Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Blaðsíða 27
SVIÐSLJÓS 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 27
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
V ilhjálmur prins var hress og kátur þegar hann heimsótti starfsemi blindra í Wales. Vilhjálm-ur reif þar upp boga og var látinn skjóta í mark
- eins og frægur nafni hans gerði á árum áður, Willi-
am Tell. Til að gera skotið enn erfiðara var Vilhjálm-
ur látinn nota boga fyrir rétthenda en sjálfur er hann
örvhendur. „Oh, þetta verður eitthvað neyðarlegt,“
sagði prinsinn áður en hann skaut. Hann hitti ekki í
skotmarkið og fékk að rífa af sér leppana til að reyna
á ný. Það gekk ekki heldur. „Svona, hættum þessu -
þetta er orðið vandræðalegt,“ sagði prinsinn eftir að
hafa skotið fjórum örvum - öllum fram hjá.
Leikkonan Amanda Sey- fried fékk rennblautan koss frá hundinum sín-
um um helgina þegar þau fóru í
göngutúr á götum Los Angeles.
Það er spurning hvort að kær-
astinn hennar, Dominic Coop-
er, hafi orðið afbrýðusamur
en myndirnar hafa vakið þó
nokkra athygli á vefmiðlum í
Bandaríkjunum.
Seyfried hefur verið að gera
það gott sem leikkona undan-
farið og lék meðal annars að-
alhlutverkið í hrollvekjunni
Jennifers Body á móti ofur-
skutlunni Megan Fox. Hún lék
einnig eitt af aðalhlutverkunum í
hinni ótrúlega vinsælu söngva-
mynd Mamma Mia! Þá er stúlkan
væntanleg í mynd, með Íslands-
vininum Gael García Bernal, sem
heitir Letters to Juliet.
Fyrirgefið Law hélt við
fóstruna á sínum tíma.
„GENGUR VEL“
Sienna Miller og Jude Law tekin aftur saman:
Vilhjálmur prins í bogfimi með bundið fyrir augun:
Flottur prins Vilhjálmur tók
sig vel út með leppana fyrir
augunum en hitti ekki neitt.
PRINSINN
HITTI
EKKERT
Leikarahjúin Sienna Miller og Jude Law eru byrjuð aftur saman eftir stormasam-an skilnað á sínum tíma. Ástæða hans var
að upp komst um framhjáhald Law með barn-
fóstru þeirra en fjögur ár eru liðin síðan. Á þeim
tíma hafa þau bæði verið með ýmsum aðilum
og hélt Sienna á tímabili við giftan mann, leik-
arann Balthazar Getty.
Hún sást hins vegar í desember yfirgefa íbúð
Laws snemma einn morgun og reyndist það
upphafið að sáttum þeirra. „Þetta gengur vel,“
sagði Miller um málið á tískusýningu á London
Fashion Week nýlega. „Ég er mjög hamingju-
söm. Hann er frábær.“ En Miller og Law voru á
sínum tíma trúlofuð.
Hamingjusöm Loksins náði
hún sáttum við Jude Law.
HUNDAKOSS
Amanda Seyfried fær einn rennblautan:
Amanda Seyfried
Þykir vænt um
hundinn sinn.
smaar@dv. is