Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Side 2
2 fréttir 15. nóvember 2010 mánudagur
Karl Wernersson, fyrrverandi eigandi
Milestone og eigandi Lyfja og heilsu,
hefur greitt móðurfélagi Lyfja og
heilsu, Aurláka, rúmlega 389 millj-
óna króna arð út úr lyfjabúðunum
síðastliðin tvö ár. Þetta kemur fram
í óbirtum reikningum Lyfja og heilsu
sem DV hefur undir höndum. Eig-
endur Lyfja og heilsu hafa ekki skil-
að ársreikningi síðan árið 2007. Karl
segir aðspurður að arðurinn hafi ver-
ið notaður til að greiða afborganir af
milljarða króna skuldum Aurláka við
Íslandsbanka.
Heimild var til staðar hjá Lyfj-
um og heilsu til að greiða út arðinn
en rekstrarhagnaður var góður bæði
árin, tæpar 600 og 300 milljónir.
Rekstrartekjurnar voru 6,6 milljarð-
ar króna árið 2009. Rekstrarhæfi fé-
lagsins er sömuleiðis gott og er ljóst
af tölunum að Lyf og heilsa er öfl-
ugt fyrirtæki þó skuldirnar séu háar,
rúmlega 1.700 milljónir árið 2009.
Aurláki er einnig afar skuldsettur.
Lyf og heilsa er í eigu eignarhalds-
félagsins Aurláka, sem aftur er í eigu
þeirra Karls og Steingríms Werners-
sona. Aurláki keypti Lyf og heilsu af
öðru félagi í eigu þeirra bræðra, L&H
Eignarhaldsfélagi, í lok mars 2008
fyrir rúma 3,4 milljarða króna.
Skiptastjóri þrotabús Milestone,
Grímur Sigurðsson, hefur verið með
til skoðunar hvort hægt sé að rifta
sölunni á hlutabréfum L&H Eign-
arhaldsfélags til Aurláka á þeim for-
sendum að félagið hafi ekki verið
gjaldfært á þeim tíma sem viðskipt-
in áttu sér stað og hvort salan hafi
snúist um að koma eignum und-
an búinu. L&H Eignarhaldsfélag
var dótturfélag Milestone og því til-
heyrðu lyfjaverslanirnar Milestone.
Lyf og heilsa er eina stóra eign-
in sem eftir er í viðskiptaveldi þeirra
Wernerssona en meðal þess sem þeir
hafa misst frá bankahruninu 2008 er
Sjóvá, Askar, Avant og eignarhlutur í
Glitni.
Arðurinn til Íslandsbanka
segir Karl
Karl Wernersson, sem í dag er for-
stjóri Lyfja og heilsu, staðfestir að
arðurinn hafi verið greiddur út.
Hann segir að Aurláki hafi notað arð-
inn til að greiða afborganir af skuld-
um félagsins við Íslandsbanka. „Aur-
láki lét bankann hafa hann... Er það
mjög vont?“ segir Karl. „Eins og hjá
öllum fyrirtækjum og heimilum í
landinu fer hver aukakróna sem til
er til bankanna í dag... Hefði það ekki
verið meira krassandi ef ég hefði get-
að tekið peningana út og gert eitt-
hvað við þá? Það hefði verið meiri
frétt,“ segir Karl. Hann segir að þeir
bræður hafi ekki tekið neinn arð per-
sónulega út úr Aurláka frá því félag-
ið eignaðist Lyf og heilsu. „Þú tekur
þessu svo bara eins og hverju öðru
hundsbiti,“ segir forstjórinn. Árs-
reikningum Aurláka fyrir árin 2008
og 2009 hefur heldur ekki verið skil-
að til ársreikningaskrár.
Steingrímur Wernersson, hinn
eigandi Aurláka, vildi ekki tjá sig við
DV þegar hann var spurður út í arð-
greiðslurnar: „Ég ætla ekki að tjá mig
neitt um slíkt. Þakka þér bara fyrir að
hringja,“ sagði Steingrímur í samtali
frá London þar sem hann er búsett-
ur. Óljóst er hvort, og þá hversu mik-
ið, Steingrímur kemur að starfsemi
Lyfja og heilsu í dag en greint hefur
verið frá því í DV að þátttaka hans í
starfsemi Milestone hafi verið mjög
takmörkuð.
Átti að greiðast við fyrsta
hentugleika
Aurláki greiddi ekkert beint til Mil-
estone fyrir Lyf og heilsu árið 2008
heldur tók félagið yfir 2,5 millj-
arða skuld L&H Eignarhaldsfélags
við Glitni, sem í dag heitir Íslands-
banki, auk þess sem 900 milljón-
ir voru greiddar með skuldajöfnun
með viðskiptakröfum sem keyptar
voru í skattaskjólinu Seychelles-eyj-
um. Í kaupsamningnum á milli L&H
Eignarhaldsfélags og Aurláka kom
fram að fyrrnefnda félagið veitti því
síðarnefnda seljendalán sem greið-
ast skyldi „við fyrsta hentugleika“.
Þessi upphæð var svo greidd með
áðurnefndri skuldajöfnun. Reikna
má með að skuldir Aurláka hafi tvö-
faldast frá því viðskiptin með Lyf og
heilsu áttu sér stað.
Bræðurnir komust að sam-
komulagi við Íslandsbanka í mars
2009 um að bankinn tæki hluta-
bréf þeirra í lyfjaverslunum að veði
vegna útistandandi skuldar þeirra
við bankann sem stofnað var til árið
2004. Arðgreiðslan frá Lyfjum og
heilsu hefur væntanlega verið notuð
til að greiða af þessum skuldum.
Vændir um lögbrot í Aurláka-
viðskiptunum
Í skýrslu Ernst og Young, sem unnin
var fyrir þrotabú Milestone, eru eig-
endur Milestone vændir um lögbrot
í viðskiptum Aurláka með hlutabréf í
Lyfjum og heilsu.
Í skýrslunni segir að tæpur millj-
arður af greiðslu Aurláka fyrir Lyf og
heilsu hafi verið greiddur ári eftir
að viðskiptin áttu sér stað í lok mars
2008. Í skýrslunni segir: „Það virð-
ist því sem viðskiptin með kröfuna á
Aurláka ehf., hafi í raun átt sér stað í
febrúar 2009, en hafi hinsvegar ver-
ið dagsett aftur í tímann og færð á
dagsetninguna 31. mars 2008. Ef það
er raunin, er hér um að ræða brot á
lögum um bókhald.“ Viðskiptin með
kröfuna sem notuð var til að greiða
þann hluta viðskiptanna sem ekki
var yfirtaka skulda virðist því hafa átt
sér stað löngu eftir að viðskiptin áttu
sér stað.
Aurlákaviðskiptin eru eitt af
rúmlega 20 riftunarmálum sem
Eins og hjá öllum fyrirtækjum og
heimilum í landinu fer
hver aukakróna sem til
er til bankanna í dag.
FÉKK 389 MILLJÓNA ARÐ
FRÁ LYFJUM OG HEILSU
Nærri 400 milljóna arður eignarhalds-
félagsins Aurláka, móðurfélags Lyfja og
heilsu, rann til Íslandsbanka samkvæmt
Karli Wernerssyni, eiganda og forstjóra
lyfjabúðanna. Arðurinn kemur fram í
óbirtum reikningum frá Lyfjum og heilsu
sem DV hefur undir höndum. Karl gæti
misst Lyf og heilsu ef þrotabú Milestone
fær sölunni á Lyfjum og heilsu rift. Karl
segir hverja aukakrónu frá Lyfjum og
heilsu fara upp í skuldir.
ingi f. VilhjÁlmsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Öflugt fyrirtæki RekstrarhæfiLyfjaogheilsu
ergottogerljóstaðmargirmunirennahýru
augatilfyrirtækisinsefþaðverðurtekiðaf
KarliogSteingrímiogselthæstbjóðanda.
Félagiðerhinsvegarafarskuldsett.