Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Blaðsíða 25
FÆR SIG EKKI LAUSAN Framherjinn Guðjón Bald- vinsson, sem lék með KR í sumar á láni frá sænska félaginu GAIS, fær sig ekki lausan frá félaginu en þetta kom fram í Fréttablaðinu. „Ég vildi losna þar sem ég á ekki von á því að mín staða hjá liðinu muni breytast,“ sagði Guðjón við Fréttablaðið. Guðjón á enn þrjú ár eftir af samningi sínum við félagið en hann hefur ekki enn spil- að leik með því vegna meiðsla. „Ég hef líka ekki áhuga á að vera hjá liði sem vill bara halda sér í deildinni á hverju ári,“ segir Guð- jón sem skoraði tíu mörk í þrettán leikjum með KR í sumar. GRÉTAR FÆR MIKIÐ LOF Landsliðsmanninum Grétari Rafni Steinssyni er mikið hampað af enskum fótboltapenn- um fyrir frammistöðu sína gegn Tottenham og þá sérstaklega hvernig hann tók á Gareth Bale, kantmanninum magnaða í liði Tot- tenham. „Grétar Rafn stjarnan í sigri Bolton,“ er skrifað á vefmiðilinn metro.co.uk og eru margir miðlar með sömu fyrirsögnina: „Grétar stöðvaði Tottenham.“ Siglfirðingurinn knái fór á kostum í leiknum og skoraði annað mark liðsins í 4–2 sigri. Hann var fyrir frammistöð- una valinn í lið vikunnar á soccernet.com og hjá Sky Sports. MOLAR BALLIÐ BYRJAR Í SAO PAULO n Opnunarhátíð heimsmeistara- mótsins í fótbolta árið 2014 og upphafsleikur mótsins fara að öllum líkindum fram í Sao Paulo en Brasilíu heldur keppnina eftir fjögur ár. Ricardo Texeira, forseti HM- nefndar Brasilíu, hitti yfirmenn borgarinnar á mánudaginn og í framhaldi af því mælti hann með því við FIFA að fyrsti dagurinn skildi haldinn í Sao Paulo. Þar á þó eftir að byggja nýjan og glæsilegan völl en það fer auðvitað eftir framkvæmdum þar hvort af verði. Yfirvöld Sao Paulo- borgar láta þetta tækifæri þó án efa ekki renna sér úr greipum þar sem fótbolti er auðvitað trúarbrögð í Brasilíu. COLE ÍHUGAÐI AÐ FARA n Ashley Cole, vinstri bakvörður Englandsmeistara Chelsea, íhugaði að yfirgefa félagið í sumar en knatt- spyrnustjórinn, Carlo Ancelotti, fékk hann af því. Cole hefur átt í miklum vandræðum í einkalífinu eftir framhjáhald og skilnað við hina vel liðnu Cheryl Cole og vildi hann flýja vandamál sín með því að yfirgefa London og England. „Ég settist niður með stjóranum og hann sagði mér einfaldlega að ég væri ekki að fara neitt. Sem betur fer segi ég bara því ég þarf ekkert að yfirgefa England. Ég var bara svolítið dapur í sumar vegna þess sem er að gerast í mínu einkalífi,“ segir Cole. ENGINN MCILROY Í AMERÍKU n Ungstirnið Rory McIlroy hefur ákveðið að keppa ekki á PGA-móta- röðinni í golfi á næsta ári sem þýðir að líklega verða þrír kylfingar af þeim tíu efstu á heimslistanum ekki á sterkustu mótaröðinni. Norður-Írinn ungi sagði bresk- um fjölmiðlum að hann vildi ekki spila í Ameríku á næsta ári en hann vill alls ekki keppa í FedEx- bikarnum þegar öll stórmótin eru búin. Á fyrsta ári sínu á PGA-móta- röðinni vann McIlroy lokamótið á Quail Hollow-vellinum og varð á meðal þriggja efstu manna á opna breska og PGA-meistaramótinu. VINNUR VONANDI MEÐ MEIRA EN SJÖ n Mikil umræða er innan Formúlu 1 hvort Fernando Alonso verði verðugur heimsmeistari takist honum að landa titlinum í Abu Dhabi næsta sunnudag. Alonso fékk sigurinn gefins frá Ferrari-liðinu í Þýskalandi í sumar þegar Massa var sagt að víkja fyrir honum en fyrir það var Ferrari sektað um 100.000 dollara. „Fernando er stórkostlegur ökumaður en margir eru óánægðir með það sem gerðist í Þýskalandi og spyrja sig hvort hann eigi heims- meistaratitilinn skilinn. Vonandi vinnur hann bara með meira en sjö stigum,“ segir Button en stigin sjö eru það sem hann græddi á svindli Ferrari-manna. MIÐVIKUDAGUR 10. nóvember 2010 SPORT 25 „Ég vonast til að getað byrjað aftur í þessari viku eða næstu,“ segir Sig- mundur Páll Lárusson, sjónvarps- stjóri netsjónvarpsstöðvarinnar Sport TV, sem hefur sýnt beint frá íþróttaviðburðum á netinu und- anfarin tvö ár án endurgjalds. Hef- ur Sport TV tekið N1-deildirnar í handbolta föstum tökum en síð- asta vetur var einnig sýnt mikið frá körfunni sem og lýsingar hafa verið frá fimleikum, blaki, Tae Kwon Do og fleiru. Um miðjan október féll niður bein lýsing á leik Fylkis og Fram í N1-deild kvenna sem og karlaleikur á milli FH og Selfoss tveimur dög- um síðar. Hefur síðan ekki spurst til stöðvarinnar meir en ástæðan er einfaldlega sú að fjármagn skortir til að halda áfram. „Það er unnið að endurfjár- mögnun,“ segir Sigmundur sjón- varpstjóri. „Það gekk bara ekkert að fá peninga frá fyrirtækjum. Það var bara eins og allt væri frosið. Við vorum með nokkra fasta samninga og svo höfðum við oft fengið góða menn til að hjálpa okkur sem voru tilbúnir að gera það án greiðslu. En það þarf alltaf að kaupa eitthvað og gera og það kostar peninga. Þá var ég að borga úr mínum eigin vasa eða taka lán. Þetta hefur auðvit- að verið gaman en þetta gekk ekki svona lengur,“ segir Sigmundur sem vonast til að geta haldið áfram sem fyrst. „Við höfum fengið frábær við- brögð við þessu framtaki frá byrj- un. Eftir að við duttum niður höfum við verið að fá símtöl meðal annars utan úr heimi frá Íslendingum sem búa erlendis en vilja sjá liðin sín spila. Þetta kemur samt verst niður á landsbyggðinni myndi ég halda,“ segir Sigmundur en stuðnings- menn efsta liðs N1-deildarinnar, Akureyrar, hafa jafnan horft saman á útsendingar Sport TV á einhverri knæpu norðan heiða. „Ég ætla aftur í loftið þegar ég er kominn með átta samninga. Mig vantar enn tvo upp á það,“ segir Sig- mundur Páll Lárusson. tomas@dv.is Netsjónvarpsstöðin Sport TV hefur ekki verið lögð niður: Vantar tvo auglýsingasamninga ÖLLU TJALDAÐ TIL Í DANMÖRKU Íslandi hrósað fyrir spila- mennskuna „Það kom auðvitað mörgum á óvart að við komumst á lokamótið,“ svar- ar Tómas aðspurður um samtöl þeirra við forsvarsmenn hinna þjóð- anna. „Það eru samt margir sem segja að það sé ánægjulegt að sjá Ís- land hérna. Það eru auðvitað marg- ir búnir að sjá leiki okkar og hrós- að okkur fyrir spilamennskuna. Við erum auðvitað það lið sem skorar mest í Evrópu. Við erum að spila skemmtilegan bolta og af því eru menn hrifnir,“ segir Tómas en hvað með framhaldið, verður nú farið í að skipuleggja æfingaleiki? „Það á eftir að ganga endanlega frá öllu svoleiðis en ég býst við að við fáum einn til tvo æfingaleiki. Þetta verður samt allt að vinnast saman með A-landsliðinu. Ef það er hægt að koma þessu fyrir á dögum sem það er ekki að spila væri það besti kosturinn. Eitt veit ég og það er að við munum núna liggja yfir mynd- upptökum fram að fyrsta leik en það er svo sem það sem við erum bún- ir að vera að gera. Ég veit ekki hvort það sé hægt að gera það mikið bet- ur,“ segir Tómas Ingi Tómasson, að- stoðarþjálfari U21 árs landsliðsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.