Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2010, Qupperneq 30
Sigga Lund er hætt í útvarps-
þættinum Zúúber á FM 957.
Síðasti þáttur hennar var á
föstudaginn en Sigga fékk mikil
viðbrögð þegar hún tilkynnti
um það á Facebook-síðu sinni.
Flestir lýstu sorg sinni vegna
ákvörðunarinnar og einhver
hafði á því orð að það hefði verið
í lagi að Gassi hætti en ekki hún.
En Gassi Ólafsson sagði einnig
skilið við þáttinn nýverið. Gassi
skrifaði svo sjálfur athugasemd
þar sem hann sagði Siggu þurfa
frið til að fæða barn en Sigga var
fljót að taka fyrir sprell kappans
en hún ber ekki barn undir belti.
„Eftir að ég las viðtalið og fór að
leggja saman hug minn og hug
hennar ákvað ég að gá hvort eitt-
hvað væri hægt að tengja okk-
ur saman,“ segir rúmlega sextug-
ur karlmaður sem vill bjóða Eygló
Gunnþórsdóttur, móður Ásdísar
Ránar, á stefnumót. Í nýjasta helg-
arblaði DV var viðtal við Eygló þar
sem hún bað „þann eina rétta“ um
að gefa sig fram. Og þessi maður,
sem vill ekki láta nafns síns getið,
hefur svarað kallinu.
Í viðtalinu segir Eygló að kær-
astinn sinn verði að geta komið
henni til að hlæja og svo sé hún
mikið fyrir hávaxna menn. Huldu-
maðurinn kveðst vera ríflega 180
sentímetrar á hæð, sé því ekki
mjög hávaxinn en samt enginn
trítill. „Og ég held mér mjög vel,
er ekki nema rúmlega 80 kíló. Ég
er dálítið mikill göngugarpur og
er reglumaður á áfengi. Þó er ég
ekki á móti áfengisneyslu.“ Hvað
húmorinn varðar er hann hvergi
banginn. „Ég er mjög geðgóður og
held að ég gefi mér af mér góðan
þokka,“ segir hann og hlær.
Vonbiðillinn er fráskilinn og á
tvo uppkomna syni. Hann starf-
aði lengst af í matvælaiðnaðinum
en missti vinnuna um síðustu ára-
mót og hefur nú fundið sér ann-
an starfsvettvang. Hann kveðst
vera með sín fjármál á hreinu, og
spurður út í hvernig stefnumótið
yrði ef Eygló myndi þekkjast boð-
ið segist hann vilja hafa samráð við
frúna um það.
„Ég er til í hvað sem er, að bjóða
henni í kaffi, mat eða bara hvað
sem er.“
DV lét Eygló hafa númerið hjá
huldumanninum og vonar að þau
finni hamingjuna saman.
kristjanh@dv.is
DRAUMAPRINSINN
HÆTT Í
ZÚÚBER
KARLMAÐUR Á SJÖTUGSALDRI SVARAR KALLI MÖMMU ÁSDÍSAR RÁNAR:
Anna Kristine fjölmiðlakona
er þekkt fyrir næmni sína og
opinská viðtöl í gegnum tíðina.
Hún þykir afar fær í að láta fólki
líða vel í spjalli við sig sem hefur
skilað mörgum frábærum við-
tölum. Hvort meðvirkni hafi þar
hjálpað til skal ósagt látið, en á
Facebook-síðu sinni segist Anna
allavega vera það meðvirk að
hún hafi áhyggjur af Kaupþings-
mönnunum sem nú dúsa í þeirri
einangrun sem fylgir gæslu-
varðhaldi. Hún hafi sent SMS á
ótilgreindan einstakling þar sem
hún velti fyrir sér hvort kapparn-
ir væru með lyfin sín, nikótín-
tyggjóið, Coca-Cola og banan-
ana. „Þetta er það sem ég þarf
með ef ég verð handtekin.“ Hún
fékk þó svar um hæl: „Don´t do
the crime, if you can´t do the
time.“
30 MÁNUDAGUR 10. maí 2010 FÓLKIÐ
GEFUR SIG FRAMEygló Helgarblaðið var nýkomið í verslanir þegar maðurinn hafði samband.
„Ég byrja um miðjan mánuðinn
á fréttavöktum bæði í útvarpi og
sjónvarpi og er fram að því bara að
fylgjast með og læra inn á þetta allt,“
segir Silja Úlfarsdóttir sem þekktust
er fyrir afrek sín á frjálsíþróttavell-
inum en mun láta ljós sitt skína á
nýjum vettvangi næstu mánuðina.
Hún hefur nefnilega verið ráðin
í sumarafleysingar á íþróttadeild
Stöðvar 2.
Silja er margfaldur Íslandsmeist-
ari og methafi í spretthlaupum í full-
orðins-, stúlkna- og unglingaflokki og
keppti ávallt fyrir FH hér á landi. Hún
lagði keppnisskóna á hilluna frægu
síðasta sumar og upphaf þessa nýja
starfs Silju má einmitt rekja til við-
tals sem Arnar Björnsson, yfirmaður
íþróttadeildar Stöðvar 2, tók við hana
eftir síðustu keppnina sem hún tók
þátt í.
„Ég sagði þá við hann að hann
ætti bara að ráða mig í vinnu og að
ég myndi bíða eftir símtali frá hon-
um. Svo hlógum við bara, en síðan
hringir Arnar í mig í lok apríl og seg-
ir að þetta sé símtalið. Það var mjög
skemmtilegt,“ segir Silja sem var þá
nýbúin að ráða sig í vinnu sem þjálf-
ari í Sporthúsinu. Starfstilboð Arnars
hafi hins vegar verið nokkuð sem ekki
væri hægt að neita. „Að fá borgað fyr-
ir að horfa á íþróttir og tala um þær -
ég meina, það gerist ekki betra! En ég
þjálfa samhliða fréttastarfinu niðri í
Sporthúsi, það gengur upp með góðri
skipulagningu.“
Silja segist vel að sér í flestum
íþróttagreinum. „Ég er alæta á sport.
Ég hef kannski verið minnst inni í
körfuboltanum, en íslenska karfan
er búin í bili þannig að ég þarf ekki
að hafa áhyggjur af því sem stend-
ur,“ segir hún og hlær. Silja segist líka
hafa æft handbolta og fótbolta áður
fyrr, auk þess sem hún hefur verið
með Íslandsmeistaraliði FH í fótbolta
í styrktarþjálfun í vetur. Hún efast þó
um að vera vanhæf til að fjalla um FH-
liðið þrátt fyrir þau tengsl.
Nokkuð langt er liðið síðan kona
var síðast íþróttafréttamaður á Stöð
2. „Mér skilst að það séu tíu ár síð-
an,“ segir Silja en eftir því sem hún
og blaðamaður komast næst var það
þegar Sigríður Hjálmarsdóttir Jóns-
sonar Dómkirkjuprests starfaði á
íþróttadeildinni. Hún kveðst ekki viss
hvers vegna nú hafi verið ákveðið að
ráða kvenmann á ný. „Ætli það sé ekki
bara af því að Arnari finnist ég svo
skemmtileg,“ segir Silja í léttum dúr.
Starf íþróttafréttamannsins er ekki
alveg það fjölskylduvænasta þar sem
mikið er um kvöld- og helgarvinnu.
Silja á eins árs gamlan strák, en óttast
þrátt fyrir það ekki árekstra vinnu og
fjölskyldulífs. „Ég og sambýlismaður
minn eigum svo frábæra fjölskyldu að
ég hef engar áhyggjur af þessu.“
kristjanh@dv.is
Hlaupadrottningin Silja Úlfarsdóttir er
nýr liðsmaður íþróttadeildar Stöðvar 2.
Hún er eftir því sem næst verður komist
fyrsti kvenkyns íþróttafréttamaðurinn
þar á bæ í tíu ár.
MEÐVIRK MEÐ
FÖNGUM
SILJA ÚLFARSDÓTTIR:
FYRSTA
KONAN
Í ÁRATUG
Silja Úlfarsdóttir Hefur hingað til verið þekktust fyrir afrek sín á íþróttasviðinu. Nú ætlar hún að segja frá afrekum annarra.
Reffileg Silja er til í hasarinn sem fylgir
íþróttafréttamannsstarfinu.