Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 20. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 11 gefist upp á reyna að fylgjast með því sem var að gerast í tryggingafélaginu. Samkvæmt vitnisburði Steingríms mun Þór Sigfússon því einfaldlega hafa verið einhvers konar nytsam- ur sakleysingi og að þeir Milestone- menn hafi litið á hann sem slíkan og ráðið hann til starfa af því að þeir gátu stjórnað honum. Heimildir DV herma að Steingrím- ur hafi klykkt út með því að hann teldi að bótasjóði Sjóvár hefði einfaldlega verið stýrt frá skrifstofu Guðmundar Ólasonar í höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbrautinni. Guðmundur og Karl hafi tekið við fjárfestingum Sjó- vár eftir að sá starfsmaður Sjóvár sem sá um þær hafi verið látinn fara frá fé- laginu. Steingrímur mun meðal annars af þessum ástæðum hafa sagt að Guð- mundur og Karl hafi keyrt Milestone í þrot ásamt Jóhannesi Sigurðssyni að- stoðarforstjóra félagsins. Skemmdirnar á húsi Steingríms Vitnisburður Steingríms þykir trú- legur, að því er heimildir DV herma, en verið er að kanna aðkomu hans að rekstri Milestone hjá saksóknara. Vitnisburður Steingríms og önnur at- riði rannsóknarinnar benda sterklega til að hann hafi haft lítið að segja um rekstur Milestone jafnvel þó að hann hafi verið á góðum launum sem starfs- maður samstæðunnar. Af öllu framansögðu verður að telja líklegt að Steingrímur hafi að ósekju verið tengdur við meint efna- hagsbrot í umfjöllun- um um rann- sóknina á Milestone og Sjóvá, þrátt fyrir að hann hafi verið skráður fyr- ir 40 pró- senta hlut í Mile- stone á móti Karli. Ástæðan er sú að rannsóknin á málinu er farin að leiða það í ljós að hann kom lítið sem ekkert að rekstri eignar- haldsfélagsins og virðist því ekki hafa stjórnað fé- laginu með Karli. Hús Steingríms hefur verið atað málningu í skjóli nætur og segja heimildarmenn DV, sem þekkja til reksturs Mile- stone, að hann eigi alls ekki skil- ið að honum sé kennt um hvern- ig Milestone var stjórnað. Sam- kvæmt heim- ildum DV hefur þetta, af skiljanleg- um ástæðum, far- ið afskaplega fyrir brjóstið á Steingrími og mun hann tengja umfjöllun fjölmiðla um Milestone-málið beint við þær skemmdir sem unnar hafa verið á hús- inu hans. BRÓÐIR MINN ER „EINRÆÐISHERRA“ n Samkvæmt heimildum DV var eitt af því sem Stein- grímur sagði í yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara það að hann hefði viljað láta reka Tryggva Þór Herberts- son, forstjóra Askar Capital, eftir að hann var búinn að vera forstjóri bankans í nokkra mánuði, það er á fyrri hluta árs 2007. Benedikt Árnason, núverandi forstjóri Askar, mun hafa verið ráðinn undirmaður Tryggva um áramótin 2007-2008 til að hafa hemil á honum því forstjórinn hafði fljótlega misst tökin á vexti bankans og fjárfestingastefnu hans eftir því sem Steingrímur mun hafa sagt í skýrslu- tökunni hjá saksóknara. Tryggvi hætti hins vegar ekki hjá Askar fyrr en sumarið 2008, eftir að hann hafði fengið tilboð um að gerast efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar. Steingrímur og Tryggvi Þór Stjórnaði án Steingríms Samkvæmt vitnisburði Steingríms Wernerssonar hjá sérstökum saksóknara stjórnaði Karl Wernersson eignarhaldsfélaginu Milestone og dótturfélögum þess án hans aðkomu. 14 föstudagur 11. desember 2009 fréttir „Ég hef aldrei komið nálægt neinni ákvörðun um að taka þátt í fast- eignaverkefni í Makaó,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð- isflokksins og fyrrverandi stjórnar- formaður BNT og N1, um aðkomu sína að eignarhaldsfélaginu Vafn- ingi sem meðal annars fjárfesti í fast- eignaverkefni Sjóvár í Makaó í byrjun febrúar í fyrra fyrir rúma fimm millj- arða króna. BNT og félögin Hafsilfur og Hrómundur, sem eru í eigu föður og föðurbróður Bjarna, voru hluthaf- ar í félaginu, líkt og greint var frá í DV á miðvikudaginn, og fékk Bjarni um- boð til að veðsetja hlutabréf þeirra allra í félaginu sama dag og Vafning- ur keypti fasteignaverkefnið. Bjarni vissi hins vegar vel að fé- lögin væru hluthafar í Vafningi þrátt fyrir að hann neiti því að hafa vitað að félagið hafi keypt fasteignaverk- efni Sjóvár. Hann segir að Vafningur hafi ekki einungis verið stofnaður til að halda utan um fasteignaverkefnið heldur til að endurfjármagna lán fyr- ir hluthafa þess. Að sögn Bjarna var ekki langur aðdragandi að stofnun Vafnings og var það ekki forgangs- mál að ganga frá því að BNT gerðist hluthafi í Vafningi. Formaðurinn segir jafnframt að áhætta félaganna þriggja af fjárfest- ingunni í Vafningi hafi verið lítil þar sem þau hafi ekki lagt fram eigin- fjárframlög og að félagið hafi verið fjármagnað með lánsfé. Hluthafar Vafnings hefðu þó getað grætt millj- arða ef fjárfestingin hefði gengið eft- ir. Svo varð hins vegar ekki og í kjöl- far efnahagshrunsins varð ljóst að fasteignaverkefnið í Makaó myndi skila miklu tapi, meðal annars vegna falls eignarhaldsfélagsins Milestone sem átti Sjóvá. Íslenska ríkið þurfti, í kjölfar hrunsins, að bjarga Sjóvá frá gjaldþroti með 12 milljarða eig- infjárframlagi. Sjóvá var síðan losað út úr fasteignaverkefninu í sumar og varð tapið af fjárfestingunni í Makaó á fjórða milljarð króna fyrir félagið. Þegar ráðist var í fjárfestinguna hefði Vafningur hins vegar getað grætt vel á henni. Bjarni kom því að því að ákveða þátttöku BNT, og hugsanlega einn- ig hinna félaganna tveggja, í Vafn- ingi og virðist hafa verið fullkomlega meðvitaður um tilgang félagsins þó svo að hann hafni því að hafa haft eitthvað að segja um fjárfestingar fé- lagsins í Makaó. Bjarni: Bræðurnir ekki á landinu Aðspurður af hverju hann hafi feng- ið umboð frá félögunum þremur sem voru í eigu fjölskyldu hans – BNT, Hrómundi og Hafsilfri – til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi sama dag og félagið keypti turninn í Mak- aó segir Bjarni: „Nei, ég vissi ekkert af því á hvaða tímapunkti þessar eign- ir fluttust inn í Vafning,“ segir Bjarni sem samkvæmt þessu vissi ekki að á sama tíma og hann fékk umboðið var félag, sem var að hluta til í eigu ætt- ingja hans sem og félags sem hann var stjórnarformaður og hluthafi í, að festa kaup á fasteignaverkefni í Makaó fyrir rúma fimm milljarða króna. Daginn áður en Vafningurinn keypti fasteignaverkefnið í Makaó seldi Milestone eignarhaldsfélaginu Mætti 12,1 prósents hluta í Vafningi fyrir rúmar 60 þúsund krónur og var Bjarni einn af þeim sem gat skrifað undir samninginn fyrir hönd Máttar. „Þeir [Benedikt og Einar, innsk. blaðamanns] voru ekki staddir á landinu og báðu mig um það fyr- ir sína hönd að skrifa undir ákveð- inn veðsamning þar sem þeir voru að veðsetja hlutabréfin sín í félag- inu... Þetta var veðsamningur sem gerður var við bankann vegna lána sem bankinn hafði veitt félaginu,“ segir Bjarni en BNT, Hrómundur og Hafsilfur voru í eigu föður Bjarna, Benedikts Sveinssonar, og föður- bróður hans, Einars. „Þegar eigend- ur þessara hlutabréfa í Vafningi óska IngI F. VIlhjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is HÖFÐU ENGU AÐ TAPA Bjarni Benediktsson segist ekki hafa vitað að Vafningur fjárfesti í fasteignaverkefni í Makaó. Hann víkur sér ekki undan ábyrgð á Vafningi þar sem hann hafi verið stjórn- arformaður BNT, eins hluthafa félagsins. Bjarni segir tilgang Vafnings hafa verið að endurfjármagna lán og að Engeyingar hafi ekki hafa lagt fram eigið fé í Vafning. Eignarhald á Vafningi: SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir) 48,8 prósent Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins- son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl. og Sáttur/Guðmundur Ólason) 39,1 prósent Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2, Hrómundur, Hafsilfur) 12,1 prósent one Central í makaó Kaup Vafnings á eignarhaldsfélaginu sem hélt utan um háhýsið í fasteignaverk- efninu One Central í Makaó gengu í gegn í febrúar 2008. Félagið hafði áður verið að fullu leyti í eigu dótturfélags Sjóvár en komst við eigendaskiptin í eigu annars dótturfélags tryggingafélagsins og eignarhaldsfélaga sem tengjast Engeyjar- frændunum: Einari, Benedikt og Bjarna. Kaupverðið var rúmir 5 milljarðar króna en turninn á að vera 41 hæð með tæp- lega 70 íbúðum. Íbúar háhýsisins áttu að hafa aðgang að 5 hæða hárri íþrótta- og tómstundamiðstöð með 50 metra sundlaug, spa, fullkomnum líkamsræktarsal og ýmsum íþróttavöllum. Hugmyndin hjá Sjóvá og síðar Vafningi var að eiga háhýsið í skamman tíma og selja það síðan með hagnaði upp á rúmlega 8 milljarða króna þar sem áætlað var að fasteignaverð í héraðinu myndi rjúka upp. Eigendur byggingarinnar gátu því grætt mikla fjármuni ef það hefði gengið sem skyldi. svartháfur Tekin var ákvörðun um það á einum og sama stjórnarfundinum í eignarhalds- félaginu Svartháfi í upphafi árs 2008 að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum króna á núverandi gengi, og endurlána það svo til félaga í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Lánið sem Svartháfur endurlánaði strax til eignarhaldsfélaga í þeirra eigu var svo notað til að greiða hluta skuldar við fjárfestingabankann Morgan Stanley upp á 300 milljónir evra, sem nemur um 55 milljörðum króna á núverandi gengi. Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitandi Milestone og fjármagnaði hluta útrásar fyrirtækisins til annarra landa. Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, Werners Rasmusson, er einn af stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúgan hluta þeirrar fjárhæðar. Glitnir veitti Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dagsetning er ekki þekkt. Á sama stjórnarfundi hjá Svartháfi í ársbyrjun 2008 var ákveðið að lána 50 milljónir evra til félagsins Vafnings ehf., eða sem nemur tæpum 5 milljörðum króna. Eigendur Vafnings voru þeir bræður Einar og Benedikt Sveinssynir og Bjarni, sonur Benedikts og formaður Sjálfstæðisflokksins. Það skýtur skökku við að Werners- bræður sem ekki gátu greitt af eigin lánum hafi séð sér fært að lána félagi í eigu Engeyjarfjölskyldunnar fimm milljarða króna. Eignarhald á turninum í makaó: Vafningur ehf. - 100 prósent sj Properties macauoneCentral holdCo ehf. - 100 prósent Drakensberg Investments limited á Bresku jómfrúareyjum - 100 prósent Turninn í makaó „Menn eru að endurfjármagna lán og það er það sem er aðal- ástæðan fyrir þátttöku þessara félaga í Vafningi.“ Bjarni veðsetti Vafning Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk umboð frá BNT, Hrómundi og Hafsilfri til að veðsetja hlutabréf þeirra í eignarhaldsfélagi sem meðal annars keypti lúxusturn í Makaó sama dag og umboðin eru dagsett. Umboðin þrjú sjást hér á myndunum. fréttir 11. desember 2009 föstudagur 15 eftir því við mig að ég sjái um að veð- setja hlutabréf þeirra í félaginu fyrir þeirra hönd þá geri ég ekkert annað en það og tek engar aðrar ákvarðanir um neitt annað... Þeir gátu ekki farið í bankann þennan dag til að veðsetja bréfin sín í Vafningi. Það var bara verið að ganga frá endurfjármögnun lána í bankanum og það þurfti bara að gerast þennan dag... Ég myndi líka vilja fullyrða við þig að eigend- ur Hafsilfurs [Benedikt faðir Bjarna, innsk. blaðamanns] - ég skal ekki segja með hann Einar því ég hef ekki rætt þetta við hann - hafa aldrei tekið ákvörðun um að kaupa eða veðsetja nokkuð varðandi eignir í Makaó. Þú verður að ræða þetta mál við stjórn- armennina í Vafningi. Ég hef aldrei setið þar í stjórn og ekki komið ná- lægt málinu,“ segir Bjarni sem bætir því við aðspurður að hann ætli ekki að tjá sig um það fyrir hverju hluta- bréfin í Vafningi hafi verið veðsett. „Ég ætla bara ekkert að tjá mig um það.“ Hugsanlegt er hins vegar að þetta hafi verið gert sem veð á móti tæp- lega 5 milljarða króna láni frá Glitni inn í eignarhaldsfélagið Svartháf, sem var í eigu föður Karls og Stein- gríms Wernerssona, sem síðan var endurlánað strax aftur til Vafnings á fyrstu mánuðum 2008. Eini tilgang- ur Svartháfs var að vera leppur fyr- ir frekari lánveitingar frá Glitni til þeirra Wernerssona. Vafningur fékk enn fremur 10 milljarða króna víkj- andi lán frá Sjóvá síðar í febrúar. Ljóst er að kaup Vafnings á lúxusturninum voru fjármögnuð með einhverju af þessum lánveitingum. Turninn innlegg Wernersbræðra Aðspurður af hverju BNT, Hafsilfur og Hrómundur hafi þá tekið ákvörð- un um að kaupa turninn í Makaó í gegnum Vafning segir Bjarni að þeir hafi ekki gert það: „Það er stjórn Vafnings sem hefur gert það,“ segir Bjarni. Þegar Bjarni er spurður hvort þeir hafi ekki komið að ákvörðuninni um það að kaupa turninn því þeir hafi verið stórir hluthafar í Vafningi segir Bjarni: „Ég sat aldrei í stjórn þar... Vafningur snýst um meira en það að fara með eignarhald á þessum turni. Þetta eru eignir sem Werners- bræður leggja inn í félagið sín meg- in frá og þær koma okkur bara ekk- ert við,“ segir Bjarni en blaðamaður segir þá við hann að auðvitað komi þessar eignir þeim við þar sem þeir hafi verið hluthafar í Vafningi sem keypti turninn í Makaó. Bjarni virðist þó vera á annarri skoðun. Stjórnarmenn Vafnings, sem síð- ar var endurskírður Földungur, voru hins vegar starfsmenn Milestone, þeir Guðmundur Ólason og Jóhann- es Sigurðsson, og virðast þeir því hafa tekið ákvarðanir fyrir hönd fé- lagsins sem byggðu á vilja eigenda Milestone, þeirra Karls og Steingríms Wernerssona, sem samtals réðu yfir meirihluta í Vafningi þó eignarhlut- ir Engeyjarmannanna væru stórir. Þetta skýrir þó ekki af hverju félög- in þrjú í kringum Bjarna, Einar og Benedikt ákváðu að taka þátt í félag- inu til að byrja með. Snerist um endurfjármögnun lána Aðspurður af hverju BNT, Hafsilf- ur og Hrómundur hafi ákveðið að taka þátt í Vafningi og hvort hann hafi komið að þeirri ákvörðun seg- ist Bjarni ekki hafa gert það: „Það er ekki hægt að segja að þetta sé ákvörðun sem hafi átt sér neinn sér- stakan aðdraganda. Þetta er mál sem var inni á borði hjá forstjóranum [hjá BNT eða N1, innsk. blaðamanns] og þetta er meira frágangsmál en nokk- uð annað,“ segir Bjarni. Aðspurður hvort hann hafi þá komið að því að ákveða það fyrir hönd BNT að gerast hluthafi í Vafningi segir Bjarni: „Ég skýst aldrei undan ábyrgð á því sem ég skrifa undir fyrir hönd þess félags sem ég sit í stjórn fyrir,“ segir Bjarni sem undirstrikar að þetta þýði þó ekki að hann hafi haft vitneskju um að Vafningur væri að kaupa turninn í Makaó. Bjarni virðist þó hafa kvittað upp á þátttöku BNT í Vafningi sem stjórnarformaður félagsins. Þegar blaðamaður segir við Bjarna að hann hafi ekki neina trú á því að Vafningur hafi ákveðið að kaupa turninn í Makaó án vitundar Bjarna og hluthafa félaganna þriggja segir hann: „Þú hefur ekki heildaryf- irsýn yfir það sem menn eru að gera á þessum tíma. Menn eru að end- urfjármagna lán og það er það sem er aðalástæðan fyrir þátttöku þess- ara félaga í Vafningi. En ég tók aldrei ákvörðun um að félagið tæki þátt í fjárfestingunum í Makaó. Mér var ekki kunnugt um að Vafningur væri að fara að taka yfir þessar fjárfesting- ar í Makaó,“ segir Bjarni. Það sem Bjarni vísar líklega til með þessum orðum er að í ársbyrj- un stóðu ýmis íslensk eignarhalds- félög eins og FL Group og Milestone frammi fyrir því að þurfa að endur- fjármagna lán sem tekin höfðu verið hjá erlendum fjármálafyrirtækjum. Vegna væntanlegrar lægðar á fjár- málamörkuðum og sökum þess að þá þegar voru blikur á lofti í íslensku efnahagslífi kipptu erlend fjármála- fyrirtæki að sér höndum og neituðu að endurnýja lánasamninga við ís- lensk félög. Þetta gerðist til að mynda með Milestone sem þurfti að endurfjár- magna lán hjá fjárfestingarbank- anum Morgan Stanley í ársbyrjun 2008. Vegna þess að Milestone gat ekki fengið meira að láni frá Glitni var búið til félag sem hét Svartháf- ur og var í eigu föður eigenda Miles- tone. Þetta félag endurlánaði féð frá Glitni strax til félags í eigu Milestone sem gat þar með greitt af láninu. Og Svartháfur lánaði Vafningi sömuleið- is. Hugsanlegt er, þegar litið er til orða Bjarna, að ástæðan fyrir stofn- un Vafnings hafi verið tengd ein- hverjum slíkum snúningi af hálfu Milestone og jafnvel N1-manna. Bjarni óbeinn hluthafi í Vafningi Aðspurður hvort hann hafi ekki sjálf- ur átt hlutabréf í BNT á þessum tíma segir Bjarni: „Jú, en það er langt síð- an... Ekki eftir þennan tíma. Ég seldi þennan eignarhluta minn í BNT á fyrsta ársfjórðungi ársins 2008, í síð- asta lagi í mars 2008. En þetta hefur ekkert með hlutabréfin mín í BNT að gera,“ segir Bjarni sem var því sam- kvæmt þessu hluthafi í BNT þegar Vafningur keypti fasteignaverkefnið í Makaó. „En hvað kemur mér það við þó BNT eigi lítinn hlut í þessu fé- lagi?“ segir Bjarni sem var, eins og áður segir, stjórnarformaður í BNT og N1 þegar Vafningur keypti fast- eignaverkefnið í Makaó. Bjarni: Ekkert eiginfjárframlag Bjarni segir að hlutabréfaeign sín í BNT hafi ekki haft neitt með fast- eignaverkefnið í Makaó að gera. „Hversu mikið heldur þú að BNT hafi sett inn í þetta félag af eignum sínum? Hefur þú einhverja hugmynd um það?“ segir Bjarni. „Ætli þessi viðskipti hafi því haft einhver áhrif á verðmæti þess eignarhlutar sem ég átti í BNT á þeim tíma?“ Hann segir að mikilvægt sé að halda því til haga að félögin hafi ekki endilega verið að kaupa sig inn í Vafning: „Þú segir að þeir hafi ver- ið að kaupa sig inn í þetta? Hvern- ig keyptu þeir sig inn í þetta? Með hvaða eiginfjárframlagi? Hverjir eru að hætta einhverju til?“ segir Bjarni. Blaðamaður segir við Bjarna að hann átti sig á því að ólíklegt sé að þeir hafi lagt eitthvert eigið fé fram í viðskiptunum: „Það er ólíklegt að þið hafið lagt eitthvað fram í þessum við- skiptum,“ segir blaðamaður en svar Bjarna við þeirri fullyrðingu er „ein- mitt“. Blaðamaður segir við Bjarna að það sé augljóst að viðskipti Vafnings hafi verið fjármögnuð að langmestu leyti með lánum frá Glitni, Sjóvá og Svartháfi. „Já, en það allt saman er eitthvað sem ég var bara aldrei neitt inni í,“ segir Bjarni en jafnframt er ljóst að hluthafar Vafnings hefðu get- að grætt fúlgur fjár á turninum ef við- skiptin hefðu gengið sem skyldi - þá hefðu þeir fengið mikið fyrir lítið. Bjarni segist ekki vita hversu miklu BNT, Hafsilfur og Hrómund- ur hafi tapað á viðskiptunum í Vafn- ingi en samkvæmt því sem segir hér að framan getur það ekki hafa ver- ið mjög mikið þó ábyrgð félaganna á fasteignaverkefni Vafnings sé aug- ljóslega töluverð, hvort sem þeir vissu af því eða ekki, þar sem þeir áttu stóran hlut í því. Stóra spurningin sem stendur eftir varðandi aðkomu Bjarna Bene- diktssonar að fasteignaverkefninu í Makaó er hversu mikið hann vissi um það. Bjarni segist ekki hafa vitað að Vafningur hefði fjárfest í Makaó fyrr en nokkrum mánuðum eftir að það átti sér stað, þrátt fyrir að hann hafi verið stjórnformaður í hluthafa félagsins og að hann hafi veðsett hlutabréf þess. Vafningur til að endurfjármagna lán Bjarni segir að tilgangurinn með stofnun Vafnings hafi meðal annars verið að endurfjármagna lán og að hann hafi ekki vitað að félagið hefði keypt háhýsi á Makaó fyrir fimm milljarða króna sama dag og hann veðsetti hlutabréf í því. Sérlega glæsilegir úr satin og blúndu Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Laugavegi 178, 105 Rvk sími 551-3366 www.misty.is Teg. Emma - “Push up” í B,C,D skálum á kr. 6.885 Teg. Emma - “Push up” í D,DD,E,F,FF skálum á kr. 6.885,- Teg.Emma Teg. Emma Opið virka daga kl. 10-18 lau 12.des kl. 10-16 lau 19.des kl. 10-18 Þorláksmessa kl. 10-20 days30 OXYTARM OXYTARM 30 days Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman 120 töflu skammtur Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is. Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar & DETOX 2 mánudagur 14. desember 2009 fréttir Sama dag og eignarhaldsfélagið Vafningur keypti fasteignafélag sem hélt utan um byggingu lúxusíbúða- turnar í Makaó í Asíu fyrir rúma fimm milljarða króna í febrúar í fyrra festi félagið kaup á rúmlega 82 prósenta hlut í breska fjárfestingasjóðnum KCAJ LLP fyrir 5,4 milljarða króna. Í báðum tilfellum seldu dótturfélag Sjóvár, sem var í eigu Milestone, fé- lögin til Vafnings. Forstjóri Vafnings, Guðmundur Ólason, skrifaði undir kaupsaminginn um viðskiptin með KCAJ fyrir hönd dótturfélags Sjóvár, SJ2, sem og fyrir hönd Vafnings. Milestone var jafnframt meiri- hlutaeigandi í Vafningi áfram í gegn- um dótturfélag Sjóvár en næststærstu hluthafarnir voru eigendur N1, Einar og Benedikt Sveinssynir. Vafningur fjárfesti því fyrir 10,6 milljarða sama daginn. Fjárfestingasjóðurinn KCAJ var stofnaður af Jóni Scheving Thor- steinssyni, fyrrverandi starfsmanni Baugs, árið 2006. Á þeim tíma var sagt að sjóðurinn ætti að verða ein- hvers konar mini-Baugur. Sjóðurinn fjárfesti í ýmsum verslunum á Bret- landseyjum, meðal annars Cruise, Duchamp, Aspinal of London, Jones Bootmaker og útivistarversluninni Mountain Warehouse. Milestone keypti sig svo inn í sjóðinn og átti rúm 82 prósent í honum þegar Vafn- ingsviðskiptin áttu sér stað í fyrra. Kaupin á félögunum tveimur voru að öllum líkindum fjármögnuð með láni frá tryggingafélaginu Sjó- vá Almennum upp á 10,6 milljarða króna. Vafningur skrifaði upp á lána- samning við Sjóvá í lok febrúar 2008, þremur vikum eftir að félagið hafði keypt fasteignaverkefnið í Makaó og breska fjárfestingasjóðinn. Ástæðan fyrir því að þetta er líklegt er meðal annars sú að lánsupphæðin frá Sjó- vá er nákvæmlega jafnhá og kaup- verð Makaó-fasteignaverkefnisins og breska fjárfestingasjóðsins. Eigendur Milestone og Sjóvár á þessum tíma voru bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir. Bjarni veðsetti vegna tveggja Glitnislána Líkt og DV greindi frá í síðustu viku veðsetti Bjarni Benediktsson, þáver- andi stjórnarformaður eins hluthafa í Vafningi, BNT, og núverandi for- maður Sjálfstæðisflokksins, hluta- bréf BNT, Hrómundar og Hafsilfurs í Vafningi sama dag og félagið fjárfesti í fasteignaverkefninu í Makaó. Við þetta bætist nú að Vafningur fjárfesti einnig í breska fjárfestingasjóðnum þennan sama dag. Heimildir DV herma að Bjarni hafi veðsett bréfin í Vafningi vegna lánafyrirgreiðslu frá Glitni sem geng- ið var frá 29. febrúar 2008, sama dag og félagið fékk 10,6 milljarðana að láni frá Sjóvá. Um var að ræða tvö lán frá Glitni til Vafnings, samkvæmt heimildum DV. Tók engar ákvarðanir Aðspurður segir Bjarni, um hvort hann hafi vitað að Vafningur fjárfesti í breska fjárfestingasjóðnum þann sama dag og hann fékk umboð til að veðsetja hlutabréf félagsins, að svo hafi ekki verið. „Ég tók engar ákvarð- anir fyrir hönd þessa félags. Ég kom ekkert nálægt þeim ákvörðunum sem áttu sér stað þennan dag,“ seg- ir Bjarni. Aðspurður hvort hann hafi sem sagt ekki vitað að félag sem hon- um tengdist hafi fjárfest fyrir meira en 10 milljarða króna sama dag seg- ir Bjarni: „Að sjálfsögðu ekki. Ég kom ekkert nálægt þeirri ákvarðanatöku um þá endurfjármögnun sem var að eiga sér stað á þessum tíma. Þess vegna vissi ég ekki hvaða gerningar lágu þarna að baki. Ég kom einungis að þeim gerningi að veðsetja hluta- bréfin fyrir hönd þeirra sem á þeim héldu. Aðrir voru að vinna í end- urfjármögnuninni í samvinnu við bankann,“ segir Bjarni. Hvorki Bjarni né faðir hans segjast hafa vitað neitt Staðan á málinu er því sú að hvorki Bjarni né faðir hans, Benedikt Sveinsson, segjast hafa komið að því að ákveða þátttöku félaga þeim tengdum í Vafningi þrátt fyrir að hafa verið stór- ir hluthafar í félaginu. Benedikt segist heldur ekkert kann- ast við félag- ið, enda benda heimildir DV ekki til þess að hans aðkoma að félaginu og viðskiptum þess hafi verið bein. „Ég bara man þetta ekki, ég kem þessu ekki fyr- ir mig. Ég er hættur í viðskiptum, ég er búinn að draga mig út úr hlutum,“ segir Benedikt. Aðspurður hvort hans aðkoma að félaginu hafi ver- ið einhver segir Benedikt að svo hafi ekki verið. Því virðist það vera svo, sam- kvæmt því sem þeir feðgar segja, að hvorki Bjarni né faðir hans hafi tekið ákvörðun um það fyrir hönd Hafsilf- urs að taka þátt í Vafningi jafnvel þó félagið hafi verið stór hluthafi í Vafn- ingi í gegnum Skeggja og Mátt og þó Bjarni hafi veðsett bréf Vafnings sama daga og viðskipti þess upp á 10,6 milljarða áttu sér stað. Vantaði 10 milljarða í eignasafn Sjóvár Líkt og Morgunblaðið greindi frá í maí á þessu ári veðsettu eigendur Sjóvár bótasjóð tryggingafélagsins og vantaði að minnsta kosti 10 milljarða króna í eignasafn félagsins til að eig- infjárhlutafall félagsins teldist vera jákvætt. Í frétt Morgunblaðsins kom fram að Sjóvá hefði því ekki uppfyllt þær lágmarkskröfur um gjaldþol til að geta starfað sem tryggingafélag lögum samkvæmt. Jafnframt kom fram í fréttinni að bótasjóður Sjó- vár hefði verið 23 milljarðar í lok árs 2007. Í júlí í sumar kom svo fram að ís- lenska ríkið hefði þurft að leggja Sjó- vá til 12 milljarða króna til að bjarga félaginu frá gjaldþroti en ástæðuna fyrir slælegri stöðu félagsins má hvað helst rekja til fjárfestinga þess er- lendis. Tekið skal fram að um lán var að ræða sem á að greiðast aftur inn- an 18 mánaða eða þegar tryggingafé- lagið verður selt. Viðskipti Sjóvar, Milestone og Vafnings voru að öllum líkindum hluti af þeim fjárfestingum sem knés- ettu Sjóvá enda munar um minna þegar nærri 11 milljarðar króna eru lánaðir frá félaginu til að fjármagna fjárfestingar erlendis. Einn af heim- ildarmönnum DV segir að nær úti- lokað annað en að „peningarnir sem Sjóvá lánaði inn í Vafning hafi verið komnir beint eða óbeint úr bótasjóði félagsins“. Sérstakur saksóknari efnahags- hrunsins, Ólafur Hauksson, hefur rannsakað viðskipti Sjóvár og Mil- estone síðustu mánuði. Meðal þess sem er til skoðunar eru veðsetning- in á bótasjóðnum og ástæðurnar fyr- ir gríðarlegu tapi Milestone á síðasta ári. Vafningur keyptur degi áður Annað sem er áhugavert í Vafn- ingsmálinu er að Milestone selur væntanlegum hluthöfum Vafnings, SJ2, Skeggja og Mætti, hluti í félag- inu 7. febrúar í fyrra, degi áður en viðskiptin með turninn í Makaó og breska fjárfestingasjóðinn fara fram og degi áður en Bjarni fær umboðið til að veðsetja bréfin í fé- laginu. Því er ljóst að aðdragandinn að stofnun Vafnings og þeirra viðskipta sem félagið átti í hefur ekki verið langur. Vafningur átti svo ekki í öðr- um félögum og virðist hafa verið stofnað gagngert til að eiga í viðskipt- um með turninn í Makaó og breska fjárfestingasjóðinn. Bjarni Benediktsson sagði í viðtali við DV á föstudaginn að Vafningur hefði verið stofnað í þeim tilgangi að endurfjár- magna lán. Blaðið hefur ekki áttað sig almenni- lega á því af hverju félagið var sett á laggirnar til að kaupa þessar eignir af dótturfélagi Sjóvár og af hverju eig- endur N1 tóku þátt í því. Þó herma heimildir DV að líklegt sé að þeir hafi gerst hluthafar í Vafningi því þeir hafi viljað græða á fjárfestingum félags- ins. Vafningur fjárfesti fyrir 10,6 milljarða króna sama dag og Bjarni Benediktsson veðsetti hlutabréf félagsins í fyrra. Félagið keypti breskan fjárfestingasjóð, KCAJ, og fasteignaverkefni í Makaó. Bjarni veðset i bréf Vafnings út af tveimur lánum frá Glitni sem veitt voru í febrúarlok. Bjarni segist ekki hafa vitað um fjárfest- ingu Vafnings í KCAJ frekar en í turninum í Makaó. Sjóvá veitti Vafningi 10,6 milljarða lán í lok febrúar í fyrra. VAFNINGUR Í BRESKRI ÚTRÁS InGI F. VIlHjálmSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is „Ég tók engar ákvarð- anir fyrir hönd þessa félags. Ég kom ekkert nálægt þeim ákvörð- unum sem áttu sér stað þennan dag.“ Eignarhald á Vafningi: SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir) - 48,8 prósent Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins- son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl. og Sáttur/Guðmundur Ólason) - 39,10 prósent Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2, Hrómundur, Hafsilfur) - 12,1 prósent Bjarni kjörinn í stjórn máttar: Bjarni Benediktsson var kjörinn í stjórn fjárfestingafélagsins Máttar á stjórnarfundi hjá félaginu sem hald- inn var í höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12 22. ágúst árið 2007. Aðrir sem kjörnir voru í stjórn félagsins voru þeir Einar Sveinsson, föðurbróðir Bjarna, Karl Wernersson og Guðmundur Ólason. Faðir Bjarna átti 16 prósenta hlut í félaginu þegar þetta var. Tæpu hálfu ári síðar fjárfesti Máttur í fasteignaverkefni í Makaó og fjárfestingasjóði í Bretlandi fyrir 10,6 milljarða króna. 10,6 milljarða viðskipti Eignarhaldsfélagið Vafningur fjárfesti í lúxusturni í Makaó sem og í breskum fjárfestingasjóði í febrúar í fyrra fyrir 10,6 milljarða króna. Bjarni Benediktsson segist ekki hafa vitað um fjárfestingar félagsins þrátt fyrir að hafa veðsett hlutabréf Vafnings sama dag og þær áttu sér stað. Skrifaði undir fyrir báða Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone og stjórnarmaður í Vafningi, skrifaði undir kaupsamninginn að KACJ fyrir hönd dótturfélags Sjóvár, SJ2, sem og Vafnings. Bræðurnir í Vafningi Karl og Steingrímur Wernerssynir og Einar og Benedikt Sveinssynir voru eigendur Vafnings sem fékk 10,6 milljarða lán frá tryggingafélaginu Sjóvá og fjárfesti í Makaó í Asíu sem og í Bretlandi. fréttir 14. desember 2009 mánudagur 3 Vissi Bjarni ekkert um viðskiptin í Makaó eða með KCAJ?: n Stjórnarformaður BNT sem var hluthafi í Skeggja n Hluthafi í BNT sem var hluthafi í Skeggja n Stjórnarmaður í Mætti sem var hluthafi í Vafningi n Sonur hluthafa í Skeggja, BNT og Mætti sem voru hluthafar í Vafningi n Veðsetti hlutabréf BNT, Hrómund- ar og Hafsilfurs í Vafningi Tímaás um viðskipti tengd Vafningi í febúar 2008: 7. febrúar Milestone selur væntanlegum hluthöfum í Vafningi hluti í félaginu 8. febrúar Eignarhaldsfélagið Vafningur kaupir fasteignafélag í Makaó af dótturfélagi Sjóvár fyrir 5,2 milljarða 8. febrúar Eignarhaldsfélagið Vafningur kaupir breskan fjárfestingasjóð, KCAJ, af dótturfélagi Sjóvár fyrir 5,4 milljarða 8. febrúar Bjarni Benediktsson fær umboð frá föður sínum og frænda til að veðsetja hlutabréf BNT, Hafsilfurs og Hrómundar í Vafningi 29. febrúar Vafningur gerir lána- samning við Sjóvá upp á 10,6 milljarða króna 29. febrúar Vafningur gerir tvo lánasamninga við Glitni- banka. Líklegt að Bjarni hafi veðsett Vafningsbréf- in út af þessum lánum Jan-Feb. Vafningur fær tæpa 5 milljarða að láni frá eignarhaldsfélaginu sem var í eigu föður Karls og Steingríms Wernerssona Peningar ríkisins ekki tapaðir: DV greindi frá því á föstudaginn að turninn í Makaó kosti hvern skatt- greiðanda á Íslandi um 10.000 krónur þar sem tap Sjóvár í Makaó hafi verið um 3,2 milljarðar króna. Íslenska ríkið lagði 12 milljarða króna inn í Sjóvá í sumar til að bjarga félaginu frá þroti þar sem minnst 10 milljarða króna vantaði í eignasafn þess. Lán ríkisins er til 18 mánaða og á Sjóvá að greiða lánið til baka innan þess tíma, hugsanlega eftir að félagið verður selt á næstunni. Þá mun ríkissjóður væntanlega fá peningana til baka og ríkið og íslenskir skattgreiðendur munu ekki tapa á björgunaraðgerð- inni á Sjóvá. Því er fremur líklegt að ríkissjóður fái fjármunina sem lánaðir voru til baka. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, fór fram á það í gær við Hrein Loftsson, aðaleiganda DV, að hann hefði afskipti af fréttaflutn- ingi DV af hans málum. DV hefur undanfarna daga fjallað ítarlega um fjárfestingar í lúxusturni í Makaó sem Bjarni tengist. Hreinn segir að Bjarni hafi hringt í hann og lýst yfir óánægju sinni með fréttaflutning DV. „Hann sagði frétt- ir blaðsins byggjast á ósannindum. Hann hélt áfram og sagði það vera óþolandi, að ég stæði á hliðarlínunni og léti þetta viðgangast. Fréttaflutn- ingurinn hefði leitt til þess að an- arkistar sætu um hús hans og vildu valda honum tjóni. Ég spurði hann til hvers hann ætlaðist af mér. Hann var ekkert að skafa af því, hann ætl- aðist til þess að ég stöðvaði þenn- an fréttaflutning. Ég sagði honum, að ég lyti ekki boðvaldi hans. Hann skyldi snúa sér til ritstjórnar DV með athugasemdir sínar og leiðréttingar, en ég hefði ekkert meira við hann að tala,“ sagði Hreinn. Yfirlýsing frá Bjarna Bjarni segir í yfirlýsingu, sem hann sendi öðrum fjölmiðlum en DV, að blaðið hafi ekki áhuga á að birta leiðréttingu á þeim rangfærslum sem það hefur farið með. Hann út- skýrir ekki í hverju hinar meintu rangfærslur felast. Því segist hann hafa haft samband við eiganda blaðsins og lýst því yfir að hann teldi blaðamennsku blaðsins óvið- unandi. „Áður en ég hafði haft tök á að fara yfir samskipti mín við blað- ið æsti Hreinn sig, sagðist ekki lúta mínu boðvaldi og sagði mér að eiga samskipti um þetta við ritstjórn blaðsins. Að svo búnu skellti hann á,“ segir Bjarni, sem hafnar því einn- ig í yfirslýsingunni að hann hafi farið fram á að fréttaflutningur DV af mál- inu verði stöðvaður. Stendur við orð sín Hreinn segir að Bjarni fari með ósannindi í yfirlýsingu sinni og stendur við fyrri ummæli sín. „Bjarni Benediktsson er ómerk- ingur og ætti ekki að koma nálægt stjórnmálum. Hann lýgur því að Pressunni að ég hafi ekki borið upp þá spurningu við hann, hvers hann ætlaðist til af mér í framhaldi af at- hugasemdum hans við fréttaflutn- ing DV í símtali fyrr í dag (gær). Þessa spurningu bar ég fram og hann svaraði því til að ég ætti að stöðva þennan fréttaflutning. Þetta var ekki langt samtal, það er rétt hjá Bjarna, því ég sagðist ekki lúta boðvaldi hans og hann skyldi gera athugasemdir við ritstjórn DV ef hann teldi ekki rétt með farið varð- andi þessar fréttir. Þá er það einnig rétt hjá Bjarna að ég skellti á hann, enda er ég ekki vanur að eiga löng samtöl við símadóna af þessu tagi,“ segir Hreinn. Bjarni Benediktsson hringdi í Hrein Loftsson: Vildi að eigandinn stöðvaði umfjöllun Bjarni Benediktsson, núverandi for- maður Sjálfstæðisflokksins og þáver- andi stjórnarformaður eignarhalds- félagsins BNT, tók þátt í viðskiptum einkahlutafélagsins Vafnings með eignir dótturfélags tryggingafélags- ins Sjóvár í Makaó í nágrenni Hong Kong í Asíu í febrúar 2008, sam- kvæmt heimildum DV. Félög í eigu fjölskyldu Bjarna voru stórir hluthaf- ar í Vafningi. Fjárfestingarverkefnið snerist um kaup á 68 lúxusíbúðum í turni í hjarta Makaó og kallaðist það One Central. SJ-fasteignir, sem var í eigu bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona í gegnum Sjóvá, fjár- festi í verkefninu fyrir tæpa sjö millj- arða króna árið 2006. Turninn, sem kallast Tower 4, er hannaður af arki- tektastofunni Kohn Pedersen Fox Associates og átti að vera 41 hæð- ar. Ljúka átti við byggingu hans árið 2010 og ætlaði Sjóvá sér að græða á áttunda milljarð á viðskiptunum. Skilanefnd Glitnis, sem var stærsti kröfuhafi eignarhaldsfélagsins Miles- tone, sem átti Sjóvá, losaði Sjóvá út úr fasteignaverkefninu í Makaó í sumar með samningum við fasteigna- og fjárfestingarfyrirtækin Shun Tak og Hongkong Land sem sáu um að reisa turninn fyrir hönd Vafnings. Miles- tone hefur verið tekið til gjaldþrota- skipta og stjórnar bankinn nú trygg- ingafélaginu þar til það verður selt. Greiða þurfti fyrirtækjunum tveimur um 1,5 milljarða króna í skaðabætur vegna riftunarinnar og hefur Hörð- ur Arnarson, sem ráðinn var forstjóri Sjóvár eftir að félagið var yfirtekið af skilanefnd Glitnis, sagt að tap félags- ins í heildina vegna þessara viðskipta sé um 3,2 milljarðar króna. Milestone skildi Sjóvá eftir á barmi gjaldþrots og þurfti íslenska ríkið að leggja félaginu til 12 millj- arða króna fyrr á árinu til að bjarga því frá gjaldþroti. Á sama tíma lögðu Glitnir og Íslandsbanki samtals fjóra milljarða króna inn í félagið. Hluta af þessu tapi og ástæðunni fyrir björg- unaraðgerðum ríkisins má rekja til fjárfestinga Sjóvár í Makaó. Fjölskylda Bjarna átti á móti Sjóvá Vafningur keypti einkahlutafélagið SJ Properties MacauOneCentral HoldCo ehf. af SJ-fasteignum fyrir 5,2 milljarða króna þann 8. febrúar árið 2008, sam- kvæmt heimildum DV. Nýtt félag, SJ2, sem var í eigu Sjóvár líkt og SJ-fast- eignir, átti tæplega 50 prósenta hlut í Vafningi en tvö önnur eignarhaldsfé- lög, Skeggi og Máttur, skiptu með sér rúmlega 50 prósenta eignarhluta. Mil- estone hafði selt Vafning til Skeggja einungis degi áður, eða þann 7. febrú- ar, og var félagið skráð til heimilis í höfuðstöðvum Milestone á Suður- landsbraut 12. Félag Sjóvár, SJ2, átti sömuleiðis tæplega 50 prósenta hlut í Skeggja en BNT, móðurfélag olíufélagsins N1 sem Bjarni stýrði, átti tæp 24 prósent. Eign- arhaldsfélögin Hrómundur og Hafsilf- ur áttu svo rúmlega 17 prósenta og tæplega 8,5 prósenta hlut. Hrómund- ur er í eigu föðurbróður Bjarna, Ein- ars Sveinssonar, á meðan Hafsilfur er í eigu föður hans, Benedikts Sveinsson- ar. Þeir bræður eru sömuleiðis eigend- ur N1 og var Bjarni stjórnarformaður þess og BNT þar til í desember í fyrra þegar hann ákvað að hætta til að ein- beita sér alfarið að stjórnmálunum. Bjarni hefur sömuleiðis upplýst að um tíma hafi hann átt 1 pró- sents hlut í BNT. SJ2 átti sömuleiðis tæplega helm- ingshlut í Mætti en félög Einars og Benedikts Sveinssona áttu tæplega helmingshlut á móti því. Því má segja að Wernersbræður og þeir Sveins- synir og Bjarni hafi eftir kaupin af Sjóvá átt fasteignaverkefnið í Makaó. SJ Properties MacauOneCentral HoldCo ehf. átti fasteignaverkefnið í Makaó jafnframt í gegnum einka- hlutafélagið Drakensberg Invest- ment Ltd. sem skráð er á Bresku Jóm- frúareyjum. Sjóvá lánaði Vafningi 10 milljarða Heimildir DV herma að sama dag og Vafningur skrifaði undir kaup- samning við SJ-fasteignir um kaupin á Makaó-félaginu hafi Bjarni Bene- diktsson fengið fullt og óskorað um- boð frá Hafsilfri, Hrómundi og BNT til að veðsetja eignarhluti fjölskyldu- félaganna þriggja í Vafningi hjá Glitni banka. Ekki er vitað hvort Bjarni nýtti sér þetta umboð eða ekki en þó má áætla að það hafi ekki verið veitt að ástæðulausu heldur vegna viðskipt- anna með eignirnir í Makaó. Um svipað leyti, í lok febrúar 2008, lánaði Sjóvá Vafningi 10 millj- arða króna með víkjandi láni. Ástæð- an fyrir því að lánið var víkjandi er sú hversu stóran þátt Sjóvá og eigendur félagsins, þeir Karl og Steingrímur, áttu í félaginu. Nánast má fullyrða að nota átti lánið til að greiða fyrir kaup Vafnings á félaginu í Makaó sem hélt utan um eignina á lúxusturninum. Ástæðan fyrir því er sú að Vafningur var stofnaður til þess eins, að því er virðist, að kaupa fasteignaverkefnið í Makaó af SJ-fasteignum. Önnur tengsl Vafnings við eign- arhaldsfélög tengd þeim bræðrum Steingrími og Karli eru meðal annars að á eina stjórnarfundi eignarhalds- félagsins Svartháfs, sem DV hefur greint ítarlega frá upp á síðkastið, í ársbyrjun 2008, var ákveðið að lána 50 milljónir evra til Vafnings ehf., eða sem nemur tæpum 5 milljörð- um króna. Hugsanlegt er að Bjarni hafi fengið umboðið frá BNT, Hrómundi og Hafsilfri til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi vegna lánsins sem veitt var til félagsins í gegnum Svartháf. Vafningur hefur því fengið sam- tals að minnsta kosti um 15 milljarða króna að láni frá Sjóvá og Glitni um þetta leyti og notaði félagið rúmlega 5 milljarða til að fjárfesta í fasteigna- verkefninu sem dótturfélag Sjóvár hafði átt eitt fram að því. Afar líklegt er að afskrifa þurfi meirihluta þeirra fjár- muna sem Vafningur fékk að láni þar sem Milestone skilur eftir sig skulda- slóð upp á marga tugi milljarða auk þess sem engar eignir eru inni í Svart- háfi svo vitað sé en skuldir þess félags nema um 45 milljörðum króna. 2 miðvikudagur 9. desember 2009 fréttir Tengsl Wernersbræðra og Engeyinga Bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir og E inar og Benedikt Sveinssynir hafa átt mikil viðskipti sín á milli á undanförnum árum. Einar Sveinsson var forstjóri Sjóvár og Benedikt bróðir hans var stjórn arformaður tryggingafélagsins. Árið 2003 keyptu bræðurnir hina svokölluðu H. B en. fjölskyldu út úr Sjóvá en fjölskyldurnar tilheyra báðar hinni frægu Engeyja rætt. Íslandsbanki var hins vegar stærsti hluthafinn. Næsta nótt varð síðan fr æg sem „Nótt hinna löngu bréfahnífa“. Þá gerðu stærstu fjármálafyrirtæki lan dsins með sér samkomulag sem breytti landslaginu í íslensku viðskiptalífi. Eit t af því sem samið var um var að Íslandsbanki eignaðist ellefu prósenta hlut Bu rðaráss í Sjóvá. Bankinn gerði í kjölfarið yfirtökutilboð í Sjóvá. Seldu Einar og Be nedikt Sveinssynir hlut sinn í Sjóvá og eignuðust í staðinn hlut í Íslandsbanka. Hætti Einar Sveinsson fljótlega sem forstjóri Sjóvár og tók Þorgils Óttar Mathiese n við af honum. Árið 2005 keypti félagið Þáttur, í eigu Karls, Steing ríms og Ingunnar Werners- barna, 66,6 prósenta hlut í Sjóvá af Íslandsbanka. Var Þór Sigfússon þá gerður að forstjóra Sjóvár. Einar Sveinsson og Karl Wernerss on sátu í stjórn Íslandsbanka og síðar Glitnis þar til FL Group undir forystu Hannes ar Smárasonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar náði yfirtökunum í Glitni. Var Eina r stjórnarformaður bankans. Svartháfur Tekin var ákvörðun um það á einum og sama stjó rnarfundinum í eignarhalds- félaginu Svartháfi í upphafi árs 2008 að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum k róna á núverandi gengi, og endurlána það svo til félaga í eigu Karls og Steing ríms Wernerssona. Lánið sem Svartháfur endurlánaði strax til eignar haldsfélaga í þeirra eigu var svo notað til að greiða hluta skuldar við fjárfestin gabankann Morgan Stanley upp á 300 milljónir evra, sem nemur um 55 milljö rðum króna á núverandi gengi. Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitand i Milestone og fjármagnaði hluta útrásar fyrirtækisins til annarra landa. Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, We rners Rasmusson, er einn af stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúgan hluta þ eirrar fjárhæðar. Glitnir veitti Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dags etning er ekki þekkt. Á sama stjórnarfundi hjá Svartháfi í ársbyrjun 2008 var ák veðið að lána 50 milljónir evra til félagsins Vafnings ehf., eða sem nemur tæpum 5 milljörðum króna. Eigendur Vafnings voru þeir bræður Einar og Benedikt Sve inssynir og Bjarni, sonur Benedikts og formaður Sjálfstæðisflokksins. Það s kýtur skökku við að Werners- bræður sem ekki gátu greitt af eigin lánum hafi s éð sér fært að lána félagi í eigu Engeyjarfjölskyldunnar fimm milljarða króna. BJARNI MEÐ Í KAUPUM Á LÚXUSTURNI Í MAKAÓfréttir 30. nóvember 2009 mánudagur 11 Tekin var ákvörðun um það á ein-um og sama stjórnarfundinum í eignarhaldsfélaginu Svartháfi í fyrra að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum króna á núverandi gengi, og end-urlána það svo aftur til félaga í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Lánið sem Svartháfur endur-lánaði strax aftur til eignarhalds-félaga í þeirra eigu var svo notað til að greiða hluta skuldar við fjár-festingabankann Morgan Stanley upp á 300 milljónir evra, sem nem-ur um 55 milljörðum króna á nú-verandi gengi. Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitandi Mil-estone og fjármagnaði hluta útrás-ar fyrirtækisins til annarra landa.Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, Werners Rasmus-sonar, er einn af stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að skila-nefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúg-an hluta þeirrar fjárhæðar. Glitn-ir veitti Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dagsetning er ekki þekkt. Sótt um lán og endurlánaðHeimildir DV herma að á stjórn-arfundinum í Svartháfi, sem hald-inn var í höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12, hafi verið gerður lánasamningur við Glitni sem nam um 200 milljónum evra. Einnig var ákveðið að lána ætti tæp-lega 140 milljónir evra til sænska félagsins Racon Holding AB, sem var dótturfélag Milestone og lán-takandi Morgan Stanley. Veðið fyr-ir láni Svartháfs til Racon Holding AB var í hlutabréfum í sænska fjár-málafyrirtækinu Invik & Co., síðar Moderna AB. Racon notaði lánið svo til að borga Morgan Stanley.Jafnframt var ákveðið á stjórn-arfundinum að lána 50 milljónir evra til félags sem heitir Vafning- ur ehf., sem einnig var í eigu þeirra bræðra og til húsa á Suðurlands-braut 12. Ekki er vitað til að aðrir stjórnar-fundir hafi verið haldn-ir í Svartháfi. Lán upp í skuld MilestoneVeðið fyrir láninu frá Glitni til Svartháfs var í eignarhaldsfélaginu Moderna AB en eignir Milestone voru seld-ar inn í það félag um áramótin 2007-2008. Glitnir hefur nú leyst til sín eignir Mod-erna, meðal annars Sjóvá og Askar Capi-tal, og fékk bank-inn þar eitthvað upp í kröfuna á hendur Svartháfi en ljóst er að afskrifa þarf stóran hluta henn-ar. Milestone stofnaði til lánsins, sem Racon borgaði síðar upp með láninu frá Svartháfi, við Morgan Stanley sumarið 2007 og var það notað til að festa kaup á sænska fjármálafyrirtækinu Invik & Co, sem síðar var endurskírt Moderna Finance AB. Lánið frá Glitni sem rann inn í Svartháf var því notað til að standa við skuldbindingar sem Milestone stofnaði til fyrir hönd dótturfélags síns. Leppurinn SvartháfurÁ þessum tíma, í ársbyrjun 2008, er líklegt að Morgan Stanley hafi ver-ið orðinn órólegur um að lán Rac-on fengist ekki greitt og að þeir hafi ekki viljað endurnýja lánasamning-inn. Ástæðan kann meðal annars að hafa verið sú að þá þegar voru blikur á lofti um að mikil lægð væri yfirvofandi í íslensku efnahags-lífi og má áætla að Morgan Stan-ley hafi því kippt að sér höndum. Milestone hefur því hugsanlega átt í erfiðleikum með að standa í skilum við Morgan Stanley, önnur fjármálafyrirtæki hafa ekki viljað lána þeim og því hafi þeir orðið að verða sér úti um lán með einhverj-um hætti. Heimildir DV renna því stoð-um undir þá kenningu að eini til-gangurinn með stofnun Svartháfs hafi verið að leppa lánveitingu frá Glitni, sem síðar rann til félaga Wernerssona sjálfra. Ástæðan fyr-ir Svartháfssnúningnum var sú að félög í beinni eigu þeirra bræðra máttu ekki fá meira lánað hjá Glitni samkvæmt reglum sem Fjármála-eftirlitið hefur sett um hámarks-lánveitingar til einstakra aðila. Ástæðan fyrir þessum reglum er til að lágmarka áhættu bankans: Ekki er heppilegt fyrir banka að eiga of miklar útistandandi skuldir við einstaka fyrirtækjasamstæðunnar. Ekki er vitað hver það var innan Glitnis sem tók ákvörðunina um að veita Svartháfi þetta lán en líkt og gildir í fjármálafyrirtækjum með svo háar lánveitingar en lána- og áhættunefndir fjármálafyrirtækja taka yfirleitt ákvarðanir um svo háar lánveitingar. IngI F. VILhjáLMSSonblaðamaður skrifar ingi@dv.is LEPPUR BORGAÐI SKULD MILESTONE2 miðvikudagur 14. október 2009 fréttir Glitnir þarf að afskrifa stóran hluta af45 milljarða króna skuld eignarhalds-félagsins Svartháfs við bankann, sam-kvæmt heimildum DV. Krafa Glitnis á hendur Svartháfi nam 45 milljörðumkróna í sumar en samkvæmt heimild-um DV var hún gerð upp í lok sum-ars. Líklegast er að krafan hafi veriðgerð upp með miklum afföllum fyrir bankann.Skuld Svartháfs er meðal ann-ars tilkomin vegna þess að félagið,sem er í eigu Werners Rasmusson, föður Karls og Steingríms Werners-sona, fyrrverandi eigenda eignar-haldsfélagsins Milestone, tók lán hjá Glitni í fyrra upp á 20 milljarða króna til að lána eignarhaldsfélagi í eigu bræðranna fyrir skuld við fjárfest-ingabankann J.P. Morgan.Svartháfur hét áður ELL 150 ogGleypnir og var stofnað af ErlendiGíslasyni og Gunnari Sturlusyni hjá lögmannsstofunni Logos í janúarárið 2008, samkvæmt stofnskjölum félagsins. Svartháfur er skráður til heimilis á Suðurlandsbraut 12, líkt og flest önnur eignarhaldsfélög þeirra bræðra, en lögheimili þess var skráðí Jötunssölum 2, heimili Werners föð-ur þeirra, þar til í apríl í fyrra þegarlögheimilið var fært á Suðurlands-brautina. Svartháfur hefur ekki skilaðársreikningi fyrir árið 2008.Nafnabreytingar í ársbyrjunÍ febrúar 2008 voru Werner Rassmus-son og kona hans Kristín Sigurðar-dóttir kjörin í stjórn og varastjórn félagsins. Nafni félagsins var á sama tíma breytt úr ELL 150 í Svartháfur.Í tilkynningu til Fyrirtækjaskrár um breytinguna á stjórninni er hins veg-ar strikað yfir nafnið Gleypnir með penna og nafnið Svartháfur sett í staðinn, eins og félagið hafi átt að heita Gleypnir en að svo hafi því ver-ið breytt á síðustu stundu. Lögheim-ili Svartháfs var svo fært frá Jötuns-sölum á Suðurlandsbraut 12 í apríl í fyrra, samkvæmt tilkynningu til Fyr-irtækjaskrár sem aðstoðarforstjóriMilestone, Jóhannes Sigurðsson, skrifaði undir ásamt Werner Rasm-usson. Tengsl Svartháfs og Milestone eru því nokkur þó eigendurnir hafiekki verið þeir sömu.45 milljarða skuld Svartháfs stend-ur utan við þá rúmlega 43,9 milljarðakróna skuld sem Milestone skilur eft-ir inni í Glitni. Skuldir þessara tveggjafélaga og dótturfélaga þeirra við Glitninema því nærri 90 milljörðum króna.Heildarskuldir Milestone nematæpum 80 milljörðum króna og var gert ráð fyrir því í nauðasamningumfélagsins, sem hefur verið hafnað, að kröfuhafarnir fengju um 6 prósent upp í kröfur sínar en eignir félags-ins voru einungis metnar á um fimmmilljarða. Því má reikna með að feðg-arnir, Werner, Steingrímur og Karl, eigi ekki til þær upphæðir persónu-lega sem til þarf til að greiða skuldirSvartháfs, enda er ekki vitað til þessað einhver þeirra sé í persónulegumábyrgðum vegna skuldanna.Greiddu niður lán til J.P. MorganSkuldir Svartháfs við Glitni eru með-al annars tilkomnar vegna þess aðskömmu eftir að félagið tók uppnafnið Svartháfur í febrúar í fyrratók félagið lán frá Glitni upp á um 20milljarða króna til að greiða lán Rac-on Holdings II, sem eignarhaldsfélagKarls og Steingríms, Milestone, réð í gegnum annað eignarhaldsfélag sitt,Þátt, við fjárfestingarbankann J.P.Morgan. Lán Racon hjá J.P. Morgan vartilkomið út af kaupum Racon á fé-lagi sem hét Innvik, sem síðar varendurskírt Moderna Finance AB. Á þeim tíma var J.P. Morgan hins veg-ar orðinn órólegur um að lán Racon fengist ekki greitt og vildu ekki end-urnýja lánasamninginn þegar hann gjaldféll, ástæðan var meðal annarsað þá þegar voru blikur á lofti í ís-lensku efnahagslífi og kippti bank-inn því að sér höndum með því aðneita að endurnýja lánasamninginn.Fjárfestingafélagið Gnúpur, sem varí eigu Kristins Björnssonar og Magn- úsar Kristinssonar, hafði lent í erf-iðleikum í árslok 2007 og eru þeir fjárhagserfiðleikar af mörgum tald-ir marka upphaf íslenska efnahags- hrunsins. Því þurftu eigendur Rac-on, Karl og Steingrímur, að finna aðrar leiðir til að greiða J.P. Morganlánið. WernerssonaKarl WernerssonGLITNIR ÞARF AÐ AFSKRIFA SKULDIR WERNERSMANNA HvAÐ ER SvARTHáFUR?Svartháfur er eignarhaldsfélag sem stofnað var í ársbyrjun árið 2008. Heimildir DV herma að það hafi verið stofnað í ársbyrjun til að fá lán til að greiða skuldir félagsí eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Félagið er í eigu Werners, föður þeirra,og var lögheimili þess heima hjá honum. Heimilisfang Svartháfs er hins vegar í fyrrverandi höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12. Félagið skuldar Glitni45 milljarða króna og hefur átt sér stað uppgjör á skuldinni. Ekki er vitað hverniguppgjörið var gert en afar ólíklegt er að skuldin hafi verið greidd upp að fullu. Því má búast við að eitthvað hafi verið afskrifað af skuldunum.Félagið dregur nafn sitt af lítilli hákarlategund sem kallast Svartháfur eða BlackDogfish á ensku. Svartháfurinn lifir á miklu dýpi, 180 til 1.600 metrum, og er ekki talinn mannýgur. Heimkynni hans eru aðallega í Vestur- og Norður-Atlantshafi,meðal annars við strendur Grænlands og Íslands. Svartháfurinn er, eins og nafniðgefur til kynna, svartur á lit og hafa augu hans aðlagast myrkrinu á hafsbotninum.Því getur hann séð betur í myrkri en aðrar hákarlategundir. Ekki er vitað af hverjuSvartháfsnafnið var valið fyrir félagið.Eitt af mörgum ELL-félögumSvartháfur, áður ELL 150, er einungis eitt af mörgum félögum sem upphaflegahafa borið nafnið ELL sem lögmannsstofan Logos hefur stofnað á liðnum árum.Annað dæmi um slíkt félag er ELL 182 sem Logos stofnaði og seldi til Bakka-bræðra, Lýðs og Ágústs Guðmundssona. ELL 182 keypti síðar hlut Exista, sem er ímeirihlutaeigu þeirra bræðra, í Bakkavör í fyrrahaust en fyrir áttu þeir meirihlutaí Bakkavör. Salan hefur valdið miklum deilum meðal kröfuhafa og eigenda Existaen kröfuhafarnir hafa kært eigendur Exista fyrir hana. Bæði ELL 150 og ELL 182hafa nú skipt um nafn líkt og sum önnur þeirra ELL-félaga sem Logos hefur selt áliðnum árum.Werner hefur áður komið við söguWerner Rasmusson, faðir Karls og Steingríms, hefur áður komið við sögu í umfjöllun fjölmiðla um viðskipti þeirra bræðra.Þannig greindi DV frá því í september að í endurskoðendaskýrslu Ernst & Youngum Milestone hefði verið bent á að félagið hefði greitt skatta fyrir Werner upp á 8,5 milljónir króna. Skiptastjóri þrotabús Milestone, Grímur Sigurðsson, þarfmeðal annars að taka afstöðu til þess hvort sú greiðsla hafi verið eðlileg. Wernerkom hins vegar af fjöllum þegar DV spurði hann um skattgreiðslurnar. Ekki er vitað hvort Werner hafi vitað til hvers Svartháfur var notaður en undirskrift hans er á samþykktum félagsins sem DV hefur undir höndum. stórskuldugt félag Félag í eigu föður Karls og SteingrímsWernerssona, Svartháfur, skuldar Glitni 45 milljarða króna semekki er lengur að finna í lánabókum bankans. Karl Wernerssonvill ekki ræða um hvernig skuldin hafi verið gerð upp. heimkynni svartháfs Eignarhaldsfélagið Svartháfurer skráð til heimilis á Suðurlandsbraut 12 en þar voruhöfuðstöðvar Milestone áður en félagið fór í greiðslu-stöðvun og var síðar tekið til gjaldþrotaskipta. Tíu prestaþeir sendu Kabiskupi Íþeir skorum landsins.með þBjörnssySelfossi. Tséra Gstuðninákærumun ungra sókupinn handi í afái að sog því hefurfram til þút á mohann að isdegi sínaftur á móti að Bsátta við sérafinna honum getur reynstnema með samþykkier beðið átektaprestsins verða. UPPREISN GEGN BISKUPI „Jafnt og þast, það evert að strsegir Karl SigurðssoVinnumálastofnun. Há að heldur minna vinnuleysi í síðast var.Hjá Vinnið nóg að gera undanur aukning hefur veUndanfarna dagastaklingar sskrá hjá stonú er svo kán þúsund ei14.909 eintAðspurður segsig þessa dagareiknar þó með brnæstunni. „Þ Karlar streyma inn á skrárnar Lánuðu ekki til venslaðra aðilaÁstæðan fyrir því að Svartháfur fékklánið frá Glitni var sú að á þessum tíma voru eigendur Milestone, þeirKarl og Steingrímur, og félög í beinni og óbeinni eigu þeirra búnir að full-nýta lánaheimildir sínar hjá Glitni,að sögn heimildarmanns DV sem þekkir vel til viðskipta Karls og Stein-gríms. Bræðurnir voru hluthafar í Glitni á þessum tíma. „Til þess að fara í kringum þetta lánaði Glitnir þessu félagi [Innskot blaðamanns: Svart-háfi] þessa peninga. Þetta félag lánaði þessa peninga svo til Racon HoldingsII og voru þeir notaðir til að greiða upp skuldina við J.P. Morgan. Glitnirgreiddi því í raun upp skuldina við J.P.Morgan en fór þennan hring til þess. Eftir stóð hins vegar skuld Svartháfs við Glitni,“ segir heimildarmaður DV en ekki er vitað að svo stöddu hvern-ig hinir milljarðarnir bættust ofan á þessa tuttugu. Heimildarmaður DV segir að þettahafi þótt vera í lagi vegna þess að í lagalegum skilningi hafi félagið í eigu Werners, Svartháfur, ekki verið skil-greint sem venslaður aðili við Karl og Steingrím. Félag í eigu föður Karls ogSteingríms gat því fengið lánið þó svoað félög í þeirra eigu gætu það ekki útaf hinum fullnýttu lánaheimildum.Karl tjáir sig ekkiKarl Wernersson vill aðspurður og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaða-manns ekki ræða um málefni Svart-háfs í samtali við DV. Því var lögð spurning fyrir hann í SMS-skeyti þarsem hann var spurður hvað hefði orð-ið um 45 milljarða skuld Svartháfs. Hann var spurður hvernig hefði ver-ið gengið frá þessari skuld og hversvegna. Svar Karls við þessari fyrir-spurn var: „Hver er fréttin?“ DV náðiekki aftur sambandi við Karl eftirþetta.Ekki náðist í bróður Karls, Stein-grím, né í föður hans, Werner Rasmus-son, við vinnslu fréttarinnar. Að svo stöddu liggur því ekki almennilegafyrir hvernig skuldin við Glitni var gerð upp.ekki rætt í gögnumum MilestoneEkkert er rætt um málefni Svartháfs ogláns félagsins hjá Glitni í gögnum umMilestone sem greint hefur verið fráí fjölmiðlum, endurskoðendaskýrsluErnst & Young og skýrslu umsjónar-manns nauðasamninga félagsins, Jó-hannesar Alberts Sævarssonar. Ástæðan fyrir þessu er sú að mál-efni Svartháfs tengjast ekki beintmálefnum Milestone af áðurnefnd-um ástæðum, jafnvel þó að pening-arnir sem Svartháfur fékk að láni hjáGlitni hafi verið notaðir til að lána fé-lagi í eigu Milestone-manna svo þaðgæti staðið í skilum við erlent fjár-málafyrirtæki. Hvorki Jóhannes né endurskoðendurnir höfðu aðgang aðbókhaldi Racon Holdings II, félags-ins sem fékk lánið frá Svartháfi, og því ekki rannsakað lánveitingarnar til og frá Svartháfi.Samkvæmt heimildum DV veltukröfuhafar Milestone hins vegar mik-ið fyrir sér himinháum lánveitingumfrá Glitni til félagsins áður en nauða-samningum Milestone var hafnað ogfélagið var tekið til gjaldþrotaskipta fyrir skömmu. Ekki er því ólíklegt aðmálefni Svartháfs muni koma við sögu í framtíðinni hjá kröfuhöfumMilestone og kunna lánaviðskipti fé-lagsins að hafa einhver eftirmál. Í eigu föður Wernerssona FélagiðSvartháfur er skráð á Werner Rasmusson,föður Karls og Steingríms. Félagið virðisthafa verið stofnað gagngert til að takavið láni frá Glitni upp á 20 milljarða sembræðurnir gátu ekki tekið. 14. október 2009 Allt ákveðið í einu Samkvæmt heimildum DV var ákveðið á hluthafafundi Svartháfs að sækja um lán og endurlána það strax aftur til dótturfélaga Milestone. Faðir Karls Wernerssonar, annars eiganda Milestone, var eigandi Svartháfs. „Lánið frá Glitni sem rann inn í Svartháf var því notað til að standa við skuld-bindingar sem Milestone stofnaði til fyrir hönd dóttur-félags síns.” Bjarna Benediktssonar IngI F. VIlhjálmSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is „Um svipað leyti, í lok febrúar 2008, lánaði Sjóvá Vafningi 10 millj- arða króna með víkj- andi láni.“ DV 30. nóvember Werner Rasmusson leppaði lán fyrir syni sína gegnum Svartháf. 45 milljarða skuld félagsins við Glitni verður líklega afskrifuð. fréttir 9. desember 2009 miðvikudagur 3 Ætluðu sér að selja fljótlega Upphaflega ástæðan fyrir fjárfest- ingu Sjóvár í Makaó var sú að félag- ið reiknaði með því að fasteignaverð í Makaó myndi hækka gríðarlega á árunum 2006 til 2010. Til að mynda hækkaði fasteignaverð í héraðinu um 35 prósent að meðaltali á árinu 2007. Reiknað var með áframhald- andi hækkun næstu árin þar á eftir enda hefur borgin verið kölluð hin asíska Las Vegas. Sjóvá ætlaði sér svo að selja lúxusturninn með nærri 8 milljarða króna hagnaði, miðað við gengi krónunnar í febrúar 2008, áður en framkvæmdunum myndi ljúka - kaupverðið var 110 milljónir Banda- ríkjadala en söluverðið átti að vera 185 milljónir. Væntanlega hefur Sjóvá viljað dreifa áhættunni af fjárfestingunni á fyrstu mánuðum ársins 2008 og því búið Vafning til með þátttöku BNT, Hafsilfurs og Hrómundar. Auk þess er ekki ólíklegt að yfirvofandi þreng- ingar á fjármálamarkaði hafi átt þar hlut að máli. Fjárfesting félaganna þriggja í Makaó-verkefninu hefur jafnframt verið áhættulítil enda voru lánin inn í Vafning veitt af Sjóvá, sem var í eigu Wernersbræðra, og af Glitni, en bræðurnir og Einar og Benedikt Sveinssynir voru sömuleiðis hluthaf- ar í bankanum í gegnum Þátt Inter- national sem þeir áttu sömuleiðis ásamt Karli og Steingrími. Benedikt man ekki eftir viðskiptunum DV náði ekki tali af Bjarna Bene- diktssyni á þriðjudaginn, til að spyrja hann út í viðskipti Vafnings, þrátt fyr- ir ítrekaðar tilraunir. Skilin voru eftir skilaboð til Bjarna á talhólfi hans og hjá aðstoðarmanni formannsins, Sig- urði Kára Kristj- ánssyni. Benedikt Sveinsson, fað- ir Bjarna, sagð- ist aðspurður hafa dregið sig út úr fjárfest- ingum og ekki muna eftir þess- um við- skiptum Vafnings með fast- eigna- verkefn- ið í Makaó. Hann gat því ekki greint frá því hvernig viðskipt- in gengu. Heimildir DV herma að Benedikt hafi ekki komið mikið að viðskiptunum, jafnvel þótt félag hans hafi verið óbeinn hluthafi í Vafningi, enda var Bjarni sonur hans með um- boðið til að ráðstafa hlutabréfum fé- lagsins í Vafningi. Sömuleiðis voru skilin eftir skila- boð til Einars Sveinssonar en hann hafði ekki haft samband við DV þeg- ar blaðið fór í prentun í gær. Þess skal að lokum getið að Vafn- ingur ehf. er ekki til í dag nema sem kennitala því nafni félagsins hefur verið breytt í Földungur ehf. Eignarhald á Vafningi: SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir) 48,8 prósent Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins- son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl. og Sáttur/Guðmundur Ólason) 39,1 prósent Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2, Hrómundur, Hafsilfur) 12,1 prósent Asíska Las Vegas Makaó er annað af tveimur kínverskum sjálfstjórnarhéruðum. Hitt er Hong Kong sem er í nágrenni Makaó. Héraðið hefur verið kallað hin asíska Las Vegas og er ört vaxandi ferðamannastaður þar sem sterkefnað fólk kemur til að njóta lífsins í vellystingum, meðal annars með því að spila fjárhættuspil. Fjárfestu í Makaó Bjarni Benedikts- son og faðir hans og föðurbróðir keyptu fasteignaverkefni Sjóvár af dótturfélagi þess fyrir rúma 5 milljarða króna í febrúar 2008. Þeir áttu fasteignaverkefnið í gegnum félagið Vafning og aflandsfélag á Bresku Jómfrúareyjum. Eignarhald á turninum í Makaó: Vafningur ehf. - 100 prósent SJ Properties MacauOneCentral HoldCo ehf. - 100 prósent Drakensberg Investments Limited á Bresku Jómfrúareyjum - 100 prósent Turninn í Makaó Fjórir bræður Vafningur var að mestu leyti í eigu þeirra Wernersbræðra og Einars og Benedikts Sveinssona. Tryggingafélagið Sjóvá seldi fasteigna- verkefnið í Makaó til félagsins Vafnings sem var í eigu dótturfélags Sjóvár og félaga í eigu Engeyjarbræðranna Einars og Benedikts Sveinssona. Sjóvá, sem var í eigu Karls og Steingríms Wernerssona, lánaði Vafningi 10 milljarða króna um þetta leyti. 14 föstudagur 11. desember 2009 fréttir „Ég hef aldrei komið nálægt neinni ákvörðun um að taka þátt í fast-eignaverkefni í Makaó,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð-isflokksins og fyrrverandi stjórnar-formaður BNT og N1, um aðkomu sína að eignarhaldsfélaginu Vafn-ingi sem meðal annars fjárfesti í fast-eignaverkefni Sjóvár í Makaó í byrjun febrúar í fyrra fyrir rúma fimm millj-arða króna. BNT og félögin Hafsilfur og Hrómundur, sem eru í eigu föður og föðurbróður Bjarna, voru hluthaf-ar í félaginu, líkt og greint var frá í DV á miðvikudaginn, og fékk Bjarni um-boð til að veðsetja hlutabréf þeirra allra í félaginu sama dag og Vafning-ur keypti fasteignaverkefnið.Bjarni vissi hins vegar vel að fé-lögin væru hluthafar í Vafningi þrátt fyrir að hann neiti því að hafa vitað að félagið hafi keypt fasteignaverk-efni Sjóvár. Hann segir að Vafningur hafi ekki einungis verið stofnaður til að halda utan um fasteignaverkefnið heldur til að endurfjármagna lán fyr-ir hluthafa þess. Að sögn Bjarna var ekki langur aðdragandi að stofnun Vafnings og var það ekki forgangs-mál að ganga frá því að BNT gerðist hluthafi í Vafningi. Formaðurinn segir jafnframt að áhætta félaganna þriggja af fjárfest-ingunni í Vafningi hafi verið lítil þar sem þau hafi ekki lagt fram eigin-fjárframlög og að félagið hafi verið fjármagnað með lánsfé. Hluthafar Vafnings hefðu þó getað grætt millj-arða ef fjárfestingin hefði gengið eft-ir. Svo varð hins vegar ekki og í kjöl-far efnahagshrunsins varð ljóst að fasteignaverkefnið í Makaó myndi skila miklu tapi, meðal annars vegna falls eignarhaldsfélagsins Milestone sem átti Sjóvá. Íslenska ríkið þurfti, í kjölfar hrunsins, að bjarga Sjóvá frá gjaldþroti með 12 milljarða eig-infjárframlagi. Sjóvá var síðan losað út úr fasteignaverkefninu í sumar og varð tapið af fjárfestingunni í Makaó á fjórða milljarð króna fyrir félagið. Þegar ráðist var í fjárfestinguna hefði Vafningur hins vegar getað grætt vel á henni. Bjarni kom því að því að ákveða þátttöku BNT, og hugsanlega einn-ig hinna félaganna tveggja, í Vafn-ingi og virðist hafa verið fullkomlega meðvitaður um tilgang félagsins þó svo að hann hafni því að hafa haft eitthvað að segja um fjárfestingar fé-lagsins í Makaó. Bjarni: Bræðurnir ekki á landinu Aðspurður af hverju hann hafi feng-ið umboð frá félögunum þremur sem voru í eigu fjölskyldu hans – BNT, Hrómundi og Hafsilfri – til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi sama dag og félagið keypti turninn í Mak-aó segir Bjarni: „Nei, ég vissi ekkert af því á hvaða tímapunkti þessar eign- ir fluttust inn í Vafning,“ segir Bjarni sem samkvæmt þessu vissi ekki að á sama tíma og hann fékk umboðið var félag, sem var að hluta til í eigu ætt-ingja hans sem og félags sem hann var stjórnarformaður og hluthafi í, að festa kaup á fasteignaverkefni í Makaó fyrir rúma fimm milljarða króna. Daginn áður en Vafningurinn keypti fasteignaverkefnið í Makaó seldi Milestone eignarhaldsfélaginu Mætti 12,1 prósents hluta í Vafningi fyrir rúmar 60 þúsund krónur og var Bjarni einn af þeim sem gat skrifað undir samninginn fyrir hönd Máttar.„Þeir [Benedikt og Einar, innsk. blaðamanns] voru ekki staddir á landinu og báðu mig um það fyr-ir sína hönd að skrifa undir ákveð-inn veðsamning þar sem þeir voru að veðsetja hlutabréfin sín í félag-inu... Þetta var veðsamningur sem gerður var við bankann vegna lána sem bankinn hafði veitt félaginu,“ segir Bjarni en BNT, Hrómundur og Hafsilfur voru í eigu föður Bjarna, Benedikts Sveinssonar, og föður-bróður hans, Einars. „Þegar eigend-ur þessara hlutabréfa í Vafningi óska IngI F. VIlhjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is HÖFÐU ENGU AÐ TAPA Bjarni Benediktsson Eignarhald á Vafningi: SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir) 48,8 prósent Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins-son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl. og Sáttur/Guðmundur Ólason) 39,1 prósent Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2, Hrómundur, Hafsilfur) 12,1 prósent one Central í makaóKaup Vafnings á eignarhaldsfélaginu sem hélt utan um háhýsið í fasteignaverk-efninu One Central í Makaó gengu í gegn í febrúar 2008. Félagið hafði áður verið að fullu leyti í eigu dótturfélags Sjóvár en komst við eigendaskiptin í eigu annars dótturfélags tryggingafélagsins og eignarhaldsfélaga sem tengjast Engeyjar-frændunum: Einari, Benedikt og Bjarna.Kaupverðið var rúmir 5 milljarðar króna en turninn á að vera 41 hæð með tæp-lega 70 íbúðum. Íbúar háhýsisins áttu að hafa aðgang að 5 hæða hárri íþrótta- og tómstundamiðstöð með 50 metra sundlaug, spa, fullkomnum líkamsræktarsal og ýmsum íþróttavöllum. Hugmyndin hjá Sjóvá og síðar Vafningi var að eiga háhýsið í skamman tíma og selja það síðan með hagnaði upp á rúmlega 8 milljarða króna þar sem áætlað var að fasteignaverð í héraðinu myndi rjúka upp. Eigendur byggingarinnar gátu því grætt mikla fjármuni ef það hefði gengið sem skyldi. svartháfur Tekin var ákvörðun um það á einum og sama stjórnarfundinum í eignarhalds-félaginu Svartháfi í upphafi árs 2008 að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum króna á núverandi gengi, og endurlána það svo til félaga í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Lánið sem Svartháfur endurlánaði strax til eignarhaldsfélaga í þeirra eigu var svo notað til að greiða hluta skuldar við fjárfestingabankann Morgan Stanley upp á 300 milljónir evra, sem nemur um 55 milljörðum króna á núverandi gengi. Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitandi Milestone og fjármagnaði hluta útrásar fyrirtækisins til annarra landa.Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, Werners Rasmusson, er einn af stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúgan hluta þeirrar fjárhæðar. Glitnir veitti Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dagsetning er ekki þekkt. Á sama stjórnarfundi hjá Svartháfi í ársbyrjun 2008 var ákveðið að lána 50 milljónir evra til félagsins Vafnings ehf., eða sem nemur tæpum 5 milljörðum króna. Eigendur Vafnings voru þeir bræður Einar og Benedikt Sveinssynir og Bjarni, sonur Benedikts og formaður Sjálfstæðisflokksins. Það skýtur skökku við að Werners-bræður sem ekki gátu greitt af eigin lánum hafi séð sér fært að lána félagi í eigu Engeyjarfjölskyldunnar fimm milljarða króna. Eignarhald á turninum í makaó: Vafningur ehf. - 100 prósent sj Properties macauoneCentral holdCo ehf. - 100 prósent Drakensberg Investments limited á Bresku jómfrúareyjum - 100 prósent Turninn í makaó „Menn eru að endurfjármagna lán og það er það sem er aðal-ástæðan fyrir þátttöku þessara félaga í Vafningi.“ Bjarni veðsetti Vafning Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk umboð frá BNT, Hrómundi og Hafsilfri til að veðsetja hlutabréf þeirra í eignarhaldsfélagi sem meðal annars keypti lúxusturn í Makaó sama dag og umboðin eru dagsett. Umboðin þrjú sjást hér á myndunum. fréttir 11. desember 2009 föstudagur 15 eftir því við mig að ég sjái um að veð-setja hlutabréf þeirra í félaginu fyrir þeirra hönd þá geri ég ekkert annað en það og tek engar aðrar ákvarðanir um neitt annað... Þeir gátu ekki farið í bankann þennan dag til að veðsetja bréfin sín í Vafningi. Það var bara verið að ganga frá endurfjármögnun lána í bankanum og það þurfti bara að gerast þennan dag... Ég myndi líka vilja fullyrða við þig að eigend-ur Hafsilfurs [Benedikt faðir Bjarna, innsk. blaðamanns] - ég skal ekki segja með hann Einar því ég hef ekki rætt þetta við hann - hafa aldrei tekið ákvörðun um að kaupa eða veðsetja nokkuð varðandi eignir í Makaó. Þú verður að ræða þetta mál við stjórn-armennina í Vafningi. Ég hef aldrei setið þar í stjórn og ekki komið ná-lægt málinu,“ segir Bjarni sem bætir því við aðspurður að hann ætli ekki að tjá sig um það fyrir hverju hluta-bréfin í Vafningi hafi verið veðsett. „Ég ætla bara ekkert að tjá mig um það.“ Hugsanlegt er hins vegar að þetta hafi verið gert sem veð á móti tæp-lega 5 milljarða króna láni frá Glitni inn í eignarhaldsfélagið Svartháf, sem var í eigu föður Karls og Stein-gríms Wernerssona, sem síðan var endurlánað strax aftur til Vafnings á fyrstu mánuðum 2008. Eini tilgang-ur Svartháfs var að vera leppur fyr-ir frekari lánveitingar frá Glitni til þeirra Wernerssona. Vafningur fékk enn fremur 10 milljarða króna víkj-andi lán frá Sjóvá síðar í febrúar. Ljóst er að kaup Vafnings á lúxusturninum voru fjármögnuð með einhverju af þessum lánveitingum. Turninn innlegg Wernersbræðra Aðspurður af hverju BNT, Hafsilfur og Hrómundur hafi þá tekið ákvörð-un um að kaupa turninn í Makaó í gegnum Vafning segir Bjarni að þeir hafi ekki gert það: „Það er stjórn Vafnings sem hefur gert það,“ segir Bjarni. Þegar Bjarni er spurður hvort þeir hafi ekki komið að ákvörðuninni um það að kaupa turninn því þeir hafi verið stórir hluthafar í Vafningi segir Bjarni: „Ég sat aldrei í stjórn þar... Vafningur snýst um meira en það að fara með eignarhald á þessum turni. Þetta eru eignir sem Werners-bræður leggja inn í félagið sín meg-in frá og þær koma okkur bara ekk-ert við,“ segir Bjarni en blaðamaður segir þá við hann að auðvitað komi þessar eignir þeim við þar sem þeir hafi verið hluthafar í Vafningi sem keypti turninn í Makaó. Bjarni virðist þó vera á annarri skoðun. Stjórnarmenn Vafnings, sem síð-ar var endurskírður Földungur, voru hins vegar starfsmenn Milestone, þeir Guðmundur Ólason og Jóhann-es Sigurðsson, og virðast þeir því hafa tekið ákvarðanir fyrir hönd fé-lagsins sem byggðu á vilja eigenda Milestone, þeirra Karls og Steingríms Wernerssona, sem samtals réðu yfir meirihluta í Vafningi þó eignarhlut-ir Engeyjarmannanna væru stórir. Þetta skýrir þó ekki af hverju félög-in þrjú í kringum Bjarna, Einar og Benedikt ákváðu að taka þátt í félag-inu til að byrja með. Snerist um endurfjármögnun lána Aðspurður af hverju BNT, Hafsilf-ur og Hrómundur hafi ákveðið að taka þátt í Vafningi og hvort hann hafi komið að þeirri ákvörðun seg-ist Bjarni ekki hafa gert það: „Það er ekki hægt að segja að þetta sé ákvörðun sem hafi átt sér neinn sér-stakan aðdraganda. Þetta er mál sem var inni á borði hjá forstjóranum [hjá BNT eða N1, innsk. blaðamanns] og þetta er meira frágangsmál en nokk- uð annað,“ segir Bjarni. Aðspurður hvort hann hafi þá komið að því að ákveða það fyrir hönd BNT að gerast hluthafi í Vafningi segir Bjarni: „Ég skýst aldrei undan ábyrgð á því sem ég skrifa undir fyrir hönd þess félags sem ég sit í stjórn fyrir,“ segir Bjarni sem undirstrikar að þetta þýði þó ekki að hann hafi haft vitneskju um að Vafningur væri að kaupa turninn í Makaó. Bjarni virðist þó hafa kvittað upp á þátttöku BNT í Vafningi sem stjórnarformaður félagsins.Þegar blaðamaður segir við Bjarna að hann hafi ekki neina trú á því að Vafningur hafi ákveðið að kaupa turninn í Makaó án vitundar Bjarna og hluthafa félaganna þriggja segir hann: „Þú hefur ekki heildaryf-irsýn yfir það sem menn eru að gera á þessum tíma. Menn eru að end-urfjármagna lán og það er það sem er aðalástæðan fyrir þátttöku þess-ara félaga í Vafningi. En ég tók aldrei ákvörðun um að félagið tæki þátt í fjárfestingunum í Makaó. Mér var ekki kunnugt um að Vafningur væri að fara að taka yfir þessar fjárfesting-ar í Makaó,“ segir Bjarni. Það sem Bjarni vísar líklega til með þessum orðum er að í ársbyrj-un stóðu ýmis íslensk eignarhalds-félög eins og FL Group og Milestone frammi fyrir því að þurfa að endur-fjármagna lán sem tekin höfðu verið hjá erlendum fjármálafyrirtækjum. Vegna væntanlegrar lægðar á fjár-málamörkuðum og sökum þess að þá þegar voru blikur á lofti í íslensku efnahagslífi kipptu erlend fjármála-fyrirtæki að sér höndum og neituðu að endurnýja lánasamninga við ís-lensk félög. Þetta gerðist til að mynda með Milestone sem þurfti að endurfjár-magna lán hjá fjárfestingarbank-anum Morgan Stanley í ársbyrjun 2008. Vegna þess að Milestone gat ekki fengið meira að láni frá Glitni var búið til félag sem hét Svartháf-ur og var í eigu föður eigenda Miles-tone. Þetta félag endurlánaði féð frá Glitni strax til félags í eigu Milestone sem gat þar með greitt af láninu. Og Svartháfur lánaði Vafningi sömuleið-is. Hugsanlegt er, þegar litið er til orða Bjarna, að ástæðan fyrir stofn-un Vafnings hafi verið tengd ein-hverjum slíkum snúningi af hálfu Milestone og jafnvel N1-manna. Bjarni óbeinn hluthafi í Vafningi Aðspurður hvort hann hafi ekki sjálf-ur átt hlutabréf í BNT á þessum tíma segir Bjarni: „Jú, en það er langt síð-an... Ekki eftir þennan tíma. Ég seldi þennan eignarhluta minn í BNT á fyrsta ársfjórðungi ársins 2008, í síð- asta lagi í mars 2008. En þetta hefur ekkert með hlutabréfin mín í BNT að gera,“ segir Bjarni sem var því sam-kvæmt þessu hluthafi í BNT þegar Vafningur keypti fasteignaverkefnið í Makaó. „En hvað kemur mér það við þó BNT eigi lítinn hlut í þessu fé-lagi?“ segir Bjarni sem var, eins og áður segir, stjórnarformaður í BNT og N1 þegar Vafningur keypti fast-eignaverkefnið í Makaó. Bjarni: Ekkert eiginfjárframlagBjarni segir að hlutabréfaeign sín í BNT hafi ekki haft neitt með fast-eignaverkefnið í Makaó að gera. „Hversu mikið heldur þú að BNT hafi sett inn í þetta félag af eignum sínum? Hefur þú einhverja hugmynd um það?“ segir Bjarni. „Ætli þessi viðskipti hafi því haft einhver áhrif á verðmæti þess eignarhlutar sem ég átti í BNT á þeim tíma?“ Hann segir að mikilvægt sé að halda því til haga að félögin hafi ekki endilega verið að kaupa sig inn í Vafning: „Þú segir að þeir hafi ver-ið að kaupa sig inn í þetta? Hvern-ig keyptu þeir sig inn í þetta? Með hvaða eiginfjárframlagi? Hverjir eru að hætta einhverju til?“ segir Bjarni. Blaðamaður segir við Bjarna að hann átti sig á því að ólíklegt sé að þeir hafi lagt eitthvert eigið fé fram í viðskiptunum: „Það er ólíklegt að þið hafið lagt eitthvað fram í þessum við-skiptum,“ segir blaðamaður en svar Bjarna við þeirri fullyrðingu er „ein-mitt“. Blaðamaður segir við Bjarna að það sé augljóst að viðskipti Vafnings hafi verið fjármögnuð að langmestu leyti með lánum frá Glitni, Sjóvá og Svartháfi. „Já, en það allt saman er eitthvað sem ég var bara aldrei neitt inni í,“ segir Bjarni en jafnframt er ljóst að hluthafar Vafnings hefðu get-að grætt fúlgur fjár á turninum ef við-skiptin hefðu gengið sem skyldi - þá hefðu þeir fengið mikið fyrir lítið.Bjarni segist ekki vita hversu miklu BNT, Hafsilfur og Hrómund-ur hafi tapað á viðskiptunum í Vafn-ingi en samkvæmt því sem segir hér að framan getur það ekki hafa ver-ið mjög mikið þó ábyrgð félaganna á fasteignaverkefni Vafnings sé aug-ljóslega töluverð, hvort sem þeir vissu af því eða ekki, þar sem þeir áttu stóran hlut í því. Stóra spurningin sem stendur eftir varðandi aðkomu Bjarna Bene-diktssonar að fasteignaverkefninu í Makaó er hversu mikið hann vissi um það. Bjarni segist ekki hafa vitað að Vafningur hefði fjárfest í Makaó fyrr en nokkrum mánuðum eftir að það átti sér stað, þrátt fyrir að hann hafi verið stjórnformaður í hluthafa félagsins og að hann hafi veðsett hlutabréf þess. Vafningur til að endurfjármagna lán Bjarni segir að tilgangurinn með stofnun Vafnings hafi meðal annars verið að endurfjármagna lán og að hann hafi ekki vitað að félagið hefði keypt háhýsi á Makaó fyrir fimm milljarða króna sama dag og hann veðsetti hlutabréf í því. Sérlega glæsilegir úr satin og blúndu Góð þjónusta - fagleg ráðgjöfLaugavegi 178, 105 Rvksími 551-3366 www.misty.is Teg. Emma - “Push up” í B,C,D skálum á kr. 6.885 Teg. Emma - “Push up” í D,DD,E,F,FF skálum á kr. 6.885,- Teg.Emma Teg. Emma Opið virka daga kl. 10-18 lau 12.des kl. 10-16 lau 19.des kl. 10-18 Þorláksmessa kl. 10-20 days30 OXYTARM OXYTARM 30 days Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman 120 töflu skammtur Betri apótekin og Maður lifandiwww.sologheilsa.is. Endurnærir og hreinsar ristilinnAllir dásama OXYTARM Í boðieru 60-150 töflu skammtar & DETOX 2 MIÐVIKUDAGUR 16. desember 2009 FRÉTTIR DV hefur á síðastliðinni viku greint frá aðkomu Bjarna Benediktssonar, for- manns Sjálfstæðisflokksins og fyrr- verandi stjórnarformanns BNT og N1, að fjárfestingum eignarhaldsfélags- ins Vafnings í febrúar í fyrra. Vafning- ur var settur á laggirnar fyrir tilstuðl- an eignarhaldsfélagsins Milestone og keypti félagið eignir í Makaó í Asíu og í Bretlandi af tryggingafélaginu Sjóvá. Tryggingafélagið var stærsti hlut- hafinn í Vafningi en þar á eftir komu eigendur N1, bræðurnir Einar og Benedikt Sveinssynir. Bjarni, sem er sonur Benedikts, fékk umboð frá bræðrunum til að veðsetja hluta- bréf þriggja eignarhaldsfélaga þeirra í Vafningi fyrir tveimur lánum frá Glitni sem veitt voru í febrúarlok 2008. Bjarni hefur viðurkennt að hafa veð- sett bréfin en segist enga aðra aðkomu hafa haft að viðskiptum Vafnings sem fjárfesti í lúxusturninum í Makaó og breska fjárfestingasjóðnum KCAJ fyr- ir 10,6 milljarða króna sama dag og hann veðsetti hlutabréf fjölskyldu- meðlima sinna í Vafningi. Þessi við- skipti voru að öllum líkindum fjár- mögnuð með 10,6 milljarða láni frá Sjóvá sem veitt var í lok febrúar í fyrra. Skýringar Bjarna eru á þá leið að hann hafi ekkert vitað um þessi viðskipti Vafnings fyrr en einhverjum mánuð- um síðar. Bjarni gefur fá svör DV hefur tvívegis rætt við Bjarna um viðskipti Vafnings og aðkomu hans að þeim og hafa svör Bjarna við efn- islegum spurningum um félagið ver- ið heldur fáfengileg. Hann veit þó ým- islegt um starfsemi félagsins og segir að því verið komið á koppinn til að endurfjármagna lán. Hann vildi hins vegar ekki ræða hvaða lán var um að ræða. Lítið annað hefur fengist upp úr Bjarna um félagið en ljóst er af sam- tölunum við Bjarna að hann þekk- ir starfsemi og tilgang félagsins í það minnsta sæmilega. Síðastliðinn sunnudag þegar frétt DV um fjárfestingu Vafnings í breska fjárfestingasjóðnum KCAJ var í vinnslu hafði blaðamað- ur sam- band við Bjarna til að spyrja hvort hann hefði vit- að um þessi viðskipti þegar hann veðsetti bréfin í Vafningi. Samtal blaðamanns við Bjarna er birt í heild sinni á næstu síðu að undanskildu upphafi samtalsins þar sem blaða- maður kynnti sig og bar upp inngang að erindinu. Gagnrýni Bjarna Bjarna var nokkuð mikið niðri fyr- ir í samtalinu, eins og sést, enda taldi hann að í umfjöllun DV um sig og Makaó-viðskiptin væru miklar rang- færslur. Gagnrýni Bjarna gengur út á það, og að því er virðist aðeins það, að DV hafi ekki farið rétt með þegar sagt var að misheppnaðar fjárfestingar Sjóvár, og síðar Vafnings, í Makaó kostuðu hvern íslenskan skattgreiðanda 10 þúsund krónur. Sagt var í fréttinni að hluti þeirra 12 milljarða króna sem ís- lenska ríkið þurfti að leggja inn í Sjóvá til að bjarga félaginu frá þroti síðastlið- ið sumar væri tapað fé. Gagnrýni Bjarna á þetta atriði fréttaflutnings DV er réttmæt í þeim skilningi að ekki kom fram í fyrri frétt af málinu að ríkið gæti endurheimt framlag sitt vegna fjárfestingarinnar í Makaó. Um lán var að ræða sem rík- issjóður fær vonandi greitt aftur þeg- ar tryggingafélagið verður selt. Því er vonast til að kostnaður ríkisins og þar með 10 þúsund króna kostnað- ur hvers Íslendings vegna fjárfesting- anna í Makaó verði tímabundinn. Þó er alls ekki ljóst hversu mikið af þess- um fjármunum íslenska ríkið fær til baka og hvort kostnaðurinn muni á endanum lenda á greiðendum ið- gjalda, svo dæmi sé nefnt. Þetta atriði sem Bjarni gagnrýnir er hins vegar ekki lykilatriði í frétta- flutningi DV um að- komu Bjarna að fjárfestingum Vafnings. Lykilat- riðið er að hann tengist þessum fjárfest- ing- um eins og bent hef- ur verið á. Bjarni sagði DV ekki vilja leiðrétta Eftir að meðfylgjandi samtal milli Bjarna og blaðamanns hafði átt sér stað á sunnudaginn hringdi Bjarni Benediktsson í Hrein Loftsson, eig- anda DV, og bar því við að umfjöll- un DV væri þess eðlis að hann teldi rétt að blaðið birti leiðréttingu vegna rangfærslna sinna. Hreinn sagði Bjarna hins vegar að hafa samband við ritstjórn blaðsins. Í kjölfar sam- talsins við Hrein sendi Bjarni frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði að DV hefði „ekki áhuga á að birta“ slíkar leiðréttingar. Samtal Bjarna og blaðamanns sýnir hins vegar að blaðamað- ur sagði Bjarna að hann myndi birta leiðréttingar á rangfærsl- um DV um aðkomu hans að viðskiptum Vafnings. Því ber þó að halda til haga að Bjarni gagnrýndi einungis þetta til- tekna atriði: Að þriggja millj- arða króna tap Sjóvár í Makaó félli ekki á íslenska skattgreið- endur þar sem ríkið hefði ein- ungis lánað skilanefnd Glitnis til að bjarga Sjóvá frá þroti. Því gæti fjár- framlag ríkisins fengist endurgreitt þegar fram líða stundir. Aðrar efnis- legar athugasemdir um inntak fréttar- innar hafði Bjarni ekki, líkt og sést á samtalinu. DV birti svo útskýringu á þessu at- riði á tveimur stöðum í blaðinu sem út kom á mánudaginn þar sem áfram var fjallað um aðkomu Bjarna að við- skiptum Vafnings. Blaðið varð því við beiðni Bjarna jafnvel þótt hann hefði haldið öðru fram í yfirlýsingu sinni og sagt að blaðið væri ekki reiðubúið til að birta slíkra leiðréttingu. Ritstjórn DV hafði samband við Bjarna á mánudaginn og bauð honum að draga þau ummæli sín til baka að DV hefði ekki viljað birta leiðréttingu á fréttinni. Jafnframt var Bjarna boð- ið að biðjast afsökunar á ummælum sínum um blaðið. Bjarni kaus að gera það ekki þrátt fyrir að samtalið sýni að blaðamaður hafi sagst reiðubúinn að leiðrétta þetta tiltekna atriði í fréttinni. Blaðið birtir því allt samtalið þar sem það kemur fram með skýrum hætti að blaðamaður DV bauðst til að leiðrétta umfjöllunina ef rangt hefði verið farið með tiltekin atriði, öfugt við það sem Bjarni heldur fram. Lesendur geta svo dæmt sjálfir. Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, var sagt að tiltekið atriði í um- fjöllun um aðkomu hans að eignarhaldsfélaginu Vafningi yrði leiðrétt ef sannað væri að rangt væri farið með. Bjarni hélt því hins vegar fram í yfirlýsingu að DV hefði neitað að leiðrétta umfjöllunina. Bjarni telur að umfjöllun DV um aðkomu hans að viðskipt- unum sé byggð á persónulegri óvild í hans garð. Hann vill lítið tjá sig um Vafning. „ÞÉR ER BARA ILLA VIÐ MIG“ EIGNARHALD Á TURNINUM Í MAKAÓ: Vafningur ehf. - 100 prósent - SJ Properties MacauOneCentral HoldCo ehf. - 100 prósent - Drakensberg Investments Limited á Bresku Jómfrúareyjum - 100 prósent - Turninn í Makaó EIGNARHALD Á VAFNINGI: SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir) - 48,8 prósent Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveinsson, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl. og Sáttur/Guðmundur Ólason) - 39,10 prósent Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2, Hrómundur, Hafsilfur) - 12,1 prósent „Ég kom ekkert nálægt þeim ákvörðunum sem áttu sér stað þennan dag.“ INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is Ekki satt Gagnrýni Bjarna á frétta- flutning snérist um að ekki væri rétt að fullyrða að ríkissjóður hefði tapað þremur milljörðum á fjárfestingunni í Makaó þar sem ríkið hefði lánað upphæðina inn í tryggingafélagið og gæti því fengið hana aftur. Bjarni sagði DV ekki reiðubúið að leiðrétta þetta atriði en samtalið sýnir fram á annað. Aðkoma Bjarna ekki ljós Aðkoma Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðis- flokksins, að viðskiptum Vafnings liggur enn ekki ljós fyrir þar sem hann hefur ekki viljað tjá sig mikið um þau. Vitað er að hann veðsetti bréf félagsins og að fjölskylda hans átti stóran hlut í félaginu. Karl Wernersson og Guðmundur Ólason hjá Milestone hafa skipulagt viðskiptin að stóru leyti. YFIRLÝSING BJARNA BENEDIKTSSONAR, FORMANNS SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS, FRÁ ÞVÍ SÍÐASTA SUNNUDAG: „Undanfarna daga hefur DV slegið upp fréttum í þeim tilgangi að reyna að sýna fram á tengsl mín við fjárfestingar á Makaó. Ég hef greint blaðinu frá því að ég hafi ekki komið nálægt ákvörðunum um þær fjárfestingar. Í dag hringdi blaðamaður DV, Ingi Vilhjálmsson, í mig vegna sama máls. Ég tjáði honum að ég treysti ekki samskiptum við blaðið og því myndi ég ekki vilja bregðast sérstaklega við frekari spurningum. Ég rakti rangfærslur blaðsins fyrir blaðamannin- um og lýsti þeirri skoðun minni að ég teldi rétt að blaðið birti leiðréttingu vegna umfjöllunar sinnar. Slíkar leiðréttingar hefur DV ekki áhuga á að birta. Ég hafði því samband við eiganda blaðsins, Hrein Loftsson, og tjáði honum að ég teldi blaðamennsku af því tagi sem birst hefði síðastliðna daga algerlega óásættanlega. Áður en ég hafði haft tök á að fara yfir samskipti mín við blaðið æsti Hreinn sig, sagðist ekki lúta mínu boðvaldi og sagði mér að eiga samskipti um þetta við ritstjórn blaðsins. Að svo búnu skellti hann á. Stuttu síðar birtist viðtal við eigandann þar sem hann segist hafa spurt mig til hvers ég ætlaðist af honum og að ég hafi svarað með því að krefjast þess að hann stöðvaði fréttaflutning blaðsins. Þessi hluti samtals okkar Hreins hefði kannski getað farið fram ef samtalið hefði orðið lengra. En hann náði því miður ekki að bera spurninguna upp við mig áður en hann skellti á mig. Ég hef því aldrei farið fram á að Hreinn Loftsson stöðvaði fréttaflutning DV, þó óvandaður sé. Ætlun mín var einfaldlega sú að segja eiganda blaðsins skoðun mína á óásættanlegum vinnubrögðum blaðamanns sem þar starfar og útskýra fyrir honum í hverju ég teldi rangfærslur þess liggja. Nú er komið í ljós að Hreini Loftssyni er alveg sama um með hvaða hætti fréttamenn á hans vegum starfa að fréttaflutningi. Sá fréttaflutningur er hvorki vandaður, réttmætur né sanngjarn. Það verður Hreinn Loftsson að eiga við sig. Ég bið hann engu að síður að hafa rétt eftir þegar hann lýsir stuttum samskiptum okkar sem hann sjálfur batt enda á. Framganga blaðamanna DV og eiganda blaðsins eru hins vegar þess eðlis að um þetta mál mun ég ekki frekar við þá ræða.“ FRÉTTIR 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 3 Blaðamaður: „Sama dag, þann 8. febrúar 2008, kaupir Vafning- ur breskan fjárfestingasjóð af dótt- urfélagi Sjóvár fyrir 5,4 milljarða. Fjárfestingasjóðurinn heitir KCAJ LLP og var í smásölu á Bretlands- eyjum. Veistu eitthvað um það?“ Bjarni: „Veistu það, Ingi, að mér finnst þú lélegur blaðamað- ur. Ég treysti þér ekki og ég ætla ekki að eiga nein samskipti við þig.“ Blaðamaður: „Af hverju er ég lélegur blaðamaður?.” Bjarni: „Vegna þess að þú ferð með ranga hluti og þér er alveg sama.“ Blaðamaður: „Eins og hvað, hvað er rangt?“ Bjarni: „Vegna þess að þú ert að halda því fram að ég hafi gert eitthvað sem muni kosta ís- lenska skatt- greiðend- ur 10.000 krónur á mann. Þetta er al- gert bull, þetta fé- lag kostar eng- an neitt, það er að segja af almennum skattgreiðendum.“ Blaðamaður: „En íslenska rík- ið þurfti að leggja Sjóvá til 12 milljarða króna til að bjarga félaginu frá þroti?“ Bjarni: „Það er annað, Ingi minn. Ég hringi í þig um dag- inn og þú ert að taka upp viðtalið við mig. Af hverju sagðir þú mér það ekki að þú værir að taka við mig viðtal sem þú ætlaðir að birta í blaðinu?“ Blaðamaður: „Lá það ekki ljóst fyrir? Bjarni: „Nei, nei, nei. Þú verður að virða siða- reglur blaðamanna.“ Blaðamaður: „Ég geri það.“ Bjarni: „Nei, þess vegna ertu lélegur blaðamað- ur.“ Blaðamaður: „En þú segir að það sé rangt...“ Bjarni: „Þú sagðir mér ekki að við værum að eiga viðtal. En þú hefðir átt að gera það.“ Blaðamaður: „Ég hélt að það lægi ljóst fyrir. Við töl- uðum saman í hálftíma.“ Bjarni: „Nei, nei, nei. Ég var að færa athugasemdir við það sem þú varst þeg- ar búinn að skrifa.“ Blaðamaður: „Já, og skýra þitt mál og aðkomu þína að þessu félagi, sem er lykilatriði í málinu.“ Bjarni: „Við töluðum aldrei um að ég væri í ein- hverju viðtali við þig.“ Blaðamaður: „Afsakaðu, en ég hélt að það væri alveg ljóst þar sem við vorum að ræða þessi mál efnislega.“ Bjarni: „Það var það bara alls ekki. Útskýrðu fyrir mér af hverju ís- lenskir skattgreiðendur munu þurfa að borga 10 þúsund á mann út af þessu félagi?“ Blaðamaður: „Íslenska ríkið þurfti að leggja 12 milljarða króna inn í Sjóvá í sumar.“ Bjarni: „Það er rangt. Blaðamaður: „Er það rangt?“ Bjarni: „Já, já. Íslenska ríkið lán- aði Glitni peninga sem það mun fá aftur. Íslenska ríkið hefur ekki lagt neitt fram. Þetta er bara bull í þér. Þú átt að vinna vinnuna þína eins og maður.“ Blaðamaður: „Sjóvá tapaði rúm- um 3 milljörðum á þessari fjárfest- ingu í Makaó...“ Bjarni: „Hvenær lagði ríkið fram peninga sem það fær ekki til baka? Væntanlega mun ríkið ekki bera neinn skaða af þessu. Þegar þú segir að ríkið tapi þeim pening- um þá verður það að vera kom- ið í ljós að ríkið fái þá peningana ekki til baka. Þegar maður tapar einhverju þá fær maður það ekki endurgreitt sem maður lánar. Er það ekki satt?“ Blaðamaður: „Jú, það er satt.“ Bjarni: „Einmitt. Nú er það stað- fest að þú getur ekki sagt mér hvernig íslenska ríkið tapar 10 þúsund per Íslending út af fjárfest- ingum Sjóvár í Makaó. Þess vegna treysti ég þér ekki því þú ert bú- inn að halda því fram í blaðinu að ég hafi gert eitthvað sem hafi valdið því að ríkið þurfi að leggja fram upphæð sem nemur 10 þús- und krónum per Íslending. Þetta er bara bull í þér. Þér er bara illa við mig og þú ert í leiðangri til að koma á mig höggi. Ég ætla ekki að hjálpa þér í því.“ Blaðamaður: „Mér er ekki illa við þig, Bjarni minn, síður en svo, og það er kjaftæði að ég sé í leiðangri til að koma á þig höggi. Þetta er rangt. Hvað á ég að gera? Ég er með ákveðnar heimildir hér. Ég ræð því ekki hvaða heimildir ég hef fengið upp í hendurnar. Það sama hefði gerst ef ...“ Bjarni: „Þú ert bara aumur blaða- maður sem ert að velta þér upp úr skítnum til að reyna að selja blað- ið.“ Blaðamaður: „Er ég hvað, segir þú?“ Bjarni: „Þú ert bara aumur blaða- maður sem ert að reyna að koma höggi á mig í þeim tilgangi að selja blaðið.“ Blaðamaður: „Það er ekki satt.“ Bjarni: „Því miður, Ingi minn, þú bara sérð það ekki sjálfur.“ Blaðamaður: „Ef ég hefði fengið slíkar upplýsingar um einhvern annan stjórnmálamann þá hefði það sama gilt þar. Það er bara þannig. Ég ræð því ekki hvaða heimildir ég fæ.“ Bjarni: „Það stendur ekki steinn yfir steini í því sem þú ert að segja. Og ég hef bara ekkert við þig að segja.“ Blaðamaður: „Bjarni minn, stendur ekki steinn yfir steini?“ Bjarni: „Segðu mér hvernig ís- lenskir skattgreiðendur tapa á þessari fjárfestingu í Makaó?“ Blaðamaður: „Ég er búinn að gera það. Þú heldur því fram að ég hafi rangt fyrir mér. Ég skal at- huga það betur. Ég er búinn að út- skýra það fyrir þér hvernig ég taldi að það hefði gerst. En þú segir að það sé rangt.“ Bjarni: „Þú skalt leiðrétta það. Þú skalt skrifa það á forsíðuna að enginn hafi tapað neinu.“ Blaðamaður: „Það kann að vera að það sé rétt hjá þér og að ég hafi rangt fyrir mér. Ég skal athuga það betur. Ef ég segi eitthvað rangt þá mun ég leiðrétta það. Það er bara þannig. Það breytir því samt sem áður ekki að þú tengist þessu félagi [Vafningi, innskot blaðamanns]. Það er lykilatriði málsins.“ Bjarni: „Ég á ekkert í þessu félagi og ég hef engar ákvarðanir tekið fyrir þetta félag.“ Blaðamaður: „En þú tengist þessu félagi, Bjarni. Þú veðsetur bréf- in út af tveimur lánveitingum frá Glitni sem veittar voru í lok febrú- ar 2008.“ Bjarni: „Nei, það eru eigendur bréfanna sem veðsetja þau.“ Blaðamaður: „Já, en þú gerir það fyrir þeirra hönd.“ Bjarni: „Einmitt.“ Blaðamaður: „Og pabbi þinn er einn af eigendum þessara bréfa. Og samkvæmt því sem pabbi þinn sagði mér í síðustu viku þá er hann hættur í viðskiptum. Mér sýnist á öllu, líka meðal annars vegna þess að þú settist í stjórn Máttar á seinni hluta árs 2008 væntanlega fyrir hans hönd...“ Bjarni: „Ég hef ekkert um þetta að segja þar sem ég kom ekki nálægt þessum ákvörðunum.“ Blaðamaður: „Ég er bara að segja það, Bjarni, að annaðhvort þú eða pabbi þinn, hann er hluthafi í fé- laginu...“ Bjarni: „Pabbi þinn er formað- ur í þessum banka. Spurðu hann bara. [Faðir blaðamanns, Vil- hjálmur H. Vilhjálmsson, er for- maður bankaráðs Íslandsbanka, innskot blaðamanns.] Blaðamaður: „Hann veit ekkert um þetta eins og þú veist. Ég veit að hann er búinn að tala við þig.“ Bjarni: „Ekki ég heldur.“ Blaðamaður: „Veist þú ekki neitt?“ Bjarni: „Ég veit ekkert um þetta. Ég tók engar ákvarðanir varðandi fjármögnunina á þessu félagi. Ég veit ekkert um það hvernig þessir gerningar urðu til.“ Blaðamaður: „En ég skil ekki enn þá af hverju þið tókuð þátt í þessu.“ Bjarni: „Nei, en samt ertu búinn að skrifa langar greinar í blaðið og birta myndir af mér á forsíðunni. Samt veistu ekkert og skilur ekk- ert. Þess vegna ertu lélegur blaða- maður. Þess vegna er ég að segja þér það.“ Blaðamaður: „Bjarni, þetta er nú óþarfi.“ Bjarni: „Nei, þetta er enginn óþarfi. Mér er bara orðið verulega í nöp við þig. Ég hef bara ekkert við þig að segja.“ Blaðamaður: „Bjarni, settu þig í mín spor. Ef þú værir með ákveðn- ar heimildir og þú myndir vinna sem blaðamaður...“ Bjarni: „Þú ert ekki með neitt sem skiptir máli. Það er það sem þú ert ekki enn þá búinn að átta þig á. Talaðu við þá sem tóku þessar ákvarðanir. Láttu mig bara í friði.“ Blaðamaður: „En Bjarni, viss- ir þú að þetta félag hefði fjárfest í þessum breska fjárfestingasjóði sama dag og þú fékkst umboð til að veðsetja bréfin í félaginu?“ Bjarni: „Ég er búinn að margsegja við þig að ég tók engar ákvarðanir fyrir hönd þessa félags...“ Blaðamaður: „Já, en vissir þú það? Það er það sem ég vil vita. Vissir þú að þetta félag væri að fjárfesta í Makaó? Vissir þú að þetta félag væri að fjárfesta í þess- um breska fjárfestingasjóði?“ Bjarni: „Ég kom ekkert nálægt þeim ákvörðunum sem áttu sér stað þennan dag.“ Blaðamaður: „Af hverju getur þú ekki svarað með já eða nei? Vissir þú það eða vissir þú það ekki? Bjarni: „Að sjálfsögðu ekki.“ Blaðamaður: „Vissir þú það ekki að þetta félag sem þú tengist væri að eiga í 10 milljarða viðskipt- um?“ Bjarni: „Ég kom ekki nálægt neinni ákvarðanatöku um þá end- urfjármögnun sem var að eiga sér stað á þessum tíma. Þess vegna vissi ég ekki hvaða gerningar lágu þarna að baki. Ég kom einungis að þeirri ákvörðun, eða að þeim gerningi, að veðsetja hlutabréf- in fyrir hönd þeirra sem á þeim héldu. Aðrir voru að vinna í end- urfjármögnuninni í samvinnu við bankann. Punktur. Og hættu nú þessu bulli.“ Blaðamaður: „En Bjarni, ég tal- aði við pabba þinn, spurði hann um þetta og hann sagðist ekkert þekkja til þessa félags [Vafnings, innskot blaðamanns]. Bjarni: „Ingi minn. Af hverju ertu að hringja í mig? Af hverju tal- ar þú ekki við mennina sem tóku lánin, sem keyptu turninn? Tal- aðu við mennina sem tóku þessar ákvarðanir.“ Blaðamaður: „En Bjarni ...“ Bjarni: „Blessaður, Ingi minn. Ég hef ekkert meira við þig að segja. Þú ert ekki enn þá búinn að leið- rétta það sem þú ert búinn að ljúga upp á mig. Þú ert búinn að kalla vandræði yfir mig. Ég vil ekki eiga samskipti við þig. Ég treysti þér ekki.“ Blaðamaður: „Bjarni, ég er búinn að segja það við þig að ef það sem þú ert búinn að segja við mig [um að rúmir 3 milljarðar falli ekki á ríkissjóð út af tapinu í Makaó ef lán- ið sem skilanefnd Glitnis fékk vegna Sjóvár verður greitt til baka eins og gert er ráð fyrir, innskot blaða- manns] reynist vera rétt...“ [Hér ætl- aði blaðamaður að segja Bjarna aftur að það yrði þá leiðrétt að hver íslenskur skattgreiðandi þyrfti að greiða um 10 þúsund krónur út af fjárfestingum Sjóvár í Makaó, að því gefnu að hægt yrði að greiða 12 milljarða lánið frá ríkissjóði til baka, innskot blaðamanns.] Bjarni: „Blessaður, Ingi minn. Ég ætla ekki að ræða meira við þig.“ Blaðamaður: „Allt í lagi.“ Bjarni: „Blessaður.“ Blaðamaður: „Bless.“ SAMTAL BLAÐAMANNS DV VIÐ BJARNA BENEDIKTSSON, FORMANN SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS, SUNNUDAGINN 13. DESEMBER 2009: Blaðamaður kynnir sig og ber upp erindið. Hann vill komast að því hvort Bjarna hafi verið kunnugt um að eignarhaldsfélagið Vafningur hafi fjárfest í breska fjárfestingasjóðnum KCAJ sama dag og félagið fjárfesti í fasteignaverkefni í Makaó í Asíu og hann veðsetti bréfin í félaginu fyrir hönd skyldmenna sinna. Bjarni svarar og hlustar á kynningu blaðamanns. Aðkoma Bjarna að Vafningi Vafningur fjárfesti meðal annars í lúxusíbúðaturni í Makaó í Suðaustur-Asíu, sem sést hér neðst í hægra horninu, og í breskum fjárfestingasjóði. Bjarni veðsetti hlutabréf í Vafningi sama dag og viðskipin gengu í gegn en segist ekki hafa vitað af þeim. 12 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR Samkvæmt heimildum DV var ein af ástæðunum fyrir stofnun eign- arhaldsfélagsins Vafnings í febrúar 2008, og kaupum þess á eignum dótt- urfélaga Sjóvár, sú að eignarhaldsfé- lagið Þáttur International fékk veðkall vegna láns frá fjárfestingarbankanum Morgan Stanley. Eignirnar sem keypt- ar voru eru lúxusturninn í Makaó og breski fjárfestingarsjóðurinn KCAJ. Þáttur tók lánið frá Morgan Stanley á fyrri hluta árs 2007 til að fjármagna kaupin á hlutabréfum í Glitni og var félagið í raun stofnað gagngert til þess, samkvæmt heimildum DV. Veðið fyrir láninu frá Morgan Stanley var í bréf- um félagsins í Glitni. Eigendur Þáttar, þeir Karl og Steingrímur Wernerssyn- ir og Einar og Benedikt Sveinssynir, stóðu þá frammi fyrir því að þurfa að endurgreiða lánið eða missa bréfin sín í Glitni. Til þess að geta fengið lánafyrir- greiðslu frá Glitni til að standa í skil- um við Morgan Stanley þurftu eig- endur Þáttar International að koma sér upp eignum sem hægt væri að veðsetja fyrir láninu. Í þessu augna- miði var eignarhaldsfélagið Vafning- ur búið til. Vafningur átti þá bæði fjár- festingarverkefnið í Makaó sem og breska fjárfestingarsjóðinn en geng- ið var frá þeim viðskiptum sama dag og Bjarni Benediktsson veðsetur hlutabréf félagsins hjá Glitni, þann 8. febrúar 2008. Þetta stemmir við frásögn Bjarna sjálfs sem sagði í viðtali við DV í síð- ustu viku: „Menn eru að endurfjár- magna lán og það er það sem er aðal- ástæðan fyrir þátttöku þessara félaga í Vafningi,“ sagði Bjarni. Áttu mörg félög saman Vafningur var einungis eitt af fjöl- mörgum félögum sem Wernerssyn- ir og Sveinssynir áttu saman. Annað félag var BNT, móðurfélag olíurisans N1, en Máttur er hluthafi í félaginu. Milestone átti að minnsta kosti einn stjórnarmann í BNT þegar Bjarni Benediktsson var stjórnarformaður þess en það var Óskar Garðarsson, starfsmaður Milestone, sem einn- ig sat í stjórn KCAJ og fleiri félögum tengdum Milestone. Sömuleiðis áttu þeir Werners- og Sveinssynir saman hið áðurnefnda félag Þátt International, en það var í gegnum sömu eignarhaldsfélög - SJ2, Skeggja og Mátt - og héldu utan um eign þeirra á fasteignaverkefninu í Makaó og KCAJ. Þáttur Internation- al hélt utan um hlutabréfaeign þeirra bræðra í Glitni en félagið átti um 7 prósenta hlut í bankanum. Í heild- ina eru þetta því allmörg félög sem þeir Werners- og Sveinssynir komu að saman, að minnsta kosti: BNT, N1, Vafningur, Máttur, Þáttur Internation- al og Skeggi. Vafningur flæktur í Svartháfsmálið Lánið til Vafnings sem notað var til að endurgreiða Morgan Stanley kom svo frá eignarhaldsfélaginu Svart- háfi, félagi í eigu föður Karls og Steingríms Wernerssona, sem stofnað var gagngert til að leppa lán frá Glitni og til fé- laga í eigu þeirra og Sveins- sona. Ástæðan fyrir stofnun Svartháfs er sú að félög í eigu Karls og Steingríms voru búin að fá svo mikið lánað frá Glitni að ekki mátti lána þeim meira vegna reglna FME um þak á lánveitingum frá fjármálafyrirtækj- um til einstakra aðila. Á eina stjórnarfundinum sem vit- að er til að haldinn hafi verið í Svart- háfi var ákveðið að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörð- um króna á núverandi gengi. 50 milljónir evra af láninu frá Svartháfi runnu beint til Vafnings sem þá gat notað lánið til að endur- greiða hluta láns Þáttar International hjá Morgan Stanley. Það var þetta lán sem Bjarni Bene- diktsson var að tryggja þegar hann veðsetti hlutabréf BNT, Hróm- undar og Hafsilfurs hjá Glitni í febrúar í fyrra. Bjarni vildi hins veg- ar ekki að ræða um það í síðustu viku fyr- ir hverju hann hefði veðsett bréfin í Vafningi: „Ég ætla bara ekkert að tjá mig um það,“ sagði hann. Endurgreiðsla á lánum til Morgan Stanley Meginhlutinn af eftirstöðv- um láns- ins til Svart- háfs, 135 milljónir evra, runnu svo til eign- arhaldsfélagsins Racon Holding en þeir fjármunir voru notaðir til að end- urgreiða lán sem stofnað hafði verið til við Morgan Stanley vegna kaupa Mile stone á sænska fjármálafyrirtæk- inu Invik & Co sem síðar var endur- skírt Moderna. Veðkall hafði sömu- leiðis borist til Racon frá Morgan Stanley vegna þessa láns. Þannig má sjá að Svartháfur þjónaði því VEÐSETNING BJARNA TIL AÐ BJARGA GLITNISBRÉFUNUM INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is Eignarhaldsfélag Benedikts og Einars Sveinssona og Wernerssona keypti í breska fjárfestingarsjóðnum KCAJ um sumarið 2007. Í febrúar 2008 keypti annað félag í þeirra eigu, Vafningur, afganginn af hlutafé KCAJ með láni frá Sjóvá. Sama dag veðsetti Bjarni hlutabréf félagsins. Tilgangurinn með stofnun Vafnings var að búa til veðhæfi til að fá lán frá Glitni til að greiða niður lán við fjárfestingarbank- ann Morgan Stanley sem notað hafði verið til að kaupa hlutabréf í Glitni. „Menn eru að endur- fjármagna lán og það er það sem er aðalástæðan fyrir þátttöku þessara félaga í Vafningi.“ Svartháfur viðriðinn Vafning Eignarhalds- félagið Svartháfur er tengdur Vafningsmálinu þar sem tilgangur Vafnings var meðal annars að standa í skilum við fjár- festingarbankann Morgan Stanley. Svartháfur veitti Vafningi lán til þess og var það Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, sem veðsetti hlutabréfin í félaginu vegna þess láns. Skrifuðu upp á kaup á KCAJ Bræðurnir Benedikt og Einar Sveinssynir skrifuðu upp á hlutafjáraukningu á fundi fjárfestingarfélagsins Máttar í fyrra þar sem ákveðið var að kaupa 12,1 prósent hlut í breska fjárfestingarsjóðnum KCAJ. Hálfu ári síðar bætti Vafningur við sig 82 prósenta hlut og Bjarni, sonur Benedikts, veðsetti bréfin í félaginu. FRÉTTIR 2 dálkar = 9,9 *10 Opið: má-fö. 12-18, Opið á laugard. til jóla frá 12-16 Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp. 201 - S: 517 7727 www.nora.is Fyrir bústaðinn og heimilið KOMIÐ ÚTKOMIÐ ÚTOMIÐ ÚT hlutverki að vera leppur fyrir tvö eign- arhaldsfélög, Racon annars vegar og Vafning og Þátt International hins vegar, sem skulduðu Morgan Stan- ley fjármuni vegna kaupa á bréfum í tveimur fjármálafyrirtækjum, Glitni og Invik. Vafningsviðskiptin eru því hluti af ákveðnu vandamáli sem kom upp í árslok 2007 þegar erlend fjármála- fyrirtæki vildu ekki endurnýja lána- samninga við stór íslensk eignar- haldsfélög og fyrirtæki. Afleiðingin af þessu var sú að íslensku bankarnir fengu íslensku eignarhaldsfélögin aft- ur í fangið ef svo má segja og þurftu að tryggja þeim lánafyrirgreiðslu til að varna því að félögin færu á hliðina. Þarna spilar líka inn í að þessi eign- arhaldsfélög, með- al annars Þáttur International, voru mörg hver stórir hluthafar í bönk- unum. Fall þeirra hefði því getað þýtt upphafið að falli bankanna en með viðskiptum eins og þeim sem tengdust Vafningi og Svartháfi var komið í veg fyrir upphafið að slíku hruni, að minnsta kosti um sinn. KEYPTU Í KCAJ ÁRIÐ 2007 Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar, núverandi formanns Sjálfstæðis- flokksins, skrifaði undir hlutafjárhækkun í fjárfestingarfélaginu Mætti á hluthafa- fundi í lok júlí 2007 þar sem einnig var gengið frá kaupum Máttar á 12,1 prósents hlut Milestone í breska fjárfestingarsjóðnum KCAJ. Máttur var í eigu dótturfélags Sjóvár og eignarhaldsfélaga Benedikts og Einars, bróður hans, Hafsilfurs og Hró- mundar. Einar skrifaði sömuleiðis upp á hlutafjárhækkunina á fundinum þar sem kaupin voru ákveðin. Kaupverðið á bréfunum í KCAJ var tveir milljarðar króna. DV greindi frá því á mánudaginn að sama dag í febrúar árið 2008 og Bjarni Bene- diktsson veðsetti hlutabréfin í eignarhaldsfélaginu Vafningi fyrir hönd föður síns og frænda keypti félagið 82 prósenta hlut í KCAJ af Sjóvá fyrir 5,4 milljarða króna sem og fasteignaverkefni í Makaó í Asíu fyrir 5,2 milljarða króna. Báðar fjárfest- ingarnar voru fjármagnaðar með láni frá Sjóvá. Vafningur var í eigu dótturfélags Sjóvár sem aftur var í eigu Karls og Steingríms Wernerssona í gegnum Milestone og Benedikts og Einars Sveinssona. Í samtali við DV á sunnudaginn vildi Bjarni ekkert tjá sig um KCAJ og viðskipti Vafnings í febrúar 2008. Sú staðreynd að Máttur keypti í KCAJ árið 2007 og að Vafningur gerði það rúmu hálfu ári síðar sýnir að í kjölfarið hafa félög í Werners- sona og þeirra Sveinssona ráðið yfir nær öllu hlutafénu í KCAJ. Viðskipti þeirra bræðra með hlutabréf í KCAJ ná því lengra aftur en til febrúar 2008. Umboð Bjarna Bjarni fékk þrjú umboð frá þremur eignarhaldsfélögum í eigu fjölskyldu sinnar til að veðsetja hlutabréf félagsins í Vafningi í febrúar í fyrra. Veðsetningin var vegna lána frá Glitni sem síðan runnu til Vafnings í gegnum eignarhaldsfélagið Svartháf. Nátengdir Myndin sýnir hvernig viðskiptahagsmun- ir Karls og Steingríms Wernerssona og Benedikts og Einars Sveinssona fóru saman. Eignarhaldsfélögin Þáttur International og Vafningur voru meðal annars í þeirra eigu en hið fyrrnefnda hélt utan um eignarhlut þeirra í Glitni en hið síðarnefnda um turninn í Makaó og breskan fjárfestingarsjóð. 6 MÁNUDAGUR 4. janúar 2010 FRÉTTIR Eignarhaldsfélög í eigu Karls og Steingríms Wernerssona og Einars og Benedikts Sveinssona voru með bankareikning í Glitni sem meðal annars var notaður til að fjármagna eignarhaldsfélagið Skeggja ehf. sem þeir áttu í sameiningu. Milljarð- ar króna runnu í gegnum þennan reikning til að fjármagna sameigin- legar fjárfestingar þeirra á árunum fyrir hrun. Stærsta fjárfesting þeirra var eign- arhlutur í Glitni sem nam um 7 pró- sentum af heildarhlutafé bankans þegar mest lét. Skeggi var stofnaður til að halda utan um þessa fjárfest- ingu en félagið átti tæplega 40 pró- senta hlut í Þætti International sem hélt utan um hlutabréfaeign þeirra í Glitni. Eignarhaldsfélögin sem lögðu fjármunina inn á reikninginn voru: Milestone, BNT, Hafsilfur og Hró- mundur. Milestone var í eigu Stein- gríms og Karls á meðan BNT, Hafsilf- ur og Hrómundur voru í eigu Einars og Benedikts Sveinssona. Stjórnar- formaður BNT á þessum tíma var Bjarni Benediktsson, sonur Bene- dikts Sveinssonar og núverandi for- maður Sjálfstæðisflokksins. BNT er móðurfélag olíufélagsins N1 en Bjarni var einnig stjórnarformaður þess félags á þessum tíma. DV hefur upp á síðkastið fjallað um viðskiptatengsl Einars og Bene- dikts Sveinssona og Bjarna Bene- diktssonar og þeirra Wernersbræðra. Í ársbyrjun 2008 fékk Bjarni umboð frá föður sínum og föðurbróður til að veðsetja hlutabréf í öðru félagi sem þeir áttu saman, Vafningi. Sama dag og Bjarni veðsetti bréfin keypti félag- ið fasteignaverkefni í Makaó í Asíu af Sjóvá sem og breskan fjárfestinga- sjóð, KCAJ. Veðsetning bréfanna í Vafningi tengdist endurfjármögn- un á lánum sem félag þeirra, Þáttur International, hafði tekið hjá fjárfest- ingabankanum Morgan Stanley til að fjármagna hlutabréfkaup í Glitni árið 2007. Tæpir sex milljarðar til Skeggja Í byrjun ágúst árið 2007 juku Miles- tone, BNT, Hrómundur og Hafsilf- ur hlutaféð í Skeggja um nærri sex milljarða króna. Félögin lögðu fram fjármuni miðað við hlutfallslega eign sína í Skeggja. Til að mynda lagði BNT fram 1,4 milljarða króna, Hafsilfur 500 milljónir, Hrómundur 1 milljarð og SJ2 nærri 3 milljarða. Hlutafjáraukningin í Skeggja hafði verið ákveðin á stjórnarfundi í Skeggja sem haldinn var í höfuð- stöðvum Milestone á Suðurlands- braut 12 í lok júlí. Þeir sem sátu í stjórn félagsins voru starfsmenn Mil- estone, Guðmundur Ólason og Jó- hannes Sigurðsson. Þeir sem skrifuðu undir hluta- fjáraukninguna í Skeggja á stjórnar- fundinum voru Guðmundur ÓIason, Benedikt Sveinsson, Einar Sveins- son og forstjóri N1, Hermann Guð- mundsson, sem skrifaði undir aukn- inguna fyrir hönd BNT samkvæmt umboði. Á tveimur dögum í byrjun ágúst, þann 8. og 9., runnu milljarðarnir sex svo frá hluthöfum Skeggja, inn í reikninginn og þaðan til Þáttar ehf. Þaðan hafa fjármunirnir líkast til far- ið til Skeggja. Skeggi tapaði rúmum 4 milljörðum Sá sem skrifaði upp á hlutafjáraukn- inguna fyrir hönd Skeggja var starfs- maður Milestone, lögfræðingurinn Gunnar Gunnarsson. Í tilkynningu sem hann sendi til Fyrirtækjaskrár í október 2007 koma fram að hluta- fjáraukning Skeggja hefði verið greidd með reiðufé. Ekki er vitað ná- kvæmlega til hvers hlutafjáraukning- in í félaginu var gerð á þessum tíma en fullyrða má að það tengist með einum eða öðrum hætti fjármögn- uninni á hlutabréfunum í Glitni þar sem Skeggi var stofnaður utan um þá fjárfestingu. Líklega tengist hún end- urfjármögnuninni á bréfum Þáttar International í Glitni í febrúar 2008 en Bjarni Benediktsson veðsetti bréf- in í Vafningi í þeim mánuði, líkt og DV hefur greint frá. Jafnframt má fullyrða að félög- in sem áttu Skeggja hafi tapað þeim fjármunum sem lagðir voru inn í fé- lagið í hlutafjáraukningunni. Ástæð- an fyrir þessu er sú að Skeggi tapaði rúmum fjórum milljörðum króna á árinu 2008, samkvæmt ársreikningi félagsins sem var skilað til ársreikn- ingaskrár síðsumars. Stjórn Skeggja, sem Guðmundur Ólason og Ein- ar Sveinsson sitja í, kvittaði upp á ársreikninginn. Í ársreikningnum er tekið fram að hlutafé að upphæð tæplega 6 milljarðar króna hafi tap- ast á árinu 2008. Eigið fé Skeggja í dag er 230 þús- und krónur. Einu eignir félagsins virðast hafa verið í Þætti Internation- al og Földungi ehf., sem áður hét Vafningur. Þátttaka Skeggja í báðum félögum var tilkomin vegna fjárfest- inga í hlutabréfum í Glitni. Stjórnarformaður- inn Guðmundur Ólason, fyrrver- andi forstjóri Milestone, er jafnframt stjórnar- formaður Skeggja en Einar Sveins- son situr þar í stjórn með honum. Einar og Benedikt Sveinssynir áttu reikning með Wernersbræðrum í Glitni sem not- aður var til að fjármagna hlutafjárhækkun í félaginu Skeggja síðla árs 2007. Hlutafjár- hækkunin nam tæpum sex milljörðum króna og tapaðist féð. Einar og Benedikt skrifuðu upp á hlutafjárhækkunina. Bjarni Benediktsson veðsetti bréf í félagi í eigu Skeggja. Viðskipti Skeggja tengjast endurfjármögnun vegna kaupa á hlutabréfum í Glitni. TÖPUÐU SEX MILLJÖRÐUM INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is Í ársreikningnum er auk þess tekið fram að hlutafé að upphæð tæplega 6 milljarðar króna hafi tapast á ár- inu 2008. Áttu saman reikning Hluthafar Skeggja, Werners- bræður og Engeygingarnir Einar og Benedikt Sveinssynir, áttu saman reikning hjá Glitni sem notaður var til að endurfjármagna félagið síðla árs 2007. Sex milljarðar runnu inn og út af reikningnum á tveimur dögum. 500 milljónir frá föður hans Faðir Bjarna Benediktssonar, Benedikt Sveinsson, lagði 500 milljónir inn í Skeggja síðsumars 2007. Upphæðin var hans innlegg í endurfjármögnun félagsins sem átti sér stað á þeim tíma. Faðir Bjarna kvittaði upp á endurfjármögnunina á hluthafafundi. Bjarni veðsetti síðar hlutabréf fjölskyldu sinnar í félaginu Vafningi sem Skeggi átti. Í stjórn Skeggja Einar Sveinsson lagði fram einn milljarð króna til Skeggja í gegnum félag sitt Hrómund. Hann situr í stjórn Skeggja og kvittaði upp á rúmlega 4 milljarða króna tap félagsins á nýlegum hlutahafafundi félagsins. Stærstu hluthafarnir Félög í eigu Karls og Steingríms Wernerssona eru stærstu hluthafarnir í Skeggja sem átti tæplega 40 prósenta hlut í Vafningi, nú Föld- ungi. Máttu ekki semja við Fonsa Innri endurskoðun Reykjavík- urborgar hefur komist að þeirri niðurstöðu að borginni hafi verið óheimilt að taka tilboði Fonsa ehf. sem átti lægsta boð í uppbyggingu á reitnum á horni Austurstrætis og Lækjargötu þar sem hús eyðilögðust í eldsvoða 2007. Þess í stað var samið við Eykt sem átti næstlægsta tilboð- ið. Greint var frá þessu í fréttum Ríkisútvarpsins í gær. Þar kom fram að fyrirtækið Fonsi hefði ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að ráðast í verkefnið og þess vegna væri borginni óheimilt að semja við fyrirtækið um að taka verkefnið að sér. Gæti gosið snögglega Eldgos gæti hafist í Heklu og það með skömmum fyrirvara, sagði Freysteinn Sigmundsson, jarð- eðlisfræðingur hjá Jarðvísinda- stofnun Háskóla Íslands, í viðtali við mbl.is í gær. Þetta sagði hann í framhaldi af því að fólk hafði samband við Veðurstofuna og vakti athygli á að snjór væri lítill í fjallinu miðað við kuldann að undanförnu. Haft var eftir Frey- steini að breytingar á jarðhita í Heklu þyrftu ekki að vera fyr- irboði eldgoss og að óvíst væri hvenær eldgos hæfist. Tæp tíu ár eru frá því að Hekla gaus síðast. Vilja reyna aftur við sameiningu Sveitarstjórnarmenn í Tálknafjarðarhreppi velta fyrir sér hvort rétt sé að sameina hreppinn Vestur- byggð. Það yrði í annað sinn á fjórum árum sem slíkt væri reynt en sameining var felld í íbúakosningum fyrir fjórum árum. Þetta kom fram í frétt- um Ríkisútvarpsins á sunnu- dag. Þar var haft eftir Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur sveitarstjóra að fyrir lægi að um umtalsverða hagræðingu væri að ræða ef sveitarfélög- in sameinuðust. Ey rún tók þó fram að slíkt yrði ekki gert nema í samráði við íbúana. Þúsundir minnast Hrafnkels Tæplega átta þúsund manns hafa ritað nafn sitt á síðu sem sett var upp á Facebook til að minnast Hrafnkels Kristj- ánssonar íþróttafréttamanns sem lést á sjúkrahúsi eftir að hafa slasast í umferðarslysi skömmu fyrir jól. Hrafnkell lést á jóladag. Hann verður jarðsunginn í dag. HLUTHAFAR Í SKEGGJA n SJ2 ehf. (eigendur Karl og Steingrímur Wernerssynir í gegnum Sjóvá): 49,5 prósent n Hrómundur ehf. (eigandi Einar Sveinsson): 17,07 prósent n Hafsilfur ehf. (eigandi Benedikt Sveinsson): 8,53 prósent n BNT ehf. (eigendur Einar og Benedikt Sveinssynir og Wernerssyn- ir): 23,89 prósent n Sáttur ehf. (eigandi Guðmundur Ólason): 1,01 prósent EIGNIR SKEGGJA n 39,1 prósenta hlutur í Þætti Intern ational sem átti 7 prósenta hlut í Glitni. n 39,1 prósenta hlutur í Földungi, áður Vafningi, sem átti fasteigna- verkefni í Makaó og stóran hlut í breskum fjárfestingasjóði EIGNARHALD Á VAFNINGI n SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir): 48,8 prósent n Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/ Einar Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveinsson, BNT ehf./Einar og Benedikt o.fl. og Sáttur/Guðmundur Ólason): 39,10 prósent n Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2, Hrómundur, Hafsilfur): 12,1 prósent Eignarhald 10 FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010 FRÉTTIR Eignarhaldsfélagið Földungur, sem áður hét Vafningur, skuldaði tæp- lega 33 milljarða króna samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2008. Ársreikningnum var skilað til árs- reikningaskrár fyrir skömmu. Reikna má með því að bróðurpartur þessara skulda sé við Glitni. Vafningur var eignarhaldsfé- lag sem stofnað var til að endurfjár- magna lán sem eignarhaldsfélög í eigu þeirra bræðra Karls og Stein- gríms Wernerssona og Benedikts og Einars Sveinssona áttu í sameiningu. Líkt og DV greindi frá í síðasta mánuði veðsetti Bjarni Benedikts- son, þáverandi þingmaður Sjálf- stæðisflokksins og núverandi for- maður hans, hlutabréfin í Vafningi vegna láns frá Glitni fyrir hönd föð- ur síns Benedikts og frænda síns Ein- ars. Félög í eigu Einars og Benedikts, BNT, Hrómundur og Hafsilfur, voru hluthafar í Vafningi ásamt eigend- um Milestone, Karli og Steingrími Wernerssonum. Bjarni var jafnframt stjórnarformaður BNT á þessum tíma. Veðsetning Bjarna tengdist end- urfjármögnun á láni frá fjárfestinga- bankanum Morgan Stanley sem notað var til að fjármagna kaup ann- ars eignarhaldsfélags, Þáttar Inter- national, sem þeir Sveins- og Wern- erssynir áttu saman. Töpuðu 13 milljörðum í Makaó og Bretlandi Í ársreikningnum kemur fram að Vafningur hafi tapað nærri 7,4 millj- örðum króna á fjárfestingum sínum í Makaó í Asíu þar sem félagið keypti hálfbyggðan lúxusíbúðaturn af dótt- urfélagi Sjóvár fyrir 5,2 milljarða króna. Líkt og greint var frá í DV í desember veðsetti Bjarni hlutabréfin í Vafningi sama dag, þann 8. febrúar 2008, og félagið festi kaup á þessari fasteign í Makaó. Veðsetningin var meðal annars líklega fyrir 50 millj- óna evra láni frá Glitni sem fór inn í félagið í gegnum eignarhaldsfélagið Svartháf. Vafningur keypti einnig breska fjárfestingasjóðinn KCAJ þennan sama dag fyrir 5,4 milljarða króna. Samtals fjárfesti Vafningur því fyr- ir 10,6 milljarða sama daginn. Tap Vafnings af KCAJ á árinu 2008 nam aftur nærri 5,5 milljörðum króna, samkvæmt ársreikningnum. Af þessu sést að tap Vafnings af fjárfest- ingunum tveimur á árinu 2008 var tveimur milljörðum hærra en heild- arkaupverð þeirra í upphafi ársins. Tilgangurinn með kaupum Vafn- ings á fasteignaverkefninu og fjár- festingasjóðnum var að búa til veðrými til að veðsetja eignir fé- lagsins fyrir láni frá Glitni. Lánið frá Glitni var svo aftur notað til að end- urfjármagna lán frá Morgan Stan- ley en hlutabréf Þáttar Internation- al voru veðsett fyrir láni frá þeim banka. Veðkall hafði borist frá Morg- an Stanley og áttu eigendur félags- ins á hættu að missa bréfin í Glitni ef þeim hefði ekki tekist að endurfjár- magna lánið. Átti að borga 14 milljarða 2009 Í ársreikningnum segir að Vafning- ur hafi átt að borga rúmlega 14 millj- arða af skuldum sínum árið 2009. Langstærsti hluti þessara skulda félagsins var í evrum, meira en 13 milljarðar, en Svartháfslánið nam væntanlega um 8,5 milljörðum af þessari upphæð. Reikna má því með að gengismunur spili nokkuð stóran þátt í skuldaaukningu Vafnings á ár- inu 2008. Einn stjórnarmaður er í Vafn- ingi, Guðmundur Ólason fyrrverandi forstjóri Mil- estone, og situr hann þar fyrir hönd Karls og Steingríms. Fulltrúi hinna hluthafa Vafnings, Einar Sveins- son, sat í stjórn félagsins þar til síð- asta sumar þegar hann sagði sig úr stjórninni með tilkynningu til emb- ættis ríkisskattstjóra. Einar hafði tekið sæti í stjórn Vafnings á hluthafafundi í lok mars 2008, tæpum tveimur mánuðum eft- ir að viðskiptin með lúxusturninn í Makaó og KCAJ áttu sér stað og Ein- ar og Benedikt urðu hluthafar í félag- inu. Á sama fundi var nafni Vafnings breytt í Földungur. Einar Sveinsson, fyrrverandi stjórnarmaður og hluthafi í Föld- ungi, vildi ekki ræða um stöðu fé- lagsins þegar DV hafði samband við hann. „Ég hef ekkert við þig að tala, ekkert við þig að tala,“ sagði Einar áður en hann skellti á blaða- mann. DV hefur ekki náð í Guðmund Ólason til að spyrja hann út í stöðu félagsins í dag og hvort Vafn- ingur hafi borgað skuldir sínar á ár- inu 2009. Eignarhaldsfélagið Földungur, áður Vafningur, skuldaði meira en 30 milljarða í árslok 2008. Fjárfestingar félagsins í Makaó og Bretlandi skiluðu 13 milljarða króna tapi á árinu. Einar Sveinsson, fyrrverandi stjórn- armaður og hluthafi í Vafningi, neitar að ræða um stöðu félagsins í dag. RÚMIR SJÖ MILLJARÐAR TÖPUÐUST Á TURNINUM „Ég hef ekkert við þig að tala, ekkert við þig að tala.“ INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is Sjö milljarða tap Félagið sem keypti lúxusturninn í Makaó af Sjóvá tapaði nærri 7,4 milljörðum á fjárfestingunni árið 2008. Turninn var keyptur af félagi í eigu Werners- bræðra og þeirra Einars og Benedikts Sveinssona. Turninn sést hér í hægra horninu. Veðsetti Vafning Tæpum tveimur mánuðum eftir að Bjarni Benediktsson veðsetti hlutabréfin í Vafningi fyrir hönd Benedikts föður síns og Einars föðurbróður síns, settist Einar í stjórn félagsins sem fulltrúi hinna nýju hluthafa. Meira en 30 milljarða tap Földungur, sem er í meiri- hlutaeigu Milestone, tapaði meira en 30 milljörðum króna árið 2008. Karl Wernersson var annar af hluthöfum Milestone. Neitar að tjá sig Einar Sveinsson neitar að tjá sig um stöðu Földungs, áður Vafnings. Hann skellti á blaðamann DV. 11. dese be 2009 14. d se ber 2009 16. des m 2009 8. janúar 201018. desember 2009 4. janúar 2010 n Eignarhaldsfélagið, sem síðar var nefnt Milestone, var stofnað árið 1988 og hét þá Deiglan-Áman. Milestone á rætur sínar að rekja til þess að Werner Rasmusson apótekari greiddi börnunum sínum 5 fyrirframgreiddan arf árið 1999. Þrjú þeirra stofnuðu síðar Milestone, þau Karl, Steingrímur og Ingunn Wernersbörn. Hin tvö systkinin tóku ekki þátt í stofnun félagsins. n Milestone byrjaði á að kaupa nokkur apótek árið 2004. Árið 2005 keypti félagið svo meirihluta í tryggingafélaginu Sjóvá. Þá má segja að stórveldistíð Milestone hefjist. Í kjölfarið byrjaði félagið að færa út kvíarnar og keypti meðal annars eignarhluta í Glitni í gegnum dótturfélög sem eigendur þess áttu með Einari og Benedikt Sveinssonum. Í lok árs 2006 stofnaði Milestone svo fjárfestingabankann Askar Capital sem opnaði skrifstofur víða um lönd og átti hann að verða einn stærsti banki sinnar tegundar í Evrópu. n Dótturfélög Milestone skiptu tugum og keypti félagið meðal annars sænska fjármála- og tryggingafyrirtækið Invik sem var endurskírt Moderna. Milestone færði svo alla starfsemi sína til Svíþjóðar í árslok 2007 en erfiðlega gekk að fá samþykki sænska fjármálaeftirlitsins fyrir starfseminni. n Milestone komst í hann krappan í byrjun árs 2008 þegar lán til fyrirtækisins frá fjárfestingabankanum Morgan Stanley var gjaldfellt. Lánið hafði verið veitt til að kaupa hlutabréf í Glitni. Segja má að hrun Milestone hafi byrjað um þetta leyti. Þegar Glitnir var yfirtekinn haustið 2008 má segja að dagar félagsins hafi verið taldir því Milestone hafði átt 5 prósenta hlut í bankanum, ásamt Einari og Benedikt Sveinssonum í gegnum eignarhaldsfélagið Þátt International. n Milestone leitaði heimildar til nauðasamninga sumarið 2009 en kröfuhafar félagsins höfnuðu þeim. Félagið var síðar úrskurðað gjaldþrota og er í skiptameð- ferð. Skuldir Milestone nema um 100 milljörðum króna. Kröfuhafafundur verður haldinn þann 25. janúar þar sem lögð verður fram endurskoðendaskýrsla um starfsemi félagsins og eins munu kröfuhafar ræða hvort rifta eigi sölu Milestone á apótekunum Lyfjum og heilsu út úr samstæðunni árið 2008. Milestone

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.