Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 FRÉTTIR
Akraneskaupstaður þarf að af-
henda trúnaðargögn um við-
skipti bæjarins við tölvufyrirtækið
Secur Store en það var úrskurðar-
nefnd útboðsmála sem felldi þann
úrskurð. Fyrirtækið er í eigu Bjarna
Ármannssonar fjárfestis og Arnars
Gunnarssonar, sonar forseta bæj-
arstjórnar, en viðskipti þess við
bæinn hafa fram til þessa farið
fram án útboðs.
Akranesbær hefur verið kærð-
ur bæði til kærunefndar útboðs-
mála og umboðsmanns Alþingis.
Það er vegna viðskipta við áður-
nefnda tölvuþjónustu sem fullyrt
hefur verið að nemi hátt í þrjátíu
milljónum króna ár hvert. Samn-
ingur um viðskiptin hefur verið
gerður án útboðs og í september
síðastliðnum ákvað bæjarstjórn
Akraness að framlengja samning-
inn við fyrirtækið til átján mánaða.
Áður hafði bæjarráð ákveðið að
bjóða þjónustuna út en hætti síð-
an við.
Viðkvæm trúnaðargögn
Fram til þessa hefur bæjarstjórn
Akraness neitað að afhenda trún-
aðargögn um viðskiptin við tölvu-
fyrirtækið og vísað til upplýsinga-
laga á þeim forsendum að gögnin
innihaldi fjárhagsupplýsingar sem
kærendur hafi ekki rétt á að fá. Því
er kærunefnd útboðsmála ósam-
mála.
Viðskipti SecurStore hafa
áður verið kærð til samgöngu- og
sveitastjórnaráðuneytisins sem
komst að þeirri niðurstöðu að eng-
in lög hafi verið brotin í samskipt-
um Akranesbæjar við fyrirtækið.
Aftur á móti gagnrýndi ráðuneyt-
ið tengsl forseta bæjarstjórnar,
Gunnars Sigurðssonar, við ann-
an eiganda tölvuþjónustunnar en
benti jafnframt á að ekki sé full-
sannað að hann hafi vitað af að-
komu sonar síns við fyrirtækið.
Gunnari ætti þó að hafa verið það
ljóst þegar ákveðið var að fram-
lengja samningnum, án útboðs, á
síðasta ári en sú ákvörðun er nú í
kærumeðferð hjá kærunefnd út-
boðsmála og hjá umboðsmanni
Alþingis.
Algjört pukur
Í úrskurði kærunefndarinnar er
tekið fram að Akranesbær hafi ít-
rekað hundsað beiðni nefndar-
innar um svör við því hvort trún-
aðargögnin yrði afhent. Þrátt fyrir
beiðnirnar svaraði bærinn engu og
úrskurðaði nefndin í þá veru að
gögnin skyldu afhent þegar í stað.
Sveinn Kristinsson, oddviti
Samfylkingarinnar, skilur ekkert
í því sem hann kallar pukur bæj-
arstjórnar í málinu. Hann bendir
á að reynt sé að komast hjá því að
fylgja reglum bæjarins með því að
búta viðskiptin niður. „Svo virðist
sem bæjarstjórn hafi ítrekað ver-
ið boðið að rökstyðja málið en það
hafi ekki verið gert. Mér finnst
það óþolandi stjórn-
sýsla. Þetta tölvu-
mál er búið að taka
undarlega vinkla
og beygjur. Nú síð-
ast var, af einhverj-
um óskiljanlegum
ástæðum, hætt við
að fara í útboð og
það hefur ekki
enn verið rök-
stutt almenni-
lega. Það eru
mikil viðskipti þarna á milli og fyr-
irtækið er að fá tugi milljóna á ári
án útboðs. Útboð ætti að fara fram,
alveg tvímælalaust, enda stendur
það skýrt í vinnureglunum,“ segir
Sveinn.
Munu mótmæla
Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri
Akraness, er hissa á þessari niður-
stöðu kærunefndarinnar og seg-
ist með aðstoð lögmanns ætla að
berjast áfram gegn því að
gögnin verði afhent.
Hann vísar
allri gagn-
rýni á við-
skipti við
SecurStore
á bug og
segir sam-
starfið til
fyrirmynd-
ar. „Mér finnst
þetta undar-
legt og skrít-
in vinnubrögð.
Við förum sam-
kvæmt upplýs-
ingalögunum sem
segja klárt að
óheim-
ilt sé að veita aðgang að fjárhags-
gögnum um einstaklinga.
Ef okkur er á endanum gert
skylt að afhenda þau þá gerum við
það en lögmaður okkar mun berj-
ast á móti þessu. Við teljum okkur
vera að brjóta lög með því að birta
þetta,“ segir Gísli.
„Öll viðskiptin við tölvufyrir-
tækið eru undir þeim fjárhæð-
um sem um ræðir í útboðsreglum
bæjarins. Gagnrýnin stenst ekki og
það er alrangt að við séum að
fela nokkuð. Þvert á móti
höfum við sparað
milljónir á viðskipt-
um við fyrirtækið
og starfsmenn
bæjarins láta
vel af samstarfi
við það. Ættar-
tengslin hafa
ekki nokkuð
með þessi við-
skipti að gera
og þær ásak-
anir eru rangar.
Það er vandlifað
í íslensku samfé-
lagi ef menn sem
eru skyldir geti ekki
átt í viðskiptum.“
Svo virðist sem bæjarstjórn
hafi ítrekað verið boð-
ið að rökstyðja málið
en það hafi ekki verið
gert. Mér finnst það
óþolandi stjórnsýsla.
Akranesbær þarf að afhenda trúnaðargögn varðandi kaup á þjónustu hjá tölvufyr-
irtæki í eigu Bjarna Ármannssonar og sonar forseta bæjarstjórnar. Viðskipti bæjar-
ins við fyrirtækið eru í kærumeðferð hjá nefndinni og hjá umboðsmanni Alþingis.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
SVARI VEGNA BJARNA
Annar eigenda Bjarni er annar
eigenda tölvuþjónustunnar sem
gagnrýnt er að eigi í tugmilljóna
viðskiptum án útboðs.
Vandlifað Gísli bæjarstjóri
vísar allri gagnrýni á bug og
segir vandlifað ef ættingjar geta
ekki átt í viðskiptum á Íslandi.
Munu mótmæla Bæjaryfirvöld Akraness ætla að mótmæla úrskurði kæru-
nefndar útboðsmála þar sem þau telja afhendingu fjárhagsupplýsinga lögbrot.
Innbrot í Grafarvogi
Fimm manns, tvær konur og þrír
karlar, vou handtekin vegna gruns
um innbrot aðfaranótt þriðjudags.
Að sögn lögreglu er talið að fólkið
hafi brotist inn í gistiheimili við Ein-
holt og íbúð í Fífurima í Grafarvogi.
Það var um klukkan hálf tvö
sem tilkynnt var um grunsamlegar
mannaferðir í Grafarvogi. Þegar lög-
regla kom á vettvang voru þjófarnir
að bera verðmæti út í bíl. Um tveim-
ur tímum síðar var par handtekið
fyrir utan gistiheimilið í Einholti. Þá
var tilkynnt um innbrot í bifreið en
úr henni var stolið fartölvu. Söku-
dólgurinn er ófundinn.
Hafnar ávirðingum
Gunnars
Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í
Kópavogi, hafnar því að hafa að eig-
in frumkvæði veitt fjölmiðlum upp-
lýsingar um viðskipti Halldórs Jóns-
sonar og fyrirtækis hans við bæinn
sex ár aftur í tímann, eins og Gunnar
I. Birgisson fullyrti.
Í yfirlýsingu segir Gunnsteinn:
„Hinn 29. janúar fór bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar fram á upplýs-
ingar um viðskipti Halldórs Jóns-
sonar og fyrirtækis hans við bæinn
sex ár aftur í tímann. Hinn 9. febrú-
ar barst beiðni frá blaðamanni DV
um sömu upplýsingar áratug aftur í
tímann.“
Dóp í borginni
Nokkur fíkniefnamál komu til kasta
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu um helgina en í öllum þeirra
áttu í hlut ungir karlar, að því er fram
kemur í tilkynningu frá lögreglunni.
Í tveimur óskyldum málum í mið-
borginni voru höfð afskipti af þrem-
ur piltum um tvítugt sem allir voru
með fíkniefni í fórum sínum, þar af
einn með kókaín. Þrír aðrir piltar á
svipuðu reki voru staðnir að verki í
Garðabæ þar sem þeir voru að nota
fíkniefni og í Laugardal voru tveir
jafnaldrar þeirra teknir fyrir fíkni-
efnamisferli. Þá fundust fíkniefni í
bíl sem lögreglan stöðvaði í Árbæ en
í bílnum voru sex ungmenni á aldr-
inum 15 til 20 ára.
Vilja nefndarfund
Einar K. Guðfinnsson og Guðlaug-
ur Þ. Þórðarson, þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins,
hafa óskað eftir
því að haldinn
verði sameig-
inlegur fundur
sjávarútvegs- og
landbúnaðar-
nefndar og við-
skiptanefndar
Alþingis þar sem
farið verði yfir skuldamál í landbún-
aði og þau úrræði sem bankar og
aðrar fjármálastofnanir hafa boðið
bændum upp á í ljósi skuldastöðu
þeirra. Þeir fara þess á leit að fund-
urinn verði haldinn í þessari viku
þar sem árlegt Búnaðarþing hefst á
sunnudaginn.
„Ég get lofað því að það voru hvergi
svona fáar pítsur keyptar,“ segir Ár-
mann Kr. Ólafsson, nýkjörinn odd-
viti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.
Viðmælandi DV segir að Ármann
hafi gefið syni sínum og tveimur
öðrum drengjum, sem allir eru 16
ára, pítsur eftir að stuðningsmaður
Ármanns lét þá kjósa hann í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins um helg-
ina.
„Drengjunum var boðið að koma
á kosningaskrifstofu Ármanns að
Bæjarlind 2 í Kópavogi til að þiggja
kökur og aðrar veitingar. Þar var
kona sem vildi að þeir myndu kjósa.
Þeir voru ekki á því. Þá vildi hún
endilega skutla þeim í Valhöll. Hún
keyrði þá síðan þangað þar sem eng-
inn þeirra var með bílpróf því þeir
eru allir 16 ára gamlir. Þar voru þeir
skráðir í Sjálfstæðisflokkinn. Svo var
þeim sagt hvernig þeir ættu að raða
á listann. Eftir þetta var þeim skutl-
að upp í Bæjarlind aftur þar sem Ár-
mann tók á móti þeim og borgaði
fyrir þá pítsur frá Rizzo,“ segir fað-
irinn sem finnst þetta forkastanleg
vinnubrögð.
„Ég keypti fjórtán pítsur í heild-
ina,“ segir Ármann og tekur fram að
fjöldi manns starfi í kringum fram-
boð hans. Því fólki verði að gefa að
borða. Þessar pítsur hafi farið til
ungs manns sem aðstoðaði hann
við framboðið. Auk þess vill Ár-
mann taka fram að hann bauð upp
á heilmikið vínarbrauð á kosninga-
skrifstofu sinni. Ásamt því bauð
hann upp á 150 bollur, 200 upprúll-
aðar pönnukökur, appelsínutertu
með 200 sneiðum og fleira.
Aðspurður hvort það sé rangt að
hann hafi gefið pítsur fyrir atkvæði
svarar hann: „Já, að sjálfsögðu.
Þetta er alltaf túlkunaratriði. Þetta
er allt fyrir atkvæði gert,“ segir Ár-
mann. Aðspurður hvort honum þyki
þetta vera á gráu svæði svarar hann:
„Þetta er ekki á gráu svæði. Það voru
aðrar skrifstofur að bjóða upp á bjór
og áfengi. Ég gerði það ekki,“ segir
hann. Ármann vill koma því á fram-
færi að kosningaskrifstofa hans hafi
verið opin í þrjár vikur og hann geti
sýnt kvittanir fyrir öllum kostnaði
vegna prófkjörsins.
as@dv.is og birgir@dv.is
Ármann Kr. Ólafsson oddviti neitar atkvæðaveiðum með því að gefa pítsur:
„Hvergi svona fáar pítsur“
Túlkunaratriði Ármann Kr. Ólafsson
segir að það sé alltaf túlkunaratriði hvort
ekki sé reynt að veiða atkvæði með því
að gefa veitingar.