Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2010, Síða 14
Dísilolía Algengt verð verð á lítra 198,6 kr. verð á lítra 1198,6 kr. Algengt verð verð á lítra 198,4 kr. verð á lítra 198,4 kr. Algengt verð verð á lítra 199,9 kr. verð á lítra 199,7 kr. bensín Akureyri verð á lítra 198,3 kr. verð á lítra 198,3 kr. Melabraut verð á lítra 198,4 kr. verð á lítra 198,4 kr. Algengt verð verð á lítra 198,6 kr. verð á lítra 198,6 kr. Enginn bíll ársins Félag íslenskra bílablaðamanna sér engan tilgang í því að velja bíl ársins á Íslandi, eins og yfirleitt er gert. „Val á bíl ársins hefur ekki farið fram á Íslandi síðan efnahags- hrunið varð og innflutningur og sala nýrra bíla hrundi og hefur ekki enn náð sér á strik. Félag íslenskra bílablaðamanna sem stóð að því að velja bíl ársins á Íslandi hefur ekki séð tilgang í því að velja bíl ársins þegar innflutningur nýrra bíla til landsins er nánast enginn. Enn- fremur hefur öll umfjöllun um bíla í fjölmiðlum dregist mjög saman og er vart svipur hjá sjón miðað við það sem hún var fyrir nokkrum árum,“ segir á vef FÍB en þar má sjá hvaða bíla nágrannalöndin hafa valið. rándýrAr rúðu- þurrkur n Lastið fær Brimborg fyrir óhóflega verðlagningu á varahlutum. „Mig vantaði eina litla gúmmíhosu fyrir ljósaperu á framljósi. Hún kost- aði á níunda þúsund krónur,“ sagði forviða viðskiptavinur. Hann vantaði einnig rúðuþurrkublöð fyrir bílinn sinn. Þau kost- uðu 9.500 krónur. Hann gekk út hosu- og þurrkulaus. „Mér blöskrar svona okur,“ sagði hann í samtali við DV. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Ódýrir skArtgripir n „Ég fór í nýju skartgripabúðina Six í Smáralindinni. Þeir lofuðu verði sem ekki hefði sést áður. Það stemmdi. Þar er hægt að fá flotta hringa á þúsund krónur sem kosta að lágmarki þrjú þúsund krónur í öðrum ónefndum verslunum,“ sagði viðskipta- vinur sem hafði samband við DV. Hann var hæst- ánæður með búðina og sagðist hafa gert mjög góð kaup í skart- gripum. LOF&LAST 14 neyTendur UmSjóN: baldur guðmundsson baldur@dv.is 10. nóvember 2010 miðvikudagur LíTiLL munur á kynjum Könnun FÍB leiddi í ljós að jafn marg- ir telja karla betri ökumenn en konur og öfugt. Ríflega 1.250 svöruðu könnun um það hvort karlar eða konur væru betri ökumenn. 49,9 prósent svarenda töldu karla betri ökumenn en 50,1 prósent töldu konur hæfari ökumenn en karla. „Ekki er ólíklegt en að þetta endurspegli raunveruleikann allvel því að flestar rannsókn- ir sem við höfum spurnir af  benda ekki til þess að einhverskonar kynbundinn munur fyrirfinnist á hæfni fólks til að aka bílum. Hins vegar benda sumar rann- sóknir til þess að karlmenn hafi stundum meiri trú á því að þeir séu afbragðs öku- menn en konur hafa en það er eins og gefur að skilja allt annað mál,“ segir á FÍB.is.e L d S n e y T i Vefsíðan tripadvisor.com er vettvangur þar sem ferðamenn og aðrir geta sagt skoðanir sínar á þeirri þjónustu sem þeir fá á ferðalögum, hvort sem um er að ræða á hótelum, í flugvélum eða á veitingastöð- um. DV hefur tekið saman þá 20 veitinga- staði sem eru bestir á Íslandi að mati not- enda tripadvisor. Glöggt er gests augað. 20 1. FiskfélagiðVesturgötu 2, Reykjavíkverð fyrir aðalrétt: 3.800 – 6.500 kr.Einkunn: 96% mæla með staðnum (af 25 álitsgjöfum)„Steinbíturinn og lambið stóð upp úr hjá mér en reyndar var maturinn meira og minna allur frábær.“ „Hver einasti réttur var fallega upp settur og hver einasti biti eins og lítið ævintýri.“ „Við féllum fyrir notalegu andrúmsloftinu og vingjarnlegum þjónum.“ bestu veitingastaðirnir 2. Indian Mango Frakkastíg 12, Reykjavík verð fyrir aðalrétt: 1.900 – 2.400 kr. Einkunn: 92% mæla með staðnum (af 82 álitsgjöfum) „Gómsætur matur og vinalegt andrúmsloft.“ „Þetta er frábær staður til að snæða kvöldverð.“ „Líklega besti matur á Íslandi.“ 3. Harry’s Rauðarárstíg 37, Reykjavík verð fyrir aðalrétt: 1.100 - 1.500 kr. skv. tripadvisor.com Einkunn: allir mæla með staðnum (8 álitsgjafar) „Harry’s er frábær í alla staði.“ „Þú munt ekki sjá eftir því að prófa þennan stað.“ „Verðin voru mjög hagstæð samanborið við önnur í borginni.“ 4. Icelandic Fish&Chips Tryggagötu 8, Reykjavík verð fyrir aðalrétt: 990 – 1.290 kr. Einkunn: 95% mæla með staðnum (af 97 álitsgjöfum) „Besti fiskur og franskar sem ég hef fengið.“ „Fékk fisk, franskar, laukhringi og skyrsósu á 2.500 krónur.“ „Ég hélt ég hefði valið illa.“ 5. Sjávarkjallarinn Aðalstræti 2, Reykjavík verð fyrir aðalrétt: 4.190 – 6.490 kr. Einkunn: 93% mæla með staðnum (af 45 álitsgjöfum) „Frekar dýr matur en sannarlega þess virði að leyfa sér þegar maður er í fríi.“ „Humarinn er sá besti sem ég hef fengið en ég varð fyrir vonbrigðum með sushi-ið.“ „Stórkostlegur matur í heimsklassa.“ 6. Café Haiti Geirsgötu 7b, Reykjavík verð fyrir kaffibolla: 250 – 350 kr. Einkunn: 96% mæla með staðnum (af 25 álitsgjöfum) „Café Haiti var hápunktur Íslandsdvalar minnar.“ „Lítill gimsteinn við höfnina.“ „Pínulítill staður en vinalegur – frábært kaffi.“ 7. Dill restaurant Norræna húsinu Sturlugötu 5, Reykjavík verð: 1.800 kr. fyrir rétt dagsins í hádegi. mun dýrara á kvöldin; val um 3, 5 eða 7 rétti. Einkunn: allir mæla með staðnum (8 álitsgjafar) „Brautryðjendur í norrænni matar- gerð. Ekki missa af þessum stað.“ „Sannarlega upplifun sem þú mátt ekki missa af, þrátt fyrir verðið.“ „Best geymda leyndarmálið.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.