaðir til að greiða
upp skuldina við J.P. Morgan. Glitnir
greiddi því í raun upp skuldina við J.P.
Morgan en fór þennan hring til þess.
Eftir stóð hins vegar skuld Svartháfs
við Glitni,“ segir heimildarmaður DV
en ekki er vitað að svo stöddu hvern-
ig hinir milljarðarnir bættust ofan á
þessa tuttugu.
Heimildarmaður DV segir að þetta
hafi þótt vera í lagi vegna þess að í
lagalegum skilningi hafi félagið í eigu
Werners, Svartháfur, ekki verið skil-
greint sem venslaður aðili við Karl og
Steingrím. Félag í eigu föður Karls og
Steingríms gat því fengið lánið þó svo
að félög í þeirra eigu gætu það ekki út
af hinum fullnýttu lánaheimildum.
Karl tjáir sig ekki
Karl Wernersson vill aðspurður og
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaða-
manns ekki ræða um málefni Svart-
háfs í samtali við DV. Því var lögð
spurning fyrir hann í SMS-skeyti þar
sem hann var spurður hvað hefði orð-
ið um 45 milljarða skuld Svartháfs.
Hann var spurður hvernig hefði ver-
ið gengið frá þessari skuld og hvers
vegna. Svar Karls við þessari fyrir-
spurn var: „Hver er fréttin?“ DV náði
ekki aftur sambandi við Karl eftir
þetta.
Ekki náðist í bróður Karls, Stein-
grím, né í föður hans, Werner Rasmus-
son, við vinnslu fréttarinnar. Að svo
stöddu liggur því ekki almennilega
fyrir hvernig skuldin við Glitni var
gerð upp.
ekki rætt í gögnum
um Milestone
Ekkert er rætt um málefni Svartháfs og
láns félagsins hjá Glitni í gögnum um
Milestone sem greint hefur verið frá
í fjölmiðlum, endurskoðendaskýrslu
Ernst & Young og skýrslu umsjónar-
manns nauðasamninga félagsins, Jó-
hannesar Alberts Sævarssonar.
Ástæðan fyrir þessu er sú að mál-
efni Svartháfs tengjast ekki beint
málefnum Milestone af áðurnefnd-
um ástæðum, jafnvel þó að pening-
arnir sem Svartháfur fékk að láni hjá
Glitni hafi verið notaðir til að lána fé-
lagi í eigu Milestone-manna svo það
gæti staðið í skilum við erlent fjár-
málafyrirtæki. Hvorki Jóhannes né
endurskoðendurnir höfðu aðgang að
bókhaldi Racon Holdings II, félags-
ins sem fékk lánið frá Svartháfi, og því
ekki rannsakað lánveitingarnar til og
frá Svartháfi.
Samkvæmt heimildum DV veltu
kröfuhafar Milestone hins vegar mik-
ið fyrir sér himinháum lánveitingum
frá Glitni til félagsins áður en nauða-
samningum Milestone var hafnað og
félagið var tekið til gjaldþrotaskipta
fyrir skömmu. Ekki er því ólíklegt að
málefni Svartháfs muni koma við
sögu í framtíðinni hjá kröfuhöfum
Milestone og kunna lánaviðskipti fé-
lagsins að hafa einhver eftirmál.
Í eigu föður Wernerssona Félagið
Svartháfur er skráð á Werner Rasmusson,
föður Karls og Steingríms. Félagið virðist
hafa verið stofnað gagngert til að taka
við láni frá Glitni upp á 20 milljarða sem
bræðurnir gátu ekki tekið.
hlýtur stuðning
Séra Gunnar fær
stuðning frá öðrum
prestum og boðað
hefur verið til stuðn-
ngsfundar.
Bjarni Benediktsson, núverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins og þáver-
andi stjórnarformaður eignarhalds-
félagsins BNT, tók þátt í viðskiptum
einkahlutafélagsins Vafnings með
eignir dótturfélags tryggingafélags-
ins Sjóvár í Makaó í nágrenni Hong
Kong í Asíu í febrúar 2008, sam-
kvæmt heimildum DV. Félög í eigu
fjölskyldu Bjarna voru stórir hluthaf-
ar í Vafningi.
Fjárfestingarverkefnið snerist
um kaup á 68 lúxusíbúðum í turni í
hjarta Makaó og kallaðist það One
Central. SJ-fasteignir, sem var í eigu
bræðranna Karls og Steingríms
Wernerssona í gegnum Sjóvá, fjár-
festi í verkefninu fyrir tæpa sjö millj-
arða króna árið 2006. Turninn, sem
kallast Tower 4, er hannaður af arki-
tektastofunni Kohn Pedersen Fox
Associates og átti að vera 41 hæð-
ar. Ljúka átti við byggingu hans árið
2010 og ætlaði Sjóvá sér að græða á
áttunda milljarð á viðskiptunum.
Skilanefnd Glitnis, sem var stærsti
kröfuhafi eignarhaldsfélagsins Miles-
tone, sem átti Sjóvá, losaði Sjóvá út úr
fasteignaverkefninu í Makaó í sumar
með samningum við fasteigna- og
fjárfestingarfyrirtækin Shun Tak og
Hongkong Land sem sáu um að reisa
turninn fyrir hönd Vafnings. Miles-
tone hefur verið tekið til gjaldþrota-
skipta og stjórnar bankinn nú trygg-
ingafélaginu þar til það verður selt.
Greiða þurfti fyrirtækjunum tveimur
um 1,5 milljarða króna í skaðabætur
vegna riftunarinnar og hefur Hörð-
ur Arnarson, sem ráðinn var forstjóri
Sjóvár eftir að félagið var yfirtekið af
skilanefnd Glitnis, sagt að tap félags-
ins í heildina vegna þessara viðskipta
sé um 3,2 milljarðar króna.
Milestone skildi Sjóvá eftir á
barmi gjaldþrots og þurfti íslenska
ríkið að leggja félaginu til 12 millj-
arða króna fyrr á árinu til að bjarga
því frá gjaldþroti. Á sama tíma lögðu
Glitnir og Íslandsbanki samtals fjóra
milljarða króna inn í félagið. Hluta af
þessu tapi og ástæðunni fyrir björg-
unaraðgerðum ríkisins má rekja til
fjárfestinga Sjóvár í Makaó.
Fjölskylda Bjarna átti á móti
Sjóvá
Vafningur keypti einkahlutafélagið SJ
Properties MacauOneCentral HoldCo
ehf. af SJ-fasteignum fyrir 5,2 milljarða
króna þann 8. febrúar árið 2008, sam-
kvæmt heimildum DV. Nýtt félag, SJ2,
sem var í eigu Sjóvár líkt og SJ-fast-
eignir, átti tæplega 50 prósenta hlut í
Vafningi en tvö önnur eignarhaldsfé-
lög, Skeggi og Máttur, skiptu með sér
rúmlega 50 prósenta eignarhluta. Mil-
estone hafði selt Vafning til Skeggja
einungis degi áður, eða þann 7. febrú-
ar, og var félagið skráð til heimilis í
höfuðstöðvum Milestone á Suður-
landsbraut 12.
Félag Sjóvár, SJ2, átti sömuleiðis
tæplega 50 prósenta hlut í Skeggja en
BNT, móðurfélag olíufélagsins N1 sem
Bjarni stýrði, átti tæp 24 prósent. Eign-
arhaldsfélögin Hrómundur og Hafsilf-
ur áttu svo rúmlega 17 prósenta og
tæplega 8,5 prósenta hlut. Hrómund-
ur er í eigu föðurbróður Bjarna, Ein-
ars Sveinssonar, á meðan Hafsilfur er í
eigu föður hans, Benedikts Sveinsson-
ar. Þeir bræður eru sömuleiðis eigend-
ur N1 og var Bjarni stjórnarformaður
þess og BNT þar til í desember í fyrra
þegar hann ákvað að hætta til að ein-
beita sér alfarið að stjórnmálunum.
Bjarni hefur sömuleiðis upplýst að
um tíma hafi hann átt 1 pró-
sents hlut í BNT.
SJ2 átti sömuleiðis tæplega helm-
ingshlut í Mætti en félög Einars og
Benedikts Sveinssona áttu tæplega
helmingshlut á móti því. Því má segja
að Wernersbræður og þeir Sveins-
synir og Bjarni hafi eftir kaupin af
Sjóvá átt fasteignaverkefnið í Makaó.
SJ Properties MacauOneCentral
HoldCo ehf. átti fasteignaverkefnið
í Makaó jafnframt í gegnum einka-
hlutafélagið Drakensberg Invest-
ment Ltd. sem skráð er á Bresku Jóm-
frúareyjum.
Sjóvá lánaði Vafningi 10
milljarða
Heimildir DV herma að sama dag
og Vafningur skrifaði undir kaup-
samning við SJ-fasteignir um kaupin
á Makaó-félaginu hafi Bjarni Bene-
diktsson fengið fullt og óskorað um-
boð frá Hafsilfri, Hrómundi og BNT
til að veðsetja eignarhluti fjölskyldu-
félaganna þriggja í Vafningi hjá Glitni
banka. Ekki er vitað hvort Bjarni nýtti
sér þetta umboð eða ekki en þó má
áætla að það hafi ekki verið veitt að
ástæðulausu heldur vegna viðskipt-
anna með eignirnir í Makaó.
Um svipað leyti, í lok febrúar
2008, lánaði Sjóvá Vafningi 10 millj-
arða króna með víkjandi láni. Ástæð-
an fyrir því að lánið var víkjandi er sú
hversu stóran þátt Sjóvá og eigendur
félagsins, þeir Karl og Steingrímur,
áttu í félaginu. Nánast má fullyrða að
nota átti lánið til að greiða fyrir kaup
Vafnings á félaginu í Makaó sem hélt
utan um eignina á lúxusturninum.
Ástæðan fyrir því er sú að Vafningur
var stofnaður til þess eins, að því er
virðist, að kaupa fasteignaverkefnið í
Makaó af SJ-fasteignum.
Önnur tengsl Vafnings við eign-
arhaldsfélög tengd þeim bræðrum
Steingrími og Karli eru meðal annars
að á eina stjórnarfundi eignarhalds-
félagsins Svartháfs, sem DV hefur
greint ítarlega frá upp á síðkastið, í
ársbyrjun 2008, var ákveðið að lána
50 milljónir evra til Vafnings ehf.,
eða sem nemur tæpum 5 milljörð-
um króna. Hugsanlegt er að
Bjarni hafi fengið umboðið frá BNT,
Hrómundi og Hafsilfri til að veðsetja
hlutabréfin í Vafningi vegna lánsins
sem veitt var til félagsins í gegnum
Svartháf.
Vafningur hefur því fengið sam-
tals að minnsta kosti um 15 milljarða
króna að láni frá Sjóvá og Glitni um
þetta leyti og notaði félagið rúmlega
5 milljarða til að fjárfesta í fasteigna-
verkefninu sem dótturfélag Sjóvár
hafði átt eitt fram að því. Afar líklegt er
að afskrifa þurfi meirihluta þeirra fjár-
muna sem Vafningur fékk að láni þar
sem Milestone skilur eftir sig skulda-
slóð upp á marga tugi milljarða auk
þess sem engar eignir eru inni í Svart-
háfi svo vitað sé en skuldir þess félags
nema um 45 milljörðum króna.
2 miðvikudagur 9. desember 2009 fréttir
Tengsl Wernersbræðra og Engeyinga
Bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir og Einar og Benedikt Sveinssynir
hafa átt mikil viðskipti sín á milli á undanförnum árum. Einar Sveinsson var
forstjóri Sjóvár og Benedikt bróðir hans var stjórnarformaður tryggingafélagsins.
Árið 2003 keyptu bræðurnir hina svokölluðu H. Ben. fjölskyldu út úr Sjóvá en
fjölskyldurnar tilheyra báðar hinni frægu Engeyjarætt. Íslandsbanki var hins
vegar stærsti hluthafinn. Næsta nótt varð síðan fræg sem „Nótt hinna löngu
bréfahnífa“. Þá gerðu stærstu fjármálafyrirtæki landsins með sér samkomulag
sem breytti landslaginu í íslensku viðskiptalífi. Eitt af því sem samið var um var
að Íslandsbanki eignaðist ellefu prósenta hlut Burðaráss í Sjóvá. Bankinn gerði
í kjölfarið yfirtökutilboð í Sjóvá. Seldu Einar og Benedikt Sveinssynir hlut sinn í
Sjóvá og eignuðust í staðinn hlut í Íslandsbanka. Hætti Einar Sveinsson fljótlega
sem forstjóri Sjóvár og tók Þorgils Óttar Mathiesen við af honum.
Árið 2005 keypti félagið Þáttur, í eigu Karls, Steingríms og Ingunnar Werners-
barna, 66,6 prósenta hlut í Sjóvá af Íslandsbanka. Var Þór Sigfússon þá gerður að
forstjóra Sjóvár. Einar Sveinsson og Karl Wernersson sátu í stjórn Íslandsbanka og
síðar Glitnis þar til FL Group undir forystu Hannesar Smárasonar og Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar náði yfirtökunum í Glitni. Var Einar stjórnarformaður bankans.
Svartháfur
Tekin var ákvörðun um það á einum og sama stjórnarfundinum í eignarhalds-
félaginu Svartháfi í upphafi árs 2008 að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán
frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum króna á núverandi gengi, og
endurlána það svo til félaga í eigu Karls og Steingríms Wernerssona.
Lánið sem Svartháfur endurlánaði strax til eignarhaldsfélaga í þeirra eigu var
svo notað til að greiða hluta skuldar við fjárfestingabankann Morgan Stanley
upp á 300 milljónir evra, sem nemur um 55 milljörðum króna á núverandi gengi.
Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitandi Milestone og fjármagnaði
hluta útrásar fyrirtækisins til annarra landa.
Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, Werners Rasmusson, er einn af
stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að
skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúgan hluta þeirrar fjárhæðar. Glitnir veitti
Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dagsetning er ekki þekkt. Á sama
stjórnarfundi hjá Svartháfi í ársbyrjun 2008 var ákveðið að lána 50 milljónir evra
til félagsins Vafnings ehf., eða sem nemur tæpum 5 milljörðum króna. Eigendur
Vafnings voru þeir bræður Einar og Benedikt Sveinssynir og Bjarni, sonur
Benedikts og formaður Sjálfstæðisflokksins. Það skýtur skökku við að Werners-
bræður sem ekki gátu greitt af eigin lánum hafi séð sér fært að lána félagi í eigu
Engeyjarfjölskyldunnar fimm milljarða króna.
BJARNI MEÐ Í KAUPUM
Á LÚXUSTURNI Í MAKAÓ
fréttir 30. nóvember 2009 mánudagur 11
Tekin var ákvörðun um það á ein-
um og sama stjórnarfundinum
í eignarhaldsfélaginu Svartháfi
í fyrra að sækja um tæplega 200
milljóna evra lán frá Glitni, eða
sem nemur rúmum 35 milljörðum
króna á núverandi gengi, og end-
urlána það svo aftur til félaga í eigu
Karls og Steingríms Wernerssona.
Lánið sem Svartháfur endur-
lánaði strax aftur til eignarhalds-
félaga í þeirra eigu var svo notað
til að greiða hluta skuldar við fjár-
festingabankann Morgan Stanley
upp á 300 milljónir evra, sem nem-
ur um 55 milljörðum króna á nú-
verandi gengi. Morgan Stanley var
einn helsti erlendi lánveitandi Mil-
estone og fjármagnaði hluta útrás-
ar fyrirtækisins til annarra landa.
Svartháfur, sem var í eigu föður
þeirra bræðra, Werners Rasmus-
sonar, er einn af stærri skuldurum
Glitnis með skuldir upp á um 45
milljarða króna og er ljóst að skila-
nefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúg-
an hluta þeirrar fjárhæðar. Glitn-
ir veitti Svartháfi lánið í ársbyrjun
2008 en nákvæm dagsetning er
ekki þekkt.
Sótt um lán og endurlánað
Heimildir DV herma að á stjórn-
arfundinum í Svartháfi, sem hald-
inn var í höfuðstöðvum Milestone
á Suðurlandsbraut 12, hafi verið
gerður lánasamningur við Glitni
sem nam um 200 milljónum evra.
Einnig var ákveðið að lána ætti tæp-
lega 140 milljónir evra til sænska
félagsins Racon Holding AB, sem
var dótturfélag Milestone og lán-
takandi Morgan Stanley. Veðið fyr-
ir láni Svartháfs til Racon Holding
AB var í hlutabréfum í sænska fjár-
málafyrirtækinu Invik & Co., síðar
Moderna AB. Racon notaði lánið
svo til að borga Morgan Stanley.
Jafnframt var ákveðið á stjórn-
arfundinum að lána 50 milljónir
evra til félags sem heitir Vafning-
ur ehf., sem einnig var
í eigu þeirra bræðra og
til húsa á Suðurlands-
braut 12. Ekki er vitað
til að aðrir stjórnar-
fundir hafi verið haldn-
ir í Svartháfi.
Lán upp í skuld
Milestone
Veðið fyrir láninu frá
Glitni til Svartháfs var
í eignarhaldsfélaginu
Moderna AB en eignir
Milestone voru seld-
ar inn í það félag um
áramótin 2007-2008.
Glitnir hefur nú leyst
til sín eignir Mod-
erna, meðal annars
Sjóvá og Askar Capi-
tal, og fékk bank-
inn þar eitthvað upp
í kröfuna á hendur
Svartháfi en ljóst er
að afskrifa þarf stóran hluta henn-
ar.
Milestone stofnaði til lánsins,
sem Racon borgaði síðar upp með
láninu frá Svartháfi, við Morgan
Stanley sumarið 2007 og var það
notað til að festa kaup á sænska
fjármálafyrirtækinu Invik & Co,
sem síðar var endurskírt Moderna
Finance AB.
Lánið frá Glitni sem rann inn í
Svartháf var því notað til að standa
við skuldbindingar sem Milestone
stofnaði til fyrir hönd dótturfélags
síns.
Leppurinn Svartháfur
Á þessum tíma, í ársbyrjun 2008, er
líklegt að Morgan Stanley hafi ver-
ið orðinn órólegur um að lán Rac-
on fengist ekki greitt og að þeir hafi
ekki viljað endurnýja lánasamning-
inn. Ástæðan kann meðal annars
að hafa verið sú að þá þegar voru
blikur á lofti um að mikil lægð væri
yfirvofandi í íslensku efnahags-
lífi og má áætla að Morgan Stan-
ley hafi því kippt að sér höndum.
Milestone hefur því hugsanlega
átt í erfiðleikum með að standa í
skilum við Morgan Stanley, önnur
fjármálafyrirtæki hafa ekki viljað
lána þeim og því hafi þeir orðið að
verða sér úti um lán með einhverj-
um hætti.
Heimildir DV renna því stoð-
um undir þá kenningu að eini til-
gangurinn með stofnun Svartháfs
hafi verið að leppa lánveitingu frá
Glitni, sem síðar rann til félaga
Wernerssona sjálfra. Ástæðan fyr-
ir Svartháfssnúningnum var sú að
félög í beinni eigu þeirra bræðra
máttu ekki fá meira lánað hjá Glitni
samkvæmt reglum sem Fjármála-
eftirlitið hefur sett um hámarks-
lánveitingar til einstakra aðila.
Ástæðan fyrir þessum reglum er til
að lágmarka áhættu bankans: Ekki
er heppilegt fyrir banka að eiga of
miklar útistandandi skuldir við
einstaka fyrirtækjasamstæðunnar.
Ekki er vitað hver það var innan
Glitnis sem tók ákvörðunina um að
veita Svartháfi þetta lán en líkt og
gildir í fjármálafyrirtækjum með
svo háar lánveitingar en lána- og
áhættunefndir fjármálafyrirtækja
taka yfirleitt ákvarðanir um svo
háar lánveitingar.
IngI F. VILhjáLMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
LEPPUR BORGAÐI
SKULD MILESTONE
2 miðvikudagur 14. október 2009 fréttir
Glitnir þarf að afskrifa stóran hluta af45 milljarða króna skuld eignarhalds-félagsins Svartháfs við bankann, sam-kvæmt heimildum DV. Krafa Glitnis á hendur Svartháfi nam 45 milljörðum króna í sumar en samkvæmt heimild-um DV var hún gerð upp í lok sum-ars. Líklegast er að krafan hafi verið gerð upp með miklum afföllum fyrir bankann. Skuld Svartháfs er meðal ann-ars tilkomin vegna þess að félagið, sem er í eigu Werners Rasmusson, föður Karls og Steingríms Werners-sona, fyrrverandi eigenda eignar-haldsfélagsins Milestone, tók lán hjá Glitni í fyrra upp á 20 milljarða króna til að lána eignarhaldsfélagi í eigu bræðranna fyrir skuld við fjárfest-ingabankann J.P. Morgan. Svartháfur hét áður ELL 150 og Gleypnir og var stofnað af ErlendiGíslasyni og Gunnari Sturlusyni hjá lögmannsstofunni Logos í janúar árið 2008, samkvæmt stofnskjölum
félagsins. Svartháfur er skráður til heimilis á Suðurlandsbraut 12, líkt og flest önnur eignarhaldsfélög þeirra bræðra, en lögheimili þess var skráðí Jötunssölum 2, heimili Werners föð-ur þeirra, þar til í apríl í fyrra þegarlögheimilið var fært á Suðurlands-brautina. Svartháfur hefur ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2008.
Nafnabreytingar í ársbyrjunÍ febrúar 2008 voru Werner Rassmus-son og kona hans Kristín Sigurðar-dóttir kjörin í stjórn og varastjórn félagsins. Nafni félagsins var á sama tíma breytt úr ELL 150 í Svartháfur.Í tilkynningu til Fyrirtækjaskrár um breytinguna á stjórninni er hins veg-ar strikað yfir nafnið Gleypnir með penna og nafnið Svartháfur sett í staðinn, eins og félagið hafi átt að heita Gleypnir en að svo hafi því ver-ið breytt á síðustu stundu. Lögheim-ili Svartháfs var svo fært frá Jötuns-sölum á Suðurlandsbraut 12 í apríl í fyrra, samkvæmt tilkynningu til Fyr-irtækjaskrár sem aðstoðarforstjóri Milestone, Jóhannes Sigurðsson, skrifaði undir ásamt Werner Rasm-usson. Tengsl Svartháfs og Milestone
eru því nokkur þó eigendurnir hafi ekki verið þeir sömu.45 milljarða skuld Svartháfs stend-ur utan við þá rúmlega 43,9 milljarða króna skuld sem Milestone skilur eft-ir inni í Glitni. Skuldir þessara tveggja félaga og dótturfélaga þeirra við Glitni nema því nærri 90 milljörðum króna. Heildarskuldir Milestone nematæpum 80 milljörðum króna og var gert ráð fyrir því í nauðasamningum félagsins, sem hefur verið hafnað, að kröfuhafarnir fengju um 6 prósent upp í kröfur sínar en eignir félags-ins voru einungis metnar á um fimm milljarða. Því má reikna með að feðg-arnir, Werner, Steingrímur og Karl, eigi ekki til þær upphæðir persónu-lega sem til þarf til að greiða skuldirSvartháfs, enda er ekki vitað til þessað einhver þeirra sé í persónulegumábyrgðum vegna skuldanna.
Greiddu niður lán til J.P. MorganSkuldir Svartháfs við Glitni eru með-al annars tilkomnar vegna þess aðskömmu eftir að félagið tók uppnafnið Svartháfur í febrúar í fyrra tók félagið lán frá Glitni upp á um 20 milljarða króna til að greiða lán Rac-on Holdings II, sem eignarhaldsfélag Karls og Steingríms, Milestone, réð í gegnum annað eignarhaldsfélag sitt,Þátt, við fjárfestingarbankann J.P. Morgan. Lán Racon hjá J.P. Morgan var tilkomið út af kaupum Racon á fé-lagi sem hét Innvik, sem síðar var endurskírt Moderna Finance AB. Á þeim tíma var J.P. Morgan hins veg-ar orðinn órólegur um að lán Racon fengist ekki greitt og vildu ekki end-urnýja lánasamninginn þegar hann gjaldféll, ástæðan var meðal annars að þá þegar voru blikur á lofti í ís-lensku efnahagslífi og kippti bank-inn því að sér höndum með því að neita að endurnýja lánasamninginn. Fjárfestingafélagið Gnúpur, sem var í eigu Kristins Björnssonar og Magn-
úsar Kristinssonar, hafði lent í erf-iðleikum í árslok 2007 og eru þeir fjárhagserfiðleikar af mörgum tald-ir marka upphaf íslenska efnahags-
hrunsins. Því þurftu eigendur Rac-on, Karl og Steingrímur, að finna aðrar leiðir til að greiða J.P. Morgan lánið.
Wernerssona
Karl Wernersson
GLITNIR ÞARF AÐ AFSKRIFA SKULDIR WERNERSMANNA
HvAÐ ER SvARTHáFUR?Svartháfur er eignarhaldsfélag sem stofnað var í ársbyrjun árið 2008. Heimildir DV herma að það hafi verið stofnað í ársbyrjun til að fá lán til að greiða skuldir félags í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Félagið er í eigu Werners, föður þeirra, og var lögheimili þess heima hjá honum. Heimilisfang Svartháfs er hins vegar í fyrrverandi höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12. Félagið skuldar Glitni 45 milljarða króna og hefur átt sér stað uppgjör á skuldinni. Ekki er vitað hvernig uppgjörið var gert en afar ólíklegt er að skuldin hafi verið greidd upp að fullu. Því má búast við að eitthvað hafi verið afskrifað af skuldunum.Félagið dregur nafn sitt af lítilli hákarlategund sem kallast Svartháfur eða Black Dogfish á ensku. Svartháfurinn lifir á miklu dýpi, 180 til 1.600 metrum, og er ekki talinn mannýgur. Heimkynni hans eru aðallega í Vestur- og Norður-Atlantshafi, meðal annars við strendur Grænlands og Íslands. Svartháfurinn er, eins og nafnið gefur til kynna, svartur á lit og hafa augu hans aðlagast myrkrinu á hafsbotninum. Því getur hann séð betur í myrkri en aðrar hákarlategundir. Ekki er vitað af hverju Svartháfsnafnið var valið fyrir félagið.Eitt af mörgum ELL-félögumSvartháfur, áður ELL 150, er einungis eitt af mörgum félögum sem upphaflega hafa borið nafnið ELL sem lögmannsstofan Logos hefur stofnað á liðnum árum. Annað dæmi um slíkt félag er ELL 182 sem Logos stofnaði og seldi til Bakka-bræðra, Lýðs og Ágústs Guðmundssona. ELL 182 keypti síðar hlut Exista, sem er í meirihlutaeigu þeirra bræðra, í Bakkavör í fyrrahaust en fyrir áttu þeir meirihluta í Bakkavör. Salan hefur valdið miklum deilum meðal kröfuhafa og eigenda Exista en kröfuhafarnir hafa kært eigendur Exista fyrir hana. Bæði ELL 150 og ELL 182 hafa nú skipt um nafn líkt og sum önnur þeirra ELL-félaga sem Logos hefur selt á liðnum árum.
Werner hefur áður komið við söguWerner Rasmusson, faðir Karls og Steingríms, hefur áður komið við sögu í umfjöllun fjölmiðla um viðskipti þeirra bræðra. Þannig greindi DV frá því í september að í endurskoðendaskýrslu Ernst & Young um Milestone hefði verið bent á að félagið hefði greitt skatta fyrir Werner upp á 8,5 milljónir króna. Skiptastjóri þrotabús Milestone, Grímur Sigurðsson, þarf meðal annars að taka afstöðu til þess hvort sú greiðsla hafi verið eðlileg. Werner kom hins vegar af fjöllum þegar DV spurði hann um skattgreiðslurnar. Ekki er vitað hvort Werner hafi vitað til hvers Svartháfur var notaður en undirskrift hans er á samþykktum félagsins sem DV hefur undir höndum.
INGI F. VILhJáLMssoNblaðamaður skrifar ingi@dv.is
stórskuldugt félag Félag í eigu föður Karls og Steingríms Wernerssona, Svartháfur, skuldar Glitni 45 milljarða króna sem ekki er lengur að finna í lánabókum bankans. Karl Wernersson vill ekki ræða um hvernig skuldin hafi verið gerð upp.
heimkynni svartháfs Eignarhaldsfélagið Svartháfur er skráð til heimilis á Suðurlandsbraut 12 en þar voru höfuðstöðvar Milestone áður en félagið fór í greiðslu-stöðvun og var síðar tekið til gjaldþrotaskipta.
Tíu prestar skrifuðu undir bréf sem þeir sendu Karli Sigurbjörnssyni, biskupi Íslands, nýverið þar sem þeir skoruðu á hann að fara eftir lögum landsins. Það ætti biskup að gera með því að hleypa séra Gunnari Björnssyni aftur í stól sóknarprests á Selfossi. Til enn frekari stuðnings við séra Gunnar hefur verið boðað til stuðningsfundar á föstudagskvöld.ákærum um kynferðislega misnotkun ungra sóknarbarna hans. Biskupinn hefur aftur á móti verið hikandi í afgreiðslu þess hvort Gunnar fái að snúa aftur í sitt gamla starf og því hefur presturinn verið í leyfi fram til þessa. Leyfi Gunnars rennur út á morgun, fimmtudag, og þá ætti hann að snúa aftur, á 65 ára afmælisdegi sínum. Heimildir DV herma aftur á móti að Biskupsstofa leiti sátta við séra Gunnar og verið sé að finna honum annað starf. Biskupi getur reynst erfitt að færa Gunnar nema með samþykki hans og því er beðið átekta með hver viðbrögð prestsins verða.
UPPREISN GEGN BISKUPI
Traublaðamaður skrifar:
„Jafnt og þétt er þetta heldur að aukast, það er alveg klárt. Það er töluvert að streyma inn til okkar núna,“ segir Karl Sigurðsson, sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun. Hann bendir þó á að heldur minna hafi verið um atvinnuleysi í síðasta mánuði en óttast var.Hjá Vinnumálastofnun hefur verið nóg að gera undanfarið og nokkur aukning hefur verið síðustu vikur. Undanfarna daga hafa nærri 50 einstaklingar skráð sig á atvinnuleysisskrá hjá stofnuninni dag hvern og nú er svo komið að tæplega fimmtán þúsund einstaklingar eru á skrá, 14.909 eintaklingar nánar tiltekið. Aðspurður segir Karl fleiri karla skrá sig þessa dagana en konur. Hann reiknar þó með breytingu á því á næstunni. „Það eru aðallega eldri
Karlar streyma inn á skrárnar
Lánuðu ekki til venslaðra aðilaÁstæðan fyrir því að Svartháfur fékk lánið frá Glitni var sú að á þessum tíma voru eigendur Milestone, þeir Karl og Steingrímur, og félög í beinni og óbeinni eigu þeirra búnir að full-nýta lánaheimildir sínar hjá Glitni, að sögn heimildarmanns DV sem þekkir vel til viðskipta Karls og Stein-gríms. Bræðurnir voru hluthafar í Glitni á þessum tíma. „Til þess að fara í kringum þetta lánaði Glitnir þessu félagi [Innskot blaðamanns: Svart-háfi] þessa peninga. Þetta félag lánaði þessa peninga svo til Racon Holdings II og voru þeir notaðir til að greiða upp skuldina við J.P. Morgan. Glitnir greiddi því í raun upp skuldina við J.P. Morgan en fór þennan hring til þess. Eftir stóð hins vegar skuld Svartháfs við Glitni,“ segir heimildarmaður DV en ekki er vitað að svo stöddu hvern-ig hinir milljarðarnir bættust ofan á þessa tuttugu. Heimildarmaður DV segir að þetta hafi þótt vera í lagi vegna þess að í lagalegum skilningi hafi félagið í eigu Werners, Svartháfur, ekki verið skil-greint sem venslaður aðili við Karl og Steingrím. Félag í eigu föður Karls og Steingríms gat því fengið lánið þó svo að félög í þeirra eigu gætu það ekki út af hinum fullnýttu lánaheimildum.Karl tjáir sig ekkiKarl Wernersson vill aðspurður og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaða-manns ekki ræða um málefni Svart-háfs í samtali við DV. Því var lögð spurning fyrir hann í SMS-skeyti þar sem hann var spurður hvað hefði orð-ið um 45 milljarða skuld Svartháfs. Hann var spurður hvernig hefði ver-ið gengið frá þessari skuld og hvers vegna. Svar Karls við þessari fyrir-spurn var: „Hver er fréttin?“ DV náði ekki aftur sambandi við Karl eftir þetta.Ekki náðist í bróður Karls, Stein-grím, né í föður hans, Werner Rasmus-son, við vinnslu fréttarinnar. Að svo stöddu liggur því ekki almennilega fyrir hvernig skuldin við Glitni var gerð upp.
ekki rætt í gögnum um MilestoneEkkert er rætt um málefni Svartháfs og láns félagsins hjá Glitni í gögnum um Milestone sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum, endurskoðendaskýrslu Ernst & Young og skýrslu umsjónar-manns nauðasamninga félagsins, Jó-hannesar Alberts Sævarssonar. Ástæðan fyrir þessu er sú að mál-efni Svartháfs tengjast ekki beint málefnum Milestone af áðurnefnd-um ástæðum, jafnvel þó að pening-arnir sem Svartháfur fékk að láni hjá Glitni hafi verið notaðir til að lána fé-lagi í eigu Milestone-manna svo það gæti staðið í skilum við erlent fjár-málafyrirtæki. Hvorki Jóhannes né endurskoðendurnir höfðu aðgang að bókhaldi Racon Holdings II, félags-ins sem fékk lánið frá Svartháfi, og því ekki rannsakað lánveitingarnar til og frá Svartháfi.Samkvæmt heimildum DV veltu kröfuhafar Milestone hins vegar mik-ið fyrir sér himinháum lánveitingum frá Glitni til félagsins áður en nauða-samningum Milestone var hafnað og félagið var tekið til gjaldþrotaskipta fyrir skömmu. Ekki er því ólíklegt að málefni Svartháfs muni koma við sögu í framtíðinni hjá kröfuhöfum Milestone og kunna lánaviðskipti fé-lagsins að hafa einhver eftirmál.
Í eigu föður Wernerssona Félagið Svartháfur er skráð á Werner Rasmusson, föður Karls og Steingríms. Félagið virðist hafa verið stofnað gagngert til að taka við láni frá Glitni upp á 20 milljarða sem bræðurnir gátu ekki tekið.
14. október 2009
Allt ákveðið í einu Samkvæmt
heimildum DV var ákveðið á
hluthafafundi Svartháfs að sækja
um lán og endurlána það strax aftur
til dótturfélaga Milestone. Faðir
Karls Wernerssonar, annars eiganda
Milestone, var eigandi Svartháfs.
„Lánið frá Glitni sem
rann inn í Svartháf
var því notað til að
standa við skuld-
bindingar sem
Milestone stofnaði
til fyrir hönd dóttur-
félags síns.”
Opið: má-fö. 12-18, Opið á laugard. til jóla frá 12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið
Félög í eigu fjölskyldu Bjarna Benediktssonar voru stórir hluthafar í félaginu Vafningi
sem keypti fasteignaverkefni Sjóvár í Makaó í fyrra. Bjarni fékk heimild til að veðsetja
hlutabréfin í Vafningi. Vafningur átti Makaó-verkefnið í gegnum félag á Bresku Jóm-
frúareyjum. Sjóvá fjármagnaði líklega kaup Vafnings með 10 milljarða láni.
IngI F. VIlhjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Um svipað leyti, í lok
febrúar 2008, lánaði
Sjóvá Vafningi 10 millj-
arða króna með víkj-
andi láni.“
DV 30. nóvember Werner Rasmusson
leppaði lán fyrir syni sína gegnum
Svartháf. 45 milljarða skuld félagsins við
Glitni verður líklega afskrifuð.
fréttir 9. desember 2009 miðvikudagur 3
Ætluðu sér að selja fljótlega
Upphaflega ástæðan fyrir fjárfest-
ingu Sjóvár í Makaó var sú að félag-
ið reiknaði með því að fasteignaverð
í Makaó myndi hækka gríðarlega á
árunum 2006 til 2010. Til að mynda
hækkaði fasteignaverð í héraðinu
um 35 prósent að meðaltali á árinu
2007. Reiknað var með áframhald-
andi hækkun næstu árin þar á eftir
enda hefur borgin verið kölluð hin
asíska Las Vegas. Sjóvá ætlaði sér svo
að selja lúxusturninn með nærri 8
milljarða króna hagnaði, miðað við
gengi krónunnar í febrúar 2008, áður
en framkvæmdunum myndi ljúka -
kaupverðið var 110 milljónir Banda-
ríkjadala en söluverðið átti að vera
185 milljónir.
Væntanlega hefur Sjóvá viljað
dreifa áhættunni af fjárfestingunni á
fyrstu mánuðum ársins 2008 og því
búið Vafning til með þátttöku BNT,
Hafsilfurs og Hrómundar. Auk þess
er ekki ólíklegt að yfirvofandi þreng-
ingar á fjármálamarkaði hafi átt þar
hlut að máli.
Fjárfesting félaganna þriggja í
Makaó-verkefninu hefur jafnframt
verið áhættulítil enda voru lánin
inn í Vafning veitt af Sjóvá, sem var
í eigu Wernersbræðra, og af Glitni,
en bræðurnir og Einar og Benedikt
Sveinssynir voru sömuleiðis hluthaf-
ar í bankanum í gegnum Þátt Inter-
national sem þeir áttu sömuleiðis
ásamt Karli og Steingrími.
Benedikt man ekki eftir
viðskiptunum
DV náði ekki tali af Bjarna Bene-
diktssyni á þriðjudaginn, til að spyrja
hann út í viðskipti Vafnings, þrátt fyr-
ir ítrekaðar tilraunir. Skilin voru eftir
skilaboð til Bjarna á talhólfi hans og
hjá aðstoðarmanni
formannsins, Sig-
urði Kára Kristj-
ánssyni.
Benedikt
Sveinsson, fað-
ir Bjarna, sagð-
ist aðspurður
hafa dregið sig
út úr fjárfest-
ingum og
ekki muna
eftir þess-
um við-
skiptum
Vafnings
með fast-
eigna-
verkefn-
ið í Makaó.
Hann gat
því ekki greint
frá því hvernig viðskipt-
in gengu. Heimildir DV herma að
Benedikt hafi ekki komið mikið að
viðskiptunum, jafnvel þótt félag hans
hafi verið óbeinn hluthafi í Vafningi,
enda var Bjarni sonur hans með um-
boðið til að ráðstafa hlutabréfum fé-
lagsins í Vafningi.
Sömuleiðis voru skilin eftir skila-
boð til Einars Sveinssonar en hann
hafði ekki haft samband við DV þeg-
ar blaðið fór í prentun í gær.
Þess skal að lokum getið að Vafn-
ingur ehf. er ekki til í dag nema sem
kennitala því nafni félagsins hefur
verið breytt í Földungur ehf.
Eignarhald
á Vafningi:
SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir)
48,8 prósent
Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar
Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins-
son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl.
og Sáttur/Guðmundur Ólason)
39,1 prósent
Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2,
Hrómundur, Hafsilfur)
12,1 prósent
Asíska Las Vegas Makaó er
annað af tveimur kínverskum
sjálfstjórnarhéruðum. Hitt
er Hong Kong sem er í
nágrenni Makaó. Héraðið
hefur verið kallað hin asíska
Las Vegas og er ört vaxandi
ferðamannastaður þar sem
sterkefnað fólk kemur til að
njóta lífsins í vellystingum,
meðal annars með því að
spila fjárhættuspil.
Fjárfestu í Makaó Bjarni Benedikts-
son og faðir hans og föðurbróðir keyptu
fasteignaverkefni Sjóvár af dótturfélagi
þess fyrir rúma 5 milljarða króna í
febrúar 2008. Þeir áttu fasteignaverkefnið
í gegnum félagið Vafning og aflandsfélag á
Bresku Jómfrúareyjum.
Eignarhald á turninum
í Makaó:
Vafningur ehf. - 100 prósent
SJ Properties MacauOneCentral
HoldCo ehf. - 100 prósent
Drakensberg Investments Limited
á Bresku Jómfrúareyjum - 100 prósent
Turninn í Makaó
Fjórir bræður Vafningur var að mestu
leyti í eigu þeirra Wernersbræðra
og Einars og Benedikts Sveinssona.
Tryggingafélagið Sjóvá seldi fasteigna-
verkefnið í Makaó til félagsins Vafnings
sem var í eigu dótturfélags Sjóvár og
félaga í eigu Engeyjarbræðranna
Einars og Benedikts Sveinssona.
Sjóvá, sem var í eigu Karls og
Steingríms Wernerssona, lánaði
Vafningi 10 milljarða króna um
þetta leyti.
14 föstudagur 11. desember 2009 fréttir
„Ég hef aldrei komið nálægt neinni
ákvörðun um að taka þátt í fast-
eignaverkefni í Makaó,“ segir Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins og fyrrverandi stjórnar-
formaður BNT og N1, um aðkomu
sína að eignarhaldsfélaginu Vafn-
ingi sem meðal annars fjárfesti í fast-
eignaverkefni Sjóvár í Makaó í byrjun
febrúar í fyrra fyrir rúma fimm millj-
arða króna. BNT og félögin Hafsilfur
og Hrómundur, sem eru í eigu föður
og föðurbróður Bjarna, voru hluthaf-
ar í félaginu, líkt og greint var frá í DV
á miðvikudaginn, og fékk Bjarni um-
boð til að veðsetja hlutabréf þeirra
allra í félaginu sama dag og Vafning-
ur keypti fasteignaverkefnið.
Bjarni vissi hins vegar vel að fé-
lögin væru hluthafar í Vafningi þrátt
fyrir að hann neiti því að hafa vitað
að félagið hafi keypt fasteignaverk-
efni Sjóvár. Hann segir að Vafningur
hafi ekki einungis verið stofnaður til
að halda utan um fasteignaverkefnið
heldur til að endurfjármagna lán fyr-
ir hluthafa þess. Að sögn Bjarna var
ekki langur aðdragandi að stofnun
Vafnings og var það ekki forgangs-
mál að ganga frá því að BNT gerðist
hluthafi í Vafningi.
Formaðurinn segir jafnframt að
áhætta félaganna þriggja af fjárfest-
ingunni í Vafningi hafi verið lítil þar
sem þau hafi ekki lagt fram eigin-
fjárframlög og að félagið hafi verið
fjármagnað með lánsfé. Hluthafar
Vafnings hefðu þó getað grætt millj-
arða ef fjárfestingin hefði gengið eft-
ir. Svo varð hins vegar ekki og í kjöl-
far efnahagshrunsins varð ljóst að
fasteignaverkefnið í Makaó myndi
skila miklu tapi, meðal annars vegna
falls eignarhaldsfélagsins Milestone
sem átti Sjóvá. Íslenska ríkið þurfti,
í kjölfar hrunsins, að bjarga Sjóvá
frá gjaldþroti með 12 milljarða eig-
infjárframlagi. Sjóvá var síðan losað
út úr fasteignaverkefninu í sumar og
varð tapið af fjárfestingunni í Makaó
á fjórða milljarð króna fyrir félagið.
Þegar ráðist var í fjárfestinguna hefði
Vafningur hins vegar getað grætt vel
á henni.
Bjarni kom því að því að ákveða
þátttöku BNT, og hugsanlega einn-
ig hinna félaganna tveggja, í Vafn-
ingi og virðist hafa verið fullkomlega
meðvitaður um tilgang félagsins þó
svo að hann hafni því að hafa haft
eitthvað að segja um fjárfestingar fé-
lagsins í Makaó.
Bjarni: Bræðurnir ekki á
landinu
Aðspurður af hverju hann hafi feng-
ið umboð frá félögunum þremur
sem voru í eigu fjölskyldu hans –
BNT, Hrómundi og Hafsilfri – til að
veðsetja hlutabréfin í Vafningi sama
dag og félagið keypti turninn í Mak-
aó segir Bjarni: „Nei, ég vissi ekkert af
því á hvaða tímapunkti þessar eign-
ir fluttust inn í Vafning,“ segir Bjarni
sem samkvæmt þessu vissi ekki að á
sama tíma og hann fékk umboðið var
félag, sem var að hluta til í eigu ætt-
ingja hans sem og félags sem hann
var stjórnarformaður og hluthafi í,
að festa kaup á fasteignaverkefni í
Makaó fyrir rúma fimm milljarða
króna. Daginn áður en Vafningurinn
keypti fasteignaverkefnið í Makaó
seldi Milestone eignarhaldsfélaginu
Mætti 12,1 prósents hluta í Vafningi
fyrir rúmar 60 þúsund krónur og var
Bjarni einn af þeim sem gat skrifað
undir samninginn fyrir hönd Máttar.
„Þeir [Benedikt og Einar, innsk.
blaðamanns] voru ekki staddir á
landinu og báðu mig um það fyr-
ir sína hönd að skrifa undir ákveð-
inn veðsamning þar sem þeir voru
að veðsetja hlutabréfin sín í félag-
inu... Þetta var veðsamningur sem
gerður var við bankann vegna lána
sem bankinn hafði veitt félaginu,“
segir Bjarni en BNT, Hrómundur og
Hafsilfur voru í eigu föður Bjarna,
Benedikts Sveinssonar, og föður-
bróður hans, Einars. „Þegar eigend-
ur þessara hlutabréfa í Vafningi óska
IngI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
HÖFÐU ENGU AÐ TAPA
Bjarni Benediktsson segist ekki hafa vitað að Vafningur fjárfesti í fasteignaverkefni í
Makaó. Hann víkur sér ekki undan ábyrgð á Vafningi þar sem hann hafi verið stjórn-
arformaður BNT, eins hluthafa félagsins. Bjarni segir tilgang Vafnings hafa verið að
endurfjármagna lán og að Engeyingar hafi ekki hafa lagt fram eigið fé í Vafning.
Eignarhald
á Vafningi:
SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir)
48,8 prósent
Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar
Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins-
son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl.
og Sáttur/Guðmundur Ólason)
39,1 prósent
Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2,
Hrómundur, Hafsilfur)
12,1 prósent
one Central í makaó
Kaup Vafnings á eignarhaldsfélaginu sem hélt utan um háhýsið í fasteignaverk-
efninu One Central í Makaó gengu í gegn í febrúar 2008. Félagið hafði áður verið
að fullu leyti í eigu dótturfélags Sjóvár en komst við eigendaskiptin í eigu annars
dótturfélags tryggingafélagsins og eignarhaldsfélaga sem tengjast Engeyjar-
frændunum: Einari, Benedikt og Bjarna.
Kaupverðið var rúmir 5 milljarðar króna en turninn á að vera 41 hæð með tæp-
lega 70 íbúðum. Íbúar háhýsisins áttu að hafa aðgang að 5 hæða hárri íþrótta- og
tómstundamiðstöð með 50 metra sundlaug, spa, fullkomnum líkamsræktarsal og
ýmsum íþróttavöllum.
Hugmyndin hjá Sjóvá og síðar Vafningi var að eiga háhýsið í skamman tíma og
selja það síðan með hagnaði upp á rúmlega 8 milljarða króna þar sem áætlað var
að fasteignaverð í héraðinu myndi rjúka upp. Eigendur byggingarinnar gátu því
grætt mikla fjármuni ef það hefði gengið sem skyldi.
svartháfur
Tekin var ákvörðun um það á einum og sama stjórnarfundinum í eignarhalds-
félaginu Svartháfi í upphafi árs 2008 að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán
frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum króna á núverandi gengi, og
endurlána það svo til félaga í eigu Karls og Steingríms Wernerssona.
Lánið sem Svartháfur endurlánaði strax til eignarhaldsfélaga í þeirra eigu var
svo notað til að greiða hluta skuldar við fjárfestingabankann Morgan Stanley
upp á 300 milljónir evra, sem nemur um 55 milljörðum króna á núverandi gengi.
Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitandi Milestone og fjármagnaði
hluta útrásar fyrirtækisins til annarra landa.
Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, Werners Rasmusson, er einn af
stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að
skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúgan hluta þeirrar fjárhæðar. Glitnir veitti
Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dagsetning er ekki þekkt. Á sama
stjórnarfundi hjá Svartháfi í ársbyrjun 2008 var ákveðið að lána 50 milljónir evra
til félagsins Vafnings ehf., eða sem nemur tæpum 5 milljörðum króna. Eigendur
Vafnings voru þeir bræður Einar og Benedikt Sveinssynir og Bjarni, sonur
Benedikts og formaður Sjálfstæðisflokksins. Það skýtur skökku við að Werners-
bræður sem ekki gátu greitt af eigin lánum hafi séð sér fært að lána félagi í eigu
Engeyjarfjölskyldunnar fimm milljarða króna.
Eignarhald á turninum
í makaó:
Vafningur ehf. - 100 prósent
sj Properties macauoneCentral
holdCo ehf. - 100 prósent
Drakensberg Investments limited
á Bresku jómfrúareyjum - 100 prósent
Turninn í makaó
„Menn eru að endurfjármagna
lán og það er það sem er aðal-
ástæðan fyrir þátttöku þessara
félaga í Vafningi.“
Bjarni veðsetti Vafning Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk umboð frá BNT, Hrómundi og Hafsilfri til að veðsetja hlutabréf þeirra í eignarhaldsfélagi sem meðal annars keypti lúxusturn í Makaó sama dag og umboðin eru dagsett. Umboðin þrjú sjást hér á myndunum.
14. októbe 2009 30. nóv m r 2009 9. desemb r 2009 11. dese be 2009
Lýst sem nytsömum sakleysingja
Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri
Sjóvár, var nytsamur sakleysingi í
höndunum á forstjóra og stjórnarfor-
manni Milestone, Guðmundi Ólasyni, og
Karli Wernerssyni, samkvæmt vitnisburði
Steingríms í rannsókn sérstaks saksókn-
ara á Milestone og Sjóvá.
MILESTONE
YFIRHEYRSLURNAR 1. HLUTI