Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 10. nóvember 2010 ÚTTEKT 23
101 gæðastund
suðrænir smáréttir – allir drykkir á hálfvirði
frá kl. 17.00 til 19.00 alla daga
hverfisgata 10
sími. 5800 101
101hotel@101hotel.is
www.101hotel.is
Flughræðsla
á ekkert skylt við skynsemi
Vert að hafa
í huga:
Forðastu millilendingar
Flest flugslys eiga sér stað við flugtak, við klifur, lækkun eða lendingu svo
auðveldasta leiðin til að minnka líkur á að lenda í slysi er að fljúga sjaldnar. Ef þú
getur ættirðu að reyna að forðast millilendingar.
Veldu stærri flugvél
Tölur sýna að líkur á að lifa af flugslys eru meiri ef um stórar vélar er um að
ræða.
Þekktu öryggið
Þótt þér finnist þú kunna ræðu flugþjónanna um öryggismál vélarinnar utan að
skaltu samt hlusta. Vertu viss um hvar næsti neyðarútgangur er staðsettur.
Ekki geyma þunga hluti uppi í farangursrýminu
Ef þú átt í erfiðleikum með að lyfta hlutum upp í farangursrýmið skaltu geyma
þá annars staðar. Ef til hristings kemur getur geymslan opnast.
Hafðu beltið spennt
Passaðu að beltið sé alltaf spennt þegar þú situr, til að forðast slys af völdum
hristings.
Hlustaðu á flugþjónana
Helsta ástæðan fyrir veru flugþjóna um borð hefur með öryggi farþega að gera.
Ef flugþjónn biður þig um að setjast og festa á þig belti skaltu hlýða möglunar-
laust.
Ekki taka hættuleg efni um borð
Listinn yfir hættuleg efni sem ekki mega vera um borð er langur. Notaðu
heilbrigða skynsemi og spurðu ef þú ert í vafa.
Láttu flugþjón hella heitum vökva
Flugþjónar eru þjálfaðir til að meðhöndla heita drykki á þröngum göngum
flugvélarinnar. Leyfðu þeim að vinna vinnuna sína.
Ekki drekka of mikið
Þú finnur meira á þér í mikilli hæð. Stilltu áfengisdrykkju í hóf.
Haltu athyglinni skarpri
Ef svo ólíklega vill til að þú lendir í óhappi í flugi skaltu fara eftir fyrirmælum
flugþjóna eða flugstjórans og yfirgefa vélina eins fljótt og auðið er.
Flugslys og
tölfræði
* Samkvæmt rannsókn Massachusetts
Institute of Technology er 19 sinnum
öruggara að ferðast með flugvél en bíl.
Banvæn flugslys eru undantekningin
á reglunni en fréttir af þeim rata alltaf í
fjölmiðla. Árið 1990 (valið af handahófi)
ferðuðust meira en 500 milljón farþegar
með flugvél. Af þeim létust 39 í flugslys-
um.
* Líkur á að deyja af völdum..
... flugslyss:1 á móti 7 milljónum.
... flugnabits: 1 á móti 5,5 milljónum.
... eldingu: 1 á móti 1,9 milljónum.
... reykingum (eftir þrítugt): 1 á móti 600.
... hjartasjúkdómum: 1 á móti 2.
* Ef þú flýgur á hverjum degi líða að
meðaltali 19 þúsund ár áður en þú deyrð í
flugslysi. 19 þúsund ár!
Árleg
banaslys
og orsök þeirra (bandarískar tölur):
100 látast í flugslysum.
850 látast vegna raflosts.
1.000 látast í hjólaslysum.
1.452 látast vegna voðaskots.
3.000 látast vegna læknamistaka.
5.000 látast í eldsvoða.
5.000 drukkna.
5.300 látast vegna eitrunar.
8.000 fótgangandi einstaklingar láta lífið
í umferðinni.
11 þúsund látast í vinnuslysum.
12 þúsund látast vegna falls.
22.500 látast heima við.
46 þúsund látast í bílslysum.
Þjáistu af
flughræðslu?
Finnst þér óþægilegt að vera inni í lokuðum eða
mannmörgum rýmum?
Finnst þér óþægilegt að vera innan um
ókunnuga?
Finnst þér óþægilegt að þurfa að treysta
öðrum eða tækninni fyrir öryggi þínu?
Finnst þér óþægilegt þegar aðrir segja
þér hvað þú átt að gera og hvað þú mátt
ekki gera?
Ertu lofthrædd/ur?
Finnst þér óþægilegt að vita af hafinu
undir þér?
Finnurðu fyrir höfuðverk, ógleði, spennu,
svima og öðrum líkamskvillum þegar þú
stígur upp í flugvél eða hugsar um að fljúga?
Ertu myrkfælin/n?
Finnst þér tilhugsunin um skoðun í tollinum
óþægileg?
Hugsarðu mikið um flugslys, flugrán og hryðjuverk tengd flugi?
Finnst þér erfitt að vera aðgerðarlaus í langan tíma?
Hefurðu fundið fyrir miklum kvíða þegar þú flýgur eða ert um það bil að stíga
um borð í flugvél?
Reynirðu að takmarka flug eftir bestu getu eða forðastu allt flug?
Reiðistu auðveldlega þegar þú ert í flugvél?
Hræðistu hljóð og aðgerðir sem eiga sér stað um borð?
Hefurðu áhyggjur af hristingi vélarinnar og veðri?
Óttastu hið ókunna?