Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Síða 11
FRÉTTIR 20. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 11
gefist upp á reyna að fylgjast með því
sem var að gerast í tryggingafélaginu.
Samkvæmt vitnisburði Steingríms
mun Þór Sigfússon því einfaldlega
hafa verið einhvers konar nytsam-
ur sakleysingi og að þeir Milestone-
menn hafi litið á hann sem slíkan og
ráðið hann til starfa af því að þeir gátu
stjórnað honum.
Heimildir DV herma að Steingrím-
ur hafi klykkt út með því að hann teldi
að bótasjóði Sjóvár hefði einfaldlega
verið stýrt frá skrifstofu Guðmundar
Ólasonar í höfuðstöðvum Milestone
á Suðurlandsbrautinni. Guðmundur
og Karl hafi tekið við fjárfestingum Sjó-
vár eftir að sá starfsmaður Sjóvár sem
sá um þær hafi verið látinn fara frá fé-
laginu.
Steingrímur mun meðal annars af
þessum ástæðum hafa sagt að Guð-
mundur og Karl hafi keyrt Milestone í
þrot ásamt Jóhannesi Sigurðssyni að-
stoðarforstjóra félagsins.
Skemmdirnar á húsi Steingríms
Vitnisburður Steingríms þykir trú-
legur, að því er heimildir DV herma,
en verið er að kanna aðkomu hans
að rekstri Milestone hjá saksóknara.
Vitnisburður Steingríms og önnur at-
riði rannsóknarinnar benda sterklega
til að hann hafi haft lítið að segja um
rekstur Milestone jafnvel þó að hann
hafi verið á góðum launum sem starfs-
maður samstæðunnar.
Af öllu framansögðu verður að telja
líklegt að Steingrímur hafi að ósekju
verið tengdur við meint efna-
hagsbrot í umfjöllun-
um um rann-
sóknina á
Milestone og
Sjóvá, þrátt
fyrir að hann
hafi verið
skráður fyr-
ir 40 pró-
senta hlut
í Mile-
stone
á móti
Karli.
Ástæðan er sú að rannsóknin
á málinu er farin að leiða það
í ljós að hann kom lítið sem
ekkert að rekstri eignar-
haldsfélagsins og virðist
því ekki hafa stjórnað fé-
laginu með Karli.
Hús Steingríms
hefur verið atað
málningu í skjóli
nætur og segja
heimildarmenn
DV, sem þekkja
til reksturs Mile-
stone, að hann
eigi alls ekki skil-
ið að honum sé
kennt um hvern-
ig Milestone var
stjórnað. Sam-
kvæmt heim-
ildum DV hefur
þetta, af skiljanleg-
um ástæðum, far-
ið afskaplega fyrir
brjóstið á Steingrími
og mun hann tengja
umfjöllun fjölmiðla
um Milestone-málið
beint við þær skemmdir
sem unnar hafa verið á hús-
inu hans.
BRÓÐIR MINN ER „EINRÆÐISHERRA“
n Samkvæmt heimildum DV var eitt af því sem Stein-
grímur sagði í yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara
það að hann hefði viljað láta reka Tryggva Þór Herberts-
son, forstjóra Askar Capital, eftir að hann var búinn að
vera forstjóri bankans í nokkra mánuði, það er á fyrri hluta
árs 2007. Benedikt Árnason, núverandi forstjóri Askar,
mun hafa verið ráðinn undirmaður Tryggva um áramótin
2007-2008 til að hafa hemil á honum því forstjórinn hafði
fljótlega misst tökin á vexti bankans og fjárfestingastefnu
hans eftir því sem Steingrímur mun hafa sagt í skýrslu-
tökunni hjá saksóknara. Tryggvi hætti hins vegar ekki hjá
Askar fyrr en sumarið 2008, eftir að hann hafði fengið
tilboð um að gerast efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar.
Steingrímur og Tryggvi Þór
Stjórnaði án Steingríms Samkvæmt
vitnisburði Steingríms Wernerssonar
hjá sérstökum saksóknara stjórnaði Karl
Wernersson eignarhaldsfélaginu Milestone
og dótturfélögum þess án hans aðkomu.
14 föstudagur 11. desember 2009 fréttir
„Ég hef aldrei komið nálægt neinni
ákvörðun um að taka þátt í fast-
eignaverkefni í Makaó,“ segir Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins og fyrrverandi stjórnar-
formaður BNT og N1, um aðkomu
sína að eignarhaldsfélaginu Vafn-
ingi sem meðal annars fjárfesti í fast-
eignaverkefni Sjóvár í Makaó í byrjun
febrúar í fyrra fyrir rúma fimm millj-
arða króna. BNT og félögin Hafsilfur
og Hrómundur, sem eru í eigu föður
og föðurbróður Bjarna, voru hluthaf-
ar í félaginu, líkt og greint var frá í DV
á miðvikudaginn, og fékk Bjarni um-
boð til að veðsetja hlutabréf þeirra
allra í félaginu sama dag og Vafning-
ur keypti fasteignaverkefnið.
Bjarni vissi hins vegar vel að fé-
lögin væru hluthafar í Vafningi þrátt
fyrir að hann neiti því að hafa vitað
að félagið hafi keypt fasteignaverk-
efni Sjóvár. Hann segir að Vafningur
hafi ekki einungis verið stofnaður til
að halda utan um fasteignaverkefnið
heldur til að endurfjármagna lán fyr-
ir hluthafa þess. Að sögn Bjarna var
ekki langur aðdragandi að stofnun
Vafnings og var það ekki forgangs-
mál að ganga frá því að BNT gerðist
hluthafi í Vafningi.
Formaðurinn segir jafnframt að
áhætta félaganna þriggja af fjárfest-
ingunni í Vafningi hafi verið lítil þar
sem þau hafi ekki lagt fram eigin-
fjárframlög og að félagið hafi verið
fjármagnað með lánsfé. Hluthafar
Vafnings hefðu þó getað grætt millj-
arða ef fjárfestingin hefði gengið eft-
ir. Svo varð hins vegar ekki og í kjöl-
far efnahagshrunsins varð ljóst að
fasteignaverkefnið í Makaó myndi
skila miklu tapi, meðal annars vegna
falls eignarhaldsfélagsins Milestone
sem átti Sjóvá. Íslenska ríkið þurfti,
í kjölfar hrunsins, að bjarga Sjóvá
frá gjaldþroti með 12 milljarða eig-
infjárframlagi. Sjóvá var síðan losað
út úr fasteignaverkefninu í sumar og
varð tapið af fjárfestingunni í Makaó
á fjórða milljarð króna fyrir félagið.
Þegar ráðist var í fjárfestinguna hefði
Vafningur hins vegar getað grætt vel
á henni.
Bjarni kom því að því að ákveða
þátttöku BNT, og hugsanlega einn-
ig hinna félaganna tveggja, í Vafn-
ingi og virðist hafa verið fullkomlega
meðvitaður um tilgang félagsins þó
svo að hann hafni því að hafa haft
eitthvað að segja um fjárfestingar fé-
lagsins í Makaó.
Bjarni: Bræðurnir ekki á
landinu
Aðspurður af hverju hann hafi feng-
ið umboð frá félögunum þremur
sem voru í eigu fjölskyldu hans –
BNT, Hrómundi og Hafsilfri – til að
veðsetja hlutabréfin í Vafningi sama
dag og félagið keypti turninn í Mak-
aó segir Bjarni: „Nei, ég vissi ekkert af
því á hvaða tímapunkti þessar eign-
ir fluttust inn í Vafning,“ segir Bjarni
sem samkvæmt þessu vissi ekki að á
sama tíma og hann fékk umboðið var
félag, sem var að hluta til í eigu ætt-
ingja hans sem og félags sem hann
var stjórnarformaður og hluthafi í,
að festa kaup á fasteignaverkefni í
Makaó fyrir rúma fimm milljarða
króna. Daginn áður en Vafningurinn
keypti fasteignaverkefnið í Makaó
seldi Milestone eignarhaldsfélaginu
Mætti 12,1 prósents hluta í Vafningi
fyrir rúmar 60 þúsund krónur og var
Bjarni einn af þeim sem gat skrifað
undir samninginn fyrir hönd Máttar.
„Þeir [Benedikt og Einar, innsk.
blaðamanns] voru ekki staddir á
landinu og báðu mig um það fyr-
ir sína hönd að skrifa undir ákveð-
inn veðsamning þar sem þeir voru
að veðsetja hlutabréfin sín í félag-
inu... Þetta var veðsamningur sem
gerður var við bankann vegna lána
sem bankinn hafði veitt félaginu,“
segir Bjarni en BNT, Hrómundur og
Hafsilfur voru í eigu föður Bjarna,
Benedikts Sveinssonar, og föður-
bróður hans, Einars. „Þegar eigend-
ur þessara hlutabréfa í Vafningi óska
IngI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
HÖFÐU ENGU AÐ TAPA
Bjarni Benediktsson segist ekki hafa vitað að Vafningur fjárfesti í fasteignaverkefni í
Makaó. Hann víkur sér ekki undan ábyrgð á Vafningi þar sem hann hafi verið stjórn-
arformaður BNT, eins hluthafa félagsins. Bjarni segir tilgang Vafnings hafa verið að
endurfjármagna lán og að Engeyingar hafi ekki hafa lagt fram eigið fé í Vafning.
Eignarhald
á Vafningi:
SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir)
48,8 prósent
Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar
Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins-
son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl.
og Sáttur/Guðmundur Ólason)
39,1 prósent
Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2,
Hrómundur, Hafsilfur)
12,1 prósent
one Central í makaó
Kaup Vafnings á eignarhaldsfélaginu sem hélt utan um háhýsið í fasteignaverk-
efninu One Central í Makaó gengu í gegn í febrúar 2008. Félagið hafði áður verið
að fullu leyti í eigu dótturfélags Sjóvár en komst við eigendaskiptin í eigu annars
dótturfélags tryggingafélagsins og eignarhaldsfélaga sem tengjast Engeyjar-
frændunum: Einari, Benedikt og Bjarna.
Kaupverðið var rúmir 5 milljarðar króna en turninn á að vera 41 hæð með tæp-
lega 70 íbúðum. Íbúar háhýsisins áttu að hafa aðgang að 5 hæða hárri íþrótta- og
tómstundamiðstöð með 50 metra sundlaug, spa, fullkomnum líkamsræktarsal og
ýmsum íþróttavöllum.
Hugmyndin hjá Sjóvá og síðar Vafningi var að eiga háhýsið í skamman tíma og
selja það síðan með hagnaði upp á rúmlega 8 milljarða króna þar sem áætlað var
að fasteignaverð í héraðinu myndi rjúka upp. Eigendur byggingarinnar gátu því
grætt mikla fjármuni ef það hefði gengið sem skyldi.
svartháfur
Tekin var ákvörðun um það á einum og sama stjórnarfundinum í eignarhalds-
félaginu Svartháfi í upphafi árs 2008 að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán
frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum króna á núverandi gengi, og
endurlána það svo til félaga í eigu Karls og Steingríms Wernerssona.
Lánið sem Svartháfur endurlánaði strax til eignarhaldsfélaga í þeirra eigu var
svo notað til að greiða hluta skuldar við fjárfestingabankann Morgan Stanley
upp á 300 milljónir evra, sem nemur um 55 milljörðum króna á núverandi gengi.
Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitandi Milestone og fjármagnaði
hluta útrásar fyrirtækisins til annarra landa.
Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, Werners Rasmusson, er einn af
stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að
skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúgan hluta þeirrar fjárhæðar. Glitnir veitti
Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dagsetning er ekki þekkt. Á sama
stjórnarfundi hjá Svartháfi í ársbyrjun 2008 var ákveðið að lána 50 milljónir evra
til félagsins Vafnings ehf., eða sem nemur tæpum 5 milljörðum króna. Eigendur
Vafnings voru þeir bræður Einar og Benedikt Sveinssynir og Bjarni, sonur
Benedikts og formaður Sjálfstæðisflokksins. Það skýtur skökku við að Werners-
bræður sem ekki gátu greitt af eigin lánum hafi séð sér fært að lána félagi í eigu
Engeyjarfjölskyldunnar fimm milljarða króna.
Eignarhald á turninum
í makaó:
Vafningur ehf. - 100 prósent
sj Properties macauoneCentral
holdCo ehf. - 100 prósent
Drakensberg Investments limited
á Bresku jómfrúareyjum - 100 prósent
Turninn í makaó
„Menn eru að endurfjármagna
lán og það er það sem er aðal-
ástæðan fyrir þátttöku þessara
félaga í Vafningi.“
Bjarni veðsetti Vafning Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk umboð frá BNT, Hrómundi og Hafsilfri til að veðsetja hlutabréf þeirra í eignarhaldsfélagi sem meðal annars keypti lúxusturn í Makaó sama dag og umboðin eru dagsett. Umboðin þrjú sjást hér á myndunum.
fréttir 11. desember 2009 föstudagur 15
eftir því við mig að ég sjái um að veð-
setja hlutabréf þeirra í félaginu fyrir
þeirra hönd þá geri ég ekkert annað
en það og tek engar aðrar ákvarðanir
um neitt annað... Þeir gátu ekki farið
í bankann þennan dag til að veðsetja
bréfin sín í Vafningi. Það var bara
verið að ganga frá endurfjármögnun
lána í bankanum og það þurfti bara
að gerast þennan dag... Ég myndi
líka vilja fullyrða við þig að eigend-
ur Hafsilfurs [Benedikt faðir Bjarna,
innsk. blaðamanns] - ég skal ekki
segja með hann Einar því ég hef ekki
rætt þetta við hann - hafa aldrei tekið
ákvörðun um að kaupa eða veðsetja
nokkuð varðandi eignir í Makaó. Þú
verður að ræða þetta mál við stjórn-
armennina í Vafningi. Ég hef aldrei
setið þar í stjórn og ekki komið ná-
lægt málinu,“ segir Bjarni sem bætir
því við aðspurður að hann ætli ekki
að tjá sig um það fyrir hverju hluta-
bréfin í Vafningi hafi verið veðsett.
„Ég ætla bara ekkert að tjá mig um
það.“
Hugsanlegt er hins vegar að þetta
hafi verið gert sem veð á móti tæp-
lega 5 milljarða króna láni frá Glitni
inn í eignarhaldsfélagið Svartháf,
sem var í eigu föður Karls og Stein-
gríms Wernerssona, sem síðan var
endurlánað strax aftur til Vafnings á
fyrstu mánuðum 2008. Eini tilgang-
ur Svartháfs var að vera leppur fyr-
ir frekari lánveitingar frá Glitni til
þeirra Wernerssona. Vafningur fékk
enn fremur 10 milljarða króna víkj-
andi lán frá Sjóvá síðar í febrúar. Ljóst
er að kaup Vafnings á lúxusturninum
voru fjármögnuð með einhverju af
þessum lánveitingum.
Turninn innlegg
Wernersbræðra
Aðspurður af hverju BNT, Hafsilfur
og Hrómundur hafi þá tekið ákvörð-
un um að kaupa turninn í Makaó í
gegnum Vafning segir Bjarni að þeir
hafi ekki gert það: „Það er stjórn
Vafnings sem hefur gert það,“ segir
Bjarni. Þegar Bjarni er spurður hvort
þeir hafi ekki komið að ákvörðuninni
um það að kaupa turninn því þeir
hafi verið stórir hluthafar í Vafningi
segir Bjarni: „Ég sat aldrei í stjórn
þar... Vafningur snýst um meira en
það að fara með eignarhald á þessum
turni. Þetta eru eignir sem Werners-
bræður leggja inn í félagið sín meg-
in frá og þær koma okkur bara ekk-
ert við,“ segir Bjarni en blaðamaður
segir þá við hann að auðvitað komi
þessar eignir þeim við þar sem þeir
hafi verið hluthafar í Vafningi sem
keypti turninn í Makaó. Bjarni virðist
þó vera á annarri skoðun.
Stjórnarmenn Vafnings, sem síð-
ar var endurskírður Földungur, voru
hins vegar starfsmenn Milestone,
þeir Guðmundur Ólason og Jóhann-
es Sigurðsson, og virðast þeir því
hafa tekið ákvarðanir fyrir hönd fé-
lagsins sem byggðu á vilja eigenda
Milestone, þeirra Karls og Steingríms
Wernerssona, sem samtals réðu yfir
meirihluta í Vafningi þó eignarhlut-
ir Engeyjarmannanna væru stórir.
Þetta skýrir þó ekki af hverju félög-
in þrjú í kringum Bjarna, Einar og
Benedikt ákváðu að taka þátt í félag-
inu til að byrja með.
Snerist um endurfjármögnun
lána
Aðspurður af hverju BNT, Hafsilf-
ur og Hrómundur hafi ákveðið að
taka þátt í Vafningi og hvort hann
hafi komið að þeirri ákvörðun seg-
ist Bjarni ekki hafa gert það: „Það
er ekki hægt að segja að þetta sé
ákvörðun sem hafi átt sér neinn sér-
stakan aðdraganda. Þetta er mál sem
var inni á borði hjá forstjóranum [hjá
BNT eða N1, innsk. blaðamanns] og
þetta er meira frágangsmál en nokk-
uð annað,“ segir Bjarni. Aðspurður
hvort hann hafi þá komið að því að
ákveða það fyrir hönd BNT að gerast
hluthafi í Vafningi segir Bjarni: „Ég
skýst aldrei undan ábyrgð á því sem
ég skrifa undir fyrir hönd þess félags
sem ég sit í stjórn fyrir,“ segir Bjarni
sem undirstrikar að þetta þýði þó
ekki að hann hafi haft vitneskju um
að Vafningur væri að kaupa turninn í
Makaó. Bjarni virðist þó hafa kvittað
upp á þátttöku BNT í Vafningi sem
stjórnarformaður félagsins.
Þegar blaðamaður segir við
Bjarna að hann hafi ekki neina trú
á því að Vafningur hafi ákveðið að
kaupa turninn í Makaó án vitundar
Bjarna og hluthafa félaganna þriggja
segir hann: „Þú hefur ekki heildaryf-
irsýn yfir það sem menn eru að gera
á þessum tíma. Menn eru að end-
urfjármagna lán og það er það sem
er aðalástæðan fyrir þátttöku þess-
ara félaga í Vafningi. En ég tók aldrei
ákvörðun um að félagið tæki þátt í
fjárfestingunum í Makaó. Mér var
ekki kunnugt um að Vafningur væri
að fara að taka yfir þessar fjárfesting-
ar í Makaó,“ segir Bjarni.
Það sem Bjarni vísar líklega til
með þessum orðum er að í ársbyrj-
un stóðu ýmis íslensk eignarhalds-
félög eins og FL Group og Milestone
frammi fyrir því að þurfa að endur-
fjármagna lán sem tekin höfðu verið
hjá erlendum fjármálafyrirtækjum.
Vegna væntanlegrar lægðar á fjár-
málamörkuðum og sökum þess að
þá þegar voru blikur á lofti í íslensku
efnahagslífi kipptu erlend fjármála-
fyrirtæki að sér höndum og neituðu
að endurnýja lánasamninga við ís-
lensk félög.
Þetta gerðist til að mynda með
Milestone sem þurfti að endurfjár-
magna lán hjá fjárfestingarbank-
anum Morgan Stanley í ársbyrjun
2008. Vegna þess að Milestone gat
ekki fengið meira að láni frá Glitni
var búið til félag sem hét Svartháf-
ur og var í eigu föður eigenda Miles-
tone. Þetta félag endurlánaði féð frá
Glitni strax til félags í eigu Milestone
sem gat þar með greitt af láninu. Og
Svartháfur lánaði Vafningi sömuleið-
is.
Hugsanlegt er, þegar litið er til
orða Bjarna, að ástæðan fyrir stofn-
un Vafnings hafi verið tengd ein-
hverjum slíkum snúningi af hálfu
Milestone og jafnvel N1-manna.
Bjarni óbeinn hluthafi í
Vafningi
Aðspurður hvort hann hafi ekki sjálf-
ur átt hlutabréf í BNT á þessum tíma
segir Bjarni: „Jú, en það er langt síð-
an... Ekki eftir þennan tíma. Ég seldi
þennan eignarhluta minn í BNT á
fyrsta ársfjórðungi ársins 2008, í síð-
asta lagi í mars 2008. En þetta hefur
ekkert með hlutabréfin mín í BNT að
gera,“ segir Bjarni sem var því sam-
kvæmt þessu hluthafi í BNT þegar
Vafningur keypti fasteignaverkefnið
í Makaó. „En hvað kemur mér það
við þó BNT eigi lítinn hlut í þessu fé-
lagi?“ segir Bjarni sem var, eins og
áður segir, stjórnarformaður í BNT
og N1 þegar Vafningur keypti fast-
eignaverkefnið í Makaó.
Bjarni: Ekkert eiginfjárframlag
Bjarni segir að hlutabréfaeign sín
í BNT hafi ekki haft neitt með fast-
eignaverkefnið í Makaó að gera.
„Hversu mikið heldur þú að BNT
hafi sett inn í þetta félag af eignum
sínum? Hefur þú einhverja hugmynd
um það?“ segir Bjarni. „Ætli þessi
viðskipti hafi því haft einhver áhrif á
verðmæti þess eignarhlutar sem ég
átti í BNT á þeim tíma?“
Hann segir að mikilvægt sé að
halda því til haga að félögin hafi
ekki endilega verið að kaupa sig inn
í Vafning: „Þú segir að þeir hafi ver-
ið að kaupa sig inn í þetta? Hvern-
ig keyptu þeir sig inn í þetta? Með
hvaða eiginfjárframlagi? Hverjir eru
að hætta einhverju til?“ segir Bjarni.
Blaðamaður segir við Bjarna að
hann átti sig á því að ólíklegt sé að
þeir hafi lagt eitthvert eigið fé fram í
viðskiptunum: „Það er ólíklegt að þið
hafið lagt eitthvað fram í þessum við-
skiptum,“ segir blaðamaður en svar
Bjarna við þeirri fullyrðingu er „ein-
mitt“. Blaðamaður segir við Bjarna að
það sé augljóst að viðskipti Vafnings
hafi verið fjármögnuð að langmestu
leyti með lánum frá Glitni, Sjóvá og
Svartháfi. „Já, en það allt saman er
eitthvað sem ég var bara aldrei neitt
inni í,“ segir Bjarni en jafnframt er
ljóst að hluthafar Vafnings hefðu get-
að grætt fúlgur fjár á turninum ef við-
skiptin hefðu gengið sem skyldi - þá
hefðu þeir fengið mikið fyrir lítið.
Bjarni segist ekki vita hversu
miklu BNT, Hafsilfur og Hrómund-
ur hafi tapað á viðskiptunum í Vafn-
ingi en samkvæmt því sem segir hér
að framan getur það ekki hafa ver-
ið mjög mikið þó ábyrgð félaganna
á fasteignaverkefni Vafnings sé aug-
ljóslega töluverð, hvort sem þeir
vissu af því eða ekki, þar sem þeir
áttu stóran hlut í því.
Stóra spurningin sem stendur
eftir varðandi aðkomu Bjarna Bene-
diktssonar að fasteignaverkefninu
í Makaó er hversu mikið hann vissi
um það. Bjarni segist ekki hafa vitað
að Vafningur hefði fjárfest í Makaó
fyrr en nokkrum mánuðum eftir að
það átti sér stað, þrátt fyrir að hann
hafi verið stjórnformaður í hluthafa
félagsins og að hann hafi veðsett
hlutabréf þess.
Vafningur til að endurfjármagna lán Bjarni segir að tilgangurinn með stofnun
Vafnings hafi meðal annars verið að endurfjármagna lán og að hann hafi ekki vitað
að félagið hefði keypt háhýsi á Makaó fyrir fimm milljarða króna sama dag og hann
veðsetti hlutabréf í því.
Sérlega glæsilegir
úr satin og blúndu
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Laugavegi 178, 105 Rvk
sími 551-3366 www.misty.is
Teg. Emma - “Push up” í B,C,D
skálum á kr. 6.885
Teg. Emma - “Push up” í
D,DD,E,F,FF skálum á kr. 6.885,-
Teg.Emma
Teg. Emma
Opið virka daga kl. 10-18
lau 12.des kl. 10-16
lau 19.des kl. 10-18
Þorláksmessa kl. 10-20
days30
OXYTARM
OXYTARM
30 days
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman
120 töflu skammtur
Betri apótekin og Maður lifandi
www.sologheilsa.is.
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM Í boði
eru 60-150 töflu skammtar
&
DETOX
2 mánudagur 14. desember 2009 fréttir
Sama dag og eignarhaldsfélagið
Vafningur keypti fasteignafélag sem
hélt utan um byggingu lúxusíbúða-
turnar í Makaó í Asíu fyrir rúma fimm
milljarða króna í febrúar í fyrra festi
félagið kaup á rúmlega 82 prósenta
hlut í breska fjárfestingasjóðnum
KCAJ LLP fyrir 5,4 milljarða króna.
Í báðum tilfellum seldu dótturfélag
Sjóvár, sem var í eigu Milestone, fé-
lögin til Vafnings. Forstjóri Vafnings,
Guðmundur Ólason, skrifaði undir
kaupsaminginn um viðskiptin með
KCAJ fyrir hönd dótturfélags Sjóvár,
SJ2, sem og fyrir hönd Vafnings.
Milestone var jafnframt meiri-
hlutaeigandi í Vafningi áfram í gegn-
um dótturfélag Sjóvár en næststærstu
hluthafarnir voru eigendur N1, Einar
og Benedikt Sveinssynir. Vafningur
fjárfesti því fyrir 10,6 milljarða sama
daginn.
Fjárfestingasjóðurinn KCAJ var
stofnaður af Jóni Scheving Thor-
steinssyni, fyrrverandi starfsmanni
Baugs, árið 2006. Á þeim tíma var
sagt að sjóðurinn ætti að verða ein-
hvers konar mini-Baugur. Sjóðurinn
fjárfesti í ýmsum verslunum á Bret-
landseyjum, meðal annars Cruise,
Duchamp, Aspinal of London, Jones
Bootmaker og útivistarversluninni
Mountain Warehouse. Milestone
keypti sig svo inn í sjóðinn og átti
rúm 82 prósent í honum þegar Vafn-
ingsviðskiptin áttu sér stað í fyrra.
Kaupin á félögunum tveimur
voru að öllum líkindum fjármögnuð
með láni frá tryggingafélaginu Sjó-
vá Almennum upp á 10,6 milljarða
króna. Vafningur skrifaði upp á lána-
samning við Sjóvá í lok febrúar 2008,
þremur vikum eftir að félagið hafði
keypt fasteignaverkefnið í Makaó og
breska fjárfestingasjóðinn. Ástæðan
fyrir því að þetta er líklegt er meðal
annars sú að lánsupphæðin frá Sjó-
vá er nákvæmlega jafnhá og kaup-
verð Makaó-fasteignaverkefnisins og
breska fjárfestingasjóðsins. Eigendur
Milestone og Sjóvár á þessum tíma
voru bræðurnir Karl og Steingrímur
Wernerssynir.
Bjarni veðsetti vegna
tveggja Glitnislána
Líkt og DV greindi frá í síðustu viku
veðsetti Bjarni Benediktsson, þáver-
andi stjórnarformaður eins hluthafa
í Vafningi, BNT, og núverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins, hluta-
bréf BNT, Hrómundar og Hafsilfurs í
Vafningi sama dag og félagið fjárfesti
í fasteignaverkefninu í Makaó. Við
þetta bætist nú að Vafningur fjárfesti
einnig í breska fjárfestingasjóðnum
þennan sama dag.
Heimildir DV herma að Bjarni
hafi veðsett bréfin í Vafningi vegna
lánafyrirgreiðslu frá Glitni sem geng-
ið var frá 29. febrúar 2008, sama dag
og félagið fékk 10,6 milljarðana að
láni frá Sjóvá. Um var að ræða tvö
lán frá Glitni til Vafnings, samkvæmt
heimildum DV.
Tók engar ákvarðanir
Aðspurður segir Bjarni, um hvort
hann hafi vitað að Vafningur fjárfesti
í breska fjárfestingasjóðnum þann
sama dag og hann fékk umboð til að
veðsetja hlutabréf félagsins, að svo
hafi ekki verið. „Ég tók engar ákvarð-
anir fyrir hönd þessa félags. Ég kom
ekkert nálægt þeim ákvörðunum
sem áttu sér stað þennan dag,“ seg-
ir Bjarni. Aðspurður hvort hann hafi
sem sagt ekki vitað að félag sem hon-
um tengdist hafi fjárfest fyrir meira
en 10 milljarða króna sama dag seg-
ir Bjarni: „Að sjálfsögðu ekki. Ég kom
ekkert nálægt þeirri ákvarðanatöku
um þá endurfjármögnun sem var
að eiga sér stað á þessum tíma. Þess
vegna vissi ég ekki hvaða gerningar
lágu þarna að baki. Ég kom einungis
að þeim gerningi að veðsetja hluta-
bréfin fyrir hönd þeirra sem á þeim
héldu. Aðrir voru að vinna í end-
urfjármögnuninni í samvinnu við
bankann,“ segir Bjarni.
Hvorki Bjarni né faðir hans
segjast hafa vitað neitt
Staðan á málinu er því sú að hvorki
Bjarni né faðir hans, Benedikt
Sveinsson, segjast hafa komið að
því að ákveða þátttöku félaga þeim
tengdum í Vafningi þrátt fyrir að
hafa verið stór- ir hluthafar
í félaginu. Benedikt
segist heldur
ekkert kann-
ast við félag-
ið, enda benda
heimildir DV ekki
til þess að
hans
aðkoma að félaginu og viðskiptum
þess hafi verið bein. „Ég bara man
þetta ekki, ég kem þessu ekki fyr-
ir mig. Ég er hættur í viðskiptum, ég
er búinn að draga mig út úr hlutum,“
segir Benedikt. Aðspurður hvort
hans aðkoma að félaginu hafi ver-
ið einhver segir Benedikt að svo hafi
ekki verið.
Því virðist það vera svo, sam-
kvæmt því sem þeir feðgar segja, að
hvorki Bjarni né faðir hans hafi tekið
ákvörðun um það fyrir hönd Hafsilf-
urs að taka þátt í Vafningi jafnvel þó
félagið hafi verið stór hluthafi í Vafn-
ingi í gegnum Skeggja og Mátt og
þó Bjarni hafi veðsett bréf Vafnings
sama daga og viðskipti þess upp á
10,6 milljarða áttu sér stað.
Vantaði 10 milljarða í
eignasafn Sjóvár
Líkt og Morgunblaðið greindi frá í
maí á þessu ári veðsettu eigendur
Sjóvár bótasjóð tryggingafélagsins og
vantaði að minnsta kosti 10 milljarða
króna í eignasafn félagsins til að eig-
infjárhlutafall félagsins teldist vera
jákvætt. Í frétt Morgunblaðsins kom
fram að Sjóvá hefði því ekki uppfyllt
þær lágmarkskröfur um gjaldþol til
að geta starfað sem tryggingafélag
lögum samkvæmt. Jafnframt kom
fram í fréttinni að bótasjóður Sjó-
vár hefði verið 23 milljarðar í lok árs
2007.
Í júlí í sumar kom svo fram að ís-
lenska ríkið hefði þurft að leggja Sjó-
vá til 12 milljarða króna til að bjarga
félaginu frá gjaldþroti en ástæðuna
fyrir slælegri stöðu félagsins má hvað
helst rekja til fjárfestinga þess er-
lendis. Tekið skal fram að um lán var
að ræða sem á að greiðast aftur inn-
an 18 mánaða eða þegar tryggingafé-
lagið verður selt.
Viðskipti Sjóvar, Milestone og
Vafnings voru að öllum líkindum
hluti af þeim fjárfestingum sem knés-
ettu Sjóvá enda munar um minna
þegar nærri 11 milljarðar króna eru
lánaðir frá félaginu til að fjármagna
fjárfestingar erlendis. Einn af heim-
ildarmönnum DV segir að nær úti-
lokað annað en að „peningarnir sem
Sjóvá lánaði inn í Vafning hafi verið
komnir beint eða óbeint úr bótasjóði
félagsins“.
Sérstakur saksóknari efnahags-
hrunsins, Ólafur Hauksson, hefur
rannsakað viðskipti Sjóvár og Mil-
estone síðustu mánuði. Meðal þess
sem er til skoðunar eru veðsetning-
in á bótasjóðnum og ástæðurnar fyr-
ir gríðarlegu tapi Milestone á síðasta
ári.
Vafningur keyptur degi áður
Annað sem er áhugavert í Vafn-
ingsmálinu er að Milestone selur
væntanlegum hluthöfum Vafnings,
SJ2, Skeggja og Mætti, hluti í félag-
inu 7. febrúar í fyrra, degi áður
en viðskiptin með turninn í
Makaó og breska fjárfestingasjóðinn
fara fram og degi áður en Bjarni fær
umboðið til að veðsetja bréfin í fé-
laginu.
Því er ljóst að aðdragandinn að
stofnun Vafnings og þeirra viðskipta
sem félagið átti í hefur ekki verið
langur. Vafningur átti svo ekki í öðr-
um félögum og virðist hafa verið
stofnað gagngert til að eiga í viðskipt-
um með turninn í Makaó og breska
fjárfestingasjóðinn.
Bjarni Benediktsson sagði í viðtali
við DV á föstudaginn að Vafningur
hefði verið stofnað í þeim tilgangi
að endurfjár- magna lán.
Blaðið hefur ekki áttað sig almenni-
lega á því af hverju félagið var sett á
laggirnar til að kaupa þessar eignir af
dótturfélagi Sjóvár og af hverju eig-
endur N1 tóku þátt í því. Þó herma
heimildir DV að líklegt sé að þeir hafi
gerst hluthafar í Vafningi því þeir hafi
viljað græða á fjárfestingum félags-
ins.
Vafningur fjárfesti fyrir 10,6 milljarða króna sama dag og Bjarni
Benediktsson veðsetti hlutabréf félagsins í fyrra. Félagið keypti
breskan fjárfestingasjóð, KCAJ, og fasteignaverkefni í Makaó.
Bjarni veðset i bréf Vafnings út af tveimur lánum frá Glitni sem
veitt voru í febrúarlok. Bjarni segist ekki hafa vitað um fjárfest-
ingu Vafnings í KCAJ frekar en í turninum í Makaó. Sjóvá veitti
Vafningi 10,6 milljarða lán í lok febrúar í fyrra.
VAFNINGUR Í BRESKRI ÚTRÁS
InGI F. VIlHjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Ég tók engar ákvarð-
anir fyrir hönd þessa
félags. Ég kom ekkert
nálægt þeim ákvörð-
unum sem áttu sér stað
þennan dag.“
Eignarhald á Vafningi:
SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir)
- 48,8 prósent
Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar
Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins-
son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl.
og Sáttur/Guðmundur Ólason)
- 39,10 prósent
Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2,
Hrómundur, Hafsilfur) - 12,1 prósent
Bjarni kjörinn í stjórn máttar:
Bjarni Benediktsson var kjörinn í
stjórn fjárfestingafélagsins Máttar á
stjórnarfundi hjá félaginu sem hald-
inn var í höfuðstöðvum Milestone
á Suðurlandsbraut 12 22. ágúst árið
2007. Aðrir sem kjörnir voru í stjórn
félagsins voru þeir Einar Sveinsson,
föðurbróðir Bjarna, Karl Wernersson
og Guðmundur Ólason. Faðir Bjarna
átti 16 prósenta hlut í félaginu
þegar þetta var. Tæpu hálfu ári síðar
fjárfesti Máttur í fasteignaverkefni
í Makaó og fjárfestingasjóði í
Bretlandi fyrir 10,6 milljarða króna.
10,6 milljarða viðskipti
Eignarhaldsfélagið Vafningur
fjárfesti í lúxusturni í Makaó sem
og í breskum fjárfestingasjóði í
febrúar í fyrra fyrir 10,6 milljarða
króna. Bjarni Benediktsson segist
ekki hafa vitað um fjárfestingar
félagsins þrátt fyrir að hafa
veðsett hlutabréf Vafnings sama
dag og þær áttu sér stað.
Skrifaði undir fyrir báða
Guðmundur Ólason, forstjóri
Milestone og stjórnarmaður í
Vafningi, skrifaði undir
kaupsamninginn að KACJ
fyrir hönd dótturfélags
Sjóvár, SJ2, sem og
Vafnings.
Bræðurnir í Vafningi Karl og
Steingrímur Wernerssynir og Einar og
Benedikt Sveinssynir voru eigendur
Vafnings sem fékk 10,6 milljarða lán frá
tryggingafélaginu Sjóvá og fjárfesti í
Makaó í Asíu sem og í
Bretlandi.
fréttir 14. desember 2009 mánudagur 3
Vissi Bjarni ekkert um viðskiptin í
Makaó eða með KCAJ?:
n Stjórnarformaður BNT sem var
hluthafi í Skeggja
n Hluthafi í BNT sem var hluthafi í
Skeggja
n Stjórnarmaður í Mætti sem var
hluthafi í Vafningi
n Sonur hluthafa í Skeggja, BNT
og Mætti sem voru hluthafar í
Vafningi
n Veðsetti hlutabréf BNT, Hrómund-
ar og Hafsilfurs í Vafningi
Tímaás um viðskipti tengd
Vafningi í febúar 2008:
7. febrúar Milestone selur
væntanlegum hluthöfum
í Vafningi hluti í félaginu
8. febrúar Eignarhaldsfélagið
Vafningur kaupir
fasteignafélag í Makaó af
dótturfélagi Sjóvár fyrir
5,2 milljarða
8. febrúar Eignarhaldsfélagið
Vafningur kaupir breskan
fjárfestingasjóð, KCAJ, af
dótturfélagi Sjóvár fyrir
5,4 milljarða
8. febrúar Bjarni Benediktsson fær
umboð frá föður sínum
og frænda til að veðsetja
hlutabréf BNT, Hafsilfurs
og Hrómundar í Vafningi
29. febrúar Vafningur gerir lána-
samning við Sjóvá upp á
10,6 milljarða króna
29. febrúar Vafningur gerir tvo
lánasamninga við Glitni-
banka. Líklegt að Bjarni
hafi veðsett Vafningsbréf-
in út af þessum lánum
Jan-Feb. Vafningur fær tæpa
5 milljarða að láni frá
eignarhaldsfélaginu sem
var í eigu föður Karls og
Steingríms Wernerssona
Peningar ríkisins ekki tapaðir:
DV greindi frá því á föstudaginn að
turninn í Makaó kosti hvern skatt-
greiðanda á Íslandi um 10.000 krónur
þar sem tap Sjóvár í Makaó hafi verið
um 3,2 milljarðar króna. Íslenska
ríkið lagði 12 milljarða króna inn í
Sjóvá í sumar til að bjarga félaginu
frá þroti þar sem minnst 10 milljarða
króna vantaði í eignasafn þess. Lán
ríkisins er til 18 mánaða og á Sjóvá að
greiða lánið til baka innan þess tíma,
hugsanlega eftir að félagið verður
selt á næstunni. Þá mun ríkissjóður
væntanlega fá peningana til baka
og ríkið og íslenskir skattgreiðendur
munu ekki tapa á björgunaraðgerð-
inni á Sjóvá. Því er fremur líklegt að
ríkissjóður fái fjármunina sem lánaðir
voru til baka.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, fór fram á það í gær
við Hrein Loftsson, aðaleiganda DV,
að hann hefði afskipti af fréttaflutn-
ingi DV af hans málum. DV hefur
undanfarna daga fjallað ítarlega um
fjárfestingar í lúxusturni í Makaó
sem Bjarni tengist.
Hreinn segir að Bjarni hafi hringt
í hann og lýst yfir óánægju sinni með
fréttaflutning DV. „Hann sagði frétt-
ir blaðsins byggjast á ósannindum.
Hann hélt áfram og sagði það vera
óþolandi, að ég stæði á hliðarlínunni
og léti þetta viðgangast. Fréttaflutn-
ingurinn hefði leitt til þess að an-
arkistar sætu um hús hans og vildu
valda honum tjóni. Ég spurði hann
til hvers hann ætlaðist af mér. Hann
var ekkert að skafa af því, hann ætl-
aðist til þess að ég stöðvaði þenn-
an fréttaflutning. Ég sagði honum,
að ég lyti ekki boðvaldi hans. Hann
skyldi snúa sér til ritstjórnar DV með
athugasemdir sínar og leiðréttingar,
en ég hefði ekkert meira við hann að
tala,“ sagði Hreinn.
Yfirlýsing frá Bjarna
Bjarni segir í yfirlýsingu, sem hann
sendi öðrum fjölmiðlum en DV, að
blaðið hafi ekki áhuga á að birta
leiðréttingu á þeim rangfærslum
sem það hefur farið með. Hann út-
skýrir ekki í hverju hinar meintu
rangfærslur felast. Því segist hann
hafa haft samband við eiganda
blaðsins og lýst því yfir að hann
teldi blaðamennsku blaðsins óvið-
unandi. „Áður en ég hafði haft tök á
að fara yfir samskipti mín við blað-
ið æsti Hreinn sig, sagðist ekki lúta
mínu boðvaldi og sagði mér að eiga
samskipti um þetta við ritstjórn
blaðsins. Að svo búnu skellti hann
á,“ segir Bjarni, sem hafnar því einn-
ig í yfirslýsingunni að hann hafi farið
fram á að fréttaflutningur DV af mál-
inu verði stöðvaður.
Stendur við orð sín
Hreinn segir að Bjarni fari með
ósannindi í yfirlýsingu sinni og
stendur við fyrri ummæli sín.
„Bjarni Benediktsson er ómerk-
ingur og ætti ekki að koma nálægt
stjórnmálum. Hann lýgur því að
Pressunni að ég hafi ekki borið upp
þá spurningu við hann, hvers hann
ætlaðist til af mér í framhaldi af at-
hugasemdum hans við fréttaflutn-
ing DV í símtali fyrr í dag (gær).
Þessa spurningu bar ég fram og
hann svaraði því til að ég ætti að
stöðva þennan fréttaflutning. Þetta
var ekki langt samtal, það er rétt
hjá Bjarna, því ég sagðist ekki lúta
boðvaldi hans og hann skyldi gera
athugasemdir við ritstjórn DV ef
hann teldi ekki rétt með farið varð-
andi þessar fréttir. Þá er það einnig
rétt hjá Bjarna að ég skellti á hann,
enda er ég ekki vanur að eiga löng
samtöl við símadóna af þessu tagi,“
segir Hreinn.
Bjarni Benediktsson hringdi í Hrein Loftsson:
Vildi að eigandinn stöðvaði umfjöllun
Bjarni Benediktsson, núverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins og þáver-
andi stjórnarformaður eignarhalds-
félagsins BNT, tók þátt í viðskiptum
einkahlutafélagsins Vafnings með
eignir dótturfélags tryggingafélags-
ins Sjóvár í Makaó í nágrenni Hong
Kong í Asíu í febrúar 2008, sam-
kvæmt heimildum DV. Félög í eigu
fjölskyldu Bjarna voru stórir hluthaf-
ar í Vafningi.
Fjárfestingarverkefnið snerist
um kaup á 68 lúxusíbúðum í turni í
hjarta Makaó og kallaðist það One
Central. SJ-fasteignir, sem var í eigu
bræðranna Karls og Steingríms
Wernerssona í gegnum Sjóvá, fjár-
festi í verkefninu fyrir tæpa sjö millj-
arða króna árið 2006. Turninn, sem
kallast Tower 4, er hannaður af arki-
tektastofunni Kohn Pedersen Fox
Associates og átti að vera 41 hæð-
ar. Ljúka átti við byggingu hans árið
2010 og ætlaði Sjóvá sér að græða á
áttunda milljarð á viðskiptunum.
Skilanefnd Glitnis, sem var stærsti
kröfuhafi eignarhaldsfélagsins Miles-
tone, sem átti Sjóvá, losaði Sjóvá út úr
fasteignaverkefninu í Makaó í sumar
með samningum við fasteigna- og
fjárfestingarfyrirtækin Shun Tak og
Hongkong Land sem sáu um að reisa
turninn fyrir hönd Vafnings. Miles-
tone hefur verið tekið til gjaldþrota-
skipta og stjórnar bankinn nú trygg-
ingafélaginu þar til það verður selt.
Greiða þurfti fyrirtækjunum tveimur
um 1,5 milljarða króna í skaðabætur
vegna riftunarinnar og hefur Hörð-
ur Arnarson, sem ráðinn var forstjóri
Sjóvár eftir að félagið var yfirtekið af
skilanefnd Glitnis, sagt að tap félags-
ins í heildina vegna þessara viðskipta
sé um 3,2 milljarðar króna.
Milestone skildi Sjóvá eftir á
barmi gjaldþrots og þurfti íslenska
ríkið að leggja félaginu til 12 millj-
arða króna fyrr á árinu til að bjarga
því frá gjaldþroti. Á sama tíma lögðu
Glitnir og Íslandsbanki samtals fjóra
milljarða króna inn í félagið. Hluta af
þessu tapi og ástæðunni fyrir björg-
unaraðgerðum ríkisins má rekja til
fjárfestinga Sjóvár í Makaó.
Fjölskylda Bjarna átti á móti
Sjóvá
Vafningur keypti einkahlutafélagið SJ
Properties MacauOneCentral HoldCo
ehf. af SJ-fasteignum fyrir 5,2 milljarða
króna þann 8. febrúar árið 2008, sam-
kvæmt heimildum DV. Nýtt félag, SJ2,
sem var í eigu Sjóvár líkt og SJ-fast-
eignir, átti tæplega 50 prósenta hlut í
Vafningi en tvö önnur eignarhaldsfé-
lög, Skeggi og Máttur, skiptu með sér
rúmlega 50 prósenta eignarhluta. Mil-
estone hafði selt Vafning til Skeggja
einungis degi áður, eða þann 7. febrú-
ar, og var félagið skráð til heimilis í
höfuðstöðvum Milestone á Suður-
landsbraut 12.
Félag Sjóvár, SJ2, átti sömuleiðis
tæplega 50 prósenta hlut í Skeggja en
BNT, móðurfélag olíufélagsins N1 sem
Bjarni stýrði, átti tæp 24 prósent. Eign-
arhaldsfélögin Hrómundur og Hafsilf-
ur áttu svo rúmlega 17 prósenta og
tæplega 8,5 prósenta hlut. Hrómund-
ur er í eigu föðurbróður Bjarna, Ein-
ars Sveinssonar, á meðan Hafsilfur er í
eigu föður hans, Benedikts Sveinsson-
ar. Þeir bræður eru sömuleiðis eigend-
ur N1 og var Bjarni stjórnarformaður
þess og BNT þar til í desember í fyrra
þegar hann ákvað að hætta til að ein-
beita sér alfarið að stjórnmálunum.
Bjarni hefur sömuleiðis upplýst að
um tíma hafi hann átt 1 pró-
sents hlut í BNT.
SJ2 átti sömuleiðis tæplega helm-
ingshlut í Mætti en félög Einars og
Benedikts Sveinssona áttu tæplega
helmingshlut á móti því. Því má segja
að Wernersbræður og þeir Sveins-
synir og Bjarni hafi eftir kaupin af
Sjóvá átt fasteignaverkefnið í Makaó.
SJ Properties MacauOneCentral
HoldCo ehf. átti fasteignaverkefnið
í Makaó jafnframt í gegnum einka-
hlutafélagið Drakensberg Invest-
ment Ltd. sem skráð er á Bresku Jóm-
frúareyjum.
Sjóvá lánaði Vafningi 10
milljarða
Heimildir DV herma að sama dag
og Vafningur skrifaði undir kaup-
samning við SJ-fasteignir um kaupin
á Makaó-félaginu hafi Bjarni Bene-
diktsson fengið fullt og óskorað um-
boð frá Hafsilfri, Hrómundi og BNT
til að veðsetja eignarhluti fjölskyldu-
félaganna þriggja í Vafningi hjá Glitni
banka. Ekki er vitað hvort Bjarni nýtti
sér þetta umboð eða ekki en þó má
áætla að það hafi ekki verið veitt að
ástæðulausu heldur vegna viðskipt-
anna með eignirnir í Makaó.
Um svipað leyti, í lok febrúar
2008, lánaði Sjóvá Vafningi 10 millj-
arða króna með víkjandi láni. Ástæð-
an fyrir því að lánið var víkjandi er sú
hversu stóran þátt Sjóvá og eigendur
félagsins, þeir Karl og Steingrímur,
áttu í félaginu. Nánast má fullyrða að
nota átti lánið til að greiða fyrir kaup
Vafnings á félaginu í Makaó sem hélt
utan um eignina á lúxusturninum.
Ástæðan fyrir því er sú að Vafningur
var stofnaður til þess eins, að því er
virðist, að kaupa fasteignaverkefnið í
Makaó af SJ-fasteignum.
Önnur tengsl Vafnings við eign-
arhaldsfélög tengd þeim bræðrum
Steingrími og Karli eru meðal annars
að á eina stjórnarfundi eignarhalds-
félagsins Svartháfs, sem DV hefur
greint ítarlega frá upp á síðkastið, í
ársbyrjun 2008, var ákveðið að lána
50 milljónir evra til Vafnings ehf.,
eða sem nemur tæpum 5 milljörð-
um króna. Hugsanlegt er að
Bjarni hafi fengið umboðið frá BNT,
Hrómundi og Hafsilfri til að veðsetja
hlutabréfin í Vafningi vegna lánsins
sem veitt var til félagsins í gegnum
Svartháf.
Vafningur hefur því fengið sam-
tals að minnsta kosti um 15 milljarða
króna að láni frá Sjóvá og Glitni um
þetta leyti og notaði félagið rúmlega
5 milljarða til að fjárfesta í fasteigna-
verkefninu sem dótturfélag Sjóvár
hafði átt eitt fram að því. Afar líklegt er
að afskrifa þurfi meirihluta þeirra fjár-
muna sem Vafningur fékk að láni þar
sem Milestone skilur eftir sig skulda-
slóð upp á marga tugi milljarða auk
þess sem engar eignir eru inni í Svart-
háfi svo vitað sé en skuldir þess félags
nema um 45 milljörðum króna.
2 miðvikudagur 9. desember 2009
fréttir
Tengsl Wernersbræðra og Engeyinga
Bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir og E
inar og Benedikt Sveinssynir
hafa átt mikil viðskipti sín á milli á undanförnum
árum. Einar Sveinsson var
forstjóri Sjóvár og Benedikt bróðir hans var stjórn
arformaður tryggingafélagsins.
Árið 2003 keyptu bræðurnir hina svokölluðu H. B
en. fjölskyldu út úr Sjóvá en
fjölskyldurnar tilheyra báðar hinni frægu Engeyja
rætt. Íslandsbanki var hins
vegar stærsti hluthafinn. Næsta nótt varð síðan fr
æg sem „Nótt hinna löngu
bréfahnífa“. Þá gerðu stærstu fjármálafyrirtæki lan
dsins með sér samkomulag
sem breytti landslaginu í íslensku viðskiptalífi. Eit
t af því sem samið var um var
að Íslandsbanki eignaðist ellefu prósenta hlut Bu
rðaráss í Sjóvá. Bankinn gerði
í kjölfarið yfirtökutilboð í Sjóvá. Seldu Einar og Be
nedikt Sveinssynir hlut sinn í
Sjóvá og eignuðust í staðinn hlut í Íslandsbanka.
Hætti Einar Sveinsson fljótlega
sem forstjóri Sjóvár og tók Þorgils Óttar Mathiese
n við af honum.
Árið 2005 keypti félagið Þáttur, í eigu Karls, Steing
ríms og Ingunnar Werners-
barna, 66,6 prósenta hlut í Sjóvá af Íslandsbanka.
Var Þór Sigfússon þá gerður að
forstjóra Sjóvár. Einar Sveinsson og Karl Wernerss
on sátu í stjórn Íslandsbanka og
síðar Glitnis þar til FL Group undir forystu Hannes
ar Smárasonar og Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar náði yfirtökunum í Glitni. Var Eina
r stjórnarformaður bankans.
Svartháfur
Tekin var ákvörðun um það á einum og sama stjó
rnarfundinum í eignarhalds-
félaginu Svartháfi í upphafi árs 2008 að sækja um
tæplega 200 milljóna evra lán
frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum k
róna á núverandi gengi, og
endurlána það svo til félaga í eigu Karls og Steing
ríms Wernerssona.
Lánið sem Svartháfur endurlánaði strax til eignar
haldsfélaga í þeirra eigu var
svo notað til að greiða hluta skuldar við fjárfestin
gabankann Morgan Stanley
upp á 300 milljónir evra, sem nemur um 55 milljö
rðum króna á núverandi gengi.
Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitand
i Milestone og fjármagnaði
hluta útrásar fyrirtækisins til annarra landa.
Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, We
rners Rasmusson, er einn af
stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45
milljarða króna og er ljóst að
skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúgan hluta þ
eirrar fjárhæðar. Glitnir veitti
Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dags
etning er ekki þekkt. Á sama
stjórnarfundi hjá Svartháfi í ársbyrjun 2008 var ák
veðið að lána 50 milljónir evra
til félagsins Vafnings ehf., eða sem nemur tæpum
5 milljörðum króna. Eigendur
Vafnings voru þeir bræður Einar og Benedikt Sve
inssynir og Bjarni, sonur
Benedikts og formaður Sjálfstæðisflokksins. Það s
kýtur skökku við að Werners-
bræður sem ekki gátu greitt af eigin lánum hafi s
éð sér fært að lána félagi í eigu
Engeyjarfjölskyldunnar fimm milljarða króna.
BJARNI MEÐ Í KAUPUM
Á LÚXUSTURNI Í MAKAÓfréttir 30. nóvember 2009 mánudagur 11
Tekin var ákvörðun um það á ein-um og sama stjórnarfundinum í eignarhaldsfélaginu Svartháfi í fyrra að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum króna á núverandi gengi, og end-urlána það svo aftur til félaga í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Lánið sem Svartháfur endur-lánaði strax aftur til eignarhalds-félaga í þeirra eigu var svo notað til að greiða hluta skuldar við fjár-festingabankann Morgan Stanley upp á 300 milljónir evra, sem nem-ur um 55 milljörðum króna á nú-verandi gengi. Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitandi Mil-estone og fjármagnaði hluta útrás-ar fyrirtækisins til annarra landa.Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, Werners Rasmus-sonar, er einn af stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að skila-nefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúg-an hluta þeirrar fjárhæðar. Glitn-ir veitti Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dagsetning er ekki þekkt.
Sótt um lán og endurlánaðHeimildir DV herma að á stjórn-arfundinum í Svartháfi, sem hald-inn var í höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12, hafi verið gerður lánasamningur við Glitni sem nam um 200 milljónum evra. Einnig var ákveðið að lána ætti tæp-lega 140 milljónir evra til sænska félagsins Racon Holding AB, sem var dótturfélag Milestone og lán-takandi Morgan Stanley. Veðið fyr-ir láni Svartháfs til Racon Holding AB var í hlutabréfum í sænska fjár-málafyrirtækinu Invik & Co., síðar Moderna AB. Racon notaði lánið svo til að borga Morgan Stanley.Jafnframt var ákveðið á stjórn-arfundinum að lána 50 milljónir evra til félags sem heitir Vafning-
ur ehf., sem einnig var í eigu þeirra bræðra og til húsa á Suðurlands-braut 12. Ekki er vitað til að aðrir stjórnar-fundir hafi verið haldn-ir í Svartháfi.
Lán upp í skuld MilestoneVeðið fyrir láninu frá Glitni til Svartháfs var í eignarhaldsfélaginu Moderna AB en eignir Milestone voru seld-ar inn í það félag um áramótin 2007-2008. Glitnir hefur nú leyst til sín eignir Mod-erna, meðal annars Sjóvá og Askar Capi-tal, og fékk bank-inn þar eitthvað upp í kröfuna á hendur Svartháfi en ljóst er að afskrifa þarf stóran hluta henn-ar. Milestone stofnaði til lánsins, sem Racon borgaði síðar upp með láninu frá Svartháfi, við Morgan Stanley sumarið 2007 og var það notað til að festa kaup á sænska fjármálafyrirtækinu Invik & Co, sem síðar var endurskírt Moderna Finance AB. Lánið frá Glitni sem rann inn í Svartháf var því notað til að standa við skuldbindingar sem Milestone stofnaði til fyrir hönd dótturfélags síns.
Leppurinn SvartháfurÁ þessum tíma, í ársbyrjun 2008, er líklegt að Morgan Stanley hafi ver-ið orðinn órólegur um að lán Rac-on fengist ekki greitt og að þeir hafi ekki viljað endurnýja lánasamning-inn. Ástæðan kann meðal annars að hafa verið sú að þá þegar voru blikur á lofti um að mikil lægð væri yfirvofandi í íslensku efnahags-lífi og má áætla að Morgan Stan-ley hafi því kippt að sér höndum. Milestone hefur því hugsanlega átt í erfiðleikum með að standa í
skilum við Morgan Stanley, önnur fjármálafyrirtæki hafa ekki viljað lána þeim og því hafi þeir orðið að verða sér úti um lán með einhverj-um hætti. Heimildir DV renna því stoð-um undir þá kenningu að eini til-gangurinn með stofnun Svartháfs hafi verið að leppa lánveitingu frá Glitni, sem síðar rann til félaga Wernerssona sjálfra. Ástæðan fyr-ir Svartháfssnúningnum var sú að félög í beinni eigu þeirra bræðra máttu ekki fá meira lánað hjá Glitni samkvæmt reglum sem Fjármála-eftirlitið hefur sett um hámarks-lánveitingar til einstakra aðila. Ástæðan fyrir þessum reglum er til að lágmarka áhættu bankans: Ekki er heppilegt fyrir banka að eiga of miklar útistandandi skuldir við einstaka fyrirtækjasamstæðunnar. Ekki er vitað hver það var innan Glitnis sem tók ákvörðunina um að veita Svartháfi þetta lán en líkt og gildir í fjármálafyrirtækjum með svo háar lánveitingar en lána- og áhættunefndir fjármálafyrirtækja taka yfirleitt ákvarðanir um svo háar lánveitingar.
IngI F. VILhjáLMSSonblaðamaður skrifar ingi@dv.is
LEPPUR BORGAÐI
SKULD MILESTONE2 miðvikudagur 14. október 2009 fréttir
Glitnir þarf að afskrifa stóran hluta af45 milljarða króna skuld eignarhalds-félagsins Svartháfs við bankann, sam-kvæmt heimildum DV. Krafa Glitnis á hendur Svartháfi nam 45 milljörðumkróna í sumar en samkvæmt heimild-um DV var hún gerð upp í lok sum-ars. Líklegast er að krafan hafi veriðgerð upp með miklum afföllum fyrir bankann.Skuld Svartháfs er meðal ann-ars tilkomin vegna þess að félagið,sem er í eigu Werners Rasmusson, föður Karls og Steingríms Werners-sona, fyrrverandi eigenda eignar-haldsfélagsins Milestone, tók lán hjá Glitni í fyrra upp á 20 milljarða króna til að lána eignarhaldsfélagi í eigu bræðranna fyrir skuld við fjárfest-ingabankann J.P. Morgan.Svartháfur hét áður ELL 150 ogGleypnir og var stofnað af ErlendiGíslasyni og Gunnari Sturlusyni hjá lögmannsstofunni Logos í janúarárið 2008, samkvæmt stofnskjölum
félagsins. Svartháfur er skráður til heimilis á Suðurlandsbraut 12, líkt og flest önnur eignarhaldsfélög þeirra bræðra, en lögheimili þess var skráðí Jötunssölum 2, heimili Werners föð-ur þeirra, þar til í apríl í fyrra þegarlögheimilið var fært á Suðurlands-brautina. Svartháfur hefur ekki skilaðársreikningi fyrir árið 2008.Nafnabreytingar í ársbyrjunÍ febrúar 2008 voru Werner Rassmus-son og kona hans Kristín Sigurðar-dóttir kjörin í stjórn og varastjórn félagsins. Nafni félagsins var á sama tíma breytt úr ELL 150 í Svartháfur.Í tilkynningu til Fyrirtækjaskrár um breytinguna á stjórninni er hins veg-ar strikað yfir nafnið Gleypnir með penna og nafnið Svartháfur sett í staðinn, eins og félagið hafi átt að heita Gleypnir en að svo hafi því ver-ið breytt á síðustu stundu. Lögheim-ili Svartháfs var svo fært frá Jötuns-sölum á Suðurlandsbraut 12 í apríl í fyrra, samkvæmt tilkynningu til Fyr-irtækjaskrár sem aðstoðarforstjóriMilestone, Jóhannes Sigurðsson, skrifaði undir ásamt Werner Rasm-usson. Tengsl Svartháfs og Milestone
eru því nokkur þó eigendurnir hafiekki verið þeir sömu.45 milljarða skuld Svartháfs stend-ur utan við þá rúmlega 43,9 milljarðakróna skuld sem Milestone skilur eft-ir inni í Glitni. Skuldir þessara tveggjafélaga og dótturfélaga þeirra við Glitninema því nærri 90 milljörðum króna.Heildarskuldir Milestone nematæpum 80 milljörðum króna og var gert ráð fyrir því í nauðasamningumfélagsins, sem hefur verið hafnað, að kröfuhafarnir fengju um 6 prósent upp í kröfur sínar en eignir félags-ins voru einungis metnar á um fimmmilljarða. Því má reikna með að feðg-arnir, Werner, Steingrímur og Karl, eigi ekki til þær upphæðir persónu-lega sem til þarf til að greiða skuldirSvartháfs, enda er ekki vitað til þessað einhver þeirra sé í persónulegumábyrgðum vegna skuldanna.Greiddu niður lán til J.P. MorganSkuldir Svartháfs við Glitni eru með-al annars tilkomnar vegna þess aðskömmu eftir að félagið tók uppnafnið Svartháfur í febrúar í fyrratók félagið lán frá Glitni upp á um 20milljarða króna til að greiða lán Rac-on Holdings II, sem eignarhaldsfélagKarls og Steingríms, Milestone, réð í gegnum annað eignarhaldsfélag sitt,Þátt, við fjárfestingarbankann J.P.Morgan. Lán Racon hjá J.P. Morgan vartilkomið út af kaupum Racon á fé-lagi sem hét Innvik, sem síðar varendurskírt Moderna Finance AB. Á þeim tíma var J.P. Morgan hins veg-ar orðinn órólegur um að lán Racon fengist ekki greitt og vildu ekki end-urnýja lánasamninginn þegar hann gjaldféll, ástæðan var meðal annarsað þá þegar voru blikur á lofti í ís-lensku efnahagslífi og kippti bank-inn því að sér höndum með því aðneita að endurnýja lánasamninginn.Fjárfestingafélagið Gnúpur, sem varí eigu Kristins Björnssonar og Magn- úsar Kristinssonar, hafði lent í erf-iðleikum í árslok 2007 og eru þeir fjárhagserfiðleikar af mörgum tald-ir marka upphaf íslenska efnahags- hrunsins. Því þurftu eigendur Rac-on, Karl og Steingrímur, að finna aðrar leiðir til að greiða J.P. Morganlánið.
WernerssonaKarl WernerssonGLITNIR ÞARF AÐ AFSKRIFA SKULDIR WERNERSMANNA
HvAÐ ER SvARTHáFUR?Svartháfur er eignarhaldsfélag sem stofnað var í ársbyrjun árið 2008. Heimildir DV herma að það hafi verið stofnað í ársbyrjun til að fá lán til að greiða skuldir félagsí eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Félagið er í eigu Werners, föður þeirra,og var lögheimili þess heima hjá honum. Heimilisfang Svartháfs er hins vegar í fyrrverandi höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12. Félagið skuldar Glitni45 milljarða króna og hefur átt sér stað uppgjör á skuldinni. Ekki er vitað hverniguppgjörið var gert en afar ólíklegt er að skuldin hafi verið greidd upp að fullu. Því má búast við að eitthvað hafi verið afskrifað af skuldunum.Félagið dregur nafn sitt af lítilli hákarlategund sem kallast Svartháfur eða BlackDogfish á ensku. Svartháfurinn lifir á miklu dýpi, 180 til 1.600 metrum, og er ekki talinn mannýgur. Heimkynni hans eru aðallega í Vestur- og Norður-Atlantshafi,meðal annars við strendur Grænlands og Íslands. Svartháfurinn er, eins og nafniðgefur til kynna, svartur á lit og hafa augu hans aðlagast myrkrinu á hafsbotninum.Því getur hann séð betur í myrkri en aðrar hákarlategundir. Ekki er vitað af hverjuSvartháfsnafnið var valið fyrir félagið.Eitt af mörgum ELL-félögumSvartháfur, áður ELL 150, er einungis eitt af mörgum félögum sem upphaflegahafa borið nafnið ELL sem lögmannsstofan Logos hefur stofnað á liðnum árum.Annað dæmi um slíkt félag er ELL 182 sem Logos stofnaði og seldi til Bakka-bræðra, Lýðs og Ágústs Guðmundssona. ELL 182 keypti síðar hlut Exista, sem er ímeirihlutaeigu þeirra bræðra, í Bakkavör í fyrrahaust en fyrir áttu þeir meirihlutaí Bakkavör. Salan hefur valdið miklum deilum meðal kröfuhafa og eigenda Existaen kröfuhafarnir hafa kært eigendur Exista fyrir hana. Bæði ELL 150 og ELL 182hafa nú skipt um nafn líkt og sum önnur þeirra ELL-félaga sem Logos hefur selt áliðnum árum.Werner hefur áður komið við söguWerner Rasmusson, faðir Karls og Steingríms, hefur áður komið við sögu í umfjöllun fjölmiðla um viðskipti þeirra bræðra.Þannig greindi DV frá því í september að í endurskoðendaskýrslu Ernst & Youngum Milestone hefði verið bent á að félagið hefði greitt skatta fyrir Werner upp á 8,5 milljónir króna. Skiptastjóri þrotabús Milestone, Grímur Sigurðsson, þarfmeðal annars að taka afstöðu til þess hvort sú greiðsla hafi verið eðlileg. Wernerkom hins vegar af fjöllum þegar DV spurði hann um skattgreiðslurnar. Ekki er vitað hvort Werner hafi vitað til hvers Svartháfur var notaður en undirskrift hans er á samþykktum félagsins sem DV hefur undir höndum.
stórskuldugt félag Félag í eigu föður Karls og SteingrímsWernerssona, Svartháfur, skuldar Glitni 45 milljarða króna semekki er lengur að finna í lánabókum bankans. Karl Wernerssonvill ekki ræða um hvernig skuldin hafi verið gerð upp.
heimkynni svartháfs Eignarhaldsfélagið Svartháfurer skráð til heimilis á Suðurlandsbraut 12 en þar voruhöfuðstöðvar Milestone áður en félagið fór í greiðslu-stöðvun og var síðar tekið til gjaldþrotaskipta.
Tíu prestaþeir sendu Kabiskupi Íþeir skorum landsins.með þBjörnssySelfossi. Tséra Gstuðninákærumun ungra sókupinn handi í afái að sog því hefurfram til þút á mohann að isdegi sínaftur á móti að Bsátta við sérafinna honum getur reynstnema með samþykkier beðið átektaprestsins verða.
UPPREISN GEGN BISKUPI
„Jafnt og þast, það evert að strsegir Karl SigurðssoVinnumálastofnun. Há að heldur minna vinnuleysi í síðast var.Hjá Vinnið nóg að gera undanur aukning hefur veUndanfarna dagastaklingar sskrá hjá stonú er svo kán þúsund ei14.909 eintAðspurður segsig þessa dagareiknar þó með brnæstunni. „Þ
Karlar streyma inn á skrárnar
Lánuðu ekki til venslaðra aðilaÁstæðan fyrir því að Svartháfur fékklánið frá Glitni var sú að á þessum tíma voru eigendur Milestone, þeirKarl og Steingrímur, og félög í beinni og óbeinni eigu þeirra búnir að full-nýta lánaheimildir sínar hjá Glitni,að sögn heimildarmanns DV sem þekkir vel til viðskipta Karls og Stein-gríms. Bræðurnir voru hluthafar í Glitni á þessum tíma. „Til þess að fara í kringum þetta lánaði Glitnir þessu félagi [Innskot blaðamanns: Svart-háfi] þessa peninga. Þetta félag lánaði þessa peninga svo til Racon HoldingsII og voru þeir notaðir til að greiða upp skuldina við J.P. Morgan. Glitnirgreiddi því í raun upp skuldina við J.P.Morgan en fór þennan hring til þess. Eftir stóð hins vegar skuld Svartháfs við Glitni,“ segir heimildarmaður DV en ekki er vitað að svo stöddu hvern-ig hinir milljarðarnir bættust ofan á þessa tuttugu. Heimildarmaður DV segir að þettahafi þótt vera í lagi vegna þess að í lagalegum skilningi hafi félagið í eigu Werners, Svartháfur, ekki verið skil-greint sem venslaður aðili við Karl og Steingrím. Félag í eigu föður Karls ogSteingríms gat því fengið lánið þó svoað félög í þeirra eigu gætu það ekki útaf hinum fullnýttu lánaheimildum.Karl tjáir sig ekkiKarl Wernersson vill aðspurður og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaða-manns ekki ræða um málefni Svart-háfs í samtali við DV. Því var lögð spurning fyrir hann í SMS-skeyti þarsem hann var spurður hvað hefði orð-ið um 45 milljarða skuld Svartháfs. Hann var spurður hvernig hefði ver-ið gengið frá þessari skuld og hversvegna. Svar Karls við þessari fyrir-spurn var: „Hver er fréttin?“ DV náðiekki aftur sambandi við Karl eftirþetta.Ekki náðist í bróður Karls, Stein-grím, né í föður hans, Werner Rasmus-son, við vinnslu fréttarinnar. Að svo stöddu liggur því ekki almennilegafyrir hvernig skuldin við Glitni var gerð upp.ekki rætt í gögnumum MilestoneEkkert er rætt um málefni Svartháfs ogláns félagsins hjá Glitni í gögnum umMilestone sem greint hefur verið fráí fjölmiðlum, endurskoðendaskýrsluErnst & Young og skýrslu umsjónar-manns nauðasamninga félagsins, Jó-hannesar Alberts Sævarssonar. Ástæðan fyrir þessu er sú að mál-efni Svartháfs tengjast ekki beintmálefnum Milestone af áðurnefnd-um ástæðum, jafnvel þó að pening-arnir sem Svartháfur fékk að láni hjáGlitni hafi verið notaðir til að lána fé-lagi í eigu Milestone-manna svo þaðgæti staðið í skilum við erlent fjár-málafyrirtæki. Hvorki Jóhannes né endurskoðendurnir höfðu aðgang aðbókhaldi Racon Holdings II, félags-ins sem fékk lánið frá Svartháfi, og því ekki rannsakað lánveitingarnar til og frá Svartháfi.Samkvæmt heimildum DV veltukröfuhafar Milestone hins vegar mik-ið fyrir sér himinháum lánveitingumfrá Glitni til félagsins áður en nauða-samningum Milestone var hafnað ogfélagið var tekið til gjaldþrotaskipta fyrir skömmu. Ekki er því ólíklegt aðmálefni Svartháfs muni koma við sögu í framtíðinni hjá kröfuhöfumMilestone og kunna lánaviðskipti fé-lagsins að hafa einhver eftirmál.
Í eigu föður Wernerssona FélagiðSvartháfur er skráð á Werner Rasmusson,föður Karls og Steingríms. Félagið virðisthafa verið stofnað gagngert til að takavið láni frá Glitni upp á 20 milljarða sembræðurnir gátu ekki tekið.
14. október 2009
Allt ákveðið í einu Samkvæmt heimildum DV var ákveðið á hluthafafundi Svartháfs að sækja um lán og endurlána það strax aftur til dótturfélaga Milestone. Faðir Karls Wernerssonar, annars eiganda Milestone, var eigandi Svartháfs.
„Lánið frá Glitni sem rann inn í Svartháf var því notað til að standa við skuld-bindingar sem Milestone stofnaði til fyrir hönd dóttur-félags síns.”
Bjarna Benediktssonar
IngI F. VIlhjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Um svipað leyti, í lok
febrúar 2008, lánaði
Sjóvá Vafningi 10 millj-
arða króna með víkj-
andi láni.“
DV 30. nóvember Werner Rasmusson
leppaði lán fyrir syni sína gegnum
Svartháf. 45 milljarða skuld félagsins við
Glitni verður líklega afskrifuð.
fréttir
9. desember 2009 miðvikudagur 3
Ætluðu sér að selja fljótlega
Upphaflega ástæðan fyrir fjárfest-
ingu Sjóvár í Makaó var sú að félag-
ið reiknaði með því að fasteignaverð
í Makaó myndi hækka gríðarlega á
árunum 2006 til 2010. Til að mynda
hækkaði fasteignaverð í héraðinu
um 35 prósent að meðaltali á árinu
2007. Reiknað var með áframhald-
andi hækkun næstu árin þar á eftir
enda hefur borgin verið kölluð hin
asíska Las Vegas. Sjóvá ætlaði sér svo
að selja lúxusturninn með nærri 8
milljarða króna hagnaði, miðað við
gengi krónunnar í febrúar 2008, áður
en framkvæmdunum myndi ljúka -
kaupverðið var 110 milljónir Banda-
ríkjadala en söluverðið átti að vera
185 milljónir.
Væntanlega hefur Sjóvá viljað
dreifa áhættunni af fjárfestingunni á
fyrstu mánuðum ársins 2008 og því
búið Vafning til með þátttöku BNT,
Hafsilfurs og Hrómundar. Auk þess
er ekki ólíklegt að yfirvofandi þreng-
ingar á fjármálamarkaði hafi átt þar
hlut að máli.
Fjárfesting félaganna þriggja í
Makaó-verkefninu hefur jafnframt
verið áhættulítil enda voru lánin
inn í Vafning veitt af Sjóvá, sem var
í eigu Wernersbræðra, og af Glitni,
en bræðurnir og Einar og Benedikt
Sveinssynir voru sömuleiðis hluthaf-
ar í bankanum í gegnum Þátt Inter-
national sem þeir áttu sömuleiðis
ásamt Karli og Steingrími.
Benedikt man ekki eftir
viðskiptunum
DV náði ekki tali af Bjarna Bene-
diktssyni á þriðjudaginn, til að spyrja
hann út í viðskipti Vafnings, þrátt fyr-
ir ítrekaðar tilraunir. Skilin voru eftir
skilaboð til Bjarna á talhólfi hans og
hjá aðstoðarmanni
formannsins, Sig-
urði Kára Kristj-
ánssyni.
Benedikt
Sveinsson, fað-
ir Bjarna, sagð-
ist aðspurður
hafa dregið sig
út úr fjárfest-
ingum og
ekki muna
eftir þess-
um við-
skiptum
Vafnings
með fast-
eigna-
verkefn-
ið í Makaó.
Hann gat
því ekki greint
frá því hvernig viðskipt-
in gengu. Heimildir DV herma að
Benedikt hafi ekki komið mikið að
viðskiptunum, jafnvel þótt félag hans
hafi verið óbeinn hluthafi í Vafningi,
enda var Bjarni sonur hans með um-
boðið til að ráðstafa hlutabréfum fé-
lagsins í Vafningi.
Sömuleiðis voru skilin eftir skila-
boð til Einars Sveinssonar en hann
hafði ekki haft samband við DV þeg-
ar blaðið fór í prentun í gær.
Þess skal að lokum getið að Vafn-
ingur ehf. er ekki til í dag nema sem
kennitala því nafni félagsins hefur
verið breytt í Földungur ehf.
Eignarhald
á Vafningi:
SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir)
48,8 prósent
Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar
Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins-
son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl.
og Sáttur/Guðmundur Ólason)
39,1 prósent
Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2,
Hrómundur, Hafsilfur)
12,1 prósent
Asíska Las Vegas Makaó er
annað af tveimur kínverskum
sjálfstjórnarhéruðum. Hitt
er Hong Kong sem er í
nágrenni Makaó. Héraðið
hefur verið kallað hin asíska
Las Vegas og er ört vaxandi
ferðamannastaður þar sem
sterkefnað fólk kemur til að
njóta lífsins í vellystingum,
meðal annars með því að
spila fjárhættuspil.
Fjárfestu í Makaó Bjarni Benedikts-
son og faðir hans og föðurbróðir keyptu
fasteignaverkefni Sjóvár af dótturfélagi
þess fyrir rúma 5 milljarða króna í
febrúar 2008. Þeir áttu fasteignaverkefnið
í gegnum félagið Vafning og aflandsfélag á
Bresku Jómfrúareyjum.
Eignarhald á turninum
í Makaó:
Vafningur ehf. - 100 prósent
SJ Properties MacauOneCentral
HoldCo ehf. - 100 prósent
Drakensberg Investments Limited
á Bresku Jómfrúareyjum - 100 prósent
Turninn í Makaó
Fjórir bræður Vafningur var að mestu
leyti í eigu þeirra Wernersbræðra
og Einars og Benedikts Sveinssona.
Tryggingafélagið Sjóvá seldi fasteigna-
verkefnið í Makaó til félagsins Vafnings
sem var í eigu dótturfélags Sjóvár og
félaga í eigu Engeyjarbræðranna
Einars og Benedikts Sveinssona.
Sjóvá, sem var í eigu Karls og
Steingríms Wernerssona, lánaði
Vafningi 10 milljarða króna um
þetta leyti.
14 föstudagur 11. desember 2009
fréttir
„Ég hef aldrei komið nálægt neinni ákvörðun um að taka þátt í fast-eignaverkefni í Makaó,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð-isflokksins og fyrrverandi stjórnar-formaður BNT og N1, um aðkomu sína að eignarhaldsfélaginu Vafn-ingi sem meðal annars fjárfesti í fast-eignaverkefni Sjóvár í Makaó í byrjun febrúar í fyrra fyrir rúma fimm millj-arða króna. BNT og félögin Hafsilfur og Hrómundur, sem eru í eigu föður og föðurbróður Bjarna, voru hluthaf-ar í félaginu, líkt og greint var frá í DV á miðvikudaginn, og fékk Bjarni um-boð til að veðsetja hlutabréf þeirra allra í félaginu sama dag og Vafning-ur keypti fasteignaverkefnið.Bjarni vissi hins vegar vel að fé-lögin væru hluthafar í Vafningi þrátt fyrir að hann neiti því að hafa vitað að félagið hafi keypt fasteignaverk-efni Sjóvár. Hann segir að Vafningur hafi ekki einungis verið stofnaður til að halda utan um fasteignaverkefnið heldur til að endurfjármagna lán fyr-ir hluthafa þess. Að sögn Bjarna var ekki langur aðdragandi að stofnun Vafnings og var það ekki forgangs-mál að ganga frá því að BNT gerðist hluthafi í Vafningi.
Formaðurinn segir jafnframt að áhætta félaganna þriggja af fjárfest-ingunni í Vafningi hafi verið lítil þar
sem þau hafi ekki lagt fram eigin-fjárframlög og að félagið hafi verið fjármagnað með lánsfé. Hluthafar Vafnings hefðu þó getað grætt millj-arða ef fjárfestingin hefði gengið eft-ir. Svo varð hins vegar ekki og í kjöl-far efnahagshrunsins varð ljóst að fasteignaverkefnið í Makaó myndi skila miklu tapi, meðal annars vegna falls eignarhaldsfélagsins Milestone sem átti Sjóvá. Íslenska ríkið þurfti, í kjölfar hrunsins, að bjarga Sjóvá frá gjaldþroti með 12 milljarða eig-infjárframlagi. Sjóvá var síðan losað út úr fasteignaverkefninu í sumar og varð tapið af fjárfestingunni í Makaó á fjórða milljarð króna fyrir félagið. Þegar ráðist var í fjárfestinguna hefði Vafningur hins vegar getað grætt vel á henni.
Bjarni kom því að því að ákveða þátttöku BNT, og hugsanlega einn-ig hinna félaganna tveggja, í Vafn-ingi og virðist hafa verið fullkomlega meðvitaður um tilgang félagsins þó svo að hann hafni því að hafa haft eitthvað að segja um fjárfestingar fé-lagsins í Makaó.
Bjarni: Bræðurnir ekki á landinu
Aðspurður af hverju hann hafi feng-ið umboð frá félögunum þremur sem voru í eigu fjölskyldu hans – BNT, Hrómundi og Hafsilfri – til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi sama dag og félagið keypti turninn í Mak-aó segir Bjarni: „Nei, ég vissi ekkert af því á hvaða tímapunkti þessar eign-
ir fluttust inn í Vafning,“ segir Bjarni sem samkvæmt þessu vissi ekki að á sama tíma og hann fékk umboðið var félag, sem var að hluta til í eigu ætt-ingja hans sem og félags sem hann var stjórnarformaður og hluthafi í, að festa kaup á fasteignaverkefni í Makaó fyrir rúma fimm milljarða króna. Daginn áður en Vafningurinn keypti fasteignaverkefnið í Makaó seldi Milestone eignarhaldsfélaginu Mætti 12,1 prósents hluta í Vafningi fyrir rúmar 60 þúsund krónur og var Bjarni einn af þeim sem gat skrifað undir samninginn fyrir hönd Máttar.„Þeir [Benedikt og Einar, innsk. blaðamanns] voru ekki staddir á landinu og báðu mig um það fyr-ir sína hönd að skrifa undir ákveð-inn veðsamning þar sem þeir voru að veðsetja hlutabréfin sín í félag-inu... Þetta var veðsamningur sem gerður var við bankann vegna lána sem bankinn hafði veitt félaginu,“ segir Bjarni en BNT, Hrómundur og Hafsilfur voru í eigu föður Bjarna, Benedikts Sveinssonar, og föður-bróður hans, Einars. „Þegar eigend-ur þessara hlutabréfa í Vafningi óska
IngI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
HÖFÐU ENGU AÐ TAPA
Bjarni Benediktsson
Eignarhald
á Vafningi:
SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir)
48,8 prósent
Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins-son, BNT ehf./Einar og Benedikt ofl. og Sáttur/Guðmundur Ólason)
39,1 prósent
Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2, Hrómundur, Hafsilfur)
12,1 prósent
one Central í makaóKaup Vafnings á eignarhaldsfélaginu sem hélt utan um háhýsið í fasteignaverk-efninu One Central í Makaó gengu í gegn í febrúar 2008. Félagið hafði áður verið að fullu leyti í eigu dótturfélags Sjóvár en komst við eigendaskiptin í eigu annars dótturfélags tryggingafélagsins og eignarhaldsfélaga sem tengjast Engeyjar-frændunum: Einari, Benedikt og Bjarna.Kaupverðið var rúmir 5 milljarðar króna en turninn á að vera 41 hæð með tæp-lega 70 íbúðum. Íbúar háhýsisins áttu að hafa aðgang að 5 hæða hárri íþrótta- og tómstundamiðstöð með 50 metra sundlaug, spa, fullkomnum líkamsræktarsal og ýmsum íþróttavöllum.
Hugmyndin hjá Sjóvá og síðar Vafningi var að eiga háhýsið í skamman tíma og selja það síðan með hagnaði upp á rúmlega 8 milljarða króna þar sem áætlað var að fasteignaverð í héraðinu myndi rjúka upp. Eigendur byggingarinnar gátu því grætt mikla fjármuni ef það hefði gengið sem skyldi.
svartháfur
Tekin var ákvörðun um það á einum og sama stjórnarfundinum í eignarhalds-félaginu Svartháfi í upphafi árs 2008 að sækja um tæplega 200 milljóna evra lán frá Glitni, eða sem nemur rúmum 35 milljörðum króna á núverandi gengi, og endurlána það svo til félaga í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Lánið sem Svartháfur endurlánaði strax til eignarhaldsfélaga í þeirra eigu var svo notað til að greiða hluta skuldar við fjárfestingabankann Morgan Stanley upp á 300 milljónir evra, sem nemur um 55 milljörðum króna á núverandi gengi. Morgan Stanley var einn helsti erlendi lánveitandi Milestone og fjármagnaði hluta útrásar fyrirtækisins til annarra landa.Svartháfur, sem var í eigu föður þeirra bræðra, Werners Rasmusson, er einn af stærri skuldurum Glitnis með skuldir upp á um 45 milljarða króna og er ljóst að skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúgan hluta þeirrar fjárhæðar. Glitnir veitti Svartháfi lánið í ársbyrjun 2008 en nákvæm dagsetning er ekki þekkt. Á sama stjórnarfundi hjá Svartháfi í ársbyrjun 2008 var ákveðið að lána 50 milljónir evra til félagsins Vafnings ehf., eða sem nemur tæpum 5 milljörðum króna. Eigendur Vafnings voru þeir bræður Einar og Benedikt Sveinssynir og Bjarni, sonur Benedikts og formaður Sjálfstæðisflokksins. Það skýtur skökku við að Werners-bræður sem ekki gátu greitt af eigin lánum hafi séð sér fært að lána félagi í eigu Engeyjarfjölskyldunnar fimm milljarða króna.
Eignarhald á turninum í makaó:
Vafningur ehf. - 100 prósent
sj Properties macauoneCentral holdCo ehf. - 100 prósent
Drakensberg Investments limited á Bresku jómfrúareyjum - 100 prósent
Turninn í makaó
„Menn eru að endurfjármagna lán og það er það sem er aðal-ástæðan fyrir þátttöku þessara félaga í Vafningi.“
Bjarni veðsetti Vafning Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk umboð frá
BNT, Hrómundi og Hafsilfri til að veðsetja hlutabréf þeirra í eignarhaldsfélagi sem meðal annars keypti
lúxusturn í Makaó sama dag og umboðin eru dagsett. Umboðin þrjú sjást hér á myndunum.
fréttir
11. desember 2009 föstudagur 15
eftir því við mig að ég sjái um að veð-setja hlutabréf þeirra í félaginu fyrir þeirra hönd þá geri ég ekkert annað en það og tek engar aðrar ákvarðanir um neitt annað... Þeir gátu ekki farið í bankann þennan dag til að veðsetja bréfin sín í Vafningi. Það var bara verið að ganga frá endurfjármögnun lána í bankanum og það þurfti bara að gerast þennan dag... Ég myndi líka vilja fullyrða við þig að eigend-ur Hafsilfurs [Benedikt faðir Bjarna, innsk. blaðamanns] - ég skal ekki segja með hann Einar því ég hef ekki rætt þetta við hann - hafa aldrei tekið ákvörðun um að kaupa eða veðsetja nokkuð varðandi eignir í Makaó. Þú verður að ræða þetta mál við stjórn-armennina í Vafningi. Ég hef aldrei setið þar í stjórn og ekki komið ná-lægt málinu,“ segir Bjarni sem bætir því við aðspurður að hann ætli ekki að tjá sig um það fyrir hverju hluta-bréfin í Vafningi hafi verið veðsett. „Ég ætla bara ekkert að tjá mig um það.“
Hugsanlegt er hins vegar að þetta hafi verið gert sem veð á móti tæp-lega 5 milljarða króna láni frá Glitni inn í eignarhaldsfélagið Svartháf, sem var í eigu föður Karls og Stein-gríms Wernerssona, sem síðan var endurlánað strax aftur til Vafnings á fyrstu mánuðum 2008. Eini tilgang-ur Svartháfs var að vera leppur fyr-ir frekari lánveitingar frá Glitni til þeirra Wernerssona. Vafningur fékk enn fremur 10 milljarða króna víkj-andi lán frá Sjóvá síðar í febrúar. Ljóst er að kaup Vafnings á lúxusturninum voru fjármögnuð með einhverju af þessum lánveitingum.
Turninn innlegg
Wernersbræðra
Aðspurður af hverju BNT, Hafsilfur og Hrómundur hafi þá tekið ákvörð-un um að kaupa turninn í Makaó í gegnum Vafning segir Bjarni að þeir hafi ekki gert það: „Það er stjórn Vafnings sem hefur gert það,“ segir Bjarni. Þegar Bjarni er spurður hvort þeir hafi ekki komið að ákvörðuninni um það að kaupa turninn því þeir hafi verið stórir hluthafar í Vafningi segir Bjarni: „Ég sat aldrei í stjórn þar... Vafningur snýst um meira en það að fara með eignarhald á þessum turni. Þetta eru eignir sem Werners-bræður leggja inn í félagið sín meg-in frá og þær koma okkur bara ekk-ert við,“ segir Bjarni en blaðamaður segir þá við hann að auðvitað komi þessar eignir þeim við þar sem þeir hafi verið hluthafar í Vafningi sem keypti turninn í Makaó. Bjarni virðist þó vera á annarri skoðun.
Stjórnarmenn Vafnings, sem síð-ar var endurskírður Földungur, voru hins vegar starfsmenn Milestone, þeir Guðmundur Ólason og Jóhann-es Sigurðsson, og virðast þeir því hafa tekið ákvarðanir fyrir hönd fé-lagsins sem byggðu á vilja eigenda Milestone, þeirra Karls og Steingríms Wernerssona, sem samtals réðu yfir meirihluta í Vafningi þó eignarhlut-ir Engeyjarmannanna væru stórir. Þetta skýrir þó ekki af hverju félög-in þrjú í kringum Bjarna, Einar og Benedikt ákváðu að taka þátt í félag-inu til að byrja með.
Snerist um endurfjármögnun lána
Aðspurður af hverju BNT, Hafsilf-ur og Hrómundur hafi ákveðið að taka þátt í Vafningi og hvort hann hafi komið að þeirri ákvörðun seg-ist Bjarni ekki hafa gert það: „Það er ekki hægt að segja að þetta sé ákvörðun sem hafi átt sér neinn sér-stakan aðdraganda. Þetta er mál sem var inni á borði hjá forstjóranum [hjá BNT eða N1, innsk. blaðamanns] og þetta er meira frágangsmál en nokk-
uð annað,“ segir Bjarni. Aðspurður hvort hann hafi þá komið að því að ákveða það fyrir hönd BNT að gerast hluthafi í Vafningi segir Bjarni: „Ég skýst aldrei undan ábyrgð á því sem ég skrifa undir fyrir hönd þess félags sem ég sit í stjórn fyrir,“ segir Bjarni sem undirstrikar að þetta þýði þó ekki að hann hafi haft vitneskju um að Vafningur væri að kaupa turninn í Makaó. Bjarni virðist þó hafa kvittað upp á þátttöku BNT í Vafningi sem stjórnarformaður félagsins.Þegar blaðamaður segir við Bjarna að hann hafi ekki neina trú á því að Vafningur hafi ákveðið að kaupa turninn í Makaó án vitundar Bjarna og hluthafa félaganna þriggja segir hann: „Þú hefur ekki heildaryf-irsýn yfir það sem menn eru að gera á þessum tíma. Menn eru að end-urfjármagna lán og það er það sem er aðalástæðan fyrir þátttöku þess-ara félaga í Vafningi. En ég tók aldrei ákvörðun um að félagið tæki þátt í fjárfestingunum í Makaó. Mér var ekki kunnugt um að Vafningur væri að fara að taka yfir þessar fjárfesting-ar í Makaó,“ segir Bjarni.
Það sem Bjarni vísar líklega til með þessum orðum er að í ársbyrj-un stóðu ýmis íslensk eignarhalds-félög eins og FL Group og Milestone frammi fyrir því að þurfa að endur-fjármagna lán sem tekin höfðu verið hjá erlendum fjármálafyrirtækjum. Vegna væntanlegrar lægðar á fjár-málamörkuðum og sökum þess að þá þegar voru blikur á lofti í íslensku efnahagslífi kipptu erlend fjármála-fyrirtæki að sér höndum og neituðu að endurnýja lánasamninga við ís-lensk félög.
Þetta gerðist til að mynda með Milestone sem þurfti að endurfjár-magna lán hjá fjárfestingarbank-anum Morgan Stanley í ársbyrjun 2008. Vegna þess að Milestone gat ekki fengið meira að láni frá Glitni var búið til félag sem hét Svartháf-ur og var í eigu föður eigenda Miles-tone. Þetta félag endurlánaði féð frá Glitni strax til félags í eigu Milestone sem gat þar með greitt af láninu. Og Svartháfur lánaði Vafningi sömuleið-is.
Hugsanlegt er, þegar litið er til orða Bjarna, að ástæðan fyrir stofn-un Vafnings hafi verið tengd ein-hverjum slíkum snúningi af hálfu Milestone og jafnvel N1-manna.
Bjarni óbeinn hluthafi í Vafningi
Aðspurður hvort hann hafi ekki sjálf-ur átt hlutabréf í BNT á þessum tíma segir Bjarni: „Jú, en það er langt síð-an... Ekki eftir þennan tíma. Ég seldi þennan eignarhluta minn í BNT á fyrsta ársfjórðungi ársins 2008, í síð-
asta lagi í mars 2008. En þetta hefur ekkert með hlutabréfin mín í BNT að gera,“ segir Bjarni sem var því sam-kvæmt þessu hluthafi í BNT þegar Vafningur keypti fasteignaverkefnið í Makaó. „En hvað kemur mér það við þó BNT eigi lítinn hlut í þessu fé-lagi?“ segir Bjarni sem var, eins og áður segir, stjórnarformaður í BNT og N1 þegar Vafningur keypti fast-eignaverkefnið í Makaó.
Bjarni: Ekkert eiginfjárframlagBjarni segir að hlutabréfaeign sín í BNT hafi ekki haft neitt með fast-eignaverkefnið í Makaó að gera. „Hversu mikið heldur þú að BNT hafi sett inn í þetta félag af eignum sínum? Hefur þú einhverja hugmynd um það?“ segir Bjarni. „Ætli þessi viðskipti hafi því haft einhver áhrif á verðmæti þess eignarhlutar sem ég átti í BNT á þeim tíma?“
Hann segir að mikilvægt sé að halda því til haga að félögin hafi ekki endilega verið að kaupa sig inn í Vafning: „Þú segir að þeir hafi ver-ið að kaupa sig inn í þetta? Hvern-ig keyptu þeir sig inn í þetta? Með hvaða eiginfjárframlagi? Hverjir eru að hætta einhverju til?“ segir Bjarni. Blaðamaður segir við Bjarna að hann átti sig á því að ólíklegt sé að þeir hafi lagt eitthvert eigið fé fram í viðskiptunum: „Það er ólíklegt að þið hafið lagt eitthvað fram í þessum við-skiptum,“ segir blaðamaður en svar Bjarna við þeirri fullyrðingu er „ein-mitt“. Blaðamaður segir við Bjarna að það sé augljóst að viðskipti Vafnings hafi verið fjármögnuð að langmestu leyti með lánum frá Glitni, Sjóvá og Svartháfi. „Já, en það allt saman er eitthvað sem ég var bara aldrei neitt inni í,“ segir Bjarni en jafnframt er ljóst að hluthafar Vafnings hefðu get-að grætt fúlgur fjár á turninum ef við-skiptin hefðu gengið sem skyldi - þá hefðu þeir fengið mikið fyrir lítið.Bjarni segist ekki vita hversu miklu BNT, Hafsilfur og Hrómund-ur hafi tapað á viðskiptunum í Vafn-ingi en samkvæmt því sem segir hér að framan getur það ekki hafa ver-ið mjög mikið þó ábyrgð félaganna á fasteignaverkefni Vafnings sé aug-ljóslega töluverð, hvort sem þeir vissu af því eða ekki, þar sem þeir áttu stóran hlut í því.
Stóra spurningin sem stendur eftir varðandi aðkomu Bjarna Bene-diktssonar að fasteignaverkefninu í Makaó er hversu mikið hann vissi um það. Bjarni segist ekki hafa vitað að Vafningur hefði fjárfest í Makaó fyrr en nokkrum mánuðum eftir að það átti sér stað, þrátt fyrir að hann hafi verið stjórnformaður í hluthafa félagsins og að hann hafi veðsett hlutabréf þess.
Vafningur til að endurfjármagna lán Bjarni segir að tilgangurinn með stofnun Vafnings hafi meðal annars verið að endurfjármagna lán og að hann hafi ekki vitað
að félagið hefði keypt háhýsi á Makaó fyrir fimm milljarða króna sama dag og hann
veðsetti hlutabréf í því.
Sérlega glæsilegir
úr satin og blúndu
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöfLaugavegi 178, 105 Rvksími 551-3366 www.misty.is
Teg. Emma - “Push up” í B,C,D
skálum á kr. 6.885
Teg. Emma - “Push up” í D,DD,E,F,FF skálum á kr. 6.885,-
Teg.Emma
Teg. Emma
Opið virka daga kl. 10-18
lau 12.des kl. 10-16
lau 19.des kl. 10-18
Þorláksmessa kl. 10-20
days30
OXYTARM
OXYTARM
30 days
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman
120 töflu skammtur
Betri apótekin og Maður lifandiwww.sologheilsa.is.
Endurnærir og hreinsar ristilinnAllir dásama OXYTARM Í boðieru 60-150 töflu skammtar
&
DETOX
2 MIÐVIKUDAGUR 16. desember 2009 FRÉTTIR
DV hefur á síðastliðinni viku greint frá
aðkomu Bjarna Benediktssonar, for-
manns Sjálfstæðisflokksins og fyrr-
verandi stjórnarformanns BNT og N1,
að fjárfestingum eignarhaldsfélags-
ins Vafnings í febrúar í fyrra. Vafning-
ur var settur á laggirnar fyrir tilstuðl-
an eignarhaldsfélagsins Milestone og
keypti félagið eignir í Makaó í Asíu og
í Bretlandi af tryggingafélaginu Sjóvá.
Tryggingafélagið var stærsti hlut-
hafinn í Vafningi en þar á eftir komu
eigendur N1, bræðurnir Einar og
Benedikt Sveinssynir. Bjarni, sem
er sonur Benedikts, fékk umboð frá
bræðrunum til að veðsetja hluta-
bréf þriggja eignarhaldsfélaga þeirra
í Vafningi fyrir tveimur lánum frá
Glitni sem veitt voru í febrúarlok 2008.
Bjarni hefur viðurkennt að hafa veð-
sett bréfin en segist enga aðra aðkomu
hafa haft að viðskiptum Vafnings sem
fjárfesti í lúxusturninum í Makaó og
breska fjárfestingasjóðnum KCAJ fyr-
ir 10,6 milljarða króna sama dag og
hann veðsetti hlutabréf fjölskyldu-
meðlima sinna í Vafningi. Þessi við-
skipti voru að öllum líkindum fjár-
mögnuð með 10,6 milljarða láni frá
Sjóvá sem veitt var í lok febrúar í fyrra.
Skýringar Bjarna eru á þá leið að hann
hafi ekkert vitað um þessi viðskipti
Vafnings fyrr en einhverjum mánuð-
um síðar.
Bjarni gefur fá svör
DV hefur tvívegis rætt við Bjarna um
viðskipti Vafnings og aðkomu hans
að þeim og hafa svör Bjarna við efn-
islegum spurningum um félagið ver-
ið heldur fáfengileg. Hann veit þó ým-
islegt um starfsemi félagsins og segir
að því verið komið á koppinn til að
endurfjármagna lán. Hann vildi hins
vegar ekki ræða hvaða lán var um að
ræða. Lítið annað hefur fengist upp úr
Bjarna um félagið en ljóst er af sam-
tölunum við Bjarna að hann þekk-
ir starfsemi og tilgang félagsins í það
minnsta sæmilega.
Síðastliðinn sunnudag þegar
frétt DV um fjárfestingu Vafnings í
breska fjárfestingasjóðnum KCAJ var
í vinnslu hafði
blaðamað-
ur sam-
band við
Bjarna til
að spyrja
hvort hann
hefði vit-
að um þessi
viðskipti
þegar
hann veðsetti bréfin í Vafningi. Samtal
blaðamanns við Bjarna er birt í heild
sinni á næstu síðu að undanskildu
upphafi samtalsins þar sem blaða-
maður kynnti sig og bar upp inngang
að erindinu.
Gagnrýni Bjarna
Bjarna var nokkuð mikið niðri fyr-
ir í samtalinu, eins og sést, enda taldi
hann að í umfjöllun DV um sig og
Makaó-viðskiptin væru miklar rang-
færslur.
Gagnrýni Bjarna gengur út á það,
og að því er virðist aðeins það, að DV
hafi ekki farið rétt með þegar sagt var
að misheppnaðar fjárfestingar Sjóvár,
og síðar Vafnings, í Makaó kostuðu
hvern íslenskan skattgreiðanda 10
þúsund krónur. Sagt var í fréttinni að
hluti þeirra 12 milljarða króna sem ís-
lenska ríkið þurfti að leggja inn í Sjóvá
til að bjarga félaginu frá þroti síðastlið-
ið sumar væri tapað fé.
Gagnrýni Bjarna á þetta atriði
fréttaflutnings DV er réttmæt í þeim
skilningi að ekki kom fram í fyrri frétt
af málinu að ríkið gæti endurheimt
framlag sitt vegna fjárfestingarinnar í
Makaó. Um lán var að ræða sem rík-
issjóður fær vonandi greitt aftur þeg-
ar tryggingafélagið verður selt. Því
er vonast til að kostnaður ríkisins og
þar með 10 þúsund króna kostnað-
ur hvers Íslendings vegna fjárfesting-
anna í Makaó verði tímabundinn. Þó
er alls ekki ljóst hversu mikið af þess-
um fjármunum íslenska ríkið fær til
baka og hvort kostnaðurinn muni á
endanum lenda á greiðendum ið-
gjalda, svo dæmi sé nefnt.
Þetta atriði sem Bjarni gagnrýnir
er hins vegar ekki lykilatriði í frétta-
flutningi DV um að-
komu Bjarna að
fjárfestingum
Vafnings.
Lykilat-
riðið er
að hann
tengist
þessum
fjárfest-
ing-
um
eins og
bent hef-
ur verið
á.
Bjarni sagði DV ekki vilja
leiðrétta
Eftir að meðfylgjandi samtal milli
Bjarna og blaðamanns hafði átt sér
stað á sunnudaginn hringdi Bjarni
Benediktsson í Hrein Loftsson, eig-
anda DV, og bar því við að umfjöll-
un DV væri þess eðlis að hann teldi
rétt að blaðið birti leiðréttingu vegna
rangfærslna sinna. Hreinn sagði
Bjarna hins vegar að hafa samband
við ritstjórn blaðsins. Í kjölfar sam-
talsins við Hrein sendi Bjarni frá sér
yfirlýsingu þar sem hann sagði að
DV hefði „ekki áhuga á að birta“
slíkar leiðréttingar.
Samtal Bjarna og blaðamanns
sýnir hins vegar að blaðamað-
ur sagði Bjarna að hann myndi
birta leiðréttingar á rangfærsl-
um DV um aðkomu hans að
viðskiptum Vafnings. Því ber
þó að halda til haga að Bjarni
gagnrýndi einungis þetta til-
tekna atriði: Að þriggja millj-
arða króna tap Sjóvár í Makaó
félli ekki á íslenska skattgreið-
endur þar sem ríkið hefði ein-
ungis lánað skilanefnd Glitnis til
að bjarga Sjóvá frá þroti. Því gæti fjár-
framlag ríkisins fengist endurgreitt
þegar fram líða stundir. Aðrar efnis-
legar athugasemdir um inntak fréttar-
innar hafði Bjarni ekki, líkt og sést á
samtalinu.
DV birti svo útskýringu á þessu at-
riði á tveimur stöðum í blaðinu sem
út kom á mánudaginn þar sem áfram
var fjallað um aðkomu Bjarna að við-
skiptum Vafnings. Blaðið varð því við
beiðni Bjarna jafnvel þótt hann hefði
haldið öðru fram í yfirlýsingu sinni og
sagt að blaðið væri ekki reiðubúið til
að birta slíkra leiðréttingu.
Ritstjórn DV hafði samband við
Bjarna á mánudaginn og bauð honum
að draga þau ummæli sín til baka að
DV hefði ekki viljað birta leiðréttingu
á fréttinni. Jafnframt var Bjarna boð-
ið að biðjast afsökunar á ummælum
sínum um blaðið. Bjarni kaus að gera
það ekki þrátt fyrir að samtalið sýni að
blaðamaður hafi sagst reiðubúinn að
leiðrétta þetta tiltekna atriði í fréttinni.
Blaðið birtir því allt samtalið þar sem
það kemur fram með skýrum hætti að
blaðamaður DV bauðst til að leiðrétta
umfjöllunina ef rangt hefði verið farið
með tiltekin atriði, öfugt við það
sem Bjarni heldur fram.
Lesendur geta svo
dæmt
sjálfir.
Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, var sagt að tiltekið atriði í um-
fjöllun um aðkomu hans að eignarhaldsfélaginu Vafningi yrði leiðrétt ef sannað væri
að rangt væri farið með. Bjarni hélt því hins vegar fram í yfirlýsingu að DV hefði neitað
að leiðrétta umfjöllunina. Bjarni telur að umfjöllun DV um aðkomu hans að viðskipt-
unum sé byggð á persónulegri óvild í hans garð. Hann vill lítið tjá sig um Vafning.
„ÞÉR ER BARA ILLA VIÐ MIG“
EIGNARHALD Á TURNINUM Í MAKAÓ:
Vafningur ehf. - 100 prósent - SJ Properties MacauOneCentral HoldCo ehf. - 100
prósent - Drakensberg Investments Limited á Bresku Jómfrúareyjum - 100
prósent - Turninn í Makaó
EIGNARHALD Á VAFNINGI:
SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir) - 48,8 prósent
Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveinsson, BNT
ehf./Einar og Benedikt ofl. og Sáttur/Guðmundur Ólason) - 39,10 prósent
Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2, Hrómundur, Hafsilfur) - 12,1 prósent
„Ég kom ekkert nálægt
þeim ákvörðunum sem
áttu sér stað þennan dag.“
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Ekki satt Gagnrýni Bjarna á frétta-
flutning snérist um að ekki væri rétt
að fullyrða að ríkissjóður hefði tapað
þremur milljörðum á fjárfestingunni
í Makaó þar sem ríkið hefði lánað
upphæðina inn í tryggingafélagið og
gæti því fengið hana aftur. Bjarni sagði
DV ekki reiðubúið að leiðrétta þetta
atriði en samtalið sýnir fram á annað.
Aðkoma Bjarna ekki ljós Aðkoma Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins, að viðskiptum Vafnings liggur enn ekki ljós fyrir þar sem hann hefur ekki
viljað tjá sig mikið um þau. Vitað er að hann veðsetti bréf félagsins og að fjölskylda
hans átti stóran hlut í félaginu. Karl Wernersson og Guðmundur Ólason hjá Milestone
hafa skipulagt viðskiptin að stóru leyti.
YFIRLÝSING BJARNA BENEDIKTSSONAR, FORMANNS
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS, FRÁ ÞVÍ SÍÐASTA SUNNUDAG:
„Undanfarna daga hefur DV slegið upp fréttum í þeim tilgangi að reyna að sýna fram á tengsl mín við fjárfestingar á Makaó.
Ég hef greint blaðinu frá því að ég hafi ekki komið nálægt ákvörðunum um þær fjárfestingar.
Í dag hringdi blaðamaður DV, Ingi Vilhjálmsson, í mig vegna sama máls. Ég tjáði honum að ég treysti ekki samskiptum við
blaðið og því myndi ég ekki vilja bregðast sérstaklega við frekari spurningum. Ég rakti rangfærslur blaðsins fyrir blaðamannin-
um og lýsti þeirri skoðun minni að ég teldi rétt að blaðið birti leiðréttingu vegna umfjöllunar sinnar.
Slíkar leiðréttingar hefur DV ekki áhuga á að birta.
Ég hafði því samband við eiganda blaðsins, Hrein Loftsson, og tjáði honum að ég teldi blaðamennsku af því tagi sem birst
hefði síðastliðna daga algerlega óásættanlega. Áður en ég hafði haft tök á að fara yfir samskipti mín við blaðið æsti Hreinn sig,
sagðist ekki lúta mínu boðvaldi og sagði mér að eiga samskipti um þetta við ritstjórn blaðsins. Að svo búnu skellti hann á.
Stuttu síðar birtist viðtal við eigandann þar sem hann segist hafa spurt mig til hvers ég ætlaðist af honum og að ég hafi svarað
með því að krefjast þess að hann stöðvaði fréttaflutning blaðsins. Þessi hluti samtals okkar Hreins hefði kannski getað farið
fram ef samtalið hefði orðið lengra. En hann náði því miður ekki að bera spurninguna upp við mig áður en hann skellti á mig.
Ég hef því aldrei farið fram á að Hreinn Loftsson stöðvaði fréttaflutning DV, þó óvandaður sé. Ætlun mín var einfaldlega sú að
segja eiganda blaðsins skoðun mína á óásættanlegum vinnubrögðum blaðamanns sem þar starfar og útskýra fyrir honum í
hverju ég teldi rangfærslur þess liggja.
Nú er komið í ljós að Hreini Loftssyni er alveg sama um með hvaða hætti fréttamenn á hans vegum starfa að fréttaflutningi. Sá
fréttaflutningur er hvorki vandaður, réttmætur né sanngjarn.
Það verður Hreinn Loftsson að eiga við sig. Ég bið hann engu að síður að hafa rétt eftir þegar hann lýsir stuttum samskiptum
okkar sem hann sjálfur batt enda á.
Framganga blaðamanna DV og eiganda blaðsins eru hins vegar þess eðlis að um þetta mál mun ég ekki frekar við þá ræða.“
FRÉTTIR 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 3
Blaðamaður: „Sama dag, þann
8. febrúar 2008, kaupir Vafning-
ur breskan fjárfestingasjóð af dótt-
urfélagi Sjóvár fyrir 5,4 milljarða.
Fjárfestingasjóðurinn heitir KCAJ
LLP og var í smásölu á Bretlands-
eyjum. Veistu eitthvað um það?“
Bjarni: „Veistu það, Ingi, að mér
finnst þú lélegur blaðamað-
ur. Ég treysti þér ekki
og ég ætla ekki að eiga
nein samskipti við þig.“
Blaðamaður: „Af
hverju er ég lélegur
blaðamaður?.”
Bjarni: „Vegna þess
að þú ferð með ranga
hluti og þér er alveg
sama.“
Blaðamaður: „Eins
og hvað, hvað er
rangt?“
Bjarni: „Vegna
þess að þú ert að
halda því fram
að ég hafi gert
eitthvað sem
muni kosta ís-
lenska skatt-
greiðend-
ur 10.000
krónur
á mann.
Þetta er al-
gert bull,
þetta fé-
lag kostar eng-
an neitt, það er
að segja af almennum
skattgreiðendum.“
Blaðamaður: „En íslenska rík-
ið þurfti að leggja Sjóvá til 12
milljarða króna til að bjarga
félaginu frá þroti?“
Bjarni: „Það er annað, Ingi
minn. Ég hringi í þig um dag-
inn og þú ert að taka upp
viðtalið við mig. Af hverju
sagðir þú mér það ekki að
þú værir að taka við mig
viðtal sem þú ætlaðir að
birta í blaðinu?“
Blaðamaður: „Lá það
ekki ljóst fyrir?
Bjarni: „Nei, nei, nei.
Þú verður að virða siða-
reglur blaðamanna.“
Blaðamaður: „Ég geri
það.“
Bjarni: „Nei, þess vegna
ertu lélegur blaðamað-
ur.“
Blaðamaður: „En þú
segir að það sé rangt...“
Bjarni: „Þú sagðir mér
ekki að við værum að
eiga viðtal. En þú hefðir
átt að gera það.“
Blaðamaður: „Ég hélt að
það lægi ljóst fyrir. Við töl-
uðum saman í hálftíma.“
Bjarni: „Nei, nei, nei. Ég
var að færa athugasemdir
við það sem þú varst þeg-
ar búinn að skrifa.“
Blaðamaður: „Já, og
skýra þitt mál og aðkomu
þína að þessu félagi, sem er
lykilatriði í málinu.“
Bjarni: „Við töluðum
aldrei um að ég væri í ein-
hverju viðtali við þig.“
Blaðamaður: „Afsakaðu,
en ég hélt að það væri alveg
ljóst þar sem við vorum að ræða
þessi mál efnislega.“
Bjarni: „Það var það bara alls
ekki.
Útskýrðu fyrir mér af hverju ís-
lenskir skattgreiðendur munu
þurfa að borga 10 þúsund á mann
út af þessu félagi?“
Blaðamaður: „Íslenska ríkið
þurfti að leggja 12 milljarða króna
inn í Sjóvá í sumar.“
Bjarni: „Það er rangt.
Blaðamaður: „Er það rangt?“
Bjarni: „Já, já. Íslenska ríkið lán-
aði Glitni peninga sem það mun fá
aftur. Íslenska ríkið hefur ekki lagt
neitt fram. Þetta er bara bull í þér.
Þú átt að vinna vinnuna þína eins
og maður.“
Blaðamaður: „Sjóvá tapaði rúm-
um 3 milljörðum á þessari fjárfest-
ingu í Makaó...“
Bjarni: „Hvenær lagði ríkið fram
peninga sem það fær ekki til baka?
Væntanlega mun ríkið ekki bera
neinn skaða af þessu. Þegar þú
segir að ríkið tapi þeim pening-
um þá verður það að vera kom-
ið í ljós að ríkið fái þá peningana
ekki til baka. Þegar maður tapar
einhverju þá fær maður það ekki
endurgreitt sem maður lánar. Er
það ekki satt?“
Blaðamaður: „Jú, það er satt.“
Bjarni: „Einmitt. Nú er það stað-
fest að þú getur ekki sagt mér
hvernig íslenska ríkið tapar 10
þúsund per Íslending út af fjárfest-
ingum Sjóvár í Makaó. Þess vegna
treysti ég þér ekki því þú ert bú-
inn að halda því fram í blaðinu
að ég hafi gert eitthvað sem hafi
valdið því að ríkið þurfi að leggja
fram upphæð sem nemur 10 þús-
und krónum per Íslending. Þetta
er bara bull í þér. Þér er bara illa
við mig og þú ert í leiðangri til að
koma á mig höggi. Ég ætla ekki að
hjálpa þér í því.“
Blaðamaður: „Mér er ekki illa við
þig, Bjarni minn, síður en svo, og
það er kjaftæði að ég sé í leiðangri
til að koma á þig höggi. Þetta er
rangt. Hvað á ég að gera? Ég er
með ákveðnar heimildir hér. Ég
ræð því ekki hvaða heimildir ég
hef fengið upp í hendurnar. Það
sama hefði gerst ef ...“
Bjarni: „Þú ert bara aumur blaða-
maður sem ert að velta þér upp úr
skítnum til að reyna að selja blað-
ið.“
Blaðamaður: „Er ég hvað, segir
þú?“
Bjarni: „Þú ert bara aumur blaða-
maður sem ert að reyna að koma
höggi á mig í þeim tilgangi að selja
blaðið.“
Blaðamaður: „Það er ekki satt.“
Bjarni: „Því miður, Ingi minn, þú
bara sérð það ekki sjálfur.“
Blaðamaður: „Ef ég hefði fengið
slíkar upplýsingar um einhvern
annan stjórnmálamann þá hefði
það sama gilt þar. Það er bara
þannig. Ég ræð því ekki hvaða
heimildir ég fæ.“
Bjarni: „Það stendur ekki steinn
yfir steini í því sem þú ert að segja.
Og ég hef bara ekkert við þig að
segja.“
Blaðamaður: „Bjarni minn,
stendur ekki steinn yfir steini?“
Bjarni: „Segðu mér hvernig ís-
lenskir skattgreiðendur tapa á
þessari fjárfestingu í Makaó?“
Blaðamaður: „Ég er búinn að
gera það. Þú heldur því fram að
ég hafi rangt fyrir mér. Ég skal at-
huga það betur. Ég er búinn að út-
skýra það fyrir þér hvernig ég taldi
að það hefði gerst. En þú segir að
það sé rangt.“
Bjarni: „Þú skalt leiðrétta það.
Þú skalt skrifa það á forsíðuna að
enginn hafi tapað neinu.“
Blaðamaður: „Það kann að vera
að það sé rétt hjá þér og að ég hafi
rangt fyrir mér. Ég skal athuga það
betur. Ef ég segi eitthvað rangt þá
mun ég leiðrétta það. Það er bara
þannig. Það breytir því samt sem
áður ekki að þú tengist þessu félagi
[Vafningi, innskot blaðamanns].
Það er lykilatriði málsins.“
Bjarni: „Ég á ekkert í þessu félagi
og ég hef engar ákvarðanir tekið
fyrir þetta félag.“
Blaðamaður: „En þú tengist þessu
félagi, Bjarni. Þú veðsetur bréf-
in út af tveimur lánveitingum frá
Glitni sem veittar voru í lok febrú-
ar 2008.“
Bjarni: „Nei, það eru eigendur
bréfanna sem veðsetja þau.“
Blaðamaður: „Já, en þú gerir það
fyrir þeirra hönd.“
Bjarni: „Einmitt.“
Blaðamaður: „Og pabbi þinn er
einn af eigendum þessara bréfa.
Og samkvæmt því sem pabbi þinn
sagði mér í síðustu viku þá er hann
hættur í viðskiptum. Mér sýnist
á öllu, líka meðal annars vegna
þess að þú settist í stjórn Máttar á
seinni hluta árs 2008 væntanlega
fyrir hans hönd...“
Bjarni: „Ég hef ekkert um þetta að
segja þar sem ég kom ekki nálægt
þessum ákvörðunum.“
Blaðamaður: „Ég er bara að segja
það, Bjarni, að annaðhvort þú eða
pabbi þinn, hann er hluthafi í fé-
laginu...“
Bjarni: „Pabbi þinn er formað-
ur í þessum banka. Spurðu hann
bara. [Faðir blaðamanns, Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson, er for-
maður bankaráðs Íslandsbanka,
innskot blaðamanns.]
Blaðamaður: „Hann veit ekkert
um þetta eins og þú veist. Ég veit
að hann er búinn að tala við þig.“
Bjarni: „Ekki ég heldur.“
Blaðamaður: „Veist þú ekki
neitt?“
Bjarni: „Ég veit ekkert um þetta.
Ég tók engar ákvarðanir varðandi
fjármögnunina á þessu félagi. Ég
veit ekkert um það hvernig þessir
gerningar urðu til.“
Blaðamaður: „En ég skil ekki enn
þá af hverju þið tókuð þátt í þessu.“
Bjarni: „Nei, en samt ertu búinn
að skrifa langar greinar í blaðið og
birta myndir af mér á forsíðunni.
Samt veistu ekkert og skilur ekk-
ert. Þess vegna ertu lélegur blaða-
maður. Þess vegna er ég að segja
þér það.“
Blaðamaður: „Bjarni, þetta er nú
óþarfi.“
Bjarni: „Nei, þetta er enginn
óþarfi. Mér er bara orðið verulega
í nöp við þig. Ég hef bara ekkert við
þig að segja.“
Blaðamaður: „Bjarni, settu þig í
mín spor. Ef þú værir með ákveðn-
ar heimildir og þú myndir vinna
sem blaðamaður...“
Bjarni: „Þú ert ekki með neitt sem
skiptir máli. Það er það sem þú
ert ekki enn þá búinn að átta þig
á. Talaðu við þá sem tóku þessar
ákvarðanir. Láttu mig bara í friði.“
Blaðamaður: „En Bjarni, viss-
ir þú að þetta félag hefði fjárfest
í þessum breska fjárfestingasjóði
sama dag og þú fékkst umboð til
að veðsetja bréfin í félaginu?“
Bjarni: „Ég er búinn að margsegja
við þig að ég tók engar ákvarðanir
fyrir hönd þessa félags...“
Blaðamaður: „Já, en vissir þú
það? Það er það sem ég vil vita.
Vissir þú að þetta félag væri að
fjárfesta í Makaó? Vissir þú að
þetta félag væri að fjárfesta í þess-
um breska fjárfestingasjóði?“
Bjarni: „Ég kom ekkert nálægt
þeim ákvörðunum sem áttu sér
stað þennan dag.“
Blaðamaður: „Af hverju getur þú
ekki svarað með já eða nei? Vissir
þú það eða vissir þú það ekki?
Bjarni: „Að sjálfsögðu ekki.“
Blaðamaður: „Vissir þú það ekki
að þetta félag sem þú tengist væri
að eiga í 10 milljarða viðskipt-
um?“
Bjarni: „Ég kom ekki nálægt
neinni ákvarðanatöku um þá end-
urfjármögnun sem var að eiga sér
stað á þessum tíma. Þess vegna
vissi ég ekki hvaða gerningar lágu
þarna að baki. Ég kom einungis
að þeirri ákvörðun, eða að þeim
gerningi, að veðsetja hlutabréf-
in fyrir hönd þeirra sem á þeim
héldu. Aðrir voru að vinna í end-
urfjármögnuninni í samvinnu við
bankann. Punktur. Og hættu nú
þessu bulli.“
Blaðamaður: „En Bjarni, ég tal-
aði við pabba þinn, spurði hann
um þetta og hann sagðist ekkert
þekkja til þessa félags [Vafnings,
innskot blaðamanns].
Bjarni: „Ingi minn. Af hverju ertu
að hringja í mig? Af hverju tal-
ar þú ekki við mennina sem tóku
lánin, sem keyptu turninn? Tal-
aðu við mennina sem tóku þessar
ákvarðanir.“
Blaðamaður: „En Bjarni ...“
Bjarni: „Blessaður, Ingi minn. Ég
hef ekkert meira við þig að segja.
Þú ert ekki enn þá búinn að leið-
rétta það sem þú ert búinn að
ljúga upp á mig. Þú ert búinn að
kalla vandræði yfir mig. Ég vil
ekki eiga samskipti við þig. Ég
treysti þér ekki.“
Blaðamaður: „Bjarni, ég er búinn
að segja það við þig að ef það sem
þú ert búinn að segja við mig [um
að rúmir 3 milljarðar falli ekki á
ríkissjóð út af tapinu í Makaó ef lán-
ið sem skilanefnd Glitnis fékk vegna
Sjóvár verður greitt til baka eins
og gert er ráð fyrir, innskot blaða-
manns] reynist vera rétt...“ [Hér ætl-
aði blaðamaður að segja Bjarna
aftur að það yrði þá leiðrétt að hver
íslenskur skattgreiðandi þyrfti að
greiða um 10 þúsund krónur út af
fjárfestingum Sjóvár í Makaó, að
því gefnu að hægt yrði að greiða
12 milljarða lánið frá ríkissjóði til
baka, innskot blaðamanns.]
Bjarni: „Blessaður, Ingi minn. Ég
ætla ekki að ræða meira við þig.“
Blaðamaður: „Allt í lagi.“
Bjarni: „Blessaður.“
Blaðamaður: „Bless.“
SAMTAL BLAÐAMANNS DV VIÐ BJARNA BENEDIKTSSON, FORMANN
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS, SUNNUDAGINN 13. DESEMBER 2009:
Blaðamaður kynnir sig og ber upp erindið. Hann vill komast að því hvort Bjarna hafi verið kunnugt um að eignarhaldsfélagið Vafningur hafi fjárfest í breska fjárfestingasjóðnum KCAJ
sama dag og félagið fjárfesti í fasteignaverkefni í Makaó í Asíu og hann veðsetti bréfin í félaginu fyrir hönd skyldmenna sinna. Bjarni svarar og hlustar á kynningu blaðamanns.
Aðkoma Bjarna að Vafningi Vafningur fjárfesti meðal
annars í lúxusíbúðaturni í Makaó í Suðaustur-Asíu, sem sést
hér neðst í hægra horninu, og í breskum fjárfestingasjóði.
Bjarni veðsetti hlutabréf í Vafningi sama dag og viðskipin
gengu í gegn en segist ekki hafa vitað af þeim.
12 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR
Samkvæmt heimildum DV var ein
af ástæðunum fyrir stofnun eign-
arhaldsfélagsins Vafnings í febrúar
2008, og kaupum þess á eignum dótt-
urfélaga Sjóvár, sú að eignarhaldsfé-
lagið Þáttur International fékk veðkall
vegna láns frá fjárfestingarbankanum
Morgan Stanley. Eignirnar sem keypt-
ar voru eru lúxusturninn í Makaó og
breski fjárfestingarsjóðurinn KCAJ.
Þáttur tók lánið frá Morgan Stanley
á fyrri hluta árs 2007 til að fjármagna
kaupin á hlutabréfum í Glitni og var
félagið í raun stofnað gagngert til þess,
samkvæmt heimildum DV. Veðið fyrir
láninu frá Morgan Stanley var í bréf-
um félagsins í Glitni. Eigendur Þáttar,
þeir Karl og Steingrímur Wernerssyn-
ir og Einar og Benedikt Sveinssynir,
stóðu þá frammi fyrir því að þurfa að
endurgreiða lánið eða missa bréfin
sín í Glitni.
Til þess að geta fengið lánafyrir-
greiðslu frá Glitni til að standa í skil-
um við Morgan Stanley þurftu eig-
endur Þáttar International að koma
sér upp eignum sem hægt væri að
veðsetja fyrir láninu. Í þessu augna-
miði var eignarhaldsfélagið Vafning-
ur búið til. Vafningur átti þá bæði fjár-
festingarverkefnið í Makaó sem og
breska fjárfestingarsjóðinn en geng-
ið var frá þeim viðskiptum sama dag
og Bjarni Benediktsson veðsetur
hlutabréf félagsins hjá Glitni, þann 8.
febrúar 2008.
Þetta stemmir við frásögn Bjarna
sjálfs sem sagði í viðtali við DV í síð-
ustu viku: „Menn eru að endurfjár-
magna lán og það er það sem er aðal-
ástæðan fyrir þátttöku þessara félaga í
Vafningi,“ sagði Bjarni.
Áttu mörg félög saman
Vafningur var einungis eitt af fjöl-
mörgum félögum sem Wernerssyn-
ir og Sveinssynir áttu saman. Annað
félag var BNT, móðurfélag olíurisans
N1, en Máttur er hluthafi í félaginu.
Milestone átti að minnsta kosti einn
stjórnarmann í BNT þegar Bjarni
Benediktsson var stjórnarformaður
þess en það var Óskar Garðarsson,
starfsmaður Milestone, sem einn-
ig sat í stjórn KCAJ og fleiri félögum
tengdum Milestone.
Sömuleiðis áttu þeir Werners- og
Sveinssynir saman hið áðurnefnda
félag Þátt International, en það var
í gegnum sömu eignarhaldsfélög -
SJ2, Skeggja og Mátt - og héldu utan
um eign þeirra á fasteignaverkefninu
í Makaó og KCAJ. Þáttur Internation-
al hélt utan um hlutabréfaeign þeirra
bræðra í Glitni en félagið átti um 7
prósenta hlut í bankanum. Í heild-
ina eru þetta því allmörg félög sem
þeir Werners- og Sveinssynir komu
að saman, að minnsta kosti: BNT, N1,
Vafningur, Máttur, Þáttur Internation-
al og Skeggi.
Vafningur flæktur
í Svartháfsmálið
Lánið til Vafnings sem notað var til
að endurgreiða Morgan Stanley kom
svo frá eignarhaldsfélaginu Svart-
háfi, félagi í eigu föður Karls og
Steingríms Wernerssona, sem
stofnað var gagngert til að
leppa lán frá Glitni og til fé-
laga í eigu þeirra og Sveins-
sona. Ástæðan fyrir stofnun
Svartháfs er sú að félög í
eigu Karls og Steingríms
voru búin að fá svo
mikið lánað frá Glitni
að ekki mátti lána
þeim meira vegna
reglna FME um þak
á lánveitingum frá
fjármálafyrirtækj-
um til einstakra aðila.
Á eina stjórnarfundinum sem vit-
að er til að haldinn hafi verið í Svart-
háfi var ákveðið að sækja um tæplega
200 milljóna evra lán frá Glitni, eða
sem nemur rúmum 35 milljörð-
um króna á núverandi gengi.
50 milljónir evra af láninu
frá Svartháfi runnu beint
til Vafnings sem þá gat
notað lánið til að endur-
greiða hluta láns Þáttar
International hjá Morgan
Stanley. Það var þetta
lán sem Bjarni Bene-
diktsson var að tryggja
þegar hann veðsetti
hlutabréf BNT, Hróm-
undar og Hafsilfurs hjá
Glitni í febrúar í fyrra.
Bjarni vildi hins veg-
ar ekki að ræða um það í
síðustu viku fyr-
ir hverju hann hefði veðsett bréfin í
Vafningi: „Ég ætla bara ekkert að tjá
mig um það,“ sagði hann.
Endurgreiðsla á lánum til
Morgan Stanley
Meginhlutinn af
eftirstöðv-
um láns-
ins til
Svart-
háfs,
135 milljónir evra, runnu svo til eign-
arhaldsfélagsins Racon Holding en
þeir fjármunir voru notaðir til að end-
urgreiða lán sem stofnað hafði verið
til við Morgan Stanley vegna kaupa
Mile stone á sænska fjármálafyrirtæk-
inu Invik & Co sem síðar var endur-
skírt Moderna. Veðkall hafði sömu-
leiðis borist til Racon frá Morgan
Stanley vegna þessa láns.
Þannig má sjá að
Svartháfur
þjónaði
því
VEÐSETNING BJARNA TIL AÐ
BJARGA GLITNISBRÉFUNUM
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Eignarhaldsfélag Benedikts og Einars
Sveinssona og Wernerssona keypti í
breska fjárfestingarsjóðnum KCAJ um
sumarið 2007. Í febrúar 2008 keypti annað
félag í þeirra eigu, Vafningur, afganginn
af hlutafé KCAJ með láni frá Sjóvá. Sama
dag veðsetti Bjarni hlutabréf félagsins.
Tilgangurinn með stofnun Vafnings var
að búa til veðhæfi til að fá lán frá Glitni til
að greiða niður lán við fjárfestingarbank-
ann Morgan Stanley sem notað hafði verið
til að kaupa hlutabréf í Glitni.
„Menn eru að endur-
fjármagna lán og það er
það sem er aðalástæðan
fyrir þátttöku þessara
félaga í Vafningi.“
Svartháfur viðriðinn
Vafning Eignarhalds-
félagið Svartháfur er
tengdur Vafningsmálinu
þar sem tilgangur
Vafnings var meðal annars
að standa í skilum við fjár-
festingarbankann Morgan
Stanley. Svartháfur veitti
Vafningi lán til þess og var
það Bjarni Benediktsson,
núverandi formaður
Sjálfstæðisflokksins, sem
veðsetti hlutabréfin í
félaginu vegna þess láns.
Skrifuðu upp á kaup á KCAJ
Bræðurnir Benedikt og Einar Sveinssynir
skrifuðu upp á hlutafjáraukningu á fundi
fjárfestingarfélagsins Máttar í fyrra þar
sem ákveðið var að kaupa 12,1 prósent
hlut í breska fjárfestingarsjóðnum
KCAJ. Hálfu ári síðar bætti Vafningur við
sig 82 prósenta hlut og Bjarni, sonur
Benedikts, veðsetti bréfin í félaginu.
FRÉTTIR
2 dálkar = 9,9 *10
Opið: má-fö. 12-18, Opið á laugard. til jóla frá 12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið
KOMIÐ ÚTKOMIÐ ÚTOMIÐ ÚT
hlutverki að vera leppur fyrir tvö eign-
arhaldsfélög, Racon annars vegar og
Vafning og Þátt International hins
vegar, sem skulduðu Morgan Stan-
ley fjármuni vegna kaupa á bréfum í
tveimur fjármálafyrirtækjum, Glitni
og Invik.
Vafningsviðskiptin eru því hluti
af ákveðnu vandamáli sem kom upp
í árslok 2007 þegar erlend fjármála-
fyrirtæki vildu ekki endurnýja lána-
samninga við stór íslensk eignar-
haldsfélög og fyrirtæki. Afleiðingin
af þessu var sú að íslensku bankarnir
fengu íslensku eignarhaldsfélögin aft-
ur í fangið ef svo má segja og þurftu að
tryggja þeim lánafyrirgreiðslu til að
varna því að félögin færu á hliðina.
Þarna spilar líka inn í að þessi eign-
arhaldsfélög, með-
al annars Þáttur
International, voru
mörg hver stórir
hluthafar í bönk-
unum. Fall þeirra
hefði því getað
þýtt upphafið að
falli bankanna en
með viðskiptum
eins og þeim sem
tengdust Vafningi
og Svartháfi var
komið í veg fyrir
upphafið að slíku
hruni, að minnsta
kosti um sinn.
KEYPTU Í KCAJ ÁRIÐ 2007
Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar, núverandi formanns Sjálfstæðis-
flokksins, skrifaði undir hlutafjárhækkun í fjárfestingarfélaginu Mætti á hluthafa-
fundi í lok júlí 2007 þar sem einnig var gengið frá kaupum Máttar á 12,1 prósents
hlut Milestone í breska fjárfestingarsjóðnum KCAJ. Máttur var í eigu dótturfélags
Sjóvár og eignarhaldsfélaga Benedikts og Einars, bróður hans, Hafsilfurs og Hró-
mundar. Einar skrifaði sömuleiðis upp á hlutafjárhækkunina á fundinum þar sem
kaupin voru ákveðin. Kaupverðið á bréfunum í KCAJ var tveir milljarðar króna.
DV greindi frá því á mánudaginn að sama dag í febrúar árið 2008 og Bjarni Bene-
diktsson veðsetti hlutabréfin í eignarhaldsfélaginu Vafningi fyrir hönd föður síns
og frænda keypti félagið 82 prósenta hlut í KCAJ af Sjóvá fyrir 5,4 milljarða króna
sem og fasteignaverkefni í Makaó í Asíu fyrir 5,2 milljarða króna. Báðar fjárfest-
ingarnar voru fjármagnaðar með láni frá Sjóvá. Vafningur var í eigu dótturfélags
Sjóvár sem aftur var í eigu Karls og Steingríms Wernerssona í gegnum Milestone
og Benedikts og Einars Sveinssona.
Í samtali við DV á sunnudaginn vildi Bjarni ekkert tjá sig um KCAJ og viðskipti
Vafnings í febrúar 2008. Sú staðreynd að Máttur keypti í KCAJ árið 2007 og að
Vafningur gerði það rúmu hálfu ári síðar sýnir að í kjölfarið hafa félög í Werners-
sona og þeirra Sveinssona ráðið yfir nær öllu hlutafénu í KCAJ. Viðskipti þeirra
bræðra með hlutabréf í KCAJ ná því lengra aftur en til febrúar 2008.
Umboð Bjarna Bjarni fékk þrjú umboð frá þremur eignarhaldsfélögum í eigu fjölskyldu sinnar til að veðsetja hlutabréf félagsins í Vafningi í febrúar í fyrra.
Veðsetningin var vegna lána frá Glitni sem síðan runnu til Vafnings í gegnum eignarhaldsfélagið Svartháf.
Nátengdir Myndin sýnir hvernig viðskiptahagsmun-
ir Karls og Steingríms Wernerssona og Benedikts og
Einars Sveinssona fóru saman. Eignarhaldsfélögin
Þáttur International og Vafningur voru meðal annars í
þeirra eigu en hið fyrrnefnda hélt utan um eignarhlut
þeirra í Glitni en hið síðarnefnda um turninn í Makaó
og breskan fjárfestingarsjóð.
6 MÁNUDAGUR 4. janúar 2010 FRÉTTIR
Eignarhaldsfélög í eigu Karls og
Steingríms Wernerssona og Einars
og Benedikts Sveinssona voru með
bankareikning í Glitni sem meðal
annars var notaður til að fjármagna
eignarhaldsfélagið Skeggja ehf. sem
þeir áttu í sameiningu. Milljarð-
ar króna runnu í gegnum þennan
reikning til að fjármagna sameigin-
legar fjárfestingar þeirra á árunum
fyrir hrun.
Stærsta fjárfesting þeirra var eign-
arhlutur í Glitni sem nam um 7 pró-
sentum af heildarhlutafé bankans
þegar mest lét. Skeggi var stofnaður
til að halda utan um þessa fjárfest-
ingu en félagið átti tæplega 40 pró-
senta hlut í Þætti International sem
hélt utan um hlutabréfaeign þeirra í
Glitni.
Eignarhaldsfélögin sem lögðu
fjármunina inn á reikninginn voru:
Milestone, BNT, Hafsilfur og Hró-
mundur. Milestone var í eigu Stein-
gríms og Karls á meðan BNT, Hafsilf-
ur og Hrómundur voru í eigu Einars
og Benedikts Sveinssona. Stjórnar-
formaður BNT á þessum tíma var
Bjarni Benediktsson, sonur Bene-
dikts Sveinssonar og núverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins. BNT
er móðurfélag olíufélagsins N1 en
Bjarni var einnig stjórnarformaður
þess félags á þessum tíma.
DV hefur upp á síðkastið fjallað
um viðskiptatengsl Einars og Bene-
dikts Sveinssona og Bjarna Bene-
diktssonar og þeirra Wernersbræðra.
Í ársbyrjun 2008 fékk Bjarni umboð
frá föður sínum og föðurbróður til að
veðsetja hlutabréf í öðru félagi sem
þeir áttu saman, Vafningi. Sama dag
og Bjarni veðsetti bréfin keypti félag-
ið fasteignaverkefni í Makaó í Asíu af
Sjóvá sem og breskan fjárfestinga-
sjóð, KCAJ. Veðsetning bréfanna í
Vafningi tengdist endurfjármögn-
un á lánum sem félag þeirra, Þáttur
International, hafði tekið hjá fjárfest-
ingabankanum Morgan Stanley til að
fjármagna hlutabréfkaup í Glitni árið
2007.
Tæpir sex milljarðar til Skeggja
Í byrjun ágúst árið 2007 juku Miles-
tone, BNT, Hrómundur og Hafsilf-
ur hlutaféð í Skeggja um nærri sex
milljarða króna. Félögin lögðu fram
fjármuni miðað við hlutfallslega
eign sína í Skeggja. Til að mynda
lagði BNT fram 1,4 milljarða króna,
Hafsilfur 500 milljónir, Hrómundur 1
milljarð og SJ2 nærri 3 milljarða.
Hlutafjáraukningin í Skeggja
hafði verið ákveðin á stjórnarfundi
í Skeggja sem haldinn var í höfuð-
stöðvum Milestone á Suðurlands-
braut 12 í lok júlí. Þeir sem sátu í
stjórn félagsins voru starfsmenn Mil-
estone, Guðmundur Ólason og Jó-
hannes Sigurðsson.
Þeir sem skrifuðu undir hluta-
fjáraukninguna í Skeggja á stjórnar-
fundinum voru Guðmundur ÓIason,
Benedikt Sveinsson, Einar Sveins-
son og forstjóri N1, Hermann Guð-
mundsson, sem skrifaði undir aukn-
inguna fyrir hönd BNT samkvæmt
umboði.
Á tveimur dögum í byrjun ágúst,
þann 8. og 9., runnu milljarðarnir
sex svo frá hluthöfum Skeggja, inn í
reikninginn og þaðan til Þáttar ehf.
Þaðan hafa fjármunirnir líkast til far-
ið til Skeggja.
Skeggi tapaði
rúmum 4 milljörðum
Sá sem skrifaði upp á hlutafjáraukn-
inguna fyrir hönd Skeggja var starfs-
maður Milestone, lögfræðingurinn
Gunnar Gunnarsson. Í tilkynningu
sem hann sendi til Fyrirtækjaskrár
í október 2007 koma fram að hluta-
fjáraukning Skeggja hefði verið
greidd með reiðufé. Ekki er vitað ná-
kvæmlega til hvers hlutafjáraukning-
in í félaginu var gerð á þessum tíma
en fullyrða má að það tengist með
einum eða öðrum hætti fjármögn-
uninni á hlutabréfunum í Glitni þar
sem Skeggi var stofnaður utan um þá
fjárfestingu. Líklega tengist hún end-
urfjármögnuninni á bréfum Þáttar
International í Glitni í febrúar 2008
en Bjarni Benediktsson veðsetti bréf-
in í Vafningi í þeim mánuði, líkt og
DV hefur greint frá.
Jafnframt má fullyrða að félög-
in sem áttu Skeggja hafi tapað þeim
fjármunum sem lagðir voru inn í fé-
lagið í hlutafjáraukningunni. Ástæð-
an fyrir þessu er sú að Skeggi tapaði
rúmum fjórum milljörðum króna á
árinu 2008, samkvæmt ársreikningi
félagsins sem var skilað til ársreikn-
ingaskrár síðsumars. Stjórn Skeggja,
sem Guðmundur Ólason og Ein-
ar Sveinsson sitja í, kvittaði upp á
ársreikninginn. Í ársreikningnum
er tekið fram að hlutafé að upphæð
tæplega 6 milljarðar króna hafi tap-
ast á árinu 2008.
Eigið fé Skeggja í dag er 230 þús-
und krónur. Einu eignir félagsins
virðast hafa verið í Þætti Internation-
al og Földungi ehf., sem áður hét
Vafningur. Þátttaka Skeggja í báðum
félögum var tilkomin vegna fjárfest-
inga í hlutabréfum í Glitni.
Stjórnarformaður-
inn Guðmundur
Ólason, fyrrver-
andi forstjóri
Milestone,
er jafnframt
stjórnar-
formaður
Skeggja en
Einar Sveins-
son situr þar
í stjórn með
honum.
Einar og Benedikt Sveinssynir áttu reikning með Wernersbræðrum í Glitni sem not-
aður var til að fjármagna hlutafjárhækkun í félaginu Skeggja síðla árs 2007. Hlutafjár-
hækkunin nam tæpum sex milljörðum króna og tapaðist féð. Einar og Benedikt skrifuðu
upp á hlutafjárhækkunina. Bjarni Benediktsson veðsetti bréf í félagi í eigu Skeggja.
Viðskipti Skeggja tengjast endurfjármögnun vegna kaupa á hlutabréfum í Glitni.
TÖPUÐU SEX
MILLJÖRÐUM
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Í ársreikningnum er
auk þess tekið fram
að hlutafé að upphæð
tæplega 6 milljarðar
króna hafi tapast á ár-
inu 2008.
Áttu saman reikning Hluthafar Skeggja, Werners-
bræður og Engeygingarnir Einar og Benedikt Sveinssynir,
áttu saman reikning hjá Glitni sem notaður var til að
endurfjármagna félagið síðla árs 2007. Sex milljarðar
runnu inn og út af reikningnum á tveimur dögum.
500 milljónir frá föður hans
Faðir Bjarna Benediktssonar, Benedikt
Sveinsson, lagði 500 milljónir inn í
Skeggja síðsumars 2007. Upphæðin
var hans innlegg í endurfjármögnun
félagsins sem átti sér stað á þeim
tíma. Faðir Bjarna kvittaði upp á
endurfjármögnunina á hluthafafundi.
Bjarni veðsetti síðar hlutabréf
fjölskyldu sinnar í félaginu Vafningi
sem Skeggi átti.
Í stjórn Skeggja
Einar Sveinsson
lagði fram einn
milljarð króna til
Skeggja í gegnum
félag sitt Hrómund.
Hann situr í stjórn
Skeggja og kvittaði
upp á rúmlega 4
milljarða króna tap
félagsins á nýlegum
hlutahafafundi
félagsins.
Stærstu hluthafarnir Félög í eigu Karls
og Steingríms Wernerssona eru stærstu
hluthafarnir í Skeggja sem átti tæplega
40 prósenta
hlut í
Vafningi,
nú
Föld-
ungi.
Máttu ekki semja
við Fonsa
Innri endurskoðun Reykjavík-
urborgar hefur komist að þeirri
niðurstöðu að borginni hafi
verið óheimilt að taka tilboði
Fonsa ehf. sem átti lægsta boð í
uppbyggingu á reitnum á horni
Austurstrætis og Lækjargötu þar
sem hús eyðilögðust í eldsvoða
2007. Þess í stað var samið við
Eykt sem átti næstlægsta tilboð-
ið. Greint var frá þessu í fréttum
Ríkisútvarpsins í gær. Þar kom
fram að fyrirtækið Fonsi hefði
ekki haft fjárhagslegt bolmagn
til að ráðast í verkefnið og þess
vegna væri borginni óheimilt að
semja við fyrirtækið um að taka
verkefnið að sér.
Gæti gosið
snögglega
Eldgos gæti hafist í Heklu og það
með skömmum fyrirvara, sagði
Freysteinn Sigmundsson, jarð-
eðlisfræðingur hjá Jarðvísinda-
stofnun Háskóla Íslands, í viðtali
við mbl.is í gær. Þetta sagði hann
í framhaldi af því að fólk hafði
samband við Veðurstofuna og
vakti athygli á að snjór væri lítill
í fjallinu miðað við kuldann að
undanförnu. Haft var eftir Frey-
steini að breytingar á jarðhita
í Heklu þyrftu ekki að vera fyr-
irboði eldgoss og að óvíst væri
hvenær eldgos hæfist. Tæp tíu ár
eru frá því að Hekla gaus síðast.
Vilja reyna aftur
við sameiningu
Sveitarstjórnarmenn í
Tálknafjarðarhreppi velta
fyrir sér hvort rétt sé að
sameina hreppinn Vestur-
byggð. Það yrði í annað sinn
á fjórum árum sem slíkt væri
reynt en sameining var felld í
íbúakosningum fyrir fjórum
árum. Þetta kom fram í frétt-
um Ríkisútvarpsins á sunnu-
dag. Þar var haft eftir Eyrúnu
Ingibjörgu Sigþórsdóttur
sveitarstjóra að fyrir lægi að
um umtalsverða hagræðingu
væri að ræða ef sveitarfélög-
in sameinuðust. Ey rún tók
þó fram að slíkt yrði ekki gert
nema í samráði við íbúana.
Þúsundir
minnast
Hrafnkels
Tæplega átta þúsund manns
hafa ritað nafn sitt á síðu sem
sett var upp á Facebook til að
minnast Hrafnkels Kristj-
ánssonar íþróttafréttamanns
sem lést á sjúkrahúsi eftir að
hafa slasast í umferðarslysi
skömmu fyrir jól.
Hrafnkell lést á jóladag.
Hann verður jarðsunginn í
dag.
HLUTHAFAR Í SKEGGJA
n SJ2 ehf. (eigendur Karl og
Steingrímur Wernerssynir í gegnum
Sjóvá): 49,5 prósent
n Hrómundur ehf. (eigandi Einar
Sveinsson): 17,07 prósent
n Hafsilfur ehf. (eigandi Benedikt
Sveinsson): 8,53 prósent
n BNT ehf. (eigendur Einar og
Benedikt Sveinssynir og Wernerssyn-
ir): 23,89 prósent
n Sáttur ehf. (eigandi Guðmundur
Ólason): 1,01 prósent
EIGNIR SKEGGJA
n 39,1 prósenta hlutur í Þætti
Intern ational sem átti 7 prósenta
hlut í Glitni.
n 39,1 prósenta hlutur í Földungi,
áður Vafningi, sem átti fasteigna-
verkefni í Makaó og stóran hlut í
breskum fjárfestingasjóði
EIGNARHALD Á VAFNINGI
n SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir): 48,8
prósent
n Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/
Einar Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt
Sveinsson, BNT ehf./Einar og
Benedikt o.fl. og Sáttur/Guðmundur
Ólason): 39,10 prósent
n Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2,
Hrómundur, Hafsilfur): 12,1 prósent
Eignarhald
10 FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010 FRÉTTIR
Eignarhaldsfélagið Földungur, sem
áður hét Vafningur, skuldaði tæp-
lega 33 milljarða króna samkvæmt
ársreikningi félagsins fyrir árið 2008.
Ársreikningnum var skilað til árs-
reikningaskrár fyrir skömmu. Reikna
má með því að bróðurpartur þessara
skulda sé við Glitni.
Vafningur var eignarhaldsfé-
lag sem stofnað var til að endurfjár-
magna lán sem eignarhaldsfélög í
eigu þeirra bræðra Karls og Stein-
gríms Wernerssona og Benedikts og
Einars Sveinssona áttu í sameiningu.
Líkt og DV greindi frá í síðasta
mánuði veðsetti Bjarni Benedikts-
son, þáverandi þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins og núverandi for-
maður hans, hlutabréfin í Vafningi
vegna láns frá Glitni fyrir hönd föð-
ur síns Benedikts og frænda síns Ein-
ars. Félög í eigu Einars og Benedikts,
BNT, Hrómundur og Hafsilfur, voru
hluthafar í Vafningi ásamt eigend-
um Milestone, Karli og Steingrími
Wernerssonum. Bjarni var jafnframt
stjórnarformaður BNT á þessum
tíma.
Veðsetning Bjarna tengdist end-
urfjármögnun á láni frá fjárfestinga-
bankanum Morgan Stanley sem
notað var til að fjármagna kaup ann-
ars eignarhaldsfélags, Þáttar Inter-
national, sem þeir Sveins- og Wern-
erssynir áttu saman.
Töpuðu 13 milljörðum í
Makaó og Bretlandi
Í ársreikningnum kemur fram að
Vafningur hafi tapað nærri 7,4 millj-
örðum króna á fjárfestingum sínum í
Makaó í Asíu þar sem félagið keypti
hálfbyggðan lúxusíbúðaturn af dótt-
urfélagi Sjóvár fyrir 5,2 milljarða
króna. Líkt og greint var frá í DV í
desember veðsetti Bjarni hlutabréfin
í Vafningi sama dag, þann 8. febrúar
2008, og félagið festi kaup á þessari
fasteign í Makaó. Veðsetningin var
meðal annars líklega fyrir 50 millj-
óna evra láni frá Glitni sem fór inn í
félagið í gegnum eignarhaldsfélagið
Svartháf.
Vafningur keypti einnig breska
fjárfestingasjóðinn KCAJ þennan
sama dag fyrir 5,4 milljarða króna.
Samtals fjárfesti Vafningur því fyr-
ir 10,6 milljarða sama daginn. Tap
Vafnings af KCAJ á árinu 2008 nam
aftur nærri 5,5 milljörðum króna,
samkvæmt ársreikningnum. Af
þessu sést að tap Vafnings af fjárfest-
ingunum tveimur á árinu 2008 var
tveimur milljörðum hærra en heild-
arkaupverð þeirra í upphafi ársins.
Tilgangurinn með kaupum Vafn-
ings á fasteignaverkefninu og fjár-
festingasjóðnum var að búa til
veðrými til að veðsetja eignir fé-
lagsins fyrir láni frá Glitni. Lánið frá
Glitni var svo aftur notað til að end-
urfjármagna lán frá Morgan Stan-
ley en hlutabréf Þáttar Internation-
al voru veðsett fyrir láni frá þeim
banka. Veðkall hafði borist frá Morg-
an Stanley og áttu eigendur félags-
ins á hættu að missa bréfin í Glitni ef
þeim hefði ekki tekist að endurfjár-
magna lánið.
Átti að borga 14 milljarða 2009
Í ársreikningnum segir að Vafning-
ur hafi átt að borga rúmlega 14 millj-
arða af skuldum sínum árið 2009.
Langstærsti hluti þessara skulda
félagsins var í evrum, meira en 13
milljarðar, en Svartháfslánið nam
væntanlega um 8,5 milljörðum af
þessari upphæð. Reikna má því með
að gengismunur spili nokkuð stóran
þátt í skuldaaukningu Vafnings á ár-
inu 2008.
Einn stjórnarmaður er í Vafn-
ingi, Guðmundur Ólason
fyrrverandi forstjóri Mil-
estone, og situr hann þar fyrir hönd
Karls og Steingríms. Fulltrúi hinna
hluthafa Vafnings, Einar Sveins-
son, sat í stjórn félagsins þar til síð-
asta sumar þegar hann sagði sig úr
stjórninni með tilkynningu til emb-
ættis ríkisskattstjóra.
Einar hafði tekið sæti í stjórn
Vafnings á hluthafafundi í lok mars
2008, tæpum tveimur mánuðum eft-
ir að viðskiptin með lúxusturninn í
Makaó og KCAJ áttu sér stað og Ein-
ar og Benedikt urðu hluthafar í félag-
inu. Á sama fundi var nafni Vafnings
breytt í Földungur.
Einar Sveinsson, fyrrverandi
stjórnarmaður og hluthafi í Föld-
ungi, vildi ekki ræða um stöðu fé-
lagsins þegar DV hafði samband við
hann. „Ég hef ekkert við þig að tala,
ekkert við þig að tala,“ sagði Einar
áður en hann skellti á blaða-
mann.
DV hefur ekki
náð í Guðmund
Ólason til að
spyrja hann út í
stöðu félagsins í
dag og hvort Vafn-
ingur hafi borgað
skuldir sínar á ár-
inu 2009.
Eignarhaldsfélagið Földungur, áður Vafningur, skuldaði meira en 30 milljarða í árslok 2008. Fjárfestingar
félagsins í Makaó og Bretlandi skiluðu 13 milljarða króna tapi á árinu. Einar Sveinsson, fyrrverandi stjórn-
armaður og hluthafi í Vafningi, neitar að ræða um stöðu félagsins í dag.
RÚMIR SJÖ MILLJARÐAR
TÖPUÐUST Á TURNINUM
„Ég hef ekkert við þig
að tala, ekkert við þig
að tala.“
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Sjö milljarða tap Félagið sem
keypti lúxusturninn í Makaó af
Sjóvá tapaði nærri 7,4 milljörðum á
fjárfestingunni árið 2008. Turninn
var keyptur af félagi í eigu Werners-
bræðra og þeirra Einars og Benedikts
Sveinssona. Turninn sést hér í hægra
horninu.
Veðsetti Vafning Tæpum
tveimur mánuðum eftir að
Bjarni Benediktsson veðsetti
hlutabréfin í Vafningi fyrir
hönd Benedikts föður síns
og Einars föðurbróður síns,
settist Einar í stjórn
félagsins sem fulltrúi
hinna nýju hluthafa.
Meira en 30 milljarða tap
Földungur, sem er í meiri-
hlutaeigu Milestone, tapaði
meira en 30 milljörðum
króna árið 2008. Karl
Wernersson var annar af
hluthöfum Milestone.
Neitar að tjá sig Einar
Sveinsson neitar að tjá
sig um stöðu Földungs,
áður Vafnings. Hann skellti á
blaðamann DV.
11. dese be 2009 14. d se ber 2009 16. des m 2009 8. janúar 201018. desember 2009 4. janúar 2010
n Eignarhaldsfélagið, sem síðar var nefnt Milestone, var stofnað árið 1988 og hét
þá Deiglan-Áman. Milestone á rætur sínar að rekja til þess að Werner Rasmusson
apótekari greiddi börnunum sínum 5 fyrirframgreiddan arf árið 1999. Þrjú þeirra
stofnuðu síðar Milestone, þau Karl, Steingrímur og Ingunn Wernersbörn. Hin tvö
systkinin tóku ekki þátt í stofnun félagsins.
n Milestone byrjaði á að kaupa nokkur apótek árið 2004. Árið 2005 keypti félagið
svo meirihluta í tryggingafélaginu Sjóvá. Þá má segja að stórveldistíð Milestone
hefjist. Í kjölfarið byrjaði félagið að færa út kvíarnar og keypti meðal annars
eignarhluta í Glitni í gegnum dótturfélög sem eigendur þess áttu með Einari og
Benedikt Sveinssonum.
Í lok árs 2006 stofnaði Milestone svo fjárfestingabankann Askar Capital sem
opnaði skrifstofur víða um lönd og átti hann að verða einn stærsti banki sinnar
tegundar í Evrópu.
n Dótturfélög Milestone skiptu tugum og keypti félagið meðal annars sænska
fjármála- og tryggingafyrirtækið Invik sem var endurskírt Moderna. Milestone
færði svo alla starfsemi sína til Svíþjóðar í árslok 2007 en erfiðlega gekk að fá
samþykki sænska fjármálaeftirlitsins fyrir starfseminni.
n Milestone komst í hann krappan í byrjun árs 2008 þegar lán til fyrirtækisins frá
fjárfestingabankanum Morgan Stanley var gjaldfellt. Lánið hafði verið veitt til að
kaupa hlutabréf í Glitni. Segja má að hrun Milestone hafi byrjað um þetta leyti.
Þegar Glitnir var yfirtekinn haustið 2008 má segja að dagar félagsins hafi verið
taldir því Milestone hafði átt 5 prósenta hlut í bankanum, ásamt Einari og
Benedikt Sveinssonum í gegnum eignarhaldsfélagið Þátt International.
n Milestone leitaði heimildar til nauðasamninga sumarið 2009 en kröfuhafar
félagsins höfnuðu þeim. Félagið var síðar úrskurðað gjaldþrota og er í skiptameð-
ferð. Skuldir Milestone nema um 100 milljörðum króna. Kröfuhafafundur verður
haldinn þann 25. janúar þar sem lögð verður fram endurskoðendaskýrsla um
starfsemi félagsins og eins munu kröfuhafar ræða hvort rifta eigi sölu Milestone á
apótekunum Lyfjum og heilsu út úr samstæðunni árið 2008.
Milestone