Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 10. nóvember 2010 FRÉTTIR 13 Margir helstu lykilmanna í íslensku efnahagslífi á árunum fyrir hrun eru fluttir af landi brott. Árni Mathiesen er nú á leið til Ítalíu og Pálmi Haraldsson flutti frá Bretlandi til Lúxemborgar þar sem hann hittir fyrir fjölmarga fyrrverandi lykilstjórnendur í föllnu bönkunum. Ekki er nóg að flytja úr landi til að sleppa undan skatti, segir ríkisskattstjóri. EKKI SJÁLFKRAFA LAUSIR VIÐ SKATT Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, fékk nýlega starf hjá Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna í Róm. Árni bætist þar með í hóp helstu lykilmanna ár- anna fyrir hrun sem fluttir eru af landi brott. Eins og fram hef- ur komið býr Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, einn- ig erlendis en hann er í vænu starfi hjá Norrænu ráðherranefndinni í Danmörku. Þar nýtur hann starfs- kjara sem íslensk upplýsingalög ná ekki einu sinni til. Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir vildi einnig komast af landi brott. Hún sótti um starf sem mansalsfulltrúi hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu. Hún fékk hins vegar ekki starfið. Auk tveggja fyrrverandi ráðherra í rík- isstjórn Íslands eru flestir af helstu lykilmönnunum í viðskiptalífinu síðustu ár búsettir erlendis. Í vik- unni bættist svo Pálmi Haraldsson í sístækkandi hóp útrásarvíkinga sem hafa flutt af landi brott. Margir þeirra voru hins vegar þegar farnir fyrir hrun. Ekki sjálfgefið að sleppa Þrátt fyrir að sumir þeirra hafi gef- ið vilyrði um að leggja sitt af mörk- um við endurreisnina eru þeir ekki einu sinni með skráð lögheimili hér á landi. Fullyrða má að í sum- um tilfellum sleppi þeir sem búa erlendis við að borga skatt hér á landi. Skúli Eggert Þórðarson rík- isskattstjóri segir það þó vera mis- skilning að það dugi að flytja lög- heimili úr landi til þess að sleppa við að borga skatt á Íslandi. Að- spurður hvort ríkissjóð muni ekki verulega um að þeir sem enn eru með stór fyrirtæki í öflugum rekstri borgi ekki skattana sína hér á landi segist Skúli ekki geta svarað því þar sem eðli málsins samkvæmt viti hann ekki hverju þeir skili af sér. „Það er nú reyndar algengur misskilningur að menn haldi að þeir geti forðast skattlagningu með því að flytja lögheimilið eitt og sér. Það skiptir máli hvar helstu athafn- ir þeirra eru. Það eru auðvitað þó nokkuð mörg dæmi um að skatta- yfirvöld hafi úrskurðað menn sem búa erlendis inn á skrá. Það er alltaf eitthvað um það en það fer eftir öll- um aðstæðum.“ Er þetta sérstakt úrræði sem rík- isskattstjóri beitir? „Það er ákvæði um að samningsríki geti komið sér saman um hvar skattlagning fer fram. Það skiptir máli hvar aðal- starfsemi viðkomandi fer fram. Það eru fleiri atriði sem koma þar inn í, svo sem hversu marga daga menn eru í viðkomandi ríki,“ segir Skúli. En er ekki eftir heilmiklu fyrir skattinn að slæðast í þessum efn- um? „Við fylgjumst reglulega með hvernig þetta gengur og það eru alltaf dæmi á hverju ári um að við úrskurðum menn inn á skrá. Það eru líka dæmi um að við úrskurð- um menn út af skrá.“ Umsvif skipta máli Í samantekt frá embætti ríkisskatt- stjóra segir að skatturinn hafi heim- ild samkvæmt tekjuskattslögum til að úrskurða um heimilisfesti manna telji embættið að lögheim- ilisskráning í þjóðskrá sé ekki rétt. Þessa heimild getur ríkisskattstjóri notað til að úrskurða um hver beri fulla skattskyldu á Íslandi. Þetta á við þó að lögheimili sé skráð erlend- is eða að einhver sé ekki með fulla skattskyldu hér vegna þess að hann er með heimilisfesti erlendis, þrátt fyrir að lögheimli sé skráð hérlend- is. Þættir sem teknir eru inn í þegar úrskurðað er um hvort menn eigi að borga skatt hér á landi eru til dæm- is dagafjöldi sem viðkomandi er á Íslandi og íbúðarhúsnæði sem við- komandi á eða hefur aðgang að hér á landi. Þá eru tekjuöflun og fjár- málaumsvif einnig skoðuð. VALGEIR ÖRN RAGNARSSON blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Það er ákvæði um að samn- ingsríki geti komið sér saman um hvar skatt- lagning fer fram. Halldór J. Kristjánsson – Kanada Jón Þorsteinn Jónsson – Bretland Steingrímur Wernersson – Bretland Magnús Ármann – Bretland Hannes Smárason – Bretland Lárus Welding – Bretland Lýður og Ágúst Guðmundssynir – Bretland Björgólfur Thor Björgólfsson – Bretland Jón Ásgeir Jóhannesson – Bretland Sigurður Einarsson – Bretland Magnús Þorsteinsson – Rússland Halldór Ásgrímsson – Danmörk Bjarni Ármannsson – Noregur Árni M. Mathiesen – Ítalía Ólafur Ólafsson – Sviss Heiðar Már Guðjónsson – Sviss Hreiðar Már Sigurðsson – Lúxemborg Pálmi Haraldsson – Lúxemborg Magnús Guðmundsson – Lúxemborg Ingólfur Helgason – Lúxemborg Steingrímur Kárason – Lúxemborg Jón Helgi Guðmundsson – Lettland Þrátt fyrir að sumir þeirra hafi gefið vilyrði um að leggja sitt af mörkum við endurreisnina eru þeir ekki einu sinni með skráð lögheimili hér á landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.