Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Blaðsíða 15
Point.is en ekki Points.is Punktakerfi
ehf. má ekki nota lénið points.is þar sem áfrýjunarnefnd neyt-
endamála þykir hætta á að fólk geti ruglast á point.is. Point.is er
í eigu Point Transaction Systems á Íslandi ehf. og lénið var skráð
áður en points.is kom til skjalanna. Í úrskurði áfrýjunarnefndar
neytendamála segir að nefndin telji orðin í lénunum svo almenn
og lýsandi fyrir starfsemi fyrirtækjanna að ekki sé unnt að veita
öðru þeirra einkarétt á orðinu. Því fellir nefndin fyrri úrskurð
Neytendastofu úr gildi.
Dufthúðun of almennt Áfrýjunar-
nefnd neytendamála hefur ekki setið auðum höndum. Í
öðrum úrskurði staðfesti áfrýjunarnefndin úrskurð Neyt-
endastofu. Í úrskurðinum félst að Pólýhúðun ehf. mætti
ekki nota lénin dufthudun.is og dufthúðun.is. Neytenda-
stofu og áfrýjunarnefndinni þykir orðið „dufthúðun“ svo
almennt að Dufthúðun ehf. geti ekki notið einkaréttar á því.
Nánar má lesa um úrskurði áfrýjunarnefndar á vef Neyt-
endastofu, neytendastofa.is.
miðvikudagur 10. nóvember 2010 neytenDur 15
11. Við tjörnina
Templarasundi 3, Reykjavík
Verð fyrir aðalrétt: 4.000 – 6.000 kr.
Einkunn: 88% mæla með staðnum (af 15 álitsgjöfum)
„Svolítið dýrt en þú kynnist íslenskri matargerð.“
„Staður sem maður gleymir ekki – fínn matur.“
„Frábær gamaldags íslenskur matur. Sanngjarnt verð.“
12. Caruso
Þingholtsstræti 1, Reykjavík
Verð fyrir aðalrétt: 2.000 – 5.000 kr.
Einkunn: 94% mæla með staðnum (af 46 álitsgjöfum)
„Mætið snemma til að forðast langa bið. Er þó biðarinnar virði.“
„Fyrsta flokks þjónusta – frábær matur.“
„Besta humarsúpan í Reykjavík.“
13. Sægreifinn
Geirsgötu 8, Reykjavík
Verð fyrir aðalrétt: 1.500 - 2.500 kr.
Einkunn: 90% mæla með staðnum
(af 88 álitsgjöfum)
„Himnesk humarsúpa“
„Frábær og ódýr matur.“
„Ágætur matur í framandi umhverfi.“
14. Lækjarbrekka
Bankastræti 2 Reykajvík
Verð fyrir aðalrétt: 4.500 – 7.500
kr.
Einkunn: 88% mæla með
staðnum (af 31 álitsgjafa)
„Frábær matur í rómantísku umhverfi
– fullkominn Valentínusardagur.“
„Æðislegur staður fyrir æðislegan íslenskan fisk.“
„Eftirminnilegt kvöld.“
15. Tapas barinn
Vesturgötu 3b, Reykjavík
Verð fyrir aðalrétt: 4.000 – 6.000 kr.
Einkunn: 91% mæla með staðnum (af 59 álitsgjöfum)
„Frábær staður til að prófa sitt lítið af hverju.“
„Stórkostlegur matur en dimmir salir.“
„Skemmtilegt andrúmsloft og fjölbreyttur matur.“
16. Geysir
Aðalstræti 2, Reykjavík
Verð fyrir aðalrétt: 2.500 – 4.500 kr.
Einkunn: Allir mæla með staðnum (af 17 álitsgjöfum)
„Góður matur – góð þjónusta.“
„Ef þú kannt að meta hvalborgara.“
„Indæll veitingastaður – ágætt verð.“
17. Fjöruborðið
Eyrarbraut 3, Stokkseyri
Verð fyrir aðalrétt: 3.500 – 5.000 kr.
Einkunn: Allir mæla með staðnum (8 álitsgjafar)
„Aksturinn frá Reykjavík er vel þess virði.“
„Besta humarsúpa og besti humar sem ég
hef á ævinni smakkað.“
„Ein besta máltíð sem ég hef fengið.“
18. Eldsmiðjan
Bragagötu 38, Reykjavík
Algengt verð fyrir stóra pítsu: 2.600 kr.
Einkunn: Allir mæla með staðnum (10
álitsgjafar)
„Frábær eldbökuð pizza.“
„Uppáhalds pizzastaðurinn minn í öllum
heiminum.“
„Hefðbundin pizza.“
19. Bæjarins bestu
Tryggvagötu 10, Reykjavík
Verð fyrir pylsu og kók: 450 kr.
Einkunn: Allir mæla með staðnum (3 álitsgjafar)
„Bestu pylsur í heiminum.“
„Ég hélt ég vissi hvað pylsa var áður en ég heimsótti Ísland.“
„Þú kemur alltaf aftur.“
20. Fiskmarkaðurinn
Aðalstræti 12, Reykjavík
Verð fyrir aðalrétt: 2.500 – 3.500 kr.
Einkunn: 84% mæla með staðnum (39 álitsgjafar)
„Besti sjávarréttastaðurinn í Reykjavík.“
„Hágæða veitingastaður í miðbæ Reykjavíkur.“
„Góður fyrir þá sem kunna að meta asíska matargerð.“
Athugið að verðin eru fengin af heimasíðum veitingastaðanna, af
tripadvisor eða eftir símtöl til viðkomandi veitingastaða. Þau eru
birt með fyrirvara. Athugið einnig að á bak við suma veitingastaði
eru fáir álitsgjafar. Myndir eru yfirleitt af heimasíðum veitingastað-
anna og eru í þeirra eigu.
bestu veitingastaðirnir
8. 3 Frakkar
Baldursgötu 14, Reykjavík
verð fyrir aðalrétt: 3.000 – 4.000
kr.
Einkunn: 94% mæla með
staðnum (af 59 álitsgjöfum)
„Svo gott að við fórum tvö kvöld í
röð.“
„Vinalegt andrúmsloft.“
„Besti staðurinn ef þú vilt framandi
mat eins og lunda eða hval.“
9. Humarhúsið
Amtmannsstíg 1, Reykjavík
verð fyrir aðalrétt: 4.000 –
6.000 kr.
Einkunn: 96% mæla með
staðnum (af 42 álitsgjöfum)
„Einstök máltíð í frábæru
umhverfi.“
„Þjónustustúlkan var afar
vingjarnleg og glaðleg. Hún talaði
óaðfinnanlega ensku.“
„Matur í þessum gæðum er
hvergi ódýr.“
10. Á næstu grösum
Suðurlandsbraut 52, Reykjavík
verð fyrir rétt dagsins: 1.490 kr.
Einkunn: 94% mæla með staðnum (af 27 álitsgjöfum)
„Gómsætir grænmetisréttir á góðu verði.“
„Vinalegt starfsfólk og góð verð.“
„Fyrir 1.500 krónur geturðu fengið fullan disk af gómsætum mat.“