Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2010, Blaðsíða 17
árabil, segir að Cameron og hans
mönnum bíði afar erfitt verkefni
um að ná samstöðu með frjálslynd-
um demókrötum. Bendir hann á þá
tillögu Camerons að beina breyt-
ingartillögum á kosningakerfinu
í nefnd og segir að hún muni ekki
hljóta hljómgrunn meðal frjáls-
lyndra. Þó sé ljóst að aldrei myndi
nást samstaða um það að Gordon
Brown leiði samsteypustjórn með
frjálsyndum demókrötum og fleiri
minni flokkum frá Skotlandi. Tel-
ur hann að Brown hafi sungið sitt
síðasta sem forsætisráðherra Bret-
lands.
Bretar vilja Brown burt
Breska blaðið The Sunday Times
lét gera könnun fyrir sig um helgina
þar sem fram kom að tveir þriðju
hlutar breskra kjósenda töldu að
Brown hefði átt að játa sig sigrað-
an strax á föstudag og segja af sér
embætti. 62 prósent aðspurðra
voru á þeirri skoðun en 28 prósent
sögðu rétt af Brown að doka við og
bíða eftir niðurstöðum viðræðna
íhaldsmanna og frjálslyndra. Helm-
ingur aðspurðra sagði að íhalds-
menn ættu að leiða nýja ríkisstjórn,
hvort heldur sem er í minnihluta-
stjórn eða í samsteypustjórn. Rúm-
lega þrjú þúsund manns tóku þátt
í könnuninni. Virðast Bretar vera á
þeirri skoðun að tími Browns sé lið-
inn og bendir flest til þess að hann
muni missa forsætisráðherrastólinn
í hendur Íhaldsflokksins.
Breskir stjórnmálaskýrendur
telja ekki ólíklegt að efnt verði til
nýrra þingkosninga áður en árið
er á enda. Cameron muni þannig
mynda minnihlutastjórn og leggja
stefnuskrá hennar í dóm kjósenda
innan nokkurra mánaða. Dav-
id Cameron mun þó að líkindum
kanna hvað kemur út úr viðræð-
unum við frjálslynda demókrata
áður en hann fer að ræða þær hug-
myndir.
FRÉTTIR 10. maí 2010 MÁNUDAGUR 17
BLESS, BLESS, BROWN
n Gordon Brown fæddist í Skotlandi
20. febrúar árið 1951 tók við embætti
forsætisráðherra Bretlands þann 27.
júní árið 2007. Áður en hann varð
forsætisráðherra
gegndi Brown
embætti
fjármálaráðherra
Bretlands á árun-
um 1997 til 2007
en enginn annar
ráðherra hefur
setið jafn lengi í
því embætti frá
árunum 1812
til 1823. Gordon Brown er sagnfræð-
ingur að mennt og gekk í Háskólann
í Edinborg þar sem hann varð rektor
meðan hann var enn við nám.
Það er óhætt að segja að Brown sé ekki
besti vinur Íslendinga eftir að Ísland var
sett á lista með hryðjuverkasamtökum
eftir efnahagshrunið haustið 2008.
Þýski fjölmiðlamaðurinn Max Kaiser
lýsti því í Silfri Egils í janúar á þessu ári
að Íslendingar ættu að kæra Brown
fyrir meiðyrði. Sagði Kaiser að það
hefði sett ljótan og svartan blett á
Ísland sem þjóð að vera stillt upp á
hryðjuverkalista.
Bakgrunnur
Gordons Browns
fjölmiðla eftir kosningar og seg-
ist bjartsýnn á að niðurstaða fá-
ist í viðræðurnar við Nick Clegg og
hans menn áður en langt um líður.
Þó svo að Íhaldsmenn séu almennt
bjartsýnir á það ekki við um frjáls-
lynda demókrata. Paddy Ashdown,
sem var formaður flokksins um
Stríðsglæpamaður skorinn á háls í bresku fangelsi:
Blóðug hefnd
Serbinn Radislav Krstic, sem nú af-
plánar 35 ára fangelsisdóm fyr-
ir stríðsglæpi, berst nú fyrir lífi sínu
á sjúkrahúsi eftir að þrír múslímar
réðust á hann um helgina í Wake-
field-fangelsinu og skáru hann á háls.
Krstic, sem er 62 ára, var dæmd-
ur árið 2004 fyrir aðild sína að þjóð-
armorðunum í Srebrenica á átta þús-
und bosnískum múslímum í stríðinu
í gömlu Júgóslavíu á tíunda ára-
tug liðinnar aldar. Eru fjöldamorðin
þau mestu í Evrópu frá tímum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Að því er fram
kemur í breskum fjölmiðlum tengist
árásin um helgina þessum atburðum
en að minnsta kosti einn af árásar-
mönnum hans var múslími frá Bosn-
íu.
Krstic var háttsettur herforingi í
röðum Bosníu-Serba og tók þátt í að
skipuleggja morðin. Aðeins Ratko
Mladic var háttsettari en hann innan
hersins en hann er enn á flótta und-
an réttvísinni eftir að hafa verið eftir-
lýstur í fjöldamörg ár.
Árásin er talin vera áfellisdóm-
ur yfir bresku fangelsismálakerfi þar
sem talið var nánast öruggt að hann
yrði skotspónn annarra fanga eins og
raunin varð. Er talið að árásin muni
draga dilk á eftir sér og mun rann-
sókn fara fram á því hvernig föng-
unum tókst að ráðast á Krstic. Eftir
að dómur í málinu var kveðinn upp
árið 2004 var Krstic fluttur til Bret-
lands þar sem hann hóf strax afplán-
un í Wakefield-fangelsinu. Þar eru
700 fangar og flestir þeirra eru fang-
ar sem gerst hafa sekir um alvarleg
kynferðisbrot. Lögmaður Krstic seg-
ir að farið verði fram á að hann verði
fluttur „þar sem augljóst sé að bresk
fangelsismálayfirvöld séu ófær um
að tryggja öryggi hans“.
einar@dv.is
Skorinn á háls Krstic var fórnarlamb
hrottalegrar árásar í Wakefield-fangelsinu
um helgina.
Geimvera vildi
fljúga farþegaþotu
Snúa þurfti flugvél SkyWest-flugfé-
lagsins við eftir að flugfarþegi lamdi
á hurð flugstjórnarklefans og hélt því
fram að hann væri geimvera. Hann
krafðist þess að fá að fljúga vélinni
sem var á leið til borgarinnar Salt
Lake City í Bandaríkjunum. Flug-
menn vélarinnar ákváðu að lenda
vélinni í Idaho Falls öðrum farþeg-
um til mikillar armæðu. Þegar lög-
reglan kom um borð í vélina höfðu
farþegar hennar þegar náð að yfir-
buga manninn, sem er 32 ára gamall
og heitir Matthew Kleinderhorfer. Er
þetta ekki í fyrsta sinn sem Kleind-
erhorfer heldur því fram að hann sé
frá annarri plánetu.
Skorinn upp vegna
æxlis
Læknar fjarlægðu æxli úr hægra
lunga Juans Carlos Spánarkonungs
síðstliðinn laugardag. Meinið var
ekki illkynja að sögn lækna og gekk
aðgerðin vel. Carlos er á batavegi
eftir aðgerðina og er hinn hressasti
að sögn lækna. Meinið uppgötvað-
ist í læknisskoðun 28. apríl síðstlið-
inn. Carlos er orðinn 72 ára og hefur
verið konungur Spánar í hart nær 35
ár. Síðastliðinn föstudag hitti hann
varaforseta Bandaríkjanna, Joe Bid-
en, en Biden er staddur í opinber-
um erindagjörðum í Evrópu. Meðal
annars mun hann ávarpa Evrópu-
þingið í vikunni.
Al Fayed selur
Harrods
Eftir að hafa rekið Harrods-versl-
anakeðjuna í um 25 ár hefur kaup-
sýslumaðurinn Mohamed Al Fayed
loksins ákveðið að selja hana. Það
er konungsfjölskyldan í Katar sem
kaupir verslunina og nemur kaup-
verðið einum og hálfum milljarði
punda. Ástæða þess að Al Fayed sel-
ur verslunina er sú að hann vill ein-
beita sér meira að fjölskyldu sinni
en hann er orðinn 77 ára gamall.
Mohamed Al Fayed er faðir Dodi Al
Fayed, unnusta Díönu prinsessu, en
þau létust í bílslysi árið 1997.
Heimsmet í
hummus-gerð
Líbanir og Ísralesmenn hafa lengið
staðið í diplómatískum deilum en
nú eru þessir tveir fornu fjendur
komnir í annars konar stríð; hvor
þjóðin getur búið til stærri skammt
af hummus.Um helgina settu kokkar
frá Líbanon heimsmet þegar þeir
bjuggu til tíu tonn af þessu gómsæta
kjúklingabaunamauki. Fyrra metið
settu einmitt Ísraelsmenn ekki alls
fyrir löngu þegar þeir bjuggu til fjög-
ur tonn. Fulltrúi frá heimsmetabók
Guinness staðfesti heimsmetið en
það voru 300 líbanskir kokkar sem
lögðu dag við nótt við að slá metið.