Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Blaðsíða 10
10 fréttir 10. nóvember 2010 miðvikudagur
Þrír hæfustu umsækjendurnir um
stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalána-
sjóðs hafa allir óskað eftir skrifleg-
um rökstuðningi með vali stjórnar-
innar í embættið í síðustu viku. Tveir
þeirra íhuga að bera málið upp við
umboðsmann Alþingis. Auk þess býr
Elín Sigrún Jónsdóttir, eina konan í
umræddum hópi, sig undir að bera
málið upp við kærunefnd jafnréttis-
mála.
Sigurður Erlingsson, umsækjand-
inn sem valinn var af meirihluta
stjórnar Íbúðalánasjóðs, var ekki í
hópi þeirra sem hæfastir voru taldir,
hvorki í fyrri né síðari umferð þegar
málið var komið í hnút og starfið var
auglýst aftur laust til umsóknar síð-
astliðið sumar.
Ný stjórn skipuð innan tíðar
Ráðning í stöðu framkvæmdastjóra
Íbúðalánasjóðs hefur staðið í um
sjö mánuði. Umsækjendur í fyrri at-
rennu voru vel á þriðja tug. Fimm
manna stjórn sjóðsins hefur síðasta
orðið um það hver valinn er í emb-
ættið. Hún var skipuð um áramótin
2006/2007 af Magnúsi Stefánssyni,
þáverandi félagsmálaráðherra, og
rennur umboð hennar út um ára-
mótin. Stjórnin er skipuð tveimur
fulltrúum Framsóknarflokksins,
tveimur fulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins og einum fulltrúa Samfylking-
arinnar. Það kemur í hlut Guðbjarts
Hannessonar, heilbrigðis- og félags-
málaráðherra, að skipa nýja stjórn
Íbúðalánasjóðs um áramótin.
Skyndileg kúvending
Af ráðningarferlinu öllu að dæma
fór stjórnin ítrekað á svig við þær
grundvallarreglur sem reifaðar eru í
áfangaskýrslu nefndar sem forsætis-
ráðherra fól að leggja fram tillögur
um breytingar á stjórnarráðinu. Á
endanum var hvorki fylgt grundvall-
arreglu um að velja þann hæfasta
samkvæmt faglegu mati né verklagi
sem hvílir á því að gerð séu skörp
skil milli pólitískra og faglegra sjón-
armiða.
Þá er ekki að sjá að stjórnvöld hafi
á samkvæman hátt fylgt reglu um að
skipa valnefnd til að fara sérstaklega
yfir umsóknir þeirra hæfustu. Eftir að
valnefnd, skipuð af Árna Páli Árna-
syni þáverandi félagsmálaráðherra,
ákvað að mæla ekki með neinum
umsækjanda var staðan auglýst aftur.
Þá sóttu 26 manns um stöðuna. Hag-
vangur valdi 12 af 21 umsækjanda til
að fjalla nánar um og skilaði stjórn
Íbúðalánasjóðs loks lista með nöfn-
um Yngva Arnar Kristinssonar, Vil-
hjálms Bjarnasonar, Elínar Sigrúnar
Jónsdóttur og Böðvars Þórissonar.
Að þessu sinni var engin óháð val-
nefnd fengin til að meta umsækjend-
ur sérstaklega.
Á stjórnarfundi í lok október
ákváðu fulltrúar Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks að styðja Böðv-
ar Þórisson og var hann kallaður til
fundar við stjórnina. Hann afþakkaði
hins vegar starfið á síðustu stundu af
ókunnum ástæðum.
Málið fyrir umboðsmann og
kærunefnd
Stjórn Íbúðalánasjóðs stóð nú
frammi fyrir því að velja milli þeirra
þriggja sem eftir voru meðal þeirra
sem metnir voru hæfastir. Í stað þess
að velja framkvæmdastjóra úr þeim
hópi var ákveðið að ráða Sigurð Er-
lingsson með atkvæðum Hákonar
Hákonarsonar, Gunnars S. Björns-
sonar, Elínar R. Líndal og Jóhanns
Ársælssonar. Kristján Pálsson studdi
Elínu Sigrúnu Jónsdóttur.
Eins og áður segir var Sigurður Er-
lingsson ekki í hópi þeirra fjögurra,
sem valið stóð um, hvorki í fyrri né
síðari atrennu. Engu að síður fengu
hinir þrír bréf frá Hagvangi í byrjun
mánaðarins þar sem greint var frá
því að sá hæfasti hefði verið skipað-
ur. Þetta stangast á við að Sigurður
Erlingsson var ekki í hópi fjórmenn-
inganna sem hæfastir þóttu, hvorki
að mati Capacent í fyrra skiptið né
að mati Hagvangs þegar starfið hafði
verið auglýst laust til umsóknar í síð-
ara skiptið.
Yngvi Örn, Vilhjálmur og Elín
Sigrún hafa öll beðið stjórn Íbúða-
lánasjóðs um skriflegan rökstuðning
með ráðningunni. Þau íhuga einnig
að fara með málið til umboðsmanns
Alþingis og Elín Sigrún kannar nú
möguleika á að bera málið undir
kærunefnd jafnréttismála.
Verðleikar og pólitík
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
áformar að gera umfangsmiklar
breytingar á stjórnarráðinu. Þær eiga
að miða að aukinni skilvirkni, fag-
legri vinnubrögðum, sveigjanleika
milli ráðuneyta, gagnsæi og loks
skarpari skilningi, getu og vinnu-
brögðum. Með þessu er ætlunin að
auka traust almennings til stjórnar-
ráðsins.
Með þetta að markmiði hefur for-
sætisráðherra sett á fót nefnd sér-
fræðinga sem hefur verið falið að
móta tillögur til umbóta. Nefndin
skilaði áfangaskýrslu í júní síðast-
liðnum, en síðari hluti skýrslunnar
er væntanlegur í þessum mánuði.
Nefndin telur að skýra þurfi
mörk pólitískra og faglegra ráðninga
starfsfólks innan stjórnarráðsins, en
það á hæglega við um Íbúðalána-
sjóð. Nefndin álítur að hefja þurfi
yfir allan vafa að fastir starfsmenn
stjórnsýslunnar séu ráðnir á fagleg-
um, gagnsæjum, sanngjörnum og
samræmdum forsendum. Nefndin
telur að óvissa um ráðningu og fram-
gang fagfólks og sérfræðinga vegna
pólitískra inngripa dragi úr trúverð-
ugleika stjórnarráðsins, trausti milli
starfsmanna og aðdráttarafli þess
sem starfsvettvangs. Á sama tíma
þurfi einnig að mæta þörf ráðherra
fyrir pólitíska ráðgjöf og aðstoð, án
þess að farið sé í kringum lög eða
reglur.
Vinnubrögð gamla Íslands?
„Stjórnarráð Íslands og stjórnsýslan í
heild glíma við trúverðugleikavanda
sem endurspeglast ekki síst í umræðu
um ófaglegar og jafnvel spilltar ráðn-
ingar. Því er haldið fram að fólk sé oft
ráðið á grundvelli pólitískra tengsla og
fyrirgreiðslu frekar en faglegra sjón-
armiða – flokksskírteini hafi meira að
segja við ráðningu og skipun í emb-
ætti en menntun, hæfni og reynsla.
Þótt erfitt sé að sanna eða afsanna að
slíkt eigi sér raunverulega stoð er ljóst
að minnsti grunur um tilvist þeirra
grefur undan trausti og trú á stjórn-
sýslunni, umboði hennar og ákvörð-
unum,“ segir orðrétt í skýrslunni.
Besta aðferðin til þess að auka
trúverðugleika ráðninga er að mati
skýrsluhöfunda að auka gagnsæi og
samræmi í verklagi og innleiða að-
gerðir sem fela í sér skarpari skil milli
hins pólitíska hluta stjórnsýslunnar og
þess faglega.
Þrír umsækjendur, sem metnir voru hæfastir til að gegna stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, hafa
óskað eftir skriflegum rökstuðningi með óvæntri skipun Sigurðar Erlingssonar í embættið. Hvorki Capa-
cent né Hagvangur töldu hann meðal hæfustu umsækjendanna. Nafn hans skaut upp kollinum á síðustu
stundu þegar stjórn sjóðsins var búin að ráða Böðvar Þórisson. Hann afþakkaði starfið á síðustu stundu.
Stjórnin sniðgekk engu að síður hina þrjá sem metnir höfðu verið hæfastir.
Nefndin telur að óvissa um
ráðningu og framgang
fagfólks og sérfræð-
inga vegna pólitískra
inngripa dragi úr trú-
verðugleika stjórnar-
ráðsins, trausti milli
starfsmanna og að-
dráttarafli þess sem
starfsvettvangs.
Óska rökstuðnings
og íhuga kærur
jóhaNN haukSSoN
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
ElÍN SigrúN jóNSdóttir – SóttieinnigumstöðuframkvæmdastjóraÍbúða-
lánasjóðafyrir12árumþegarGuðmundurBjarnason,fyrrverandiráðherrafyrir
Framsóknarflokkinn,varskipaðuríembættið.Húnerlögfræðinguraðmennt.
VilhjálMur BjarNaSoN–LektorviðviðskiptafræðideildHáskólaÍslands.Hann
hefurlátiðtilsíntakavarðandihagsmunamálalmennrafjárfestaoghefurfjallaðum
málefniÍbúðalánasjóðs.
YNgVi ÖrN kriStiNSSoN–HagfræðingurogfyrrverandiyfirmaðuríSeðlabanka
Íslands,Landsbankanumogvíðar.Árið1982varhannfenginntilaðgerarekstrar-
áætlanirfyrirHúsnæðisstofnunríkisinsvegnabreytingaáhúsnæðislánakerfinusem
þávoruádöfinni.Yngvivannaðþvíaðkomahúsbréfakerfinuáfótárið1989.Ífjögur
árvarhannstjórnarformaðurHúsnæðisstofnunarríkisins,undanfaraÍbúðalánasjóðs.
Þau biðja um rökstuðning og kæra:
Núverandi stjórn Íbúðalánasjóðs:
nHákonHákonarsonformaður
(Framsóknarflokkur)
nElínR.Líndal(Framsóknarflokkur)
nGunnarS,Björnsson(Sjálfstæðis-
flokkur)
nKristjánPálsson(Sjálfstæðisflokkur)
nJóhannÁrsælsson(Samfylkingin)
stjÓrnin Vandasamur málaflokkur Ríkisstjórninhefur
íhöndumáfangaskýrslusemfjallarítarlega
umþaðhvernigekkieigiaðskipaíopinberar
stöður.Ásamatímastefniríkærurvegna
skipunarframkvæmdastjóraÍbúðalánasjóðs.
Í hópi hinna hæfustu YngvarÖrnKristinssonvartalinnhæfasturífyrriatrennuen
hannhefurhaftafíbúðalánakerfinuaðsegjasíðan1982.
Í hópi hinna hæfustu ElínSigrúnJóns-
dóttirsóttieinnigumþegarGuðmundur
Bjarnason,fyrrverandiframsóknarráð-
herra,fékkstarfið.
Í hópi hinna hæfustu
VilhjálmurBjarnason,
lektorviðHáskólaÍslands,
hugsarsinngang,en
hannvareinnigíhópi
þeirrasemhæfastirþóttu.